DANIR höfnuðu í gær aðild að evrópska myntbandalaginu í þjóðaratkvæðagreiðslu með meiri mun en búist hafði verið við, 53,1% greiddu atkvæði gegn aðild en 46,9% með.
Meira
ALBERTO Fujimori, forseti Perú, fór í gær í óvænta heimsókn til Washington til að ræða við framkvæmdastjóra Samtaka Ameríkuríkja, OAS, og Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.
Meira
STJÓRNARANDSTAÐAN í Serbíu hótaði í gær að efna til allsherjarverkfalls og viðamikilla andófsaðgerða þar til Slobodan Milosevic Júgóslavíuforseti viðurkenndi ósigur sinn í kosningunum á sunnudag og léti af embætti.
Meira
PIERRE Elliott Trudeau, fyrrverandi forsætisráðherra Kanada, lést í Montreal í gær, áttræður að aldri. Dánarmein hans var krabbamein í blöðruhálskirtli.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og Motoo Kusakabe, varaforseti Alþjóðabankans, skrifuðu undir samning um framlag Íslands til niðurfellingar skulda fátækustu ríkja heims á ársfundi Alþjóðabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Prag.
Meira
VEGAMÁLASTJÓRI fundaði í gær með fulltrúum stjórnar Herjólfs hf., bæjarstjórnar Vestmannaeyja og Árna Johnsen þingmanni vegna óskar stjórnar Herjólfs hf.
Meira
Í MORGUNBLAÐINU í dag hefur göngu sína nýr þáttur sem heitir Auðlesið efni. Þarna munu birtast fréttir líðandi stundar í sérstökum búningi og eru ætlaðar öllum þeim sem eiga erfitt með lestur. Þátturinn verður í Daglegu lífi á föstudögum.
Meira
AUÐLINDANEFND skilar af sér skýrslu sinni fyrir hádegi í dag á fundi, sem haldinn verður með Davíð Oddssyni forsætisráðherra í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu. Auðlindanefnd var kjörin á Alþingi 2.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra segir að sigur evruandstæðinga í kosningunum í Danmörku um aðild að evrópska myntbandalaginu komi ekki á óvart.
Meira
INDÓNESÍSKUR dómstóll vísaði í gær frá spillingarkæru ríkissaksóknara Indónesíu á hendur Suharto, fyrrum einræðisherra landsins, eftir að hópur lækna hafði úrskurðað Suharto ófæran um að sitja réttarhöld sökum varanlegs heilsubrests.
Meira
BORGARRÁÐ hefur samþykkt tillögu borgarstjóra um að fela verkefnisstjórn menningarnætur í Reykjavík að skoða möguleika sem felast í því að halda árlega vetrarhátíð í Reykjavík. Hátíðin, sem stæði í nokkra daga, t.d.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest þriggja mánaða skilorðsbundinn dóm yfir manni, sem var ákærður fyrir líkamsárás. Í október 1998 fór maðurinn í félagi við óþekktan aðila í gistihús á Freyjugötu og réðst þar að konu.
Meira
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra tók fyrir viku formlega í notkun nýtt heimili að Sólheimum. Líkt og önnur íbúðarhús í byggðahverfinu fékk húsið nafngift úr verkum nóbelsverðlaunaskáldsins Halldórs Laxness og var nefnt Bláskógar.
Meira
BRESKIR vísindamenn hafa kynnt hugmyndir um hvernig koma megi í veg fyrir að smástirni og halastjörnur rekist á jörðu og valdi þannig svipuðum hörmungum og urðu þess valdandi að risaeðlurnar dóu út fyrir 65 milljónum ára.
Meira
KELSANG Lodrö er enskur búddamunkur og einn af reyndustu kennurum Kadampa-búddisma. Hann hefur iðkað búddisma í nær 15 ár og er kennari hjá stærsta menntasetri Kadampa-búddismans á Suður- Englandi, segir í fréttatilkynningu.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt Reykjavíkurborg til að greiða erfingjum konu ríflega 3 milljónir króna, en það er sú upphæð sem starfsmaður í heimaþjónustu félagsmálastofnunar Reykjavíkur hafði af konunni með því að taka út af bankabókum hennar.
Meira
NÝR veirufaraldur sem kenndur er við Vestur-Níl, afbrigði fuglaveirunnar sem á síðasta ári olli dauða sjö New York-búa, veldur bandarískum yfirvöldum nú umtalsverðum áhyggjum.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur ómerkt héraðsdóm í máli Eggerts Haukdals, fyrrverandi oddvita Vestur-Landeyjahrepps, og vísað málinu heim í hérað til löglegrar meðferðar.
Meira
ALMENNUR félagsfundur Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni um heilbrigðis- og kjaramál, var haldinn í Ágarði Glæsibæ 17. sept. sl. Á fundinum var m.a. samþykkt að efna til útifundar kl. 15 nk. mánudag á Austurvelli, um leið og Alþingi verður...
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins sagði á fundi með nemendum Viðskiptaháskólans á Bifröst í gær að hann væri ekki lengur andvígur því að erlendir aðilar fjárfestu í sjávarútvegi hér á landi.
Meira
SLÖKKVILIÐIÐ á höfuðborgarsvæðinu var kallað út um klukkan 17 í gær vegna elds í íbúð í Fjarðarseli í Breiðholti. Þegar slökkviliðið kom á staðinn hafði eldurinn náð að læsa sig í eldhúsinnréttingu.
Meira
GRUNUR leikur á að kveikt hafi verið í bifreið sem stóð fyrir aftan hús við Nóatún í gærkvöldi en vegfarandi sem tilkynnti lögreglu um eldinn kvaðst hafa séð ungan mann við logandi bifreiðina. Lögreglan fékk tilkynningu um eldinn laust eftir kl. 23.
Meira
BÖRNIN sem fengu handrið yfir sig í Mýrarhúsaskóla á Seltjarnanesi á þriðjudag hafa öll snúið aftur á skólabekk þrátt fyrir skrekkinn og ró komin yfir skólastarfið.
Meira
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ Hellas byrjar vetrarstarf sitt með aðalfundi sem verður haldinn í Kornhlöðunni við Bankastræti laugardaginn 30. september og hefst kl. 14.30. Að lokinni dagskrá eða kl. 15 mun Jón Ma.
Meira
LANDSPÍTALINN - háskólasjúkrahús fer fram á rúmlega tveggja milljarða króna hærri fjárveitingu á fjárlögum næsta árs, miðað við fjárlög þessa árs, en að sögn Önnu Lilju Gunnarsdóttur, framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga hjá Landspítalanum, hljóða...
Meira
FÉLAGSDÓMUR hafnaði í gær kröfu ríkisins um að verkfall sem verkalýðsfélagið Báran-Þór, sem semur fyrir hönd ófaglærðs starfsfólks á sjúkrahúsi Suðurlands, hafði boðað að myndi hefjast aðfaranótt 29. september, yrði dæmt ólögmætt.
Meira
SKIPSTJÓRI og þrír aðrir menn í áhöfn grísku ferjunnar, sem sökk í fyrradag, voru formlega ákærðir í gær fyrir manndráp. Að minnsta kosti 66 manns fórust með skipinu.
Meira
GERT er ráð fyrir að fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu verði á næstu 20 árum kringum 36%, sem þýðir að íbúar verði hátt í 200 þúsund, og að bílaeign aukist úr 500 bílum á hverja þúsund íbúa í 600 bíla á sama tíma.
Meira
Ísafirði -Hægt verður að hefja framkvæmdir á nýju byggingarsvæði inni í firði á Ísafirði í vor. Þeir sem áhuga hafa á því að reisa einbýlishús eða raðhús á þessum stað geta sótt um lóðir hjá Ísafjarðarbæ.
Meira
JÓN Kristjánsson, formaður fjárlaganefndar Alþingis, segir, í samtali við Morgunblaðið, að þó að Landspítala - háskólasjúkrahúsi beri vissulega að halda rekstrarkostnaði sínum innan ramma fjárlaga verði að skoða stöðu mála í ljósi þess að þarna er um...
Meira
BANDARÍSKA stórblaðið New York Times hefur í annað sinn í þessari viku gagnrýnt sín eigin skrif um eðlisfræðinginn Wen Ho Lee en hann var rekinn úr starfi í kjarnorkurannsóknastöðinni í Los Alamos og grunaður um njósnir.
Meira
STJÓRNENDUR Landsbanka Íslands og Íslandssíma undirrituðu í gær víðtækan samning um frekari eiginfjárþátttöku Landsbankans í Íslandssíma. Samkomulagið felur ennfremur í sér fjármögnun Íslandssíma og stefnumarkandi samstarf milli félaganna.
Meira
SAMEIGINLEGT haustþing Bandalags kennara á Norðurlandi eystra og 6. deildar Félags íslenskra leikskólakennara verður haldið á Dalvík dagana 29. og 30. september nk.
Meira
FALLEGT veður var í höfuðborginni í gær, hægur vindur og glaðasólskin og það nýttu starfsmenn garðyrkjudeildar Reykjavíkurborgar sér vel. Þeir létu hendur standa fram úr ermum og gróðursettu haustlauka í Hallargarðinum.
Meira
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til tveggja helgarferða um næstu helgi. Annars vegar er um að ræða Þórsmerkurferð í samvinnu við Landgræðslu ríkisins og Skógrækt ríkisins. Þetta er fjölskylduferð með dagskrá við allra hæfi.
Meira
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra telur heppilegt að færa starfsemi Rannsóknarnefndar sjóslysa að verulegu eða öllu leyti út á land. Hann segir verkefni nefndarinnar af þeim toga að henta ætti vel starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins.
Meira
HLÍÐARFÓTUR og göng undir Kópavog er stórframkvæmd sem talin er þörf á að ráðast verði í á næstu árum og er þá verið að horfa um áratug fram í tímann. Eru hugmyndir um þetta einkum frá ráðgjöfum um svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins.
Meira
HREFNUKJÖT er ekki algengt á borðum okkar Íslendinga, enda veiðar á hval við Ísland bannaðar. Það kemur þó fyrir að ein og ein hrefna veiðist fyrir slysni og er þá reynt að nýta hana eins og mögulegt er.
Meira
NELSON Mandela, fyrrverandi forseti Suður-Afríku, kom fulltrúum á flokksþingi brezka Verkamannaflokksins í Brighton í gott skap í gær, er hann hældi stefnu flokksins í ávarpi á flokksþinginu.
Meira
Við hönnun verslunarmiðstöðvarinnar Smáralindar hefur tölvutækni orðið til þess að auðvelda og hagræða allri vinnu til muna. Birna Anna Björnsdóttir ræddi við Helga Má Halldórsson, arkitekt og verkefnisstjóra, um hvernig unnið sé að því að hanna svo gríðarstórt mannvirki.
Meira
ÍSRAELSKA lögreglan beitti í gær gúmmíhúðuðum stálkúlum gegn Palestínumönnum, sem mótmæltu heimsókn ísraelska hægrimannsins Ariels Sharons á Musterisfjallinu, einum helgasta stað jafnt gyðinga sem múslima.
Meira
MIKLAR skemmdir urðu á kjallaraíbúð við Álfhólsveg í Kópavogi í eldsvoða á miðvikudag. Talið er að eldurinn hafi kviknað í sófasetti í stofu íbúðarinnar og af ummerkjum mátti ráða að eldur hefði logað í talsverðan tíma áður en slökkviliðið kom á...
Meira
ÍSLENSKU keppendurnir á Ólympíumóti fatlaðra héldu til Ástralíu í gær þar sem þeir munu dvelja í æfingabúðum fram að mótinu sem hefst þann 18. október nk.
Meira
James Harris, frambjóðandi sósíalísks verkafólks, talar um Bandaríkin og heimsmálin á opinberum fundi föstudaginn 29. september kl. 18 í Pathfinder-bóksölunni, Klapparstíg 26, 2. hæð, í Reykjavík. Aðstandendur vikublaðsins Militant standa að...
Meira
ALOISIUS Arnstein Brodersen, norskur munkur eða kórherra af Ágústínusarreglu, þeirri sem var í klaustrunum í Viðey, á Helgafelli, Möðruvöllum, Skriðuklaustri og Þykkvabæ í Álftaveri, flytur sunnudaginn 1. október erindi um Ágústínusarregluna á miðöldum.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði í samtali við Morgunblaðið í gærkvöldi að það kæmi á óvart hve úrslitin í dönsku kosningunum um aðildina að evrópska myntbandalaginu væru afgerandi.
Meira
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta í Grenivíkurkirkju á sunnudag, 1. október, kl. 14. Væntanleg fermingarbörn úr Grenivíkurskóla og fjölskyldur þeirra eru hvött til að mæta í messuna. Stuttur fundur með fermingarbörnunum strax eftir messu.
Meira
NÝIR sviðsstjórar Landspítala - háskólasjúkrahúss, alls átján manns, taka við níu nýjum sviðum lækninga og hjúkrunar samkvæmt nýju skipulagi sjúkrahússins sem gengur í gildi 1. október.
Meira
Nafn tónskálds misritaðist Í gagnrýni um tónleika Blásarakvintetts Reykjavíkur í blaðinu sl. fimmtudag misritaðist nafn eins höfundar. Hann heitir Tryggvi M. Baldvinsson. Beðist er velvirðingar á þessum...
Meira
Kolfinna Sigurvinsdóttir fæddist í Reykjavík 1944. Hún lauk gagnfræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Austurbæjar og íþróttakennaraprófi frá Íþróttakennaraskóla Íslands 1963. Hún hefur starfað við íþróttakennslu frá námslokum í Miðbæjarskóla og í Seljaskóla. Kolfinna er gift Sverri M. Sverrissyni endurskoðanda og eiga þau þrjár dætur og tvö barnabörn.
Meira
HANN var í sannkölluðum loftfimleikum, iðnaðarmaðurinn á þaki hins nýja Náttúrufræðihúss Háskóla Íslands sem verið er að reisa í Vatnsmýrinni í Reykjavík.
Meira
ÍSLANDSDEILD mannréttindasamtakanna Amnesty International hvetur Halldór Ásgrímsson, utanríkisráðherra, til að ræða mannréttindabrot í Bandaríkjunum við Madeleine Albright, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, þegar hún kemur í opinbera heimsókn hingað til...
Meira
FYRSTA íslenska vefsíðan, InterSeafood.com, sem helgar sig alþjóðlegum viðskiptum með sjávarafurðir auk þess að leggja áherslu á fréttir og þjónustuupplýsingar fyrir sjávarútveginn, verður opnuð í fyrramálið.
Meira
PÓSTHÚSSTRÆTI 3 sem áður hýsti fyrsta barnaskóla Reykjavíkur, lögreglustöð, símstöð og pósthús mun enn fá nýtt hlutverk um helgina þegar almannatengslafyrirtækið Mekkano hefur þar starfsemi um helgina.
Meira
ÞJÓÐMINJASAFN Íslands stendur fyrir dagskrá á menningarminjadegi Evrópu um næstu helgi í öllum fjórum landsfjórðungum í samvinnu við heimamenn á hverjum stað.
Meira
Álag í umferðinni á höfuðborgarsvæðinu er mikið snemma morguns og síðdegis. Margs konar framkvæmdir eru framundan til að auka afköst stærstu gatnamótanna. Jóhannes Tómasson kynnti sér hvað helst er á döfinni.
Meira
VEGNA mikillar uppbyggingar í Kópavogi sem verið hefur og verður á næstu misserum, bæði í íbúðabyggingum og atvinnuhúsnæði, er fyrirsjáanleg stóraukin umferð umþessi nýju svæði.
Meira
Í KÍNA er að grípa um sig sæluvíma vegna Nýja hagkerfisins. Farsímar virðast vera jafnalgeng sjón í Sjanghæ og í Helsinki og netfyrirtæki jafnsjálfsögð og í San Francisco.
Meira
UNDIRBÚNINGUR er hafinn að byggingu nýs íþróttahúss við Skólabraut í Garðabæ, en einnig er gert ráð fyrir kennslusundlaug við húsið og félagsaðstöðu.
Meira
FRAMKVÆMDIR standa nú yfir við að breyta Oddeyri í svonefnt 30 kílómetra hverfi og er það þriðja hverfið á Akureyri sem breytt er í slíkt hverfi. Um er að ræða svæðið vestan Hjalteyrargötu, norðan Strandgötu og sunnan Furuvalla.
Meira
SJÁLFBOÐALIÐASAMTÖK um náttúruvernd efna til óvissugöngu laugardaginn 30. september. Lagt verður af stað kl. 11 frá strætisvagnaskýlinu í Mjódd. Gangan tekur 3-4 tíma og þeir sem vilja geta endað hana á...
Meira
ÁSTÆÐAN fyrir því að borin var upp dagskrártillaga í bæjarstjórn Kópavogs á þriðjudaginn, um að vísa tillögu Kópavogslistans um skipulag á Vatnsenda frá og ljúka umræðum um Vatnsenda, var sú að enginn var lengur á mælendaskrá og búið var að ræða málið...
Meira
NORSKA dagblaðið Dagens Næringsliv birti á fimmtudag umfjöllun um stefnu Norsk Hydro á næstu misserum og stutt viðtal við forstjóra álframkvæmda þess, Eivind Reiten, eins og fram kom í Morgunblaðinu í gær.
Meira
BÆJARRÁÐ Akureyrar hefur tekið vel í þá hugmynd að Náttúrugripasafnið á Akureyri verði sett upp í væntanlegu rannsóknarhúsi Háskólans á Akureyri. Munum safnsins var pakkað niður í lok sumars og þeir settir í geymslu.
Meira
Salmonellufaraldurinn sem hefur herjað á landsmenn síðustu vikur er að fjara út, að sögn Haraldar Briem sóttvarnarlæknis. Enn megi þó búast við að einhverjir sýkist til viðbótar. Alls hafa 127 manns greinst með salmonellusýkingu, þar af hafa a.m.k.
Meira
SAMHERJI hf. á Akureyri áformar að hefja sjókvíaeldi á laxi í Reyðarfirði, eftir því sem fram kemur í héraðsfréttablaðinu Austurlandi . Ætlunin er að framleiða um 6.000 tonn af eldisfiski á ári og nýta íslenskan stofn af norskum uppruna við eldið.
Meira
Flateyri- Sjómenn og fiskverkendur á Flateyri fjölmenntu á fyrirlestur um bætta meðferð afla sem sjávarútvegsráðuneytið stóð fyrir í þremur bæjarfélögum á Vestfjörðum á dögunum.
Meira
MINJASAFNIÐ á Akureyri efnir til skoðunarferðar á gamla verslunarstaðinn á Gásum á sunnudag, 1. október. Gása er víða getið í fornum sögum og annálum.
Meira
JÓN Loftsson, skógræktarstjóri ríkisins, segir að ágreiningur sé á milli Skógræktarinnar og eigenda jarðarinnar Hvamms í Skorradal um eignarhald á skógi þeim sem Skógræktin hefur ræktað upp þar síðustu 30 árin.
Meira
BÆJARSTJÓRN Akraness samþykkti á fundi sínum á þriðjudag, með sex atkvæðum gegn þremur, að fela bæjarstjóra að segja upp ráðningarsamningi við framkvæmdastjóra Akranesveitu, Magnús Oddsson.
Meira
STJÓRNMÁLASKÓLINN, Hvöt og jafnréttisnefnd Sjálfstæðisflokksins bjóða upp á stjórnmálanámskeið fyrir konur á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum í október. Á námskeiðinu, sem ætlað er öllum áhugasömum konum um stjórnmál, verður farið yfir fjölmörg atriði.
Meira
Í FRAMHALDI af skógargöngunum í haust efnir Grasagarður Reykjavíkur og Garðyrkjufélag Íslands til trjáskoðunar í Grasagarðinum laugardaginn 30. september kl. 10-12. Grasagarðurinn var stofnaður árið 1961 en elstu tré í garðinum eru frá 1929.
Meira
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að sótt verði um lánsheimildir til viðbótarlána að fjárhæð 300 milljónir króna og vegna leiguíbúða að fjárhæð 50 milljónir króna.
Meira
Umferðarljós urðu óvirk um tíma og umferðarteppa myndaðist í Hafnarfirði eftir árekstur á mótum Álftanesvegar og Hafnarfjarðarvegar um klukkan hálftólf í gær. Áreksturinn varð eftir að annar bíllinn ók gegn rauðu ljósi.
Meira
SÉRSTÖK umferðarvika verður í öllum grunnskólum Hafnarfjarðar frá 29. september til 6. október. Í umferðarvikunni verður leitað ýmissa leiða til þess að vekja nemendur og foreldra til umræðu og umhugsunar um umferðarmál, slysahættu, forvarnir og öryggi.
Meira
UMSVIFAMIKLIR vöruflutningar hafa færst úr höndum íslenskra skipafélaga á síðustu árum vegna hins neikvæða rekstrarumhverfis sem íslenskum skipafélögum er búið hér á landi, að mati Ólafs Ólafssonar forstjóra Samskipa.
Meira
BIRGIR Björgvinsson, stjórnarmaður í Sjómannafélagi Reykjavíkur, gagnrýnir harðlega ummæli sem Ólafur Ólafsson, forstjóri Samskipa, lét falla á aðalfundi Sambands íslenskra kaupskipaútgerða á miðvikudag, og voru höfð eftir Ólafi í Morgunblaðinu í gær.
Meira
JÓN Bjarnason fulltrúi Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs í samgöngunefnd Alþingis hefur óskað eftir fundi í nefndinni til að fjalla um stöðu áætlunarflugs í landinu.
Meira
SAMKVÆMT upplýsingum úr umhverfisráðuneytinu eru samningaviðræður við landeigendur í nágrenni Snæfellsjökuls á lokastigi, vegna áforma stjórnvalda um að stofna Snæfellsþjóðgarð. Reiknað er með að samningar verði undirritaðir á næstunni.
Meira
TVÆR konur frá Litháen voru handteknar í vikunni með falsaða pappíra þegar þær hugðust hefja störf hjá fyrirtæki í Sandgerði. Að því er kemur fram á fréttavef Víkurfrétta keyptu konurnar tilskilin leyfi í heimalandi sínu, þ.e.
Meira
Vojislav Kostunica er ekki orðlagður fyrir persónutöfra eða mælsku, en hann hefur þann ótvíræða kost að hafa hvorki verið viðriðinn spillingarmál né lagst á jötuna hjá Slobodan Milosevic, ólíkt mörgum öðrum leiðtogum stjórnarandstöðunnar.
Meira
Þung umferð er jafnan úr Breiðholtshverfum í Reykjavík að morgni dags. Geta því langar bílaraðir myndast á gatnamótunum við Reykjanesbraut þegar nærri 7.000 bílar þurfa að komast þar um og mæta þar annarri eins holskeflu.
Meira
ÆFINGAR eru hafnar hjá unglingum sem stunda skíðaíþróttina á Akureyri og hafa þeir sem eru í flokki 13 ára og eldri verið við þrekæfingar að undanförnu. Æfingarnar eru fjölbreyttar, m.a.
Meira
JÓHANNA Sigurðardóttir alþingismaður hefur gagnrýnt harðlega iðgjaldahækkun tryggingafélaganna. Hún segir í vefpistli sínum að nú sé staðfest að 70-80% hækkun iðgjalda hafi verið ónauðsynleg síðastliðin 2 ár.
Meira
Það kom flestum í opna skjöldu í júní árið 1992 er danska þjóðin hafnaði Maastricht-samkomulaginu, sem leiðtogar Evrópusambandsins höfðu orðið ásáttir um hálfu ári fyrr, í þjóðaratkvæðagreiðslu.
Meira
HINN 10. október næstkomandi fagnar eitt merkasta leikskáld okkar tíma, Harold Pinter, sjötugsafmæli sínu. Af því tilefni verður eitt af hans fyrstu verkum, "Afmælisveislan", leiklesið á Stóra sviði Borgarleikhússins næstkomandi sunnudag, 1.
Meira
TUTTUGU börn á aldrinum 6-14 ára úr Suzuki-tónlistarskólanum í Reykjavík spiluðu nokkur skemmtileg lög á fiðlu í Regnboganum sl. sunnudag, 24.sept. í tengslum við sýningu myndarinnar, Music of the Heart.
Meira
ÞAÐ MÁ eiginlega segja að búið sé að bíða eftir nýrri barnaplötu með Ólafi Hauki Símonarsyni í hálfan þriðja áratug eða síðan meistaraverkið Eniga Meninga leit dagsins ljós. Nú er biðin loks á enda.
Meira
BRÚÐUBÍLLINN sýnir í Bíóhöllinni á Akranesi á sunnudaginn 1. október klukkan 14. Sýnd verða leikritin "Brúðukabarett" og "Af hverju?" Fjölmargar brúður koma fram í báðum leikritum, litlar og stórar, sem leikarinn klæðist.
Meira
HVAÐA BRITNEY? Madonna er málið, hefur alltaf verið og virðist alltaf ætla að verða. Nýja platan með þessari dæmalausu poppdrottningu Music fór í sinni fyrstu viku beint á topp hvorki fleiri né færri en 23 landa.
Meira
Bandamenn hafa unnið baki brotnu undanfarin ár við að kynna íslenskan bóka- og menningararf í gegnum nýstárlegar og kraftmiklar leiksýningar en nýjasta verk þeirra, edda.ris - Skírnismál að nýju, er nú í fullum gangi. Arnar Eggert Thoroddsen hitti tvo af leikurunum, þá Borgar Garðarsson og Felix Bergsson, að máli yfir vínarbrauði og kaffi.
Meira
Þjóðleikhúsið frumsýnir í kvöld Horfðu reiður um öxl eftir John Osborne. Hávar Sigurjónsson hitti leikara og leikstjóra sýningarinnar rétt fyrir síðustu æfingu.
Meira
DÓMSTÓLAR í Texas hafa loksins kveðið upp úrskurð sinn um það hver skuli erfa olíubaróninn liðna J. Howard Marshall, sem kallaður hefur verið ríkasti maður Texas-ríkis.
Meira
ÞAÐ ER undarlegt starf að vera poppari. Þverstæðurnar eru bókstaflega æpandi. Þessi starfsstétt sem á allt sitt undir að hitta á rétta augnablikið, vera í takt við tíðarandann er jafnframt svo villt í tímanum að unun er á að horfa.
Meira
EFTIRLIFANDI félagar Jims Morrisons heitins úr sveitinni The Doors hafa hughreyst aðdáendur hans og lýst því yfir að þeir muni gera allt hvað í valdi þeirra stendur til þess að hann fái að hvíla áfram í París en leigan á grafreit hans rennur út á næsta...
Meira
Norræn píanóverk eftir Söderlundh, Nystedt, Sibelius, Forsman, Jón Leifs og Schierbeck. Folke Gräsbeck, píanó. Þriðjudaginn 26. september kl. 20.
Meira
Norrænt kirkjutónlistarmót var haldið í Helsinki á dögunum undir yfirskriftinni "Jubilemus 2000". Kjartan Sigurjónsson var á mótinu þar sem söng Schola cantorum var meðal annars afar vel tekið.
Meira
HORFÐU REIÐUR UM ÖXL eftir John Osborne. Þýðandi: Thor Vilhjálmsson. Leikarar: Elva Ósk Ólafsdóttir, Gunnar Eyjólfsson, Halldóra Björnsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Rúnar Freyr Gíslason. Lýsing: Páll Ragnarsson.
Meira
EITT af stærri verkefnum Reykjavíkurborgar á menningarborgarári er verkefnið Listamenn í skólum sem unnið er í samvinnu við grunnskóla borgarinnar og Fræðslumiðstöð Reykjavíkur.
Meira
LÍTIL aðsókn er að mynd Lars von Triers, "Myrkradansaranum", í kvikmyndahúsum á Norðurlöndunum, að því er norska viðskiptablaðið Dagens næringsliv greinir frá.
Meira
Um þessar mundir er að koma út ný breiðskífa með Madonnu sem ber nafnið Music. Af því tilefni staldrar Georg Erlingsson við og rifjar upp nokkrar misjafnlega kunnar glefsur úr nær tveggja áratuga löngum ferli þessarar einu sönnu poppdrottningar.
Meira
SÝNING á teikningum Katrínar Briem, sem unnar eru við sálma og ljóð eftir séra Valdimar Briem, verður opnuð nk. laugardag, 30. september, kl. 15 í safni kjallara Skálholtsdómkirkju.
Meira
Geisladiskurinn Stokkseyri inniheldur kammerverkin "Stokkseyri" og "Septett" eftir Hróðmar Inga Sigurbjörnsson. Flytjendur eru Sverrir Guðjónsson kontratenór og Caput -hópurinn.
Meira
Leikstjóri: Danny Boyle. Handrit: John Hodge. Aðalhlutverk: Leonardo DiCaprio, Virginie Ledoyen, Guillaume Canet, Tilda Swinton. (119 mín.) Bandaríkin. Skífan, 2000. Myndin er bönnuð börnum innan 16 ára.
Meira
½ Leikstjóri: James Mangold. Handrit: Mangold, Lisa Loomer og Anna Hamilton Phelan. Byggt á bók Susönnu Kaysen. Aðalhlutverk: Winona Ryder, Angelina Jolie, Whoopi Goldberg og Vanessa Redgrave. (127 mín) Bandaríkin, 1999. Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
FRIÐRIK Friðriksson hefur komið víða við á stuttum leikaraferli sínum og eins og endra nær á haustin er hann nú önnum kafinn við æfingar á nýjum og kræsilegum leikverkum sem verið er að setja upp á fjölum leikhúsanna.
Meira
NORÐURLANDARÁÐ hefur tilnefnt Íslendingana Sigurð Flosason saxófónleikara og Skúla Sverrisson bassaleikara til tónlistarverðlauna ráðsins fyrir árið 2001.
Meira
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Íslands heldur tónleika á morgun, laugardag, kl. 15 í íþróttahúsinu á Selfossi. Eru þetta jafnframt síðustu tónleikarnir sem haldnir eru áður en hljómsveitin heldur í langa tónleikaferð til Ameríku í október.
Meira
ANDREA Bocelli hefur notið mikilla vinsælda hér á landi nokkurn veginn síðan hann söng sig inn í hjörtu tónelskra í laginu "Time To Say Goodbye" með söngleikjadívunni Söruh Brightman sem var að finna á plötu Bocellis Romanza .
Meira
ÞÁ ER hún komin sú tuttugasta og fyrsta í röðinni - að venju smekkfull af sannkölluðum smellafans. Pottþétt 21 inniheldur fjölbreytt úrval heitustu laganna úr heimi dægurtónlistarinnar í dag.
Meira
FIÐLULEIKARINN Sarah Chang sést hér munda fiðlubogann á tónleikum sem haldnir voru nýlega í tilefni af áttræðisafmæli Isaacs Stern, framkvæmdastjóra Carnegie Hall.
Meira
MYNDLISTAR- og handverkssýning Kristínar Bryndísar Björnsdóttur verður opnuð í sóknarsal Grafarvogskirkju á morgun, laugardag, kl. 14. Kristín Bryndís sýnir þar hekluð teppi og olíu- og vatnslitamyndir. Opið alla daga kl. 14-18. Sýningin stendur til 23.
Meira
SÝNINGU Bryndísar Jónsdóttur, Dregið í Dilka, í Ásmundarsal, Listasafni ASÍ v/Freyjugötu, lýkur nk. sunnudag, 1. október. Viðfangsefni Bryndísar eru íslensku fjármörkin, sem notuð hafa verið á búfé hér á landi frá landnámstíð.
Meira
100 ÁRA afmæli. Á morgun, 30. september, verður 100 ára Jörína G. Jónsdóttir kennari, Seljahlíð, Hjallaseli 55, Reykjavík. Eiginmaður hennar var Sigurvin Einarsson, kennari og fyrrv. alþingismaður. Hann lést 1989.
Meira
50ÁRA afmæli . Nk. miðvikudag 4. október verður fimmtug Kristín Snæfells, Fannarfelli 6, Reykjavík. Hún verður stödd í Chicago á afmælisdaginn en heldur upp á afmæli sitt í Broadway 2. október kl. 17 og býður vinum og vandamönnum að gleðjast með sér.
Meira
70ÁRA afmæli. Nk. sunnudag, 1. október, verður sjötugur Haukur Ársælsson, yfireftirlitsmaður hjá rafmagnsöryggisdeild Löggildingarstofu, Hrauntungu 81, Kópavogi .
Meira
90 ÁRA afmæli. Í dag, 29. september, verður níræð Kristín Elíasdóttir, Vesturgötu 7, Reykjavík, áður Sogavegi 164, Rvík. Eiginmaður hennar var Pétur Ottesen Jónsson...
Meira
90ÁRA afmæli . Nk. mánudag 2. október verður níræður Jóhann Sigurðsson, húsasmíðameistari, Lönguhlíð 12, Akureyri. Eiginkona hans er Brynhildur Kristinsdóttir. Í tilefni afmælisins taka þau hjón á móti gestum í safnaðarsal Glerárkirkju laugardaginn 30.
Meira
Ég hvet þingmenn, segir Þorvarður Tjörvi, til að hverfa af braut fjársveltis og samþykkja sérstakt framlag til að ljúka við Náttúrufræðihúsið á næstu 2 árum.
Meira
NÚ ÞEGAR Grafarvogsbúar mótmæla enn og aftur sinnuleysi borgaryfirvalda gagnvart umferðaröryggi í Rimahverfi finnst undirrituðum tilefni til að minna á annað mál og bera saman en það lýtur að Fossvogshverfi. Álandi, sem m.a.
Meira
FYRIR um það bil tveimur árum nefndi vinkona mín við mig, að hún fengi dagblaðið Dag-Tímann á hálfvirði, af því að hún væri orðin "eldri borgari". "Þú sem alltaf kaupir Morgunblaðið ættir að geta fengið afslátt af því," sagði hún.
Meira
ÞVÍ miður eigum við enn við að búa óréttlátt skattkerfi, sem hreint og beint stuðlar að því að hinir fátæku verði enn fátækari, hvort sem um er að ræða ófaglærða á vinnumarkaði með laun undir hundrað þúsund krónum ellegar bótaþega almannatrygginga, sjúka...
Meira
Samræma þarf rafræna skjalastjórnun vistun pappírsskjala. Alfa Kristjánsdóttir skýrir hér hugtakið rafræn skjalastjórnun og gerir grein fyrir hugtakaruglingi sem ríkir á þessu sviði.
Meira
Þrátt fyrir gífurlegar umræður, harðar ásakanir og miklar tilraunir, segir Pétur Bjarnason, hefur ekki tekist að hrekja neinar af meginniðurstöðum Björns Lomborg.
Meira
BARNAGUÐSÞJÓNUSTUR verða í vetur í samstarfi við Breiðabólstaðarprestakall alla sunnudaga kl. 11. Fastur samkomustaður er í Hvammstangakirkju, en öðru hverju verður farið í sveitakirkjurnar, svo börnin fái að koma í sína kirkju einhverntíma vetrarins.
Meira
Hreppsómaga-hnokki hírðist inni á palli, ljós á húð og hár. Steig hjá lágum stokki stuttur brókarlalli, var svo vinafár. Líf hans var til fárra fiska metið. Furðanlegt, hvað strákurinn gat étið.
Meira
Það er ekkert réttlæti í því, segir Björgvin G. Sigurðsson, að ríkismiðill með tekjur af afnotagjöldum etji kappi við einkareknar stöðvar á auglýsingamarkaði.
Meira
Fanney Hervarsdóttir fæddist í Súðavík í Álftafirði 17. júní 1931. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 17. september síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 26. september.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Sveinsson fæddist á Halldórsstöðum í Ljósavatnshreppi, S-Þing. 22. mars 1926. Hann lést 14. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 26. september.
MeiraKaupa minningabók
Halldór Eyjólfsson var fæddur í Reykjavík 9. mars 1924. Hann lést að heimili sínu, Espigerði 2 í Reykjavík, 21. september síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Jónína Nieljohníusdóttir var fædd í Reykjavík 3. desember 1923. Hún lést á Landspítalanum 24. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Nieljohníus Ólafsson, verslunarmaður, f. 21.12. 1890, d. 20.7. 1969, og Ólöf Sigurðardóttir, húsmóðir, f. 30.11.
MeiraKaupa minningabók
Konráð fæddist í Reykjavík 15. desember 1934. Hann lést hinn 25. september síðastliðinn. Hann var sonur hjónanna Rögnu Björnsdóttur, f. 22.7. 1899, d. 21.6.1976 og Bergþórs Magnússonar, f. 29.8. 1900, d. 5.9.1990. Systkini: Hulda, f. 16.11.1922; Magnús, f. 14.1.1924; Björn, f. 14.2.1926; Ragnhildur, f. 27.3.1928; Hreinn, f. 24.5.1931, d. 14.7.1986; Gunnar, f. 12.2.1940. Konráð verður jarðsunginn frá Langholtskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30.
MeiraKaupa minningabók
Kristján Björnsson fæddist í Reykjavík 5. maí 1972. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 10. september síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 21. september.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Arnardóttir fæddist í Reykjavík 13. apríl 1958. Hún lést á gjörgæsludeild Landspítalans 21. september síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Björg Guðnadóttir, f. 7. júlí 1940 og Skúli Guðmundsson, f. 26. apríl 1941.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjóna Kristinsdóttir var fædd á Gili í Öxnadal 28. október 1905. Hún lést í Landakotsspítala 22. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Kristinn Magnússon, f. 25.12. 1856, d. 10.6. 1916, og María Sigurðardóttir, f. 26.2. 1868, d. 16.4.
MeiraKaupa minningabók
STJÓRNENDUR Landsbanka Íslands og Íslandssíma undirrituðu í gær víðtækan samning um frekari eiginfjárþátttöku Landsbankans í Íslandssíma. Samkomulagið felur ennfremur í sér fjármögnun Íslandssíma og stefnumarkandi samstarf milli félaganna.
Meira
ALÞJÓÐLEGA fjármálatímaritið Global Finance hefur útnefnt Landsbanka Íslands hf. sem einn af bestu bönkum heims árið 2000. Bankanum var afhent viðurkenning tímaritsins í Prag í tengslum við ársfund Alþjóðabankans og Alþjóðagjald-eyrissjóðsins.
Meira
LÁNASÝSLA ríkisins hefur í umboði fjármálaráðuneytis lagt fram stefnumótun þar sem fram koma breyttar áherslur í samræmi við tækniframfarir á innlendum fjármálamarkaði.
Meira
ÍSLANDSBANKI-FBA opnar á morgun þjónustumiðstöð þar sem boðið verður upp á þjónustu við fólk sem stendur í fasteignaviðskiptum. Jafnframt mun þjónustumiðstöðin veita ráðgjöf og gera tillögur til lausna á greiðsluerfiðleikum.
Meira
BANK of Scotland hefur vísað á bug fréttum sem birtust í gær um hugsanlegt tilboð bankans í norska Kreditkassen. Bank of Scotland birti í fyrradag afkomutölur sínar fyrir fyrri helming þessa árs og voru þær sýnu verri en sérfræðingar höfðu áætlað.
Meira
HLUTABRÉF í japanska tæknifyrirtækinu Sony lækkuðu um 6% í gær í kjölfar tilkynningar frá fyrirtækinu um að ekki tækist að klára nógu margar PlayStation 2 leikjatölvur sem áætlað var að færu á Bandaríkjamarkað í næsta mánuði. Þetta kemur m.a.
Meira
ÚTBOÐ RÍKISVERÐBRÉFA Meðalávöxtun síðasta úboðs hjá Lánasýslu ríkisins Ávöxtun í % Br. frá síðasta útb. Ríkisvíxlar 17. ágúst '00 3 mán. RV00-0817 11,30 0,66 5-6 mán. RV00-1018 11,36 0,31 11-12 mán. RV01-0418 - - Ríkisbréf sept.
Meira
Bílasýningin í París opnar dyr sínar fyrir gestum á morgun, 30. september, en í gær og í dag er hún opin fréttamönnum. Guðjón Guðmundsson og Árni Sæberg lýsa í máli og myndum því markverðasta sem bar fyrir sjónir.
Meira
Bridsdeild Barðstrendinga og Bridsfélag kvenna Mánudaginn 25. september sl. var spilaður eins kvölds tvímenningur. 24 pör mættu. Meðalskor 216 stig. Bestu skor. N/S Anna G. Nielsen - Guðlaugur Nilsen 275 Guðlaugur Sveinss. - Magnús Sveinss.
Meira
Bridsfélag Reyðarfjarðar og Eskifjarðar Þriðjudagskvöldið 26. september var spilaður tvímenningur hjá BRE, 12 pör tóku þátt og voru spiluð 3 spil milli para. Úrslit urðu á þessa leið: Árni Guðmundss. - Þorbergur Haukss. 189 Jóhanna Gíslad.
Meira
Félag eldri borgara í Kópavogi Föstudaginn 22. sept spiluðu 19 pör og urðu úrslit þessi í N/S: Jón Pálmason - Ólafur Ingimundars. 241 Ólafur Ingvarss. - Þórarinn Árnason 240 Einar Markússon - Sverrir Gunnarss. 229 Hæsta skor í A/V: Garðar Sigurðss.
Meira
Í dag er föstudagur 29. september, 272. dagur ársins 2000. Orð dagsins Legg kapp á að reynast hæfur fyrir Guði sem verkamaður, er ekki þarf að skammast sín og fer rétt með orð sannleikans.
Meira
Staðan kom upp í Norðurlandamóti taflfélaga sem haldið var fyrir skömmu. Hvítt hafði Helgi Áss Grétarsson (2563) gegn Dananum Jens Hartung Nielsen (2224). 25. Rxd5 Einfaldara hefði verið að leika 25. Bxe5! Hxe5 26. Hxe5 Dxe5 27.
Meira
BJARKI Gunnlaugsson gat ekki leikið með liði sínu, Preston NE, í fyrrakvöld þar sem eiginkona hans eignaðist barn í gær og vildi hann ekki hætta á að missa af fæðingunni.
Meira
UPPSKERUHÁTÍÐ knattspyrnudeildar Breiðabliks fór fram um sl. helgi og tók sérstæða stefnu er meistaraflokkur kvenna gaf verðlaunapeninga þá er félagið hlaut fyrir sigur í bikarkeppni KSÍ. Stúlkurnar gáfu handboltakonunni Herdísi Sigurbergsdóttur og manni hennar, Jörundi Áka Sveinssyni þjálfara Blikastúlkna, 300.000 krónurnar sem Vífilfell gaf þeim fyrir að vinna bikarkeppnina.
Meira
VANDRÆÐAGANGURINN hjá Chelsea heldur enn áfram og enska félagið varð fyrir miklu áfalli í gærkvöld þegar það var slegið út úr UEFA-bikarnum strax í fyrstu umferð. Chelsea tapaði óvænt fyrir St.
Meira
KONSTANTINOS Kenteris braut blað í ólympíusögu Grikkja í gær þegar hann varð fyrsti Grikkinn til að vinna til gullverðlauna í spretthlaupi á Ólympíuleikum. Kenteris átti frábæran endasprett og kom í mark á 20,09 sekúndum. Bretinn Darren Campbell, Evrópumeistari í greininni, varð annar á 20,14 sekúndum og Ato Boldon frá Trinidad og Tobaco, sem vann til silfurverðlauna í 100 metra hlaupinu, þriðji á 20,20 sekúndum.
Meira
Ólympíumeistari í tugþraut karla. Fæddur: 25. júní 1970 í Voru í Eistlandi. Helstu afrek: Varð Evrópumeistari árið 1998 og varð þar með fyrsti Evrópumeistari Eista í 60 ár.Varð í sjöunda sæti í sjöþraut á heimsmeistaramótinu innanhúss árið 1999.
Meira
EISTINN Erki Nool tryggði sér ólympíumeistaratitilinn í tugþraut með góðu 1.500 metra hlaupi. Hann var þó heppinn því í annarri grein gærdagsins, kringlukastinu, voru öll þrjú köst hans í fyrstu dæmd ógild en það síðan leiðrétt. Nool fékk 8.
Meira
TINDASTÓLL gerði sér lítið fyrir og skellti sigurstranglegasta liði úrvalsdeildarinnar, Njarðvík, í fyrstu umferðinni á Sauðárkróki í gærkvöld. Lokatölur urðu 84:73 eftir mikla baráttu þar sem þrír Njarðvíkingar fóru af velli undir lokin eftir að hafa fengið á sig tæknivíti og villur fyrir að mótmæla dómgæslunni. Heimamenn komu sterkir til leiks og verða greinilega erfiðir heim að sækja í vetur, sem fyrr.
Meira
GULLVERÐLAUNIN í einliðaleik karla í tennis fóru til Rússlands en Jevgeny Kafelnikov (mynd fyrir ofan)tryggði sér ólympíumeistaratitilinn með því að sigra Þjóðverjan Thomas Haas í hörkuspennandi úrslitaleik, 7:6, 3:6, 6:2, 4:6 og 6:3.
Meira
VÍÐA erlendis þekkist það að keppnisbúningar körfuknattleiksmanna eru hengdir upp í rjáfur þeim til heiðurs, en Keflvíkingar tóku annan pól í hæðina er þeir heiðruðu þau Önnu Maríu Sveinsdóttur og Guðjón Skúlason. Guðjón hefur skorað yfir 10.
Meira
Hamar í Hveragerði vann KFÍ mjög örugglega, 105:72, á heimavelli sínum í Hveragerði í gærkvöldi. Leikurinn byrjaði fjörlega en fljótlega í öðrum leikhluta skildu leiðir og Hamar stakk af. Leikurinn einkenndist af mikilli baráttu heimamanna, Hamar stal 25 boltum á meðan KFÍ stal aðeins 10 boltum og hafði það mikið að segja þegar upp var staðið.
Meira
HOLLENSKI risinn, Rik Smits , hefur ákveðið að leggja körfuknattleikinn á hilluna. Hinn 34 ára gamli leikmaður Indiana Pacers hefur átt í langvinnum meiðslum á fæti og gat ekki lengur beitt sér af fullum krafti. Smits sem er 2.
Meira
Ólympíumeistari í kúluvarpi kvenna. Fædd: 26. desember 1976. Helstu afrek: Varð í þriðja sæti á Evrópumeistaramótinu árið 1998 og í fjórða sæti á heimsmeistaramótinu í Sevilla á síðasta ári.
Meira
Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi kvenna. Fædd: 12. október 1975 í Los Angeles í Bandaríkjunum. Helstu afrek: Ólympíumeistari í 100 metra hlaupi í Sydney. Heimsmeistari í 100 m hlaupi 1997. Árið 1998 vann hún 34 mót í hlaupum og langstökki.
Meira
KÁRI Marísson , fyrrum landsliðsmaður í körfuknattleik, kom inn þegar Tindastóll tók á móti Njarðvíkingum í úrvalsdeildinni í gærkvöld. Hann er án efa elsti leikmaður úrvalsdeildar frá upphafi en Kári verður 49 ára í nóvember.
Meira
Kevin Keegan landsliðseinvaldur Englendinga í knattspyrnu valdi í gær 27 manna landsliðshóp fyrir leikina gegn Þjóðverjum í undankeppni HM þann 7. október og gegn Finnum fjórum dögum síðar.
Meira
Leikmenn Keflavíkur og Hauka ásamt rúmlega 300 áhorfendumvoru klárir í slaginn á tilsettum tíma í gærkvöldi í íþróttahúsinu í Keflavík enda fyrsti alvöruleikur ársins framundan á Íslandsmótinu í körfuknattleik.
Meira
Ólympíumeistari í 200 metra hlaupi karla. Fæddur: 11. júlí 1973 í Mytilene, Grikklandi Helstu afrek: Sigraði í 400 metra hlaupi á Evrópubikarmóti árið 1993 og varð þriðji á sama móti í fyrra. Varð í sjötta sæti á heimsmeistaramóti unglinga árið 1992.
Meira
KONUR Tvíliðaleikur um gullverðlaun: V. Williams/Williams, Bandar. - Oremans/Boogert, Holland 2:0 KARLAR Einliðaleikur um gullverðlaun: Yevgeny Kafelnikov, Rússl. - Tommy Haas, Þýskal.
Meira
KONUR Úrslit af stökkbretti: Mingxia Fu, Kína 609,42 Jingjing Guo, Kína 597,81 Doerte Lindner, Þýskal. 574,35 Úrslit af 10 m. palli, samhæfðar æfingar: Na Li/Xue Sang, Kína 345,12 E.Heymans/A.Montminy, Kanada 312,03 R.Gilmore/L.
Meira
Kristján Helgason mætir Steve Davis, einhverjum frægasta snókerspilara allra tíma og sexföldum heimsmeistara, í fyrstu umferð úrslitakeppninnar á opna breska meistaramótinu í snóker á mánudagskvöldið.
Meira
LÁRUS Orri Sigurðsson sem leikur með enska fyrstudeildarliðinu West Bromwich Albion mun ekki verða settur of snemma inn í aðalliðið en hann er óðum að jafna sig eftir meiðsli sem hann hlaut í fyrravetur, en svo segir á heimasíðu félagsins.
Meira
NÝLIÐAR ÍR í úrvalsdeildinni í körfuknattleik virðast ekki hafa tekið eftir því að þeim var spáð 10. sætinu í deildinni en meisturum meistaranna úr Vesturbænum öðru sæti. Þeir tóku alltént ekki mark á spánni og gerðu sér lítið fyrir og lögðu KR, liðið sem hefur verið nær ósigrað í haust og varla haft undan að hampa bikurum. Lokatölur urðu 101:90.
Meira
ÚRSLITIN í 200 metra hlaupi kvenna voru eftir bókinni. Marion Jones frá Bandaríkjunum vann yfirburðasigur og tryggði sér önnur gullverðlaun sín á Ólympíuleikunum en hún bar einnig sigur úr býtum í 100 metra hlaupinu. Jones kom í mark á 21,84 sekúndum, sem er besti tími ársins, Pauline Davis-Thompson varð önnur á 22,27 sekúndum og í þriðja sæti hafnaði Susanthika Jayasinge frá Sri Lanka á 22,28 sekúndum.
Meira
BJARNI Þorsteinsson, varnarmaðurinn sterki úr KR, er kominn heim eftir vikudvöl hjá norska úrvalsdeildarliðinu Molde. Að sögn Ólafs Garðarssonar, umboðsmanns Bjarna, voru forráðamenn Molde mjög ánægðir með það sem þeir sáu til Bjarna.
Meira
LANGSTÖKKSKEPPNI karla á Ólympíuleikunum í Sydney verður lengi í minnum höfð. Eftir æsispennandi einvígi á milli heimamannsins Jai Taruima og Kúbumannsins Ivan Pedroso hafði sá síðarnefndi betur. Ástralinn hafði forystu fram að síðustu umferðinni. Hann stökk 8,49 metra og bætti sinn besta árangur um 14 sentímetra en Pedroso sýndi styrk sinn og skaust framúr Taruima með lokastökki sínu sem mældist 8,55 metrar.
Meira
YANINA Korolchik frá Hvíta-Rússlandi sigraði í kúluvarpi kvenna með því að kasta 20,56 metra í síðasta kasti sínu og bæta sinn besta árangur um 25 sentímetra.
Meira
RUDI Völler landsliðsþjálfari Þjóðverja í knattspyrnu hefur valið Christian Ziege frá Liverpool í þýska landsliðshópinn fyrir leikinn gegn Englendingum í undankeppni HM sem fram fer á Englandi þann 7. október.
Meira
RÚSSNESKI skíðakappinn Alexander Tikhonov var sleppt úr haldi lögreglu í Rússlandi um helgina en þar hefur hann verið í rúman mánuð vegna gruns um að eiga hlut að samsæri um að myrða rússneskan embættismann.
Meira
SIGURÐUR Grétarsson, þjálfari 21-árs landsliðs karla í knattspyrnu, tilkynnti í gær 16 manna hóp fyrir leiki gegn Tékkum og Norður-Írum í Evrópukeppninni sem fram fara 6. og 10. október.
Meira
SIGURÐUR Örn Jónsson, varnarmaður úr KR, hefur verið valinn í landsliðshópinn í knattspyrnu fyrir leikina gegn Tékklandi og Norður-Írlandi í undankeppni HM. Leikið er við Tékka í Teplice laugardaginn 7. október og gegn Norður-Írlandi á Laugardalsvellinum fjórum dögum síðar.
Meira
Þór tók á móti Skallagrími í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfuknattleik í Íþróttahöllinni á Akureyri í gær. Nokkur viðhöfn var við upphaf leiksins því Ólafur Rafnsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, setti Íslandsmótið formlega með ávarpi í Höllinni. Leikurinn hófst síðan með allmiklum látum og var jafn og spennandi framan af en svo fór að Þórsarar bókstaflega kafsigldu Borgnesinga og úrslitin urðu 93:56.
Meira
STOKE City fékk heimaleik gegn fyrstu deildarliðinu Barnsley þegar dregið var til þriðju umferðar ensku deildabikarkeppninnar í knattspyrnu í gær.
Meira
ÍSLENSKA drengjalandsliðið, skipað leikmönnum undir 16 ára aldri tapaði í gær fyrir Hvít-Rússum, 2:3, í 11. undanriðli Evrópumótsins sem fram fer í Hollandi.
Meira
Tugþraut karla: Erki Nool (Eistlandi) 8,641 Roman Sebrle (Tékklandi) 8,606 Chris Huffins (Bandaríkjunum) 8,595 Dean Macey (Bretlandi) 8,567 Tom Pappas (Bandaríkjunum) 8,425 Tomas Dvorak (Tékklandi) 8,385 Frank Busemann (Þýskalandi) 8,351 Attila Zsivoczky...
Meira
Hollenska úrvalsdeildarliðið Groningen hefur boðið tveimur ungum leikmönnum úr FH, Davíð Þór Viðarssyni og Emil Hallfreðssyni, að koma til félagsins og æfa með því í eina viku.
Meira
NORÐMENN unnu óvæntan en sanngjarnan sigur á fyrrverandi Ólympíu- og heimsmeisturum Bandaríkjanna í knattspyrnu kvenna í gærkvöld í framlengdum leik. Fyrir leikinn höfðu flestir talið að bandarísku stúlkurnar ættu auðveldan leik fyrir höndum, en þessi lið höfðu mæst í riðlakeppninni og þá unnu heimsmeistararnir auðveldan sigur, 2:0. Talið er að norska þjóðarbúið hafi tapað um 300 milljónum króna vegna vinnutaps, - en rúm milljón Norðmanna fylgdist með leiknum í sjónvarpi.
Meira
ÍSLENSKA landsliðið í kvennaknattspyrnu leikur á morgun afar þýðingarmikinn leik gegn Rúmeníu á Laugardalsvelli kl. 13. Liðið þarf að hafa betur ætli það að halda sæti sínu í efsta styrkleikaflokki Evrópu en þetta er síðari viðureign liðanna. Fyrri leikur liðanna endaði 2:2 ytra og því nægir Íslandi markalaust eða 1:1 jafntefli. Mikill hugur er í stúlkunum og eru þær ákveðnar í að leggja sig fram í leiknum til að halda Íslandi í hópi bestu knattspyrnuþjóða í Evrópu.
Meira
Dansari í myrkrinu (Dancer in the Dark) eftir Lars von Trier með Björk í aðalhlutverki var frumsýnd nýlega hér á landi. Björk samdi einnig tónlistina. Myndin fjallar um Selmu sem er tilbúin að fórna öllu til að bjarga syni sínum frá því að verða blindur.
Meira
UNNAR Örn Ólafsson starfar sem verkefnastjóri hjá embætti Skattrannsóknarstjóra ríkisins. Aðspurður segir hann aðgerðir á vegum embættisins vissulega harkalegar, en þó sé ávallt reynt að sýna fyllstu tillitssemi þegar unnið er að því að rannsaka mál.
Meira
Vojislav Kostunica frambjóðandi í forsetakosningum hefur neitað að efnt verði til annarrar umferðar. Forsetakosningar voru í Júgóslavíu á sunnudag.
Meira
HEIMIR Snorrason er 26 ára háskólanemi og að ljúka BA-prófi í sálarfræði frá Háskóla Íslands "á næstu klukkutímum". Hann segist hafa sæst á að vera með í myndinni vegna ítrekaðra tilrauna Huldu leikstjóra.
Meira
Hulda Rós Guðnadóttir mannfræðingur og Michal Polacek kvikmyndaleikstjóri vinna nú að gerð heimildarmyndar um samfélag nútímans. Helga Kristín Einarsdóttir hitti mann og konu sem vilja gera mynd um venjulegt fólk.
Meira
KÖNGULÓARSILKI er ótrúlegt efni með eiginleika sem maðurinn hefur lengi reynt að líkja eftir en ekki tekist. Þessi fíngerði vefnaður er í eðli sínu miklu sterkari en stál, margfalt léttari og teygjanlegri, en teygjanleikinn eykur enn á styrkinn.
Meira
Naumhyggjan hefur gert glysdrottningum gramt í geði undanfarin ár, enda vart verið þverfótað fyrir einföldum litlausum klæðnaði í verslunum í takti við dauflega hártísku. Nú er öldin önnur og býsna kátt að verða í hárri skrauthöllinni.
Meira
"Ég get það," sagði Vala Flosadóttir áður en hún stökk fjóra og hálfan metra á stönginni sinni. Með því tryggði hún sér bronsverðlaun í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu.
Meira
TÖLVUPÓSTUR er snar þáttur í viðskiptum og samningaviðræðum ýmiss konar og sitt sýnist hverjum um ágæti hans sem slíks. Í nýlegri rannsókn bar dr.
Meira
Fyrir þá sem hafa óhreint mjöl í pokahorninu eru samskipti við stöðumælaverði, tollverði og skattrannsóknarmenn efalítið kvíðvænleg. Bergljót Friðriksdóttir fór með hreina samvisku á fund þriggja manna sem vegna starfa sinna eiga á stundum ekki miklum vinsældum að fagna.
Meira
INAR Birgir Eymundsson er deildarstjóri í almennri tollgæslu á Keflavíkurflugvelli en þar starfa á milli 30 og 40 manns við tollgæslu, vopnaleit og vegabréfaskoðun.
Meira
María Kristín Magnúsdóttir byrjaði í námi í skóhönnun í fyrravetur, fyrst Íslendinga svo vitað sé. Helga Kristín Einarsdóttir hitti stúlku sem var aldrei í vafa um hvað hún vildi verða.
Meira
Tveir menn voru handteknir við Norræna húsið nýlega. Þeir voru grunaðir um þjófnað í byggingu Háskóla Íslands. Lögreglan var á eftir þeim. Þá var að hefjast veisla í Norræna húsinu til heiðurs Törju Halonen, forseta Finnlands.
Meira
KÍNVERSKAR neðanjarðarmyndir, sem ekki eru gerðar samkvæmt forskriftum skriffinna og ritskoðara í Peking, sækja gjarnan þrótt sinn í viðurkenningu á Vesturlöndum. Í framvarðarsveit slíkra leikstjóra er Lou Ye sem nú er á miðjum fertugsaldri.
Meira
HAYAO Miyazaki er fremsti og frægasti teiknimyndahöfundur Japana. Mynd hans, Mononoke prinsessa, er önnur af tveimur kvikmyndum sem aflað hafa yfir 150 milljónir dollara í aðgangseyri í heimalandinu; hin myndin er Titanic.
Meira
Japanski leikstjórinn Takeshi Kitano festi sig í sessi fyrir alvöru á alþjóðavettvangi með kvikmyndinni Flugeldar sem vann gullljónið í Feneyjum árið 1997. Leikstjórnarferillinn hófst óvænt árið 1989.
Meira
Sænski leikstjórinn Roy Andersson er vandvirkur og fer varla fram úr rúminu á morgnana nema hann hafi fjögur ár til að klára morgunkornið. Það er í það minnsta sá tími sem hann tekur sér í gerð mynda sinna og þá er hann að flýta sér. Pétur Blöndal talaði við hann um aldarfjórðungslanga þögnina, nýjan þankagang, ólík stílbrögð og uppreisn við Bergman.
Meira
Karatemynd með harðvítugum konum í bardögum, þar sem hugarfluginu er gefinn laus taumur, er framlag Angs Lee til Kvikmyndahátíðar í Reykjavík, ásamt myndinni Djöflareið. Pétur Blöndal talaði við leikstjórann og aðra af aðalleikkonunum, Bondstúlkuna Michelle Yeoh, sem kallar ekki allt ömmu sína.
Meira
FRANSKI leikarinn Gérard Depardieu er ekki hin dæmigerða kvikmyndastjarna, þéttvaxinn, ef ekki hreinlega feitur og prýddur risastóru ljósaperunefi.
Meira
Þorfinnur Ómarsson, nú framkvæmdastjóri Kvik- myndasjóðs Íslands, var 12 ára forfallinn kvikmyndaáhugamaður þegar Kvikmyndahátíð í Reykjavík var haldin í fyrsta skipti, árið 1978. Hann rifjar upp eftirminnilegar myndir og kynni sín af ýmsum gestum hátíðarinnar sl. 22 ár.
Meira
Á beinu brautinni eða "The Straight Story" er ekki dæmigerð kvikmynd úr smiðju bandaríska leikstjórans Davids Lynch, manns sem á að baki um margt ógnvekjandi og súrrealískar kvikmyndir úr kynjaveröld eigin hugarflugs á borð við Eraserhead,...
Meira
DUSAN Makavejev, Sturla Gunnarsson, Hans Petter Moland og Veit Helmer eru fjórir heiðursgestir Kvikmyndahátíðar í Reykjavík að þessu sinni. Árni Þórarinsson og Pétur Blöndal gera grein fyrir ferli þeirra og verkum....
Meira
Kvikmyndahátíðin í Reykjavík varð til árið 1978. Friðrik Þór Friðriksson leikstjóri hefur frá upphafi verið manna ötulastur við að halda henni gangandi. Páll Kristinn Pálsson spjallaði við hann.
Meira
BERLÍNARBÚAR eru stoltir af Berlinale sem er meðal þriggja mikilvægustu kvikmyndahátíða heims. Árlega hefst tímabil kvikmyndahátíðanna í Berlín áður en Los Angeles, Cannes, Locarno, Feneyjar og Toronto taka við. En hvað ætli kvikmyndahátíðarfíklar í Berlín hafi fyrir stafni þær 50 vikur ársins sem Berlinale er ekki á boðstólnum?
Meira
VESTUR-íslenski leikstjórinn Sturla Gunnarsson lýsti í samtali við Bíóblaðið fyrr á árinu löngun til að koma með verðlaunamynd sína Such a Long Journey á næstu Kvikmyndahátíð í Reykjavík.
Meira
JÚGÓSLAVNESKI leikstjórinn Dusan Makavejev er í hópi helstu furðufugla kvikmyndasögunnar, háðskur, jafnvel eitraður ádeiluhöfundur, djarfur, sumir mundu segja klámfenginn á köflum, í meðferð þess meginviðfangsefnis síns sem er samlíking stjórnmálalífs og...
Meira
VIÐ höfum á undanförnum vikum verið að fá fréttir af velgengni íslenskra bíómynda á kvikmyndahátíðum erlendis, hvernig þær hafa vakið athygli og jafnvel unnið til verðlauna, og núna er haldin Kvikmyndahátíð í Reykjavík.
Meira
"Það var alltaf ætlunin að 8½ kona yrði kjarnyrtur gamanleikur," segir leikstjórinn, málarinn og rithöfundurinn Peter Greenaway um nýjustu kvikmynd sína.
Meira
ÞAÐ er ekki seinna vænna en íslenskir kvikmyndaáhugamenn kynnist verkum hins 42 ára Hong Kongbúa Wongs Kar-wai. Hann á aðeins sjö kvikmyndir í fullri lengd að baki og fáum við að sjá þrjár þeirra hér á hátíðinni.
Meira
Í CINEMA Paradiso tjáði ítalski leikstjórinn Giuseppe Tornatore heimi kvikmyndanna ást sína og virðingu með eftirminnilegum hætti og túlkaði um leið æskuminningar sínar einkar fallega á tjaldinu.
Meira
"ÞAÐ sem skapar ástarsögu í mínum huga er að hún hefur upphaf, miðbik og endi. Og það er endirinn sem gerir söguna þess virði að segja hana," segir Belginn Frédéric Fonteyne, leikstjóri myndarinnar Klámfengin kynni (1998).
Meira
Sex Pistols færði Bretum anarkisma og bakaði íhaldssömum öflum í þjóðfélaginu vandræði. Var það til nokkurs? Pétur Blöndal talaði við Julien Temple, leikstjóra heimildarmyndar um Sex Pistols, sem segir frá þessari umdeildu pönksveit og hræringunum bakvið trommusettið.
Meira
Tilræði við keisarann nefnist nýjasta kvikmynd kínverska leikstjórans Chen Kaige og er frægasta leikkona Kínverja, Gong Li, í aðalhlutverki. Pétur Blöndal var viðstaddur blaðamannafund þar sem þau töluðu um stríð og frið, manndráp og hugsjónir, að ógleymdri ástinni.
Meira
Það sem heillar listamanninn George Condo við popplistina eru Campbells súpudósir. "Þær flokkuðust ekki undir list fyrr en [Andy] Warhol gerði þær að list," segir hann.
Meira
"Það erfiðasta við kvikmyndagerð er að byggja söguna upp þannig að maður komist inn í upplifun sögupersónanna af veröldinni í stað þess að skoða hana utan frá," segir Atom Egoyan, sem leikstýrir Ferðalagi Feliciu.
Meira
Sólskin Szabos Ungverski kvikmyndaleikstjórinn Istvan Szabo , sem hingað kom á kvikmyndahátíð fyrir nokkrum árum, sendi frá sér nýja mynd í sumar sem heitir einfaldlega Sólskin eða Sunshine .
Meira
Tékkneski leikstjórinn Jan Hrebejk er fæddur árið 1967 og man varla mikið eftir vorinu í Prag ári síðar þegar Rússar réðust inn í borgina og kæfðu þá vonarglóð sem kviknað hafði í tékknesku þjóðarsálinni.
Meira
TAÍVANSKI leikstjórinn Ang Lee stendur að opnunarmynd hátíðarinnar, Krjúpandi tígur, dreki í leynum . Í Bíóblaðinu í dag birtist viðtal Péturs Blöndal við leikstjórann og aðalleikkonu myndarinnar Michelle Yeoh .
Meira
FERILL breska leikstjórans Mike Figgis er óvenjulegur í besta máta. Hann fæddist í Kenýa fyrir 51 ári en fluttist með foreldrum sínum til Newcastle á Englandi átta ára að aldri.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.