Þó að kali heitur hver, hylji dali jökull ber, steinar tali og allt, hvað er, aldrei skal eg gleyma þér. Verði sjórinn vellandi, víða foldin talandi, hellubjörgin hrynjandi, hugsa eg til þín stynjandi. Trega eg þig manna mest mædd af tára flóði, ó, að við hefðum aldrei sézt, elsku vinurinn góði.
Meira