Stangveiðitímabilið hefst formlega á morgun. Þá hefst vorveiði á sjóbirtingi í nokkuð mörgum ám og einnig opna fyrstu vötnin. Langvinnandi frostakafli nánast allan marsmánuð gerði það að verkum að ár lagði og ekki blés byrlega fyrir veiðimönnum sem ætluðu að opna þessi veiðisvæði.
En það hlýnaði í gær og stefnir í að flestar ár verði veiðanlegar þó að stöku veiðistaðir verði kannski með skörum og ís. Jón Hrafn Karlsson, einn af leigutökum Eldvatns í Meðallandi var á ferð fyrir austan í gær og sagði hann að mikill ís væri á Skaftá og Geirlandsá en hlýindin og rigning með þeim myndu án efa breyta stöðunni hratt. Tungulækurinn er að opna sig og Eldvatnið í toppmálum.
Forvitnilegt verður að sjá hvernig gengur í Leirá í Melasveit en þar hafa undanfarin ár verið stórir dagar í veiði fyrstu dagana. Sama ætti að vera uppi á teningnum þar hvað varðar aðstæður og ættu veiðimenn að geta veitt þessa litlu sjóbirtingsá á morgun.
Af öðrum ám má nefna Minnivallalæk og svo hafa veiðimenn í Ytri – Rangá oft gert góða veiði í upphafi vorveiðinnar.
Fyrir þá sem hafa hug á að fara í Vífilsstaðavatn er útlitið gott, allavega hvað varðar aðgengi að vatninu en það er að stórum hluta orðið íslaust og ættu veiðimenn að geta athafnað sig auðveldlega þar.
Ónafngreindur veiðimaður kom að máli við Sporðaköst í gær og lýsti mikilli gleði með að veiðitíminn væri loksins að renna upp. Og hvert ertu að fara að veiða? „Ég er ekki að fara neitt. Fer ekki fyrr en í sumar. Mér líður bara svo miklu betur að vita að ég get núna farið að veiða,“ sagði hann og brosti sínu breiðasta.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |