Ráðstefna Six Rivers Iceland, um stöðu Atlantshafslaxins og rannsóknir sem standa yfir hófst á Vopnafirði í morgun. Ráðstefnan er vel sótt þangað var boðið nokkrum af helstu sérfræðingum á alþjóðlega vísu um Atlantshafslaxinn. Áhugamenn og heimamenn hafa einnig mætt og er talið að um áttatíu manns hafi mætt í morgun.
Staða laxins er ekki bara alvarleg. Hún er grafalvarleg, eins og kom glögglega fram í máli doktor Rasmus Lauridsen sem er vísindamaður staðsettur á Vopnafirði og sinnir rannsóknum fyrir SRI. Hann benti á að heildarstofn Atlantshaflaxins væri í dag um helmingur af því sem hann var um síðustu aldamót. Á níunda áratug síðustu aldar hafi ríflega sex milljónir laxa verið í Atlantshafi á fæðuslóð frá hinum ýmsu löndum, einkum í Evrópu. Í dag er þessi tala áætluð ríflega tvær milljónir einstaklinga. Síðustu tvo áratugina hefur stofninn minnkað um helming.
Á sama tíma hefur veiði í sjó snarminnkað og er nú ekki nema brot af því sem var þegar hún var mest stunduð.
Fjölmörg áhugaverð erindi er á dagskrá á ráðstefnunni, bæði frá íslenskum vísindamönnum, en einnig frá öðrum löndum og umfjöllunarefnin eru margvísleg þó að öll tengist þau Atlantshafslaxinum og afkomu hans með beinum hætti.
Laxalús, hnúðlax, áhrif af sjókvíalaxi, endurheimt og bæting og fjölgun búsvæða er meðal þess sem er á dagskrá í dag.
„Ráðstefnan, sem er sú fjórða í röðinni og hefur til þessa verið haldin í Reykjavík, fer nú í fyrsta sinn fram á Vopnafirði. Verður þar fjallað um verndaraðgerðir á Íslandi í alþjóðlegu ljósi.
Á ráðstefnunni koma saman allir helstu hagaðilar, bæði heimamenn og aðrir innanlands auk fremstu laxasérfræðinga frá Íslandi, Noregi og Bretlandi. Fjallað verður um hnignun laxastofnsins hvarvetna við Norður-Atlantshaf, en stærð stofnsins er komin niður í fjórðung af því sem var á áttunda áratugnum.
Horft verður til aðgerða Six Rivers Iceland til að vernda og styðja við afkomu laxins hér í ljósi þessarar alþjóðlegu hnignunar og nýrra þátta sem ógna afkomu stofnsins – með áherslu á fyrirliggjandi verkefni um að bjarga laxinum frá brún útrýmingar,“ sagði í kynningu á SRI ráðstefnunni og eins og nefnt er þarna er laxinn á brúninni í stóra samhenginu. Vissulega eru einstök lönd eins og Ísland betur stödd en nágrannar okkar en línuritin eru á niðurleið sama hvaða þættir máls eru skoðaðir.
Við munum gera betur grein fyrir þeim rannsóknum sem kynntar eru á ráðstefnunni og hvaða leiðir vísindamenn sjá til að sporna við fæti. – Ef það er ekki orðið of seint.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |