Sá stærsti á Vesturlandi í sumar

Hópurinn samankominn og brosað út að eyrum. Efsta röð frá …
Hópurinn samankominn og brosað út að eyrum. Efsta röð frá vinstri: Magnús Ingi Einarsson, Brynjar Þór Hreinsson. Miðjuröð frá vinstri: Markús Máni Michaelsson Maute, Tómas Bjarnason, Halldór E. Sigurðsson. Neðsta röð frá vinstri: Einar Þór Steindórsson, Ármann Andri Einarsson og Ómar Özcan. Ljósmynd/Einar Þór Steindórsson

Ævintýrin gerast þegar menn eiga síst von á þeim. Þetta upplifði Ármann Andri Einarsson í veiðiferð í Haukadalsá á föstudag. Hann hafði viku áður verið að veiða í Laxá í Aðaldal og viðurkennir að þar var hann að vonast eftir þeim stóra. Það gekk ekki eftir en svo gerðist það óvænta í Haukunni. Hann setti í og landaði stærsta laxinum sem veiðst hefur á Vesturlandi til þessa í sumar.

Ármann fór snemma úr húsi fyrir seinni vaktina á föstudag. Skilyrði til veiða voru frekar erfið og það var hvasst og lofthiti varla samboðinn ágústmánuði. Samt var hugur í honum og hann var búinn að landa fallegum smálaxi fyrr í ferðinni, sem mældist 61 sentímetri. Hann og félagar hans hafa veitt saman í átján ár og mörg síðustu ár hefur hópurinn verið í Haukadalsá á þessum tíma, síðla ágústmánaðar.

Á slaginu fjögur var Ármann mættur að veiðistaðnum Blóta.

„Ég var með uppáhalds stöngina mína sem ég veiði mikið á, það er nett Loop stöng fyrir línu fimm. Flotlína og svartur Frances kónn sem ég hafði fengið frá Kalla Lú fyrir nokkrum árum. Sennilega var það í um fimmta kasti í hylinn sem laxinn tók á dauðareki rétt undan gömlu brúnni. Það var deginum ljósara strax að það væri stór mótaðili á hinum enda línunnar,“ upplýsir hann um aðdraganda viðureignarinnar.

Viðureignin drógst á langinn og stóð í tvær og hálfa …
Viðureignin drógst á langinn og stóð í tvær og hálfa klukkustund. Ármann tekur eins fast á laxinum eins og fimman leyfir. Ómar er rólegur með háfinn og veit að það er enn töluvert eftir. Ljósmynd/Ármann Andri

Framundan var mikið verkefni. Stöng fyrir línu fimm er ekki óska gripur þegar kemur að því að glíma við kröftugan stórlax.

„Fyrstu tvær klukkustundirnar þá lagði hann sig á botninn og fór upp í harða strauminn í Blóta til skiptis, en áin er nokkuð vatnsmikil um þessar mundir. Hann átti það til að leggjast upp við og undir klöppina undir brúnni. Það var ekki fyrr en að tveim tímum liðnum sem við fengum að sjá hann í fyrsta skipti þegar hann tók nokkrar rokur og tók myndarleg stökk með tilheyrandi ærslagangi. Það stóð svo mjög tæpt þegar við vorum búnir að ná honum niður í neðri hluta Blóta og nánast niður í veiðistaðinn Kvörnina þar sem stóð til að háfa hann, að hann tók á rás upp ána og hvarf mér sjónum og stökk svo efst í Blóta fyrir ofan brú. Við þetta spilaði hann nánast alla línu út af hjólinu hjá mér á örfáum sekúndum, það voru nokkrir hringir eftir af undirlínu.“

Laxinn stjórnaði ferðinni, ekki ég, sagði Ármann Andri. Hér hleypur …
Laxinn stjórnaði ferðinni, ekki ég, sagði Ármann Andri. Hér hleypur hann á eftir stórlaxinum og þarf að hafa sig allan við. Átökin leyna sér ekki. Ljósmynd/Ármann Andri

Þegar hér var komið sögu hafði veiðifélagana drifið að. Enda höfðu margir séð hvað í gangi þegar menn voru að halda til veiða úr húsi. Söfnuðust menn að og fylgdust með viðureigninni.

„Maður var í öruggum höndum félaganna í veiðifélaginu við þessa viðureign og löndun, en það var nánast allt hollið til staðar og tóku þátt í þessu ævintýri og strákarnar eiga stóran þátt í þessum lax og að hann komst á land við þessar aðstæður. Þetta er laxinn okkar. Fiskurinn var háfaður af mikilli fagmennsku og var það Ómar Özcan sem sá um það á mjög öruggan hátt.“

Laxinn mældist 102 sentímetrar og ummál 48. Nú velta menn …
Laxinn mældist 102 sentímetrar og ummál 48. Nú velta menn fyrir sér hvort þetta sé sá stærsti sem vitað er um í Haukadalsá. Ljósmynd/Ómar Özcan

Mikill fögnuður braust út þegar tröllvaxinn hængurinn var kominn í háfinn. Mæling leiddi í ljós að hængurinn var 102 sentímetrar. Sá stærsti til þessa í sumar á Vesturlandi. Myndataka fór fram. Bæði hópmyndir og vönduð myndataka af veiðimanni og stórlaxinum. Hann fékk svo góðan tíma til að jafna sig áður en honum var sleppt á nýjan leik í Blóta. Viðureignin stóð í tvær og hálfa klukkustund. 

Ármann lét gott heita á þessari vakt og skellti sér í heita pottinn þar sem hann náði sér niður og jafnaði sig í 38 gráðum. Stórlaxinn þurfti líka sinn tíma en hann var í Blóta við sjö gráður. Þar með lauk veiðisumrinu 2024 hjá Ármanni og ekki hægt að enda það á betri nótum.

Og loks myndin sem má stækka og setja upp á …
Og loks myndin sem má stækka og setja upp á vegg. Ármann með stærsta lax sem veiðst hefur á Vesturlandi það sem af er sumri. Ljósmynd/Ómar Özcan

Hollið var samtals með átta laxa og nokkrir voru misstir. Eins og gefur að skilja var þetta hápunktur ferðarinnar og ekki spillti fyrir að nánast allir upplifðu ævintýrið. Þegar endirinn er góður er það eitthvað sem allir gleðjast yfir. Nú eru uppi vangaveltur um hvort þetta sé mögulega stærsti lax sem veiðst hefur í Haukadalsá síðari ár, eða jafnvel frá upphafi. Sporðaköst hafa ekki upplýsingar um það en gaman væri að heyra frá fólki sem hugsanlega hefur veitt svo stóran eða stærri lax í Haukadalsá.

Veiði í Haukadalsá hefur verið góð í sumar og mun betri en í fyrra. 319 laxar hafa veiðst þar til þessa. Á sama tíma í fyrra voru laxarnir 207. Það er ríflega fimmtíu prósent aukning milli ára.

Sporðaköst óska Ármanni Andra til hamingju með þennan glæsilega höfðingja úr Haukadalsá.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Richard Jewell 9. ágúst 9.8.
100 cm Laxá í Aðaldal Björgvin Krauni Viðarsson 9. ágúst 9.8.
101 cm Víðidalsá N/A 30. júlí 30.7.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert