Leita að nýjum leigutaka að Skógá

Jón Ómar Finnsson með lax úr Raflínustreng. Auðvitað er Skógafoss …
Jón Ómar Finnsson með lax úr Raflínustreng. Auðvitað er Skógafoss í baksýn. Veiðifélag Skógár er nú að leita að nýjum leigutaka að ánni. Ásgeir A. Ásmundsson hefur verið ána á leigu síðustu ár. Ljósmynd/ES

Veiðifélag Skógár leitar að nýjum leigutaka strax í sumar. Öll veiði í ánni byggir á seiðasleppingum og er veiðifélagið því að leita að áhugasömum aðila sem er tilbúinn til að koma að ræktun og uppbyggingu á veiði í ánni. Skógá hefur sveiflast afskaplega mikið í veiði síðustu ár. Hennar gullaldartími var fyrr á öldinni og skilaði hún þá frábærri veiði í nokkur ár. Stóra sumarið hennar var árið 2008 þegar 1.600 laxar veiddust á fjórar stangir. Svo fór að gjósa. Mikil aska og afleiðingar af henni leiddi til þess að veiði lagðist nánast af í nokkur ár.

Þegar best lét var Ásgeir A. Ásmundsson leigutaki. Hann kom svo á nýjan leik að borðinu fyrir nokkrum árum. Farið var í sleppingar og byggt var nýtt og huggulegt veiðihús. Veiðin náði sér ekki á strik og nú er Ásgeir að sleppa hendinni af Skógá.

Nýja veiðihúsið við Skóga sem var tekið í gagnið sumarið …
Nýja veiðihúsið við Skóga sem var tekið í gagnið sumarið 2023. Ljósmynd/ÁAÁ

Það er stórt verkefni að taka við Skógá. Nú er veiðifélagið að leita að nýjum aðila til uppbyggingar. Guðni Ingólfsson í Drangshlíðardal er formaður veiðifélagsins og geta áhugasamir sent tölvupóst á netfangið hans sem er dalur@emax.is.

Sporðaköst spurðust fyrir um þessi áform og við fengum til baka auglýsingu sem send hefur verið á nokkra aðila. Öllum er hins vegar frjálst að leggja inn tilboð. Hér að neðan má sjá hluta úr auglýsingunni og jafnframt hvað væntanlegur leigutaki þarf að leggja fram og það fljótlega, eða í síðasta lagi þann 15. febrúar. 

Með tilboðinu fylgi upplýsingar um tilboðsgjafa, væntanlega tímalengd samnings og leigugjald (gjalddagar/tryggingar) annars vegar fyrir veiðiréttinn og hins vegar fyrir veiðihúsið. Gott ef tilboðinu fylgir greinargerð um áform væntanlegs leigutaka um hvernig hann hyggst standa að uppbyggingu árinnar. Tilboðum skal skilað á sama netfang fyrir 15. febrúar næstkomandi. Veiðifélagið áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum.“

mbl.is

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
102 cm Hvítá við Iðu Ársæll Þór Bjarnason 19. september 19.9.
101 cm Víðidalsá Stefán Elí Stefánsson 4. september 4.9.
101 cm Laxá í Dölum Hafþór Jónsson 27. ágúst 27.8.
102 cm Haukadalsá Ármann Andri Einarsson 23. ágúst 23.8.
103 cm Laxá í Aðaldal Birgir Ellert Birgisson 12. ágúst 12.8.
103 cm Miðsvæði Laxá í Aðaldal Máni Freyr Helgason 11. ágúst 11.8.
101 cm Laxá í Aðaldal Agnar Jón Ágústsson 10. ágúst 10.8.

Skoða meira

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert