Þeir eru með marbletti og víða aumir á skrokkinn en náðu markmiðinu. Fengu allir fisk í opnun. „Ég hef ekki lent í þessu svona áður. Ég skal alveg viðurkenna að þetta var á grensunni,“ sagði Ólafur Ragnar Garðarsson í samtali við Sporðaköst í morgun. Hann var einn fjórmenninganna sem opnuðu Húseyjarkvísl í gær. Þeir opnuðu hana í orðsins fyllstu merkingu. Undir þjóðvegsbrúnni náðu þeir að opna álitlega vök til að kasta á og til að geta athafnað sig eins og nauðsynlegt er. Þar undir var góð torfa. Valgarður Ragnarsson, Þorsteinn Guðmundsson og Sævar Örn Hafsteinsson ásamt fyrst nefndum Ólafi eru í opnunarhollinu.
Eftir að hafa opnað ána var hægt að fara að veiða. Frost, rok og aðstæður vart boðlegar. Aðeins norðan við þá fjórmenninga er Öxnadalsheiðin sem var lokuð vegna veðurs drjúgan hluta páska.
En það er eftir miklu að slægjast í vorveiði í Húseyjarkvísl. Hún er þekkt fyrir glæsilega geldfiska sem eru jafnvel þykkari en haustfiskurinn. Og ef það er eitthvað sem veiðigyðjan verðlaunar þá er það dugnaður. Það fór líka svo að allir fengu þeir fisk. Fiskurinn sem Valgarður fékk er nánast fullkominn Húseyingur. 68 sentímetrar og metinn 3,4 kíló eða um sjö pund. Með hnakkaspik og silfraður.
Þið eruð að veiða svona fiska langt inn í vorið. Hvernig stendur á þessu?
Ólafur Ragnar segir að það séu skiptar skoðanir í hópnum. „Sumir vilja meina að hann sé í ánni allan veturinn en svo telja aðrir að þessar fiskar séu að flakka út í sjó og koma aftur. Menn eru ekki sammála,“ upplýsir hann. Hvort sem er þá eru þessir fiskar nánast vörumerki kvíslarinnar og menn leggja ýmislegt á sig á vorin til að komast í færi við þá.
En í alvöru Óli. Þetta er varla á sig leggjandi?
Hann hlær. „Veistu. Ég er sammála. Þetta var svo algerlega á mörkunum. Over the top og svakalegasta opnun sem ég hef tekið þátt í.“
Takk fyrir að viðurkenna það. Eru þið komnir í bæinn?
„Nei. Við erum enn í Skagafirðinum og ætlum að kíkja á vökina aftur á eftir.“
Löng þögn.
„Veðrið er betra núna. Hægari vindur og hitinn dansar á núllinu. Okkur langar í fleiri og nú vitum við um þá og búið að vinna erfiðisvinnuna.“
Þeir félagar voru vopnaðir ísöxum þegar þeir opnuðu veiðistaðinn Nýja brú í gær. Það þarf einbeittan veiðivilja til að taka ísöxi með sér í veiðitúr. En hún átti eftir að reynast notadrýgsta tækið í ferðinni.
Af mörgum hetjusögum sem sagðar hafa verið frá opnunardegi 1. apríl 2024 þá fá fjórmenningarnir í Húseyjarkvísl fyrstu verðlaun. Það er ekki annað hægt en að taka hatt sinn ofan fyrir slíkri elju. „Já. Það má alveg kalla þetta geðveiki eða einhvers konar einhverfu. Ég bara skil það vel,“ sagði Ólafur Ragnar þegar við kvöddum hann og framundan var að koma mörðum skrokknum í klakasprengdar vöðlur á nýjan leik.„
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |