HANDFRJÁLS búnaður á farsíma dregur ekki úr örbylgjugeislun við höfuð notandans heldur þvert á móti þrefaldar geislunina samkvæmt niðurstöðum úr nýjum rannsóknum sem unnar voru á vegum bresku neytendasamtakanna.
Meira
BÚIST er við því að Frjálslyndir demókratar, stærsti flokkurinn í ríkisstjórn Japans, útnefni í dag eftirmann Keizo Obuchi í embætti forsætisráðherra landsins. Er þess vænst að núverandi framkvæmdastjóri flokksins, Yoshiro Mori, verði fyrir valinu.
Meira
Haraldur Sigurðsson, prófessor í jarðvísindum við Rhode Island-háskólann í Bandaríkjunum, skilaði nýlega af sér starfi sem yfirritstjóri Alfræðibókarinnar um eldfjöll, en bókin hefur fengið góða dóma vísindamanna. Ragnhildur Sverrisdóttir spjallaði við Harald, sem sendi einnig sjálfur frá sér bók á síðasta ári og er þegar farinn að huga að þeirri næstu.
Meira
ALÞÝÐUSAMBAND Íslands, ASÍ, lítur það alvarlegum augum að mikil hækkun á fastagjöldum fyrir símnotkun skuli ákveðin nú þegar allir aðilar leggja höfuðáherslu á að halda verðlagi í skefjum og ná niður verðbólgu.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Rakel Sveinsdóttur, auglýsingastjóra Íslenska útvarpsfélagsins: "Mánudaginn 3. apríl birtist í DV frétt undir yfirskriftinni Stöð 2 frystir Skjá einn.
Meira
NEMENDUR grunnskólans í Grímsey syntu áheitasunda á miðvikudaginn í síðustu viku og er þetta í sjötta skipti sem slíkt er gert. Börnin söfnuðu alls 16.000 krónum sem fer í nemendasjóð og notaður er þegar farin eru vorferðalög.
Meira
HJARTAÞRÆÐINGARTÆKI Landspítalans var óvirkt í tvo daga vegna tölvubilunar, en komst í lag um miðjan dag í gær. Að sögn Einars Jónmundssonar, yfirlæknis á röntgendeild, er ekki gott að segja hve margir sjúklingar urðu af bókuðum tímum í tækinu.
Meira
BÍTLARNIR þrír, George Harrison, Paul McCartney og Ringo Starr, hafa skrifað sögu sína og Bítlanna, sem kemur út á bók í haust. Þeir hafa unnið að bókinni í sex ár, skrifað hver í sínu horni en hitzt endrum og sinnum til að bera saman bækurnar.
Meira
STUÐNINGSMENN ættingja kúbverska flóttadrengsins Elians Gonzalez í Miami sjást fylkja hér liði til að færa fjölskyldunni veggmynd af björgun Elians og stríðandi öflum í máli drengsins, sem fannst á gúmmíslöngu undan strönd Flórída á síðasta ári.
Meira
ÓEINING virðist nú vera að aukast innan Kristilega demókrataflokksins í Þýzkalandi (CDU) um áform ríkisstjórnar jafnaðarmanna og græningja um að setja lög um sérstök dvalarleyfi fyrir allt að 20.000 erlenda tölvusérfræðinga.
Meira
SAMKEPPNISSTOFNUN hefur í bréfi til Landssímans gefið til kynna að svo kunni að fara að stofnunin beiti fyrirtækið sektum hækki það ekki álag á millilandasímtöl úr GSM-símum.
Meira
FIMMTUDAGINN 6. apríl kl. 11-14 verður hafið vikulegt félagsstarf í Sjálfboðamiðstöð Reykjavíkurdeildar RKÍ fyrir fólk eldra en 25 ára sem hefur áhuga á að vera með öðru fólki í leik og starfi.
Meira
FLUGFÉLAG Íslands hefur hafið áætlunarflug í eigin nafni frá Akureyri til Constable Point á Grænlandi en áður hefur félagið flogið á þessari leið fyrir Grænlandsflug, að sögn Friðriks Adolfssonar, deildarstjóra Flugfélags Íslands á Akureyri.
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 229 orð
| 1 mynd
FRAMTÍÐARSÝN í sjávarútvegi er yfirskrift ráðstefnu sem sjávarútvegsdeild Háskólans á Akureyri efnir til en hún hefst á morgun, fimmtudaginn 6. apríl, og lýkur á föstudag.
Meira
ÞÝZKA dagblaðið Frankfurter Allgemeine Zeitung (FAZ) greindi frá því í forsíðufrétt í gær, að gagnrýni innan stjórnkerfis Evrópusambandsins (ESB) á forseta framkvæmdastjórnar þess, Romano Prodi, færi sívaxandi; hann þyki ekki nógu atkvæðamikill til að...
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða sakfelldi í gær tvo karlmenn fyrir umferðarlagabrot og manndráp af gáleysi er árekstur varð milli tveggja bifreiða á einbreiðri brú yfir Vaðal í Önundarfirði 5. febrúar 1999.
Meira
VERÐI lagafrumvarp ríkisstjórnarinnar um foreldra- og fæðingarorlof afgreitt á yfirstandandi þingi lengist fæðingarorlof foreldra úr sex mánuðum í níu og tryggður verður jafn réttur karla og kvenna til fæðingarorlofs á tveimur árum en fæðingarorlof karla...
Meira
HAFNARGÖNGUHÓPURINN stendur fyrir gönguferð í kvöld frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin kl. 20. Farið verður með Austurhöfninni og Sæbrautinni inn á Rauðarárvík og áfram upp á Rauðarárholt að Sjómannaskólanum.
Meira
ÞESSI glóbrystingur, sem er flækingsfugl, hefur unað sér í húsagarði Sirrýjar og Braga við Brekkugötu í Vestmannaeyjum og þegið veitingar frá þeim í rúmar tvær...
Meira
5. apríl 2000
| Erlendar fréttir
| 260 orð
| 2 myndir
LÍTILL munur er á vinsældum George W. Bush, forsetaframbjóðanda repúblikana, og Al Gore, frambjóðanda demókrata, skv. nýlegri könnun ABC -sjónvarpsstöðvarinnar.
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 1659 orð
| 1 mynd
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið gekkst fyrir ráðstefnu undir yfirskriftinni Gæði og árangur í heilbrigðisþjónustu í Tónlistarhúsinu í Kópavogi sl. fimmtudag. Anna G. Ólafsdóttir var í þéttsetnum salnum og fræddist um framtíðarsýn í heilbrigðisþjónustu, gæðaáætlun ráðuneytisins og sitthvað fleira.
Meira
HELDUR hefur rofað til í atvinnumálum Hríseyinga undanfarnar vikur en þar hefur verið unnið hörðum höndum að því að finna ný atvinnutækifæri, eftir að Snæfell hætti starfsemi í eynni.
Meira
SVO gæti farið að innan tveggja ára yrðu hreindýr á beit á Reykjanesinu og í Barðastrandarsýslum, en á síðasta aðalfundi Skotveiðfélags Íslands var lögð fram tillaga þess efnis að kanna möguleika þess að flytja hreindýr á fleiri staði á landinu og voru...
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 421 orð
| 7 myndir
INGÞÓR Bjarnason norðurpólsfari kom til landsins í gær eftir mánaðarþátttöku í norðurpólsleiðangrinum, sem enn er haldið áfram af Haraldi Erni Ólafssyni.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær vinnuáætlun verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið, þar sem fjallað er um það hvernig greiða megi fyrir rafrænum viðskiptum og rafrænni stjórnsýslu og er meðal annars fyrirhuguð tilraun...
Meira
ÍSLENSK málstöð, sem rekin er af Íslenskri málnefnd, verður sjálfstæð stofnun, ef frumvarp Björns Bjarnasonar menntamálaráðherra um breytingu á lögum um Íslenska málnefnd nær fram að ganga.
Meira
Þrír ráðherrar kynntu í gær frumvarp til laga um foreldra- og fæðingarorlof sem þeir segja mikla réttindabót. Tekið verður upp eitt kerfi fyrir almennan vinnumarkað og hinn opinbera og sveigjanleiki verður mikill í kerfinu. Stefnt er að því að afgreiða frumvarpið á yfirstandandi þingi með gildistöku um næstu áramót. Jóhannes Tómasson hlýddi á mál ráðherranna.
Meira
HARKALEGA er nú um það deilt í Þýzkalandi hvort heimilt skuli að nota upplýsingar úr hlerunarskýrslum austur-þýzku leyniþjónustunnar Stasi, en í síðustu viku var upplýst að Stasi hefði þá þegar fyrir um 20 árum vitað um vafasöm fjármál Kristilega...
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 442 orð
| 1 mynd
Ingþór Bjarnason, annar norðurpólsfaranna, kom til landsins í gærmorgun, tæpri viku eftir að hann var sóttur út á ísinn norðan við Kanada. Haraldi Erni Ólafssyni, félaga hans, sækist ferðin vel en hann gekk tæpa 14 kílómetra í gær.
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 396 orð
| 1 mynd
STÓR hópur íslenskra unglinga úr félagsmiðstöðvum víðsvegar að af landinu kemur að átaki gegn áfengisneyslu unglinga, sem hafið er á vegum Samfés - samtaka félagsmiðstöðva á Íslandi og áætlunarinnar Ísland án eiturlyfja.
Meira
Nafn fermingarbarns féll niður Í fermingarlistum blaðsins um síðustu helgi féll niður eitt nafn fermingarbarns sem fermdist í Háteigskirkju. Nafn fermingarbarnsins er Einar Njálsson, Drápuhlíð...
Meira
LÍNA.NET, fjarskiptafyrirtæki í eigu Orkuveitu Reykjavíkur, hefur boðið Landssíma Íslands ljósleiðaratengingu á höfuðborgarsvæðinu. Eiríkur Bragason, framkvæmdastjóri Línu.
Meira
MÁLSTOFA verður haldin í Miðstöð nýbúa við Skeljanes fimmtudaginn 6. apríl kl. 19.30 og er umfjöllunarefnið að þessu sinni flóttamannavandinn og móttaka flóttafólks á Íslandi.
Meira
Á UNDANFÖRNUM árum hefur þróunin í nútímaþjóðfélagi verið sú að sífellt fleiri unglingar hætta í íþróttum. Ýmsar rannsóknir benda til að þeir unglingar sem stunda íþróttir séu í minni hættu á að lenda í vandræðum í sambandi við neyslu vímuefna.
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 347 orð
| 1 mynd
HÓPUR tíu kvenna hefur stofnað fyrirtækið Bílaboð, sem mun starfrækja markaðstorg í Smáranum í Kópavogi. Þar munu bifreiðaeigendur geta selt bifreiðir sínar sjálfir, án milliliða, og komist þannig hjá því að greiða söluþóknun.
Meira
RÉTTARHÖLD fara nú fram í fyrsta morðmálinu í Bretlandi, sem sprottið er af "umferðaræði". Sunnudag einn í maí 1996 voru Danielle Cable og Stephen Cameron á ferð og var Cable undir stýri.
Meira
Kirkjubæjarklaustri- Mun Katla láta á sér kræla? Þessari spurningu munu vafalaust margir ráðstefnugestir á Kirkjubæjarklaustri hafa velt fyrir sér á um síðustu helgi.
Meira
TALIÐ er að úrskurður alríkisdómara í Bandaríkjunum á mánudag um að hugbúnaðarfyrirtækið Microsoft hafi brotið svonefnd Sherman-lög um hringamyndun og beitt ólöglegum aðferðum til að viðhalda einokunaraðstöðu geti dregið úr yfirburðum fyrirtækisins.
Meira
FJÁRMÁLARÁÐHERRA, Geir H. Haarde, mælti í gær fyrir frumvarpi til laga um breytingu á lögum um tekju- og eignaskatt. Í frumvarpinu eru lagðar til breytingar á skattleysismörkum og persónuafslætti manna í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 10.
Meira
THE Wall Street Journal segir að kapphlaup lyfjafyrirtækja um að þróa ný lyf við einum af skæðustu sjúkdómum Vesturlanda hafi magnast eftir að svissneska lyfjafyrirtækinu Hoffmann-La Roche og Íslenskri erfðagreiningu tókst að staðsetja erfðavísi á...
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 790 orð
| 1 mynd
Hrafnhildur Schram fæddist í Reykjavík 5. september 1941. Hún lauk stúdentsprófi í Lundi í Svíþjóð og fór síðan í háskólann þar og lauk fíl.kand.-prófi í listasögu og þjóðháttafræði.
Meira
Á MEÐAN njósnarar hennar hátignar leita dyrum og dyngjum að ferðatölvu, sem einum þeirra varð á að skilja eftir í leigubíl á heimleið af öldurhúsi, hefur Ráðgátunni, dulmálsvél nazista, sem Bretar komust yfir, verið stolið.
Meira
SKIPTINEMASAMTÖKIN AFS á Íslandi hafa stofnað deild á Stór-Reykjavíkursvæðinu. Stofnfundur var haldinn hinn 30. mars síðastliðinn. Deildin verður starfrækt af sjálfboðaliðum.
Meira
5. apríl 2000
| Höfuðborgarsvæðið
| 586 orð
| 3 myndir
LAUGARNESIÐ á sér langa sögu, en þar bjó Hallgerður langbrók um tíma og talið er að hún sé þar grafin, þá hafði biskup aðsetur á nesinu um tíma á síðustu öld.
Meira
FERÐAFÉLAG Akureyrar efnir til skíðagönguferðar á laugardag, 8. apríl, og verður gengið um í Mývatnssveit. Fararstjóri er Frímann Guðmundsson. Brottför í ferðina er kl. 9 um morguninn frá Strandgötu 23, húsnæði félagsins.
Meira
HRAUNKVIKA hefur verið að safnast fyrir í japanska eldfjallinu Usu og búast jarðfræðingar jafnvel við miklu sprengigosi á næstu dögum. 22 ár eru liðin frá síðasta gosi í Usu en til þessa hefur gosið nú aðallega verið öskugos. Rúmlega 13.
Meira
ÚTHLUTAÐ hefur verið styrkjum þessa árs úr sjóðnum Þjóðhátíðargjöf Norðmanna. Norska Stórþingið samþykkti í tilefni ellefu alda afmælis Íslandsbyggðar 1974 að færa Íslendingum eina milljón norskra króna að gjöf í ferðasjóð.
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 1259 orð
| 1 mynd
Þrátt fyrir að umsvif aukist stöðugt í ferðaþjónustunni eru flestar greinar hennar reknar með halla, meðal annars vegna óhagstæðrar gengisþróunar. Fram kom á aðalfundi Samtaka ferðaþjónustunnar í gær að forystumenn hennar telja að hagsmunum greinarinnar kunni að verða betur borgið með beinni tengingu íslensku krónunnar við evruna.
Meira
TENGIVAGN valt við Reykjanesbraut á þriðja tímanum í gær. Að sögn lögreglu er ekki nákvæmlega vitað um tildrög óhappsins, en það varð þegar flutningavagninn beygði inn á Grindavíkurveg.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær vinnuáætlun verkefnisstjórnar um upplýsingasamfélagið þar sem fjallað er um það hvernig greiða megi fyrir rafrænum viðskiptum og rafrænni stjórnsýslu og er meðal annars fyrirhuguð tilraun á...
Meira
5. apríl 2000
| Höfuðborgarsvæðið
| 669 orð
| 1 mynd
HÁVÆRAR kröfur komu fram um tvöföldun Vesturlandsvegar milli Víkurvegar og Mosfellsbæjar á borgarafundi sem Sjálfstæðisfélag Mosfellsbæjar stóð fyrir í Hlégarði í Mosfellsbæ í fyrrakvöld.
Meira
VEISLUÞJÓNUSTAN Veizlu-list hefur opnað í Mosfellsbæ að Háholti 24. Eigendur Veizlu-listar eru Þröstur Magnússon og Birgir Ásgeirsson og eru þeir báðir lærðir matreiðslumenn.
Meira
VONAST er til að verð á þjónustu bílaleiga lækki í kjölfar lækkunar á aðflutningsgjöldum bílaleigubíla. Fjármálaráðherra hefur lagt til í frumvarpi á Alþingi að vörugjöld á bílaleigubílum lækki til samræmis við vörugjöld á leigubifreiðum.
Meira
FÉLAGSDEILD Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Fjarðabyggð var stofnuð sunnudaginn 2. apríl. Er það liður í að koma upp félagsdeildum í kjördæminu en áður er til komin félagsdeild á Hornafirði og í undirbúningi eru deildir á Vopnafirði og Héraði.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra og Ástríður Thorarensen, eiginkona hans, verða á morgun viðstödd upphaf landafundaafmælis í Ottawa í Kanada. Davíð mun eiga fund með Jean Chrétien, forsætisráðherra Kanada, um samskipti landanna.
Meira
ÓLAFUR Örn Haraldsson, þingmaður Framsóknarflokksins, hefur lagt fram tvær tillögur til þingsályktunar um að undirbúin verði stofnun tvenns konar safna, annars vegar tónminjasafns og hins vegar vetraríþróttasafns.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík óskar eftir vitnum að tveimur árekstrum sem urðu nýlega. Á tímabilinu frá kl. 18 2. apríl til kl. 18 3. apríl var ekið á bifreiðina IO-921, sem er rauður Mazda fólksbíll, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við BSÍ við Vatnsmýrarveg.
Meira
VERZLUNARMANNAFÉLAG Reykjavíkur, Íslenska útvarpsfélagið og Sýn hafa gengið frá kjarasamningi sem gildir frá 1. mars sl. til 1. mars 2003. Samkvæmt samningnum hækka laun um 3,9% 1. mars sl.
Meira
5. apríl 2000
| Innlendar fréttir
| 170 orð
| 1 mynd
ÞINGFUNDUR hefst í Alþingi í dag kl. 13.30. Eftirfarandi mál verða þar á dagskrá: 1. Erfðafjárskattur (yfirstjórn) mál, lagafrumvarp. Frh. 3. umræðu. (Atkvæðagreiðsla). 2. Fjármálaeftirlit (breyting ýmissa laga), mál, lagafrumvarp. Frh. 3. umræðu.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur úrskurðaði þrjá menn um tvítugt í gæsluvarðhald til 10. apríl í gær, vegna gruns um fjölda innbrota, aðallega í bifreiðir undanfarnar vikur.
Meira
ÖSSUR Skarphéðinsson og Tryggvi Harðarsson, formannsefni Samfylkingarinnar, verða á opnum framboðsfundi í Ólafshúsi miðvikudaginn 5. apríl, kl 21.
Meira
SAMEINING Máls og menningar og Vöku-Helgafells hefur óneitanlega táknræna merkingu nú í lok aldar sem einkennst hefur af pólitískri skiptingu manna í tvær gerólíkar fylkingar, ekki síst í ljósi hins sameiginlega uppruna þeirra í forlaginu Heimskringlu...
Meira
GUÐMUNDUR Árni Stefánsson alþingismaður skrifar um væntingar sínar vegna þess að senn fæðist flokkur undir nafninu Samfylkingin. Hann telur flokkinn jafnt nýjan sem gamlan, þ.e.a.s. hann standi á gömlum merg.
Meira
Námskynning 2000 Sunnudaginn 9. apríl gefst framhaldsskólanemum og öðrum þeim sem hyggja á háskólanám næsta vetur gott tækifæri til að kynna sér möguleika á háskólanámi hérlendis, en þá standa íslenskir skólar á háskólastigi fyrir námskynningu í Reykjavík með opnu húsi í Háskóla Íslands og Tónlistarskólanum.
Meira
South of the Border, West of the Sun, skáldsaga eftir Haruki Murakami. Philip Gabriel þýddi. Alfred A. Knopf gefur út í New York 1999. 213 síður innbundin. Kostaði um 1.200 kr. í Amazon.
Meira
ARNDÍS Fannberg mezzó-sópran og Lára S. Rafnsdóttir píanóleikari halda einsöngstónleika í Tónleikasal Söngskólans, Smára, Veghúsastíg 7, Reykjavík, annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.00.
Meira
Leikstjóri: Wes Craven. Aðalhlutverk: Courtney Cox, Neve Campbell, David Arquette, Parker Poseym, Matt Keeslar og Emily Mortimer. Framleiðandi: Cathy Konrad. 2000.
Meira
Höfundur og leikstjóri: Kristján Kristjánsson. Tónlist: Orri Harðarson. Leikendur: Garðar Geir Sigurgeirsson, Gunnar Sturla Hervarsson og Hermann Guðmundsson. Laugardagurinn 1. apríl.
Meira
ÞAÐ VAR Grindavíkurmærin Sigríður Anna Ólafsdóttir, 18 ára, sem var valin fegurðardrottning Suðurnesja í Bláa lóninu nú á dögunum. Það er því óhætt að segja að fegurðin búi í Grindavík því stúlkur þaðan hafa verið sigursælar síðustu árin.
Meira
HÁSKÓLI Íslands er stærsta kennslu-, rannsóknar- og vísindastofnun landsins og fjölmennasti vinnustaður hérlendis með yfir 9.000 manns í vinnu; nemendur, kennara og aðra starfsmenn. Um 6.
Meira
LEIKKONAN Kelly Preston ól manni sínum stórstirninu John Travolta stúlkubarn í gær. Litla prinsessan, sem þegar hefur verið nefnd Ella Bleu, er annað barn þeirra hjóna en fyrir eiga þau soninn Jett sem er átta ára.
Meira
ENN OG aftur heldur Erin Brockovich toppsæti bandaríska kvikmyndalistans og nær þar með að slá við teiknimyndinni Leiðin til El Dorado, sem spáð var mun betra gengi.
Meira
Miðvikudagur 5. apríl. Ráðhús Reykjavíkur. Kl. 17. Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið. Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið verður sett í Tjarnarsal í Ráðhúsi Reykjavíkur miðvikudaginn 5. apríl kl. 17:00 og stendur til 13. apríl.
Meira
HÁSKÓLI Íslands býður upp á fjölmargar námsleiðir sem krefjast mismunandi undirbúnings og hæfni. Sama gildir um aðra skóla á háskólastigi og listaskóla. Samkvæmt könnun sem Guðmundur B. Arnkelsson og Friðrik H.
Meira
HÉRASTUBBUR bakari, bangsafjölskyldan og Mikki refur eru flestum Íslendingum að góðu kunn og hefur leikritið eftir Thorbjørn Egner um fjörlegu dýrin í Hálsaskógi margoft verið sett upp á Íslandi börnum til mikillar gleði.
Meira
FORSVARSMENN JPV-forlags, Iðunnar og Bjarts segja fyrirhugaða sameiningu Máls & menningar og Vöku-Helgafells engu breyta fyrir sína starfsemi. Þá eru þeir á einu máli um að margt sé enn óljóst varðandi áform fyrirtækjanna. Mörgum spurningum sé ósvarað.
Meira
MEGINHLUTVERK Kennaraháskóla Íslands er að mennta þá einstaklinga sem leggja munu grunninn að menntun þjóðarinnar á nýrri öld, að sögn Elínar Thorarensen, náms- og starfsráðgjafa KHÍ.
Meira
ÞAÐ KALLAST entomophagy að éta skordýr og er tíðkað um allan heim. Víða snæðir fólk skordýr af trúarlegum eða menningarlegum ástæðum, en víðast þó til að halda í sér lífi.
Meira
HRAFNHILDUR Scram listfræðingur verður með rabb á morgun, fimmtudag, kl. 12, í stofu 304 í Árnagarði, sem nefnist Fyrstu íslensku myndlistarkonurnar og er á vegum Rannsóknarstofu í kvennafræðum. Í fréttatilkynningu segir m.a. "Í lok 19.
Meira
fyrir börnum sínum um fremd, kosti og annmarka allra stétta, og um þeirra almennustu gjöld og tekjur eftir Magnús Stephensen. Heimildasafn Sagnfræðistofnunar 1. Örn Hrafnkelsson bjó til prentunar. Ritstjóri Anna Agnarsdóttir. Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands. Háskólaútgáfan. Reykjavík 1999. 117 bls.
Meira
Flutt voru verk eftir Emil Thoroddsen, Jón Leifs, Össur Geirsson, Pál Ísólfsson, John Williams, Carl Maria von Weber, Gordon Jacob, Saint-Saëns, Holst og Chick Corea. Frumflutt var verkið Tvö hugtök eftir Tryggva M. Baldvinsson.
Meira
Í KVÖLD leikur tónlistarmaðurinn David Pajo ásamt hljómsveit sinni í Þjóðleikhúskjallaranum. Það var Hljómalind sem sá um innflutninginn og eru tónleikarnir þeir fyrstu í röðinni "Lágmenningarborgin snýr aftur".
Meira
SKJALDBÖKUR eru tignarlegar skepnur. Þær hreyfa sig þó ekki hratt, enda hafa þær nægan tíma til að spóka sig um þar sem margar þeirra verða hátt í tvöhundruð ára gamlar.
Meira
LEIKFÉLAG Akureyrar verður með tvær sýningar í Iðnó á leikritinu Skækjan Rósa eftir José Luis Martín Descalzo (Skækjurnar verða á undan yður inní Guðsríki) Matt. 21-31. Fyrri sýningin verður fimmtudaginn 6. og og önnur föstudaginn 7. apríl.
Meira
VORÖNN söng- og leiklistarskólans Sönglistar lýkur þessa dagana og er af því tilefni haldin vegleg söngskemmtun nemenda. Nemendur skólans eru um 100 og því varð að skipta skemmtuninni niður á þrjú kvöld, þ.e. mánudaginn 3. apríl, þriðjudaginn 4.
Meira
BREIÐFIRÐINGAKÓRINN í Reykjavík heldur vortónleika sína í Stykkishólmskirkju laugardaginn 8. apríl kl. 16. Á efnisskrá kórsins eru m.a. lög eftir Björgvin Þ. Valdimarsson, Lárus Jóhannesson, Huldu Óskarsdóttur, Þórarin Guðmundsson, Oddgeir Kristjánsson...
Meira
75 ÁRA afmæli. Í dag, miðvikudaginn 5. apríl, verður sjötíu og fimm ára Jón Hannesson, húsasmíðameistari, Haukshólum 3, Reykjavík. Eiginkona hans er Elísa G. Jónsdóttir. Jón er að heiman í...
Meira
75 ÁRA afmæli. Í dag, miðvikudaginn 5. apríl, verður sjötíu og fimm ára Þorsteinn R. Helgason, fyrrverandi skrifstofustjóri, Kaplaskjólsvegi 91, Reykjavík. Eiginkona hans er Annie S. Helgason . Þau eru fjarverandi í...
Meira
Þrotlaust starf og þolinmæði skógræktar- og garðyrkjumanna undanfarna áratugi, segir Sveinn Aðalsteinsson, hefur sannfært okkur um að hér geta vaxið tré þannig að þau líkist trjám.
Meira
Allt það klám sem í dag flæðir hér í þessu siðmenntaða samfélagi með ótrúlega lúmskum hætti, segir Selma Þorvaldsóttir, fæ ég ekki betur séð en að sé siðleysi.
Meira
FÖSTUDAGINN 24. mars sl. ritar Hlöðver Kristjánsson, fyrrverandi vinnufélagi minn hjá ÍSAL, grein um atlögu að fyrirtækinu og rógburð, ég hef álitið hingað til að sannleikur sé ekki rógburður.
Meira
Fremur en að eyða allri orku í gæslu sérhagsmuna, skrifar Auður H. Ingólfsdóttir, ættu Íslendingar að leggja sitt af mörkum í þá hugmyndavinnu sem nú fer fram, t.d. á útfærslu á verslun með losunarkvóta milli iðnríkja.
Meira
Þetta er sú ímynd sem íslenzk æska "hlýtur" að tileinka sér um þessi árþúsundamót, segir Meyvant Þórólfsson: grimm, hrakin, nábleik að hætti eiturlyfjafíkla, flúruð í bak og fyrir, rifin og tætt og með hringakippur í eyrnasneplum.
Meira
Já, jafnvel Byggðastofnun hafnar ekki tilboði um tonn á móti tonni í viðskiptum, segir Þorsteinn Már Aðalsteinsson, og spyr í fyrri grein sinni hvert íslensk þjóð sé eiginlega að fara?
Meira
ÉG las í DV mánudaginn 3. apríl sl. að Flóabandalagssamningur hefði verið samþykktur með 26 atkvæða mun og vinnuveitendur væru mjög ánægðir. En það sýnir óánægju fólks hversu naumlega þetta var samþykkt. Enn skal herða sultarólina frægu.
Meira
NOKKUÐ er umliðið frá því að dyggur lesandi Morgunblaðsins fór þess á leit við blaðið að það skýrði fyrir honum hver væri munurinn á ensku orðunum "college" og "university" sem gjarnan eru bæði þýdd með íslenska nafnorðinu háskóli.
Meira
Jæja, þar kom að því að mín auma sál gladdist og það ekki að ástæðulausu. Tilefnið var lestur Morgunblaðsins föstudaginn 31. mars. Og hvað skyldi maður hafa verið að lesa, nema þessa yndislegu auglýsingu Símans, Lækkaðu símareikninginn .
Meira
ALLTAF skulu Frjálslyndisfasistarnir verða mér endalaus uppspretta ánægju og yndisauka og kann ég þeim kærar þakkir fyrir síðasta gullkorn þeirra, en heiðurinn af því á Ragnheiður Hallsdóttir, húsmóðir í Vesturbænum. Í bréfi sínu til Velvakanda þann 17.
Meira
Alma Elísabet Hansen fæddist á Siglufirði 20. júní 1935. Hún lést á kvennadeild Landspítalans 22. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram í kyrrþey.
MeiraKaupa minningabók
Hulda Hrefna Jóhannesdóttir fæddist í Hafnarfirði 12. ágúst 1923. Hún lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur í Fossvogi 26. mars síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnarfjarðarkirkju 4. apríl.
MeiraKaupa minningabók
5. apríl 2000
| Minningargreinar
| 1081 orð
| 1 mynd
Katrín Þorláksdóttir fæddist 9. ágúst 1936. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 26. mars sí ðastliðinn. Foreldrar hennar vour María Jakobsdóttir, f. 15. ágúst 1900 og Þorlákur Guðlaugsson, f. 1. febrúar 1903. Bæði látin.
MeiraKaupa minningabók
Magnús Ingimarsson, hljómlistarmaður og prentsmiður, fæddist á Akureyri 1. maí 1933. Hann lést á heimili sínu 21. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Langholtskirkju 31. mars.
MeiraKaupa minningabók
Ragnhildur Eiðsdóttir fæddist á Búðum á Fáskrúðsfirði 15. mars 1930 . H ún lést á líknardeild Landspítalans laugardaginn 1. apríl síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Eiður Albertsson skólastjóri (f. 19.10. 1890, d. 19.8.
MeiraKaupa minningabók
Steinar Vilhjálmur Jóhannsson fæddist í Reykjavík 6. febrúar 1967. Hann lést í Reykjavík 27. mars síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 31. mars.
MeiraKaupa minningabók
LANDSTEINAR International hafa keypt allt hlutafé í danska hugbúnaðarfyrirtækinu JMA A/S. Jafnframt hefur verið ákveðið að sameina starfsemi JMA og Landsteina DK í Árósum.
Meira
NORSKA pappírsvinnslufyrirtækið Norske Skog hefur yfirtekið hið nýsjálenska Fletcher Challenge Paper og er þar með orðið næststærsti pappírsframleiðandi heims með 13% hlutdeild af heimsmarkaði og um fimm milljóna tonna framleiðslu á ári, að því er fram...
Meira
PHARMACO hf. á nú 19,86% hlutafjár í Delta hf. eftir að hafa keypt 19,56% af Sigurði G. Jónssyni, stjórnarformanni síðarnefnda fyrirtækisins. Tilkynningar þessa efnis bárust Verðbréfaþingi Íslands í gær og fyrradag. Pharmaco átti fyrir 0,3% í Delta.
Meira
STÁLTAK hf. skilaði 198 milljóna króna tapi á árinu 1999 en árið áður nam hagnaður félagsins 31 milljón króna. Tap af reglulegri starfsemi var tæpar 170 milljónir króna nú en rekstrurinn skilaði rúmum 36 milljóna króna hagnaði árið 1998.
Meira
BANDARÍSKI tölvurisinn Cisco Systems, sem er stærsta fyrirtæki heims að markaðsverðmæti, hefur tilkynnt á heimsvísu um samstarf fyrirtækisins og söluaðila þess á Íslandi, Tæknivals hf., við Íslenska miðlun ehf.
Meira
UNDIRRITAÐUR var í gær samrunasamningur á milli Korta hf., Rafrænnar miðlunar hf. og Smartkorta ehf., og verður sameinaða fyrirtækið, sem hlotið hefur nafnið Median hf., stærsta fyrirtæki sinnar tegundar hér á landi.
Meira
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri.
Meira
Bridsfélagið Muninn, Sandgerði Miðvikudaginn 29. mars lauk Landsbankatvímenningi félagsins og urðu úrslit efstu para þessi: N-S Vignir Sigursveinss. - Guðjón S.
Meira
ÞAÐ er sjaldgæft að fá upp dæmigerð "bókarspil" í keppni, en eitt slíkt kom upp í fjórðu umferð Íslandsmótsins um helgina: Suður gefur; allir á hættu (áttum snúið).
Meira
UM miðjan vetur '96 fór að kvisast um Víðidalinn að í fórum Magnúsar Arngrímssonar væri hryssa á fimmta vetur sem lítandi væri á. Hún þætti gefa góð fyrirheit um háan fótburð og kannski eitthvað meira.
Meira
FREKAR fámennt var í röðum keppnismanna á árshátíðarmóti Mána á Suðurnesjum sem haldið var á laugardag og kenndu heimamenn um bæði flensu og fermingarundirbúningi. En hestakosturinn var góður og ekki spillti bjart og fagurt veðrið fyrir þótt kalt væri.
Meira
Á MORGUN, fimmtudaginn 6. apríl, kl. 20 verður opinn fundur í Ytri-Njarðvíkurkirkju um fíkniefnavandann og þær afleiðingar sem neysla fíkiefna kann að valda.
Meira
Landssamband hestamannafélaga leitar að landsliðseinvaldi fyrir Norðurlandamótið sem haldið verður í Seljord í Noregi í ágúst. Fyrrverandi einvaldur, Sigurður Sæmundsson, gefur ekki kost á sér til starfans.
Meira
Í dag er miðvikudagur 5. apríl, 96. dagur ársins 2000. Orð dagsins: Takið því hver annan að yður, eins og Kristur tók yður að sér, Guði til dýrðar.
Meira
MEÐFYLGJANDI staða kom upp á milli stórmeistarans Jóhanns Hjartarsonar, hvítt, (2640) og Magnúsar Arnar Úlfarssonar (2335) í Íslandsflugsdeildinni dagana 24.-25. mars. 31.Dxd5+! og svartur gafst upp þar sem eftir 31...Dxd5 verður hann mát með...
Meira
"Jöfnuður í samfélaginu er upphaf allra þrætna og árekstra sem komið hafa upp. Ef hægt væri að uppræta þessa hugmynd um að allir eigi jafngott skilið og enginn eigi að þurfa að líða skort eða fara á mis við sjálfsögð tækifæri í lífinu þá væri mikið unnið."
Meira
ANNAR markahæsti leikmaður bandaríska landsliðsins frá upphafi og ein helsta stjarna þess, Michelle Akers, verður ekki með í leikjunum gegn Íslandi eftir því sem næst verður komist. Akers fór úr axlarliði á dögunum og hefur ekki náð sér á strik á ný.
Meira
ALEXANDER Ermolinskij , leikmaður Grindavíkur , lék ekki margar mínútur með félagi sínu gegn Haukum í gærkvöld en honum tókst engu að síður að skora 10 stig, þar af tvær þriggja stiga körfur.
Meira
STOKE City hefur framlengt lánssamning sinn við Leicester vegna Arnars Gunnlaugssonar og hann verður því hjá félaginu út tímabilið. Arnar hefur verið hjá Stoke síðan 3. mars en lánssamningar eru aðeins gerðir til eins mánaðar í senn.
Meira
ÁSTHILDUR Helgadóttir, leikmaður KR, verður fyrirliði íslenska landsliðsins í leikjunum tveimur við Bandaríkin og tekur Ásthildur þar við fyrirliðastöðunni af Auði Skúladóttur, Stjörnunni, sem ekki var valin til leikjanna.
Meira
EINAR Einarsson, þjálfari Grindavíkur, sagði að liðið hefði átt í miklum erfiðleikum í leik sínum á heimavelli Hauka en hann kvaðst þess viss fyrir leikinn að botninum væri náð í leik þess.
Meira
LILLESTRÖM hefur ekki efni á að fá til sín efnilegustu knattspyrnumenn Noregs og leitar þess í stað á íslenska markaðinn með góðum árangri. Þetta segir þjálfari félagsins, Arne Erlendsen, í samtali við Aftenposten .
Meira
KRISTJÁN Helgason mætir Mark J. Williams í 32 manna úrslitum skoska meistaramótsins í snóker í Aberdeen í kvöld eins og búist var við. Williams, efsti maður heimslistans, vann auðveldan sigur á John Lardner í gær, 5:1.
Meira
LOGI Ólafsson tilkynnti í gærkvöldi hvaða ellefu leikmenn hefja leikinn við heimsmeistara Bandaríkjanna á Davidson College-leikvellinum í Charlotte í dag.
Meira
SÓLVEIG Steinþórsdóttir, sjúkraþjálfari karlaliðs Fram í handknattleik, er einnig sjúkraþjálfari íslenska kvennaliðsins í knattspyrnu, sem í dag og á laugardaginn leikur við Bandaríkin landsleiki í Charlotte.
Meira
"ÉG er alveg himinlifandi. Þetta var frábær leikur hjá okkur. Keit Vassel átti afbragðsleik og dreif hina með sér til sigurs," sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR, eftir að lið hans hafði slegið Njarðvíkinga frekar óvænt út úr úrslitakeppninni í hreinum úrslitaleik í Ljónagryfjunni í Njarðvík í gærkvöld. Lokatölur leiksins urðu 55:78 en í hálfleik var staðan 24:37.
Meira
Öryggismál sjómanna eru hér enn til umræðu og er nú fjallað um ábyrgð sjómanna sjálfra og hvernig lögum og reglugerðum er framfylgt. Í þessari grein Svavars Guðmundssonar sjávarútvegsfræðings er farið ofan í þessi mál, meðal annars ábyrgð þeirra sem hafa eftirlit með öryggismálunum.
Meira
Í námsferð Stafnbúa, félags sjávarútvegsfræðinema, til Færeyja í febrúar sem leið voru tvö fiskeldisfyrirtæki heimsótt. Annars vegar seiðaeldisstöðin Fiskaaling í Hvalvik og hins vegar Vestlaks í Vestmanna. Færeyingar hófu fiskeldi af miklum krafti á níunda áratugnum og líkt og hér á Íslandi varð greinin fyrir miklum áföllum þegar hrina gjaldþrota reið yfir.
Meira
AÐALSTEINN Ingólfsson , framkvæmdastjóri Skinneyjar-Þinganess hf . á Hornafirði , var kjörinn í stjórn SÍF hf . á aðalfundi félagsins fyrir skömmu. Hann tók þar sæti í stað Halldórs Árnasonar , fyrrverandi framkvæmdastjóra Borgeyjar hf.
Meira
SAMKOMULAG hefur náðst vegna fyrirhugaðs skaðabótamáls á hendur bandaríska sjávarútvegsfyrirtækinu Atlantic Coast Fisheries en það er að stærstum hluta í eigu Úthafssjávarfangs ehf. Að sögn Björgólfs Jóhannssonar, stjórnarformanns Atlantic Coast Fisheries, er samkomulagið mikill léttir, enda líkur á því að á félagið félli hluti bóta, enda þótt félagið væri tryggt fyrir slíkum áföllum
Meira
SAMKOMULAG hefur náðst vegna fyrirhugaðs skaðabótamáls á hendur bandaríska sjávarútvegsfyrirtækinu Atlantic Coast Fisheries en það er að stærstum hluta í eigu Úthafssjávarfangs ehf.
Meira
LÍKLEGT er, að norskur eldislax sé alinn á erfðabreyttu fóðri en ekkert eftirlit er með því í Noregi. Fóðrið Ecilife, sem fyrirtækið Biomar framleiðir, er raunar merkt þannig, að stundum geti meira en 2% einstakra hráefna verið erfðabreytt.
Meira
ESA, Eftirlitsstofnun Efta, hefur gert verulegar athugasemdir við eftirlit Norðmanna með innflutningi á fiski til Noregs. Á það einkum við um kaup þeirra á rússneskum fiski.
Meira
RÍKISSTYRKIR vegna fiskverndar eru lítill hluti heildar opinberra styrkja í sjávarútvegi. Þetta er niðurstaða skýrslu, sem Nýsjálendingar lögðu fyrir Alþjóða viðskiptatofnunina WTO nýlega.
Meira
FRYSTINGIN skilar mestum verðmætum af einstökum flokkum sjávarafurða, enda þar um mesta fjölbreytni að ræða. Hlutdeild frystingarinnar er um 55% enda um vaxandi vinnsluvirði afurðanna að ræða.
Meira
FYRIRHUGUÐ gjaldtaka vegna veiða úr norsk-íslenska síldarstofninum mun að öllum líkindum verða innan við 30 milljónir króna, samþykki Alþingi frumvarp sjávarútvegsráðherra um breytingar á lögum um Þróunarsjóð sjávarútvegsins. Framkvæmdastjóri LÍÚ segir að ekki eigi að innheimta þróunarsjóðsgjald vegna veiðanna, enda sé arðsemi veiðanna ekki mikil.
Meira
FYRIRTÆKIÐ Kasho í Japan hefur hug á að kaupa 200 tonn af þorskhrognum hér á landi og hefur Yutaka Mitsubori verið hér á landi að undanförnu á vegum fyrirtækisins til að skoða þorsk- og loðnu-hrogn.
Meira
"VIÐ gerðum ágætan túr og fengum samanlagt 120 tonn á fimm og hálfa lögn, nánast hreinan steinbít," sagði Sæmundur Halldórsson, skipstjóri á línuskipinu Skarfi GK, eftir vel heppnaða veiðiferð suður af Látrabjargi. Alls var landað um 70 tonnum úr skipinu í Grindavík á miðvikudag, þar af voru um 50 tonn af steinbít. Áður landaði Skarfur GK 50 tonnum á Flateyri og var aflinn því um 120 tonn á einni viku. Fimm og hálf lögn samsvarar um 400 bjóðum og aflinn því um 300 kíló á bjóð.
Meira
GÓÐ kolmunnaveiði hefur verið á miðunum vestur af Írlandi að undanförnu og hefur íslensku skipunum fjölgað jafnt og þétt á svæðinu eftir að loðnuvertíðinni lauk.
Meira
Hafnarstjórn Akraness hefur ákveðið að láta byggja nýjan og öflugri lóðsbát í Hollandi sem verður afhentur í júlímánuði n.k. Samningar um smíðina voru undirritaðir nú á dögunum.
Meira
Útflutningsráð Íslands hyggst skipuleggja markvissar markaðsaðgerðir í Malasíu í samvinnu við hóp íslenskra fyrirtækja þar sem tæki og búnaði tengdum sjávarútvegi verður komið á framfæri. Miklir möguleikar eru fyrir íslensk fyrirtæki að hasla sér völl í Malasíu, enda landið tiltölulega óplægður akur þegar kemur að sjávarútvegsiðnaði.
Meira
RÍKISSTYRKIR vegna fiskverndar eru lítill hluti opinberra styrkja í sjávarútvegi. Þetta er niðurstaða skýrslu, sem Nýsjálendingar lögðu fyrir Alþjóða viðskiptastofnunina WTO nýlega. Þrátt fyrir fullyrðingar frá Evrópusambandinu og fleirum um að ekki séu allir ríkisstyrkir í sjávarútvegi skaðlegir, segir í skýrslunni að slíkir styrkir séu afar litlir.
Meira
HAFRANNSÓKNIR - Nýlega var hrundið af stað umfangsmiklu Evrópusamstarfsverkefni fjögurra þjóða um karfarannsóknir, sem miða að því að skipuleggja og samhæfa rannsóknir á líffræði og veiðiþoli karfastofna. Hafrannsóknastofnunin er þátttakandi í verkefninu og lýsir Þorsteinn Sigurðsson, fiskifræðingur hjá stofnuninni, því hér í stórum dráttum.
Meira
Ferskfiskdagar voru haldnir í París dagana 29. til 31. mars sl. á vegum sendiráðs Íslands í París og viðskiptaþjónustu utanríkisráðuneytisins. Sautján íslensk fyrirtæki tóku þátt í þessu viðskiptaátaki og 23 frönsk fyrirtæki, þar á meðal stærstu ferskfiskkaupendur í Frakklandi. Þykja dagarnir hafa tekizt mjög vel og eru vonir við það bundnar að þeir eigi eftir að skila auknum viðskiptum með ferskar fiskafurðir.
Meira
TölvuMyndir kynntu WiseFish hugbúnaðarpakkann á Fishing 2000 sýningunni í Glasgow í síðustu viku. Að sögn Halldórs Lúðvígssonar, framkvæmdastjóra viðskiptalausna TölvuMynda, voru þeir mjög ánægðir með þær viðtökur sem þeir fengu.
Meira
ÚTFLUTNINGUR SÍF og ÍS á síðasta ári var samanlagt tæplega 114.000 tonn og dróst hann saman um 12.600 tonn, eða 10%. Þessi samdráttur er að langmestu leyti tilkominn vegna mun minni útflutnings á uppsjávarfiski. Á síðasta ári nam sá útflutningur 10.
Meira
GÓÐ kolmunnaveiði hefur verið á miðunum vestur af Írlandi að undanförnu og hefur íslensku skipunum fjölgað jafnt og þétt á svæðinu eftir að loðnuvertíðinni lauk út af Snæfellsnesi.
Meira
HALLÓ! Ég heiti Ragnar (8 ára þegar myndin var gerð). Ofurhetjur eru mitt fag. Þessa mynd af Turtles þegar þær voru litlar teiknaði ég sérstaklega fyrir Myndasögur Moggans. Bless, bless,...
Meira
SVO mikill er léttir Íslendinga, stórra og smárra, þessa dagana þegar snjóa leysir og sést í rennblautt gras og drullu út um allt, að liggur við sumardagurinn mikli sé í nánd.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.