Þrír regnbogasilungar veiddust í síðustu viku „neðarlega í Rangánum,“ eins og heimildarmaður Sporðakasta orðaði það. Ekki liggur fyrir nákvæmari staðfesting en engu líkara er en að torfa af þessum fiskum hafi verið á ferðinni, þar sem þessir þrír veiddust með skömmu millibili á sama stað.
Veiðimennirnir sem í hlut áttu voru ekki spenntir fyrir að koma í viðtal eða senda myndir af sér með aflann. Þetta hefur loðað við veiðimenn að þegar um framandi fiska er að ræða er eins og það sé vandræðalegt að birta upplýsingar um slíkt.
Myndin sem staðfestir að um regnbogasilung er að ræða var send til Sporðakasta af þriðja aðila.
Minnivallalækur var í fréttum í apríl þegar þar veiddust regnbogasilungar og hafa samtals 28 slíkir verið færðir til bókar í læknum. Sá síðasti sem skráður er, veiddist þar 19. maí. Allir þessir regnbogar hafa verið í stærri kantinum og miklar grunsemdir eru um að fiskurinn í Minnivallalæk hafi sloppið úr eldi. Eftir rannsóknir Hafrannsóknastofnunar á þeim fiskum er talið nánast öruggt að þeir hafi verið í eldi og útilokað að þeir hafi komið úr sjó.
Nú vakna enn frekari spurningar vegna þriggja regnbogasilunga sem veiddust „neðarlega í Rangánum.“ Rétt er að minna veiðimenn á að mikilvægt er að koma þessum fiskum til Hafrannsóknastofnunar til rannsóknar. Sporðaköst hvetja veiðimenn til að vera ófeimna við að tala um framandi fiska sem þeir veiða í íslenskum ám og greina frá hvar þeir veiddust. Mikilvægt er að kortleggja slíka fiska og fá upplýsingar, ef hægt er, um uppruna þeirra.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |