Fékk þann stærsta í krefjandi aðstæðum

Fyrri keppnisdagurinn leit ágætlega út. Áin aðeins að hreinsa sig. …
Fyrri keppnisdagurinn leit ágætlega út. Áin aðeins að hreinsa sig. Hér er Ólafur Hilmar Foss að kasta fyrir harra. Svo fór aftur að rigna. Ljósmynd/ÓHF

Ólafur Hilmar Foss er reynslunni ríkari og kominn með keppnisdelluna eftir litríka keppni í harraveiði í Wales um helgina. Hann náði þeim markmiðum sem hann setti sér og landaði stærsta fiskinum.

Við sögðum frá þessari fyrirhuguðu keppni í síðustu viku. Keppt var í harraveiði á stöng eða grayling. Keppnisvöllurinn var áin Rhymney við bainn Caerphilly í Wales. Keppt var í þremur umferðum. Hvert lið fékk tvö svæði til að veiða á laugardeginum og svo var þriðja og síðasta umferðin á sunnudeginum. Fyrst var dregið um svæði en ánni var skipt í átta svæði og tvö lið voru á hverju svæði í hverri umferð.

„Við fengum óhagstæðan drátt, svo maður kveði ekki fastar að orði. Við fengum ekki þau svæði sem talin voru best fyrirfram. Svo kom að því að draga um röðina og aftur vorum við óheppnir. Fyrirkomulagið er þannig að tvö lið eru saman á svæði og skiptast á að veiða og fylgjast með og skrá fyrir hitt liðið. Við fengum aldrei að byrja á svæði. Þetta dróst þannig að við vorum alltaf fyrst að skrá og fylgjast með. Auðvitað er betra að byrja og margir af þessum mönnum veiða svæðin þannig að það er ekki spennandi að koma á eftir þeim,“ hlær Ólafur.

Stærsti fiskur keppninnar. Ólafur með 49 sentímetra harrann sem reyndist …
Stærsti fiskur keppninnar. Ólafur með 49 sentímetra harrann sem reyndist sá stærsti. Áin orðin lituð og hafði vaxið mikið. Liðsfélaginn orðinn fárveikur. Ljósmynd/ÓHF

Miklar rigningar höfðu verið áður en keppnin hófst og áin því lituð og bólgin. Hún var að ganga vel niður fyrri keppnisdaginn og Ólafur og liðsfélagi hans Sparky Price voru tilbúnir í þetta. Það kom í þeirra hlut að hefja keppnina með því að vera á bakkanum og fylgjast með liðinu Hanak UK. Þar voru mættir hinn reyndi Lewis og Will félagi hans. Veiðitíminn var klukkustund og 45 mínútur á svæðinu á hvort lið. Byrjunarliðið gerði fína hluti. Lewis landaði fimm hörrum og Will einum. Svo kom að Ólafi og Sparky. „Ég setti strax í einn fisk og landa honum. Það var urriði. En þeir telja ekki til stiga. Við fengum nokkrar nettar tökur og Sparky landaði einum harra og kom okkur á blað. En við vorum bara sigraðir á þessu svæði.“

Svo kom hádegishlé og í framhaldi af því var skipt um svæði og þeir fengu nýtt lið til að deila svæði með. Það lið var frá Rúmeníu og aftur þurftu Ólafur og Sparky að byrja á að sjá um eftirlitið. „Þeir notuðu aðeins aðra tækni og veiddu þetta saman. Börðu þetta alveg í döðlur og það var ekki einn sentímetri sem þeir skyldu eftir,“ upplýsir Ólafur.

Niðurstaðan hjá Rúmenunum var einn harri og einn urriði. Sem þeir félagar ræddu hvernig þeir ættu að beita sér á svæðinu fara að renna tvær grímur á Sparky. „Hann var að verða lasinn. Honum leið ömurlega og ég reyndi að stappa í hann stálinu. Hann lét sig hafa það og við förum út í. Ég missti tvo harra og það var rándýrt. Ég var mjög sár.“

Gleðin var við völd þó að ekkert væri gefið eftir …
Gleðin var við völd þó að ekkert væri gefið eftir í keppninni. Ólafur setti sér það markmið að verða ekki neðstur. Það náðist þrátt fyrir alls konar erfiðleika. Ljósmynd/ÓHF

Aðstæður voru vægast sagt krefjandi. Nokkur lið höfðu ekki landað fiski eftir fyrri daginn. Veðurspáin fyrir seinni daginn var einföld. Grenjandi rigning. Eldur og brennisteinn. Sú spá gekk fullkomlega eftir. Þriðja umferðin á sunnudeginum var lengri og lokaspretturinn. Þá fékk hvert lið tvær og hálfa klukkustund í ánni. „Fyrra liðið byrjaði klukkan hálf tíu og mátti veiða til tólf. Það byrjaði að rigna klukkan átta og ég hef bara ekki séð svona úrkomu. Liðið sem var á móti okkur byrjaði á því að fá harra í fyrsta kasti. Áin var fljótlega byrjuð að hækka og svæðið sem við vorum á var efst og áin þrengri þannig að maður horfði á strauminn og litinn aukast. Þeir fengu annan harra rétt fyrir tólf. Þá stoppaði ég þá enda tíminn búinn. Áin var núna að breytast í fljót og eina leiðin til að vaða þetta svæði er með því að fara út í. Ég þurfti að hlaupa lengst upp eftir og vaða svo niður ána til að komast að staðnum sem ég vildi kasta á. Ég hafði séð poll sem mér fannst álitlegur. Ég kastaði upp fyrir mig og lét reka framhjá mér. Það tók fiskur bara eiginlega strax og ég náði að landa honum eftir töluvert bras. Ég var kominn í vatn upp undir brjóstkassa en þetta hafðist einhvern veginn.“

Ólafur fór með háfinn til keppandans sem var að vakta hans framgöngu og þurfti að staðfesta fiskinn. „Hann vildi mæla hann. Ég taldi það nú óþarfa en lét til leiðast. Mér fannst ekkert svo stór enda er maður góður vanur hérna heima. En hann mældi hann í háfnum og sagði strax að þetta gæti verið stærsti fiskurinn í keppninni. Stærsti harrinn eftir fyrri daginn var 48,3 sentímetrar. Við þurftum að mæla hann vel. Uppi á bakka reyndist staðfest mæling 49 sentímetrar,“ segir Ólafur.

Verðlaunaafhending. Lindsay Simpson, annar þeirra sem bar sigur úr býtum …
Verðlaunaafhending. Lindsay Simpson, annar þeirra sem bar sigur úr býtum og okkar maður með verðlaunagripinn fyrir stærsta fiskinn. Ljósmynd/ÓHF

Hér lét okkar maður staðar numið. Áin var að hækka mjög hratt og straumþunginn að sama skapi var að aukast. Hann fann að þessar örfáu mínútur sem hann hafði verið að kasta hafði áin hækkað verulega og var þar að auka orðin algerlega kakólituð. „Þetta var orðið gott. Það var beinlínis orðið hættulegt að vaða út á staðinn þar sem ég fékk fiskinn. Sparky félagi minn var orðinn fárveikur og var ekki með mér. Þannig að ég pakkaði saman og fór í hús. Þá með stærsta fiskinn.“

Hann virðurkennir að það hafi verið taugatrekkjandi bið þar til keppninni lauk, hvort hann myndi halda því að vera með stærsta fiskinn. Biðin var löng. „Það var enginn að gefast upp. Menn eru vanir þjáningum þarna og héldu áfram að reyna. Við vorum fyrstir í hús og ég var mjög stressaður yfir því hvort einhver kæmi með stærri harra. Þetta var eini sénsinn fyrir mig að komast á blað og valda ekki lesendum Sporðakasta vonbrigðum.“

Staðfesting á stærsta fisknum. Kannski eru þetta mest spennandi verðlaunin?
Staðfesting á stærsta fisknum. Kannski eru þetta mest spennandi verðlaunin? Ljósmynd/ÓHF

Þeir félagar Ólafur og Sparky enduðu í tólfta sæti af sextán liðum. Það er vel gert í ljósi aðstæðna og þá ekki síst vegna þess hversu óheppnir þeir voru með dráttinn. Ólafur kom heim með skjöld og viðurkenningu fyrir stærsta fiskinn. Þá fékk hann einnig til varðveislu listaverk eftir Charles Jardin, sem áhorfendur Sporðakasta muna kannski eftir úr samnefndri þáttaröð sem hann og sonur hans Alex veiddu Skarðsá í nágrenni Möðrudals.

Ólafur er kominn með keppnisdelluna. Hann viðurkennir það og er búinn að ákveða að fara aftur. Jafnvel á þessu ári. Sporðaköst óska Ólafi til hamingju með skjöldinn og stærsta fiskinn.

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert