Opnunarhollið í Laxá í Aðaldal hefur verið að landa tveimur fiskum að jafnaði á vakt, þessa tvo daga sem liðnir eru. Árni Pétur Hilmarsson, einn af þeim sem rekur og annast Laxá segir þetta hefðbundna opnun að flestu leiti. „Það er langt síðan að ég hef séð svona mikið af fiski í veiðistöðum neðan við fossa, eins og fyrr í mánuðinum þegar við vorum að ganga frá svæðinu fyrir opnun. Við kíktum í alla staði og sáum bara mikið af fiski. Svo kemur að opnun og þá er farinn upp úr,“ hlær hann.
Hann og fleiri sáu einn fisk sem vakti sérstaka athygli þeirra. „Við sáum einn svona alvöru tank í Bjargstrengnum. Sá fiskur gæti alveg hafa náð 110 sentímetrum og mér finnst kominn tími á þrjátíu pundara í Laxá.“
En þessar fyrstu vaktir, hvernig hefur veiðin verið?
„Þetta er búið að vera ágætt. Höfum verið að landa tveimur á vakt og við þessar ástæður er það bara fínt. Það eru komnir tveir fiskar á Skriðuflúð, tveir á Hólmavaðsstíflu og úr Höfðahyl. Já og einn misstur á Suðureyri þannig að þeir hafa bara straujað upp úr.“ Árni Pétur segir aðstæður hafa verið erfiðar og sjálfur var hann neðan við fossa eina vaktina og segist hafa orðið svo kalt að hann óttaðist hreinlega að verða úti. Hann brosir og veit að það er orðum aukið en vissulega hefur honum orðið skítkalt.
Það sýnir hversu mikil ferð er á fiskinum að laxar hafa veiðst frá Sjávarholu og sett í fisk á Suðureyri, sem er nokkuð fyrir ofan Hólmavaðsstíflu og vonandi veit það á gott í sumar. Laxá hefur átt undir högg að sækja og síðasta góða árið hennar var 2016 þar sem stórlaxar voru daglegt brauð og veiðin fór yfir 1,200 laxa. Í fyrra varð töluverður bati í veiðinni og var það annað besta árið frá 2017. Mikið var af smálaxi í Aðaldalnum í fyrra, allavega hlutfallslega í veiðitölum. Slík ár geta boðað stórlaxaár næsta ár. 2024 byrjar á jákvæðum nótum í drottningunni og verður sérlega spennandi að sjá hvort að þessi perla norðursins nái vopnum sínum af krafti. Víst er að margir krossa fingur og vona að svo verði.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |