Ótrúleg litaskipti, landslag, tré, breytileiki hvítgrás snævar á trjám, sem standa teinrétt. Skyndilega urðu þessir litir undrafagrir í mínum augum. Meðfram mjóum vegi stóðu lítil, rómantísk hús, eitt hvítt með vagnhjóli utan á. Þetta var vegur á óþekktan stað, snæviþakin leið með litlum, dásamlegum húsum, fullum af óvæntri hamingju.
Meira