Það er orðið deginum ljósara að Varmá í Hveragerði verður ekki veidd í ár og jafnvel ekki næstu árin. Þetta kemur til af mengun sem berst frá hreinsistöð fyrir skólp fyrir Hveragerðisbæ. Sú stöð er einfaldlega orðin allt of lítil. Fyrir ofan stöðina er Varmá í góðu lagi.
Einn þeirra sem stunda Varmá af miklum krafti er ungi og áhugasami Hilmar Sigurjónsson sem býr í Hveragerði. „Fyrir mig er þetta mikill skellur. Ég ætlaði sjálfur að veiða þarna marga daga í sumar og var búinn að lofa mér í leiðsögn fyrir þó nokkra veiðimenn,“ sagði Hilmar í samtali við Sporðaköst. Það er mikill kostur þegar veiðimenn hafa ekki náð bílprófsaldri, að geta hjólað í veiðina, en það er einmitt það sem Hilmar hefur gert á efri hlutanum í Varmá.
Hann er þó ekki búinn að gefast upp og hefur sent fjölmarga tölvupósta á Hveragerðisbæ og er að biðja um svör hvenær eitthvað muni gerast í málinu. „Ég veit að þeir vilja opna efri hlutann og stefna að því í ágúst. En ég veit ekki hvort það mun gerast,“ upplýsti Hilmar.
Hann er með mikinn áhuga á fluguveiði og er orðinn mjög góður hnýtari. Hann notar líka allan tíma sem hann mögulega getur til að hnýta. Hann er nú kominn með sérstaka tösku sem er hönnuð til að vera líka hnýtingaborð. Þegar Hilmar fer í lengri bílferðir þá tekur hann töskuna góðu með og hnýtir flugur. Nýlega fór hann til að aðstoða við sauðburð í Suðursveit og þá var taskan með í för.
„Já. Ég hnýtti tólf flugur á leiðinni. Það var Moppan og útgáfa af rubber legs og fleiri. Ég hefði hnýtt fleiri en var bara búinn með krókana.“
Hilmar segir það eina sem trufli hnýtingar í bílferðum vera hristingurinn. Hann segist venjast því og það trufli ekki svo mikið.
En verður þú ekki bílveikur að vera að hnýta í bílnum?
„Nei. Ekkert svoleiðis. Ég finn ekki fyrir því.“
Sauðburðurinn gekk vel á Hestgerði í Suðursveit, þar sem Hilmar var að aðstoða um helgina. Af rúmlega tvö hundruð kindum áttu bara ríflega tuttugu eftir að bera.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |