Í DAG, laugardaginn 10. ágúst, standa skógræktarfélögin fyrir skógræktardegi þar sem þau bjóða fólk velkomið í skóglendi sín víðs vegar um landið. Skógar landsins hafa mikið aðdráttarafl fyrir allan almenning. Flestir vinsælustu áningarstaðir landsins eru skógi vaxnir og má þar nefna Skaftafell, Hallormsstað, Vaglaskóg, Ásbyrgi, Vatnsfjörð, Húsafell, Galtalæk, Þjórsárdal og Þórsmörk.
Meira