Víða á Suðurlandi gerðu veiðimenn góða veiði þrátt fyrir einstaklega erfið skilyrði. Frost, hífandi rok og klakaburður í bland við frosna tauma og frost í lykkjum stöðvaði ekki opnunarhollin. Einn veiðimaður orðaði þetta ágætlega. „Ég skil skáldið betur sem orti. Frýs í æðum blóð.“
Í Tungufljóti lentu menn í skemmtilegri veiði. Nánast var óveiðandi á neðstu stöðum árinnar af ofangreindum sökum. Þeir hins vegar fundu mikið af fiski við brúna yfir fljótið. Þar settu menn í hvern fiskinn á fætur öðrum og þegar upp var staðið eftir daginn þá voru 27 fiskar sem hópurinn landaði. Allt var þetta geldfiskur í góðum holdum. Á bilinu þrjú til átta pund. Sigurður Marcus Guðmundsson gaf okkur töluna þegar veiðidegi var lokið. „Við erum hættir. Þetta er viðbjóður,“ svaraði hann þegar spurt var hvað þeir ætluðu að veiða lengi. Þetta var um kvöldmatarleitið og mönnum orðið kalt eftir volkið.
Eins sjá má á myndinni af Gunnari Árnasyni með fallegan og þykkan geldfisk þá var þessi fiskur líkari því sem gjarnan hefur sést í Húseyjarkvísl á þessum tíma.
Geirlandsá var ekki líkleg í morgunsárið þegar þeir Árni Kristinn Skúlason og Jón Stefán Hannesson skoðuðu að klukkan 9. Áin rann varla og var ísilögð. Þeir fóru að Ármótum og byrjuðu þar að brjóta klaka af staðnum. Fóru þeir upp undir geirvörtur við þessa iðju að sögn Árna Kristins.
Þegar sólin fór að skína án þess að rjúfa þó frostmúrinn komst hreyfing á ána og engu líkara en að einhvers konar stífla hefði gefið sig og áin fór hressilega upp í vatni. „Við fórum að veiða eftir hádegi og fundum mikið af fiski í Ármótum, bæði efri og neðri og við enduðum með að landa 23 birtingum. Fengum þrjá yfir áttatíu sentímetra og marga á bilinu sjötíu til áttatíu. Stærsti mældist 89 sentímetrar og við vorum að fá þetta bæði á straumflugur og púpur,“ upplýsti Árni Kristinn í samtali við Sporðaköst.
Kalt getur verið svo margs konar. Ískalt, skítkalt eða hrikalega kalt. Árni Kristinn sagðist vita að til væru einhverjar fleiri skilgreiningar en vitnaði að lokum í skáldið. „Frýs í æðum blóð. Skil skáldið betur núna.“
Þrátt fyrir hrollkaldan dag eiga þeir félagar eftir einn og hálfan dag og „við getum ekki beðið,“ endaði hann samtalið á.
Eldvatnið var líka bara fyrir okkar sterkustu menn. Samtals komu þar á land tuttugu fiskar við sömu krefjandi aðstæður og aðrir voru að glíma við á svæðinu í kringum Kirkjubæjarklaustur. Stærsti fiskurinn þar mældist 82 sentímetrar og hann fékk Þorgeir Þorgeirsson í veiðistaðnum Gullkista.
Við eigum eftir að fá skýrslu af fleiri veiðisvæðum og birtum frekari frásagnir af opnunum þegar þær berast.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |