SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN fær 43,2% atkvæða samkvæmt nýjustu skoðanakönnun Gallup. Mjög litlar breytingar hafa orðið á fylgi flokkanna frá síðustu könnun Gallup, sem birt var í fyrradag. Samkvæmt könnuninni fær Framsóknarflokkur 18% fylgi, Sjálfstæðisflokkur 43,2%, Frjálslyndi flokkurinn 3,4%, Samfylkingin 27,3%, Vinstrihreyfingin 7,9% og Húmanistar 0,2%.
Meira