Fyrsti hundraðkall sumarsins

Hér er hrygnan sem flokkast sem fyrsti hundraðkall sumarsins. Mæld …
Hér er hrygnan sem flokkast sem fyrsti hundraðkall sumarsins. Mæld 100,5 sentímetrar og veidd í Ölfusá 8. júní á heimasmíðaða flugu. Ljósmynd/Sporðaköst

Fyrsti hundraðkall, eða lax sem nær máli upp á hundrað sentímetra eða meira, veiddist í gær. Nú eru síðustu dagar vorveiðinnar í Ölfusá og lýkur þeim kafla á morgun. En veiðimaður sem keypti sér sjóbirtingsleyfi í Ölfusá fékk allt fyrir peninginn í gær.

Viðkomandi vill ekki láta nafn síns getið og virðum við það. Þessi veiðimaður er hagvanur í Ölfusá og líkast til þekkja hana fáir betur. „Þegar ég mætti í gærmorgun sá ég fljótlega lax stökkva. Ég hélt að ég væri að lenda í veislu,“ sagði hinn feimni veiðimaður í samtali við Sporðaköst.

Eftir nokkur köst setti hann í stóran lax og sá hann vel en var ekki lengi með hann þegar flugan losnaði úr honum. Enn leið á daginn og þá setti hann í annan lax og eftir um það bil tuttugu taugatrekkjandi mínútur landaði hann hrygnu upp á 100,5 sentímetra. Hrygnan var þykk og mikil og tvær laxalýs voru við gotrauf.

Vitni var með þessum góðkunningja Sporðakasta sem staðfesti mælinguna og sendi okkur myndband sem ekki mátti birta en þar sést að öll skilyrði sem eðlilegt er að mæta þegar um svona fisk er að ræða, voru uppfyllt. 

Hrygnunni var sleppt og hélt hún áfram sinn veg hvort sem för var heitið í Sogið eða upp á Iðu og jafnvel í Stóru–Laxá.

Þykk og flott hrygna sem skartaði tveimur lúsum við gotrauf. …
Þykk og flott hrygna sem skartaði tveimur lúsum við gotrauf. Enn og aftur hvetjum við ykkur til að vanda myndatöku með þessa flottu fiska. Ljósmynd/Skjáskot

Flugan var heimasmíðuð og ekki fengið nafn ennþá. Síðari myndin sem fylgir fréttinni er skjáskot úr myndbandinu sem Sporðaköst fengu að skoða til staðfestingar. Hér sést vel hversu þykk og vel haldin þessi hrygna er.

Eins og aðalmyndin ber með sér er skynsamlegt að vanda myndatöku á þessum fiskum. Til dæmis ekki halda um sporðinn eins og feimni veiðimaðurinn gerir. Frekar að snúa sporðinum að myndavélinni og vera með gripið þannig að lófinn snúi að myndavélinni. Þá sést fiskurinn betur. En við óskum þessum meistara til hamingju með fyrsta hundraðkall sumarsins. Megi þeir verða margir.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Víðidalsá Ragnheiður Þengilsdóttir 14. júlí 14.7.
106 cm Laxá í Aðaldal Kristrún Ólöf Sigurðardóttir 8. júlí 8.7.
100 cm Blanda Patrick Devennie 20. júní 20.6.
100 cm Kjarrá Sigurður Smári Gylfason 19. júní 19.6.
Veiðiárið 2023:
101 cm Vatnsdalsá Erlendur veiðimaður 29. september 29.9.
101 cm Eystri-Rangá Grzegorz Loszewski 27. september 27.9.
105 cm Hvítá við Iðu Katrín Tanja Davíðsdóttir 24. september 24.9.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert