Veiðiklúbburinn Árdísir telur 90 konur

Nokkrar af Árdísum í einni af veiðiferðum ársins. Félagsskapurinn er …
Nokkrar af Árdísum í einni af veiðiferðum ársins. Félagsskapurinn er eftir því sem næst verður komist sá fjölmennasti þegar kemur að konum í veiði. Ljósmynd/Árdísir

Félagsskapurinn Árdísir var stofnaður árið 2001. Þetta er félagsskapur kvenna sem stunda
stangveiði og í dag er meðlimafjöldinn rúmlega níutíu konur á öllum aldri. Þetta er án efa
stærsti kvennaveiðiklúbbur á landinu og þótt víðar væri leitað. Félagið byggir á hefðum og
ákveðinni formfestu þó að markmiðið sé gleði og góðar stundir, bæði við árbakkann og
einnig á fjölmörgum skemmtunum sem Árdísir efna til fyrir sínar konur. Aðalfundur,
árshátíð, vorfundur og uppskeruhátíð eru á meðal fastra viðburða þegar ekki er verið að
veiða.

Hópurinn hefur víða komið og veitt saman. Eins og gefur að skilja er einungis hluti hópsins
sem fer í hverja veiðiferð en í sumar eru þegar ráðgerðar ferðir í Laxá í Dölum, tvær ferðir í
Laxá í Kjós, silungasvæðið í Vatnsdal, Tungulæk og í Hítará. En listinn er mun lengri þegar
horft er til baka. Laxá í Laxárdal, Langá, Þverá, Stóra - Laxá og Haffjarðará svo einhverjar séu nefndar.

Ágústa
Ágústa "Árdís" Steingrímsdóttir með svakalegan fisk úr Þverá sumarið 2014. Þessi var yfir hundrað sentímetrar. Ágústa var valin veiðikona ársins eitt árið hjá Árdísum. Ljósmynd/Ágústa

Esther Finnbogadóttir er formaður Árdísa og ein af aðalhvatakonum þess að stofna
félagsskapinn á sínum tíma. „Við vorum nokkrar sem unnum saman hjá Kaupþingi á sínum
tíma og langaði að gera eitthvað saman utan vinnunnar. Strákarnir voru mjög duglegir við að
skipuleggja eitthvað og fóru í fótbolta, golf og sumarbústaðaferðir. Þessi hugmynd kom upp í
samtölum um að gera eitthvað saman. Svo bættust fljótlega við vinkonur og systur og
ýmislegt. Þetta hefur svo bara vaxið jafnt og þétt og getur ekki orðið stærri en þetta. Um leið
og svona félagsskapur fer yfir hundrað þá er hætt við að persónulegu tengslin fari að tapast.
En vissulega er alltaf einhver endurnýjun, eins og gefur að skilja. Einhverjar hætta eða flytja
erlendis, bara eins og gengur.“

Árdísir hafa orðið kveikjan hjá enn fleiri konum að byrja að veiða. Esther nefnir að margar
konur sem byrjuðu að fara í ferðir með þeim séu í dag hörku veiðikonur og sumar hverjar
eru í félaginu en aðrar stofnuðu litla klúbba eða urðu hluti af öðrum veiðifélögum. Hún gerir
ekki sérstakan greinarmun á körlum eða konum sem veiðimönnum. „Það er helst að
keppnisskapið er ekki jafn fyrirferðamikið hjá okkur. Við gerum meira af því að samfagna
með þeim sem veiðir. Ég held að á því sviði erum við aðeins öðruvísi en karlarnir. En sportið
sem slíkt hentar konum mjög vel. Það eru miklar pælingar í kringum þetta og þolinmæði er
dýrmæt þegar kemur veiði.“

Stór hluti Árdísa saman komin á tyllidegi. Félagsstarfið hjá Árdísum …
Stór hluti Árdísa saman komin á tyllidegi. Félagsstarfið hjá Árdísum er líflegt og teygir sig yfir allt árið. Ljósmynd/Árdísir

Markmiðið er að Árdísir bjóði upp á ólíka kosti þegar kemur veiðiferðum. Bæði ódýrar ogdýrari ferðir. Laxveiði- og silungsveiðiferðir eru á dagskrá og sömuleiðis er boðið upp á ferðir þar sem er full þjónusta og einnig þar sem veiðimenn hugsa um sig sjálfir.

Hún rifjar upp. „Við vorum sextán í fyrstu veiðiferðinni sem var farin í Stóru – Laxá á svæði
fjögur. Við vorum fjórar á stöng. Þar af voru bara fjórar okkar sem vissu hvað veiðistöng var.
Þannig að við skiptum okkur niður á hópana. Auðvitað var ýmislegt með í för eins og gefur
að skilja. Bækur, prjónar og sitthvað fleira. Það var nægur tími fyrir allar að veiða og líka að
slaka. En það er gaman að rifja það upp að allar þessar konur sem voru þarna að byrja eru í
dag orðnar hörku veiðimenn og margar eru enn í félagsskapnum. Við vorum lengi um sjötíu
konur í Árdísum en svo síðari ár hefur ásóknin aftur aukist. En ég man þessi fyrstu ár þá varð maður alveg vör við mikla vakningu hjá konum sem höfðu áhuga á að fara að veiða. Svona kvennaklúbbur er flottur vettvangur til að byrja í.“

Ragnheiður
Ragnheiður "Árdís" Ragnarsdóttir með glæsilegan lax úr Stóru-Laxá. Þær hafa farið víða Árdísir og prófað mörg vatnasvæði. Ljósmynd/RR

Ragnheiður Ragnarsdóttir er ein af Árdísunum. Hún segist stolt af félagsskapnum og nefnir
að þær vandi utanumhald og leggi mikið upp úr skipulagi. Hér hlær Ragnheiður. „Þetta er
sko kvennaklúbbur. Já við vöndum okkur við að skipuleggja hlutina og á hverju ári höldum
við árshátíð. Við erum með aðalfund og þar eru allar sem hafa greitt árgjald gjaldgengar. Við
höfum reglulega verið með vorfundi þar sem við blöndum saman fræðslu og skemmtun. Það
þarf alltaf að vera skemmtun líka. Svo er það uppskeruhátíðin okkar. Mér persónulega finnst
það skemmtilegustu kvöldin. Þá erum við að fara yfir sumarið og veljum veiðikonu ársins og
rökstyðjum hver það er sem fær þann heiður og veitum alls konar verðlaun.“

Ragnheiður segir félagsskapinn afskaplega skemmtilegan og það sem svona stór klúbbur
bjóði upp á er að oft sé verið að veiða með nýjum félögum og kynnast nýjum veiðikonum. „Í
smærri klúbbum er þetta mikið til sami kjarninn sem er að fara á svipaðar slóðir og auðvitað
er það gaman en hjá okkur er maður oft að veiða með konum sem maður hefur ekki hitt
áður. Ég man einu sinni eftir því að ég fór í Laxá í Dölum og lenti á stöng með konu sem ég
þekkti ekki neitt. Hún pikkaði mig upp og það var bara einhvern veginn allt eins hjá okkur.
Við töluðum báðar ítölsku sem er ekki mjög algengt. Keyptum báðar sama gosið í sjoppunni
sem ekki margir drukku. Kunnum báðar að elda mjög mikið. Svo þegar við fórum að klæða
okkur í veiðihúsinu þá vorum við í alveg eins undirfötum undir vöðlurnar og auðvitað var gat
á buxunum hjá okkur báðum á sama hné.“

Formaður Árdísa er Esther Finnbogadóttir. Hér er hún á góðri …
Formaður Árdísa er Esther Finnbogadóttir. Hér er hún á góðri stundu, nýbúin að landa fiski. Ljósmynd/EF

Ragnheiður minnist þess líka þegar þessi nýja vinkona hennar náði sínum fyrsta flugulaxi. Það byrjaði reyndar með ósköpum. Þegar þær fóru veiðislóðann vildi ekki betur til en lamb hljóp undir bílinn hjá þeim og skaddaðist. Leiðsögumenn sem voru að aðstoða hópinn komu til aðstoðar og höfðu upp á bóndanum og tilkynntu atburðinn. Þær voru eins og gefur að skilja ofurlítið miður sín en fóru samt að veiða. Þar fékk vinkonan sinn fyrsta lax á flugu. Það var í Lambastaðakvörn og lambið átti bóndinn á Lambastöðum. Þannig að um kvöldið í veiðihúsinu var boðið upp á lax og lamb en ekki surf and turf eins og þekkt er.“

Þær skipuleggja veiðiferðirnar vel. Hópurinn sem er að fara saman hittist áður og þar er
ákveðið hvaða þema verður og lagðar línur fyrir skemmtiatriði. Þær fara gjarnan saman og
kaupa flugur og gera mikið úr ferðinni. Ragnheiði er minnisstætt skemmtikvöld fyrir
nokkrum árum í Laxá í Dölum þar sem sérlega vel tókst til. Þetta var fyrsta árið í Covid og
þemað eitt kvöldið var gamlárskvöld. Borðsalurinn var skreyttur í anda nýs árs og tónlist,
klæðnaður og matur í ætt við áramót. „Við vorum reyndar stoppaðar þegar við ætluðum að
skjóta upp flugeldunum. En þetta tókst svo frábærlega, og var svo gaman,“ segir Ragnheiður.

Jól hafa verið tilefni þemakvölds. Þær hafa verið pönkarar og trailer trash svo eitthvað sé
tilgreint sérstaklega.

Árdísir eru nú á sínu 23ja starfsári og hefur félagskapurinn aldrei verið fjölmennari. Ljóst
er að áhugi kvenna á veiðum hefur aukist afskaplega mikið á þessari öld og eru
veiðiklúbbarnir sem eingöngu konur eiga aðild að orðnir fjölmargir þó svo að Árdísirnar séu
án efa fjölmennastar.

Þessi grein birtist áður í blaðinu Veiði XII sem Veiðihornið gefur út. Þetta er tólfta árið sem Veiðihornið gefur út blaðið og er það eitt veglegasta veiðiblað sem kemur út á Íslandi. Blaðið kom út í byrjun júní.

Veiðihornið er samstarfsaðili Sporðakasta.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert