FJÖLDA fanga, sem voru að afplána dóma fyrir skelfilega ofbeldisglæpi, var í gær sleppt úr Maze-fangelsi utan við Belfast á Norður-Írlandi og var það liður í friðarsamningnum sem kenndur er við föstudaginn langa.
Meira
LEITARMENN fundu í gær lík í rústum hótelsins sem Concorde-þota Air France brotlenti á síðastliðinn þriðjudag og er talið að hinn látni hafi verið gestur á hótelinu. Tala látinna í slysinu er þá komin í 114. Þar af fórust 109 með vélinni.
Meira
VIKTOR Kazantsev, sérskipaður fulltrúi Vladimírs Pútíns Rússlandsforseta í hinum ólgusömu Kákasushéruðum rússneska sambandsríkisins, sagðist í gær reiðubúinn til að hefja viðræður við leiðtoga skæruliða í Tsjetsjníu um leiðir til að binda enda á stríðið...
Meira
NORGES Fiskarlag, öflugustu hagsmunasamtök í sjávarútvegi í Noregi, hafa farið þess á leit við olíumálaráðuneytið að stöðva tafarlaust tilraunaboranir í Barentshafinu.
Meira
LENDA þurfti þotu Íslandsflugs í Glasgow í Skotlandi í gærkvöldi eftir að vart hafði orðið bilunar í vélinni en hún var á leið til Íslands frá Alicante á Spáni með 115 farþega sem verið höfðu í ferð á vegum Plúsferða.
Meira
HLAUPAHJÓL eru á ný að komast í tísku, enda víða komnir gangstígar og malbikaðar brautir hentugar ungu fólki sem vill ferðast um á þessum skemmtilegu fararskjótum.
Meira
Erna Ómarsdóttir fæddist í Reykjavík 15. nóvember árið 1972. Hún er dóttir hjónanna Kristínar Geirsdóttur myndlistarmanns og Ómars Kristinssonar viðskiptafræðings. Hún ólst upp í Kópavogi frá sex ára aldri.
Meira
Ég sit við sjónvarpið í dagstofunni, sé Arafat fagnað sem hetju við heimkomuna á Gaza og það fyrir að hafa hafnað friði við Ísraela. Allt Gaza-svæðið er þakið fánum og vígorðum þar sem hinn "palestínski Saladín" er hylltur.
Meira
TÓNLISTARHÓPURINN Atonal Future heldur tónleika í Deiglunni í dag, laugardag, kl 20:30. Hópurinn er skipaður sjö ungum íslenskum hljóðfæraleikurum og tónskáldum, sem allir stunda framhaldsnám í tónlist víðs vegar um Evrópu.
Meira
Grundarfirði - Um helgina verður haldin fjölskylduhátíð hér í Grundarfirði undir heitinu "Á góðri stund í Grundarfirði". Íbúarnir eru búnir að vera á fullu við að fegra hús sín og garða.
Meira
Balaskarðs-Brandur stikar lífið af stóískri ró, fer eigin leiðir og angrar engan nema kaupamanninn á Balaskarði. Ekki að illt sé í honum heldur finnst Benedikt Andréssyni kaupamanni boli rekast illa.
Meira
GARÐABÆR veitti viðurkenningar fyrir snyrtilegt umhverfi í bænum fyrir árið 2000 síðastliðinn fimmtudag. Er þetta í þrettánda sinn sem slík verðlaun eru veitt. Eigendur tveggja lóða íbúðarhúsnæðis hlutu viðurkenningu.
Meira
UM HELGINA verður boðið upp á dagskrá á Þingvöllum. Í fréttatilkynningu segir: "Farið verður um fornar slóðir troðnar af kynslóðum sem áður fyrr áttu erindi milli bæja á hrauninu.
Meira
EFTIRLITSMYNDAVÉLUM verður komið upp við Hagaskóla með haustinu, að sögn Einars Magnússonar skólastjóra. Einnig verður myndavélum komið upp við Fellaskóla.
Meira
BILL Clinton Bandaríkjaforseti segir að það væru "mikil mistök" af hálfu Palestínumanna að lýsa einhliða yfir stofnun sjálfstæðs ríkis, svo sem þeir hafa hótað að gera. Lét Clinton þessi orð falla í viðtali við ísraelska sjónvarpsstöð.
Meira
MAT Ríkisendurskoðunar er að ekki liggi fyrir nægilega ítarlegar upplýsingar til að hægt sé að meta á faglegan og hlutlausan hátt hvort markmið samninga ríkisins við reynslusveitarfélög, sem fela áttu í sér að sveitarfélögin yfirtækju tiltekin verkefni...
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík leitaði í alla fyrrinótt að átta ára gamalli stúlku sem kom ekki heim til sín í fyrrakvöld. Hún fannst í gærmorgun í fastasvefni undir rúmi vinkonu sinnar, en foreldrar vinkonunnar vissu ekki af henni þar.
Meira
Hátíðardagskrá, sem haldin var til að minnast þess að eitt þúsund ár eru síðan norrænir menn settust að í vesturheimi, náði hámarki þegar Gunnar Marel Eggertsson, skipstjóri Íslendings, og áhöfn hans stigu á land á Nýfundnalandi í gær.
Meira
HELGINA 28.-30. júlí heldur Styrktarfélag krabbameinssjúkra barna sína árlegu fjölskylduhátíð í Hvammi í Vatnsdal, A-Húnavatnssýslu. Dagskrá er eftirfarandi. Í dag, laugardaginn 29.
Meira
LÍTIL eins manns flugvél hrapaði til jarðar í Stíflisdal í Þingvallasveit á sjötta tímanum í gær. Flugmaðurinn slasaðist töluvert og var margbeinbrotinn, en ekki í lífshættu samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum í Fossvogi.
Meira
Minnismerki um pólska liðsforingja, sem Jósef Stalín lét myrða, var afhjúpað í Katynskógi í Rúss-landi í gær að viðstöddum hundruðum ættingja þeirra og rússneskum og pólskum embættismönnum. Í Katynskógi voru grafnir 4.000 pólskir liðsforingjar af alls...
Meira
NÆSTI fyrirlestur á jöklasýningunni á Höfn verður næstkomandi mánudagskvöld, 31. júlí, en þá flytur Ari Trausti Guðmundsson fyrirlestur sinn sem fresta þurfti í síðustu viku.
Meira
TÆPLEGA sjötíu prósent landsmanna eru ánægðir með störf Geirs H. Haarde fjármálaráðherra, samkvæmt skoðanakönnun Gallups, og nýtur Geir mestra vinsælda ráðherra í ríkisstjórninni.
Meira
GENGISSKRÁNING SEÐLABANKA ÍSLANDS 28-07-2000 Gengi Kaup Sala Dollari 78,3500 78,1400 78,5600 Sterlpund. 118,170 117,860 118,480 Kan. dollari 53,1400 52,9700 53,3100 Dönsk kr. 9,75100 9,72300 9,77900 Norsk kr. 8,87400 8,84800 8,90000 Sænsk kr.
Meira
LÖGREGLUYFIRVÖLD í New York í Bandaríkjunum hófu í gær rannsókn á því hvernig vopnaður maður gat gengið um borð í þotu fulla af farþegum þar sem hún stóð við landgang á John F.
Meira
FJÓRÐU Sumartónleikar Akureyrarkirkju verða haldnir sunnudaginn 30. júlí kl. 17. Þá munu tónlistarmennirnir Guðmundur Hafsteinsson trompetleikari og Eyþór Ingi Jónsson orgelleikari leika verk eftir Vejvanovsky, Düben, Loeillet, J.S.
Meira
RÚSSNESKIR fjölmiðlar sögðu í gær að fjölmiðlajöfurinn Vladímír Gúsínskí hefði samið við stjórnvöld í Kreml um að hann myndi hætta að hafa afskipti af rússneskum stjórnmálum gegn því að saksóknarar hættu við ákæru á hendur honum.
Meira
SUMARIÐ 1999 hófst við Úlfarsfell uppgræðsla undir merkjum Skil 21. Skil 21 er verkefni sem stýrt er af uppgræðslusamtökunum Gróður fyrir fólk í Landnámi Ingólfs og unnið í samráði við Reykjavík - menningarborg 2000.
Meira
DAGSKRÁ tengd þarfasta þjóninum verður sunnudaginn 30. júlí á Árbæjarsafni. Áður fyrr var Árbær vinsæll áningastaður ferðalanga á leið til og frá Reykjavík.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 343 orð
| 2 myndir
STAFKIRKJAN í Vestmannaeyjum, þjóðargjöf Norðmanna til Íslendinga á þúsund ára afmæli kristnitöku í landinu, verður afhent og vígð á morgun við hátíðlega athöfn.
Meira
VÍKINGASKIPINU Íslendingi var vel fagnað þegar það kom til L'Anse aux Meadows á Nýfundnalandi í gær en um fimmtán þúsund manns tóku þátt í sérstakri hátíðardagskrá sem efnt var til af þessu tilefni. Íslendingur lagði úr höfn í Reykjavík 24.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 161 orð
| 1 mynd
FRÍMERKJASÝNINGIN DIEX 2000 stendur nú yfir á Kjarvalsstöðum. Á sýningunni kom í ljós að teikning eftir Ingibjörgu Davíðsdóttur skreytir frímerki frá Búlgaríu, en sjálf hafði hún ekki hugmynd um það.
Meira
FJÁRMÁLAEFTIRLITIÐ hefur vísað máli Gunnars Sch. Thorsteinsson, stjórnarmanns í Skeljungi, til efnahagsdeildar ríkislögreglustjóra og óskað eftir að kannað verði hvort Gunnar hafi brotið lög með viðskiptum með hlutabréf í Skeljungi hf.
Meira
AKUREYRARKIRKJA: Sumartónleikar í kirkjunni sunnudaginn 30. júlí kl 17. Guðmundur Hafsteinsson, trompet, og Eyþór Ingi Jónsson, orgel. Aðgangur ókeypis. Messa verður um kvöldið kl. 20. Prestur er séra Jóna Lísa Þorsteinsdóttir.
Meira
NÝJAR hljóðfráar Eurofighter-herþotur, sem teknar verða í notkun í ágúst á næsta ári, hafa verið hannaðar með það að markmiði að auðvelda kvenflugmönnum að fljúga þeim, að sögn Lundúnablaðsins The Times .
Meira
TVEIR tólf ára drengir voru fluttir á slysadeild með reykeitrun, ertingu í öndunarfærum, eftir bruna í Grafarvogi um miðjan dag í gær. Þeir voru að fikta með eld og bensín í hjólageymslu í fjölbýlishúsi og við það kviknaði í geymslunni.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 239 orð
| 1 mynd
NÝVERIÐ var opnuð körtubraut í Reykjanesbæ. Það eru fyrirtækin Reis bílar og Reis verktakar sem reka brautina, en fyrirtækin hafa þrettán bíla á sínum vegum og kostar tvö þúsund krónur að keyra bílana í tíu mínútur í senn.
Meira
VERKEFNASTAÐA Íslenskrar miðlunar í Hrísey er ekki góð. Fleiri og stærri verkefni verða að koma til í framtíðinni til að reksturinn beri sig. Þetta kom fram í samtali við Guðmund B. Gíslason, forstöðumann fyrirtækisins í Hrísey.
Meira
MARKAÐUR verður haldinn í risatjaldinu í Lónkoti í Skagafirði sunnudaginn 30. júlí. Markaðurinn er opinn gestum frá klukkan 13 til 18, en sölufólk hefur tímann frá kl. 10 til 13 til að koma sér fyrir.
Meira
MENGUN mældist í vatnsbóli Mýrahrepps í Hornafirði við reglubundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits Austurlands nýverið. Virðist sem kröfum heilbrigðiseftirlitsins um girðingar kringum vatnsbólið hafi verið ábótavant og því komust skepnur að bólinu.
Meira
29. júlí 2000
| Höfuðborgarsvæðið
| 745 orð
| 1 mynd
BORGARSKIPULAG er nú með til kynningar hugmynd að nýju deiliskipulagi fyrir Grófarreitinn í miðborginni, en samkvæmt henni er gert ráð fyrir töluvert miklum breytingum á svæðinu, m.a.
Meira
Í TILEFNI af 120 ára afmæli Menntaskólans á Akureyri verður gefið út vandað afmælisrit; Minningar úr MA, og er ráðgert að það komi út um mánaðamótin september/október nk.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 431 orð
| 1 mynd
UMTALSVERÐ aukning varð á brotum vegna ölvunaraksturs í umdæmi lögreglunnar í Reykjavík á fyrstu sjö mánuðum ársins, borið saman við undanfarin ár.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 225 orð
| 1 mynd
NORSKU konungshjónin, Haraldur V og Sonja, lentu á Keflavíkurflugvelli síðdegis í gær. Guðni Bragason, siðameistari í utanríkisráðuneytinu, Stefán L.
Meira
NÝNEMUM við Háskólann á Akureyri fjölgar stöðugt á milli ára. Á komandi vetri er ráðgert að nýnemar verði um 270 talsins, sem er um 13% fjölgun á milli ára, að sögn Þorsteins Gunnarssonar, rektors HA.
Meira
ÍSLENSKA landsliðið í stærðfræði er nú komið heim af Ólympíuleikum í stærðfræði sem haldnir voru dagana 16. til 25. júlí í Suður-Kóreu. Sjálf keppnin fór fram 19. og 20. júlí, en hvorn daginn glímdu keppendur við sett af þremur afar strembnum dæmum.
Meira
MO Mowlam, fyrrverandi Norður-Írlandsmálaráðherra bresku stjórnarinnar, viðurkenndi í fyrrakvöld að hún hefði skilið ráðherrakassa sinn eftir á glámbekk í apríl - um það leyti sem nokkrum minnisblöðum stjórnarinnar var lekið í fjölmiðla.
Meira
SENDIBIFREIÐ rann stjórnlaus rúmlega 125 metra aftur á bak og valt við Kleppsveg í gær, að sögn lögreglu. Ökumaður bifreiðarinnar var að bakka niður halla við Kambsveg þegar bremsur hennar biluðu með fyrrgreindum afleiðingum.
Meira
SÝNING á bronsskúlptúrum eftir Hörpu Björnsdóttur verður opnuð í Safnasafninu á Svalbarðsströnd í dag, laugardag, kl. 14. Skúlptúrarnir mynda eina heild sem ber heitið Liðsmenn og eru táknmyndir einstaklings, listamannsins.
Meira
BROTIST var inn í Gullsmiðju Óla í Hamraborg í Kópavogi í fyrrinótt og höfðu þjófarnir á brott með sér skartgripi fyrir andvirði á milli fjögurra til fimm milljóna króna.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 615 orð
| 4 myndir
Kostnaður við stækkunina verður 3,8-3,9 milljarðar króna og á verkinu að ljúka á næsta ári. Rúnar Pálmason kynnti sér framkvæmdirnar en um 200 manns koma þar við sögu.
Meira
FARANDSÝNINGIN Samskipti verður opin almenningi í Fjarskiptasafni Símans í gömlu loftskeytastöðinni við Suðurgötu frá sunnudeginum 30. júlí til loka október nk.
Meira
MYNDLISTARSÝNING verður opnuð í dag, laugardaginn 29. júlí, kl. 16.00 í Ketilhúsinu. Sýnendur eru Konráð Sigursteinsson og Sólborg Gunnarsdóttir. Sólborg sýnir ljósmyndir og fimm sögur eða mannlýsingar.
Meira
MINJASAFNIÐ á Akureyri stendur fyrir sögugöngu um Oddeyri sunnudaginn 30. júlí undir leiðsögn Guðrúnar Kristinsdóttir safnstjóra. Lagt verður af stað frá Gránufélagshúsunum, Strandgötu 49, kl. 14.
Meira
MADELEINE Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagði í gær að fundur sinn með Paek Nam-sun, norðurkóreskum starfsbróður sínum, í Bangkok hafi verið "sögulegur í táknrænum skilningi" og að hún hafi nú auknar vonir um að friðvænlegra verði...
Meira
MANNRÉTTINDADÓMSTÓLL Evrópu hyggst taka til meðferðar kæru íslenskrar stúlku á hendur íslenska ríkinu vegna málsmeðferðar Hæstaréttar í máli sem dæmt var í 28. október 1999 en þar var faðir stúlkunnar sýknaður af ákæru um kynferðislegt ofbeldi gegn...
Meira
Aðstaða nemenda og starfsfólks Vopnafjarðarskóla batnar mjög við upphaf skólastarfs í haust þegar tekin verður í notkun ný álma. Öll kennsla verður á einum stað og námið samfellt. Þar verður auk þess aðstaða fyrir tónlistarskóla og héraðsbókasafn. Helgi Bjarnason skoðaði aðstöðuna og ræddi við skólastjórann.
Meira
29. júlí 2000
| Akureyri og nágrenni
| 82 orð
| 1 mynd
UNGLINGALIÐ Skíðasambands Íslands dvelur nú um helgina að Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit í æfingabúðum. Þarna eru saman komin efnilegir unglingar fæddir á árunum 1984-1986.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 127 orð
| 1 mynd
MAÐUR meiddist nokkuð í fjallgöngu skammt innan við Súðavík í Álftafirði um hádegisbilið í dag. Sjúkraflutningamenn báru hann niður og var hann síðan fluttur á sjúkrahúsið á Ísafirði. Hann er ekki í lífshættu.
Meira
FIMMTUDAGINN 27. júlí sl. var ekið á vinstri framhurð bifreiðarinnar RE-844 sem er Hyundai fólksbifreið dökkblá að lit. Bifreiðin stóð á bifreiðastæði í Mjódd austan við hús nr. 6 við Þönglabakka.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 458 orð
| 3 myndir
ÞORGEIRSKIRKJA við Ljósavatn í Ljósavatnshreppi í S-Þingeyjarsýslu verður vígð sunnudaginn 6. ágúst nk. Kirkjan er byggð í tilefni 1000 ára kristnitöku á Íslandi og til minningar um Þorgeir Ljósvetningagoða, sem reisti þar fyrstu kirkju staðarins.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 1646 orð
| 3 myndir
Svínarækt mun vera æði gömul búgrein hér á landi. En á síðasta áratug eða svo hafa orðið miklar breytingar í þeim geira, m.a. fækkun svínabúa úr 126 í 41 frá árinu 1992 til þessa dags. Sigurður Ægisson kannaði þá sögu nánar.
Meira
NÝ ríkisstjórn tók við völdum á Fídjí-eyjum í gær og er það yfirlýst markmið hennar að berjast fyrir hagsmunum frumbyggja á eyjunum fremur en hagsmunum eyjaskeggja af indverskum uppruna, sem eru í minnihluta.
Meira
ÆTTARMÓT niðja Sigfúsar Axfjörð og Kristínar Jakobsdóttur á Krónustöðum í Eyjafirði verður haldið að Laugaborg í Eyjafirði í dag, laugardaginn 29. júlí. Skráning hefst kl....
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 310 orð
| 1 mynd
UMFERÐARHRAÐI hefur vaxið stöðugt á undanförnum árum ef marka má árlegar mælingar Vegagerðarinnar. Það sem er mælt er ökuhraði svonefndrar frjálsrar umferðar, þ.e.a.s. stakra bíla sem eru ekki í bílalest.
Meira
29. júlí 2000
| Innlendar fréttir
| 531 orð
| 1 mynd
SÉRÚTBÚIN bifreið Ríkislögreglustjóraembættisins, með tækjabúnað til töku öndunarsýna vegna meints ölvunaraksturs, var tekin í notkun á ný í síðustu viku. Embættið fékk bílinn og tvö öndunarsýnatæki fyrir tveimur árum, 25.
Meira
FYRIR UM tveimur árum fengu þær Þórey Vilhjálmsdóttir og Ásta Kristjánsdóttir, eigendur Eskimo models, hugmynd sem átti eftir að vinda upp á sig.
Meira
ÞEGAR Þráinn Árni Baldvinsson var ungur drengur í túninu heima í Þingeyjarsýslunni sá hann oft rútur merktar íslenskum hljómsveitum [Sálinni, Sólinni og Ný danskri] á leið norður til að spila á böllum.
Meira
Hvar er hátíðin haldin? Glastonbury er haldin á ,,Worty Farm" í Pilton í Somerset sýslu á Englandi, ekki langt frá þeim sögufræga stað ,,Stonehenge" í u.þ.b. 200 kílómetra fjarlægð frá London.
Meira
Um 120 manna leikflokkur frá eynni Mostri á Hörðalandi í Noregi sýnir leikritið Kristkonungana eftir Johannes Heggland á Reykholtshátíð í dag. Leiksýningin fer fram úti undir berum himni, í Snorragarði, og hefst kl. 16.
Meira
SUMARIÐ er tíminn sem popptónlistarmenn landsins hlaða riffla sína og keppast um að hitta beint í hjartastað með einföldum og grípandi sönglínum.
Meira
Ljóðatónleikar verða haldnir í Íslensku óperunni á morgun, sunnudag, kl. 21. Söngvararnir Bergþór Pálsson, baritón, Birna Ragnarsdóttir, sópran, og Signý Sæmundsdóttir, sópran, munu flytja lög eftir Salbjörgu Sveinsdóttur Hotz við ljóð eftir Eðvarð T.
Meira
Í 62. TÖLUBLAÐI tímaritsins Piano Journal sem nýlega er komið út er að finna gagnrýni á geisladisk Halldórs Haraldssonar píanóleikara þar sem hann leikur sónötur eftir Schubert og Brahms.
Meira
SUÐURGATA, FJARSKIPTASAFN LANDSSÍMANS Samskipti Finnska vísindamiðstöðin Heureka fékk í lið með sér samstarfsaðila frá hinum menningarborgunum árið 2000 til að koma á fót víðtækri sýningu á möguleikum til samskipta í heiminum. Sýningin stendur til 29.
Meira
Leikstjóri: Bruce Beresford. Handrit: David Weisberg og Douglas Cook. Aðalhlutverk: Ashley Judd, Tommy Lee Jones, Bruce Greenwood. (105 mín.) Bandaríkin, 1999. Sam-myndbönd. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
KVIKMYNDIR og sjónvarp eru helstu almennu skemmtimiðlarnir í dag og hafa verið helftina af 20. öldinni. Einkum hafa þessir tveir miðlar gert sig gildandi á seinni hluta aldarinnar.
Meira
TILLAGA myndlistarmannsins Kees Visser um listskreytingu í nýbyggingu Kennaraháskóla Íslands, var valin til frekari útfærslu og framkvæmda, en 56 myndlistarmenn sendu inn tillögur um listaverk í nýbygginguna sem enn er á hönnunarstigi.
Meira
NÚ stendur yfir 10. einkasýning myndlistarkonunnar Ólafar Pétursdóttur frá Hafnarfirði í Eden í Hveragerði. Ólöf sýnir verk unnin með vatnslitum, bæði uppstillingar og landslagsverk. Sýningin er opin alla daga til og með 6....
Meira
Í MORGUN kl. 07:00 að íslenskum tíma átti fyrirtækið umdeilda Napster samkvæmt lögum að loka fyrir allan aðgang að því efni sem plötufyrirtæki þau sem eru í samtökum hljómplötu útgefanda Bandaríkjanna hafa gefið út.
Meira
Á DAGSKRÁ Reykholtshátíðar í dag, laugardag, er formleg afhending á húsnæði Snorrastofu í Reykholtskirkju klukkan 14 að viðstöddum forseta Íslands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og norsku konungshjónunum Haraldi V og Sonju.
Meira
Hár og list, Hafnarfirði Sýning Jóns Thors Gíslasonar í Hár og list við Strandgötu 39, Hafnarfirði, hefur verið framlengd til 4. ágúst. Á sýningunni gefur að líta ný verk eftir listamanninn, grafík-teikningar og olíumálverk.
Meira
29. júlí 2000
| Fólk í fréttum
| 1119 orð
| 5 myndir
Sífellt fleiri íslenskir tónlistarunnendur eru farnir að ferðast austur yfir hafið klyfjaðir pollagalla, gúmmískóm, nesti og tjaldræfli í þeim erindagjörðum að eyða nokkrum dögum í breskri sveitasælu á Glastonbury tónlistarhátíðinni. Ólafur Páll Gunnarsson er einn þeirra og lýsir hér reynslu sinni af síðustu hátíð.
Meira
Aðra helgina í ágúst verður haldin risastór alþjóðlegur tísku- og tónlistarviðburður, Futurice, í Bláa lóninu. Jóhanna K. Jóhannesdóttir hitti systkinin Móeiði og Kristin Júníusbörn yfir rjúkandi kaffi og forvitnaðist um þeirra framlag til hátíðarinnar.
Meira
70 ÁRA afmæli. Nk. mánudag, 31. júlí, verður sjötugur Snorri Þorsteinsson, forstöðumaður Skólaskrifstofu Vesturlands. Af því tilefni taka hann og kona hans á móti gestum í héraðsheimilinu Þinghamri á Varmalandi á morgun, sunnudag 30. júlí, kl....
Meira
Með vísindalegri nálgun og lifandi samstarfi vísindamanna, sjómanna og aðila í greininni, segir Jóhann Sigurjónsson, verður árangur rannsóknanna helst viðunandi.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. júlí sl. í Kapellu St. Jósefsspítala af sr. Báru Friðriksdóttur Magdalena Ásgeirsdóttir og Ragnar Hilmarsson. Heimili þeirra er í Miðstræti 4,...
Meira
Eitt mikilvægasta hagsmunamál þeirra aðila sem að björgunarmálum starfa hér á landi, segir Þorsteinn Þorkelsson, er samræming á öllum björgunarstörfum, hvort sem er á sjó eða landi.
Meira
Eftir því sem fleiri segja sig úr þjóðkirkjunni, segja Björgvin Brynjólfsson og Friðrik Þór Guðmundsson, styttist í að samband ríkis og kirkju verði rofið.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
EKKI ER ein báran stök yfir Atlantshafsála. Ég verð að deila lítilli ferðasögu með ykkur, gott fólk. Dóttir mín var að koma heim nýlega, hinn 26. júlí, ásamt eiginmanninum og fjórum ungum börnum, hið yngsta er rúmlega þriggja mánaða gamalt.
Meira
Inni' á landi og út við sjó allar raddir þegja. Þó er eins og þessi ró þurfi margt að segja. - - - Grænum halla blöðum brátt blómin valla fögur. Yfir fjalla herðum hátt hangir mjalla kögur.
Meira
KONA hafði samband við Velvakanda vegna skrifa um Tjörnina í Reykjavík í Velvakanda fyrir stuttu. Hún vildi benda á það að í Hafnarfirði er lítil tjörn og þar eru bæði endur og gæsir.
Meira
VÍKVERJI átti erindi norður í land hér á dögunum og fór akandi í sínum einkabíl. Þetta er í sjálfu sér ekki í frásögur færandi nema að í þessari ferð upplifði Víkverji þá lífshættu, sem akandi vegfarendum er búin á þjóðvegum landsins.
Meira
Þessar duglegu stúlkur söfnuðu með tombólu 1.838 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þær heita Áshildur María Guðbrandsdóttir, Súsanna Helgadóttir og Svava...
Meira
Ásta Björnsdóttir fæddist á Víkingavatni 17. júní 1927. Hún lést á heimili sínu 17. júlí síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 27. júlí.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Jónsdóttir fæddist í Hafnarfirði 29. júlí 1923. Hún lést á Landspítalanum 11. júní síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnarfjarðarkirkju 19. júní.
MeiraKaupa minningabók
29. júlí 2000
| Minningargreinar
| 2549 orð
| 1 mynd
Ingimundur Ingimundarson fæddist á Svanshóli í Bjarnarfirði í Strandasýslu 30. mars 1911. Hann lést á sjúkrahúsinu á Hólmavík 22. júlí síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólöf Ingimundardóttir húsfreyja f. 28.4.1877, d. 11.2.
MeiraKaupa minningabók
GENGI GJALDMIÐLA Reuter, 28. júlí Eftirfarandi eru kaup og sölugengi helstu gjaldmiðla gagnvart evrunni á miðdegismarkaði í Lundúnum. NÝJAST HÆST LÆGST Dollari 0.9271 0.9335 0.9223 Japanskt jen 101.59 101.96 101 Sterlingspund 0.616 0.6178 0.613 Sv.
Meira
AFSAL var undirritað í gær vegna kaupa Svínabúsins Brautarholti ehf. á Kjalarnesi á 2/3 hlutafjár í Síld og fiski ehf. Með í kaupunum eru allar fasteignir félagsins að Dalshrauni og á Minni-Vatnsleysu, en kaupsamningar voru gerðir í júní síðastliðnum.
Meira
Hlutabréf á helstu mörkuðum í Evrópu lækkuðu í gær, einkum vegna slæmrar afkomu fjarskiptafyrirtækja auk þess sem fjárfestar búast við vaxtahækkun í Bandaríkjunum.
Meira
HAGNAÐUR af rekstri Nokia í Finnlandi, sem er stærsti farsímaframleiðandi í heiminum, jókst um 62% á öðrum fjórðungi ársins eða úr 1,09 milljörðum evra í fyrra í 1,84 milljarða evra.
Meira
Sigríður Dögg Auðunsdóttir komst að því að aðdáendur knattspyrnuliðsins Liverpool víðs vegar um heiminn munu nú geta fylgst með helstu mörkum liðsins á WAP-símunum sínum.
Meira
RÓLEGT hefur verið á gráa markaðnum að undanförnu. Samkvæmt morgunkorni FBA er helsta ástæða þess væntanlega sú að mönnum er orðið ljóst að mikil áhætta fylgir því að fjárfesta í óskráðum fyrirtækjum.
Meira
FYRSTU sex mánuði þessa árs var 203 milljóna króna tap af rekstri Útgerðarfélags Akureyringa hf., sem er mun lakari niðurstaða en á sama tíma í fyrra þegar hagnaður var 180 milljónir króna.
Meira
Íslenskar kartöflur eru komnar í verslanir á höfuðborgarsvæðinu. Verðið er misjafnt eftir verslunum en um er að ræða premier-kartöflur og gullauga sem er ýmist nýkomið eða væntanlegt.
Meira
Næstum helmingur verslana er með vörur óverðmerktar í sýningargluggum eða í 47% tilvika. Í 32% sýningarglugga eru verðmerkingar í lagi og í 21% er þeim áfátt.
Meira
BIKARLEIKUR Sparisjóðs Keflavíkur og Samvinnuferða/Landsýnar fór fram í félagsheimili bridsspilara á Suðurnesjum, Mánagrund, í síðustu viku og var jafn og spennandi.
Meira
GIFT fólk lifir lengur, hefur betri og fleiri samfarir, drekkur minna, tekur minna af lyfjum, er að flestu leyti hamingjusamara og eignast meira af peningum.
Meira
"Þau ummæli eins þeirra að börn sem sæju guðinn myndu spyrja spurninga, sem vandræðalegt yrði fyrir foreldra að svara, hljóta reyndar að vekja spurningar um getu þeirra sömu foreldra til þess að ráða við það sjálfskipaða hlutverk sitt að koma börnum sínum til þroska."
Meira
HEILINN er líkastur vöðva; ef hann er ekki notaður rýrnar hann. Sífellt fleiri rannsóknir vísindamanna gefa til kynna að lélegt minni og minni andleg árvekni séu ekki óhjákvæmilegir fylgifiskar aldursins.
Meira
Liðagigt eða iktsýki einkennist af því að liðir líkamans bólgna upp en mismargir í einu og getur þetta bólguástand leitt til þess að liðbrjóskið eyðileggist. Sömuleiðis geta komið skemmdir í bæði beinið undir liðbrjóskinu og liðpokann í kring.
Meira
Sífellt bætist við Vísindavefinn þó að nú sé sumar og sól. Mikið hefur birst af svokölluðum laggóðum svörum á síðustu vikum en einnig svör um málvísindi, líffræði, heimspeki og sitthvað fleira. Í síðasta pistli, laugardaginn 22.
Meira
SVO virðist sem fólk er drekkur mikið af kaffi fái frekar liðagigt en þeir sem teljast til hófsemdarmanna að þessu leyti. Þessi er niðurstaða rannsókna sem vísindamenn í Finnlandi gerðu opinberar í vikunni. Í rannsókn sem dr.
Meira
DAGANA 10.-12. ágúst verður fr. Thomas Keating með námskeið á kyrrðardögum í Skálholti. Efni námskeiðsins verður þjálfun í hugleiðslu á grundvelli kristinnar klausturhefðar. Fr.
Meira
Í 26. vísu Hárbarðsljóða segir Hárbarður (Óðinn) við Þór: "Þór á afl ærið, en ekki hjarta; af hræðslu og hugbleyði þér var í hanzka troðið, og þóttist-a þú þá Þór vera. Hvorki þú þá þorðir fyr hræðslu þinni hnjósa né físa, svo að Fjalar heyrði.
Meira
Í dag er laugardagur 29. júlí, 211. dagur ársins 2000. Orð dagsins: "Svo sannarlega sem ég lifi, segir Drottinn, fyrir mér skulu öll kné beygja sig og sérhver tunga vegsama Guð".
Meira
Svartur á leik. Staðan kom upp á milli stórmeistaranna Evgeny Bareev, (2702) hvítt, og Vladimir Akopjan á ofurmótinu í Dortmund er lauk fyrir nokkru.
Meira
VÍSINDAMENN hafa þróað aðferð til þess að barnshafandi konur geti vitað með nokkrum fyrirvara hvenær hríðir munu hefjast, að því er breska ríkisútvarpið, BBC , greinir frá.
Meira
EVRÓPSKIR vísindamenn hafa vakið á ný eina hörðustu deilu vísindamanna með því að segjast hafa staðsett nákvæmlega þann stað í mannsheilanum þar sem "gáfur" sé að finna, eða þann hæfileika sem yfirleitt er mældur með svonefndu greindarprófi.
Meira
6. maí, laugardagur Kvöldið Lorca varð píslarvottur og sem slíkur mun hann lifa; ekki sízt. Hann var einnig brautryðjandi í skáldskap, bæði ljóðlist og leikritagerð.
Meira
KEPPNIN í Talence um helgina er um leið franska meistaramótið í tugþraut og sjöþraut kvenna enda eru heimamenn óvenju margir á meðal þátttakenda að þessu sinni.
Meira
FH-ingar fengu skell Dalvíkingar komu skemmtilega á óvart í Kaplakrikanum í gærkvöldi er þeir sóttu taplaust lið FH-inga heim. Það hefur verið vörumerki Dalvíkurliðsins að liggja aftarlega á vellinum og beita skyndisóknum.
Meira
Frank Pagelsdorf, þjálfari þýska knattspyrnuliðsins Hamburger SV, er sannfærður um að Bröndby verði ekki í vandræðum gegn KR á Laugardalsvellinum næsta miðvikudag.
Meira
Morgunblaðið sendir út stöðugar fréttir frá mótinu í Talence á Netinu, mbl.is . Keppnin hefst með 100 m hlaupi kl. 12 í dag og verður keppt til kl. 15.45. Á morgun hefst keppni kl. 10 með 110 m grindahlaupi og verður keppt til kl....
Meira
Fylkisvöllur, 12. umferð, mánudaginn 31. júlí kl. 20. Dómari : Jóhannes Valgeirsson. Aðstoðardómarar : Sigurður Þ. Þórsson og Garðar Örn Hinriksson. Fylkir : xxx Stjarnan : Allir heilir, Valdimar Kristófersson aftur með eftir að hafa misst úr tvo leiki.
Meira
DIDIER Deschamps, fyrirliði heims- og Evrópumeistara Frakka í knattspyrnu, var í gær seldur frá Chelsea til Valencia á Spáni fyrir 430 milljónir króna. Hann hefur gert þriggja ára samning við spænska félagið.
Meira
Fyrsti sigur Sindra í sumar Hornfirðingar fögnuðu innilega í gærkvöldi þegar þeir lögðu Víkinga 1:0 að velli á Hornafirði og unnu þar með fyrsta sigur sinn í 1. deild í sumar.
Meira
Grindavíkurvöllur, 12. umferð, sunnudaginn 30. júlí kl. 20. Dómari : Pjetur Sigurðsson. Aðstoðardómarar : Einar Guðmundsson og Einar Sigurðsson. Grindavík : Allir heilir. Keflavík : Allir heilir.
Meira
GUNNAR Þór Gunnarsson, unglingslandsliðsmaður í golfi úr GKG, sem varð stigameistari unglinga 1999 ásamt Guðmundi Einarssyni, verður fjarri góðu gamni á Landsmóti unglinga um helgina.
Meira
Hásteinsvöllur, 12. umferð, sunnudaginn 30. júlí kl. 20. Dómari : Kristinn Jakobsson. Aðstoðardómarar : Gísli H. Jóhannsson og Einar Örn Daníelsson. ÍBV : Ingi Sigurðsson í banni, allir heilir.
Meira
ÍR mættir í slaginn ÍR-ingar fögnuðu sigri á Skallagrím, 3:1, í leik sem fór rólega af stað og varla skot að marki fyrstu tuttugu mínúturnar en þó voru Borgnesingar duglegri til að byrja með.
Meira
"ÉG er klár í slaginn og miðað við það sem á undan er gengið þá held ég það sé óhætt að reikna með töluvert betri árangri en í Götzis í vor," sagði Jón Arnar Magnússon, tugþrautarmaður og Íslandsmethafi þar sem hann bjó sig undir átökin í...
Meira
TOMAS Dvorák telur að Michael Johnson, heimsmethafi í 200 og 400 m hlaupi karla, hafi tvímælalaust verið besti frjálsíþróttamaður heims á síðasta ári og þótt lengra væri farið aftur í tímann.
Meira
JÓN Arnar Magnússon, Tindastóli, er í 15. sæti heimsafrekalista ársins í tugþraut með 8.206 stig, en þeim árangri náði hann á alþjóðlega tugþrautarmótinu í Götzis í vor. Heimsmethafinn Tomas Dvorák, Tékklandi, er efstur með 8.
Meira
JÓN Arnar Magnússon tugþrautarmaður varð 31 árs í gær og gerði sér engan dagamun af því tilefni annan en að hann fékk afar lítinn bita af súkkulaðiköku í eftirrétt í hádeginu í gær, enda mátti ekki meira vera þar sem stórkeppni er framundan um helgina.
Meira
KR-völlur, 12. umferð, sunnudaginn 30. júlí kl. 20. Dómari : Egill Már Markússon. Aðstoðardómarar : Eyjólfur Finnsson og Gunnar Gylfason. KR : David Winnie er enn meiddur, aðrir klátir í slaginn.
Meira
MIKIÐ var gert úr því á blaðamannafundi með Tomas Dvorák, heimsmethafa í tugþraut, í Talence í gær að hann væri tékkneskur meistari í 110 m grindahlaupi frá því á dögunum, hlaupið á 13,61 sekúndu.
Meira
BARCELONA gekk í gær frá samningum við Hollendinginn Marc Overmars og Frakkann Emmanuel Petit og kaupir tvímenningana frá Arsenal fyrir samtals um 3 milljarða króna.
Meira
Maikel Renfurm, 24 ára knattspyrnumaður frá NEC Nijmegen í Hollandi, kom í gær til landsins og verður til reynslu hjá KR-ingum til mánudags. Hann mætti á sína fyrstu æfingu í gær.
Meira
Íþróttavöruframleiðandinn Asics, einn helsti bakhjarl heimsmethafans í tugþraut, Tomas Dvorák, hefur útbúið sérstaka keppnisskó fyrir kappann fyrir hverja einustu grein tugþrautar.
Meira
SKAGAMENNs hafa ráðið þjálfara fyrir 1. deildar lið sitt í körfuknattleik. Það verða þeir Sigurður Elvar Þórólfsson og Jón Þór Þórðarson sem munu þjálfa liðið og ekki er ólíklegt að þeir muni leika eitthvað með.
Meira
Skiptur hlutur á Akureyri Fyrir leik KA og Þróttar í 1. deildinni á Akureyri í gærkvöld var ljóst að sigur var báðum liðum nauðsynlegur ef þau vildu á annað borð þokast nær toppliðunum.
Meira
FYRIR tímabilið áttu flestir von á því að KR og ÍA myndu berjast um Íslandsmeistaratitilinn í knattspyrnu í ár. Fyrir leik þeirra á KR-vellinum á sunnudagskvöldið er staðan hins vegar þannig að þau eru í 3. og 4. sæti deildarinnar og hvorugt má við tapi ætli það að vera áfram með í baráttunni á toppnum á síðasta þriðjungi mótsins.
Meira
"Við vorum ekki alveg nógu grimmir í framlínunni fyrir hlé en breyttum svo til og það gekk upp," sagði Kristinn Lárusson, sem fór á kostum hjá Val að Hlíðarenda í gærkvöldi þegar Tindastólsmenn sóttu þá heim.
Meira
"ÉG skal vera alveg hreinskilinn, ég reikna ekki með því að bæta heimsmet mitt hér í Talence um helgina, en ég ætla hins vegar ekki að tapa og reikna með því að gera það sem þarf til þess að vinna," sagði heimsmethafinn í tugþraut karla á...
Meira
"ÞAÐ er ekkert annað að gera í kvótaleysinu, maður verður að gera eitthvað og mig langaði að bjóða upp á þessa þjónustu," segir Guðni Ásgrímsson trillukarl á Vopnafirði.
Meira
Lesbók
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 22 orð
| 1 mynd
Ólympíuleikarnir í London 1948 voru þeir fyrstu sem haldnir voru eftir heimsstyrjöldina síðari og vöktu geysilega athygli. Íslendingar sendu þangað hóp íþróttamanna og nokkrir áhugamenn fóru að auki, þar á meðal þrír FH-ingar úr Hafnarfirði, Gísli Sigurðsson lögregluþjónn, eða Gísli "pól" eins og hann var nefndur, Hallsteinn Hinriksson íþróttakennari og Sigurður Gíslason. Hér hefur verið valið úr dagbókum Gísla úr ferðinni, en hann var nákvæmur fræðimaður og skráði bæði stórt og smátt.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 4348 orð
| 1 mynd
Hassan getur ekki verið kyrr. Trommar með flötum lófanum á dökkt, rispað borðið. Trallar með fætinum. Talar hratt og með djúpri rödd um systur sínar. Hann er reiður vegna þess að þær hafa verið að drekka í kvöld. Kvenfólk á ekki að drekka. Það á að klæðast kuflum og slæðum og halda sig heima og bíða eftir því að góður maður beri upp bónorð.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 3704 orð
| 7 myndir
Með ljóðabókinni Birthday Letters (Afmælisbréf), sem kom út skömmu fyrir dauða hans árið 1988, rauf breska lárviðarskáldið Ted Hughes áratugalanga þögn sína um hjónaband sitt og Sylviu Plath. FRÍÐA BJÖRK INGVARSDÓTTIR fjallar í þessari grein um óritskoðaðar dagbækur hennar og hvernig samband Hughes og Plath var samofið skáldskapnum.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 1969 orð
| 6 myndir
Listasumar hefur verið á Akureyri síðan í júní og mun standa til loka ágústs. Um er að ræða fjölbreytta menningardagskrá sem fram fer á ýmsum stöðum í bænum og utan hans og eru uppákomur nánast á hverjum degi. INGA MARÍA LEIFSDÓTTIR tók sér far norður til að skoða það sem er í boði.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 550 orð
| 1 mynd
ÍTALSKI orgelleikarinn Andrea Macinanti frá Bologna leikur á hádegistónleikum í Hallgrímskirkju í dag kl. 12. Hann leikur einnig á fimmtu tónleikum Sumarkvölds við orgelið annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 20.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 1757 orð
| 1 mynd
Níu ungir myndlistarmenn hafa opnað sýningu á skiptistöðinni við Hlemm í Reykjavík. Sýningin er liður í Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000 og eru öll verkin unnin sérstaklega fyrir hana. Tveir listamannanna, Þóroddur Bjarnason og Hlynur Helgason, segja SÚSÖNNU SVAVARSDÓTTUR frá þeim nýstárlegu verkum sem á sýningunni eru, sem og hugmyndinni á bak við hana.
Meira
KAMMERTÓNLEIKAR á Kirkjubæjarklaustri verða haldnir í tíunda sinn dagana 11., 12. og 13. ágúst. Skipuleggjandi tónleikanna er ásamt Eddu Erlendsdóttur menningarmálanefnd Skaftárhrepps.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 17 orð
| 1 mynd
Hún gargaði á mig að vakna og ég hrökk upp og sló hana. Ég kastaði henni í vegginn en hún splundraðist ekki í óteljandi mola heldur gaf frá sér niðurbælt frekjugarg. En þagði að lokum. Ég hlammaði hausnum aftur á koddann og breiddi sængina upp fyrir...
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 27 orð
| 1 mynd
stendur nú sem hæst á Akureyri með fjölbreyttri dagskrá á mörgum stöðum í bænum. Þar gefst fólki kostur á að njóta myndlistar, tónlistar, leiklistar, bókmennta og fleiri...
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 2362 orð
| 8 myndir
I Þetta voru alvöru sumardagar eins og þeir gerast beztir á Íslandi; hitinn yfir 20 stig. En það er merkilegt að þá fer fólk strax að bera sig illa; það dæsir og kvartar yfir mollu ef ekki hreyfir vind.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 1744 orð
| 5 myndir
Síðastliðin fimm ár hefur ferðafélagið Útivist unnið að skipulagningu og merkingu gönguleiða á hálendi Skaftárhrepps. Vinsælasta gönguleiðin á þessu svæði er án efa leiðin sem liggur frá Sveinstindi við Langasjó í Skælinga og um Eldgjá.
Meira
MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur. Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýning. Opið alla daga í sumar kl. 13-17 til 31. ág. Ásmundarsafn: Sýning á verkum Ásmundar Sveinssonar. Til 1. nóv. Verk í eigu safnsins. Byggðasafn Hafnarfjarðar: Vaxmyndasýning.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 32 orð
| 1 mynd
í London 1948 voru þeir fyrstu, sem haldnir voru eftir heimsstyrjöldina síðari. Íslendingar sendu þangað hóp íþróttamanna og nokkrir áhugamenn fóru að auki, þ.á m. Gísli Sigurðsson lögregluþjónn, sem hélt dagbók um...
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 493 orð
| 4 myndir
ÍSLENSKA þjóðin á því mikla láni að fagna að eiga endurnýjanlegar orkulindir sem geta séð henni fyrir öllum raforkuþörfum sínum um langa framtíð og eru fá lönd í heiminum sem eru jafnvel sett í þessum efnum.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 695 orð
| 3 myndir
Skálholtsmessa eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson verður frumflutt í dag af kammerhópnum Caput og þremur einsöngvurum í Skálholtskirkju. MARGRÉT SVEINBJÖRNSDÓTTIR fékk Hróðmar til að segja sér frá tilurð messunnar en hann er annað tveggja staðartónskálda Sumartónleika í Skálholtskirkju.
Meira
29. júlí 2000
| Menningarblað/Lesbók
| 36 orð
| 1 mynd
HELGA Aðalheiður Jónsdóttir, blokkflautuleikari, og Pétur Jónasson, gítarleikari, koma fram á tónleikum í Lækjargötu 4, Árbæjarsafni, klukkan 14 í dag, laugardag. Þar spila þau fyrir gesti safnsins m.a.
Meira
Bjarminn frá ævinnar baksýnisgleri blindar hann okkur sem hilllingatál? Var hann svo fagur, sá gróður sem gréri, var grámóska hversdagsins hamingja í sál? Varð baráttan forðum að bjartsýnis ölvun? Skal bannfæra nútímans allsnægta flóð?
Meira
Sá siður að efna til glæsilegra og fjölmennra útihátíðarhalda sækir upphaf sitt til 19. aldarinnar þegar glæður frönsku byltingarinnar kveiktu bál þjóðernishyggjunnar í Evrópu.
Meira
Háfjöllin mynda hring um litla flóann sem hrikaleg tröll með skapið fullt af erjum. Í þrotlausum dyngjum þangið grær á skerjum. Í þröngbúnum giljum læðist hungruð tóan. Brosandi vorið boðar mávum kátum: Blessun af æti veitir þessi fjörður.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.