"VIÐ lékum langt undir getu. Eftir að við jöfnuðum, bökkuðum við á fáráðlegan hátt og gáfum þeim gullin tækifæri til að komast tveimur mörkum yfir [3:1]. Nú er að bíta á jaxlinn, seinni hálfleikurinn er eftir heima," sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari KR, eftir að KR-ingar höfðu mátt sætta sig við tap, 3:2, fyrir Gravenmacker frá Luxemborg í Evrópukeppni bikarhafa í gærkvöldi.
Meira