Greinar laugardaginn 15. júní 1996

Forsíða

15. júní 1996 | Forsíða | 88 orð

Dole í sókn

NÝ skoðanakönnun CNN/Time Magazine, sem birt var í Bandaríkjunum í gær, gefur til kynna að mjög dragi nú saman með Bill Clinton forseta og væntanlegum frambjóðanda repúblikana, Bob Dole. Meira
15. júní 1996 | Forsíða | 119 orð

Karadzic fari frá

LEIÐTOGI Bosníu-Serba, Radovan Karadzic, verður að láta af völdum, segir í yfirlýsingu, sem samþykkt var í gær á ráðstefnu utanríkisráðherra rúmlega 40 landa um friðaraðgerðir í Bosníu. Ráðstefnan var haldin í Flórens á Ítalíu. Í yfirlýsingunni er mælst til þess að kosningar verði haldnar í Bosníu 14. Meira
15. júní 1996 | Forsíða | 115 orð

Minni andstaða við hvalveiðar?

JAPANSKIR embættismenn telja, að andstaðan við hvalveiðar minnki óðum innan Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) en ársfundur þess hefst í Skotlandi síðar í mánuðinum. Japanir segja, að töluverð viðhorfsbreyting hafi átt sér stað meðal aðildarríkja IWC frá síðasta ársfundi og nefna sem dæmi Suður- Afríkustjórn, sem hefur látið af fyrri andstöðu sinni og telur nú, Meira
15. júní 1996 | Forsíða | 250 orð

Tapaði 126 milljörðum króna

GÍFURLEGT tap japanska stórfyrirtækisins Sumitomo í koparviðskiptum á málmmörkuðum í London gæti reynst vera mesta tap í sögu fjármálamarkaða í heiminum, að því er haft var eftir fjármálasérfræðingum í gær. Meira
15. júní 1996 | Forsíða | 380 orð

Zjúganov boðar hófsemd og sátt

KOSNINGABARÁTTU Borís Jeltsíns, forseta Rússlands, lauk í Jekaterínbúrg, heimaborg hans, í gær með áskorun til Rússa um að snúa bökum saman um framboð hans í kosningunum á morgun og lofaði hann uppstokkun í stjórninni næði hann kjöri. Meira

Fréttir

15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 223 orð

13,6% raunávöxtun á ársgrundvelli

SAMKVÆMT uppgjöri Lífeyrissjóðs Tæknifræðingafélags Íslands, LTFÍ, fyrir fyrstu fjóra mánuði þessa árs var raunávöxtun sjóðsins 13,6% á ársgrundvelli, en í fyrra var raunávöxtunin 8% og árið 1994 var hún 5%. Að sögn Bergsteins Gunnarssonar, formanns stjórnar LTFÍ, stafar þetta ekki síst af því að hluti af sjóðnum er í hlutabréfum sem hafa gefið mjög góða ávöxtun það sem af er árinu. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 255 orð

1,6 milljarða króna aflað innanlands

REYKJAVÍKURBORG hefur leitað tilboða hjá fimm verðbréfafyrirtækjum í sölu verðtryggðra skuldabréfa að nafnvirði 1.600 milljónir króna til 20 eða 25 ára, en gert er ráð fyrir að bréfin verði seld í einum áfanga og sölu þeirra ljúki 1. ágúst næstkomandi. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 421 orð

18 punda maríulax

TVEIR laxar veiddust í Elliðaánum í gærmorgun er Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri renndi þar fyrst veiðimanna á þessari vertíð. Er það tveimur löxum meira heldur en veiddust í opnun í fyrra. Borgarstjórinn veiddi þann fyrsta í Miðkvörn klukkan tíu mínútur í níu, 5 punda hrygnu á maðk. Meira
15. júní 1996 | Akureyri og nágrenni | 30 orð

Alþýðufólk á Hjalteyri

SÝNING á verkum Dagnýjar S. Einarsdóttur, myndum af íslensku alþýðufólki stendur yfir á Hótel Hjalteyri. Sýningunni lýkur næstkomandi föstudag, 21. júní. Kaffihúsið verður lokað þjóðhátíðardaginn 17. júní. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 164 orð

Atvinnulífið snúist til varnar

ANDÚÐ og æsingar í Bretlandi gegn Evrópu og Evrópusambandinu gætu haft skelfilegar afleiðingar fyrir breskt efnahagslíf og það er kominn tími til, að frammámenn í atvinnulífinu snúist af hörku gegn Evrópuandstæðingunum. Lét Sir Leon Brittan, varaforseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins, ESB, þessi orð falla í gær. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 119 orð

Á húðkeipum yfir Faxaflóa

TVEIR grænlenskir ræðarar á þarlendum húðkeipum reru frá Reykjavík til Akraness í gærkvöldi. Lagt var upp úr Reykjavíkurhöfn kl. 19 og komu ræðararnir, Aqqalunngvaq Isbosethsen t.v. og Ove Pedersen, báðir 20 ára, til Akraness laust fyrir kl. 21. Þessi ferð var í tengslum við sumarhátíðina Sumar og sandur sem hefst á Akranesi í dag. Meira
15. júní 1996 | Akureyri og nágrenni | 57 orð

Á leið úr grillveislu

FÉLAGARNIR Þorsteinn Ingason og Andri Heiðar Ásgrímsson voru vígreifir, er ljósmyndari Morgunblaðsins rakst á þá í blíðunni í gær. Þeir voru að koma úr grillveislu á leikskólanum Síðuseli, þar sem systkini þeirra eru en sjálfir eru þeir komnir á grunnskólaaldurinn. Engu að síður skemmtu þeir sér vel í grillveislunni, ásamt fjölda fólks. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 676 orð

Baksýnisspegillinn eða umbætur

MIKIL ólga er í rússneskum stjórnmálum um þessar mundir og forsetakosningarnar, sem samkvæmt skoðanakönnunum er barátta milli Borís Jeltsíns forseta og Gennadís Zjúganovs, leiðtoga kommúnista, geta skipt sköpum um framtíð Rússlands. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 134 orð

Bessastaðakirkja 200 ára

Á ÞESSU ári eru liðin tvö hundruð ár frá því að byggingu Bessastaðakirkju var lokið og hún tekin í notkun. Elstu heimildir um kirkju á Bessastöðum eru frá því árið 1200. Steinkirkja var svo vígð árið 1796 eftir að hafa verið í byggingu í tuttugu ár og er eitt elsta steinhús landsins. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 110 orð

Blóm undirstiganum flytur

Í DAG, laugardag, opnar blómaverslunin Blóm undir stiganum nýja verslun í Skipholti 50d (nýja húsinu í Skipholti). Blóm undir stiganum hefur verið með rekstur sinn í Borgarkringlunni, en verslunin hættir nú starfsemi þar. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 308 orð

BM Vallá ehf. fær gæðavottun samkvæmt alþjóðlegum staðli

BM VALLÁ ehf. og dótturfyrirtæki þess Vikurvörur ehf. á Þorlákshöfn fengu gæðavottun samkvæmt alþjóðlegum staðli um gæðakerfi er kallast ISO 9001. BM Vallá er fyrsta byggingarfyrirtækið hér á landi til að fá slíka vottun og einnig það fyrsta sem starfar einungis á innanlandsmarkaði. Davíð Oddsson forsætisráðherra afhenti Víglundi Þorsteinssyni, framkvæmdastjóra BM Vallár ehf. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 98 orð

Borgin lánar frambjóðendum Tjarnarsal

BORGARYFIRVÖLD hafa ákveðið að lána forsetaframbjóðendunum fimm Tjarnarsal Ráðhússins til fundarhalda. Ástþór Magnússon reið á vaðið á fimmtudagskvöld með fundi í salnum og þá hefur Guðrún Agnarsdóttir bókað hann til afnota 26. júní. Meira
15. júní 1996 | Akureyri og nágrenni | 391 orð

Dagskrá hátíðarhaldanna 17. júní með breyttu sniði

HÁTT í þrjú hundruð listamenn víðs vegar að af landinu taka þátt í hátíðarhöldunum þjóðhátíðardaginn 17. júní á Akureyri, en dagskráin verður með breyttu sniði frá því sem verið hefur. Hefðbundin dagskrá á vegum Akureyrarbæjar hefst kl. 10 á Hamarkotsklöppum, við styttu landnámsmannanna Helga magra og Þórunnar hyrnu, með fánahyllingu, helgistund og tónlistaratriði. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 186 orð

Ellilífeyrir 2,3% af landsframleiðslu

ELLILÍFEYRISGREIÐSLUR sem hlutfall af vergri landsframleiðslu voru 2,38% á Íslandi árið 1994. Þetta er mun lægra hlutfall en í flestum löndum Evrópu. Innan Evrópusambandsins er þetta hlutfall á bilinu 5-14%. Hér eins og annars staðar fer þetta hlutfall hækkandi samhliða fjölgun ellilífeyrisþega. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 213 orð

Engin ákvörðun verið tekin

SEINUSTU daga hafa undarskriftarlistar gengið um Kjalarnes til að fá stuðning íbúa þar við að mótmæla hugmyndum um lokun meðferðarheimilisins á Arnarholti, en það er stærsti vinnustaður í hreppnum. Kostnaður við heimilið er 180-200 milljónir á ári og þar eru tæplega 60 sjúkrarúm. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 249 orð

Fara þarf 30 ár aftur til að finna samanburð

HEYSKAPUR er hafinn á túnum sem ekki hafa verið beitt á nokkrum bæjum í Landeyjum, Mýrdal og undir Eyjafjöllum og búist er við að í næstu viku verði farið að slá víða á sunnanverðu landinu. Að sögn Ólafs R. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 521 orð

Fasteignaskattur lækki um 20 til 25%

EF niðurstöður nefndar á vegum félags- og umhverfisráðherra um réttindi og skyldur sumarhúsaeigenda ná fram að ganga lækkar fasteignaskattur af sumarhúsum um 20 til 25%. Páll Pétursson félagsmálaráðherra telur tillögurnar góðan grundvöll til að byggja á. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 103 orð

Fjórði áfangi Reykjavegarins

FJÓRÐI áfangi Reykjavegarins verður genginn sunnudaginn 16. júní. Þetta er raðganga í 8 áföngum frá Reykjanestá til Þingvalla í samvinnu Ferðafélags Íslands og Útivistar. Þátttaka fram til þessa hefur verið sérlega góð en 767 hafa tekið þátt í fyrstu þremur áföngunum. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 116 orð

Fjölbreytt dagskrá hjá forseta

FRÚ Vigdísar Finnbogadóttur bíður löng og fjölbreytt dagskrá síðasta þjóðhátíðardag hennar í embætti forseta Íslands nk. mánudag. Fyrsta embættisverk hennar verður að vera viðstödd hefðbundna athöfn á Austurvelli kl. 10.30 að morgni 17. júní. Forsætisráðherra minnist dagsins, fjallakonan flytur ljóð og lagður er krans að minnisvarða Jóns Sigurðssonar. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 323 orð

Flutt með sjúkraflugi eftir bílveltu

RÚMLEGA fimmtug kona var flutt með sjúkraflugi með höfuðáverka á Sjúkrahús Reykjavíkur eftir að pallbíll sem hún var farþegi í valt við Hafnará undir Hafnarfjalli. Atvikið átti sér stað um áttaleytið og var þyrla Landhelgisgæslunnar kölluð út þegar í stað. Að sögn vakthafandi læknis á slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur þurfti konan að fara í aðgerð vegna höfuðáverkanna en hún var ekki í lífshættu. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 363 orð

Forsetaframbjóðendur á ferð og flugi

FORSETAFRAMBJÓÐENDUR verða á ferð og flugi um helgina til að kynna sín framboð. Frambjóðendurnir verða í beinni útsendingu Junior Chambers í samvinnu við RÚV frá Perlunni milli kl. 14-16.30. Þetta er opinn borgarafundur á Rás 1 og Rás 2. Guðrún Pétursdóttir Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 1195 orð

Forsetanum ber að styðja og vernda þjóðkirkjuna

FORSETI Íslands er sem þjóðhöfðingi yfirmaður þjóðkirkjunnar. Honum er hins vegar ekki skylt að vera í þjóðkirkjunni. Þrátt fyrir ákvæði stjórnarskráinnar um trúfrelsi ber ríkisvaldinu, og þar með forseta Íslands, að styðja og vernda þjóðkirkjuna. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 282 orð

Framlag íslenskra vísindamanna hlýtur viðurkenningu

YFIRLITSGREIN eftir íslenska sérfræðinga um heilablæðingar vegna svonefndra mýlildisæðameina er birt í nýjasta hefti hins virta fræðirits Brain Pathology, sem alþjóðafélag taugameinafræðinga gefur út. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 359 orð

Getum ekki keppt við ensku, frönsku og spænsku

HELMUT Kohl, kanslari Þýskalands, sagði í ræðu þeirri er hann flutti á þingi á fimmtudag að Þjóðverjar gætu ekki keppt á alþjóðavettvangi við franska, þýska eða spænska tungu. Það breytti því þó ekki að Þjóðverjar gætu gert miklu meira en gert hefði verið til þessa til að styrkja stöðu þýsku á alþjóðavettvangi og kynna þannig þýska menningu. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 162 orð

Grunur um vélarbilun

GRUNUR leikur á, að vélarbilun hafi valdið flugslysinu á Fukokaflugvelli í Japan á fimmtudag. Formaður flugslysanefndar japanska samgönguráðuneytisins sagði í gær að rannsókn á orsökum slyssins myndi beinast að vísbendingum um mögulega vélarbilun. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 104 orð

Göngin orðin 40 metrar

STÖÐUGT er sprengt í Hvalfjarðargöngunum að norðanverðu og undirbúningur undir sprengingar að sunnanverðu gengur samkvæmt áætlun. Að sögn Hermanns Sigurðssonar staðarverkfræðings er búið að sprengja tæpa 40 metra á rúmum tveimur vikum norðanmegin í Hvalfirði. Að sunnanverðu er verið að styrkja stafninn, þ.e. bergið þar sem byrjað verður að sprengja. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 64 orð

Hagavagninn við Vesturbæjarlaug

PYLSUVAGNINN við Sundlaug Vesturbæjar hefur hlotið nafnið Hagavagninn og er fluttur yfir á sundlaugarlóðina en mun eftir sem áður þjónusta akandi og gangandi vegfarendur. Af þessu tilefni verða allar veitingar seldar á hálfvirði í dag, laugardaginn 15. júní, og smáfólkið fær ókeypis ís í brauði á meðan birgðir endast. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 533 orð

Harmar samstöðuskort lýðræðisafla

BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti hefur ferðast víða um Rússland í kosningabaráttunni síðustu daga og virðist samkvæmt flestum skoðanakönnunum hafa tekist að vinna upp forskot Gennadís Zjúganovs, frambjóðanda og leiðtoga kommúnista. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 53 orð

Háskólahátíð í Laugardalshöll

BRAUTSKRÁNING kandídata fer fram í Laugardalshöll mánudaginn 17. júní. Að þessu sinni brautskrást um 520 kandídatar. Athöfnin hefst með ræðu rektors. Auk málefna Háskólans mun rektor ræða fjölgun háskólmenntaðra, atvinnuhorfur þeirra í íslensku þjóðlífi og erlendis, þróun íslenskra háskóla í alþjóðasamstarfi og bætt tengsl þeirra við landsbyggð og þjóðlíf. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 1826 orð

Hefðbundin dagskrá í Reykjavík

HÁTÍÐAHÖLDIN í Reykjavík á 17. júní verða með hefðbundnum hætti fram að hádegi. Dagskráin hefst kl. 10, þegar forseti borgarstjórnar, Guðrún Ágústsdóttir, leggur blómsveig frá Reykvíkingum að leiði Jóns Sigurðssonar í kirkjugarðinum við Suðurgötu. Meira
15. júní 1996 | Landsbyggðin | 256 orð

Heilsuefling hefst hjá þér

Húsavík-Samstarfsverkefnið Heilsuefling, sem heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið og Landlæknisembættið gengust fyrir um forvarnir og bætta lífshætti og hófst 1994 hefur nú unnið markvisst í tvö ár og er verið að vinna úr skýrslum starfseminnar svo hægt sé að meta árangurinn. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 202 orð

Helstu keppinautarnir

SEX helstu forsetaframbjóðendurnir eru þessir: Grígorí Javlinskí: 44 ára hagfræðingur og leiðtogi Jabloko-flokksins. Vill róttækari umbætur. Nýtur stuðnings ungs fólks, kaupsýslumanna og menntamanna. Borís Jeltsín: 65 ára gamall. Var kjörinn fyrsti forseti Rússlands með yfirburðum árið 1991. Nýtur stuðnings ungs fólks, kaupsýslumanna og menntamanna. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 172 orð

Heyrnarskertir vilja fá aukið fjármagn

AÐALFUNDUR Félagsins Heyrnarhjálpar var haldinn 4. júní sl. Friðrik Rúnar Guðmundsson var endurkjörinn formaður félagsins en aðrir í stjórn eru Anna Guðlaug Gunnarsdóttir, Bryndís Guðmundsdóttir, Guðjón Yngvi Stefánsson og Helga Kristinsdóttir. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 174 orð

Hjón alvarlega slösuð eftir harðan árekstur

HJÓN slösuðust alvarlega í árekstri jeppa og fólksbíls síðdegis í gær á gatnamótum svokallaðs kísilvegar og þjóðarvegar nr. 85 sem liggur um Aðaldal. Gatnamót þessi eru á móts við Laxamýri, um 10 km fyrir sunnan Húsavík. Hjónin voru í fólksbílnum og óku þau til norðurs úr Aðaldal í átt til Húsavíkur. Meira
15. júní 1996 | Akureyri og nágrenni | 182 orð

Hornsteinn lagður að nýbyggingunni Hólum

MENNTASKÓLANUM á Akureyri verður slitið í 116. sinn og stúdentar brautskráðir mánudaginn 17. júní. Athöfnin verður í Íþróttahöllinni og hefst kl. 10 árdegis. Meðal annars frumflytja nemendur af tónlistarbraut verk sem Jón Hlöðver Áskelsson tónskáld hefur samið að beiðni skólans við þjóðlagið Augun þín. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 117 orð

Karlrembuhlaupið íHveragerði

KARLREMBUHLAUPIÐ, andsælis Kvennahlaupinu í Hveragerði, verður farið sunnudaginn 16. júní nk. kl. 14. Upphaf og endir hlaupsins verður við íþróttahúsið eins og á síðasta ári. Farinn verður léttur hringur um Hveragerði sem er passlega langur fyirr alla. Heimilt er að hlaupa, skokka, ganga, valhoppa, hoppa á öðrum fæti o.s.frv. Þátttökugjald í hlaupinu verður 550 kr. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 40 orð

Kjörís styrkir Reykjalund

KJÖRÍS hefur fært Reykjalundi 350 þúsund krónur að gjöf til styrktar byggingar á nýju íþróttahúsi. Margrét Reynisdóttir markaðsstjóri og Valdimar Hafsteinsson framkvæmdastjóri hjá Kjörís afhenda Jóni Benediktssyni framkvæmdastjóra og Þorleifi V. Stefánssyni sölufulltrúa hjá Reykjalundi gjöfina. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 156 orð

Kolaveiðar meðfram laxeldi

SIGTRYGGUR Hreggviðsson á Eskifirði hefur stundað laxeldi í kvíum frá 1987. Meðfram laxeldinu hefur hann stundað kolaveiðar á leirunum í Reyðarfirði og Eskifirði ásamt dóttur sinni Jóhönnu. Sigtryggur segir að laxeldið gangi afar illa og ætlar hann að slátra öllum laxinu í sumar og hætta eldi. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 167 orð

Ljóðakvöld í Þingvallakirkju

ÚTGÁFUFÉLAGIÐ Andblær stendur fyrir ljóðakvöldi í Þingvallakirkju laugardaginn 15. júní í tilefni útkomu fjórða heftis bókmenntatímaritsins Andblæs og ljóðabókarinnar Hús á heiðinni eftir Steinunni Ásmundsdóttur, en bókin hefur að geyma Þingvallaljóð. Steinunn starfar sem landvörður á Þingvöllum í sumar og hefur gert undanfarin ár og eru ljóðin innblásin frá þeirri dvöl. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 134 orð

Loðnunót í stað síldarnótar

VERIÐ var að ganga frá síldarnótinni úr Berki NK á Neskaupstað á dögunum til geymslu á hafnarbakkanum yfir sumarið. Nótin er 90 faðma djúp og dugir ekki lengur til veiða úr norsk- íslenska síldarstofninum, því síldin liggur mjög djúpt um þessar mundir. Síldarnótin var lögð snyrtilega í hrauk á hafnarbakkanum og stráð salti á hana til varnar gegn fúa. Meira
15. júní 1996 | Miðopna | 3076 orð

LÝÐRÆÐIÐ ER LOKATAKMARKIÐ

FORSETAKOSNINGAR fara fram í Rússlandi á morgun, sunnudag. Þó að Borís Jeltsín forseti hafi sótt í sig veðrið á undanförnum dögum, m.a. með því að semja um vopnahlé við Tsjetsjena, þótti það skammgóður vermir, Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 1496 orð

Mannvirkjagerð takmörkuð

Drög að svæðisskipulagi miðhálendisins hefur verið kynnt sveitarstjórnum og hagsmunaaðilum Mannvirkjagerð takmörkuð Um nokkurt skeið hefur nefnd 12 fulltrúa héraðsnefnda í samvinnu skipulagsráðgjafa unnið að mótun svæðisskipulags fyrir miðhálendi Íslands til ársins 2015. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 184 orð

Meirihluti bygginga reistur án leyfis

AÐEINS þriðjungur bygginga á miðhálendinu er reistur að fengnu byggingaleyfi. Þetta eru niðurstöður frumkönnunar um ástand í byggingarmálum á hálendinu sem gerð var nýlega í tengslum við mótun svæðisskipulags fyrir miðhálendi Íslands til ársins 2015. Einnig kom í ljós að fráveitukerfi er ófullnægjandi í sjö af hverjum tíu byggingum á svæðinu. 370 byggingar eru á þessu svæði. Meira
15. júní 1996 | Akureyri og nágrenni | 84 orð

MESSUR

AKUREYRARKIRKJA: Messa í kirkjunni á morgun, sunnudag kl. 11. GLERÁRKIRKJA: Guðsþjónusta í kirkjunni á sunnudag kl. 11. HJÁLPRÆÐISHERINN: Tónleikasamkoma á sunnudag kl. 16. Lofgjörðarhópur Fíladelfíu í Reykjavík syngur gospel og lofgjörðartónlist undir stjórn Óskars Einarssonar. Páll E. Pálsson leikur á bassa. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 118 orð

Metár hjá Herjólfi

FYRSTU fimm mánuði ársins varð 27% aukning í farþegafjölda Herjólfs miðað við sama tíma í fyrra. Það sem af er þessu ári hafa rúmlega 21 þúsund farþegar siglt með ferjunni milli Þorlákshafnar og Vestmannaeyja, en í fyrra voru farþegar um 16.600 fyrstu fimm mánuðina. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 44 orð

MT-ingar og FV-ingar hittast

FYRRVERANDI nemendur Menntaskólans á Ísafirði og Framhaldsskóla Vestfjarða ætla að hittast á neðri hæðinni á Kaffi Reykjavík 16. júní nk. kl. 20.30. Undanfarin ár hafa gamlir nemendur hist og nú hefur 16. júní verið gerður að föstum degi til slíkrar samveru. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 87 orð

Neskirkja með leiktækjanámskeið

NESKIRKJA verður með leiktækjanámskeið fyrir börn á aldrinum 6­10 ára eins og undanfarin ár. Í sumar verður sú nýbreytni að haldið verður leikjanámskeið fyrir krakka á aldrinum 11­12 ára. Dagskrá þessara námskeiða felst í mjög fjölbreyttum ferðum, leikjum, grillveislum auk fræðslu um kristna trú. Verð fyrir vikuna er 2.000 kr. og innifalið í því er nesti, ferðir og efnisgjald. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 384 orð

Notendur yngri en áður

NOTKUN getnaðarvarnapillunnar hefur dregist saman hjá konum eldri en 30 ára en aukist hjá yngri konum á árunum 1965 til 1989 að því er fram kemur í grein um rannsókn fjögurra íslenskra lækna í nýútkomnu Læknablaði. Við rannsóknina var stuðst við upplýsingar úr gagnasafni Leitarstöðvar Krabbameinsfélags Íslands. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 140 orð

Oddahátíð 1996

ODDAFÉLAGIÐ efnir til Oddahátíðar sunnudaginn 23. júní í Odda á Rangárvöllum. Hátíðin hefst með messu í Oddakirkju kl. 11. Að athöfn lokinni gefst fólki kostur á að snæða nestisbita í safnaðarheimilinu á staðnum þar sem kaffi verður á könnunni eða ef veður leyfir í hlíðum Gammabrekku. Meira
15. júní 1996 | Akureyri og nágrenni | 550 orð

Oft mikið að gera því kröfurnar eru miklar

FYRSTU grunnskólakennararnir verða brautskráðir frá Háskólanum á Akureyri í dag, laugardag og eru þeir 24 talsins. "Það blundaði í mér á þeim tíma sem ég sótti um þetta nám að verða kennari," sagði Björn Sigurðsson frá Vopnafirði, einn þeirra sem útskrifast úr kennaradeild háskólans. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 131 orð

Ólíklegt að snjói úr þessu

LÖGREGLAN í Reykjavík hefur undanfarið stöðvað 17 bíla sem enn voru á nagladekkjum. Refsivert er að keyra á nagladekkjum eftir 15. apríl og nemur sektin 2.500 krónum. Auk þess er harla ólíklegt að það snjói úr þessu, þannig að bíleigendur ættu ekki að halda í naglana þess vegna. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 36 orð

SamskiptiÍslendingaog Dana

SKEMMTUN verður haldin sunnudaginn 16. júní nk. á Kaffi Reykjavík og hefst hún kl. 15. Auk dagskrár í léttum dúr verður þar rædd stofnun félags til eflingar samskiptum og vináttu Íslendinga og Dana. Allir velkomnir. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 202 orð

Sjór komst í lestar Flosa ÍS

SJÓPRÓFUM vegna Flosa ÍS, sem lagðist á hliðina norðan við Færeyjar sl. sunnudag, lauk á fimmtudag fyrir Héraðsdómi Austurlands. Ekki er vitað um orsakir þess að skipið lagðist á hliðina en getgátur um að skilrúm í lest hefðu gefið sig áttu ekki við rök að styðjast. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 401 orð

Skapar vinnu fyrir 12-15 manns

SÖLUMIÐSTÖÐ hraðfrystihúsanna og Upphaf hf. hafa ákveðið að setja á stofn kexverksmiðju í um 860 fermetra húsnæði að Hvannavöllum 12 á Akureyri. Upphaf hf. á 75% í verksmiðjunni og SH 25% og er hér um að ræða fjárfestingu upp á 80-100 milljónir króna. Verksmiðjan mun framleiða kex fyrir innanlandsmarkað, a.m.k. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 191 orð

Skátavígsla í Stykkishólmi

HRESSILEGU lífi hefur verið blásið í skátaglæðurnar á Stykkishólmi og skátafélagið Hólmverjar komið á fulla siglingu á ný undir stjórn Ingibjargar Ágústsdóttur. Starfið er blómlegt og hefur stór hópur barna og unglinga gengið til liðs við félagið. Miðvikudagskvöldið 5. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 743 orð

Skýrari skil í stjórnmálum en oft áður

JÓHANNA Sigurðardóttir var um helgina endurkjörin formaður Þjóðvaka á landsfundi flokksins. Hún var spurð um niðurstöðu fundarins. "Á þessum landsfundi var farið yfir stöðuna í stjórnmálum eftir þennan vetur. Við teljum að það séu skýrari línur og skil í stjórnmálum en oft áður. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 218 orð

Snarpt jafntefli

FIMMTU einvígisskák Anatólís Karpovs og Gata Kamskys lauk með jafntefli í gær. Þráleikið var eftir stutta en snarpa viðureign. Staðan: Karpov 3 v., Kamsky 2 v. Fimmta einvígisskákin: Hvítt: Anatólí Karpov Svart: Gata Kamsky Grünfeldsvörn 1. d4 ­ Rf6 2. c4 ­ g6 3. Rc3 ­ d5 4. Rf3 ­ Bg7 5. Db3 ­ dxc4 6. Dxc4 ­ 0-0 7. e4 ­ a6 8. e5 ­ b5 9. Db3 ­ Rfd7 10. e6 ­ fxe6 11. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 153 orð

Sólstöðuganga á Suðvesturlandi

TÍU ár eru liðin í ár frá því að áhugahópur um sólstöðuhátíð stóð fyrir sólstöðugöngu og siglingu á höfuðborgarsvæðinu allan sólarhringinn á sumarsólstöðum. Nú er hugmyndin að hvetja áhugafólk úr öllum sveitarfélögum á Suðvesturlandi til að standa fyrir sólstöðugöngu sem skiptist í nætur- og kvöldgöngu, hvert í sínu sveitarfélagi. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 29 orð

Strengjakvartett í Norræna húsinu

Strengjakvartett í Norræna húsinu TÓNLEIKAR strengjakvartettsins Arctic Light Quartet sem sagt var frá í Morgunblaðinu í gær, verða í Norræna húsinu, en ekki á morgun, heldur sunnudaginn 23. júní. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 142 orð

Sumarprófsáfangar Fullorðinsfræðslunnar

MATSHÆFIR fornáms- og framhaldsskólaáfangar Fullorðinsfræðslunnar í Gerðubergi 1 í Breiðholti verða nú í boði 7. sumarönnina í röð frá upphafi skólans 1989. Í boði verður matshæft fornám fyrir nemendur sem ekki náðu tilskildum einkunnum á samræmdum prófum grunnskóla í einni eða fleiri greinum. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 43 orð

Sumartónleikar á Sauðárkróki

SUMARTÓNLEIKAR verða haldnir í Tónlistarskólanum á Sauðárkróki, Borgarflöt 1, sunnudaginn 16. júní kl. 16. Þar koma fram Ágúst Ólafsson baríton og Sigurður Marteinsson píanóleikari. Á efnisskránni eru fjögur íslensk sönglög, fimm ljóð úr Vetrarferðinni, fjögur erlend ljóð og tvær óperuaríur. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 52 orð

Sungið fyrir eldri borgara

LEIKSKÓLARNIR Jöklaborg við Jöklasel, Seljaborg við Tungusel og Hálsaborg og Hálsakot við Hálsasel héldu hátíð í gær í tilefni þjóðhátíðardagsins á mánudag. Meðal annars var farið í skrúðgöngu í gærmorgun og síðdegis og sungið fyrir eldri borgara sem hér sjást hlýða á söng smáfólksins. Hátíðardagskrá 17. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 48 orð

Sýningu Guðrúnar að ljúka

SÝNINGU Guðrúnar Einarsdóttur í Gallerí Laugavegur 20b (Klapparstígsmegin) lýkur í dag, laugardaginn 15. júní. Á sýningunni sem ber heitið "Land" eru níu verk unnin í olíu. Gallerí Laugavegur 20b er opið á virkum dögum frá kl. 12 til 18 og kl. 14-18 um helgar. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 197 orð

Sæludagar í Skagafirði

"FÉLAG eldri borgara í Kópavogi og Gjábakki, félags- og tómstundamiðstöð eldri borgara í Kópavogi, bjóða eldri borgurum að taka þátt í Sæludögum í Varmahlíð í Skagafirði Sæludagaævintýrið hefst með því að lagt verður af stað frá Gjábakka þriðjudaginn 6. ágúst. Ekið verður sem leið liggur norður yfir heiðar allt til Varmahlíðar. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 80 orð

Tékknesk lúðrasveit í Víðistaðakirkju

Tékknesk lúðrasveit í Víðistaðakirkju LÚÐRASVEIT tónlistargrunnskólans í Opava í Tékklandi er stödd hér á landi í heimsókn hjá Tónlistarskóla Hafnarfjarðar. Sveitin er skipuð á fimmta tug ungmenna 13 ára og eldri. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 127 orð

Tímaáætlun SVR á þjóðhátíðardaginn

VAGNAR SVR aka mánudaginn 17. júní eftir tímaáætlun helgidaga þ.e. á 30 mín. tíðni (sjá leiðabók) þó þannig að aukavögnum verður bætt á leiðir eftir þörfum. Frá kl. 12 þegar hátíðarhöldin hefjast í Lækjargötu er breytt frá venjulegri akstursleið vagnanna og nær breytingin til þeirra leiða sem aka um Lækjargötu. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 25 orð

Tónleikar í Sjómannaheimilinu Vör

DÚETTINN Últra heldur tónleika í Sjómannaheimilinu Vör, Grindavík, sunnudaginn 16. júní. Dúettinn skipa þau Anton Krøyer og Hekla Klemenzdóttir. DÚETTINN Últra. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 1552 orð

Vafasöm stjórnsýsla landbúnaðarráðuneytisins

Morgunblaðinu hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Lúðvík Bergvinssyni alþingismanni: "Vegna athugasemda sem landbúnaðarráðuneytið hefur sent fjölmiðlum, þar sem fullyrðingum undirritaðs um meðferð landbúnaðarráðuneytisins á malartökuleyfum er vísað á bug, vill undirritaður koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri: Málsatvik Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 358 orð

Vantar 3-400 millj. í rekstur sjúkrahúsa

ÞRÁTT fyrir niðurskurð og lokanir á sjúkrahúsunum í Reykjavík er útlit fyrir að kostnaður við rekstur þeirra verði 300-400 milljónum króna meiri en fjárlög gerðu ráð fyrir. Ennfremur er útlit fyrir að kostnaður ríkisins vegna lyfja fari um 200 milljónir fram úr áætlun. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 177 orð

Verðmæti úthafskarfa 2,7 milljarðar

VEIÐUM íslenska skipaflotans á úthafskarfa lýkur um helgina með því að leyfilegum kvóta, 45.000 tonnum, hefur verið náð. Afurðaverðmæti úthafskarfaafla hefur aldrei verið meira en áætla má að hann skili 2,7 milljörðum króna í þjóðarbúið. Verð á karfanum er nokkru hærra en í fyrra en það má skýra með töluverðri eftirspurn og miklum gæðum afurðanna. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 220 orð

Verður beitt hervaldi gegn Íraksstjórn?

BRETAR og Bandaríkjamenn hafa farið fram á, að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna úrskurði, að Íraksstjórn hafi brotið vopnahlésskilmálana, sem bundu enda á Persaflóastríðið 1991. Er ástæðan sú, að hún meinaði eftirlitsmönnum SÞ leit að gjöreyðingarvopnum eða búnaði til framleiðslu þeirra. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 163 orð

Verndun umhverfisins ­ sameiginleg vitund

EHMA, European Harbour Masters Association, heldur sjöttu ráðstefnu sína í boði Reykjavíkurhafnar í Reykjavík dagana 17.­22. júní nk. Árið 1992 var ráðstefnan haldin í Bristol á Englandi, 1994 í Marseille í Frakklandi og 1996 verður hún haldin í Reykjavík. Ráðstefnan hefst 17. júní og henni lýkur 22. júní. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 88 orð

Vilja leiðréttingu á tekjuskerðingu

AÐALFUNDUR Kirkjugarðssambands Íslands var haldinn á Egilsstöðum 8. júní sl. Meginviðfangsefni fundarins var umræða um verulega fjárhagserfiðleika kirkjugarða vegna tekjuskerðingar undanfarinna ára. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 154 orð

ÞÓRODDUR TH. SIGURÐSSON

ÞÓRODDUR Thoroddsen Sigurðsson, fyrrum vatnsveitustjóri í Reykjavík, lést í Landspítalanum í gærmorgun, á sjötugasta og fjórða aldursári. Þóroddur fæddist 11. október 1922 á Geirseyri við Patreksfjörð, sonur Sigurðar Andrésar Guðmundssonar, skipstjóra og bónda, og Svandísar Árnadóttur húsmóður. Meira
15. júní 1996 | Innlendar fréttir | 55 orð

Æfðu fyrir heiðursvörð

LÖGREGLUMENN þurfa að undirbúa sig fyrir þjóðhátíðina ekki síður en aðrir og voru þessir liðsmenn hennar að æfa heiðursvörð í portinu við Hverfisgötu þegar ljósmyndara bar að. Tólf lögreglumenn í hátíðarbúningi ganga síðan fylktu liði og standa heiðursvörð við athöfn á Austurvelli að morgni 17. júní, eins og venja er til. Meira
15. júní 1996 | Erlendar fréttir | 139 orð

(fyrirsögn vantar)

DÓMARAR í Bandaríkjunum úrskurðuðu í gær að lög, sem hamla áttu útbreiðslu kláms á alnetinu, væru ekki í samræmi við stjórnarskrána. Gáfu dómararnir út tímabundið bann við því að lögunum yrði framfylgt. Meira

Ritstjórnargreinar

15. júní 1996 | Leiðarar | 607 orð

leiðariGRYNNKUM Á SKULDUNUM FKOMUBATI ríkissjóðs fyrstu fjó

leiðariGRYNNKUM Á SKULDUNUM FKOMUBATI ríkissjóðs fyrstu fjóra mánuði þessa árs er verulegur. Enn vantar þó töluvert í hallalausan ríkisbúskap. Hallinn á ríkissjóði þessa fjóra mánuði var 2.780 milljónir króna, en var á sama tíma í fyrra 4.120 milljónir. Þetta er gott skref til réttrar áttar. Meira
15. júní 1996 | Staksteinar | 317 orð

»Tap í botnfiskvinnslu STEFÁN B. Gunnlaugsson segir í Vísben

STEFÁN B. Gunnlaugsson segir í Vísbendingu að afkoma sjávarútvegs í heild hafi verið nokkuð góð frá 1990 miðað við árin þar á undan. Áætlað tap í botnfiskvinnslunni var á hinn bóginn 6,5% á janúarmánuði síðastliðnum. Afkoma botnfiskgreinanna Meira

Menning

15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 315 orð

Af lífríkinu í Loch Ness

Leikstjóri John Henderson. Handritshöfundur John Fusco. Kvikmyndatökustjóri Clive Tickner. Tónlist Trevor Jones. Brúður Jim Henson. Aðalleikendur.Ted Danson, Joely Richardson, Ian Holm, Harris Yulin. Bresk/Bandarísk. Polygram 1995. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 79 orð

Á kínversku fljóti

KÍNAKLÚBBUR Unnar er nýkominn úr þriggja vikna ferð til Kína. Myndin af hópnum er tekin á báti á Lí-fljótinu nálægt Guilin í Suður-Kína. Farþegar í ferðinni voru 9 talsins og fararstjóri var Unnur Guðjónsdóttir. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 231 orð

Bowie og Iman íhuga að flytja

FREGNIR hafa borist af því erlendis frá að rokkstjarnan David Bowie, sem hyggst trylla landslýð í Laugardalshöll næstkomandi fimmtudag, og eiginkona hans, fyrirsætan þokkafulla Iman, íhugi nú alvarlega þann möguleika að flytja frá New York. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 103 orð

Campbell fær kæru

OFURFYRIRSÆTAN Naomi Campbell hefur verið kærð og krafin um 500 þúsund dollara bætur vegna þess að hún mætti ekki á tökustað í Ungverjalandi. Fyrirsætan átti að birtast í ungverskum spjallþætti sem svört Venus í risastórri skel. Campbell átti að mæta 4. júní í þáttinn en tilkynnti sig veika aðeins degi fyrr. Mikil fyrirhöfn hafði verið fyrir þáttinn, t.d. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 92 orð

Danskur rokkari flytur

DANSKI rokkkóngurinn Thomas Helmig, sem er 31 árs, er aftur fluttur á landsbyggðina, eftir að hafa þurft að selja 315 fermetra villu sína í Risskov. Hann neyddist til að selja húsið fyrir þremur árum, þegar hann var dæmdur til að greiða vangoldinn skatt upp á rúmlega 4 milljónir króna. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 50 orð

Ekki meira í glasið

NICOLAS Cage er búinn að fá sig fullsaddan af því að leika drykkjusvola. Honum var boðið hlutverk í myndinni "The Thin Man" en neitaði á þeim forsendum að þar væru allir stöðugt með glasið fullt, og hann hefði fengið nóg af þannig persónusköpun í "Leaving Las Vegas". Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 69 orð

Fimm er góð tala

LEIKKONUNNI Candice Bergen finnst ærið að fá Emmy-verðlaunin fimm sinnum. Hún hefur því ákveðið að vera ekki með í keppninni um verðlaunin í ár. En Bergen hefur undanfarin ár notið mikilla vinsælda fyrir hlutverk sitt í "Murphy Brown"-þáttunum. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 684 orð

Framtíðin er björt

Drepnir, hafnfirsk safnplata. Flytjendur eru Gullý, PPPönk, Súrefni, Skoffín, Botnleðja, Dallas, Jet Black, Stolía, Ham og Moskvítsj. Lög og textar eru að mestu leyti eftir liðsmenn sveitanna. Draupnir gefur út. 1.399 kr. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 119 orð

Hlustað af athygli

LEIKFÉLAG Íslands heimsfrumsýnir sem kunnugt er leikritið "Stone Free" eftir Jim Cartwright í Borgarleikhúsinu 12. júlí næstkomandi. Í tengslum við uppfærsluna kemur út geislaplata með ýmsum þekktum lögum frá seinni hluta sjöunda áratugarins. Aðstandendur leikfélagsins buðu til hófs á miðvikudaginn þar sem hlustað var á plötuna og boðið upp á léttar veitingar. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 181 orð

Innsti ótti í Háskólabíói

HÁSKÓLABÍÓ hefur hafið sýningar á myndinni Innsti ótti eða "Primal Fear". Í þessari spennumynd fer stórstjarnan Richard Gere með hlutverk Martins Vails, metnaðargjarns lögfræðings. Lögfræðingurinn leitar að erfiðum málum og vinnur oft sigur með klækjum. Lögfræðingurinn tekur að sér mál ungs manns sem sakaður er um að hafa myrt biskup. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 106 orð

Leikstjóri lætur af störfum

BIRGITTE Price, leiklistarráðunautur við Konunglega leikhúsið í Kaupmannahöfn, hefur sagt af sér og tekur uppsögnin gildi 30. júní næstkomandi. Birgitte, sem er 62 ára, hefur átt við krabbamein að stríða og fór í aðra krabbameinsmeðferð sína á síðasta ári. Eftir þá meðferð voru læknar bjartsýnir um að hún hefði náð sér að fullu, en því miður reyndist svo ekki vera. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 63 orð

Nýr ilmur

MICHAEL Jordan mun á næstunni eiga eitt sameiginlegt með Liz Taylor. Nei, ekki mjaðmaruppskurð, heldur eigið ilmvatn. Hann hefur sem sagt gert samning við ilmvatnsfyrirtækið Bijan um að setja á markað ilmvatn kennt við hann. Aðalefni ilmvatnsins munu verða lavender og kýprusviður þannig að ilmurinn mun ekkert eiga skylt við svita og tár körfuboltavallarins. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 62 orð

Rokkað á toppnum

ÞUNGAROKKSVEITIN Metallica gaf út plötuna "Load" á dögunum eftir fimm ára hlé. Rokkararnir gerðu sér lítið fyrir og fóru beint í fyrsta sæti bandaríska listans. Þar með var lokið fjögurra vikna veru Fugees í fyrsta sæti listans með plötu sína "The Score" og eins féll Alanis Morissette með plötuna "Jagged Little Pill" í þriðja sætið. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 70 orð

Saman á ný

ÁSTARDÚFURNAR Jim Carrey og Lauren Holly hafa náð saman á ný. Ekki er langt síðan að Carrey lýsti því yfir að þau væru hætt saman því hann væri ekki tilbúinn í alvarlegt samband. En við frumsýningu "Cable Guy" þar sem Carrey fer með aðalhlutverkið á móti Matthew Broderick, sást parið leiðast og ekki var annað að sjá en ástin svifi yfir vötnum. Meira
15. júní 1996 | Fólk í fréttum | 143 orð

Upplausn í fjölskyldunni

KIRK gamli Douglas, leikarinn víðfrægi, er að sögn í öngum sínum vegna frétta um að yngsti sonur hans, Eric, geti búist við að vera dæmdur til 7 ára fangelsisvistar fyrir meðferð fíkniefna. Kirk hefur lýst Eric sem "syninum sem er líkastur mér". Eric hefur ekki gengið eins vel í lífinu og bróður hans, Michael Douglas og hlotið nokkra dóma fyrir fíkniefnamisferli. Meira

Umræðan

15. júní 1996 | Aðsent efni | 518 orð

Af hörðum höndum og mjúkum

ÞAÐ er mér alltaf lúmskt gaman að lesa greinar unga fallega fólksins, sem gagnrýnir velferðarþjóðfélagið reglulega á síðum Morgunblaðsins. Þetta fólk er svo vel snyrt og geislar svo af brosmildri velvild til alls og allra, að maður hrekkur stundum svolítið við, að nema kenningarnar, sem virðast ekki alltaf vera alveg í samræmi við engilbjartan svipinn. Meira
15. júní 1996 | Bréf til blaðsins | 610 orð

Dulítil athugasemd

Í MORGUNBLAÐINU miðvikudaginn 12. júní er grein eftir Þröst Helgason sem heitir "Samkeppnisskáld í myndarlegri röð". Er þar fjallað um uppákomu í Loftkastalanum að kvöldi mánudagsins 10. júní sl., þegar 14 ljóðskáld sem tengdust ljóðasamkeppni Listahátíðar 1996 lásu úr verkum sínum. Af ákveðnum ástæðum sér undirritaður sig tilneyddan til að gera dulitla athugasemd við þessi skrif. Meira
15. júní 1996 | Bréf til blaðsins | 235 orð

Einelti er alvarlegt mein

ÓNAFNGREINDUR maður skrifar í Velvakanda 7. júní sl. og segist vita um alvarlegt einelti í Hólabrekkuskóla sem starfsmenn skólans og foreldrar viti jafnvel ekki um. Einelti er áhyggjumál allra foreldra og vil ég því eindregið skora á viðkomandi að gefa sig strax fram við skólastjóra eða kennara og skýra frá vitneskju sinni svo hægt verði að taka á málinu. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 676 orð

Forsetalegt áræði

Í ÖLLUM þeim umræðum, blaðaskrifum og sjónvarpsþáttum, sem nú eiga sér stað vegna væntanlegra forsetakosninga, hefi ég gefið nákvæman gaum að því, hverju og hvernig frambjóðendur hafa svarað einni ákveðinni spurningu, sem ég vil hér vekja alveg sérstaka athygli á. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 467 orð

Friðarpostulinn Ólafur Ragnar

ÞAÐ má reka friðarbaráttu á ýmsan hátt og má segja að aðferðirnar séu eins margar og þeir eru sem standa fyrir þeim. Til dæmis fór á sínum tíma fremstur í flokki Martin Luther King, þegar gengið var til Washington. Þá var barist fyrir auknum mannréttindum, sem eru líka friðarmál. Olaf Palme gekk líka fremstur í flokki þegar mótmælt var stríðinu í Víetnam. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 680 orð

Ganga í kvennahlaupi!

EF ÞÚ ert ekki hlaupakona þá getur þú verið göngukona í góðu formi. Þegar við ætlum að bæta úthaldið við göngu og ganga til að þjálfa líkamann þá berum við okkur öðruvísi að en við venjulega göngu og gefum öðrum þáttum gaum. Við göngum þá nokkra kílómetra á dag þrisvar sinnum eða oftar í viku hverri. Með slíkri þjálfun getum við bætt líkamlegt ástand verulega. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 492 orð

Gott samstarf, góður árangur

Í APRÍL síðastliðnum voru liðin fimm ár síðan Sorpa hóf formlega starfsemi sína. Af því tilefni langar mig til að fjalla um þann árangur er náðst hefur í endurnotkun og endurvinnslu úrgangs hér á höfuðborgarsvæðinu, en alls falla til um 107.770 tonn á ári. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 1041 orð

Heimdellingadagurinn

ÞAÐ hefur varla farið framhjá neinum sem opnar Morgunblaðið reglulega að Heimdellingar hafa eignað sér einn dag ársins, rétt eins og ýmsar starfsstéttir gera, að ónefndum reyklausa deginum, bílalausa deginum, bindindisdegi fjölskyldunnar svo fátt eitt sér nefnt. En Heimdellingar eru hógvært fólk í eðli sínu og kjósa því að nefna daginn ekki eftir sjálfum sér heldur versta óvini sínum; skattinum. Meira
15. júní 1996 | Bréf til blaðsins | 258 orð

Hvar eru stuðningsmenn prestsins?

ÉG VAR að lesa lesendabréfið þitt í Mogganum og verð að segja að ég er ósammála þér um flest það sem þar er drepið á. Fyrir það fyrsta er ég ósammála því að of oft sé minnst á Langholtsdeiluna. Kirkjunnar vegna þarf einmitt að halda deilunni vakandi unz úrbætur fást. Ef deilunni er ekki haldið vakandi koðnar hún niður. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 543 orð

Hvers vegna Ólaf Ragnar?

NÚ er barátta forsetaframbjóðendanna komin á flugstig. Fyrsti stórfundurinn í Sjónvarpinu afstaðinn og stuðningsmenn sumra frambjóðendanna fara mikinn. Margt "gullkornið" hrýtur af vörum manna í Þjóðarsál RÚV, og öðrum fjölmiðlum, er þeir lýsa kostum síns manns og löstum Ólafs. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 826 orð

Hvílíkt leikrit!

Í GREINARGERÐ minni fyrir því að víkja sæti úr yfirkjörstjórn Reykjavíkur við forsetakosningarnar í sumar, skýrði ég m.a. frá því að Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi hefði fyrir rétti í máli Magnúsar Thoroddsen, forseta Hæstaréttar, vorið 1989, synjað fyrir að trúa á guð og því fengið að staðfesta framburð sinn með drengskaparheiti. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 746 orð

Innlend dagskrárgerð

Á SÍÐUSTU vikum hefur í kjölfar skýrslu starfshóps um endurskoðun á útvarpslögum farið fram mikil umræða í fjölmiðlum um framtíðarhlutverk Ríkisútvarpsins. Almennt eru menn nokkuð sammála um að eitt helsta framtíðarhlutverk og markmið stofnunarinnar verði að stórauka hlut innlendrar dagskrárgerðar í Sjónvarpi til þess að vinna á móti þeim erlendu áhrifum sem yfir þjóðina ganga í stórauknu Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 556 orð

Í tréskipafjötrum

TVEIR menn eiga hvor sinn 30 tonna bátinn, annan úr tré, hinn úr stáli. Báðir fengu úthlutað sama tonnafjölda þegar kvóti var tekinn upp og nú hyggjast þeir laga báta sína að breyttum kröfum um meðferð afla, starfsaðstöðu og sjóhæfni. Það þýðir að stækka verði bátana nánast um 130 rúmmetra eða smíða nýjan í stað trébátsins þar sem ógerlegt er að stækka slíka báta. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 803 orð

Ódrengilegt upphlaup

AÐ UNDANFÖRNU hefur mátt sjá í blöðum og heyra í útvarpi furðulegt upphlaup júdomanna á Akureyri í sambandi við þátttöku Vernharðs Þorleifssonar í júdokeppni Ólympíuleikanna í sumar. Tilgangurinn er sá að reyna að koma Jóni Óðni Óðinssyni júdoþjálfara á Akureyri sem þjálfara með Vernharð í stað landsliðsþjálfarans Michals Vachun. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 246 orð

Sameiningartákn

BARÁTTA vegna forsetakosninganna setur sinn svip á þjóðlífið um þessar mundir og sýnist sitt hverjum um ágæti frambjóðendanna. Mér finnst þó líklegt, að flestir geti orðið sammála um að væntanlegur forseti verði að hafa góða þekkingu á innviðum þjóðfélagsins, atvinnu- og efnahagslífi þess og stjórnskipan lýðveldisins. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 787 orð

Samkeppnin fer harðnandi í póstflutningum

SEGJA má að það hafi gengið eins og rauður þráður í gegnum umræðurnar um hlutafjárvæðingu Pósts og síma hjá þeim sem eru andvígir breytingunni að hvað sem símanum liði væri a.m.k. óhætt enn um sinn að reka póstþjónustuna sem opinbera stofnun. Látið var í veðri vaka að á því sviði væri samkeppnin ekki jafn hörð og atvinnuöryggi póstmanna og -kvenna ekki í hættu. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 177 orð

Siðlaust athæfi

MÉR ER alveg sama hvort fólk skreytir sig með alls konar titlum, hvort það eru hagfræðingar, verslunarmenn, lögfræðingar eða bara rithöfundar sem leggja sig í framkróka til að ófrægja forsetaframbjóðendur, þá finnst mér það jafn lágkúrulegt, að nokkur maður skuli geta lagt sig svo lágt að hafa sig út í það. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 252 orð

Símaafsláttur til stjórnmálaflokka

FYRIR margt löngu börðumst við Arinbjörn Kolbeinsson læknir fyrir því að stjórnmálaflokkum liðist ekki sjálftaka úr sjóðum Pósts & síma, þegar þeir héldu alþingis- og sveitastjórnarkosningar. Neitaði Jón Skúlason, þáverandi póst- og símamálastjóri, mér um upplýsingar um þessi mál, þar sem ekki mætti gefa upp viðskipti einstakra símnotenda. II. Meira
15. júní 1996 | Bréf til blaðsins | 350 orð

Sveinspróf í rafeindavirkjun

UNDANFARINN áratug hefur verið u.þ.b. 80% fall á svinsprófi í rafeindavirkjun. Ástæðurnar eru margar, svo sem vanbúnaður og fjárskortur Iðnskólanns. Aðalástæðan liggur samt í megintilgangi sveinsprófs sem er að koma í veg fyrir offjölgun í stéttinni. Í sveinsprófsnefnd hafa á undanförnum árum valist menn sem af heimsku hafa talið það sína hagsmuni að takmarka aðgang að faginu. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 251 orð

Til hins leitandi Landsbankastjóra

KÆRI Sverrir! Sem gömlum félaga þínum í búmerkinu D rennur mér auðvitað blóðið til skyldunnar að reyna að greiða úr vandræðum þínum sem þú skýrir frá í Morgunblaðinu í gær og stafa af upplýsingum Péturs H. Blöndals í RÚV um að Alþingi hafi afgreitt einn milljarð króna í styrk til Landsbankans. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 792 orð

Um ferjubryggjur og Djúpveg

ÞETTA er á leiðinni - ákvörðun tekin á næstu dögum. Svör í þessum dúr hafa ráðamenn samgöngumála gefið þeim sem hafa á undanförnum árum fylgst með framgangi, eða réttara sagt kyrrstöðu, svokallaðs ferjubryggjumáls vestur við Ísafjarðardjúp. Þessi svör hafa hingað til reynst orðin tóm. Málið dragnast áfram, stendur í stað, slegið úr og í af hálfu ákvörðunaraðila sem valdið hafa - og ekkert gerist. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 997 orð

Verslun er vanmetin þáttur ferðaþjónustu

ÞETTA leitar á hugann eftir lestur þeirrar skýrslu upp á 74 blaðsíður sem samgönguráðherra hefur nú nýlega gefið út og nefnist "Stefnumótun í ferðaþjónustu". Í inngangi skýrslunnar rekur ráðherra að þarna sé um að ræða niðurstöðu stýrihóps sem hann skipaði á síðastliðnu hausti til þess að marka stefnu stjórnvalda í ferðamálum. Meira
15. júní 1996 | Bréf til blaðsins | 346 orð

Vinir alþýðumannsins

ÞAð góða við óvininn er, að menn vita hvar þeir hafa hann. Eða hvað? Úlfar í sauðargærum eru reyndar um allt. Guðrún Helgadóttir sagði í viðtali, að þjóðin ætti það skilið sem hún kysi. Að sumu leyti er það rétt. Því það er landlægt að menn skipi sér í andstæða flokka, sem hagsmunaklíkur etja hvorum á móti öðrum. Sameinaðir stöndum við, sundraðir föllum. Meira
15. júní 1996 | Aðsent efni | 917 orð

Vímuvarnir í Reykjavík - verkefni sem skilar árangri

REYKJAVÍKURBORG hefur í vetur gengist fyrir margvíslegum verkefnum í tengslum við varnir gegn vímuefnum. Síðastliðið sumar samþykkti borgarráð framkvæmdaáætlun í vímuvörnum og skipaði sérstaka Vímuvarnarnefnd til að hafa umsjón með framkvæmd hennar. Meira
15. júní 1996 | Bréf til blaðsins | 228 orð

Yfirsjónir fjölmiðlafólks

Í UMRÆÐUþÆTTI vegna forsetakjörs í Sjónvarpinu sunnudagskvöldið 9. júní sást berlega, hversu margt blessað fjölmiðlafólkið okkar á ólært. Ólafur Ragnar Grímsson, sem nýtur yfirburðafylgis samkvæmt skoðanakönnunum, var þar tekinn sannkölluðum vettlingatökum. Hann var meðal annars spurður tveggja spurninga um undirskrift forseta. Meira
15. júní 1996 | Kosningar | 850 orð

Þjóðargersemi

Ólafur Ragnar er rakarasonur frá Ísafirði, alinn upp að nokkru leyti hjá afa sínum og ömmu á Þingeyri, eins og hann hefur oft tíundað að undanförnu. Honum eru því kunn kjör alþýðu manna og störf hans í hennar þágu hafa mótast af Meira

Minningargreinar

15. júní 1996 | Minningargreinar | 562 orð

Fjóla Friðjónsdóttir

Eins og sést hér að framan missti Fjóla móður sína og tvær systur aðeins fjögurra ára gömul. Hanna, systir hennar, fór þá í Eiði á Langanesi og óx þar upp en Fjóla mun hafa fylgt föður sínum í vistum hans fyrstu árin. Síðan var hún hjá Rannveigu og Maríusi Lund á Raufarhöfn í nokkur ár, í Lunds-húsi, sem hún nefndi svo oft með þakklæti og hlýju. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 191 orð

FJÓLA FRIÐJÓNSDÓTTIR

FJÓLA FRIÐJÓNSDÓTTIR Fjóla Friðjónsdóttir var fædd á Skálum á Langanesi í N-Þingeyjarsýslu 4. mars 1912. Hún lést á Elliheimilinu Grund 28. maí síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Friðjón Stefánsson, f. 27.4. 1880, d. 17.2. 1941 og Jóhanna Guðbrandsdóttir, f. 11.5. 1890, d. 14.10.1916. Systur Fjólu voru Laufey Kristjánsdóttir, f. 18. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 237 orð

Gissur Geirsson

Þegar ég minnist Gissurar Geirssonar koma upp í hugann ótal skemmtilegar minningar, en hann er búinn að vera einn af okkar góðu nágrönnum í rúmlega 30 ár. Það var vorið 1965 sem við Guðmundur og Addý og Gissur fengum úthlutað síðustu lóðunum hér við Víðivellina. Þá hófust kynni okkar og eftir að flutt var inn varð samgangur milli heimilanna mikill, m.a. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 732 orð

Gissur Geirsson Allt er í heiminum hverfult. Lífsharpa Gissurar

Allt er í heiminum hverfult. Lífsharpa Gissurar Inga Geirssonar er þögnuð. Í henni voru margir strengir sem mynduðu fallegan samhljóm. Fingur Gissurar fara ekki oftar um nótnaborð harmónikunnar eða saxófónsins í þessu jarðlífi. Við gömlu hljómsveitarmeðlimirnir drúpum höfði og minnumst hans með söknuði og virðingu. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 29 orð

GISSUR INGI GEIRSSON Gissur Ingi Geirsson fæddist að Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi 17. júlí 1939. Hann lést á Borgarspítalanum

GISSUR INGI GEIRSSON Gissur Ingi Geirsson fæddist að Byggðarhorni í Sandvíkurhreppi 17. júlí 1939. Hann lést á Borgarspítalanum 27. maí síðastliðinn og fór útförin fram frá Selfosskirkju 8. júní. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 297 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson

"Horfin, dáin hetjan unga". Þessi ljóðlína kemur fram í huga minn nú, er ég kveð hinstu kveðju kæran frænda minn og vin, Gísla G. Guðjónsson, sem lést 9. þ.m. eftir hetjulega baráttu við illvígan sjúkdóm. Við slík örlög grúfir sorgin þung og sár yfir ástvinahópnum, sem mikið hefur misst. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 156 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson

Mig langar til að minnast í fáum orðum vinar okkar, Gísla Guðjónssonar skipstjóra. Fyrstu kynni mín af Gísla voru á bryggjunni í Njarðvík, en þá hafði ég nokkrum dögum áður keypt vélskipið Fönix KE, síðar Bergvík VE, sem Gísli var skipstjóri á. Gísli hafði áhyggjur af því að nú yrði hann skipslaus, þar sem skipið hefði verið selt til Vestmannaeyja. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 186 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson

Nú hjartans kveðjur samúðar ég sendi því sorgin víkur allri gleði á braut en líf vort allt það er í herrans hendi sem hjálpar okkur best í hverri þraut. Já, hugga Drottinn, ástvinina alla þú einn átt frið sem huggun getur veitt lát inn í myrkrið geisla fagra falla sem fjötrum sorgarinnar geti eytt. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 361 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson

Mig langar til að minnast elskulegs pabba míns, Gísla G. Guðjónssonar með nokkrum orðum. Erfið barátta er að baki og það er einkennilegt að hugsa til þess, að hann pabbi sé farinn í langt ferðalag og endurfundir ekki hugsanlegir fyrr en minn tími kemur. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 546 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson

Hin langa þraut er liðin, nú loksins hlaustu friðinn, og allt er orðið rótt, nú sæll er sigur unninn og sólin björt upp runnin á bak við dimma dauðans nótt. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 240 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson

Það er með söknuði og trega, að ég kveð elskulegan mág minn, Gísla Guðjón Guðjónsson. Það var þungbær raun, þegar hann greindist með illvígan sjúkdóm í október 1995. Erfiðir tímar fóru í hönd, en á aðdáunarverðan hátt hélt hann ró sinni og æðruleysi. Hann var staðráðinn í því að berjast til þrautar og gefast ekki upp. Í baráttunni nutu sín hans góðu kostir, yfirvegun og kjarkur. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 256 orð

GÍSLI GUÐJÓN GUÐJÓNSSON

GÍSLI GUÐJÓN GUÐJÓNSSON Gísli Guðjón Guðjónsson fæddist í Sandgerði 14. júní 1954. Hann lést í Landspítalanum 9. júní síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðjón Þorkelsson Gíslason, skipstjóri, f. 16. janúar 1921, d. 24. ágúst 1988, og Mikkalína Finnbjörnsdóttir, húsmóðir, f. 3. desember 1922. Systkini hans eru Ólafía Kristín, f. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 57 orð

Gísli Guðjón Guðjónsson Ég var sjö ára þegar pabbi minn dó og mér þótti mjög vænt um hann. Hann var mjög sterkur og ég var mjög

Ég var sjö ára þegar pabbi minn dó og mér þótti mjög vænt um hann. Hann var mjög sterkur og ég var mjög glöð með það. Mamma var líka mjög sterk og ég var glöð með það að fá að heimsækja pabba og mömmu og mér þykir mjög vænt um þau. Kveðja frá Mikkalínu Mekkin. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 612 orð

Guðmundur Jóhannesson

Fallinn er frá aldni sveitarhöfðinginn Guðmundur Jóhannesson, fyrrum bóndi að Króki í Grafningi. Það er margs að minnast þegar slíkur fróðleiksmaður og mannvinur fellur frá og þar með stór þekking og saga um Þingvallasvæðið sem Guðmundur unni svo mikið. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 295 orð

Guðmundur Jóhannesson

Guðmundur frá Króki í Grafningi er látinn. Með örfáum orðum langar mig að minnast hans. Ég kynntist honum vorið 1955 er ég kom að Króki með unnustu minni, Jóhönnu, dóttur hans. Þessi kynni uxu og var mér alla tíð hlýtt til þeirra hjóna frá Króki, Guðrúnar Sæmundsdóttur og Guðmundar Jóhannessonar Það eru rétt 41 ár frá því að ég var fyrst kynntur fyrir Guðmundi, þar til leiðir skilja nú. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 301 orð

Guðmundur Jóhannesson

Í dag er til moldar borinn tengdaafi minn, Guðmundur Jóhannesson, bóndi í Króki í Grafningshreppi. Það eru einungis ljúfar minningar sem streyma um hugann er ég minnist hans. Hvers manns hugljúfi, ræðinn ætíð og skáldlegur, fagurkeri og fróðleiksbrunnur. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 33 orð

GUÐMUNDUR JÓHANNESSON

GUÐMUNDUR JÓHANNESSON Guðmundur Jóhannesson bóndi frá Króki í Grafningi fæddist í Eyvík í Grímsnesi 12. október 1897. Hann lést á Landspítalanum 6. júní síðastliðinn og fór útför hans fram frá Langholtskirkju 13. júní. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 1244 orð

Ólafur Árnason

Þegar aldna eikin fellur heyrist brestur í skóginum og það bergmálar í fjallinu. Þriðjudaginn 21. maí vaknaði ég klukkan að ganga fimm um morguninn við sterkt hugboð um að Ólafur vinur minn væri dáinn. Fór ég þá að hugsa um að ég þyrfti að skrifa um hann kveðju og kom þá þessi setning í huga minn. Fannst mér þessi orð eiga vel við sem byrjun á minningu um hann. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 135 orð

ÓLAFUR ÁRNASON

Ólafur Árnason var fæddur á Oddgeirshólum í Hraungerðishreppi 23. maí 1915. Hann lést 19. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Árni Árnason frá Hörgsholti í Hrunamannahreppi og Elín Steindórsdóttir Briem frá Hruna í sömu sveit. Þeirra börn voru: 1) Steindór, f. 1904, andaðist á öðru ári á Grafarbakka, vorið sem þau fluttu að Oddgeirshólum. 2) Sigríður, f. 1907. 3) Steindór, f. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 281 orð

Snælaugur Stefánsson

Lakara þótti mér að geta ekki fylgt honum Snælaugi mínum Stefánssyni til grafar, svo ég mætti þakka honum vináttu og stuðning um margra ára skeið. Síðbúin minningargrein er virðingarvottur við látinn heiðursmann. Snælaugi kynntist ég árið 1978, þegar ég varð við óskum nokkurra Norðlendinga um að skipa sæti á framboðslista Alþýðuflokksins í Norðurlandskjördæmi eystra. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 26 orð

SNÆLAUGUR STEFÁNSSON

SNÆLAUGUR STEFÁNSSON Snælaugur Kristinn Stefánsson fæddist á Árbakka á Árskógsströnd 18. október 1945. Hann lést 16. maí síðastliðinn og fór útförin fram frá Akureyrarkirkju 24. maí. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 324 orð

Þórhildur Kristbjörg Jakobsdóttir

Amma var létt í skapi, sífellt syngjandi og mjög spaugsöm. Hún hafði mjög gaman af að spila á mandólínið sitt og syngja. Ávallt var hún til í að fara í hina ýmsu leiki með okkur krökkunum og enginn skoraðist undan þar sem gleði og hlátur fylgdu alltaf þeim stundum. Eftir að afi dó ferðaðist amma mikið, fór í ferðir með öldruðum, meðal annars til Færeyja. Meira
15. júní 1996 | Minningargreinar | 332 orð

ÞÓRHILDUR KRISTBJöRG JAKOBSDÓTTIR

ÞÓRHILDUR KRISTBJöRG JAKOBSDÓTTIR Þórhildur Kristbjörg Jakobsdóttir fæddist á Sjónarhóli í Grundarfirði 2. janúar 1918. Hún lést á sjúkrahúsi Seyðisfjarðar 9. maí síðastliðinn, þar hafði hún dvalið meiri part síðastliðins vetrar. Foreldrar hennar voru Jakob Ellert Dagsson sjómaður ættaður úr Dalasýslu og Marsibil Gísladóttir úr Snæfellssýslu. Meira

Viðskipti

15. júní 1996 | Viðskiptafréttir | 228 orð

Bandarísk sjónvarpsstöð sýnir 10 þætti um Ísland

BANDARÍSKA sjónvarpsstöðin WNVC-TV, Channel 56, í Washington hefur hafið sýningar á tíu fræðslumyndum þar sem fjallað er um lifnaðarhætti, störf og menningu Íslendinga. Tildrög þessara útsendinga eru þau að kennslusjónvarpið SCOLA í Bandaríkjunum sýndi í desember sl. um 40 myndir með þessu sama efni. Í kjölfar þess falaðist sjónvarpsstöðin eftir leyfi til að sjónvarpa því. Meira
15. júní 1996 | Viðskiptafréttir | 305 orð

Bílasala minnkað um 21%

SALA Volvo á Evrópumarkaði heldur áfram að minnka, en sérfræðingar eru enn vongóðir um umskipti á næstu mánuðum. Sala á nýjum bifreiðum í Evrópu jókst um 7,5% í 5.8 milljónir bíla á fyrstu fimm mánuðum 1996 miðað við sama tíma í fyrra, en sala Volvo minnkaði um 20,7% í 80.890 bíla. Meira
15. júní 1996 | Viðskiptafréttir | 215 orð

Notendur vefsins eru sundurleitari en áður

VENJULEGUR notandi veraldarvefsins er 33 ára gamall hvítur, enskumælandi karlmaður með 59.000 dollara í tekjur, en hópur sá sem notar vefinn er að verða fjölbreyttari en áður samkvæmt könnun iðntæknistofnunar í Atlanta, Georgíuríki. Meira
15. júní 1996 | Viðskiptafréttir | 56 orð

Ráðinn hagfræðingur Samtakaiðnaðarins

INGÓLFUR Hreiðar Benderhefur verið ráðinn hagfræðingur Samtaka iðnaðarins og hefur störf 1. ágúst nk. Hann er fæddur 13. ágúst 1967 og lauk prófi frá hagfræðideild Háskóla Íslandsvorið 1991. Meira
15. júní 1996 | Viðskiptafréttir | 168 orð

Símafélag Portúgals einkavætt

TAKMÖRKUÐ einkavæðing portúgalska fjarskiptafélagsins, Portugal Telecom, hefur aflað tæplega 67 milljarða króna og hefði verið hægt að selja fimm sinnum fleiri hlutabréf en í boði voru að sögn embættismanna í Lissabon. Meira
15. júní 1996 | Viðskiptafréttir | 579 orð

Um 9.000 störf flutt inn á hverju ári

Á SÍÐASTA ári fluttu Íslendingar inn iðnaðarvörur fyrir um 30 milljarða króna en þar af voru fluttar inn byggingarvörur fyrir um 7 milljarða og er heildsöluvirði þessa innflutnings áætlað rúmir 10 milljarðar króna. Nefnd sem Finnur Ingólfsson, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, skipaði á síðasta ári m.a. Meira

Daglegt líf

15. júní 1996 | Neytendur | 311 orð

Heitt í kolunum

Þeir félagar Óskar Finnsson, Ingvar Sigurðsson og Árni Þór Arnórsson eru með grillþætti á Bylgjunni á laugardögum í sumar. Þær uppskriftir sem þeir gefa hlustendum sínum eru síðan birtar hér á síðunum. Nautasteik á grillið Þeir félagar segja nautasteik sígilda á grillið en bæta við að ýmislegt beri þó að hafa í huga við val og eldun á nautakjöti. Meira
15. júní 1996 | Neytendur | 42 orð

Kók í lítra flöskur

HAFIN er framleiðsla og dreifing hjá Vífilfelli ehf. á kóki og sykurlausu kóki í eins lítra umbúðum. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að aðallega sé verið að koma til móts við unga neytendur með þessari stærð flaskna. Meira
15. júní 1996 | Neytendur | 39 orð

Ný Tilda-hrísgrjón

KOMNAR eru í verslanir tvær nýjar tegundir af hrísgrjónum, villt kanadísk hrísgrjón sem ræktuð eru að hætti indíána og síðan sérstök "rísottó"-hrísgrjón sem koma frá Ítalíu og eru notuð í sérstaka hrísgrjónarétti sem á frummálinu heita risotto. Meira
15. júní 1996 | Neytendur | 59 orð

Svissneskir ostar

FARIÐ er að selja svissneska osta í Nóatúni og fleiri verslunum. Um er að ræða litla þríhyrnda osta sem eru pakkaðir og seldir saman sex í öskjum. Tvær tegundir af ostaöskjum eru á boðstólum, önnur inniheldur sígilda svissneska "Gruyére"-osta og hin Swiss cocktail með mismunandi bragðtegundum. Ostarnir henta á brauð, kex eða einir sér og í matreiðslu. Meira
15. júní 1996 | Neytendur | 532 orð

Verðið á að vera það sama og í Noregi

FYRR í vikunni var herrafataverslunin Dressmann opnuð á Laugavegi. Búðin er á tveimur hæðum, á neðri hæðinni er sportlegur fatnaður af ýmsu tagi en á þeirri efri sígild jakkaföt, stakar buxur og jakkar, skór, skyrtur og silkibindi. Meira
15. júní 1996 | Neytendur | 511 orð

Þriggja mínútna símtal frá Danmörku á 171 krónu eða 703 krónur

ÞAÐ getur kostað íslenskan ferðamann 57 krónur að hringja heim í eina mínútu frá Danmörku en hann getur líka þurft að borga fyrir mínútuna rúmlega 700 krónur. Munurinn liggur í við hverja hann skiptir. Meira

Fastir þættir

15. júní 1996 | Fastir þættir | 682 orð

Af hverju myndast sólarexem?

Spurning:Af hverju myndast sólarofnæmi og sólarexem og eru einhver ráð til að koma í veg fyrir það? Svar: Útbrotum sem við fáum af sólarljósi er oft skipt í tvo flokka, sólarofnæmi og sólarexem. Ekki er hægt að hafa ofnæmi fyrir sólarljósinu sem slíku en sólin getur haft þannig áhrif á sum efni (málma o.fl. Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 296 orð

Aldrei utan þjónustusvæðis

ALGENGT er símnotendur fái þau skilaboð að farsími sé utan þjónustusvæðis. Nú geta þeir sem þola ekki að vera sambandslausir tekið gleði sína svo um munar því hægt er að fá handhægan farsíma og hringja með honum um Inmarsat gervihnattakerfið hvaðan á jörðinni sem er og hvert sem er. Meira
15. júní 1996 | Dagbók | 2701 orð

APÓTEK

apótekanna í Reykjavík. Vikuna 14.-20. júní verða Laugavegs Apótek, Laugavegi 16 og Holts Apótek, Glæsibæ, Álfheimum 74 opin til kl. 22. Frá þeim tíma er Laugavegs Apótek opið til morguns. »BORGARAPÓTEK: Opið virka daga kl. 9-22, laugardaga kl. 10-14. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 23 orð

Árnað heillaÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 15. júní

Árnað heillaÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 15. júní, er níutíu og fimm ára Gunnar Árnason, búfræðikandídat, Grundarstíg 8, Reykjavík.Hann er að heiman á afmælisdaginn. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 28 orð

BRÚÐKAUP.

Ljósm. MYND Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. júní sl. í Háteigskirkju af sr. Pálma Matthíassyni Eydís Gréta Guðbrandsdóttir og Kjartan Einarsson.Heimili þeirra er í Laufrima 22, Grafarvogi. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 30 orð

BRÚÐKAUP.

Ljósm. MYND Hafnarfirði BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. júní sl. í Digraneskirkju af sr. Gunnari Sigurjónssyni Bjarnveig Oddný Árnadóttir og Stefán Hafþór Stefánsson. Heimili þeirra er í Þinghólsbraut í Kópavogi. Meira
15. júní 1996 | Dagbók | 519 orð

dagbok nr. 62,7

dagbok nr. 62,7 Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 658 orð

Grönn, grennri, grennst

Í SAMFÉLÖGUM hins vestræna heims er til þess ætlast að konur séu grannar, hvernig sem líkamsbyggingin er, annað þykir ekki við hæfi. Beinaberar tískusýningastúlkur eru víða fyrirmyndir ungra stúlkna. Þess eru dæmi að litlar, óþroskaðar telpur neyti ekki nauðsynlegrar fæðu, af hræðslu við að verða of feitar. Þegar svo er komið er auðvitað hætta á ferðum. Og grönn Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 573 orð

Hengikörfur

BLÓMI vikunnar hefur borist liðsauki, sem er Guðríður Helgadóttir garðyrkjufræðingur. Það er von umsjónarmanns að við fáum að njóta penna Guðríðar oftar í sumar því nýtt blóð er alltaf mjög vel þegið. Í þessari grein fjallar Guðríður um ræktun, sem ekki hefur verið mikið stunduð hér á landi, en best er að gefa henni sjálfri orðið. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 24 orð

HlutaveltaÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega og færð

HlutaveltaÞESSAR duglegu stelpur héldu hlutaveltu nýlega og færðu hjálparsjóði RKÍ ágóðann sem varð 2.088 krónur. Þær heita Telma Sveinbjörnsdóttir, Ragnheiður Sigurðardóttir og Íris Sif Hermannsdóttir. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 266 orð

ÍKVERJA hefur borist eftirfarandi frá Ingólfi Hannessyni, íþróttast

ÍKVERJA hefur borist eftirfarandi frá Ingólfi Hannessyni, íþróttastjóra Ríkissjónvarpsins. "Víkverji fimmtudagsins fer nokkrum orðum um "ósamræmi í gæðum hljóðs og myndar" í lýsingum okkar frá Evrópumótinu í knattspyrnu. Hér er því til að svara varðandi hljóðgæði að Sjónvarpið stóð frammi fyrir þremur kostum í tæknilegri aðstöðu til lýsinga frá EM: 1. Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 219 orð

Í minningu kynlegra kvista

"ÞESSIR menn voru flestir það sem kalla má utangarðsmenn og sjálfsagt verið vistaðir á stofnunum hefðu þeir verið uppi á okkar dögum," segir Grétar Bergmann, forsvarsmaður fyrirtækisins L.G. Bergmann, sem framleiðir minjagripi þar sem myndir af þjóðþekktum einstaklingum frá fyrri tíð eru lagðar til grundvallar. Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 716 orð

ÍSLENSKT MÁL Umsjónarmaður Gísli Jónsson 853. þáttur

853. þáttur Góðum bréfriturum þakka ég enn og aftur. Mér þykir verst hversu oft og mikið ég þarf að reyna á biðlund þeirra og þolinmæði sú er bakhlið á þeim höfuðkosti að fá mikið af bréfum. Nú ætlar umsjónarmaður að þakka eitt og annað sem honum finnst að gott hafi verið gert: 1) Baldur Sigurðsson gerði harða hríð að óyrðinu "ókei" í útvarpsþætti. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 89 orð

LEIÐRÉTT

Í frétt Morgunblaðsins í gær um brautskráningu frá Kennaraháskóla Íslands urðu þau mistök að nafn eins kandídats misritaðist. Kandídatinn er Kristín Svanhildur Helgadóttir, en í fréttinni í gær var hún sögð heita Katrín Svanhildur. Morgunblaðið biðst velvirðingar á mistökunum. Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 745 orð

Messur á morgun og 17. júní Guðspjall dagsins:

Messur á morgun og 17. júní Guðspjall dagsins: Hin mikla kvöldmáltíð. (Lúk. 14.) »ÁSKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Árni Bergur Sigurbjörnsson. BÚSTAÐAKIRKJA: Guðsþjónusta kl. 11. Organisti Guðni Þ. Guðmundsson. Prestur sr. Guðný Hallgrímsdóttir. Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 219 orð

Nú er það svart

Hver er tískan í strigaskóm? Hver er þýðing þess að ganga í strigaskóm? Er maður kannski óafvitandi að gefa yfirlýsingu um sjálfan sig með vali á strigaskóm? Áslaug Snorradóttir fór á stúfana og kannaði hvurs lags strigaskór eiga upp á pallborðið hér á landi. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 68 orð

Pálsætt undan Jökli Um næstu helgi dagana 22. og 23. júní, verður haldi

Um næstu helgi dagana 22. og 23. júní, verður haldið niðjamót Pálsættar undan Jökli á Lýsuhóli í Staðarsveit. Ættin er kennd við Pál Kristjánsson (1856-1921) barnakennara og tómthúskarl sem bjó víða í sveitum undir Jökli, síðast í Ólafsvík. Niðjarnir eru komnir frá Páli og konum hans, Kristínu Hannesdóttur (1857-1897) og Vilborgu Gísladóttur (1877-1929). Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 1378 orð

Raunasaga Sæfinns með sextán skó

SÆFINNUR Hannesson, þekktastur undir nafninu Sæfinnur með sextán skó, var einn af vatnsberum í Reykjavík á seinni hluta nítjándu aldar. Hann var hinn ókrýndi konungur þeirrar stéttar þótt ekki hafi það verið glæsimennska, sem hóf nafn hans upp úr hópi hinna nafnlausu og nafngetnu vatnsbera því hann þótti óglæsilegastur þeirra allra. Meira
15. júní 1996 | Fastir þættir | 528 orð

Skriplað á tónlistarskötu

ÞAÐ GEFUR augaleið að tölvugeisladiskar, sem rúmað geta hundruð þúsunda síðna af texta og ógrynni mynda, eru vel til þess fallnir að geyma alfræðirit og þau eru þegar mörg komin á markað. Fyrir rokkáhugamenn er þó ekki um auðugan garð að gresja, reyndar er ekki nema einn rokkalfræðidiskur sem stendur undir nafni. Meira
15. júní 1996 | Dagbók | -1 orð

SPURT ER...

» Hann hyggst gera Ísland að fanganýlendu komist hann til valda. Umræddur maður, sem hér sést á mynd, er frambjóðandi í rússnesku forsetakosningunum og notar öfgafulla þjóðernishyggju til atkvæðaveiða. Hvað heitir hann? » Knattspyrnufélag Reykjavíkur er nú í efst í 1. deild karla í knattspyrnu. Meira
15. júní 1996 | Í dag | 171 orð

Vill sjá fleiri greinar KONA hafði samband við Velvakanda t

KONA hafði samband við Velvakanda til að þakka hversu margar góðar og vandaðar greinar hefðu birst í blaðinu um sjúkdóma, s.s. gigt o.fl., og einnig greinar um hollt líferni. Þó finnst henni vanta greinar um allskyns fíkn, s.s. spennufíkn, vinnufíkn o.fl. og vill koma því á framfæri. Meira

Íþróttir

15. júní 1996 | Íþróttir | -1 orð

1. DEILD KVENNA

1. DEILD KVENNA BREIÐABLIK 4 4 0 0 18 2 12´IA 4 3 0 1 11 4 9KR 4 2 1 1 10 6 7VALUR 4 2 1 1 11 8 7´IBA 4 2 0 2 7 8 6STJARNAN 4 1 0 3 7 13 3UMFA Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 156 orð

1. deild kvenna Breiðablik - KR3:0 Erla Hendriksdóttir (28.), Stojanka Nikolic (57.), Ásthildur Helgadóttir (67.) Valur - ÍBA2:0

2. deild karla: Fram - ÍR2:0 Þorbjörn Atli Sveinsson (20., 45.). Þór - Skallagrímur1:1 Davíð Garðarsson (16.), Sveinbjörn Ásgrímsson (55.). 4. deild: Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | -1 orð

2. DEILD KARLA

2. DEILD KARLA SKALLAGR. 4 2 2 0 10 3 8FRAM 4 2 2 0 9 5 8FH 4 2 1 1 6 5 7Þ´OR 4 2 1 1 6 6 7KA 4 2 0 2 9 8 6VÖLSUNGUR 4 2 0 2 6 5 6ÞR´OTTUR Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 440 orð

Allir krefjast sigurs

Það verður vafalítið mikið um dýrðir á Wembley-leikvanginum í London í dag þegar mætast erkifjendurnir Englendingar og Skotar í fjórða leik A-riðils Evrópumeistarakeppninnar í knattspyrnu. Pressan á leikmönnum er gríðarleg en ákafir stuðningsmenn beggja liða bókstaflega krefjast sigurs. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 368 orð

Evrópukeppnin

C-riðill: Ítalía - Tékkland1:2 Anfield Road í Reykjavík: Mark Ítalíu: Enrico Chiesa (18.) Tékkland: Pavel Nedved (4.), Radek Bejbl (35.). Gult spjald: Ítalirnir Luigi Apolloni (7.) og Diego Fuser (90.) og Tékkarnir Jan Suchoparek (21.), Radoslav Latal (51.), Pavel Kuka (60.), Miroslav Kadlec (90.). Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 434 orð

Framarar komnir í toppbaráttuna

Framarar þurftu ekki að hafa mikið fyrir 2:0 sigri á ÍR-ingum í leik liðanna á Valbjarnarvelli í gærkvöldi. Tvö mörk framherjans Þorbjörns Atla Sveinssonar í fyrri hálfleik skildu liðin á endanum að og eru Framarar komnir við hlið Borgnesinga á toppnum fyrir vikið. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 262 orð

Frábær leikur er Tékkar unnu Ítali

TÉKKAR sigruðu Ítali 2:1 í frábærum, sögulegum leik í C-riðli Evrópukeppninnar í knattspyrnu á Anfield Road í Liverpool í gærkvöldi. Tékkar, sem töpuðu fyrsta leiknum í riðlinum fyrir Rússum, halda því enn í vonina um að komast áfram í keppninni. Í hinum leiknum í gær sigruðu Pólverjar lið Tyrklands 1:0. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 170 orð

Golf

Íslandsmótið í holukeppni: 1. umferð karla: Birgir Leifur Hafþórsson - Guðjón R. Emilsson 7:5 Sigurður Hafsteinsson - Hannes Eyvindsson 4:3 Guðmundur R. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 145 orð

Grænlendingur reynir sig hjá Val VALS

VALSMENN fá í dag til sín grænlenskan knattspyrnumann sem ætlar að reyna fyrir sér hjá félaginu. Hann heitir Jonas Hansen og er 26 ára sóknarmaður sem í fyrra var bæði kjörinn knattspyrnumaður og íþróttamaður ársins í Grænlandi. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 355 orð

Hiddink rak Dav- ids heim frá EM

Hollenski landsliðsmaðurinn Edgar Davids var í gær rekinn heim frá Evrópukeppninni í Englandi af Guus Hiddink landsliðsþjálfara eftir rifrildi þeirra. Davids, sem er 23 ára og fer frá Ajax til AC Milan í sumar, var óvænt settur út úr byrjunarliði Hollands fyrir leikinn gegn Sviss á þriðjudag en kom inn á seint í leiknum, sem Hollendingar unnu 2:0. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 337 orð

Hörkuleikur

Frakkar, sem margir telja einna líklegasta til að hampa Evrópubikarnum 30. júní næstkomandi, mæta Spánverjum á Elland Road kl. 17 að íslenskum tíma í dag. Búast má við hörkuleik en bæði lið hafa lýst því yfir að þau muni leika sóknarknattspyrnu og ekki sætta sig við aðeins eitt stig. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 320 orð

Jafnt í toppslagnum

ÞÓR og Skallagrímur áttust við í toppslag 2. deildar á Akureyri í gærkveldi og þegar upp var staðið hafði hvort lið gert eitt mark. Eftir leikina í gærkveldi er Skallagrímur áfram í efsta sæti en Fram skaust upp að hlið þeirra, Þórsara eru nú í þriðja sæti. Leikurinn var fremur jafn en Þórsarar voru þó nær því að bæta við marki og fara með sigur af hólmi en jafntefli varð staðreynd. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 115 orð

Maldini skreppur heim PAOLO Maldini, f

PAOLO Maldini, fyrirliði Ítala, hefur fengið leyfi hjá Sacchi þjálfara til að skjótast heim til konu sinnar, en hún ól son þeirra í gær og mun Maldini skjótast til Ítalíu og dvelja hjá fjölskyldunni í einn sólarhring. "Ég er mjög ánægður með soninn, en ekki setja tap okkar í dag í neinn samhengi við að ég varð pabbi í dag," sagði Maldini í gærkvöldi. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 51 orð

Nöfn þeirra sem fengu eitt M í leik Stjörnunnar og

Nöfn þeirra sem fengu eitt M í leik Stjörnunnar og Grindavíkur í fyrrakvöld duttu út við vinnslu blaðsins í gær. Beðist er velvirðingar á þessu og nöfnin birt hér á eftir: Baldur Bjarnason, Valdimar Kristófersson, Kristinn Lárusson, Goran K. Micic, Stjörnunni. Milan S. Jankocic, Hjálmar Hallgrímsson, Guðmundur Torfason, Zoran Ljubicic, Grindavík. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 208 orð

RÚV vill ekki í dómarasæti AGANEFND Knatts

AGANEFND Knattspyrnusambandsins (KSÍ) dæmdi í vikunni Slobodan Milisic, leikmann Leifturs, í leikbann þar sem sjónvarpsupptaka var eina sönnun þess sem gerst hafði á vellinum. Vegna þessa máls hefur Ingólfur Hannesson, íþróttastjóri RÚV, sent KSÍ bréf þar sem hann bendir á nokkur atriði. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 661 orð

Tékkar sigruðu Ítali í frábærum leik

ÞAÐ má með sanni segja að Tékkar hafi komið verulega á óvart í gærkvöldi er þeir sigruðu Ítali 2:1 í C-riðli og eru þetta óvæntustu úrslit Evrópukeppninnar hingað til. Leikmenn Tékklands gerðu sér grein fyrir þessu og fögnuðu ógurlega og hentu keppnispeysum sínum til stuðningsmanna sinna, sem réðu sér ekki fyrir fögnuði. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 349 orð

Tyrkir úr leik

Portúgalir sýndu oft og tíðum stórskemmtilega knattspyrnu þegar þeir sigruðu Tyrki, 1:0, á City Ground í Nottingham í gær. Portúgalirnir áttu að vísu í mestu vandræðum með að koma knettinum í mark andstæðinganna en samleikur þeirra á miðjunni gladdi oft augu þeirra knattspyrnuáhugamanna, sem með leiknum fylgdust. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 279 orð

UM HELGINAKnattspyrna Laugardagur:

Knattspyrna Laugardagur: 1. deild kvenna: Eyjar:ÍBV - UMFA19 2. deild kvenna: Sandgerði:Reynir - FH14 Ólafsfj.:Leiftur - Tindastóll14 Höfn:Sindri - Höttur17 Vopnafj.:Einherji - Leiknir F.17 4. deild: Ármannsv. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 209 orð

Vernharð má ekkert segja V

VERNHARÐ Þorleifsson, júdómaður úr KA á Akureyri, getur ekki tjáð sig um mál hans og Júdósambandsins (JSÍ). Eins og greint var frá í blaðinu í gær íhugar stjórn JSÍ nú að hætta við að senda Vernharð sem keppanda á Ólympíuleikana í Atlanta í næsta mánuði. Meira
15. júní 1996 | Íþróttir | 459 orð

Ætlum okkur ekki að tapa viljandi fyrir aðra

Ætlum okkur ekki að tapa viljandi fyrir aðra SIGURGANGA Breiðabliksstúlkna heldur áfram og í gærkvöldi unnu þær helsta keppinaut sinn, KR, 3:0 í Kópavoginum. Meira

Sunnudagsblað

15. júní 1996 | Sunnudagsblað | 288 orð

(fyrirsögn vantar)

Enginn sæi á mér blett, eða sérstök gæði, ef ég gæti eignast slétt oddborgara klæði (Jón S. Bergmann) Þorsteinn uxi Fátæktin er fjandans nauð fyrir stórlynt hjarta, en lítilmennska og ógn af auð illa saman skarta. (Jón S. Bergmann) Meira

Úr verinu

15. júní 1996 | Úr verinu | 135 orð

Úthafskarfaaflinn

SkipsnafnAlls Baldvin Þorsteinsson EA 102.662 Akureyrin EA 1102.159 Vigri RE 712.721 Víðir EA 9101.914 Ýmir HF 3431.663 Gnúpur GK 111.682 Málmey SK 11. Meira
15. júní 1996 | Úr verinu | 460 orð

Úthafskarfi skilar 2,7 milljörðum króna í ár

VEIÐUM okkar Íslendinga á úthafskarfa lýkur nú um helgina, þar sem leyfilegum kvóta hefur þá verið náð, eða alls um 45.000 tonnum. Verðmæti þessa afla má áætla á um 2,7 milljarða króna, sem er það mesta sem þessi fiskistofn hefur skilað okkur. Verð á karfanum er nokkru hærra en á síðasta ári og ræður þar mestu töluverð eftirspurn, betri karfi en í fyrra og mikil gæði afurðanna. Meira

Lesbók

15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 201 orð

Amlóða saga önnur tveggja erlendra sýninga

"AMLÓÐA saga" verður sýnd á listahátíðinni í Helsinki í ágúst, en þar verða aðeins tvær erlendar leiksýningar, Amlóði Bandamanna og sýning Kanadamannsins Roberts Lepage, sem hvað mesta athygli hefur vakið í leiklistarheiminum austanhafs og vestan að undanförnu. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 98 orð

Á lífi

Brúna hárið hennar fallið og annað brjóstið á brott numið. Hún hafði raðað öllum hringjunum á fingurna sem enn voru lifandi hver á sínum stað. Hugur hennar var einnig farinn á vit konunga og riddara fjarri sorgum heimsins í gildum fortíðar. en hárkollan hékk á stólbaki í einangrunarherberginu á spítalanum. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 203 orð

Bríet verður María Callas

LEIKRITIÐ "Masterklass hjá Maríu Callas" eftir Terrence McNally verður frumsýnt í haust í Íslensku Óperunni. Verið er að ganga frá samningum við leikkonuna Bríeti Héðinsdóttur um að leika aðalhlutverkið, Maríu Callas. Þrjú hlutverk eru í sýningunni auk Callas og eru það nemendur sem sækja tíma hjá söngkonunni, tvær sópransöngkonur og einn tenórsöngvari. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 2707 orð

DAGBÓK ÚR ÍSLANDSFERÐ 1873

Fimmtudagur, 24. júlí. Hvílzt á Breiðabólstað í Fljótshlíð Ég byrja á því að punkta nokkur atriði um ferð okkar. Við litum Ísland snemma morguns þriðjudaginn 15. júlí klukkan eitt eftir miðnætti. Napur morgunn og fremur vont í sjó. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 789 orð

DJASSINN SNÝST UM VIÐHORF, ANDA OG HUGMYND Djassinn geggjar ­ og sameinar, segir Lester Bowie sem ætlar að skemmta Íslendingum

Djassinn geggjar ­ og sameinar, segir Lester Bowie sem ætlar að skemmta Íslendingum um helgina og koma vessunum af stað með bestu lúðras-sveit í heimi. JÓN ÓLAFSSON hitti hann á mesta rigningardegi sumarsins í Brooklyn, New York Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 287 orð

efni 15. júni

Morris Enska fjöllistamannsins William Morris er minnst á 100. ártíð hans, bæði vegna þess að hann var Íslandsvinur, kom tvívegis til Íslands og gaf úr dagbækur sínar úr þeim ferðum og svo hins, að hann var aðdáandi Íslendingasagna og þýddi sumar þeirra á ensku ásamt með Eiríki Magnússyni. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 89 orð

Erró í Vín

YFIRLITSSÝNING á verkum Errós hefur verið opnuð í Nútímalistasafninu í Vín, Palais Liechtenstein. Á myndinni er listamaðurinn hjá verkum á ssýningunni, en þar eru 82 verk sem spanna feril hans síðustu þrjátíu ár. Sýningin ber heitið, Frá Maó ti Madonnu, en elstu verkin eru úr myndaröð um kínversku menningarbyltinguna en sú nýjasta er af poppstjörnunni, Madonnu. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 517 orð

ÉVGENÍ KISSIN

Évgení Kissin er með tónlist í blóðinu; móðir hans er píanókennari og systir hans, sem er tíu árum eldri, er konsertpíanóleikari. "Ellefu mánaða gamall var ég farinn að syngja og þegar ég var orðinn nógu stór til að ná upp í hljómborð píanósins var ég farinn að spila," segir hann, "það kom bara af sjálfu sér. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 2010 orð

FRÁ LISTAHÁTÍÐ Í BJÖRGVIN MEÐ SÖKNUÐI

FRÁ LISTAHÁTÍÐ Í BJÖRGVIN MEÐ SÖKNUÐI Listahátíð í Björgvin var haldin í 44. sinn frá 22. maí til 2. júní síðastliðins. Hátíðin bauð upp á fjölbreytta dagskrá þótt megináherslan hafi verið á tónlistina, og þá einkum norska tónlist. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 2310 orð

FRÁSÖGNIN Í VERKUM ERRÓS

Með því að safna saman á léreftið myndum sem að öllu jöfnu mætast af tilviljun í raunveruleikanum, opinberar Erró okkur kerfi þessa heims. (Alin Jouffroy.) Á6. áratugnum var abstraktlistin ríkjandi myndgerð í hinum alþjóðlega listheimi. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 888 orð

GÓÐAR MINNINGAR ÚR ÍSLANDSFERÐUNUM

Áþessu ári eru liðin eitt hundrað ár frá dauða englendingsins Willian Morris. Hann var einn af stórbrotnustu sonum heimsveldis Viktoríu drottningar, sem ríkti frá 1837 til 1901. Líf Morris varð tveimur árum styttra en völd Viktoríu, fæddur 1834 og dáinn 1896. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 1242 orð

HINAR 32 PÍANÓSÓNÖTUR BEETHOVENS

EINN af frábærustu píanóleikurum okkar tíma, Yevgeny Kissin, er kominn til tónleikahalds hér á landi. Meðal verka á tónleikum hans er hin þekkta "Tunglskinssónata" eftir Ludwig van Beethoven. Í tilefni af þessu létu VIÐAR PÁLSSON og SIGURJÓN ÖRN SIGURJÓNSSON þann draum rætast, að hlusta á allar 32 píanósónöturnar hans í réttri röð í einni atrennu. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 1573 orð

Í MINNINGU DAUÐANS

HINN 3. JÚNÍ voru opnaðar tvær ljósmyndasýningar á Listahátíð í Reykjavík undir yfirskriftinni "Eitt sinn skal hver deyja" þar sem ætlunin er að brjóta dauðann til mergjar. Á Sjónarhóli, Hverfisgötu 12, eru það ljósmyndir úr líkhúsi eftir hinn þekkta og umdeilda listamann Andres Serrano, sem "prýða veggina". Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 216 orð

Landsýn við Ísland -BrotSteingrímur Thorsteinsson þýddi

Nú skoðum frá skriðdrjúgri gnoð fer að skjótast upp nýtt land úr mar, Í austrinu tindabjörg tent girða tómlegan fjarðsíðu hjúp, Þaðan grádökk sig greiðir út hlíð þar sem gróður í rindum er spar, Í vestri rís stöpulmynd stór, þar er stilt bera skýin við djúp, Hún er ferskeytt frá fæti til kolls, eitthvert fornsmíði goðheims sem var, Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 38 orð

Listahátíð í Reykjavík 1996

Laugardagur 15. júní Evgeny Kissin, einleikur á píanó. Háskólabíó: Tónleikar kl. 16. Lester Bowie's Brass Fantasy. Loftkastalinn: Djasstónleikar kl. 21. Circus Ronaldi. Hljómskálagarðurinn: 5. sýn. kl. 20. Klúbbur Listahátíðar. Loftkastalinn: Opið frá kl. 17. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 354 orð

Líf og lævirkjar

BERNARDEL-KVARTETTINN efnir til tónleika í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur á morgun, sunnudag, kl.16. Á efnisskrá eru strengjakvartettarnir Lævirkinn eftir Haydn og Úr lífi mínu eftir Smetana. Aðgangur er ókeypis. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 170 orð

Miðvikudagur

Miðvikudagur. ­ Og lífið gengur sinn gang, eins og guð hefir sjálfur í öndverðu hugsað sér það. manni finnst þetta dálítið skrítið, en samt er það satt, því svona hefir það verið og þannig er það. Þér gangið hér um með sama svip og í gær, þér sigrandi fullhugar dagsins, sem krónuna stífið. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 503 orð

Morrissýningar í London

Ítilefni 100. ártíðar Williams Morris leggja Bretar mikið í kynningu á lífi og verkum þessa áhrifaríka hönnuðar, sem mótaði lífsstíl 19. aldarinnar og langt fram eftir þeirri tuttugustu. Komið hefur verið upp gríðarlega umfangsmikilli sýningu í Victoriu og Albert safninu í London, sem opnaði 9. maí og mun standa til l. september. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 626 orð

NÁÐARGÁFA UNDRABARNSINS Rússneski píanóleikarinn Évgení Kissin leikur í Háskólabíói í kvöld á Listahátíð. ÁRNI MATTHÍASSON

EINS og orðið undrabarn er orðið margþvælt og slitið komast menn ekki hjá því að grípa til þess þegar lýsa á Évgení Kissin, sem var farinn að leika á píanó tveggja ára gamall. Sex ára var hann settur í Gnessin- skólann fyrir börn með óvenjulega tónlistarhæfileika, það var árið 1977, hjá kennaranum Önnu Pavlovnu Kantor, og fyrir hana lék pilturinn ungi, Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 1682 orð

PÚKAGERIÐ ER YFIR OG ALLT UM KRING

Höfundur: Leifur Þórarinsson, sem byggir verkið á púkaleik Evrípídesar í þýðingu Helga Hálfdánarsonar. Leikstjóri: Inga Bjarnason. Tónlistarstjóri: Hörður Bragason. Dans- og sviðshreyfingar: Ólöf Ingólfsdóttir. Lýsing: Alfreð Sturla Böðvarsson. Búningar: Áslaug Leifsdóttir og hópurinn. Förðun: Hrafnhildur Hafberg. Söngstjórn: Jóhanna Þórhallsdóttir. Leikur, söngur og dans: Anna E. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 275 orð

Richard Harris í íslenskri kvikmynd

SÆTIR bananar ("SWEET Bananas") er heitið á nýrri íslenskri kvikmynd sem áætlað er að hefja tökur á nú í sumar. Myndin verður tekin upp á Íslandi og erugóðar líkur á að breski leikarinn Richard Harris, Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 125 orð

SAGA ÍSLENSKRAR TUNGU OG TEXTAFRÆÐI

ÍTILEFNI af tíu ára afmæli Stofnunar Sigurðar Nordals í ár mun hún efna til alþjóðlegrar ráðstefnu 14. og 15. september um sögu íslenskrar tungu og íslenska textafræði. Markmið ráðstefnunnar er að stofna til fræðilegrar umræðu um sögu íslenskrar tungu og hlutverk textafræði í sögulegum rannsóknum á tungumálinu. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 1083 orð

UM LÍÐANDI STUND

Oft hefur verið sagt um þann sem virðist skeytingarlaus um eigin hag og annarra að hann lifi bara fyrir líðandi stund. Slíkur maður er sagður vera ábyrgðarlaus bæði vegna þess að hann stendur ekki við þær skuldbindingar sem hann hefur skapað sér í fortíðinni og vegna þess að hann býr ekki í haginn fyrir framtíðina. Hann hangir bara laus í núinu og leikur sér. Meira
15. júní 1996 | Menningarblað/Lesbók | 383 orð

yrkja, format 95,7

yrkja, format 95,7 Meira

Veldu dagsetningu

Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Morgunblaðið - fyrsta forsíðan

Morgunblaðið hjá Landsbókasafni

Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.