FULLTRÚAR Bandaríkjanna á framhaldsráðstefnu aðildarríkja loftslagssáttmála Sameinuðu þjóðanna í Haag lögðu í gær, við upphaf úrslitaviku ráðstefnunnar, fram nýja tillögu um það hvernig ríkin geti reiknað sér til tekna nýrækt og verndun skóga og...
Meira
DAVID Byrne, sem fer með heilbrigðis- og neytendamál í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins, ESB, krafðist þess í gær að frönsk stjórnvöld ábyrgðust að neytendur í öðrum löndum nytu sömu verndar gagnvart kúariðumenguðum afurðum og franskir.
Meira
HÆSTIRÉTTUR Flórídaríkis í Bandaríkjunum hlýddi í gær á röksemdir lögfræðinga liðsmanna Al Gores, frambjóðanda demókrata, og George W. Bush, frambjóðanda repúblikana, í deilunni um lögmæti handtalningar atkvæða í nokkrum sýslum ríkisins.
Meira
EIGINKONUR ýmissa leiðtoga í arabaríkjunum luku í gær fundi sínum í Kaíró með því að hvetja til, að réttindi arabískra kvenna yrðu aukin og þeim gert auðveldara að taka þátt í opinberu lífi.
Meira
Tillaga Íslands á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Haag var afgreidd áfram í undirnefnd, en hvort tekst að koma henni í gegnum endanlega afgreiðslu er annað mál, segir Sigrún Davíðsdóttir.
Meira
BILL Clinton Bandaríkjaforseti segir eðlilegt að báðir aðilar reyni eftir megni berjast til þrautar þegar munurinn á atkvæðatölum sé jafn lítill og raunin er í forsetakosningunum.
Meira
MILDI er að ekki fórr verr þegar rúta með 39 manns fór út af veginum við fyrir neðan grunnskólann Sólgarð, nærri Barði í Fljótum á sjöunda tímanum síðdegis á sunnudaginn.
Meira
Fyrir Hæstarétti er tekist á um það hvort reglugerð um skerðingu lífeyrisbóta öryrkja vegna tekna maka hafi átt sér stað í lögum. Einnig er tekist á um hvort lög sem stjórnvöld settu 1998 um þessa skerðingu standist stjórnarskrá og alþjóðlega samninga.
Meira
Mývatnssveit- Jeppabifreið á austurleið valt út af þjóðveginum austast í Víðidal á fimmtudagskvöldið. Nokkur skafrenningur var og missti bílstjórinn, sem er rússneskur, stjórn á bifreiðinni með fyrrgreindum afleiðingum.
Meira
SAMNINGAFUNDUR var haldinn í húsakynnum ríkissáttasemjara í gær í kjaradeilu MATVÍS (Matvæla- og veitingasambands Íslands) og Samtaka atvinnulífsins, en sambandið hefur boðað verkfall um 1.200 félagsmanna sinna frá kl. 19 föstudaginn 24. nóvember nk.
Meira
ÁRLEG sjóbjörgunaræfing nemenda Lögregluskólans í Reykjavík fór fram í Kollafirði á dögunum. Þar voru nemendurnir m.a. þjálfaðir í björgun úr sjó og siglingu björgunarbáta og voru að lokum hífðir af varðskipinu Óðni um borð í þyrlu...
Meira
STARFSEMI Byggðastofnunar þarf í meiri mæli að beinast að því að stuðla að nýsköpun og atvinnuþróun á landsbyggðinni en að sama skapi þarf að breyta áherslum í lánastarfsemi stofnunarinnar, sérstaklega hvað varðar útlán til hefðbundinna atvinnugreina.
Meira
TJARAN er fylgifiskur nagladekkjanna og sem slík öruggt merki þess að vetur er genginn í garð þótt snjórinn láti bíða eftir sér, að minnsta kosti sunnanlands.
Meira
Þórunn Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 31. 7. 1965. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1985 og prófi í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands árið 1993. Hún hefur starfað sem hjúkrunarfræðingur á gjörgæsludeild Landspítalans við Hringbraut og gerir enn. Hún á sæti í stjórn SPOEX (Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga). Þórunn er í sambúð með Enes Cogic, starfsmanni í Merkingu.
Meira
GEIR H. Haarde hefur sett á laggirnar sérstakan vinnuhóp sérfræðinga sem vinnur að því að endurskoða ákvæði í gildandi lögum um álagningu eignarskatts og væntir hann niðurstöðu þeirrar vinnu áður en mjög langt um líður.
Meira
AFKOMA Flugleiða hefur versnað talsvert á milli ára samkvæmt níu mánaða uppgjöri félagsins. Hagnaður á þessu tímabili var 403 milljónir króna í ár miðað við 2.
Meira
EDDUVERÐLAUNIN, íslensku kvikmynda- og sjónvarpsverðlaunin, voru afhent í Þjóðleikhúsinu síðastliðið sunnudagskvöld við hátíðlega athöfn. Mynd Friðriks Þórs Friðrikssonar, Englar alheimsins , var valin mynd ársins.
Meira
Norður-Héraði- Kjarkur og þor sveitanna sem er verðlaunagripur til þeirra sem hafa skarað framúr í búskap á Austurlandi og sýnt kjark hvað það varðar, var afhentur í þriðja sinn á Bændahátíð í Valaskjálf nýlega.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjaness hefur dæmt tuttugu og þriggja ára Reykvíking í fimm mánaða fangelsi fyrir ölvunarakstur um Álftanesveg og Hafnarfjarðarveg í ágúst sl. Hann ók bifreið sinni sviptur ökurétti.
Meira
LÖGREGLAN í Reykjavík var kvödd á vettvang um miðjan dag í gær að Menningarmiðstöðinni í Gerðubergi í Breiðholti þegar tilkynnt var um árás unglingspilta á húsvörð Gerðubergs.
Meira
FJÓRIR menn fórust í snjóflóðum, sem féllu í Týról-héraði í Austurríki á sunnudag. Koma þessar slysfarir skömmu eftir að 155 manns týndu lífi í eldsvoða sem varð í toglestargöngum upp að Kitzsteinhorn-jöklinum.
Meira
TALSMENN íbúa Austur-Héraðs, sem mótmælt hafa fyrirhuguðum brúarframkvæmdum á Seyðisfjarðarvegi yfir Eyvindará, söfnuðu um helgina fleiri undirskriftum, sem afhenda á bæjarstjóra Austur-Héraðs á Egilsstöðum í dag. Bæjarstjórnarfundur er í kvöld.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi ályktun frá stjórn Samtaka um betri byggð til að "skýra afstöðu sína til frammistöðu borgarstjórnar og starfa sérfræðihóps um landnotkun í Vatnsmýri": "Stjórn Samtaka um betri byggð vekur athygli á...
Meira
VILHJÁLMUR Lúðvíksson framkvæmdastjóri Rannsóknarráðs Íslands flytur þriðjudaginn 21. nóvember kl. 20 erindi í Norræna húsinu er hann nefnir "Að breyta landi". Vilhjálmur er kunnur áhugamaður um skóg- og trjárækt svo og garðrækt.
Meira
ÖSSUR Skarphéðinsson, formaður Samfylkingarinnar og Margrét Frímannsdóttir, varaformaður, kynna leið Samfylkingarinnar í fundaferð dagana 20.-25. nóvember. Fundirnir verða á eftirtöldum stöðum: Þriðjudaginn 21.
Meira
FUNDUR hefst á Alþingi í dag kl. 13.30. Eftirfarandi mál eru á dagskrá: 1. Tekjuskattur og eignarskattur (söluhagnaður hlutabréfa o.fl.). Frh. 1. umræðu. 2. Jöfnun flutningskostnaðar á sementi. 1. umræða. 3. Verðbréfaviðskipti. 1. umræða. 4.
Meira
FÉLAG um heilsuhagfræði efnir til fundar 22. nóvember nk. um ný lög um sjúklingatryggingu, sem taka gildi 1. janúar 2001. Samkvæmt þessum lögum verður fjöldi starfsfólks í heilbrigðiskerfinu að tryggja sig gagnvart bótaskyldu.
Meira
GARÐABÆR hefur í samstarfi við Form.is sett upp rafræn eyðublöð á heimasíðu sinni. Þar má sækja um leikskólapláss, byggingarlóðir, húsaleigubætur og fleira.
Meira
EFTIRFARANDI ályktun var samþykkt í stjórn Kjördæmisfélags Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavík á fundi sem haldinn var 16. nóvember sl.
Meira
LÖGREGLAN á Akureyri handtók ungan mann í bænum á sunnudagskvöld en hann hafði gerst sekur um að stela þremur ávísanaheftum í Reykjavík. Maðurinn kom norður til Akureyrar í leigubíl, sem samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins kostaði 64.
Meira
HÓPUR fólks veittist að lögreglumönnum í miðbæ Reykjavíkur aðfaranótt sunnudags og þurftu lögreglumennirnir að beita varnarúða (mace-úða). Múgurinn hefti m.a. för lögreglubíla og gerði tilraun til að losa fimm unga menn sem lögreglan hafði handtekið.
Meira
GARÐAR Viðar Guðjónsson var einn þeirra sex farþega sem voru það alvarlega slasaðir eftir slysið að hann var lagður inn á sjúkrahúsið á Sauðárkróki.
Meira
ÁKVÖRÐUN borgarstjórnar Reykjavíkur um að falla frá forkaupsrétti á félagslegum íbúðum þegar liðinn er sá tími sem kaupskylda hvílir á borginni hefur í för með sér að nokkur hundruð eigendur slíkra íbúða geta strax selt þær á frjálsum markaði.
Meira
Jólakortasala Blindrafélagsins er komin í fullan gang en jólakortasalan er einn af mikilvægustu burðarásum í fjáröflunarstarfsemi félagsins. Í rúm 60 ár hefur félagið fyrst og fremst treyst á stuðning almennings og atvinnulífs við starfsemi sína.
Meira
EKKERT miðaði í gær í kjaradeilu framhaldsskólakennara og ríkisins en fundi lauk hjá ríkissáttasemjara í gærkvöldi eftir nokkurra klukkustunda árangurslausar viðræður.
Meira
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra sagði á Alþingi í gær að kennarar þyrftu að koma niður úr skýjunum ef takast ætti að leysa launadeilu þeirra og ríkisins og binda endi á tveggja vikna verkfall í framhaldsskólum landsins.
Meira
Framhaldsskólakennarar á Akureyri hafa sent áskorun til ríkisstjórnarinnar um að axla ábyrgð á skólastarfi og koma til móts við kröfur kennara um launaleiðréttingu og gerð kjarasamnings.
Meira
KRISTÍN Petrea Sveinsdóttir, sem var elst Íslendinga, lést í Reykjavík á laugardaginn, rúmlega 106 ára að aldri. Kristín var fædd í Skáleyjum á Breiðafirði 24. ágúst 1894 og voru foreldrar hennar Sveinn Pétursson og Pálína Tómasdóttir.
Meira
GENGI íslensku krónunnar náði sögulegu lágmarki í gær þegar gengisvísitala krónunnar fór í fyrsta sinn yfir 120 stig á millibankamarkaði, skömmu eftir skráningu Seðlabankans um morguninn.
Meira
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til kvöldvöku í F.Í.-salnum miðvikudagskvöldið 22. nóvember kl. 20:30. Þar fjallar Jón Viðar Sigurðsson um Grænland í máli og myndum.
Meira
EKIÐ var á vinstri framhurð og bretti bifreiðarinnar ZU-378, sem er svört BMW-fólksbifreið, frá kl. 20 þann 17. nóvember sl. til kl. 16 næsta dag þar sem hún stóð mannlaus í bílastæði við Snorrabraut 36. Er jafnvel talið að þetta hafi átt sér stað um kl.
Meira
ÞRJÚ ungmenni réðust á lögregluna á Ísafirði eftir að lögreglumenn höfðu stöðvað átök. Einn lögreglumannanna fékk spark í andlitið en ekki urðu alvarleg meiðsli. Vegfarandi sem varð vitni að átökunum tók þau upp á myndband og hefur afhent það lögreglu.
Meira
MÁLÞING verður haldið á vegum Rannsóknarstofnunar í hjúkrunarfræði í samstarfi við Heilsugæsluna í Reykjavík, Landspítala - háskólasjúkrahús og Hollvinafélag hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands. Haldið á Grand Hótel fimmtudaginn 23. nóvember kl. 13-17.
Meira
Sjúkrabílar frá bæjum allt milli Blönduóss og Akureyrar voru sendir á vettvang eftir að rúta með 38 manns valt í Fljótum. Einnig sjúkraflugvél frá Akureyri og þyrla frá Reykjavík. Farþegar segjast þakklátir björgunarmönnum og aðhlynningu heilbrigðisstarfsmanna í viðtölum við Ívar Benediktsson blaðamann og Ragnar Axelsson sem ljósmyndaði.
Meira
LÖGMENN stóru flokkanna tveggja í Bandaríkjunum, demókrata og repúblikana, héldu um helgina áfram að deila harkalega um túlkun á lagabókstafnum meðan beðið var úrskurðar hæstaréttar Flórída um lögmæti handtalningar í nokkrum sýslum.
Meira
RÍKISÚTVARPIÐ opnaði nýja fréttaþjónustu laugardaginn 18. nóvember undir nafninu Fréttasíminn. Notendur geta framvegis hlustað á fréttir RÚV í gegnum síma með því að hringja í símatorgsnúmerið 903 5000 sem veitir aðgang að flestum fréttatímum Útvarpsins.
Meira
MANNVIRKJASJÓÐUR Atlantshafsbandalagsins kostaði hluta af uppsetningu ljósleiðarakerfis Landssímans hf. og fékk fyrir það ótímabundin einkaafnot af þremur pörum af átta sem í strengnum eru.
Meira
PIZZUSENDILL var rændur í vesturbæ Kópavogs á laugardagskvöld. Tveir piltar réðust að honum og neyddu hann til að afhenda peningatösku sem hann bar um mittið. Þeir hlupu að því loknu á brott og komust undan með um 20 þúsund í peningum.
Meira
LÖGREGLAN heldur áfram rannsókn sinni á morðinu á Einari Erni Birgissyni. Talið er að málið skýrist enn frekar í lok vikunnar. Von er á niðurstöðum DNA-rannsóknar frá Noregi í vikunni en lögreglan sendi þangað blóðsýni í síðustu viku.
Meira
Menntamálaráðherra, Björn Bjarnason, hefur ákveðið að veita Karitas H. Gunnarsdóttur deildarstjóra embætti skrifstofustjóra menningarmála í menntamálaráðuneytinu til fimm ára frá og með 1. desember 2000 að telja.
Meira
ÁÐUR en til sameiningar stóru sjúkrahúsanna á höfuðborgarsvæðinu kom; Landspítala, Borgarspítala og Landakotsspítala, voru reglur um lyfjagjafir mjög áþekkar, og í anda þeirra reglna sem nú gilda á Landspítalanum - háskólasjúkrahúsi.
Meira
LÖGREGLAN á Selfossi fékk tilkynningu frá þremur rjúpnaskyttum á Fagradalsfjalli um miðjan dag í gær, um að þær væru í sjálfheldu á fjallinu sökum hálku.
Meira
STÚLKA um tvítugt missti vald á bifreið sinni á Skeiðavegi skammt frá Brautarholti snemma á laugardagsmorgun. Bíllinn fór þrjár veltur og endastakkst yfir girðingu. Stúlkan, sem var ein á ferð, fótbrotnaði við óhappið.
Meira
FÉLAG stjórnmálafræðinga heldur félagsfund í húsnæði ReykjavíkurAkademíunnar á Hringbraut 121, miðvikudaginn 22. nóvember kl. 21. Dr. Áslaug Ásgeirsdóttir, sem nýlega lauk doktorsprófi í stjórnmálahagfræði frá Washington University í St.
Meira
YFIRVÖLD í nyrstu héruðum Noregs hafa miklar áhyggjur af því að viðskipti við Rússa muni skaðast þegar Schengen-samkomulagið um vegabréfaeftirlit tekur gildi í Noregi. Ástæðan er kostnaðurinn við áritun, sem er sá sami í öllum löndum, um 2.500 ísl. kr.
Meira
SKÓLANEFND Akureyrar hefur samþykkt erindi frá Agli Jónssyni tannlækni, þar sem hann fer fram á að koma upp tannlæknastofu á hjólum við grunnskóla bæjarins. Egill sagði í samtali við Morgunblaðið að með þessu væri hann að láta 20 ára gamlan draum rætast.
Meira
GUÐRÚN HF, trilla frá Hafnarfirði, með þremur mönnum um borð, varð vélarvana og rafmagnslaus um 18 sjómílur norðvestur af Garðsskaga síðdegis í gær og kom togarinn Háey frá Vestmannaeyjum Guðrúnu til bjargar, eftir að hafa séð til neyðarblyss frá henni.
Meira
Á NÆSTU tveimur vikum verður almenna símstöðvarkerfið uppfært með nýjum aðferðum. Uppfærslan hefur nú þegar verið gerð í prufustöðinni og símstöðinni í Breiðholti. Í hugbúnaðarpakkanum sem er notaður er að finna m.a.
Meira
TALSVERT annríki var hjá lögreglu aðfaranótt sunnudags einkum vegna skemmtana í miðbænum. Höfð voru afskipti af akstri "glæsivagns" með ungmenni í Grafarvoginum á föstudagskvöld.
Meira
ÞRÍR af fjórum sigurvegurum í ritgerðasamkeppni utanríkisþjónustu Íslands voru verðlaunaðir með ferð til New York nýverið. Ritgerðasamkeppnin var haldin í tilefni af 60 ára afmæli utanríkisþjónustunnar.
Meira
EVA Arnfríður Aradóttir, nemandi við Korpuskóla í Reykjavík, fékk í gær verðlaun fyrir hönnun á jólasveini, Bjúgnakræki, sem prýða mun jólasveinaskeiðina árið 2000, sem Gull- og silfursmiðjan Erna framleiðir.
Meira
SKIPULAGS- og umferðarnefnd Hafnarfjarðar hefur samþykkt að vinna ekki frekar á grunni tillögu bæjarfulltrúa Samfylkingarinnar um viðbyggingar við Lækjarskóla til að koma á einsetningu skólans.
Meira
VEGAGERÐIN vinnur nú að gerð skýrslu fyrir Skipulagsstofnun vegna mats á umhverfisáhrifum á fyrirhuguðum Suðurstrandarvegi, sem tengja á núverandi Suðurlands- og Reykjaneskjördæmi saman milli Þorlákshafnar og Grindavíkur.
Meira
ÞAÐ virðist vera mikið hitamál á Ísafirði á hvern hátt ríkisstjórnin vill leysa fjárhagsvanda sveitarfélaganna þar, því að mikið skrifar Bæjarins besta um tillögur um skuldajöfnun með því að ríkið kaupi Orkubú Vestfjarða.
Meira
Gradualekór Langholtskirkju, Graduale Nobilis og Skólakór Kársness fluttu íslenska dagskrá á vegum Tónskáldafélags Íslands. Stjórnendur: Þórunn Björnsdóttir og Jón Stefánsson Undirleikarar: Lára Bryndís Eggertsdóttir og Marteinn H. Friðriksson. Föstudaginn 17. nóvember.
Meira
ÖRYGGISVÖRÐUR sést hér standa milli verkanna Gulu peysunnar og Konu í stól, sem eru tvö þeirra verka spænska listamannsins Pablos Picassos sem finna má á Stuehler Bau, einkasafni Þjóðverjans Heinz Berggruens.
Meira
Foreldrar/ Mengin í samfélagi skólans eru nemendur, kennarar og foreldrar. Gunnar Hersveinn skoðaði stökin sem búa þar sem mengin þrjú skarast og heillavænleg samskipti þeirra.
Meira
Leikstjóri: Nick Gomez. Handrit: Peter Steinfeld. Aðalhlutverk: Danny DeVito, Bette Midler, Neve Campbell, Jamie Lee Curtis, Casey Affleck, William Fichtner og Peter Dobson. Bandaríkin 2000.
Meira
Ný bókaútgáfa, Fósturmold ehf., sendir frá sér fjórar bækur á þessu hausti. Prinsessur eftir Leó E. Löve. Að sögn höfundar er þessi bók byggð á reynslu hans sem ungs lögfræðings af málum er tengdust kynferðislegri misnotkun.
Meira
"Hlustun er lykill að góðu samstarfi foreldra og skóla," sagði Sigrún Ágústsdóttir námsráðgjafi og kennari í Réttarholtsskóla, og að aðalatriðið með bættu samstarfi foreldra og skóla væri velferð og vellíðan nemenda.
Meira
ÍSLENSK kórtónlist frá síðustu tveimur áratugum tuttugustu aldar er á efnisskrá lokatónleikanna í þriðju og síðustu tónleikaröð Tónskáldafélags Íslands í Listasafni Íslands í kvöld, þar sem Hamrahlíðarkórinn syngur undir stjórn Þorgerðar Ingólfsdóttur.
Meira
DAGSKRÁ helguð Guðrúnu Helgadóttur verður á Súfistanum, bókakaffi í verslun Máls og menningar, Laugavegi 18, í kvöld kl. 20. Þar les Guðrún úr nýútkominni skáldsögu sinni Oddaflug og Hjalti Rögnvaldsson leikari les úr fyrri verkum hennar.
Meira
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í Norræna húsinu á morgun, miðvikudag, kl. 12.30. Þórunn Elfa Stefánsdóttir syngur við undirleik Evu Þyriar Hilmarsdóttur. Á dagskránni eru verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson, Jón Ásgeirsson, C. Armstrong Gibbs og C.V. Stanford.
Meira
SÍÐASTI áfangi farandsýningarinnar Hláturgas var opnaður á Landspítala - háskólasjúkrahúsi sl. föstudag. Hefur sýningin þá verið hengd upp á tíu sjúkrahúsum víðs vegar um landið. Það er Íslenska menningarsamsteypan art.
Meira
Norðurljósahátíðin, norræn menningarhátíð sem haldin er árlega í Caen í Normandí í Frakklandi, hófst sl. fimmtudag, 16. nóvember, og stendur til 25. nóvember.
Meira
ÍSLENSK tunga í lok aldar var yfirskrift málstefnu sem Menntaskólinn á Akureyri efndi til um helgina í samvinnu við menntamálaráðuneytið og Íslenska málnefnd.
Meira
HÆGLÁTI Bandaríkjamaðurinn John Ford (1895-1973) var ekki aðeins frumkvöðull, heldur einn örfárra leikstjóra sem settu mark sitt á kvikmyndalistina, lyftu henni til hæða, mótuðu hana og meitluðu í það form sem hún er og verður um alla framtíð.
Meira
FÖSTUDAGINN 3. nóvember sl. var haldið hrekkjavökuball í félagsmiðstöðinni Frostaskjóli. Mæting var gríðarlega góð en um 200 unglingar mættu á ballið og skemmtu sér konunglega. Stemmningin var frábær og ballið fór ákaflega vel fram í alla staði.
Meira
0 Leikstjóri: Eric Meza. Handrit: Mitch Mullany. Aðalhlutverk: Mitch Mullany, Carl Anthony Payne III. (93 mín.) Bandaríkin 1999. Sammyndbönd. Öllum leyfð.
Meira
Tónlistardagar Dómkirkjunnar. Verk eftir Grieg, Bruckner, Saint-Saëns, Alain, Dvorák og Fauré. Margrét Bóasdóttir sópran, Bergþór Pálsson barýton; Anna Guðný Guðmundsdóttir, píanó; Dómkórinn undir stjórn Marteins H. Friðrikssonar. Laugardaginn 18. nóvember kl. 17.
Meira
ÞAÐ má á ýmsan skemmtilegan hátt vekja athygli barna á ljóðum. Því hafa nemendur í Rimaskóla fengið að kynnast á Degi íslenskrar tungu undanfarin ár. Í fyrra útbjuggu nemendur sér hálsfestar sem í hékk ljóð í flösku með kvæðum eftir Jónas Hallgrímsson.
Meira
Lovorka Banovic, Monna Blegvad, Aleksej Iskos, Igor Kolobaric, Hans E. Madsen, Aðalsteinn Stefánsson, Carlo Volf & Janne Øhre. Til 3. desember. Opið þriðjudaga til sunnudaga frá kl. 14-18.
Meira
Kristjana Stefánssdóttir söngur, Birkir Freyr Matthíasson trompet og flygilhorn, Gunnar Gunnarsson píanó og rafpíanó, og Tómas R. Einarsson bassa. Múlinn í Betri stofu Kaffi Reykjavíkur sunnudagskvöldið 19. nóv.
Meira
LISTASAFN ÍSLANDS KL. 20 Íslensk kórtónlist - Hamrahlíðarkórinn Lokatónleikar þriðja og síðasta hluta hátíðar Tónskáldafélagsins, sem hófst 18. október og lýkur 21. nóvember. Hátíðin hefur verið tileinkuð tónsmíðum frá 1985 og til aldarloka.
Meira
BURTSÉÐ frá öllum ólátum sem áttu sér stað í miðborginni um helgina lýsti Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri því yfir við opnun nýrrar lyfjaverslunar Lyfja og heilsu í Austurstræti að miðborgin væri þar með "að ná heilsu aftur".
Meira
Breiðholtsskóli og Engjaskóli eru móðurskóli í foreldrasamstarfi. Hlutverk móðurskóla í foreldrasamstarfi er: - að byggja upp fyrirmyndaráætlun um samstarf og samskipti við foreldra.
Meira
Nemendur eru oft ósýnilegir í umræðum um þátttöku foreldra í skólastarfi, en geta haft áhrif á gang mála. Þörf er á að taka fullt tillit til þeirra. Umhyggja í raun getur veitt tækifæri til að endurskoða hlutverk og forsendur samstarf foreldra og skóla.
Meira
ÚT er komin geislaplata með tónlist eftir Gusgus, Bix og Daníel Ágúst úr dansverkinu Diaghilev: Goðsagnirnar eftir Jochen Ulrich sem Íslenski dansflokkurinn hefur sýnt að undanförnu.
Meira
ÚT er komin bókin Stelpur í strákaleit eftir verðlaunahöfundinn Jacqueline Wilson . Nick Sharratt myndskreytti og Þórey Friðbjörnsdóttir þýddi. Í fréttatilkynningu segir: "Þetta er fjörug og skemmtileg unglingasaga sem hefur vakið mikla athygli.
Meira
ÚT er komin bókin, Ólafur biskup, æviþættir . Í fréttatilkynningu segir: "Ólafur Skúlason biskup hefur notið vinsælda og virðingar í störfum sínum.
Meira
Haukur Tómasson: Konsert fyrir fiðlu og kammersveit (1997), Árhringur (1994), Spírall (1992), Stemma (1997). Jón Ásmundsson: Stemma (hljóðritað 1966). Einleikur: Sigrún Eðvaldsdóttir (fiðla). Hljómsveit: Caput Ensemble. Hljómsveitarstjóri: Guðmundur Óli Gunnarsson. Heildartími: 70'28. Útgefandi: Grammofon AB BIS (BIS-CD-1068). Verð: kr. 1.799. Dreifing: Japis.
Meira
LINDA Hofman sýnir nú í Galleríi Nema hvað. Linda er skiptinemi frá Hollandi og sýnir verk sem hún hefur unnið á undanförnum tveimur mánuðum á Íslandi. Sýningin stendur til 19. nóvember. Opið fimmtudaga til sunnudags kl....
Meira
Leikstjóri og handritshöfundur Guy Ritchie. Tónskáld John Murphy. Kvikmyndatökustjóri John Maurice-Jones. Aðalleikendur: Jason Statham, Robby Gee, Dennis Farina, Rade Serbedzija, Vinnie Jones, Brad Pitt, Benicio Del Toro, Alan Ford. Sýningartími 100 mín. Bresk. Columbia. Árgerð 2000.
Meira
Leikstjórn og handrit: Nell Scovell. Aðalhlutverk: Bethany Richards, Priscilla Presley og Bill Fagerbakke. (90 mín) Bandaríkin, 1999. Sam myndbönd. Leyfð öllum aldurshópum.
Meira
ÓVENJUMARGAR Hollywood-stjörnur voru á ferli í New York þessa helgina, og ekki að ástæðulausu, en á laugardaginn gifti eitt umtalaðasta leikaraparið sig; óskarsverðlaunahafinn Michael Douglas og velska fegurðardísin Catherine Zeta Jones, á Manhattan's...
Meira
ÚT er komið Ritþing Þórarins Eldjárns og Sjónþing Önnu Líndal en þau sátu fyrir svörum á Ritþingi og Sjónþingi Gerðubergs í febrúar og mars sl. Í fréttatilkynningu segir m.a.
Meira
ÚT er komin bókin Fluguveiðisögur eftir Stefán Jón Hafstein . Í fréttatilkynningu segir: "Bókin er í senn þroskasaga fluguveiðimanns og óður til náttúrunnar, vináttunnar og alls sem lífsanda dregur.
Meira
Í álögum, geisladiskur Rabba og Rúnars. Rabbi, eða Rafn Jónsson, sér um áslátt, söng og hljómborð og Rúnar Þórisson leikur á gítar, búsúkí, hljómborð og gítargervil.
Meira
Stofnun kennd við bandarísku listamannahjónin Jackson Pollock og Lee Krasner, Pollock-Krasner Foundation, hefur verið starfrækt í New York frá 1985. Hulda Stefánsdóttir talaði við stjórnar- formanninn Charles C. Bergman.
Meira
THREE to Tango er ný toppmynd myndbandalistans þessa vikuna og leysir þar með Erin Brockovich af hólmi. Þessi nýja toppmynd er ein af þessum rómantísku gamanmyndum sem ganga á spaugilegan máta út á hina órannsakanlegu vegi ástarinnar.
Meira
ÞRÚGUR REIÐINNAR - THE GRAPES OF WRATH (1940) EITT af stórvirkjum Johns Steinbecks og bókmenntanna, Ford og kvikmyndanna, segir frá raunalegum búferlaflutningi Oklahómabúa til fyrirheitna landsins, Kaliforníu.
Meira
60 ÁRA afmæli. Í dag, þriðjudaginn 21. nóvember, verður sextug Guðlaug Kristófersdóttir bankastarfsmaður, Dvergholti 17, Mosfellsbæ. Eiginmaður hennar er Niels J. Hansen. Þau taka á móti gestum laugardaginn 25. nóvember nk.
Meira
70 ÁRA afmæli . Sjötug er í dag, þriðjudaginn 21. nóvember, Dóra Guðbjört Jónsdóttir, Frakkastíg 10, Reykjavík. Hún tekur á móti gestum á Grandhótel við Sigtún, sunnudaginn 26. nóvember nk. frá kl....
Meira
Það var einmitt andagift textans, sem kveikti þessa leikhúsveislu, sem ég sá, segir Vilborg Halldórsdóttir, og margir leikara þessarar sýningar hafa sjaldan staðið sig jafnvel.
Meira
Það má fela margan vandann með tölfræði, segja Ása Björk Snorradóttir og Guðni Kjartansson, en sá leikur sem stundaður er í Hafnarfirði er bæjaryfirvöldum til skammar.
Meira
Ef þú stæðir í sömu sporum og mamma mín, spyr Andri Dagur Ófeigsson, með tveggja ára barn og hefðir enga framtíðarlausn á dagvistun barnsins myndir þú hætta sem borgarstjóri?
Meira
Einkunnarorðin eru, segir Kolbrún Einarsdóttir, að borða fjölbreytt, borða grænmeti og ávexti á hverjum degi, borða reglulega, borða ekki of mikið í einu og hreyfa sig.
Meira
LEIGUBÍLSTJÓRI vakti athygli Víkverja á því að með framkvæmdunum sem nú standa yfir við breikkun Miklubrautar, frá Kringlumýrarbraut að Grensásvegi, sé verið að setja hlykki á götuna. Þetta virðist rétt hjá bílstjóranum.
Meira
Seztu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. - Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur...
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
Ég legg til að ráðherra dusti rykið af skýrslunni, segir Jónína Guðrún Jónsdóttir, og nýti upplýsingarnar til úrbóta fremur en að rífa niður árangurinn.
Meira
Í dag er þriðjudagur 21. nóvember 326. dagur ársins 2000. Þríhelgar, Maríumessa. Orð dagsins: Drottinn er ljós mitt og fulltingi, hvern ætti ég að óttast? Drottinn er vígi lífs míns, hvern ætti ég að hræðast?Meira
EINS OG allir vita er margt sem steðjar að fólki hér á landi, öld slysa virðist vera gengin í garð, sjálfsvígum fer fjölgandi, hjón virðast varla kunna önnur "ráð" en að skilja þegar erfitt verður á heimilinu, og unglingarnir okkar eru í...
Meira
Markmiðið með fermingarfræðslunni segir, Hans Markús Hafsteinsson, er að unglingurinn þinn uppgötvi kærleika Guðs og fyrirgefningu, vegna Jesú Krists.
Meira
Þessir duglegu krakkar héldu tombólu og söfnuðu 1.032 kr. til styrktar Rauða krossi Íslands. Þau heita Guðfinnur Þorgeirsson, Þórunn Eydís Jakobsdóttir og Rakel Ýr...
Meira
Verði prestsetrið á Þingvöllum lagt niður leggst af nær 1000 ára búseta prests á elsta kirkjustað þjóðarinnar, segir Þórhallur Heimisson, sem rifjar hér upp sögu prestsetursins við Öxará.
Meira
Aðalheiður Bára Hjaltadóttir fæddist á Breiðabliki í Nauteyrarhreppi 11. október 1922. Hún lést á heimili sínu 1. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Ísafjarðarkirkju 11. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Aðalsteinn Jónsson fæddist 12. ágúst 1903. Hann lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 12. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Jón Jónsson, f. 1876, d. 1956, bóndi og búfræðingur á Ormsstöðum, og kona hans Sigurlaug Jónsdóttir húsfreyja, f.
MeiraKaupa minningabók
Elías Arnlaugsson fæddist í Reykjavík 8. nóvember 1925. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu 4. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Háteigskirkju 14. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Elín Þóra Helgadóttir fæddist í Keflavík 7. febrúar 1981. Hún lést af slysförum 22. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Kolbeinsstaðakirkju í Kolbeinsstaðahreppi, Snæfellsnesi 28. október.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Sigurðsson, kennari, fæddist á Auðshaugi á Barðaströnd 1. júlí 1920. Hann lést á Hrafnistu í Hafnarfirði 6. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Garðakirkju 17. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Sigurrós Jónsdóttir fæddist í Neðri-Hreppi í Skorradal 15. febrúar 1921. Hún lést á elliheimilinu Grund 11. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Emilía Guðmundsdóttir frá Hóli á Akranesi, f. 19. október 1892, d. 10.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Jónsdóttir fæddist í Reykjavík 6. nóvember 1927. Hún lést á Landspítalanum við Hringbraut 1. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 9. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
STEFNT er að því að GPRS-tæknin, þráðlaus sítenging við Netið í gegnum GSM-síma, verði tilbúin hjá Landssíma Íslands öðru hvorum megin við næstkomandi áramót, að sögn Þórarins V. Þórarinssonar, forstjóra fyrirtækisins.
Meira
HAGNAÐUR Baugs hf. fyrstu níu mánuði ársins var 1.111 milljónir króna fyrir fjármagnsgjöld og afskriftir. Hagnaður eftir skatta nam 394 milljónum króna og veltufé frá rekstri er 724 milljónir króna.
Meira
HAGNAÐUR af rekstri Delta hf. fyrstu 9 mánuði ársins var 166 milljónir króna en endurskoðuð áætlun fyrir árið í heild sinni gerði ráð fyrir 162 milljóna króna hagnaði.
Meira
HAGNAÐUR Hampiðjunnar og dótturfélaga var 146 milljónir króna fyrstu 9 mánuði þessa árs. Rekstrartekjur samstæðunnar voru 1.714 milljónir króna. Rekstrargjöld voru 1.
Meira
SAMRÆMD vísitala neysluverðs í EES-ríkjum var 107,2 stig (1996=100) í október síðastliðnum og stóð í stað frá september. Í frétt frá Hagstofu Íslands kemur fram að á sama tíma hækkaði samræmda vísitalan fyrir Ísland um 1,0%.
Meira
FLUGLEIÐIR hafa ákveðið að hefja aðgerðir til að draga úr taprekstri félagsins, en níu mánaða reikningsskil félagsins benda til að tap verði af rekstrinum á þessu ári, þrátt fyrir að greina megi ákveðin batamerki í rekstrinum á tímabilinu júlí til...
Meira
SAMANBURÐUR á íslenskum verðbréfavísitölum og sambærilegum vísitölum á hinum Norðurlöndunum birtist í Fjármálafréttum SPRON í gær og kemur í ljós að Ísland kemur nokkuð illa út í þeim samanburði það sem af er árinu.
Meira
TAP OZ.COM fyrstu níu mánuði ársins var tæplega 9,8 milljónir bandaríkjadala, eða um 864 milljónir króna, en á sama tímabili í fyrra var tapið 1,9 milljón bandaríkjadala, eða um 170 milljónir króna.
Meira
ÖSSUR hf. hefur undirritað samning um kaup á öllum hlutabréfum í bandaríska stoðtækjafyrirtækinu Century XXII Innovations, Inc. Össur greiðir fyrir öll hlutabréf Century XXII með 41.785.000 hlutum í Össuri hf.
Meira
HELSTA ógnin við vægi réttrar næringar er stóraukinn hraði í samfélaginu þannig að minni tími fer í matargerð og meðferð matvæla. Fólk hefur ekki tíma til að elda og afleiðingarnar verða þær að færni fólks til að kaupa og meðhöndla mat fer stórlega minnkandi. Þetta kom fram í erindi sem Anna Elísabet Ólafsdóttir, matvæla- og næringarfræðingur hjá Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins, hélt nýlega á vegum Gæðastjórnunarfélags Íslands um vægi réttrar næringar.
Meira
BÍLAFRAMLEIÐANDINN Ford hefur neitað ásökunum þess efnis að kenna megi hraðastýringarbúnaði í Explorer-bílum frá fyrirtækinu um dauða ökumanns í Bretlandi nýverið auk fjölda dauðsfalla í Bandaríkjunum, að því er fram kemur í breska dagblaðinu Financial...
Meira
Dansinn á sér í raun tvær hliðar. Annars vegar er það keppnishliðin og hins vegar hlið listarinnar. Dansarinn þarf því bæði að vera íþróttamaður og listamaður í sömu persónu, segja finnsku Evrópumeistararnir Jukka Haapalainen og Sirpa Suutari í samtali við Jóhann Gunnar Arnarson.
Meira
KOLFINNUR frá Kjarnholtum gerir það ekki endasleppt. Í sumar sló hann eftirminnilega í gegn á landsmótinu er hann kom þar fram ásamt tólf afkvæmum sínum sem sýndu rými og kraft eins og best gerist.
Meira
KIRKJUBÆJARBÚIÐ var af fagráði hrossaræktar útnefnt ræktunarbú ársins 2000 og tóku þeir bræður Guðjón og Ágúst Sigurðssynir við viðurkenningunni úr höndum Ara Teitssonar, formanns stjórnar Bændasamtakanna.
Meira
Logi Laxdal var útnefndur "knapi ársins" af hófapressunni á uppskeruhátíð hestamanna. Það var fyrst og fremst Íslandsmet í 150 metra skeiði sem lagði grunninn að útnefningunni en þar fyrir utan er að nefna frábæran árangur Loga í skeiðkappreiðum ársins . Valdimar Kristinsson var á hátíðinni og gladdist með öðrum hestamönnum.
Meira
Á miðvikudagsmorgnum kl. 10:30 taka Bolli Pétur Bollason og Sunna Dóra Möller á móti mæðrum og feðrum í Safnaðarheimili Dómkirkjunnar við tjörnina. Þar er notalegt að sitja og spjalla um tilveruna og börnin yfir kaffibolla.
Meira
"ÉG var búinn að taka þátt í nokkrum bardögum á undan og get verið þokkalega sáttur við að komast í úrslit í opna flokknum," sagði Konráð Stefánsson úr KFR sem hreppti silfur í úrslitum opna flokksins eftir harðvítuga baráttu sem hann tapaði...
Meira
AUÐUNN Jónsson úr Kópavogi lauk ekki keppni á heimsmeistaramótinu í kraftlyftingum sem fór fram í Akita í Japan. Auðunn keppti í -125kg. flokki, en þar sigraði heimamaðurinn Midote Daisuke.
Meira
BANDARÍSKI golfsnillingurinn Tiger Woods bætti um helgina enn einni skrautfjöðrinni í hatt sinn þegar hann bar sigur úr býtum á Johnnie Walker-mótinu sem fram fór í Bangkok á Tælandi. Þetta var 10.
Meira
GLÆSIMARK David Beckhams beint úr aukaspyrnu eftir aðeins 90 sekúndur í grannsalagnum gegn Manchester City styrkti stöðu United á toppi ensku úrvalsdeildarinnar. United náði fimm stiga forskoti í efsta sæti því aðalkeppinautarnir í Arsenal töpuðu fyrir Everton. Þetta var ekki helgi "stóru" liðanna, að Manchester United undanskildu, því Liverpool, Arsenal, Chelsea og Leeds urðu öll að játa sig sigruð.
Meira
LORENC Serra Ferrer, þjálfari Börsunga, er kominn í mjög erfiða stöðu eftir að Barcelona tapaði fyrir Real Zaragoza í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu á sunnudagskvöldið. Við tapið féllu Börsungar niður í níunda sæti deildarinnar og það eiga stjórnendur félagsins og stuðningsmenn erfitt með að sætta sig við. Þetta var annar tapleikur Barcelona í röð í kjölfarið á falli liðsins úr meistaradeildinni.
Meira
FRIÐRIK Ingi Rúnarsson, þjálfari íslenska körfuknattleikslandsliðsins, hefur valið þá tíu leikmenn sem leika gegn Úkraínu á miðvikudag. Leikurinn, sem hefst kl. 18.
Meira
England Úrvalsdeild: Charlton - Chelsea 2:0 Jonatan Johansson 35., Martin Pringle 90. - 20.046 Derby - Bradford 2:0 Malcolm Christie 55., Rory Delap 68. - 31.614 Everton - Arsenal 2:0 Danny Cadamarteri 54., Kevin Campbell 73. - 33.
Meira
ÞAÐ bíður Íslandsmeistara Hauka í handknattleik erfitt verkefni þegar dregið verður til fjórðu umferðar í Evrópukeppni félagsliða í handknattleik í dag.
Meira
ERLA Hendriksdóttir og félagar hennar í Fredriksberg Boldklub gerðu 2:2 jafntefli gegn B52/AFC í dönsku 1. deildinni í knattspyrnu. "Við lentum undir 1:0 um miðjan fyrri háfleik og þannig var staðan í hálfleik.
Meira
GUÐNI Bergsson skoraði síðara mark Bolton þegar liðið sigraði Norwich í ensku 1. deildinni. Guðni skoraði með skalla á 74. mínútu eftir hornspyrnu og var þetta fjórða mark fyrirliðans á þessu tímabili og hans þriðja mark í síðustu fimm leikjum.
Meira
ÍSLANDSMEISTARAR Hauka verða í hattinum þegar dregið verður til fjórðu umferðar EHF-keppninnar í handknattleik í dag. Haukar tryggðu sér farseðilinn í fjórðu umferðina með því að slá norska liðið Bodö út með minnsta mun. Liðin léku báða leikina á Ásvöllum. Hinn fyrri unnu Haukarnir með sjö marka mun, 27:20, en í hinum síðari sneru Norðmennirnir dæminu við og sigruðu, 24:18, og má segja að Haukarnir hafi þar með sloppið með skrekkinn.
Meira
BAYER Leverkusen tók forystuna í þýsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Leverkusen sigraði Hamburger, 3:1, á útivelli en á sama tíma töpuðu bæði Hertha Berlin og meistarar Bayern München. Berti Vogts, fyrrum landsliðsþjálfari Þjóðverja, stjórnaði liði Leverkusen í fyrsta skipti en hann var á dögunum ráðinn þjálfari liðsins og er það í fyrsta skipti sem hann þjálfar lið í úrvalsdeildinni.
Meira
HLYNUR Stefánsson, besti leikmaður Íslandsmótsins í knattspyrnu í sumar, tilkynnti á lokahófi ÍBV um helgina að hann ætlaði að leika með liðinu áfram á næsta tímabili.
Meira
HVERGI var gefið eftir og margir fengu pústra þegar Íslandsmeistaramótið í Kumite, sem er grein innan karate, var haldið var í Fylkishöllinni um helgina. Mikil spenna var í opnum flokkum en samt náðu meistararnir frá því í fyrra, Ingólfur Snorrason og Edda L. Blöndal, að verja titla sína. Rúmlega þrjátíu keppendur voru í þyngdarflokkum karla en aðeins var keppt í opnum flokki kvenna, sem þó var spennandi, með 18 stúlkum.
Meira
Íslandsmótið í Kumite - 65 kg flokkur: 1. Daníel P. Axelsson, Þórshamar 2. Steinn Stefánsson, Þórshamar 3. Magnús Guðmundsson, Fylkir - 73 kg flokkur: 1. Halldór Svavarsson, Fylkir 2. Jón Viðar Arnþórsson, Þórshamar 3.
Meira
Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik gerði 22:22 jafntefli í vináttulandsleik gegn Sviss á laugardag. Þetta var seinni leikur liðanna en fyrri leiknum lauk með sigri Sviss, 26:21.
Meira
JÓHANNES Harðarson, knattspyrnumaður frá Akranesi, skrifar í dag undir þriggja ára samning við hollenska úrvalsdeildarfélagið Groningen. Samningurinn gildir frá 1. júlí á næsta ári og hann leikur því ekkert með félaginu í vetur.
Meira
Eftir að hafa unnið 33 heimaleiki í röð í 1. deild kvenna í körfuknattleik urðu KR-stúlkur loks að játa sig sigraðar í KR-húsinu um helgina. KR og KFÍ áttust þá við öðru sinni á tveimur dögum og fagnaði KFÍ sigri í spennandi leik, 51:52.
Meira
KR - KFÍ 51:52 KR-húsið 1. deild kvenna, laugardaginn 18. nóvember 2000. Stig KR : Hanna B. Kjartansdóttir 14, Kristín B. Jónsdóttir 12, Gréta M. Grétarsdóttir 11, Hildur Sigurðardóttir 8, Sigrún S. Skarphéðinsdóttir 4, Eva M. Grétarsdóttir 2.
Meira
Landsglíman Önnur keppni í landsglímunni fór fram á Laugalandi í Holtum 18. nóvember. Karlar: Pétur Eyþórsson, UV 3 Stefán Geirsson, HSK 2 Hörður Eyþórsson, UV 1 Unglingar: 1. Daniel Pálsson, HSK 2,5 2. Jón Kristinsson, HSK 2 3. Marton Czenek, HSK 1,5 4.
Meira
MAGDEBURG, lið þeirra Alfreð Gíslasonar og Ólafs Stefánssonar, tryggði sér sæti í fjórðu umferð EHF-keppninnar í handknattleik með því að sigra lið Prevent frá Slóveníu á heimavelli sínum, 26:22. Magdeburg vann einnig fyrri leikinn í Slóveníu, 25:23.
Meira
Markahæstir: 10 - Jimmy Floyd Hasselbaink (Chelsea), Mark Viduka (Leeds) 9 - Thierry Henry (Arsenal), Teddy Sheringham (Man. United) 8 - Emile Heskey (Liverpool) 7 - Michael Owen (Liverpool), Marcus Stewart (Ipswich), David Beckham (Man.
Meira
ÓLAFUR Örn Bjarnason, leikmaður Grindavíkur, hélt á sunnudaginn til Austurríkis þar sem hann mun næstu daga líta á aðstæður hjá Admira Wacher. Liðið er nú í tíunda sæti austurrísku úrvalsdeildarinnar með 16 stig eftir 20...
Meira
Bogdan Kowalczyk, fyrrum landsliðsþjálfari Íslands í handknattleik, er síður en svo hættur afskiptum af handknattleik. Þau rúmu tíu ár sem liðin eru frá því hann kvaddi íslenskan handknattleik hefur hann þjálfað sitt gamla félag í Varsjá í Póllandi.
Meira
PATREKUR Jóhannesson var í miklu stuði með liði sínu Essen í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik um helgina. Essen vann góðan útisigur á Hameln, 27:29, og skoraði 11 mörk, þar af fjögur úr vítaköstum.
Meira
FYRIR keppnistímabilið voru þrjú lið í Vesturdeildinni talin líkleg til að blanda sér í baráttuna um meistaratitilinn, en aðeins eitt í Austurdeildinni. Eftir aðeins mánaðarleik eru nú margir farnir að efast um að nokkuð lið muni skera sig úr í deildarkeppninni. Undirritaður hefur fylgst með of mörgum keppnistímabilum í NBA deildinni til að láta byrjunina á deildarkeppninni hafa áhrif á spár um frama liðanna.
Meira
Reykjavíkurmótið Reykjavíkurmótið á listskautum var haldið í Skautahöllinni í Laugardal 18. og 19. nóvember. A-FLOKKUR 15 ára og eldri: 1. Sigurlaug Árnadóttir, SR 13-14 ára: 1. Dóra Gróa Kristínardóttir, SR 2. Ágústa Björk Bergsveinsdóttir, SR 3.
Meira
"Við áttum í mestum vandræðum með að stoppa hraðaupphlaupin hjá Haukum í fyrri leiknum og eftir að hafa skoðað betur leik liðsins á myndbandi náðum við að stoppa betur í götin," sagði Jonny Møkelo, þjálfari Bodö.
Meira
SÍÐAN Björn Magnús Tómasson tók sitt fyrsta alþjóðlega dómarapróf í fimleikum 1993 hefur hann komið víða við - dæmt á tveimur heimsmeistaramótum, þremur Evrópumótum og dæmdi á öllum áhöldum á Ólympíuleikunum í Sydney.
Meira
SALZBURG, lið Andra Sigþórssonar, vann stórsigur á SW Bregenz, 5:0, í austurrísku úrvalsdeildinni í knattspyrnu um helgina. Andri hóf leikinn á varamannabekknum en var skipt inná á 69. mínútu leiksins.
Meira
VERNHARÐ Þorleifsson júdókappi frá Akureyri var í miklum ham á opna sænska meistaramótinu í júdó sem fram fór um helgina í Malmö. Vernharð var valinn maður mótsins en hann sigraði í -100 kg flokkum með glæsibrag og lagði alla sína andstæðinga á ippon sem er fullnaðarsigur.
Meira
RAGNAR Óskarsson og félagar í Dunkerque höfðu mikla yfirburði í síðari leik sínum gegn Maccabi Raanana frá Ísrael í Evrópukeppni bikarhafa í handknattleik á sunnudaginn.
Meira
ÍSLENDINGAR riðu ekki feitum hesti frá alþjóðlegu badmintonmóti sem haldið var í TBR-húsinu um helgina. Mótið er liður í b-mótaröð Badmintonsambands Evrópu og er eins konar mótvægi við evrópsku Grand Prix-mótaröðina þar sem allir sterkustu spilarar Evrópu taka þátt. Alls eru leikin 10 mót, en keppendur velja hvaða mótum þeir vilja taka þátt í og þegar mótunum 10 er lokið stendur sá uppi sem sigurvegari sem hlotið hefur flest stig í hverri grein en peningaverðlaun eru veitt í lok mótaraðarinnar.
Meira
Þetta var bara gífurlegt einbeitingarleysi af okkar hálfu og er góð viðvörun fyrir okkur," sagði Rúnar Sigtryggsson leikmaður Hauka í samtali við Morgunblaðið eftir tapleikinn gegn Bodö í fyrrakvöld.
Meira
ÞRJÚ gull og eitt brons féllu Íslendingum í skaut á Norður-Evrópumótinu í fimleikum, sem haldið var í Laugardalshöllinni um helgina, og öll komu þau í hlut Rúnars Alexanderssonar. Engu að síður var frammistaða íslensku keppendanna með miklum sóma og hjá stúlkunum, sem flestar eru að stíga sín fyrstu spor á stórmótum, voru greinilega miklar framfarir, sem Ásdís Guðmundsdóttir undirstrikaði með því að gera atriði úr mesta erfiðleikaflokki - öllum að óvörum.
Meira
VIGGÓ Sigurðsson þjálfari Hauka var ekki mjög kátur eftir síðari leikinn gegn Bodö. Hann var afar óhress með frammistöðu sinna manna í síðari háfleiknum og þá vandaði hann ekki sænsku dómurunum kveðjurnar í leikslok.
Meira
HJÁ Fasteignasölu Brynjólfs Jónssonar er í sölu nýlegt timburhús á tveimur hæðum á steyptum grunni að Smáratúni 4 á Álftanesi. Húsið er 170 ferm. ásamt 40 ferm. bílskúr.
Meira
Þessi fallegi hnöttur í eikargrind var á sýningu í London fyrir skömmu. Hann er frá því fyrir aldamótin 1900 en um það leyti voru svona hnettir vinsælt stofuskraut í Bretlandi og...
Meira
Með nýjum lögum um húsnæðismál 1998 voru félagslegar íbúðabyggingar í landinu skildar eftir í algerri óvissu, segir Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur. Satt að segja er enn allsendis óráðið, hvernig þessi mikilvægi þáttur í húsnæðisvelferð þjóðarinnar muni þróast um ókomin ár.
Meira
Það er alltaf notalegt að sitja við arin. Hér er einn mjög frumlegur, hann er einnig notaður til að aðskilja herbergi og hægt að sitja við hann í báðum...
Meira
Ef útbúa á eitthvað fyrir einhvern sem mikið er elskaður eru svona nælur t.d. skemmtilegar. Þær eru úr tré, límdar á þær festinálar og þær svo...
Meira
Þegar upp kemur ágreiningur um hljóðfæraleik í fjölbýlishúsi, er nauðsynlegt að setja sérreglur í húsreglur húsfélagsins, segir Elísabet Sigurðardóttir, lögfræðingur hjá Húseigendafélaginu. Þar skal koma fram hvenær heimilt sé að spila á hljóðfæri og hvenær ekki.
Meira
Mexikanskur arkitekt hannaði sinn húsagarð svona, óneitanlega ekki mikið sem dregur athyglina frá hvíta hestinum - allténd er "riddarinn" sjálfur hvergi...
Meira
HJÁ fasteignasölunni Höfði er í sölu glæsilegt einbýlishús við Gnípuheiði 8 í Kópavogi. Það er með innbyggðum 72,6 ferm. bílskúr og 67,6 ferm. tveggja herbergja aukaíbúð. Alls er flatarmál hússins 311,6 ferm. Það var byggt 1992 og er steinsteypt.
Meira
Það eru aðeins skolplagnir, sem krefjast þess að brjóta þurfi botnplötu og jafnvel veggi, segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Annað er sjálfsagt að endurnýja án nokkurs múrbrots.
Meira
Þegar dregur nær jólum virðast margir leiða hugann að endurbótum og endurnýjun á húsnæði sínu, segir Hallur Magnússon, yfirmaður gæða- og markaðsmála Íbúðalánasjóðs. Í það minnsta hafa fyrirspurnir um lán Íbúðalánasjóðs til slíkra framkvæmda aukist nokkuð að undanförnu.
Meira
Svona máluð hjartalaga askja getur hentað undir ýmislegt smálegt, þó ekki væri nema nokkra súkkulaðimola í tækifærisgjöf, lítil sápustykki, myndir...
Meira
FRÁ árinu 1998 hefur orðið mikil aukning í almennum húsnæðislánum, eins og fram kemur á teikningunni hér til hliðar sem sýnir þróunina í lánveitingum Húsnæðisstofnunar ríkisins og síðan Íbúðalánasjóðs á tímabilinu 1993-1999.
Meira
HJÁ fasteignasölunni Hraunhamar eru í sölu átta íbúðir í fjölbýli að Arnarási 10-12 í Garðabæ. Verið er að byggja húsið og eru íbúðirnar allar með sérinngangi. Þær eru tveggja til fjögurra herbergja.
Meira
Þessi nýja grein er að færast æ nær hagkvæmum vísindum, segir Einar Þorsteinn hönnuður. Nú er unnið að gerð samræmdrar mælingartækni og mælingarkerfis fyrir sjálfbærni mjög mismunandi húsa á öllum veðursvæðum.
Meira
Franski rithöfundurinn Marcel Proust dvaldi í þessari höll á sumrin hjá frænkum sínum, nú er verið að gera höllina upp og á að gera þar safn um þennan fræga mann í...
Meira
SELJENDUR SÖLUSAMNINGUR - Áður en fasteignasala er heimilt að bjóða eign til sölu, ber honum að ganga frá sölusamningi við eiganda hennar um þjónustu fasteignasala á þar til gerðu samningseyðublaði.
Meira
Uppbygging á atvinnuhúsnæði fer vaxandi í Grafarvogi. Magnús Sigurðsson kynnti sér nýbyggingu, sem byggingarfyrirtækið Akkorð ehf. er með í smíðum við Fossaleyni 16. Byggingin skiptist í skrifstofu- og verslunarhúsnæði með stóru fjölnota stálgrindarhúsi. Meira
Það er hægt að skreyta borð með ýmsum hætti. Hér eru til dæmis sítrónur hengdar í band yfir borðið. Takið eftir drykkjarhornunum, þau eru úr beini eins og forfeðurnir...
Meira
HJÁ fasteignasölunni Foss er nú í sölu stórt íbúðarhús í Stigahlíð 93 í Reykjavík. Þetta er steinhús, byggt 1964. Húsið er á tveimur hæðum, teiknað af Þorvaldi Kristmundssyni. Það er 332 ferm. auk bílskúrs, sem er 42 ferm. og sólstofu sem er 20 ferm.
Meira
HÚS við Brekkugerði í Reykjavík hafa lengi haft aðdráttarafl fyrir marga, enda er hverfið gróið og fallegt. Hjá fasteignasölunni Borgum er nú til sölu einbýlishús við Brekkugerði 34, sem er tvær hæðir og kjallari og með bílskúr, sem stendur sér.
Meira
HJÁ fasteignasölunni Byggð á Akureyri er nú í sölu einbýlishúsið Brekkugata 27a á Akureyri. Þetta er einbýlishús, byggt 1930. Eignin er alls 414 ferm., þar af er steypt geymslubygging með bílskúr 98 ferm., byggð 1936.
Meira
Svona leit svefnherbergi Bing Grosby út á heimili hans í Hollywood. Því miður brann þetta hús snemma á fimmta áratugnum og allt sem þar var inni. Þá byggði Grosby sér annað hús á öðrum stað - en það er önnur...
Meira
Greiðslumatið sýnir hámarksfjármögnunarmöguleika með lánum Íbúðalánasjóðs miðað við eigið fé og greiðslugetu umsækjenda. Forritið gerir ráð fyrir að eignir að viðbættum nýjum lánum s.s.
Meira
VIÐ götuna Fossaleyni austast í Víkurhverfi er að rísa nýtt hverfi fyrir verzlun, þjónustu og léttan iðnað. Þar er m.a. byggingafyrirtækið Akkorð ehf. að reisa sérhannaða byggingu sem ætluð er til sölu á almennum markaði.
Meira
Við eigendaskipti á miðri leið er öllum iðnmeisturum og byggingarstjóra skipt út, segir Þórður Ó. Búason, yfirverkfræðingur byggingarfulltrúa í Reykjavík. Hættan á mistökum og óþarfa kostnaði blasir við, ef nýi eigandinn vandar ekki val sinna manna.
Meira
Þeir sem fá alls kyns viðurkenningar fyrir afrek, t.d. í íþróttum eða fyrir leiklistarstörf, eru oft í vandræðum með að koma viðurkenningarspjöldum fyrir. Hér má sjá hvernig Doris Day leysti málin á sínum...
Meira
NÓTA- og togveiðiskipið Börkur NK hefur borið að landi um 68.000 tonn af uppsjávarfiski það sem af er þessu ári. Það er sennilega mesti afli sem íslenzkt fiskiskip hefur landað á minna en ári. Alls hefur Börkur fiskað um 33.000 tonn af kolmunna, tæp 6.
Meira
FISKELDI fellur vel að stefnu og starfsemi Samherja að mati Finnboga Jónssonar, stjórnarformanns félagsins. Samherji hefur þegar fjárfest í fiskeldi fyrir um 600 milljónir króna og er m.a. stærsti hluthafi í Fiskeldi Eyjafjarðar.
Meira
GULDRANGUR, hlutdeildarfélag Vinnslustöðvarinnar hf. í Færeyjum, hefur selt frystitogara sinn, Guldrang, til Rússlands. Partafelagið Guldrangur hefur í kjölfarið gert upp skuldir sínar við Vinnslustöðina og er starfsemi Guldrangs þar með lokið.
Meira
Óvenjudauft hefur verið yfir höfninni í Ólafsvík á haustmánuðum í ár. Að sögn Björns Arnaldssonar hafnarstjóra hefur lítill afli borist á land miðað við sama tíma í fyrra. Í október var afar lítið fiskað og lélegar gæftir fyrir smábátana.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.