Hrafn H. Hauksson er einn af þeim sem staðfest hefur að sjóbirtingsárnar í Vestur – Skaftafellssýslu eru allar að geyma sjóbirtinga í yfirstærð sem þekktist ekki fyrir nokkrum árum. Við höfum fjallað mikið um sjóbirtingsævintýrið á Suðurlandi upp á síðkastið. Raunar má ekki gera lítið úr öðrum svæðum, eins og Eyjafjarðaránni og Húseyjarkvísl en uppgangur sjóbirtingsins er hreinum ólíkindum víðast hvar á landinu. Ölfusá er gott dæmi um þetta en þar hefur sjóbirtingsgengd vaxið til mikilla muna á allra síðustu árum.
Virðast fara saman hagfelld skilyrði fyrir birtinginn og um leið hefur veiða og sleppa fyrirkomulagið haft einkar jákvæð áhrif.
Sporðaköst settu sig í samband við Hrafn en hann landaði nýlega afar þykkum og miklum sjóbirtingi úr Ytri – Rangá. En það er bara einn af mörgum í níutíu plús flokknum sem Hrafn hefur veitt í vor og síðastliðið haust.
94 sentímetrar úr Ytri - Rangá.
Síðasti stórfiskurinn sem Hrafn landaði var í Ytri – Rangá. Hann setti í hann á Fossbreiðu og mældist hann 94 sentímetrar og eins og myndin af honum ber með sér er hann virkilega vel haldinn og líkist frekar haustfiski en vorfiski. „Þetta er einhver mögnuð seiðæta,“ sagði Hrafn aðspurður um fiskinn. Hann tók Collie Dog áltúpu í yfirstærð og það á „mígandi strippi“ eins og hann orðaði það. Hann tekur fast á sínum fiskum en var engu að síður rúmar tuttugu mínútur með þennan mikla og þykka fisk. „Hann hefur verið tíu til ellefu kíló, miðað við lengd og ummál.“
91 sentímetra út Eldvatni.
Fyrr í mánuðinum var Hrafn við veiðar í Eldvatni og fékk þar sjóbirting sem mældist 91 sentímetri. Þann fisk veiddi hann í veiðistaðnum Hundavaði á Pheasant Tail púpu.
95 x 59 úr Tungufljóti
Í haust sem leið fékk Hrafn svakalegan nagla í Tungufljóti. Birtingur sem fékkst í Hlíðarvaði og mældist 95 sentímetrar á lengdina og 59 í ummál. „Það var allt önnur skepna en þessi sem ég fékk í Ytri. Tungufljótsfiskurinn var snar brjálaður á meðan að sá í Ytri – Rangá var meira bara svona þyngsli. Hrafn bætti svo einum 91 sentímetra við úr Tungufljótinu síðasta haust.
90 sentímetra úr Geirlandsá
Hrafn veiddi Geirlandsá fyrr í apríl og landaði þar 90 sentímetra hrygnu. Sú viðureign var stutt og snörp.
Þetta er hálf galin sería Hrafn?
„Það er alger óþarfi að kaupa sér laxveiðileyfi fyrir þrjú hundruð þúsund krónur á dag þegar hægt er að komast í svona fiska. Þetta er náttúrulega hálf súrrealísk staða. Ef við tökum Tungufljótið sem dæmi, þá komu 25 sjóbirtingar á land þar síðustu þrjár vikur veiðitímans í haust sem voru yfir 90 sentímetrar. Ef við segjum að 90 sentímetra sjóbirtingur sé af sama kaliberi og hundrað sentímetra lax þá hefðu þurft að veiðast þrír hundraðkallar á dag í Laxá í Aðaldal sem er nú helsta stórlaxaáin okkar, til að jafna stórfiska veiðina í Tungufljóti í haust,“ upplýsir Hrafn.
Hann segir þessa miklu stórfiska veiði nánast vera spillandi. Hann nefnir sem dæmi að félagi hans hafi komið að honum í Eldvatninu nú vor þar sem Hrafn var að spila fisk. „Er þessi stór?“ spurði félaginn. „Nei. Þetta er smælki,“ svaraði Hrafn. Þessir fiskur mældist svo 73 sentímetrar sem er mjög flottur sjóbirtingur.
Hrafn og félagar hafa verið iðnir við kolann í púpunum í sjóbirtingnum en Hrafn hefur þurft að leggja þeim í bili. Hann er með tennisolnboga á hægri hendi og notast því þessa dagana meira við tvíhendu þar sem þá er álagið meira á vinstri höndina og þá eru það straumflugur.
Hreint út sagt mögnuð veiði?
„Já. Ég hef verið heppinn, að vera á réttum stað á réttum tíma.“
Einmitt.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |