Sigríður Einarsdóttir, föðursystir mín, sem ég minnist með þessum orðum, er látin 85 ára að aldri. Á Akranesi, þar sem hún lést, var ævi hennar öll frá vöggu til grafar, nánast á sama blettinum, í gamla Bakkahúsinu, sem faðir hennar hafði reist og þar sem hún bjó fyrstu búskaparárin og síðan í næsta húsi, sem hún og maður hennar, Hjalti Björnsson, byggðu.
Meira