Lokuðu Norðuránni með stæl

Dagur Fannar Ólafsson landaði stærsta laxinum í Norðurá í sumar. …
Dagur Fannar Ólafsson landaði stærsta laxinum í Norðurá í sumar. Það gerðist næst síðasta veiðidaginn og kom hann úr Kálfhylsbroti. 98 sentímetra hængur á micro kón. Ljósmynd/Norðurá

Lokahollið í Norðurá átti hreint út sagt frábæra daga. Hollið landaði 58 löxum og er þar með besta holl sumarsins í ánni. Stærsti laxinn sem veiddist í Norðurá í sumar mældist 98 sentímetrar og kom einmitt í umræddu lokaholli.

Róbert Reynisson, einn af árnefndarmönnum Norðurár sagði mikið líf hafa verið í ánni. Gott vatn og laxinn vel dreifður. Lokahollið var skipað árnefndarfólki og þegar þau luku störfum lokaði Norðurá eftir sveiflukennt en heilt yfir frekar dapurt sumar veiðilega. Veiðin byrjaði ágætlega í vor eins og flestum ám en þornaði upp í orðsins fyllstu merkingu þegar leið á sumar. Miklir og langvarandi þurrkar tóku fyrir alla töku í laxi þar eins og svo víða.

Lokatalan í Norðurá sumarið 2023 er 1.087 laxar. Þetta er fimmta lélegasta árið í Norðurá á þessari öld. Aðeins árir 2012, 2014, 2019 og 2020 hafa gefið minni veiði. Besta árið á þessari öld var 2013 þegar 3.351 lax veiddist í Norðurá.

Stærsti lax sumarsins veiddist næst síðasta daginn og var það 98 sentímetra hængur sem Dagur Fannar Ólafsson fékk ámicro kón númer sextán í Kálfhylsbroti. En fleiri fallegir fiskar veiddust í lokahollinu og tók Bergþóra Sigurðardóttir hnausþykka og fallega hrygnu í Beinhóli áSunray.

Þessi 80 sentímetra hrygna kom úr Beinhóli og tók Sunray. …
Þessi 80 sentímetra hrygna kom úr Beinhóli og tók Sunray. Bergþóra Sigurðardóttir kát með þessa þykku hrygnu. Ljósmynd/Róbert Reynisson

Norðurá er ein af fyrstu laxveiðiánum til að loka enda ein af þeim allra fyrstu til að opna. Veiðitíma lýkur í flestum á næstu dögum og um næstu mánaðamót er veiði víðast lokið. Þó getur sú breyting orðið á í einhverjum ám að veitt verði lengur enda hefur Fiskistofa gefið út tilmæli til veiðifélaga að framlengja veiðitíma til 15. nóvember til að ná sem flestum eldisfiskum úr ánum.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert