Fyrirhuguð áform landeigenda að Stóru–Laxá hafa vakið mikil viðbrögð meðal veiðimanna. Í fréttatilkynningu sem landeigendur sendu frá sér í dag, segir að óskað sé eftir „vönum veiðimönnum til að veiða Stóru-Laxá frá 2.-24. október í hefðbundinni veiði til að „targeta eldislax“.“
Í framhaldi er bent á að laxagöngur séu seinar í ár og að Stóra–Laxá sé þekkt fyrir laxagöngur og stórlaxa fram í miðjan október.
Tveir leiðsögumenn verða til eftirlits við veiðarnar og stýra þeim. Þá óskar stjórn Stóru–Laxárdeildar veiðifélagsins eftir fiskifræðingi til ráðgjafar.
Finnur Björn Harðarson landeigandi og leigutaki að Stóru–Laxá auglýsti nýverið á Facebook-síðu sinni að veiðimönnum stæði ofangreint til boða.
Hins vegar er í sömu auglýsingu sagt að menn þurfi að gista í nýja veiðihúsinu og greiða fyrir það sextíu þúsund krónur á sólarhring. Veiðimenn sem Sporðaköst hafa rætt við benda á að þarna sé einfaldlega verið að gera sér mat úr ástandinu og selja veiðileyfi langt fram í október.
Finnur hafnar þessari túlkun í samtali við Sporðaköst. Hann segir húsið í útleigu á netinu og þar kostar nóttin fyrir manninn fjörutíu þúsund krónur. „Tuttugu þúsund krónur leggjast svo ofan á það sem er kostnaðurinn við leiðsögumennina sem jafnframt hafa eftirlit með höndum og stjórn á veiðinni.“
Finnur leggur mikla áherslu á að Stóra–Laxá sé mjög erfið í þessu samhengi. Hann óttast að eldislax sláist í för með villta laxinum þegar að haustgöngurnar koma. „Við viljum gera allt til að vernda náttúrulega laxastofninn okkar. Ég hef ítrekað óskað eftir tillögum en það er fátt um svör. Við búum ekki við þær aðstæður að geta lokað ánni og eitthvað verðum við að gera. Neyðarúrræði er að draga á hylji þar sem við sjáum torkennilega fiska. Vonandi kemur ekki til þess því það hefur mjög slæm áhrif á fiska sem þegar eru að undirbúa hrygningu.“
Stjórn veiðifélagsdeildarinnar hefur sent Fiskistofu erindi þar sem óskað er eftir samþykkt á þessu fyrirkomulagi. En sem kunnugt er brást Fiskistofa við stórfelldu stroki eldislaxa úr sjókvíum Arctic Fish í nágrenni Patreksfjarðar með því að heimila veiðifélögum að framlengja veiðitíma til 15. nóvember. Þá var einnig heimilað að loka laxastigum til að hefta för eldislaxa.
Næsta skref er að bíða viðbragða Fiskistofu. En hvaða viðbrögð hefur Finnur fengið við þessi áform frá veiðimönnum?
„Við finnum að það er áhugi á að taka þátt í þessu og þá sérstaklega frá mönnum sem þekkja Stóru–Laxá og bera hag hennar fyrir brjósti. Við vitum af veiðireynslu til margra ára að það koma göngur í hana í október og menn sem stunduðu ádráttarveiði í henni hér áður fyrr segja að þá hafi uppistaðan verið nýlegur fiskur og þessi veiði var stunduð í október. Suðurlandið lýtur allt öðrum lögmálum hvað þetta varðar en til dæmis Borgarfjörðurinn og Vesturland.“
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |