Hér er horfinn af sjónarsviðinu gagnmerkur Íslendingur - maður óvenjulegri fjölhæfni, stórhug, karlmennsku, athafnarorku, verksnilli og listamennsku búinn. Hann var allt í senn, listamaður, skipasmiður, siglingafræðingur, landkönnuður, leiðsögumaður, víðfarinn og fjölfróður. Hvers manns hugljúfi var hann, mannvinur og gaf örlátlega af sér, hvar sem hann fór og við hvað sem hann fékkst.
Meira