Margir fluguveiðimenn eiga fleiri flugur en þeir munu komast yfir að nota. Það breytir því ekki að það þarf stöðugt að bæta á. Nýjar flugur. Þessar sem eru að virka núna. Smærri flugur og nýjar samsetningar – eitthvað sem allir verða að eiga. Það má kannski líkja þessu við fyrrum forsetafrú á Filippseyjum, Imeldu Marcos sem átti um þrjú þúsund pör af skóm þegar best lét. Imelda var aldrei að fara að slíta öllum þessum skófatnaði en það breytti því ekki að hún stóðst ekki nýja skó þegar þeir voru í boði.
Sem betur fer fyrir fluguveiðimenn er flugur ekki jafn dýrar og skór en þörfin er stöðugt til staðar. Nú hefur Veiðihornið í Síðumúla sett fram nýjan kost til að uppfylla þessa þörf og ástríðu og tryggja stöðugt flæði af flugum til veiðimanna. Nú er hægt að kaupa flugur í áskrift og fá þær sendar heim.
Vantar okkur alltaf fleiri flugur?
„Eftirspurnin er allavega til staðar og við teljum þetta skemmtilega nýjung á veiðimarkaði. Við erum nú farin að bjóða flugur í áskrift. Allar götur frá því við kynntumst vini okkar Brian Runnals, stofnanda og eiganda Postfly í Bandaríkjunum höfum við gengið með þá hugmynd í maganum að efna til áskriftarsölu á flugum í anda Postfly. Brian kynntumst við fyrir fáeinum árum á viðskiptaferðalagi í Thailandi en Postfly ásamt Veiðihorninu eru stærstu viðskiptavinir Shadow Flies í Chiang Mai.“
Og hvernig virkar þetta?
„Hugmyndin gengur út á að bjóða veiðimönnum flugur í áskrift og þannig kynna veiðimönnum flugur og aðferðir ásamt því að miðla fróðleik og þekkingu. Það eru ekki bara flugur og fróðleikur í öskjunum því mánaðarlega fylgir aukaglaðningur sem getur verið klippur, taumur, línubón, tökuvarar eða annað það sem nauðsynlegt getur talist í veiðitösku fluguveiðimannsins. Og síðast en ekki síst þá fylgir afsláttarávísun með í pakkanum en með ávísuninni fæst afsláttur af einni vandaðri veiðivöru í hverjum mánuði. Afslátturinn er mishár og fylgir tímalengd áskriftar en þriggja mánaða bronsáskrift gefur 5% afslátt, sex mánaða silfuráskrift gefur 10% afslátt, níu mánaða gulláskrift gefur 15% afslátt og 12 mánaða platínuáskrift gefur 20% afslátt. Kaupaukar í formi veglegra afslátta geta því verið fljótir að borga upp áskriftina. Auk fjögurra áskriftartímabila geta veiðimenn að sjálfsögðu valið á milli áskrifta að silungaflugum og laxaflugum.“
En af hverju núna?
„Það sem stoppaði okkur af lengi vel var sú staðreynd að við vinnum á örmarkaði og því illframkvæmanlegt að mæta þeim lágmarkskröfum um magn sem settar voru. Í samvinnu við Shadow Flies fundum við lausnir á því síðastliðinn vetur og hófst þá undirbúningurinn að samsetningu vörunnar sem nú hefur litið dagsins ljós. Áskriftaröskjurnar eru sem sagt tilbúnar og fyrstu pakkarnir hafa nú þegar verið póstlagðir. Við vitum að það eru fjölmargir spenntir veiðimenn sem bíða enda afar spennandi að fá nýjan pakka með óvæntu og skemmtilegu innihaldi mánaðarlega. Veiðiflugur í áskrift eru tilvaldar í jólapakkann því þiggjandinn tekur ekki bara upp einn pakka á aðfangadag heldur fær hann annan í janúar, þann þriðja í febrúar, fjórða í mars og svo framvegis eða allt eftir tímalengd áskriftar sem valin er,“ segir (J)Óli í Veiðihorninu að lokum.
Veiðihornið er samstarfsaðili Sporðakasta
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |