Landið vort fagra með litskrúðug fjöllin, leiftrandi fossa og glóð undir ís, særinn blár girðir, og gnæfir hátt mjöllin, glitklæðin þín skóp þér hamingjudís. Fáninn vor blái, þú frelsis vors merki, frægð þína efli hver sonur þinn knár. Elski þig, verndi þig, ættstofn vor sterki. Auðnan þér fylgi um aldur og ár.
Meira