Krossfestur ertu, Kristur, á altari kirkjunnar hér í Súðavík og sóknarbörn þín í svörtum snjónum, svörtum sorgarsnjónum. Við, sem eftir stöndum, byggjum upp nær þér, færumst nær þér, leiðtoga lífsins, sem sagðir og segir: "Ég lifi og þér munuð lifa." Já, þú lifir, Kristur, og börnin sem þú blessar.
Meira