SEX listakonur í Textílfélaginu standa fyrir þrykksýningu í Listasafni ASÍ, Ásmundarsal, sem verður opnuð á morgun, laugardag, kl. 16. Þema sýningarinnar er "Blár". Listakonurnar eru Anna María Geirsdóttir, sem þrykkir á bómull; Björk Magnúsdóttir, þrykkir á flauel; Helga Pálína Brynjólfsdóttir, þrykkir á bómullarsatín; Hrafnhildur Sigurðardóttir, þrykkir myndverk á handgerðan pappír,
Meira