Á næstu dögum er von á niðurstöðum úr rannsóknum á 1.500 sýnum sem tekin voru í laxveiðiám hér á landi í haust. Rannsóknin miðar að því að upplýsa hversu mikil erfðablöndun varð við strok þúsunda kynþroska laxa úr sjóeldiskví Arctic Fish, haustið 2023. Seiðin eru í greiningu í Noregi.
Sýnin voru tekin úr seiðum sem klöktust út í vor sem leið, eftir hrygningu haustið 2023 og mun væntanlega gefa einhverja mynd af því hvort eldislax hafi blandast villta laxinum í þeim ám sem sýni voru tekin úr. Ekki var hægt að hefja sýnatöku fyrr en seint í haust og unnið ötullega að henni þar til vetur lagðist yfir. Sýni voru tekin úr fimmtán til tuttugu ám og þar á meðal úr ánum í Húnavatnssýslu og víðsvegar á Vestfjörðum. Fyrirhugaðar eru frekari sýnatökur. Guðni Guðbergsson, sviðstjóri hjá Hafrannsóknastofnun var gestur Sporðakasta um helgina og ræddi meðal annars áhættumat vegna sjókvíaeldis, sem nú er til skoðunar.
Guðni telur frekar liggja í augum uppi að þær niðurstöður sem koma úr erfðagreiningunni muni til framtíðar geta haft áhrif á áhættumat. Hann segir að þessu máli verði fylgt eftir. Mjög spennandi verður að sjá hverjar niðurstöðurnar verða. Guðni segir erfitt að geta sér til um það en nefnir að í vor hafi þeir séð merki þess í einni hrygnu sem ættuð var úr strokinu að hún hafði ekki losað hrogn og greinilega komið á vitlausum tíma.
„Segjum nú svo að það sé eitthvað af blendingum í þessum seiðasýnum sem eru við erum með núna. Þá verður næsta ár og þarnæsta og mögulega hægt að fylgjast með þegar þeir fiskar koma til baka. Er afkoma þeirra önnur en af viltu fiskunum? Velur náttúran þá út? Á hvaða hraða velur hún þá út? Er þau mörk sem áhættumatið miðar við núna, eru þau rétt? Eru þau of lág, eru þau of há? Það er náttúrulega þessi stóra spurning, hversu mikið eldi er hægt að hafa án þess að það hafi neikvæð óafturkræf áhrif á vilta stofna. Það er náttúrulega grunnurinn undir áhættumatinu,“ segir Guðni. Eins og sjá má á þessum spurningum sem hann er að velta hér upp geta þessar niðurstöður veitt innsýn í hvað gerðist í hrygningunni haustið 2023.
Með fréttinni fylgir sá hluti viðtalsins, þar sem Guðni ræðir þennan þátt. Viðtalið í heild sinni má nálgast með því að smella á linkinn hér að neðan.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
102 cm | Hvítá við Iðu | Ársæll Þór Bjarnason | 19. september 19.9. |
101 cm | Víðidalsá | Stefán Elí Stefánsson | 4. september 4.9. |
101 cm | Laxá í Dölum | Hafþór Jónsson | 27. ágúst 27.8. |
102 cm | Haukadalsá | Ármann Andri Einarsson | 23. ágúst 23.8. |
103 cm | Laxá í Aðaldal | Birgir Ellert Birgisson | 12. ágúst 12.8. |
103 cm | Miðsvæði Laxá í Aðaldal | Máni Freyr Helgason | 11. ágúst 11.8. |
101 cm | Laxá í Aðaldal | Agnar Jón Ágústsson | 10. ágúst 10.8. |