BRÆÐURNIR syngjandi frá Álftagerði í Skagafirði, Sigfús, Pétur, Gísli og Óskar Péturssynir, skemmta í Sjallanum á Akureyri í kvöld, skírdagskvöld, og verða þeir með söng, grín og gleði. Hugsanlega verða þeir bræður kveðnir í kútinn, því með þeim í för eru margslungnir skagfirskir hagyrðingar, bræðurnir frá Frostastöðum, Gísli Rúnar og tvíburarnir Kolbeinn og Þorleifur Konráðssynir.
Meira