Bókin sem beðið var eftir er komin út

Svona var stemmingin á blaðamannafundi sem Árni Baldursson og bókaútgáfan …
Svona var stemmingin á blaðamannafundi sem Árni Baldursson og bókaútgáfan Salka héldu nú síðdegis. Þetta er ekki hefðbundin mynd af höfundi með fyrstu bókina en Árni var mjög ánægður með þessa mynd. Ljósmynd/Sporðaköst

Sögumaðurinn, ævintýrakappinn og hrakfallabálkurinn sem alltaf kemur niður á fótunum, en umfram allt lifandi goðsögnin í veiðiheiminum, Árni Baldursson hefur sent frá sér bókina Í veiði með Árna Bald. Þessarar bókar hefur verið beðið í nokkurn tíma og í tvígang hefur útgáfan frestast um eitt ár. Ástæðan er einföld. Árni var svo upptekinn við að veiða að hann hafði ekki tíma til að klára bókina.

Árni boðaði til blaðamannafundar á heimili sínu í dag, ásamt bókaútgáfunni Sölku sem gefur út bókina. Þar halda um taumana tvær forfallnar veiðikonur, þær Dögg Hjaltalín og Anna Lea Friðriksdóttir. Enda kom í ljós á fundinum að hugmyndin að bókinni kviknaði í veiðitúr í Stóru Laxá þar sem þau voru saman að veiða.

Árni Baldursson er eitt af stóru nöfnunum í veiðiheiminum og þá erum við að tala um alþjóðlega veiðiheiminn. Tveir Íslendingar eru þekktir á alþjóðlega vísu þegar rætt er um laxveiði. The Dentist - eða tannlæknirinn og er þar vísað í Tóta tönn. Hinn er mister Baldursson.

„Það er búið að vera fiðrildi í maganum á mér nú í aðdraganda þess að bókin kom út. Hún er búin að vera í uppbyggingu og fæðingu síðan 2021. Ástæðan fyrir bókinni er sú að ég byrjaði að segja sögur í veiðihúsum fyrir mjög löngu síðan. Fólk virtist hafa gaman af þessu og það var mikið hlegið og þetta var komið út í það, hvar sem ég kom í veiðihús að þurfti að vera ein saga í hádeginu og svo önnur, svona slæm saga á kvöldin. Það áttu að vera svona verstu sögurnar. Svona gekk þetta áratugum saman og fólk fór að muna þessar sögur og panta að þessi eða hin sagan væri sögð. Fólk sem pantaði sögurnar var oft að muna þær betur en ég og Dögg stakk upp á því við mig, haustið 2021 að við myndum skrásetja þessar sögur áður en þær gleymdust eða ég hreinlega jafnvel dræpist,“ sagði Árni í upphafsorðum sínum á fundinum. 

Anna Lea Friðriksdóttir, Árni Baldursson og Dögg Hjaltalín með bókina …
Anna Lea Friðriksdóttir, Árni Baldursson og Dögg Hjaltalín með bókina glóðvolga. Það hefur dregist að bókin kæmi út og það er vegna þess að Árni hafði aldrei tíma. Var alltaf að veiða. En þau fundu lausn. Ljósmynd/Sporðaköst

Þess verra því betra

Hann er sagnabrunnur mikill og hefur á ferðalögum sínum um allan heim til áratuga hitt þúsundir veiðimanna og oftar en ekki lent í ótrúlegum ævintýrum. „Þetta eru ekki djúp fræði um laxveiðina eða leyndardómana. Mitt markmið var að þessi bók ætti að vera skemmtileg og skammarleg á köflum. Spennandi og segja sögur sem eru á bjargbrúninni. Fólk vill lesa eitthvað sem er dónalegt og jafnvel hræðilegt. Þess verra því betra,“ upplýsir Árni og uppsker hlátrarsköll.

Hann segir bókina engu að síður uppfulla af reynslu þar sem hann lýsir ferðum til fjölmargra veiðistaða um allan heim og þar geti fólk gripið reynsluna hans, ef það ætlar að ferðast eitthvert. „Boðskapurinn í bókinni er kannski ferðasaga mín í fjörutíu ár. Minn draumur er að það verði hlátrarsköll uppi í rúmi um jólin þegar fólk er að lesa bókina og hefur vonandi gaman af.“

Hjónin Árni og Valgerður Baldursdóttir. Hún er sátt við bókina. …
Hjónin Árni og Valgerður Baldursdóttir. Hún er sátt við bókina. Allavega það sem hún hefur lesið fram til þessa. Ljósmynd/Sporðaköst

Valgerður Baldursdóttir, eiginkona Árna var stödd á fundinum. Hún fékk fyrstu spurninguna, eftir að Árni hafi lokið sinni ræðu.

Er þessi bók í lagi?

Vala skellir upp úr og átti greinilega ekki von á að þurfa að sitja fyrir svörum. „Ég kveið alveg fyrir að lesa hana en ég er ekki búin með hana en „so far so good,““ hlær hún.

En titillinn er réttnefni upplýsa þær Dögg og Anna Lea. Árni hafði aldrei tíma þrátt fyrir fögur fyrirheit. Svo duttu þau niður á þá lausn að Árni myndi bara tala inn á upptöku í símanum á meðan að hann var að veiða. Það varð úr og þær skrifuðu upp sögurnar eftir upptökum og undirspilið var þytur flugulínunnar og vatnselgurinn, þar sem Árni var staddur hverju sinni.

En nú er hún komin út þessi bók sem margir hafa beðið eftir. Við munum síðar í vikunni kíkja á innihaldið og fara betur yfir margt sem við kemur bókinni. Sporðaköst óska Árna og Sölku til hamingju með bókina. Það var mikið hlegið á blaðamannafundinum og eru væntanlega góð fyrirheit um sögurnar.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert