HUNDRUÐ þúsunda manna söfnuðust saman í miðborg Belgrad, höfuðborgar Serbíu, í gærkvöld til að fagna frambjóðanda stjórnarandstöðunnar, Vojislav Kostunica, sem fáir efast um að hafi borið sigurorð af Slobodan Milosevic, forseta Júgóslavíu, í...
Meira
LECH Walesa, fyrrverandi leiðtogi Samstöðu í Póllandi, tók í gær undir með þeim, sem krefjast þess, að Aleksander Kwasniewski, forseti Póllands, segi af sér.
Meira
DREGIÐ hefur saman með andstæðingum og fylgismönnum evrunnar í Danmörku og samkvæmt Gallup-könnun, sem birt var í gær, munar aðeins 1%, andstæðingunum í vil.
Meira
AÐ MINNSTA kosti 63 fórust þegar grísk ferja sökk eftir að hafa steytt á skeri við innsiglinguna að höfn eyjunnar Paros í Eyjahafi í fyrrakvöld, að sögn grískra yfirvalda í gær. 448 manns var bjargað úr sjónum og af skerjum í grennd við slysstaðinn.
Meira
FRANSKA flugfélagið Air France og tryggingafélag þess hefur stefnt bandaríska flugfélaginu Continental Airlines vegna hugsanlegs þáttar þess í orsökunum fyrir því að það kviknaði í Concorde-þotu Air France í flugtaki frá Charles de Gaulle-flugvelli við...
Meira
ÁRLEGUM fundi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (IMF) og Alþjóðabankans (World Bank) lauk í Prag, höfuðborg Tékklands, síðdegis í gær, degi fyrr en gert hafði verið ráð fyrir.
Meira
Vörukaup og aðkeypt þjónusta ríkisstofnana og ríkisfyrirtækja umfram þrjár milljónir króna og framkvæmdir sem fara yfir fimm milljónir króna ber að bjóða út samkvæmt reglugerð um innkaup ríkisins og handbók um opinber innkaup sem kom út snemma árs í fyrra.
Meira
STEFNT er að byggingu sundlaugar á Hólmavík á næsta ári. Að sögn sveitarstjórans er einnig að verða þörf á byggingu nýs leikskóla og hótel vantar tilfinnanlega á staðinn.
Meira
PÓLITÍSKIR bandamenn Jacques Chiracs Frakklandsforseta hvöttu hann í gær til að viðurkenna opinberlega ólöglega fjáröflunarstarfsemi Gaullistaflokks hans á liðnum árum, í því skyni að binda enda á spillingarásakanir sem gengið hafa á víxl undanfarna daga...
Meira
DÁGÓÐUR hópur fólks kom til að skoða húsið Esjuberg við Þingholtsstræti í Reykjavík á mánudag að sögn Eiríks Svavarssonar, fulltrúa borgarlögmanns, en Reykjavíkurborg auglýsti húsið til sölu í Morgunblaðinu á sunnudag.
Meira
GREINT var frá því í fréttum Sjónvarps í gærkvöldi að Eivind Reiten, forstjóri áldeildar norska stórfyrirtækisins Norsk Hydro, hefði sagt í viðtali við norska viðskiptablaðið Dagens Næringsliv, að óvíst væri hvort fyrirtækið tæki þátt í byggingu álvers á...
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Austurlands þess efnis að ákvörðun sveitarfélagsins Hornafjarðar um eignarnám á 30 þúsund rúmmetrum af grjóti úr námu í svokölluðu Litla-Horni í landi jarðarinnar Horns styðjist ekki við gilda ákvörðun um...
Meira
LÍFEYRISÚTGJÖLD hafa vaxið úr 4,5% af landsframleiðslu árið 1990 í 5,8% af landsframleiðslu árið 2000. Þetta kemur fram í Hagvísum Þjóðhagsstofnunar fyrir september.
Meira
EIGI að vera unnt að draga úr notkun einkabílsins til að draga úr umferðarþunga í borginni hlýtur að vera nauðsynlegt að hvetja almenning til meiri notkunar almenningsvagna.
Meira
VINNUSLYS eru algengust meðal þeirra sem starfa í byggingarvinnu en skráð vinnuslys í byggingarvinnu á síðasta ári voru 167. Alls slösuðust 1.304 í vinnuslysum á síðasta ári, þ.e.
Meira
SKRÁNING á grunnnámskeið Greiningarstöðvar ríkisins um einhverfu og skyldar þroskaraskanir stendur nú yfir en það verður haldið í Gerðubergi 3. og 4. október.
Meira
FRÆÐSLU- og félagsfundur verður haldinn í Samtökum lungnasjúklinga í dag, fimmtudaginn 28. september, í Safnaðarheimili Hallgrímskirkju í Reykjavík og hefst fundurinn kl. 20. Á fundinn kemur Lárus M. Marinusson íþróttakennari.
Meira
DR. ASHLEY Sparrow, sérfræðingur við plöntu- og örveruvísindadeild Háskólans í Canterbury á Nýja-Sjálandi, heldur fyrirlestur fimmtudaginn 28. september á Líffræðistofnun Háskóla Íslands í stofu G-6 að Grensásvegi 12, kl. 12.20.
Meira
VINNUVIKA verslunarmanna styttist um hálftíma frá og með næstu mánaðamótum, samkvæmt ákvæðum nýgerðra kjarasamninga um styttingu vinnuvikunnar. Að sögn Magnúsar L.
Meira
Egilsstöðum -Uppskeruhátíðin Ormsteiti var haldin með pomp og prakt á Egilsstöðum dagana 6. til 10. september sl., en hátíðin hefur verið haldin af myndarskap á hverju hausti í hálfan áratug.
Meira
GUÐRÚN Arnardóttir varð í sjöunda sæti í 400 metra grindahlaupi á Ólympíuleikunum í Sydney í gær, hljóp á 54,63 sekúndum, sem er fjórði besti tími sem hún hefur náð. Guðrún hafði tilkynnt fyrir leikana að hún hygðist hætta og staðfesti það eftir hlaupið.
Meira
HANDRIÐ féll ofan á þrjú börn í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi í gærmorgun. Börnin höfðu verið að leik á og við handriðið, sem er við inngang í skólann, þegar festingar þess gáfu sig með fyrrgreindum afleiðingum. Að sögn Örnu B.
Meira
FORYSTA breska Verkamannaflokksins beið ósigur á flokksþinginu í Brighton í gær, þegar ályktunartillaga leiðtoga verkalýðshreyfingarinnar um umbætur í lífeyrismálum var samþykkt.
Meira
HAUSTLITIRNIR eru komnir til Reykjavíkur og það virðist vera þónokkur eftirspurn eftir þeim, sérstaklega laufunum sem hanga fölgræn, gul og jafnvel gulllituð á trjánum milli húsanna.
Meira
OPINBERRI heimsókn Sólveigar Pétursdóttur dómsmálaráðherra til Litháens lauk í gær með undirritun samstarfssamnings milli dómsmálaráðuneyta landanna tveggja.
Meira
ORKUBÚ Vestfjarða vinnur að miklum endurbótum á Þverárvirkjun í Steingrímsfirði. Yfirborð Þiðriksvallavatns verður hækkað með nýrri jarðstíflu sem er sex metrum hærri en núverandi stífla í farvegi Þverár.
Meira
Á lokaspretti dönsku kosningabaráttunnar er kosið um afstöðuna til Evrópusambandsins fremur en efnahagsmál, segir Urður Gunnarsdóttir. Kosningarnar í dag kunna að hafa mikil áhrif á Evrópuumræðuna í Danmörku.
Meira
FRAMLAG borgarsjóðs til menningarnætur 2000 var 3,2 milljónir króna, að því er fram kemur í svari verkefnisstjórnar menningarnætur við fyrirspurn borgarráðsfulltrúa Sjálfstæðisflokksins. Borgarráðsfulltrúarnir lögðu fram fyrirspurnina hinn 5.
Meira
FULLTRÚAR Samfylkingarinnar í útvarpsráði, Anna Kristín Gunnarsdóttir og Mörður Árnason, lögðu fram bókun á fundi útvarpsráðs í fyrradag þar sem þau lýsa þeirri skoðun sinni að tekjuöflun RÚV með kostun og auglýsingum sé komin út yfir eðlileg mörk.
Meira
SLYSAVARNAFÉLAGIÐ Landsbjörg stendur fyrir kvennaráðstefnu á Gufuskálum um næstu helgi. Þar munu 50 slysavarnakonur víðsvegar af á landinu eyða saman helginni og ræða ný verkefni á nýrri öld.
Meira
Í SKÁLDSÖGUNNI Ferðin að miðju jarðar eftir Jules Verne, sem fyrst var gefin út um miðja síðustu öld, ganga söguhetjurnar niður um gíg Snæfellsjökuls og í átt að miðju jarðar og lenda í ýmsum ævintýrum á leiðinni.
Meira
GÆSLUVARÐHALD yfir konunni sem var úrskurðuð í gæsluvarðhald hinn 14. september sl. vegna gruns um að hafa svikið 28 milljónir út úr sex rosknum karlmönnum rann út á mánudaginn.
Meira
UM síðustu helgi var brotist inn í gám við verslun Smith & Norland við Nóatún. Úr gámnum var m.a. stolið sjö nýjum uppþvottavélum af Siemens-gerð.
Meira
RÚMLEGA fimmtugur karlmaður féll ofan af þaki húss við Lokastíg í gær. Maðurinn var að dytta að þakinu þegar honum skrikaði fótur með þeim afleiðingum að hann féll af þakinu, ofan á bakhús og þaðan á þvottasnúrur.
Meira
ALLS fara 78.329 bílar að meðaltali um gatnamót Kringlumýrarbrautar og Miklubrautar á hverjum sólarhring samkvæmt talningu umferðardeildar borgarverkfræðingsins í Reykjavík frá liðnu vori. Mest umferð er í vestur eða 22.580 bílar, í suður fara 20.
Meira
TEKIST var á um Vatnsendamálið á fundi bæjarstjórnar Kópavogs í fyrradag en fundurinn var haldinn eftir að áhugahópur um Sveit í borg hafði lagt fram tæplega 11 þúsund undirskriftir gegn fyrirhuguðum byggingaráformum á Vatnsenda.
Meira
BERGLIND Rán Ólafsdóttir gengst undir meistarpróf við læknadeild Háskóla Íslands föstudaginn 29. september kl. 13.30 og heldur fyrirlestur um verkefni sitt: "Genetics of Narcolepsy. The role of the Hypocretin System in Sleep Disorders.
Meira
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra sagði í ávarpi á ferðamálaráðstefnu Ferðamálaráðs, sem haldin var á Ísafirði í gær, að nauðsynlegt væri að færa heimamönnum vald á ýmsum sviðum ferðaþjónustunnar til að ráða eigin málum.
Meira
SJÓBIRTINGUR hefur verið óvenjusmár í Vatnamótum í sumar og þó að eitthvað hafi veiðst af vænum fiski, hafa smáir fiskar verið í meirihluta. Í bergvatnsánum á svæðinu er meðalþungi aflans þó mun meiri.
Meira
FÖSTUDAGINN 29. september frá kl. 9 til 15 stendur Garðyrkjuskóli ríkisins, Reykjum í Ölfusi, fyrir námskeiði um allt sem viðkemur haustlaukum, litasamsetningu og umhirðu þeirra.
Meira
NÝR bátur bættist í flota Grímseyinga um helgina, en hann er í eigu feðganna Óla Hjálmars Ólasonar og Óla Bjarna Ólasonar. Báturinn er af gerðinni Sómi 960 og heitir Óli Bjarnason EA-249. Í honum er 460 hestafla vél og gengur hann 30 sjómílur.
Meira
FYRSTU drög nýs lagafrumvarps um endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar útlendinga á Íslandi eru í umsögn nokkurra aðila, að sögn Kjartans Gunnarssonar, skrifstofustjóra í viðskiptaráðuneytinu.
Meira
RÍKI á Vesturlöndum hafa brugðist harðlega við tilkynningu yfirkjörstjórnar í Júgóslavíu um að haldin verði önnur umferð forsetakosninganna, og taka undir með stjórnarandstöðunni um að Vojislav Kostunica hafi fengið meirihluta atkvæða í fyrstu umferð.
Meira
ÍSLANDSFLUG hefur óskað eftir leyfi frá Sameinuðu þjóðunum til að fljúga til Íraks og lenda í Bagdad. Flugbann er yfir Írak og s.k. refsiaðgerðanefnd veitir ein undanþágur frá því.
Meira
NADIA Viret og Yaiza Salazar, sem eru fjórtán ára frönskumælandi svissneskir nemar, fannst vera kalt á Íslandi, en þær voru sammála því að landið væri afar fallegt. "Við erum búnar að sjá Geysi, eldfjöll og gíga og fara á hestbak," sagði Yaiza.
Meira
MIKLAR framkvæmdir standa nú yfir á Gleráreyrum í tengslum við byggingu verslunarmiðstöðvarinnar Glerártorgs, en áætlað er að opna hana í byrjun nóvembermánaðar.
Meira
KENNARAFÉLAG Vesturlands, sem er eitt af tíu svæðafélögum Félags grunnskólakennara, heldur árlegt haustþing sitt að Varmalandi í Borgarfirði föstudaginn 29.
Meira
Stærðfræði fékk veglegri sess í grunn- og framhaldsskólum í gær í tilefni af degi stærðfræðinnar og voru hefðbundnar kennslubækur látnar víkja fyrir stærðfræðiþrautum á borð við hvað mörgum fótboltum megi koma fyrir í fólksbíl.
Meira
SAMNINGAR tókust í gærkvöldi í kjaradeilu ófaglærðra starfsmanna á Sjúkrahúsi Suðurlands. Verkalýðsfélagið Báran-Þór og samninganefnd ríkisins undirrituðu samning í húsakynnum ríkissáttasemjara á ellefta tímanum í gærkvöldi.
Meira
Egilsstöðum- Verslunin Símabær opnaði fyrri hluta september nýjar höfuðstöðvar fyrirtækisins á Egilsstöðum. Um er að ræða skrifstofu og alla umsýslu fyrirtækisins, ásamt verslun með síma og rekstrarvörur þeim tengdar og úrval raftækja.
Meira
SKEMMTIKVÖLD skákáhugamanna hefja aftur göngu sína eftir sumarfrí föstudaginn 29. september kl. 20. Skemmtikvöldin eru sem fyrr haldin í Hellisheimilinu, Þönglabakka 1.
Meira
DAGUR stærðfræðinnar var í gær og setti það svip sinn á skólastarfið víða um landið. Í Melaskóla í Reykjavík var fátt annað en stærðfræði á stundaskránni. Hver árgangur glímdi við dæmi sem bæði voru ætluð hug og hönd. Sjöttubekkingar fóru t.a.m.
Meira
SLÁTURFÉLAG Suðurlands, Vífilfell, ÍslenskAmeríska, Innnes, Landssíminn, Sól-Víking og Hekla hafa stofnað Birtingarhúsið ehf. Öll fyrirtækin, sem standa að stofnun Birtingarhússins, munu eiga þar jafnan eignarhlut.
Meira
AÐ MATI umhverfisráðherra, Sivjar Friðleifsdóttur, hefur það mikla þýðingu fyrir þjóðarbúið að lýsa Vatnajökul þjóðgarð, það sé ekki síður mikilvægt en gildi þess að vernda náttúruna og lífríkið á svæðinu.
Meira
VETRARSTARFIÐ hefst hjá Indlandsvinafélaginu fimmtudagskvöldið 28. september kl. 20.30 að Fríkirkjuvegi 11. Aðalheiður Atladóttir, arkitektanemi, var í námsferð í nágrannalandi Indlands, Tíbet, í sumar og mun hún sýna myndir frá för sinni.
Meira
SKIPULAGSSTOFNUN hefur borist tillaga Héraðsvatna ehf. að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum 33 MW Villinganesvirkjunar í Skagafirði. Í tilkynningu frá Skipulagsstofnun segir að allir geti kynnt sér tillöguna og lagt fram athugasemdir.
Meira
FJÖLSKYLDA sést hér yfirgefa heimili sitt í Ranaghat í norðausturhluta Indlands, en mikil flóð hafa verið í Bangladesh og á austurhluta Indlands undanfarið. Talið er að a.m.k.
Meira
ANNA Guðný Hermannsdóttir flytur föstudaginn 29. september kl. 13.15 í stofu G-6, Grensásvegi 12, erindið: Hitaþolinn amylasi úr fornbakteríunni Thermococcus stetteri.
Meira
ÚTBOÐIÐ á áætlunarsiglingum á Breiðafirði verður ekki afturkallað, að sögn Helga Hallgrímssonar vegamálastjóra. Forráðamenn Breiðafjarðarferjunnar Baldurs hf.
Meira
MICHALIS Stathopoulos, dómsmálaráðherra Grikklands, fyrirskipaði í gær rannsókn á ferjuslysi í Eyjahafi í fyrrakvöld sem kostaði tugi manna lífið.
Meira
RISABRJÓSTSYKUR á stærð við golfkúlur hefur verið á markaði hérlendis um nokkurt skeið. Árvekni og Hollustuvernd ríkisins vara eindregið við því að börn neyti sælgætisins og segja það geta reynst afar hættulegt.
Meira
Jack D. Ives fæddist 15. október 1931 í Grimsby. Hann lauk prófi frá háskólanum í Nottingham 1953 í landafræði. Hann tók doktorspróf frá Mc Gill-háskóla í Kanada árið 1956.
Meira
Síaukinn fjöldi einkabíla á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum kallar á meiri afköst í gatnakerfinu. Umferðarhnútar eru daglegt brauð kvölds og morgna þegar þúsundir og tugþúsundir bíla fara um nánast á sömu mínútu. Jóhannes Tómasson og Árni Sæberg bregða upp broti af vandanum.
Meira
TÓNLISTARSKÓLINN í Reykjavík sem var stofnaður 1930, elsti starfandi tónlistarskóli landsins, mun halda upp á 70 ára afmæli sitt með hátíðartónleikum í Háskólabíói sunnudaginn 1. október nk. kl. 14.
Meira
Blásarakvintett Reykjavíkur flutti verk eftir Peter Rasmussen, György Ligeti, Paul Hindemith, Antonin Reicha og frumflutt var nýtt verk eftir Tryggva M. Baldursson. þriðjudagurinn 26. september, 2000.
Meira
ASTRÓ: Astró opnar að nýju á föstudagskvöld. Nýir eigendur hafa tekið við Astró og af því tilefni hafa verðar gerðar umtalsverðar breytingar á staðnum.
Meira
Leikstjórn og handrit: Stephan Elliott. Byggt á skáldsögu Marc Behm. Aðalhlutverk: Ewan McGregor og Ashley Judd. (101 mín) Bretland/Kanada, 1999. Myndform. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
DANSKI kammerkórinn Camerata heldur tónleika í Langholtskirkju í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 undir heitinu "Stabat Mater 2000". Stjórnandi kórsins er Michael Bojesen. Flutt verður m.a. ný dönsk og sænsk kórtónlist eftir m.a.
Meira
SÓLVEIG Sveinbjörnsdóttir myndlistarkona og hönnuður í Finnlandi hefur fengið mikið umtal og athygli fyrir stól sem hún hannaði í eftirmynd dömubindis með vængjum.
Meira
ÁRNI Björn Guðjónsson, húsgagnasmíðameistari og hönnuður, sýnir hugmyndir sínar á stóru alþjóðlegu húsgagnasýningunni International furniture fair í Valencia á Spáni 25.-30. september. Húsgagnasýning þessi er með þeim stærstu í heimi.
Meira
ÍSLENSKI dansflokkurinn hefur starfsárið með sýningu á verkunum "NPK" eftir Katrínu Hall, "Maðurinn er alltaf einn" eftir Ólöfu Ingólfsdóttur og "Flat Space Moving" eftir Rui Horta í Borgarleikhúsinu 7. október.
Meira
LEIKARINN Michael Richards sem lék hinn óviðjafnanlega hrakfallabálk Cosmo Kramer í þáttunum sálugu Seinfeld er mættur til leiks á nýjan leik í nýjum sjónvarpsþáttum sem hefja göngu sína vestra í október.
Meira
Um miðjan september opnaði Þóra Þórisdóttir sýninguna Í Víngarðinum í galleríi @hlemmur.is. Á sýningunni sýnir Þóra verk sem hún vann fyrr á þessu ári í litlu víngerðarþorpi í Ungverjalandi. Unnar Jónasson spurði Þóru út í sýninguna og aðdraganda hennar.
Meira
LISTASAFN REYKJAVÍKUR - HAFNARHÚS Kl. 21 Óvæntir bólfélagar og cafe9.net Orgelkvartettinn og Ingirafn Steinarsson leiða saman hesta sína í óvæntri tólistaruppákomu. Gestgjafar taka á móti gestum frá kl. 15. cafe9.net www.reykjavik2000.is - wap.olis.
Meira
Í nýjasta hefti þýzka fréttatímaritsins Der Spiegel birtist grein eftir þýzka blaðamanninn Henryk M. Broder um menningarlíf á Íslandi. Þar segir hann íbúa hinnar hrjóstrugu eyju norður við heimskautsbaug byggja líf sitt á einstakan hátt á móðurmálsást, bókmenningu, listum og leikhúsi.
Meira
Vor 2000 inniheldur efnisskrá vortónleika Karlakórs Reykjavíkur í hinu nýja tónlistarhúsi kórsins, Ými. Sigrún Hjálmtýsdóttir (Diddú) syngur einsöng í níu lögum með kórnum og einnig syngur Björn Björnsson einsöng í tveimur lögum.
Meira
Framboð nýstárlegra rétta í Tilraunaeldhúsinu hefur verið mikið undanfarið og einkum hefur matseðill hinna Óvæntu bólfélaga vakið athygli fyrir torkennilegar stöppur og hræringa. Í kvöld mun Orgelkvartettinn Apparat bregða á leik með félagi íslenskra útvarpsáhugamanna og Arnar Eggert Thoroddsen tók því púlsinn...
Meira
MARGRÉT Sigurðardóttir heldur söngtónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld kl. 20. Aðspurð segir hún að á efnisskránni sé að finna lög úr ýmsum áttum; "eitthvað í ætt við djass, annað úr klassík eða popptónlist og frumsamin tónlist slæðist með.
Meira
"ÞESSI bók er málsvari náttúrunnar," sagði Guðmundur Páll Ólafsson þegar hann kynnti nýja bók sína, Hálendið í náttúru Íslands, sem kom út hjá Máli og menningu í gær.
Meira
VETRARSTARF Ritlistarhóps Kópavogs hefst í dag og þá munu félagar úr hópnum lesa úr verkum sínum. Upplesturinn fer fram í Gerðarsafni kl. 20. Aðgangur er...
Meira
FYRIR rúmri viku hóf EGG-leikhúsið sýningar á hinu umdeilda leikriti "Shopping & Fucking" eftir Mark Ravenhill í Nýlistasafninu við Vatnsstíg. Nú eru síðustu forvöð að sjá þessa sýningu í Nýlistasafninu, þar sem sýningarhaldi lýkur 1.
Meira
ÞAÐ MUNA eflaust margir eftir því þegar söngkonan Whitney Houston var gripin glóðvolg í tollinum á Hawaii með marijúana í fórum sínum í janúar síðastliðnum.
Meira
60 ÁRA afmæli . Í dag, fimmtudaginn 28. september, verður sextug Þórdís Haraldsdóttir, Skúlagötu 40b, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Gunnar Guðbjörnsson . Þau hjónin eru stödd á afmælisdaginn á Ponet Mar á...
Meira
80 ÁRA afmæli . Í dag, fimmtudaginn 28. september, verður áttræður Grímur Jónsson, fyrrverandi héraðslæknir, Fjarðargötu 17, Hafnarfirði. Eiginkona hans er Gerda M. Jónsson. Þau verða að heiman í...
Meira
Liðið er hátt á aðra öld, enn mun þó reimt á Kili, þar sem í snjónum bræðra beið beisklegur aldurtili: skuggar lyftast og líða um hjarn líkt eins og mynd á þili, hleypur svo einn með hærusekk, hverfur í dimmu gili.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman í Munkaþverárkirkju af sr. Hannesi Erni Blandon brúðhjónin Hafdís Inga Haraldsdóttir og Jón Guðmundur Stefánsson . Heimili þeirra er að Huldugili 55,...
Meira
Við teljum afar brýnt að skylda til samhliða rökstuðnings sé lögð á herðar stjórnvalda, segja Margrét Einarsdóttir og Bjarni Ólafsson, í þeim tilvikum þegar málin snúast um mikilvæga hagsmuni borgaranna.
Meira
Öflugasta leiðin til að stemma stigu við vaxandi þörf á hjúkrunarrýmum, segir Anna Birna Jensdóttir, er að efla forvarnir og meðvitund Íslendinga.
Meira
MENN TALA um að það sé svæfandi að keyra á löglegum hámarkshraða og því sé hætta á að menn sofni undir stýri. Aftur á móti sé minni hætta á því ef menn keyri t.d. á 110 km hraða.
Meira
ÞAÐ VAR á sólbjörtum sumardegi í ágúst að ég var á rölti um miðbæinn. Á Austurvelli fyllti angan fögru blómanna vitin. Á bekk sátu eldri konur og silfurgrátt hár þeirra minntu á biðukollur. Ég settist á bekk skammt frá og virti fyrir mér mannlífið.
Meira
HELGINA 16.-17. september sótti ég námskeið í íþróttahúsi Bessastaðahrepps. Námskeiðið bar yfirskriftina "Andi alheimsins" og fjallaði um að vera meðvitaður um líkama sinn, lífið og þá orku sem er í öllum hlutum, lifandi sem "dauðum".
Meira
FÉLAG eldri borgara hefur háð langa baráttu fyrir að endurheimta þau réttindi sem af öldruðum hafa verið tekin á undanförnum árum. Nú boðar félagið til útifundar á Austurvelli við setningu Alþingis 2. október nk.
Meira
Sú breyting sem var gerð á lögum um meðferð opinberra mála á síðasta ári vegna skýrslutöku á börnum í kynferðisbrotamálum hefur, að mati Herdísar Hjörleifsdóttur, verið mikil afturför.
Meira
Ég skil vel áhuga markaðsdeildar Sjónvarpsins á að auka auglýsingatekjur sínar, segir Sigurður Ágúst Sigurðsson, en þetta er of mikið af því góða.
Meira
Líklegt er að fáir en sterkir byggðakjarnar muni einkenna byggðaþróun. Hjálmar Árnason hyggur að þeir staðir geti keppt innbyrðis í "útboði" ríkisvaldsins til að bjóða vistun nokkurra ríkisstofnana.
Meira
VÍKVERJI er einn þeirra sem fylgdist stoltur með afrekum Völu Flosadóttur og Guðrúnar Arnardóttur í frjálsíþróttakeppninni í Sydney síðastliðinn mánudag. Afrek þeirra eru frábær og víst er að mikil vinna liggur að baki árangrinum.
Meira
Vaka hefur lagt til, segja Borghildur Sverrisdóttir og Þórlindur Kjartansson, að leyst verði úr þjónustumálum LÍN með samstilltu átaki stúdenta, LÍN og starfsmanna sjóðsins.
Meira
Mikilvægt er að tryggja betur rétt íslenskra nemenda með mál- og talörðugleika, eða aðrar sérþarfir/fötlun, segir Eyrún Ísf. Gísladóttir, til sérhæfðrar þjónustu innan skólakerfisins.
Meira
Gunnar Sigurður Magnússon fæddist í Reykjavík 27. september 1930 og ólst upp í Skerjafirði. Stundaði hann nám í myndlistarskólum í Reykjavík, eftir það ferðaðist Gunnar til Noregs og stundaði nám við listaskóla í Ósló.
MeiraKaupa minningabók
Haraldur Pálsson fæddist á Ísafirði 24. apríl 1927. Hann lést á líknardeild Landspítalans 30. ágúst síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 7. september. Eftirfarandi minningargrein birtist í blaðinu 15. september og er endurbirt vegna mistaka við vinnslu blaðsins, en tvær línur úr greininni féllu niður. Hlutaðeigendur eru beðnir velvirðingar á mistökunum.
MeiraKaupa minningabók
Jón Helgason, skósmíðameistari, fæddist á Neðri-Núpi, Miðfirði, Vestur-Húnavatnssýslu 11. september 1910. Hann lést 20. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Ólöf Jónsdóttir, f. 15. febrúar 1880 á Hömrum í Þverárhlíð, d.
MeiraKaupa minningabók
Vigdís Pálsdóttir fæddist í Galtaholti á Rangárvöllum 7. september 1910. Hún lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, Fossvogi 13. spetember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Keflavíkurkirkju 23. september.
MeiraKaupa minningabók
SÍÐUSTU sex ár hefur með ári hverju fjölgað þeim sýnum af ávöxtum og grænmeti sem greinast með varnarefni hér á landi. Hollustuvernd ríkisins hefur annast eftirlit með varnarefnum í ávöxtum og grænmeti frá árinu 1991.
Meira
Breski efnafræðingurinn Yvonne Shashoua hefur unnið að doktorsritgerð um verndun muna úr plasti og gúmmíi. Meðal annars rannsakar hún límkennt efni sem myndast utan á gömlum barbídúkkum en það er hugsanlega talið geta haft skaðleg áhrif á heilsu og þá sérstaklega hjá ungum börnum.
Meira
Í dag hefst rýmingarsala á öllum vörum í Nýkaupi í Mosfellsbæ. Að sögn Finns Árnasonar, framkvæmdastjóra Nýkaups, verður veittur 25% afsláttur af öllum vörum verslunarinnar. Rýmingarsölunni lýkur á laugardaginn en þá verður versluninni lokað.
Meira
Í dag er fimmtudagur 28. september, 272.dagur ársins 2000. Orð dagsins: Auga þitt er lampi líkamans. Þegar auga þitt er heilt, þá er og allur líkami þinn bjartur, en sé það spillt, þá er og líkami þinn dimmur.
Meira
"Við höfum áhuga á því að ráða því hvar ... við hvern við skiptum," sagði þingmaðurinn í samtali við Stöð 2. "Útboð hefur þann ókost að við myndum ekki ráða því."
Meira
Hvítur á leik. Staðan kom upp í Norðurlandamóti taflfélaga sem lauk fyrir skömmu á Netinu. Evgenía P. Hansen (2162), en hún er eiginkona danska stórmeistarans Lars Bo Hansen, hafði hvítt gegn Færeyingnum Herluf Hansen (2047). 31.Hxh7+!
Meira
ANDRI Sigþórsson úr KR, markakóngur efstu deildarinnar í knattspyrnu, gekk í gær frá samkomulagi við austurríska félagið Salzburg, samkvæmt frétt sem birtist á heimasíðu félagsins síðdegis í gær.
Meira
Ólympíumeistari í 400 metra grindahlaupi karla. Fæddur: 29. desember 1978 í Albany, Georgíufylki, Bandaríkjunum. Helstu afrek: Vann til bronsverðlauna á heimsmeistaramóti unglinga 1996 í Sydney.
Meira
ARSENAL og Valencia eru einu liðin með fullt hús stiga í meistaradeild Evrópu að lokinni fyrri umferð riðlakeppninnar. Arsenal vann mjög sannfærandi sigur á Lazio frá Ítalíu, 2:0, á heimavelli sínum, Highbury í London, og Valencia lagði Lyon frá Frakklandi, 1:0, á Spáni. Þar með eru Arsenal og Valencia nánast örugg með að komast áfram en tvö efstu liðin úr hverjum átta riðlanna halda áfram keppni í meistaradeildinni.
Meira
ÁSGEIR ÖRN Hallgrímsson lék sinn fyrsta leik fyrir Hauka og skoraði tvö góð mörk, sem hann fagnaði innilega. Félögum hans var líka skemmt því þeir vissu sem var að 16 ára nýliðans beið kraftmikil busavígsla að leik loknum.
Meira
BJARKI Sigurðsson, þjálfari og leikmaður Aftureldingar, var maðurinn á bakvið sigur sinna manna gegn Stjörnunni í Garðabæ en Mosfellingar höfðu betur í fyrsta framlengda leik tímabilsins, 26:24. Bjarki tryggði Aftureldingu framlengingu þegar hann jafnaði metin í 22:22, tíu sekúndum fyrir lok venjulegs leiktíma. Áhorfendur í Garðabæ fengu mikið fyrir aurana. Leikurinn var jafn og spennandi og ef marka má viðureign liðanna er von á skemmtilegu Íslandsmóti.
Meira
SERGEI Bubka, mesti stangarstökkvari allra tíma, verður ekki meðal þeirra tólf bestu þegar úrslitakeppnin í stangarstökki Ólympíuleikanna fer fram. Bubka komst ekki yfir 5,70, sem var byrjunarhæð hans og féll því úr keppni án þess að komast yfir rána.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen og Arnar Gunnlaugsson mættust í leik með varaliðum Chelsea og Leicester í fyrrakvöld. Chelsea vann, 2:1, en hvorugur náði að skora. Þeir fóru með sínum félögum til leikja í UEFA-bikarnum sem fram fara í kvöld.
Meira
Ólympíumeistari í kringlukasti kvenna. Fædd: 16. nóvember í Dolgoprudny, Hvíta-Rússlandi. Helstu afrek : Vann til gullverðlauna á heimsmeistaramótinu í Gautaborg árið 1995.
Meira
BANDARÍKJAMAÐURINN Angelo Taylor kom fyrstur í mark í 400 metra grindahlaupi karla. Tími hans í úrslitahlaupinu, 47,50 sekúndur, sem er sá besti sem náðst hefur í heiminum ár. Hadi Somayli frá Sádi Arabíu varð annar, þremur hundruðustu á eftir Taylor, og vann þar með fyrstu verðlaun Sáda á Ólympíuleikum frá upphafi. Í þriðja sæti hafnaði svo S-Afríkumaðurinn Lewellyn Hebert á 47,81 sekúndum.
Meira
ÞAÐ gaf ekki á sjóinn hjá Hafsteini Ægi Geirssyni siglingamanni á Ólympíuleikunum í gær. Þá átti að fara áttunda umferð keppninnar á Laser-kænum sem frestað var í fyrradag vegna veðurs.
Meira
OLGA Shisigina frá Kazakhstan vann frekar óvæntan sigur í 100 metra grindahlaupi kvenna. Hún átti glæsilegan endaprett og skaust fram úr Glory Alozie frá Nígeríu á síðasta metranum en fyrirfram var Alozie talinn sigurstrangleg í hlaupinu.
Meira
GUÐJÓN Þórðarson, knattspyrnustjóri Stoke City, segir að Englandsmeistarar Manchester United séu óskaliðið í 3. umferð deildabikarkeppninnar en dregið verður til þriðju umferðarinnar í dag.
Meira
"ÞAÐ bærast svo sannarlega ýmsar tilfinningar í mér núna, ætli það megi ekki segja að það ríki í mér mikil tilfinningaleg ólga," sagði Guðrún Arnardóttir, eftir að hún hafði tryggt sér 7.
Meira
FÁTT benti til annars en Fram myndi tapa gegn FH í fyrstu umferð Íslandsmótsins í handknattleik karla þegar stundarfjórðungur lifði af seinni hálfleik liðanna í Kaplakrika í gærkvöldi.
Meira
ÞAU voru þung skrefin hjá þeim félögum, Jóni Arnari Magnússyni tugþrautarmanni og þjálfara hans, Gísla Sigurðssyni, út af ólympíuleikvanginum í Sydney í gær. Jón Arnar meiddur og hættur keppni. Fimm ára vinna sem miðaðist við það að Jón yrði í fremstu röð á leikunum var runnin út í sandinn. Það var því sannarlega dauft hljóðið í Gísla þegar hann settist niður og ræddi við Morgunblaðið.
Meira
Helstu félagaskiptin í úrvalsdeild karla í körfuknattleik fyrir þetta tímabil eru þessi: Davíð Þór Jónsson, Keflavík/Grindavík Elentínus Magnússon, Keflavík/Grindavík Kristján Guðlaugsson, Keflavík/Grindavík Kim Lewis, Snæfell/ Grindavík Páll Axel...
Meira
ÍSLENSKA drengjalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum undir 16 ára aldri, gerði 1-1 jafntefli við jafnaldra sína frá Hollandi í undanriðli Evrópumóts drengjalandsliða sem hófst í Hollandi í gær.
Meira
JOHN JOHNSON sem lék með Fram og ÍA á sínum tíma hefur skorað mest allra í einum leik í úrvalsdeildinni frá upphafi eða 71 stig gegn ÍS árið 1979. Næstur kemur Joe Wright sem skoraði 67 stig fyrir Breiðablik í sigurleik gegn Njarðvík árið 1993.
Meira
Jón Þorgrímur Stefánsson, knattspyrnumaður úr FH, er kominn til Svíþjóðar þar sem hann verður til reynslu hjá 1. deildarliði Landskrona í tvær vikur.
Meira
KONUR Úrslitaviðureign um gullverðlaun í -49 kg flokki: Lauren Burns (Ástral.) - Urbia R. Melendez (Kúba) 4:2 Viðureign um bronsverðlaun í -49 kg flokki: Shu - Ju Chi (Taívan) - Hanne H. Poulsen (Danm.
Meira
ELLINA Zvereva frá Hvíta-Rússlandi braut blað í sögu Ólympíuleikanna í gær með því að verða elsta konan til að vinna til gullverðlauna í frjálsum íþróttum. Zvereva, sem heldur upp á 40 ára afmæli sitt í nóvember, sigraði í kringlukasti en sigurkast hennar mældist 68,40 metrar. Zereva bætti met Liu Manoliu frá Rúmeníu en hún var 36 ára og 76 daga gömul þegar hún varð ólympíumeistari í kringlukasti á Ólympíuleikunum í Mexíkó árið 1968.
Meira
Kristinn R. Jónsson var í gær ráðinn knattspyrnustjóri Fram og er samningur hans til þriggja ára með hefðbundnum ákvæðum um endurskoðun eftir hvert tímabil.
Meira
EINS og við mátti búast lagði Guðrún Arnardóttir sig alla fram í því sem hún hefur sjálf kallað síðasta alvöru keppnishlaup ferilsins á þeim stað sem hún ætlaði sér, í úrslitum 400 m grindahlaups á Ólympíuleikum. Eftir að hafa tekið ákvörðun fyrir allnokkru um að rifa seglin að leikunum loknum lagði Guðrún sig fram um að komast skrefinu lengra en fyrir fjórum árum í Atlanta, þ.e. í úrslitin. Og henni brást ekki bogalistin. Hún hafnaði í 7. sæti á 54,63 sekúndum, fjórða besta tíma ferilsins.
Meira
GRÓTTA/KR fékk slæma útreið í fyrsta leik sínum í fyrstu deild handboltans í gær er liðið tapaði 25:14 fyrir sprækum og leikglöðum Valsmönnum á Hlíðarenda. Leikurinn var nokkuð jafn framan af en Valsmenn sigu framúr er líða tók á fyrri hálfleik. Þeir voru með örugga sjö marka forystu í hálfleik og bættu við sig í síðari hálfleik og unnu með 11 marka mun.
Meira
BLIKAR, nýliðarnir í fyrstu deild karla, fengu harkalega lendingu þegar þeir fengu Íslandsmeistara Hauka í heimsókn í Smárann í Kópavogi. Himinn og haf skildu liðin að - annað þrautreynt topplið en flestir piltarnir í Kópavogsliðinu að spila sinn fyrsta leik í efstu deild og úrslitin voru eftir því, 21:40.
Meira
Meistaradeild Evrópu A-RIÐILL: Spartak Moskva - Sporting Liss. 3:1 Luis Robson 43, Marcao 67, 81 - Sa Pinto 24 - 70,000 Leverkusen - Real Madrid 2:3 Bernd Schneider 27, Michael Ballack 44 - Roberto Carlos 32, 75, Guti 69 - 22.
Meira
Ólympíumeistari í 800 metra hlaupi karla. Fæddur: 20. maí 1978 í Bad Frankenhausen í Þýskalandi. Helstu afrek : Varð Evrópumeistari unglinga árið 1997. Ári síðar varð hann Evrópumeistari bæði innan- og utanhúss í karlaflokki.
Meira
Körfuknattleikssamband Íslands hefur hefur gert miklar endurbætur á heimsíðu sambandsins, sem hefur slóðina www.kki.is, og þar má finna mikið af fróðleik og hagnýtum upplýsingum.
Meira
ORRI Freyr Hjaltalín, markakóngur 2. deildarinnar í knattspyrnu úr Þór á Akureyri, æfir þessa dagana með Stoke City og verður hjá enska félaginu út næstu viku.
Meira
"ÉG er sátt við mitt verk og get hætt afar sæl með mína frammistöðu á leikunum," sagði Guðrún Arnardóttir, eftir að hafa hafnað í sjöunda sæti í úrslitahlaupi 400 m grindahlaupsins á Ólympíuleikunum í Sydney í gær.
Meira
ÚRVALSDEILDIN í körfuknattleik hefst í kvöld og margir áhugamenn um íþróttina eru eflaust fegnir að biðin sé loks á enda. KR stóð uppi sem Íslandsmeistari eftir rimmu við Grindvíkinga sem aftur á móti sigruðu KR í úrslitaleik bikarkeppninnar.
Meira
EIN óvæntustu úrslitin í frjálsíþróttakeppni Ólympíuleikanna í Sydney urðu í 800 metra hlaupi karla þar sem Nils Schumann, 22 ára gamall Þjóðverji, kom, sá og sigraði. Schumann, sem er Evrópumeistari bæði innan- og utanhúss, skaut heimsmethafanum Wilson Kipketer frá Danmörku aftur fyrir sig en Wilson hefur verið nær ósigrandi í þessari grein á undanförnum árum og var spáð ólympíugullinu.
Meira
Ólympíumeistari í 100 metra grindahlaupi kvenna. Fædd: 23. desember 1968 í Kazahkstan. Gift og á tveggja ára son. Helstu afrek: Varð í öðru sæti á heimsmeistaramótinu árið 1995.
Meira
Steingrímur Jóhannesson framherji ÍBV í knattspyrnu er á förum frá félaginu. Steingrímur tilkynnti forráðamönnum ÍBV að hann ætlaði ekki að framlengja samning sinn við félagið en samningur hans rennur út um áramótin.
Meira
Tékkar tefla fram fimmtán leikmönnum frá erlendum félögum gegn Íslandi og Möltu í undankeppni HM í knattspyrnu. Jozef Chovanec, landsliðsþjálfari Tékka, tilkynnti í gær 18 manna hóp fyrir leikina tvo en Tékkar mæta Íslendingum í Teplice laugardaginn 7.
Meira
AFREK Völu Flosadóttur í stangarstökkinu á mánudag, þar sem hún vann til bronsverðlauna, hefur vakið talsverða athygli meðal almennings hér í Sydney.
Meira
"TILFINNINGAR mínar eru blendnar, en ég er ánægður fyrir hönd Guðrúnar að henni skuli hafa tekist að komast í úrslit á Ólympíuleikum, það er mikið afrek," sagði Bandaríkjamaðurinn Paul Doyle, þjálfari Guðrúnar Arnardóttur, eftir að hún hafði lokið keppni á Ólympíuleikunum.
Meira
ÍR-INGAR tóku á móti HK-mönnum í Austurbergi í gærkvöldi og úr varð mikill baráttuleikur. Eftir nokkuð jafnan leik framan af náðu heimamenn frumkvæðinu fram úr og tryggðu sér síðan öruggan sigur, 23:19.
Meira
Í GÆR lauk þrettán ára sigurgöngu glímukappans Alexanders Kareline þegar honum mistókst að beita sínu uppáhalds bragði, "Kareline lyftunni", og tapaði þar með í úrslitaglímunni í grísk rómverskri glímu í 130 kg flokki á Ólympíuleikunum.
Meira
ÞÓRÐUR Friðjónsson, þjóðhagstofustjóri, hefur lagt fram fjórar hugmyndir til lausnar deilu samtaka sjómanna og útvegsmanna varðandi verðmyndun á fiski upp úr sjó.
Meira
SVÞ - Samtök verslunar og þjónustu mun í samstarfi við PricewaterhouseCoopers standa fyrir námstefnu um sérleyfi (franchising) í dag, 28. september, á Grand Hótel kl. 8:30-12:30. Námstefna þessi er sú fyrsta sinnar tegundar hér á landi.
Meira
ERLEND verðbréfaeign lífeyrissjóða hefur aukist um 95 milljarða á síðustu tveimur og hálfa ári og nam erlend verðbréfaeign um mitt þetta ár 121 milljarði króna.
Meira
Breska bankatímaritið The Banker hefur valið Íslandsbanka-FBA besta bankann á Íslandi. Niðurstaða blaðsins byggist á mati ritstjórnarinnar á ýmsum þáttum, svo sem afkomu, árangri í starfseminni, tækninýjungum og almennri stefnu bankanna.
Meira
Hafdís Guðmundsdóttir Hefur verið ráðin í stöðu þjónustufulltrúa hjá Intrum á Íslandi. Hafdís útskrifaðist sem stúdent af hagfræðibraut Menntaskólans við Sund árið 1991 og lauk BA-prófi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands árið 1998.
Meira
OPINBER heimsókn Valgerðar Sverrisdóttur, iðnaðar- og viðskiptaráðherra, til Nýfundnalands og Nova Scotia í Kanada stendur nú yfir, en í för með ráðherranum er 30 manna viðskiptasendinefnd frá Íslandi, sem í eru meðal annars fulltrúar 24 fyrirtækja.
Meira
Bjarni Óskar Halldórsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri fyrir Aalborg-Portland Ísland h.f. Bjarni útskrifaðist frá Verslunarháskólanum í Kaupmannahöfn árið 1985, með H.A. / B.Sc. gráðu í viðskiptafræðum og árið 1988 frá sama skóla með Cand. merc.
Meira
Framtíð margra dot.com fyrirtækja er hætta búin vegna þeirra hugmynda sem tilvist þeirra sjálfra hvílir á, skrifar Þröstur Olaf Sigurjónsson. Flest ný dot.com fyrirtæki hafa litla von um langan lífdaga, því eigendur þeirra eru tækifærissinnar og ýta til hliðar traustum kenningum í viðskiptum í von um fljóttekinn gróða.
Meira
EBEÁ endurskoðun og Deloitte & Touche hf. munu sameinast um næstu áramót undir nafni Deloitte & Touche, en við þessa sameiningu verður til eitt stærsta endurskoðunarfyrirtæki landsins.
Meira
ÞORSTEINN Þorsteinsson, forstöðumaður markaðssviðs RÚV, segir að það sé athyglisvert að skoða viðbrögð SÍA (Samband íslenskra auglýsingastofa) við því útboði sem framundan er á vegum Ríkisútvarpsins.
Meira
HLUTABRÉFAVIÐSKIPTI/SÍÐASTA VIKA Heildarviðskipti á Verðbréfaþingi Íslands í síðustu viku voru 1.137 milljónir króna í 641 viðskiptum. Gengi hlutabréfa í 28 félögum á VÞÍ hækkaði en lækkaði í 18 félagi.
Meira
TALIÐ er að Bank of Scotland muni hugsanlega verða á meðal þeirra sem leggja fram tilboð í norska bankann Kreditkassen/Christiania Bank, að því er breska blaðið The Independent greinir frá.
Meira
Kr. Kr. Kr. Ein. kl. 9.15 Gengi Kaup Sala Dollari 82,54000 82,31000 82,77000 Sterlpund. 120,89000 120,57000 121,21000 Kan. dollari 55,46000 55,28000 55,64000 Dönsk kr. 9,79100 9,76300 9,81900 Norsk kr. 9,08600 9,06000 9,11200 Sænsk kr.
Meira
Því hefur verið haldið fram að tölvudeildir fyrirtækja muni í framtíðinni heyra sögunni til. Fyrirtæki muni þess í stað kaupa aðgang að vél- og hugbúnaði tölvufyrirtækja sem sérhæfi sig í rekstri miðlægra tölvukerfa.
Meira
FYRIR rúmu ári stofnaði Guðrún Bjarnadóttir ásamt eiginmanni sínum, Melchior Lippisch, markaðs- og samskiptafyrirtækið Welldoo Ltd. í Bretlandi. Welldoo sinnir meðal annars markaðsmálum í heilbrigðisgeiranum.
Meira
Morgunverðarfundur um skattamál atvinnulífsins verður haldinn föstudaginn 6. október í Sunnusal Hótel Sögu kl. 8-9.30. Á fundinum verða kynntar tillögur skattahóps Verslunarráðs Íslands um skattabreytingar í þágu íslensks...
Meira
STJÓRN Norex, samstarfs norrænna kauphalla, telur mikilvægt að Kauphöllin í Helsinki (HEX) gangi til liðs við samstarfið, að því er Reuters fréttastofan hefur eftir finnska dagblaðinu Kauppalehti .
Meira
Opinbert uppboð Sú ákvörðun eigenda Ölgerðarinnar Egils Skallagrímssonar að selja fyrirtækið nánast allt í einu lagi er út af fyrir sig mikil tíðindi í íslensku viðskiptalífi, en ekki síður sú aðferð sem beitt er þar sem fjórum af öflugustu...
Meira
FULLTRÚAR Oracle og Teymis hafa undirritað samning sín á milli sem felur það í sér að Teymi verður sölu- og þjónustuaðili á lausn Oracle fyrir rafræna viðskiptahætti hér á landi. Lausnin ber heitið Oracle e-business Suite.
Meira
NORSKA útgáfufélagið Schibsted er meðal þeirra sem keppa á markaði fyrir ókeypis dagblöð. Það gefur nú út og dreifir dagblöðum ókeypis í Köln í Þýskalandi og Zürich í Sviss og innan skamms einnig Basel og Bern.
Meira
VIÐSKIPTI með óskráð hlutabréf m.a. fyrir milligöngu fyrirtækisins Aker Brygge Invest (ABI) í Noregi eru nú til athugunar hjá fjármálaeftirlitinu og efnahagsbrotadeild lögreglunnar þar í landi.
Meira
SÍMENNT Háskólans í Reykjavík stóð nýverið fyrir námskeiði þar sem áhersla var lögð á að þjálfa þátttakendur þess í að ná árangri í samningaviðræðum.
Meira
SAMSKIP gerðu nýverið samning við Nýherja, sem fól í sér endurnýjun á miðlaraflota fyrirtækisins. Alls keyptu Samskip 6 öfluga IBM RS/6000 UNIX miðlara fyrir mikilvægustu upplýsingakerfi sín í Reykjavík og Bremen í Þýskalandi.
Meira
SkjáVarp hefur tekið að sér miðlun upplýsinga með sýningakerfi sínu á AGORA, alþjóðlegri fagsýningu þekkingariðnaðarins, sem haldin verður í Laugardalshöllinni í Reykjavík 11.-13. október næstkomandi.
Meira
Warren Buffett er vafalaust nafntogaðasti fjárfestir aldarinnar og einnig sá sem hefur efnast best sjálfur. En Buffett er líka sá sem gert hefur fleiri löndum sínum kleift að efnast en nokkur annar fjárfestir.
Meira
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA Meðalávöxtun síðasta úboðs hjá Lánasýslu ríkisins Ávöxtun í % Br. frá síðasta útb. Ríkisvíxlar 17. ágúst '00 3 mán. RV00-0817 11,30 0,66 5-6 mán. RV00-1018 11,36 0,31 11-12 mán. RV01-0418 - - Ríkisbréf sept.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.