Ég veit um lind, sem ljóðar svo ljúft að raunir sofna, um lyf, sem læknar sárin og lætur sviðann dofna. Um lítið blóm, sem brosir svo blítt, að allir gleðjast. Um rödd, sem vekur vonir, þá vinir daprir kveðjast. Ég þekki gleði góða, sem græðir allt með varma og sælu, er svíkur aldrei, en sefar alla harma.
Meira