Vikulega á hverju sumri birtist listi yfir aflahæstu laxveiðiárnar. Sá listi tekur einungis tillit til fjölda laxa en ekki fjölda stanga. Raunveruleg gæði veiðinnar finnast hins vegar með því að reikna út hvað hver dagstöng var að gefa. Aðeins tvær ár ná hlutfallinu tveir laxar eða meira á dag. Það eru þær Vopnafjarðarsystur, Selá og Hofsá. Selá er með besta hlutfallið eða 2,28 laxar á stöng á dag. Hofsá er nánast með akkúrat tvo laxa á dag og er það meira en tvöföldun á veiði miðað við sumarið 2021 þegar Hofsá náði ekki einum laxi á stöng á dag. Var raunar ekki langt frá því eða með hlutfallið 0,95.
Af þeim 27 ám sem hér eru til umfjöllunar eru aðeins tíu sem ná hlutfallinu einn lax á stöng á dag eða meira. Vissulega eru margar ár þar rétt fyrir neðan. En þetta segir í raun allt um hversu léleg veiðin var í sumar. Einn lax á stöng á dag þýðir að ef tveir veiðimenn deildu stöng í þrjá daga þá gátu þeir gert sér vonir um að landa þremur löxum. Í Selá hefðu þessir veiðimenn landað sjö til átta löxum. Hins vegar í Stóru-Laxá voru þrír dagar að skila einum og hálfum laxi á stöngina,
Svo náttúrulega var þetta ekki nákvæmlega svona. Veiðin er misjöfn milli tímabila og hinn svokallaði besti tími gat gefið mun betri veiði en meðaltalið segir til um. En þetta er tölfræðin og hún í það minnsta gefur glögga mynd af hvernig veiðin var í þessum ám, að meðaltali.
Hér fyrir neðan má sjá listann. Innan sviga við hverja veiðiá er fjöldi stanga. Næsti dálkur tilgreinir heildarveiði og innan sviga er fjöldi laxa á hverja stöng yfir sumarið. Loks er það svo lax á hverja stöng á dag og innan sviga sama hlutfall í fyrra og sumarið 2021. Þá má sjá hvort veiði hafi aukist eða minnkað. Við deilum með 90 í stöng per dag og fá þannig út hversu marga laxa hver stöng var að gefa daglega. Tölur eru fengnar af vef Landssambands veiðifélaga, angling.is.
Veiðisvæði Heildarveiði/per stöng Á stöng á dag
Selá í Vopnafirði (6) 1.234 (206) 2,28 (2,15/1,41)
Hofsá í Vopnafirði (6) 1.088 (181) 2,01 (1,92/0,95)
Laxá á Ásum (4) 660 (165) 1,83 (2,28/1,66)
Leirvogsá (2) 303 (152) 1,69 (2,53/1,55)
Haffjarðará (6) 905 (151) 1,67 (1,61/1,70)
Miðfjarðará (10) 1.334 (133) 1,48 (1,69/2,00)
Svalbarðsá (3) 340 (113) 1,26 (1,41/0,88)
Elliðaár (6) 625 (104) 1,16 (1,48/1,14)
Laxá í Dölum (6) 601 (100) 1,11 (1,41/1,89)
Þverá/Kjarrá (14) 1.306 (93) 1,04 (1,15/1,10)
Grímsá (8) 697 (87) 0,97 (1,15/1,05)
Straumfjarðará (4) 345 (86) 0,96 (0,97/1,02)
Andakílsá (2) 170 (85) 0,94 (1,82/2,88)
Flókadalsá (3) 248 (83) 0,92 (1,92/1,04)
Hafralónsá (4) 333 (83) 0,92 (1,08/0,63)
Víðidalsá (8) 645 (81) 0,89 (1,12/1,02)
Laxá í Kjós (8) 603 (75) 0,84 (1,41/1,47)
Haukadalsá (5) 373 (75) 0,83 (0,81/0,81)
Laxá í Leirársveit (7) 516 (74) 0,82 (1,48/1,51)
Norðurá (15) 1.087 (72) 0,80 (1,05/1,06)
Hítará (6) 426 (71) 0,79 (1,31/0,76)
Vatnsdalsá (6) 421 (70) 0,78 (0,77/0,79)
Mýrarkvísl (4) 283 (71) 0,78 (0,75/0,50)
Langá (12) 709 (59) 0,66 (1,00/0,77)
Hrútafjarðará (3) 177 (59) 0,66 (0,95/1,38)
Laxá í Aðaldal (12) 685 (57) 0,63 (0,37/0,37)
Stóra - Laxá (10) 527 (53) 0,58 (1,03/0,62)*
*Uppfært miðað við lokatölur 30. september.
Hver sem er getur svo farið inn á angling.is og fundið sína á og reiknað út þetta hlutfall. En listinn er ansi frábrugðinn þeim lista þar sem eingöngu er horft til heildartölu, óháð fjölda stanga. Þar sem enn er nokkuð eftir af veiðitíma í Rangánum og fleiri ám á því svæði, eru þær ekki teknar inn í þennan útreikning. Þá er líka vert að hafa í huga að uppgefinn fjöldi stanga er tekinn af angling.is en þar geta hafa orðið breytingar.
Má nefna að í Miðfjarðará er veitt á sex stangir fyrri hluta veiðitímans og myndi það hækka hlutfallið þar verulega, væri tekið tillit til þess. Sama má segja um Laxá í Dölum en þar er veitt á fjórar stangir framan af veiðitímanum. Laxá í Kjós er einnig með færri stangir framan af veiðitíma. Í Hofsá í Vopnafirði var stöngum fækkað úr sjö í sex í sumar.
Jökla og Blanda fóru á yfirfall snemma þannig að þar náðist ekki níutíu daga veiðitími og því eru þær ekki á þessum lista.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |