LANDSSAMBAND íslenskra akstursfélaga, LÍA, fær kveðju frá Ásgeiri Yngvarssyni, áhugamanni um torfæru, í Morgunblaðinu á þjóðhátíðardaginn, 17. júní sl. Í grein sinni, sem hann nefnir Á að eyðileggja íslenska torfæru með reglugerðarbulli?, setur Ásgeir fram margar ásakanir og fullyrðingar, sem óhjákvæmilegt er að leiðrétta, því að heldur fer hann frjálslega með, svo ekki sé sterkar að orði kveðið.
Meira