Það var hjartnæm og allt að því dramatísk stund þegar Vagn Ingólfsson opnaði trékassa frá Bandaríkjunum á föstudag. Kassinn var kirfilega merktur og gaf til kynna að innihaldið væri brothætt og viðkvæmt. Opnunin sjálf fór fram í Veiðihorninu í Síðumúla. Það var við hæfi enda má segja að upphafið að málinu öllu hafi einmitt verið þar.
Vagn var með rafmagnsskrúfjárn og finna mátti andrúmsloftið magnast eftir því sem skrúfunum fjölgaði á borðinu og stundin nálgaðist þegar innihaldið yrði opinberað. Kassinn hafði að geyma útskorinn lax sem Vagn hafði unnið að í slétt tvö ár. Hans frumraun á þessu sviði. „Ég vissi alveg að ég myndi brotna þegar ég sæi hann og gæti komið við hann,“ sagði Vagn í samtali við Sporðaköst.
Ástæðan fyrir því að kassinn var opnaður með viðhöfn í Veiðihorninu er sú að þar kviknaði hugmyndin í júlí 2021. „Óli spurði mig af hverju ég prófaði ekki að skera út lax í fullri stærð. Mér fannst þetta mikil áskorun og hugsaði mig um í nokkra mánuði. Það var svo 20. október 2021 að ég sendi Óla tölvupóst og sagðist ætla að taka þessari áskorun.“
Það voru því slétt tvö ár frá því að Vagn tók áskorun Ólafs Vigfússonar þar til kassinn var kominn inn á gólf í Veiðihorninu. Eftir að Vagn hafði lokið við sjálfan útskurðinn sendi hann laxinn í sprautun og lökkun til Bandaríkjanna en þar tók Danny Harris við honum og lagði lokahönd á verkið.
Það fór líka svo að Vagn varð klökkur þegar hann sá laxinn og gat loksins komið við hann í endanlegri útgáfu. „Já. Það komu tár og allt. Ég vissi alveg að þetta yrði viðkvæm stund fyrir mig. Pabbar mega líka gráta.“
Það er auðheyrt á Vagni að hann á eftir að gera fleiri fiska þó að ekkert sé ákveðið í þeim efnum. Hann segir þessa frumraun hafa verið mikið lærdómsferli. Bæði hvað varðar ferlið sem slíkt og ekki síður hvaða tæki og tól henti í þessa vinnu.
Hann hefur fengið mikil og góð viðbrögð við verkinu. Hann lagði upp með viðarkubb og ljósmynd. „Viðbrögðin hafa verið mikil og jákvæð. Þegar ég var að opna kassann í Veiðihorninu á föstudag komu tveir sem ég heyrði í og þeir spurðu hvar þessi hefði veiðst. Þá held ég að tilganginum sé náð," brosir Vagn.
Útlagður kostnaður hans vegna verksins er um hálf milljón, áætlar hann. Vinnustundirnar eru varlega áætlaðar sex hundruð.
Hvað myndi svona fiskur kosta?
„Ég bara get ekki verðlagt hann. Einn félagi minn sagði við mig að maður ætti alls ekki að fara að mæla þetta í vinnustundum og slíku. Ef ég myndi selja hann væri ég að selja list.“
Og hvernig verðleggur maður list?
„Ja. Það er góð spurning.“
Hvað sem verður þá er meistarastykkið komið upp á vegg hjá Vagni. Útskorinn 103 sentímetra nýgenginn lax. Þykkur og silfraður. Eina sem er ákveðið í framhaldinu er að fiskurinn verður til sýnis í vor í Veiðihorninu. Annað á eftir að koma í ljós.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |