Laxar skutlaðir í Miðfirði og Refasveit

Annar norsku kafaranna gerir sig líklegan til að skoða næsta …
Annar norsku kafaranna gerir sig líklegan til að skoða næsta hyl í Vesturá í Miðfirði. Ljósmynd/Eggert Skúlason

Margvíslegar björgunaraðgerðir standa nú yfir víða um Vestan og Norðanvert landið og jafnvel víðar þar sem veiðifélög og leigutakar ásamt starfsmönnum á þeirra vegum leita allra leiða til fanga eldislaxa sem gengið hafa í fjölmargar ár. Norska kafarateymið sem nú er að störfum hefur náð góðum árangri. Í morgun skutluðu þeir átta eldislaxa í Laxá í Refasveit og voru síðdegis komnir í Miðfjarðará og voru þar búnir að skutla sjö eldislaxa í Vesturá, síðast þegar Sporðaköst fréttu.

Þeir náðu sex löxum í Vesturánni á meðan að Sporðaköst …
Þeir náðu sex löxum í Vesturánni á meðan að Sporðaköst fylgdust með. Hér er verið að koma einum eldislaxinum á þurrt. Ljósmynd/Eggert Skúlason

Í gær fóru þeir í Búðardalsá og sáu þar tvo eldislaxa sem þeir náðu ekki. Áin var mikil og eldislaxarnir forðuðu sér í hvítfyssi þar sem kafararnir höfðu nánast ekkert skyggni. Þeir töldu 118 villta laxa í ánni.

Í Flekkudalsá urðu þeir ekki varir við eldislax. En eins og fyrr segir héldu þeir í Laxá í Refasveit í morgun og sáu þar átta eldislaxa sem þeir náðu öllum með skutulbyssunum.

Skyggni þarf að vera gott til að þeir nái árangri. …
Skyggni þarf að vera gott til að þeir nái árangri. Allir eru þetta reynslumiklir kafarar á þessu sviði og hafa skotið eldislaxa árum saman í Noregi. Ljósmynd/Eggert Skúlason

Í Miðfjarðará byrjuðu þeir að skoða Túnhyl í Vesturá. Þar höfðu sést grunsamlegir laxar en kafararnir sáu bara villta laxa. Nokkru neðar í ánni, eða neðan við Kistufoss fóru þeir út í. Þar urðu þeir fljótlega varir við eldislaxa og fældust þeir niður í Myrkhyl sem er nokkru neðar. Þar náðu tveir kafarar þremur löxum eftir dágóðan eltingaleik. Enn neðar náðu þeir svo þremur löxum til viðbótar og var það ærin fyrirhöfn. Þegar Sporðaköst yfirgáfu vettvanginn var enn verið að eltast við laxa sem norsku sérfræðingarnir töldu engan vafa leika á að væru eldislaxar.

Þorsteinn Helgason formaður Veiðifélags Miðfjarðarár tekur við enn einum laxinum …
Þorsteinn Helgason formaður Veiðifélags Miðfjarðarár tekur við enn einum laxinum frá kafara. Þeir segja laxana auðþekkjanlega. Ljósmynd/Eggert Skúlason

Miðfjarðará er mikið vatnasvæði og gæti tekið tíma að leita líklegustu staðina. Einn kafarinn var lasinn í morgun og gátu því bara tveir kafað. Þetta teymi lýkur störfum í lok viku en í beinu framhaldi kemur nýtt teymi til áframhaldandi rekköfunar til að hreinsa upp þá eldislaxa sem finnast.

Víða eru veiðifélög að bregðast við eins og hægt er. Loka laxastigum og reyna að koma auga á eldislaxa sem leynast innan um villta laxinn.

Klárir í slaginn. Þeir byrjuðu í Túnhyl en fundu ekki …
Klárir í slaginn. Þeir byrjuðu í Túnhyl en fundu ekki eldislaxa þar. Það var hins vegar töluvert af honum neðar í Vesturánni. Ljósmynd/Eggert Skúlason

Kafararnir sem nú eru að störfum hafa mikla reynslu af verkefnum sem þessum. Aðspurðir hvort þessir laxar gætu verið að ganga fram eftir hausti og inn í veturinn sögðust þeir ekki geta svarað því. Hins vegar upplýstu þeir að samkvæmt sinni reynslu hegðuðu þessir fiskar sér allavega. Gengu jafnvel upp í árnar þó að langt væri í hrygningu og stór hluti þeirra hegðaði sér ekki eins villti laxinn.

Eldislax úr Blöndu var keyrður til Hafrannsóknastofnunar í morgun. Um …
Eldislax úr Blöndu var keyrður til Hafrannsóknastofnunar í morgun. Um þrjátíu eldislaxar til rannsóknar. Ljósmynd/GHJ

Þetta eru naglar. Skiptu um fatnað úti í haustkuldanum og sögðust geta kafað samfellt í átta klukkustundir ef þess þyrfti. Í Miðfirðinum var eina hjálparefnið sem þeir notuðu barnaolía sem gerir þeim auðveldara að komast í og úr blautbúningnum. Skutulbyssurnar eru öflugar og virka með svipuðu hætti og lásbogar. Teygja er notuð til að skjóta örinni sem er úr stáli. Erfitt getur verið að hitta laxana, sérstaklega þegar er straumur og þeir ókyrrir. En þeir gáfust ekki upp og eltu laxana ítrekað milli hylja þar til þeir náðu þeim.

Viðastaddir rekköfunina voru Þorsteinn Helgason, formaður veiðifélagsins og leigutaki árinnar, Rafn Valur Alfreðsson ásamt starfsmanni Fiskistofu og fleiri aðilum. Fyrirhugað er að halda áfram að leita eldislaxa í Miðfjarðará á morgun.

Guðmundur Haukur Jakobsson, varaformaður Veiðifélags Blöndu og Svartár kom við hjá Hafrannsóknastofnun í morgun og skilaði af sér ríflega þrjátíu löxum sem hafa verið háfaðir í laxastiganum í Blöndu síðustu daga. Ríflega fjörutíu eldislaxar hafa verið háfaðir þar.

Greint var frá því á samfélagsmiðlum í dag að eldislax hefði veiðst í Kálfa, sem rennur í Þjórsá. Það er mikið ferðalag sem sá fiskur hefur lagt á sig og ef hann reynist hluti af sleppingunni frá Arctic Fish er ljóst að engin á er óhult fyrir þessum strokulöxum. Greining á Kálfárlaxinum mun ekki liggja fyrir fyrr en eftir nokkurn tíma.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.
101 cm Víðidalsá Jón Eðvald Halldórsson 22. september 22.9.
107 cm Grímsá Jón Jónsson 22. september 22.9.
101 cm Miðfjarðará Agnar Sigurjónsson 22. september 22.9.
101 cm Hvítá við Iðu Gunnar Pétursson 20. september 20.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert