Það er áfram mokveiði í Tungulæk og það sem meira er hlutfallið af geldfiski er ótrúlega hátt. Þessa dagana eru allt upp í níutíu prósent aflans geldfiskur. Þriðjungur þeirra eru stórir, spikfeitir og berjast eins og ljón.
Hollið sem lauk störfum í Tungulæk á hádegi fékk hvorki fleiri né færri en var komið í 129 fiska, eftir að hafa veitt í tvo daga. Leiðtogi hópsins, Theódor Erlingsson er farinn að láta á sjá eftir stanslausan mokstur. Sár á fingrum og blóði drifin lína stöðva hann ekki.
Teddi segir afskaplega ánægjulegt að sjá svo mikið magn af geldfiski eins og nú er raunin. „Þetta er spennandi til framtíðar og þessir fiskar gefa nýgengnum smálaxi ekkert eftir. Þetta hafa verið magnaðir dagar,“ sagði Teddi í samtali við Sporðaköst í morgun.
Þann 8. apríl bókuðu veiðimenn 49 birtinga í Tungulæk. Í gær fór talan í 67 fiska og vissulega er mikið af þessu smátt en þetta eru upp til hópa þykkir og sprækir birtingar. Kallaðir geldfiskar því þeir eru ekki búnir að hrygna og er því enn í hröðum vexti. Þetta er ávísun á spennandi framtíð hvað varðar birtinginn í Tungulæk.
Svipuð stærðarhlutföll má sjá af bókunum í Tungufljóti en þar virðist uppistaðan vera geldfiskur og í opnun gerðu menn góða veiði af vænum geldfiski. Eldvatnið sker sig aðeins úr og þar virðist vera meira af fiski sem náð hefur áttatíu sentímetrum og þaðan af stærri.
En hvað hefur orðið af stóra sjóbirtingnum? Við veltum þeirri spurningu fyrir okkur síðar.
En þegar horft er á heildarveiði til þessa ber Tungulækur höfuð og herðar yfir aðrar sjóbirtingsár. Þar hafa verið bókaðir 309 birtingar. Í Tungufljóti eru skráðir 31 birtingur, Eldvatn 77 og Húseyjarkvísl 49.
Þegar við horfum bara á Tungulækinn þá er þetta svipuð veiði og í fyrra. Að kvöldi 10. apríl 2023 höfðu veiðst þar um 340 sjóbirtingar. Síðdegisvaktin er eftir í dag og viðbúið að lækurinn verði á svipuðu róli og í fyrra. En þetta er mögnuð veiði og engin á sem kemst í hálfkvisti við Tungulæk í upphafi veiðitíma.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |