DÓMARAR gerðu harða hríð að lögfræðingum forsetaframbjóðendanna tveggja, Al Gore, frambjóðanda demókrata, og George W. Bush, frambjóðanda repúblikana, þegar þeir leituðust við að færa rök fyrir máli sínu í Hæstarétti Bandaríkjanna í gær.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Evrópusambandsins lagði í gær til mikinn niðurskurð á fiskkvótum í Norðursjó og víðar en fiskifræðingar segja, að verði ekki gripið til róttækra ráðstafana hrynji stofnarnir endanlega.
Meira
VICENTE Fox sór í gær embættiseið sem forseti Mexíkó og ný ríkisstjórn tók þá jafnframt við völdum. Þar með var bundinn endi á 71 árs valdatíð Byltingarflokksins í landinu.
Meira
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til gönguferðar um Heiðmörk 1. sunnudag í aðventu, 3. desember. Reiknað er með um 3 klst. göngu eftir skógarstígum. Þótt gróður sofi nú vært í Heiðmörk leynist þar þó líf af ýmsum toga ef að er gáð, segir í fréttatilkynningu.
Meira
Á MÓTI álverinu í Straumsvík er lítið grjótbyrgi sem nefnist Kapellan í Hrauninu eða Kapella heilagrar Barböru, en árið 1950 fannst þar við uppgröft lítið líkneski heilagrar Barböru og eru líkur til að þarna hafi verið bænastaður í kaþólskum sið.
Meira
BILL Clinton Bandaríkjaforseti sagði í gær að útbreiðsla alnæmis væri ógnun við öryggi og stöðugleika í heiminum og sagði hann Bandaríkjamenn staðráðna í að berjast gegn faraldrinum. Gærdagurinn var um allan heim tileinkaður baráttunni gegn sjúkdómnum.
Meira
Á ALÞJÓÐADEGI fatlaðra, sunnudaginn 3. desember, mun Sjálfsbjörg nota tækifærið til þess að vekja athygli á hindrunum þeim sem fatlaðir þurfa að kljást við í sínu daglega lífi.
Meira
VERJENDUR bandaríska kaupsýslumannsins Edmonds Pope, sem hefur verið ákærður fyrir njósnir í Rússlandi, luku málflutningi sínum fyrir rétti í Moskvu í gær eftir sex vikna réttarhöld.
Meira
ÞRJÁTÍU ár eru nú liðin frá því að Hjálparstofnun kirkjunnar var stofnuð af Þjóðkirkjunni, en nafni stofnunarinnar var breytt árið 1998 í Hjálparstarf kirkjunnar.
Meira
ÖRKIN hans Nóa verður með jólabasar sunnudaginn 3. desember kl. 14-17 að Reykjavíkurvegi 68, Hafnarfirði. Bútasaumur, trévara, skreytingar, ámálaðar krukkur og kerti ásamt barnaföndri verður til sölu.
Meira
VEGNA flutnings verður rýmingarsala á bókum og skrifstofubúnaði hjá Ættfræðiþjónustunni um þessa helgi, 2. og 3. desember og þá næstu 9. og 10. desember að Hallveigarstöðum, Túngötu 14.
Meira
BT opnar nýja stórverslun á Gylfaflöt 5 í Grafarvogi á í dag, laugardag, klukkan 10. Verslunin er í samstarfi við m.a. Línu.Net, Ljósvirkjann og IKEA.
Meira
KRISTILEGI demókrataflokkurinn í Þýskalandi var sektaður enn einu sinni í gær fyrir að hafa ekki gefið réttar upplýsingar um fjárreiður sínar á síðasta áratug. Að þessu sinni er sektin um 130 milljónir íslenskra króna.
Meira
EINNI viku eftir að fyrsta staðfesta kúariðutilfellið greindist í kú borinni í Þýzkalandi staðfesti Sambandsráðið, efri deild þýzka þingsins, í gær skyndilöggjöf um bann við notkun dýramjöls, þar með talið fiskimjöls, í skepnufóðri.
Meira
EKIÐ var á sjö ára gamla stúlku á Ísafirði í fyrradag. Slysið varð á veginum milli Ísafjarðar og Hnífsdals. Stúlkan var að koma út úr strætisvagni og hljóp aftur fyrir vagninn og út á veginn en lenti á bíl, sem kom úr gagnstæðri átt.
Meira
BLIKUR á lofti í þjóðarbúskapnum, gífurlegur vandi heilbrigðisstofnananna, mikilvægi þess að hafa hemil á ríkisútgjöldum, gjaldþrota byggðastefna og svo framvegis og svo framvegis.
Meira
MINNIHLUTINN í bæjarstjórn Garðabæjar gagnrýnir ekki harðlega fjárhagsáætlun bæjarins og hækkun úrsvars, eins og sagt var í frétt Morgunblaðsins á fimmtudag, en fulltrúar minnihlutans hafa bent á að hækkunin er tilkomin vegna skuldasöfnunar á umliðnum...
Meira
UNNUR Eir Arnardóttir, sem varð í 2. sæti í Fegurðarsamkeppni Íslands í vor, verður fulltrúi Íslands í keppninni "Queen Of The World 2000". Unnur flýgur til Frankfurt á mánudaginn, en keppnin fer fram n.k föstudag 8.
Meira
Á UMFERÐARÞINGI sem lauk í gær hélt dr. Frank Horswill erindi þar sem hann fjallaði m.a. um rannsóknir á hegðun ökumanna. Horswill benti á að mistök ökumanna valda 65% umferðarslysa í Bretlandi og í 95% tilvika má rekja umferðarslys að hluta til...
Meira
SJÖ áratuga valdatíð Byltingarflokksins (PRI) í Mexíkó lauk formlega í gær þegar ný ríkisstjórn tók við völdum og Vicente Fox sór embættiseið sem forseti landsins.
Meira
ALÞJÓÐLEGUR dagur alnæmis var haldinn hátíðlegur í gær, en 1. desember hefur verið tileinkaður sjúkdómnum frá því 1988 og er hans minnst um allan heim. Tilgangur dagsins er að auka skilning á sjúkdómnum auk þess að koma á framfæri samúð, von og samstöðu.
Meira
GENGI deCODE, móðurfélags Íslenskrar erfðagreiningar, hækkaði í gær á bandaríska Nasdaq-verðbréfamarkaðnum eftir mikla lækkun undanfarna daga. Gengið hækkaði um 27,8% í gær en í fyrradag lækkaði gengið um 18,4%.
Meira
Hákon, krónprins í Noregi, opinberaði í gær trúlofun sína og Mette-Marit Tjessem Høiby, 27 ára gamallar, einstæðrar móður. Hafa þau búið saman um skeið en ekki hefur enn verið ákveðið hvenær brúðkaupið verður.
Meira
BÚIÐ er að koma fyrir nokkrum rúlluböggum á húsi Umferðarmiðstöðvarinnar í Vatnsmýrinni í Reykjavík. Að sögn Odds Einarssonar framkvæmdastjóra er þetta liður í endurbótum og breytingum á húsinu.
Meira
MIKLAR rafmagnstruflanir hafa verið á Patreksfirði, Bíldudal, Tálknafirði og í sveitum á sunnanverðum Vestfjörðum síðustu tvo sólarhringa. Línan frá Mjólkárvirkjun slitnaði í fyrrinótt í Svínadal vegna ísingar.
Meira
BÓKAÚTGÁFAN Salka hefur nú sent frá sér dagatalið Íslenskir úrvalskarlmenn 2001. Dagatalið prýða 12 valinkunnir íslenskir karlmenn sem munu gleðja augu kvenna allt næsta ár, segir í fréttatilkynningu.
Meira
JÓLAHÚSIÐ Smiðjuvegi hefur sett upp á vefsíðu sinni jóladagatal eftir frumsaminni sögu Þóru Gunnarsdóttur. Þóra hefur einnig teiknað myndirnar við dagatalið.
Meira
JÓLAFUNDUR Félags íslenskra háskólakvenna verður haldinn sunnudaginn 3. desember kl. 15.30 í Þingholti, Hótel Holti. Fundurinn verður með hefðbundnu sniði, þ.e.
Meira
JÓLALJÓSIN verða tendruð á jólatré Sandgerðinga við Grunnskólann sunnudaginn 3. desember nk. kl. 17. Í tilefni dagsins verður skemmtileg jólastemmning og jólalögin munu hljóma. Foreldrafélag Grunnskólans mun bjóða upp á kakó og ilmandi...
Meira
ÓLAFUR Jakobsson, varaformaður Félags háskólakennara á Akureyri, afhenti Elnu Katrínu Jónsdóttur, formanni Félags framhaldsskólakennara, hálfa milljón króna í verkfallssjóð í verkfallsmiðstöð kennara á Akureyri í gærmorgun, en miðstöðin er í...
Meira
AKUREYRARKIRKJA: Hádegistónleikar kl. 12 í dag, laugardag. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgel kirkjunnar. Aðgangur ókeypis, súpa og bauð í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju eftir tónleika. Messa kl. 11, sr. Svavar A. Jónsson.
Meira
FÆREYINGAR munu ekki aðeins greiða atkvæði um sjálfstæði í þjóðaratkvæðagreiðslunni í apríl 2001 heldur einnig um hvenær þeir vilja fullan aðskilnað frá Dönum.
Meira
Blað Samtaka hljómplötuframleiðenda Rangt var farið með nafn útgefanda Plötutíðinda, sem fylgdu Morgunblaðinu í gær. Blaðið er frá Samtökum hljómplötuframleiðenda og er beðist velvirðingar á...
Meira
HJÓNIN, sem létust í umferðarslysi á Reykjanesbraut á fimmtudaginn, hétu Jón Rúnar Árnason, fæddur 19. mars 1951, og Vilborg Jónsdóttir, fædd 28. ágúst 1955. Þau voru til heimilis á Túngötu 17 í Keflavík. Þau láta eftir sig þrjá uppkomna syni.
Meira
Neskaupstað- Nýlega var keypt sérútbúin bifreið til notkunar við útfarir í Neskaupstað. Það voru áhugamannafélög nokkurra einstaklinga sem stóðu að kaupunum á bifreiðinni sem mun vera sú fyrsta sem keypt er til staðarins til þessara nota.
Meira
LJÓS verða kveikt á jólatrénu frá Randers, vinabæ Akureyrar í Danmörku, í dag kl. 15. Lúðrasveit Akureyrar leikur og kór Akureyrarkirkju syngur. Kristján Þór Júlíusson, bæjarstjóri Akureyrar, og Keld Huttel, forseti borgarstjórnar í Randers, flytja...
Meira
DANSSMIÐJAN, í samstarfi við Lottó, stendur fyrir danskeppni í Súlnasal Hótel Sögu sunnudaginn 3. desember. Keppendur koma frá öllum dansskólum á höfuðborgarsvæðinu. Keppt verður í samkvæmisdönsum í fullorðins- og barnaflokkum.
Meira
TIL átaka kom milli Palestínumanna og ísraelskra hermanna á sjálfsstjórnarsvæðunum í gær en þá var fyrsti bænadagurinn í hinum helga mánuði múslima, ramadan.
Meira
SKÍÐASVÆÐIÐ í Hlíðarfjalli við Akureyri er opið almenningi í dag laugardag og á morgun, sunnudag, frá kl. 10-16. Töluvert hefur snjóað í fjallinu síðustu daga og þar er nú mjög gott skíðafæri.
Meira
"HÉR í Þýzkalandi ríkir nú sannkallað neyðarástand. Gríðarlega sterkur þrýstingur er á um að allt dýramjöl sé tekið úr umferð. Við urðum að setja lög í skyndi. Og við gátum ekki annað en gert annað hvort allt eða ekkert.
Meira
BANDARÍSKA leyniþjónustan CIA hefur rekið fjóra starfsmenn sína og veitt átján öðrum ofanígjöf fyrir að nota leynilega spjallrás, sem komið var upp án heimildar í tölvukerfi leyniþjónustunnar, til að skiptast á bröndurum og slúðri.
Meira
Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að umhverfismatsferli vegna Kárahnjúkavirkjunar verði lokið, hvort sem af byggingu álvers verður eða ekki. Um leið telur hann að ekki sé spurning hvort, heldur hvenær farið verði í alvöru að ræða lagningu hálendislínu. Björn Ingi Hrafnsson veltir því fyrir sér hvort forstjórinn sé með þessu að opna fyrir möguleika á að framleiða orku á Austurlandi fyrir stóriðju annars staðar á landinu, t.d. á Grundartanga.
Meira
ANNARRI umræðu um fjárlög fyrir árið 2001 lauk á Alþingi í fyrrinótt en gert er ráð fyrir því að þriðja og síðasta umræða um fjárlögin fari fram á Alþingi í lok næstu viku. Gangi það eftir lýkur fjárlagaumræðunni á Alþingi fyrr á þessu haustþingi en...
Meira
VINSTRIHREYFINGIN - grænt framboð í Reykjavík gengst fyrir umræðufundi laugardaginn 2. desember undir yfirskriftinni: "Þjónustusamningar í heilbrigðismálum - leið til betri opinbers reksturs eða áfangi að einkavæðingu.
Meira
UMFERÐARÞINGI umferðarráðs lauk í gær. Þingið tók undir markmið í drögum nýrrar umferðaröryggisáætlunar stjórnvalda en þau gera ráð fyrir 40% fækkun alvarlegra slysa fyrir árslok 2012.
Meira
SÉRA Þór Hauksson hefur verið valinn til að gegna stöðu sóknarprests í Árbæjarprestakalli. Hann var eini umsækjandinn um stöðuna og fjallaði valnefnd um málið í síðustu viku. Dóms- og kirkjumálaráðherra skipar í stöðuna þar sem hún er sóknarprestsstaða.
Meira
Sendiherrar Íslands í ríkjum ESB telja erfitt að ráða í endanlega afstöðu ríkjanna þegar til kasta ráðherraráðs sambandsins kemur í Brussel á mánudaginn. Skilningur er mestur á afstöðu Íslands meðal Norðurlandaþjóða og Breta en stjórnmálamenn í öðrum ríkjum eru undir miklum þrýstingi almennings.
Meira
SJÓVÁ-ALMENNAR tryggingar hlutu viðurkenningu umferðarráðs, "umferðarljósið" árið 2000 á umferðarþingi. Þórhallur Ólafsson, formaður umferðarráðs sagði að Sjóvá-Almennar hefðu lagt síaukna áherslu á forvarnarstarf á undanförnum árum.
Meira
ÁHUGAHÓPUR gegn spilafíkn hefur sent þeim sem reka söfnunarkassa og happdrættisvélar bréf þar sem mælst er til þess að kössunum verði lokað fram til jóla í þeim tilgangi að stuðla að "bærilegra jólahaldi fyrir þá sem hafa orðið spilafíkninni að...
Meira
SIGURÐUR Bragi Guðmundsson, framkvæmdastjóri Plastprents, átti fund með starfsfólki Ako-Plastos á Akureyri síðdegis í gær þar sem farið var yfir stöðu mála, en í vikunni var tilkynnt um kaup Plastprents á ríflega 85% hlut í Ako-Plastos.
Meira
Grindavík- Fundur um fyrirhugaðan Suðurstrandarveg var haldinn í Grindavík nú í blálok mánaðarins. Allir bæjarstjórnarmenn ásamt bygginganefnd og öðrum þeim sem koma að málinu af hálfu Grindavíkurbæjar voru mættir til að hlýða á áætlanir Vegagerðarmanna.
Meira
ALLS hafa nú 28 beðið bana af völdum umferðarslysa það sem af er árinu og hafa ekki fleiri látist af völdum umferðarslysa síðan 1988, þegar 29 létu lífið í umferðarslysum.
Meira
Fyrsta tölvuútgáfa íslensk-íslenskrar orðabókar er komin á markað, en hún er um leið þriðja útgáfa Íslenskrar orðabókar. Orri Páll Ormarsson ræddi við Mörð Árnason ritstjóra útgáfunnar sem sögð er margfalda notkunarsvið bókarinnar.
Meira
FRIÐRIK Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, segir að Landsvirkjun muni ljúka við gerð umhverfismats vegna Kárahnjúkavirkjunar þótt sú ólíklega staða kæmi upp að slitnaði upp úr samningaviðræðum við Reyðarál um byggingu álvers í Reyðarfirði.
Meira
BEIN útsending á vefnum verður sunnudaginn 3. desember frá Neskirkju í Reykjavík og hefst hún kl. 11. Það er ljósahátíð í tilefni af fyrsta sunnudegi í aðventu, þar sem flutt verður dagskrá í tali og tónum í tilefni af aðventunni.
Meira
MÁVARNIR í Hrútafirði hafa gert sér gott af búrhvalnum sem strandaði framan við bæinn Valdasteinastaði 27. ágúst síðastliðinn. Veður og vindar hafa nú hrakið hvalshræið inn undir fjarðarbotninn þar sem það liggur á grunnu vatni.
Meira
VEGAGERÐIN hefur ákveðið að bæta verktökum að nokkru leyti upp hækkanir sem orðið hafa á verði olíu og ekki var reiknað með í verksamningum. Einnig mun Vegagerðin bæta verktökum upp breytingar á þungaskatti sem gerðar voru í júní.
Meira
ÁTVR neitaði fyrir skömmu að selja Tuborg jólabjór í 12 flaskna pakkningum í verslunum sínum þar sem erlendi framleiðandinn hafði sett happdrættisskafmiða á umbúðirnar.
Meira
Drangsnesi -Opnaður hefur verið á heimasíðu Galdrasýningar á Ströndum viskubrunnur Galdrasýningarinnar. Til þessa hefur Viskubrunnur Galdrasýningarinnar eingöngu verið opinn þeim sem staldrað hafa við á sýningunni á Hólmavík.
Meira
BJÖRN G. Björnsson sýningahönnuður hefur í nokkur ár verið með hugmyndir um að setja upp á Miðbakkanum í Reykjavík sýningu sem undirstrikar mikilvægi sjávarútvegs fyrir afkomu Íslendinga.
Meira
Sigurjón Andrésson fæddist á Akureyri 10. desember 1970 en ólst upp í Vestmanneyjum. Hann lauk prófi í bakaraiðn frá Iðnskólanum í Reykjavík og fór síðan í nám til Danmerkur um tíma en hóf störf hjá Sjóvá-Almennum tryggingum hf. þar sem hann vinnur enn. Kona Sigurjóns er Sara Guðjónsdóttir húsmóðir og eiga þau tvær dætur.
Meira
SUMIR stjórnmálamenn hafa látið að því liggja, að veiking krónunnar sé mikið áfall fyrir efnahagslífið. Það er mikill misskilningur. Þetta segir í Viðskiptablaðinu.
Meira
BÆNDAHÁTÍÐ var haldin í Valaskjálf á Egilsstöðum á dögunum en það var Búnaðarsamband Austurlands sem hafði umsjón með hátíðinni. Á hátíðina mætti bændafólk af Austurlandi og skemmti sér hið besta, borðaði góðan mat og dansaði fram á nótt.
Meira
Leikstjóri: Rob Cohen. Handrit: John Pouge. Aðalhlutverk: Joshua Jackson, Paul Walker, Hill Harper, Leslie Bibb. (106 mín) Bandaríkin, 2000. Sam-myndbönd. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
SKÁLDSAGNAPERSÓNAN Dís Sigurðardóttir er á flestra vörum þessa dagana, í það minnsta þeirra sem á einn eða annan hátt láta sig heim bókmenntanna varða.
Meira
GLERLISTAKONAN Ebba Júlíana Lárusdóttir opnar sýningu sína í Galleríi Reykjavík, í dag, laugardag. Ebba hefur lagt stund á glerlist frá árinu 1988 og verk hennar eru aðallega unnin úr flotgleri.
Meira
EDDA Erlendsdóttir píanóleikari, sem um árabil hefur verið búsett í Frakklandi, hefur sent frá sér geisladisk með stuttum píanóverkum eftir Edvard Grieg, en tónlistin kom áður út á geisladiski hjá frönsku útgáfufyrirtæki árið 1993.
Meira
UNGFRÚ Indland, hinn 18 ára gamli nemi Pryanka Chopra, var krýnd titlinum Miss World árið 2000 í Millennium hvelfingunni í Lundúnum á fimmtudagskvöldið fyrir framan 2 milljarða sjónvarpsáhorfenda sem gátu horft á keppnina í beinni útsendingu.
Meira
SJÁLFSKIPAÐUR konungur poppsins, Michael Jackson, stillir sér hér upp fyrir ljósmyndara eftir að hafa tekið á móti sérstökum heiðursverðlaunum á dansleik sem haldinn var til til styrktar G and P Foundation for Cancer Research, styrktarsjóði fyrir...
Meira
OPIÐ verður í sýningarstöðum GUK á sunnudaginn milli klukkan 16 og 18 að staðartíma. Sýningarstaðirnir eru: Garður, Ártúni 3, Selfossi, Udhus - Kirkebakken 1, DK-4320 Lejre, Danmörku, Küche - Callinstrasse 8, D-30167 Hannover, Þýskalandi.
Meira
KRISTÍN Helga Gunnarsdóttir rithöfundur les upp úr nýrri bók sinni, "Móa hrekkjusvíni", í Bókasafni Garðabæjar í dag, laugardag, kl. 13.30. Bókin fjallar um rafmagnssnillinginn, kúrekann, prakkarann og hrekkjusvínið Móa.
Meira
LJÓSMYNDASÝNING Lindu Ásdísardóttur, "Í landi...", hefst í Sjóminjasafninu á Eyrarbakka í dag, laugardag, kl. 14. Ljósmyndirnar á sýningunni eru af sjómönnum á Eyrarbakka sem stunda sjóinn árið 2000.
Meira
TUTTUGUSTU og þriðju Jólasöngvar Kórs Langholtskirkju verða haldnir föstudaginn 15. desember kl. 23, laugardaginn 16. desember kl. 23 og sunnudaginn 17. desember kl. 20.
Meira
KVENNAKÓRINN Kyrjurnar heldur aðventutónleika í Laugarneskirkju í dag, laugardag, kl. 17. Á efnisskrá eru létt innlend og erlend jólalög. Stjórnandi kórsins er Sigurbjörg Hvanndal Magnúsdóttir og undirleikari Halldóra Aradóttir. Aðgangseyrir er 1.
Meira
KVENNAKÓR Reykjavíkur heldur sína árlegu aðventutónleika í Hallgrímskirkju nk. sunnudag, 3. desember, kl. 20.30 og þriðjudaginn 5. desember kl. 20.30.
Meira
GERÐUBERG KL. 14 Eitt lítið ævintýr Samnorrænt ævintýraverkefni 11 ára barna frá Íslandi, Danmörku og Finnlandi sem fjallar um ævintýrið sem samskiptaform og hvort það á erindi til barna á 21. öld. Undanfarnar vikur hefur 6.
Meira
Væntumþykja landsmanna í garð söngvarans sívinsæla, Hauks Morthens, er mikil. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við ekkju Hauks, frú Ragnheiði Magnúsdóttur, vegna tvöföldu geislaplötunnar Ó borg mín borg, sem inniheldur safn laga frá þessum dáða dægurlagasöngvara. Einnig tók hann Trausta Jónsson, veður- og tónlistarfræðing, tali vegna þessa.
Meira
MYNDLISTARSÝNING Lóu Sigurðardóttur verður opnuð í vinnustofu hennar á Bergstaðastræti 33b, Emanúelshúsi í dag, kl. 12. Á sýningunni verða olíumyndir á striga, að mestu unnar á þessu ári, og einnig nokkur grafíkþrykk.
Meira
ÞORGERÐUR Sigurðardóttir opnar myndlistarsýningu í Pakkhúsinu á Höfn í Hornafirði í dag, laugardag, kl. 14. Ólafur H. Torfason, eiginmaður Þorgerðar, flytur fyrirlestur um Íslandskrossa (kossmörk á Íslandi) sama dag kl. 16, einnig í Pakkhúsinu.
Meira
SKÁLDSAGA Einars Kárasonar, Norðurljós, kom nýlega út hjá norska forlaginu Aschebog í þýðingu Gunnhild Eide. Dómar um bókina hafa birst í norskum dagblöðum. Í Dagsavisen segir: "Einar Kárason er og verður einn af mergjuðustu sagnamönnum Norðurlanda.
Meira
ÚT er komin bókin Englar hér og þar - Englar alls staðar eftir Bob Hartman í þýðingu sr. Hreins S. Hákonarsonar. Myndir í bókinni eru eftir Höllu Sólveigu Þorgeirsdóttur . Englar hér og þar - Englar alls staðar er bók með sögum af englum.
Meira
ÚT er komin skáldsagan Morðið í sjónvarpinu eftir Stellu Blómkvist . Í fréttatilkynningu segir: "Íslenskir sjónvarpsáhorfendur trúa ekki sínum eigin augum. Er landskunn þáttagerðarkona myrt í beinni útsendingu?
Meira
MYNDVERK sem 6 bekkur A í Rimaskóla hefur unnið upp úr gamalli þjóðsögu verður hengt upp í Gerðubergi í dag, laugardag, kl. 14. Undanfarnar vikur hefur 6.A í Rimaskóla sökkt sér ofan í gömlu þjóðsöguna um konuna sem átti sjö börn á landi og sjö í sjó.
Meira
GRÍNLEIKARINN David Spade varð fyrir líkamsáras á heimili sínu í Beverly Hills í vikunni. Spade gómaði óboðinn gest glóðvolgan þar sem hann lét greipar sópa og skipti engum togum að ruplarinn brást við með því að ráðast að honum vopnaður rafmagnskylfu.
Meira
Reykjanesbrautin. Ný sólóplata frá Rúnari Júlíussyni. Lög og texta sömdu: Rúnar Júlíusson, Þórir Baldursson, Þorsteinn Eggertsson, Bjartmar Guðlaugsson, Jóhann Helgason, Kristján Hreinsson, Larry Otis, Jim Spaulding, Gunnar Þórðarsson, Margrét...
Meira
SÝNING á verkum Hörpu Maríu Gunnlaugsdóttur sem sýnir módelsmíðaða skartgripi og Þóru Einarsdóttur sem sýnir málverk máluð á silki verður opnuð í Listaselinu, Skólavörðustíg 17, í dag, laugardag. Sýningin stendur í viku. Opið virka daga kl.
Meira
ÓLAFUR Jóhann Ólafsson rithöfundur hefur verið valinn einn tuttugu höfunda í vetrarkynningu bókaverslana-keðjunnar Barnes & Noble í Bandaríkjunum. Kynning þessi er vel þekkt þar vestra og nefnist Discover Great New Writers Program.
Meira
STJÖRNUR af öllum stærðum og gerðum hafa lagt nýhafinni herferð gegn kynþáttafordómum í Bretlandi lið með því að láta breyta hörundslit sínum og þar með kynþætti.
Meira
SÍÐASTA sýning á söngleiknum "Kysstu mig Kata í Borgarleikhúsinu verður í kvöld, laugardagskvöld. Þessi geysivinsæli söngleikur eftir Cole Porter og Bellu & Sam Spewack var frumsýndur 25. mars síðasta...
Meira
LAUFEY Sigurðardóttir fiðluleikari, Richard Talkowsky sellóleikari og Krystyna Cortes píanóleikari halda tónleika í Fríkirkjunni í Reykjavík í kvöld, laugardagskvöld, kl. 20. Á efnisskránni eru Sónata fyrir fiðlu og selló eftir Ravel og Píanótríó nr.
Meira
Poppbandið Undryð (með ypsiloni) hefur gefið út plötuna Kyssulegar varir. Ásgeir Ingvarsson ræddi við tónlistarmennina þá Gunnlaug, Þorberg, Brynjar og Símon.
Meira
ÚT er komin bókin Fjórtán jólasögur í þýðingu sr. Hreins S. Hákonarsonar . Sögur tilheyra jólum og þá er hver dagur ólíkur gráum hversdagsleikanum.
Meira
FRÆÐSLUSTÍGUR verður opnaður í Mosfellsbæ í dag kl. 14. Stígurinn nær frá Stekkjarflöt í Álafosskvos að Reykjalundi. Við stíginn eru sjö skilti sem hafa að geyma upplýsingar og fræðslu um umhverfi og sögu þeirra staða sem liggja þar meðfram.
Meira
Leikstjóri: Damon Santostefano. Handrit: Rodney Patrick Vaccaro. Aðalhlutverk: Matthew Perry, Neve Campbell og Dylan McDermott. (98 mín.) Bandaríkin, 1999. Sam myndbönd. Öllum leyfð.
Meira
50 ÁRA afmæli. Í dag, laugardaginn 2. desember, verður fimmtugur Bjarni G. Stefánsson, sýslumaður á Hólmavík, Hafnarbraut 2, Hólmavík. Eiginkona hans er Hrefna Teitsdóttir .
Meira
70 ÁRA afmæli . Í dag, laugardaginn 2. desember, verður sjötugur Hilmar Guðlaugsson, múrari og fyrrv. borgarfulltrúi, Rauðhömrum 12, Reykjavík. Eiginkona hans er Jóna Guðbjörg Steinsdóttir frá Vestmannaeyjum . Hilmar verður að heiman í...
Meira
Mikilvægt að fyrirtæki veki athygli á því, segir Guðrún Helga Brynleifsdóttir, þegar hið opinbera fer fram gegn yfirlýstri stefnu og markmiðum samkeppnislaga.
Meira
GULLBRÚÐKAUP. Í dag, laugardaginn 2. desember, eiga 50 ára hjúskaparafmæli hjónin Lilja Árnadóttir og Loftur Jóhannsson, Smáratúni 19, Selfossi...
Meira
LAUGARDAGINN 25. nóvember sl. var kveikt jólaljós á Laugaveginum. Veðrið var yndislegt og stemmningin var stórkostleg. Svona viðburður er örugglega mikil lyftistöng fyrir Laugaveginn í heild sinni, en svo fletti ég Morgunblaðinu þriðjudaginn 28.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
Niðurstaða Hæstaréttar í þessu máli er áminning um, segir Helgi Sigurðsson, að löggjafinn hefur takmarkaðar heimildir til þess að framselja vald sitt til annarra handhafa ríkisvaldsins.
Meira
ÓVÍST er að í öðru landi í veröldinni séu fleiri kórar en á Íslandi, ef miðað er við hina margfrægu höfðatölu. Þar af eru átthagakórar afar margir. Þetta eru kórar sem flestir starfa í Reykjavík og eru þá afsprengi eða hluti af átthagafélagi.
Meira
Drottning æðsta, dýr af ættum, drottins móðir, jungfrú góða, Máría skærust, dyggða dýrust, dáðaprýddust, full af náðum, veittu mér, að eg verða mætta vonarmaðr, sem allir aðrir, þína mjúka miskunn leika, mætust brúður himnasætis...
Meira
Anna Bára Kristinsdóttir verkakona fæddist á Brattavöllum, Þorvaldsdal við Eyjafjörð 29. október 1915. Hún lést á heimili sínu á Akureyri 15. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akureyrarkirkju 24. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Arnþrúður Helga Magnúsdóttir Aspelund fæddist á Ísafirði 7. desember 1906. Hún lést á Ísafirði þriðjudaginn 21. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Helga Tómasdóttir, húsmóðir, f. 17. júlí 1873, d. 22.
MeiraKaupa minningabók
Árni Jónsson fæddist á Sauðárkróki 5. nóvember 1957. Hann varð bráðkvaddur á heimili sínu Víðigrund 14, Sauðárkróki, 19. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans eru Sigríður Árnadóttir, f. 22. maí 1917, og Jón H. Jóhannsson, f. 24. júní 1911, d. 18.
MeiraKaupa minningabók
Árný Ólína Ármannsdóttir fæddist á Akranesi 29. október 1963. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 10. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 20. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Ásmundur Steinar Jóhannsson fæddist á Hamraendum í Breiðuvíkurhreppi á Snæfellsnesi 15. mars 1934. Hann lést í Reykjavík 23. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 1. desember.
MeiraKaupa minningabók
Ásthildur Jóhannesdóttir fæddist í Hafnarfirði 16. febrúar 1942. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi 22. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Víðistaðakirkju 30. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Geir Guðbrandsson, pípulagningameistari og netagerðarmaður á Ísafirði, fæddist 1. maí 1933. Hann lést 23. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Ísafjarðarkirkju 29. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Pétur Ólafsson fæddist á Læk í Viðvíkursveit í Skagafirði 28. júní 1922. Hann lést í Reykjavík 19. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Guðrún Gísladóttir, f. 6. apríl 1893, d. 7. maí 1965 og Ólafur Jónsson, f. 22. febrúar 1890, d. 31.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Ágúst Helgason fæddist á Hamri í Vestmannaeyjum 22. janúar 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 23. nóvember síðastliðinn. Ágúst eins og hann var kallaður var sonur hjónanna Helga Hjálmarssonar, f. 13.10. 1880, d.
MeiraKaupa minningabók
Halldór Ágústsson fæddist 29. júlí 1924. Hann lést á heimili sínu 21. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Elías Ágúst Hálfdánarson, f. 1. ágúst 1894, d. 13.
MeiraKaupa minningabók
Hallgrímur Eðvarðsson fæddist á Helgavatni í Vatnsdal 14. mars 1913. Hann lést á sjúkrahúsi Blönduóss 18. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Eðvarð Hallgrímsson, bóndi á Helgavatni, og kona hans Signý Böðvarsdóttir.
MeiraKaupa minningabók
Jóhanna Kristín Helgadóttir fæddist í Vestmannaeyjum 9. október 1915. Hún lést 7. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 14. október.
MeiraKaupa minningabók
Jón Kort Ólafsson fæddist í Haganesi í Fljótum 15. ágúst 1921 og bjó þar alla tíð. Jón andaðist á Sjúkrahúsi Siglufjarðar 26. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Jórunn Stefánsdóttir, f. 27.7. 1879, d. 4.9. 1968, og Ólafur Jónsson, f. 17.3.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Fanndal Torfason fæddist í Hvítadal í Saurbæ í Dalasýslu 7. febrúar 1926. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. nóvember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Þorbjörg Hólmfríður Björnsdóttir fæddist á Kollafossi í Miðfirði 5. september 1917. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurnesja í Keflavík 24. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Björn Guðumundsson, bóndi á Reynhólum, f. 23. febrúar 1885, d. 24.
MeiraKaupa minningabók
ALMANNATRYGGINGAR, helstu bótaflokkar DESEMBER 2000 Mánaðargr. Desuppb. Elli-/örorkulífeyrir (grunnlífeyrir) 17.715 Elli-/örorkulífeyrir hjóna 15.944 Full tekjutr. ellilífeyrisþega (einstaklingur) 30.461 9.138 Full tekjutrygging örorkulífeyrisþega 31.
Meira
Stjórn Áfengis og tóbaksverslunar ríkisins er að leggja lokahönd á stefnumótun félagsins. Arnór Gísli Ólafsson ræddi við Hildi Petersen og Sigurð M. Magnússon stjórnarmenn ÁTVR.
Meira
FJÁRHAGSSTAÐA Hraðfrystistöðvar Þórshafnar (HÞ) hefur að sögn Finnboga Jónssonar, stjórnarformanns félagsins, verið erfið og hefur það orðið til þess að stjórn félagsins tók nýlega ákvörðun um sölu eigna til að minnka skuldir.
Meira
EIMSKIP UK hefur fest kaup á öllu hlutafé í flutningsmiðlunarfyrirtækinu Pelican Cargo Ltd. Pelican Cargo er staðsett í Crawley rétt sunnan Gatwick-flugvallar og sérhæfir sig í almennri flutningsmiðlun í flugflutningum.
Meira
STJÓRNIR fyrirtækjanna Ellingsen ehf. og Sandfells hf. hafa ákveðið að sameina fyrirtækin frá og með gærdeginum undir heitinu Ellingsen-Sandfell ehf.
Meira
"Amma er yfirsteikingarmeistari," segir jólastúlkan Jóhanna Gunnlaugsdóttir sem árlega ekur um 350 kílómetra til þess að taka þátt í laufabrauðsgerð með stórfjölskyldunni. Siðurinn er gamalgróinn hérlendis og nýtur vaxandi vinsælda á landsvísu.
Meira
LANDSBANKI Íslands (LÍ) hefur sent frá sér verðbólguspá þar sem fram kemur að bankinn spáir 0,15% breytingu á vísitölu neysluverðs milli nóvember og desember. Gangi spáin eftir hefur verðbólga verið 4,3% á síðustu tólf mánuðum.
Meira
SKÝRR hf. hefur samið við VeriSign en VeriSign er leiðandi fyrirtæki í þróun og uppbyggingu öryggislausna fyrir Netið og rafræn viðskipti og almenn samskipti.
Meira
ÞEGAR verð á sjö vörutegundum er borið saman á Íslandi, Englandi og í Bandaríkjunum kemur í ljós að vörurnar eru 7% ódýrari í Reykjavík en í London. Verðið á Íslandi er þó næsthæst í könnuninni þ.s. meðalverðið er lægra í Evrópu og í Bandaríkjunum.
Meira
Næstmestur fjöldi bruna hér á landi verður út frá kertum og kertaskreytingum. Áætlað er að tjón af völdum kertabruna nemi 20-40 milljónum króna árlega.
Meira
TVÖ LYF í nýlegum lyfjaflokki, ætluð við sykursýki af tegund 2, eru nú komin á markað í löndum Evrópusambandsins og þar með á Íslandi. Lyfin heita Avandia, sem inniheldur lyfjaefnið rosiglitasón, og Actos, sem inniheldur lyfjaefnið pioglitasón.
Meira
"Það er hins vegar næsta öruggt að margir munu eiga erfitt með að kyngja því að dæmdur morðingi og glæpaklíkuforingi á dauðadeild í bandarísku fangelsi sé meðal helstu friðardúfna heimsins.
Meira
JÓLAFASTAN í Digraneskirkju einkennist af fórnarvilja og líknarstarfi. Við tengjum mannúðarmál við helgistundir jólaföstunnar á sunnudagskvöldum.
Meira
PERSÓNUR og leikendur draumsins eru sumir hverjir fastráðnir í drauminn líkt og hjá draumaleikhúsum vökunnar en aðrir snapa sér hlutverk hér og þar.
Meira
ÞEIR sem neyta óvenjulega vel útilátinnar máltíðar eru í mun meiri hættu en aðrir á að fá hjartáfall á næstu tveimur klukkustundum eftir að staðið er upp frá matarborðinu.
Meira
Rás 1 og 2 14.00 Fjölbreytt dagskrá verður á báðum rásum Útvarpsins í dag, þegar opið hús verður í höfuðstöðvunum í Efstaleiti í tilefni 70 ára afmælis stofnunarinnar. Gestir eru velkomnir frá klukkan 14.00-18.00.
Meira
EINN af hverjum þrem Bretum telur að erfðafræði sé ósiðleg og fjölmargir hafa áhyggjur af því að upplýsingar um erfðalykla (DNA) verði misnotaðar af tryggingafélögum.
Meira
STAÐAN kom upp í fyrri hluta Íslandsmóts skákfélaga sem lauk fyrir stuttu. Tvær af reynslumestu skákkempum þjóðarinnar áttust hér við. Bragi Halldórsson (2.205) stýrði hvítu mönnunum gegn Gylfa Þórhallssyni (2.145). 24. Bxh6! Dd7 25. Bxg7! 25. ...
Meira
Vísindamenn greinir á um hvort farsímar geti verið ógnun við heilsu manna en almennt sýnist ríkja sátt um að upplýsingar skorti um hugsanleg áhrif búnaðarins.
Meira
Eftir að ég sá kvikmyndina um Títus fannst mér hún því ókræsilegri sem ég hugsaði meira um hana. En þá þvældist Medea fyrir mér. Og ekki nóg með það, heldur var ég minntur á að í hetjukvæðum Eddu væri um svipaðan óhugnað að ræða.
Meira
BÖRN sem eru að læra að nota tölvur eiga á hættu að bíða varanlegt líkamstjón vegna þess, að því er sumir sérfræðingar telja. Segja þeir að þúsundir barna hafi þegar hlotið skaða í tengslum við notkun á tölvum.
Meira
VÍSINDAMENN hafa löngum haft þá kenningu að um 15 mismunandi arfberar, eða gen, eigi þátt í því hverjir fæðast með einhverfu, sem er alvarlegur heilasjúkdómur, og nú hafa vísindamennirnir loksins fundið einn af þessum arfberum.
Meira
EF ÓSKIR Knattspyrnusambands Íslands ná fram að ganga verður Laugardalsvöllurinn tekinn upp haustið 2003, settar undir hann hitalagnir og gervigras saumað ofan í náttúrulega grasið til styrkingar. Jóhann G. Kristinsson, vallarstjóri Laugardalsvallar, hefur kynnt sér sambærilegar framkvæmdir í Noregi og segir að með þessu verði hægt að lengja notkunartíma vallarins umtalsvert.
Meira
LOTHAR Matthäus, fyrrverandi fyrirliði þýska landsliðsins og Bayern München í knattspyrnu, segir að vel komi til greina að hann spili með liði frá Dubai og endi þar með langan keppnisferil.
Meira
Íslenska stúlknalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönnum 18 ára og yngri, féll úr leik í milliriðli Evrópukeppninnar í gær þrátt fyrir 1:0 sigur á Pólverjum.
Meira
JÓNATAN Bow, körfuknattleiksmaðurinn sterki í liði KR-inga, verður að taka sér frí frá keppni og æfingum næstu vikurnar. Bow er meiddur í baki og samkvæmt læknisráði verður hann að hafa hægt um sig.
Meira
KEFLVÍKINGAR hafa fyrstir íslenskra félaga gert tilraun með að sauma gervigras ofan í sinn keppnisvöll. Seinnipart sumars var gras styrkt með gervigrasi sett á markteiga Keflavíkurvallar.
Meira
Gangi áætlanir eftir verður knattspyrnuhús risið við Fossaleyni, norðaustan við gatnamót Víkurvegar og Fossaleynis í Grafarvogi, fyrri hluta árs 2002, en til stendur að hefja byggingu hússins snemma á næsta ári.
Meira
"VIÐ lögðum upp með að spila agað en ef þetta var agaður leikur þá veit ég ekki hvað það er. Við vorum að rétta boltann í hendurnar á þeim hvað eftir annað í fyrri hálfleik og þá sérstaklega ég sjálf.
Meira
ÁGÚST Jóhannsson landsliðsþjálfari kvenna í handknattleik gat ekki leynt vonbrigðum sínum eftir leikinn gegn Slóvenum í gærkvöldi en stelpurnar hans urðu að sætta sig við 12 marka tap,12:24, í fyrri leik þjóðanna í undankeppni heimsmeistaramótsins. Síðari leikurinn verður í Víkinni annað kvöld .
Meira
OPNUN Reykjaneshallar fyrr á þessu ári er mesta framfaraskref í byggingu íþróttamannvirkja á Íslandi og opnaði möguleika fyrir önnur sveitarfélög á að fara af stað með hliðstæðar framkvæmdir. Frá febrúar og fram í september komu rúmlega 14 þúsund iðkendur í höllina og hún er jafnan þéttsetin frá morgni til kvölds," sagði Ragnar Örn Pétursson, staðgengill íþrótta- og tómstundafulltrúa Reykjanesbæjar, sem var formaður íþróttaráðs bæjarins á þeim tíma sem bygging hallarinnar var undirbúin.
Meira
ÞAÐ var ekki margt sem benti til framfara hjá íslenska kvennalandsliðinu í handknattleik, sem lék fyrri leik sinn gegn Slóvenum í Evrópukeppninni, en leikurinn fór fram í Víkinni í gærkvöldi. Slóvenar, sem eru meðal bestu handknattleiksþjóða Evrópu áttu ekki í neinum vandræðum með íslenska liðið, sem lék á tíðum afar slakan handknattleik og mátti sætta sig við 12 marka tap, 12:24.
Meira
ÞRÍR af yngri leikmönnum Framliðsins í knattspyrnu, Daði Guðmundsson, Eggert Stefánsson og Freyr Karlsson , hafa endurnýjað samninga sína við Fram . Nýju samningarnir eru til þriggja ára.
Meira
ARNAR Sigurmundsson, formaður Samtaka fiskvinnslustöðva, segir að verði bannað að flytja fiskimjöl inn til Evrópusambandsríkjanna skaði það allan sjávarútveg og kippi gersamlega fótunum undan rekstri mjöl- og lýsisvinnslufyrirtækja auk þess sem það hafi...
Meira
INNFLUTNINGSBANN á fiskimjöl til aðildarríkja Evrópusambandsins hefði alvarlegar afleiðingar fyrir fiskimjölsiðnaðinn hér á landi, jafnvel þótt lítill hluti framleiðslunnar sé seldur til ESB-landa.
Meira
Á flandri um Berlín með Daníel Sigurðssyni arkitekt, sem hefur starfað við eftirlit með byggingum í Berlín í sjö ár og býr í Ólympíuþorpinu frá 1936.
Meira
Kafli úr nýrri bók: Reiðleiðir um Ísland. Höfundurinn er Sigurjón Björnsson, landskunnur sálfræðingur og hestamaður. Lýst er í máli og myndum hestaferða- lögum síðasta áratuginn, flestum þeirra á hálendinu og fylgja með kort af reiðleiðunum. Hér er gripið niður í einn kaflann. Útgefandi er Mál og mynd.
Meira
Tónleikar í tilefni af aldarafmæli Karls O. Runólfs-sonar verða haldnir í Salnum í Kópavogi í dag, laugardag. SÚSANNA SVAVARSDÓTTIR ræddi við Þórunni Guðmundsdóttur, skipuleggjanda tónleikanna, sem segir Karl hafa spannað allan tilfinningaskalann í verkum sínum.
Meira
Berlínardögum Gísla Sigurðssonar lýkur með lýsingu á yfirreið um Berlín og hafði hann sér til fulltingis kunnugan mann: Daníel Sigurðsson arkitekt, sem búið hefur og starfað í Berlín í sjö...
Meira
Peter Ilyich Tchaikovsky: Sinfónía nr. 6 í h-moll op. 74, Pathétique - píanóútsetning eftir Walter Niemann. Einleikur: Chitose Okashiro. Heildartími: 44'46. Útgáfa: Pro Piano Records PPR 224530. Verð: kr. 2.100. Dreifing: 12 tónar.
Meira
Greinilegt er að eyjahringurinn er í raun leifar risastórs eldfjalls sem hefur gosið ógurlega stóru gosi og að lónið er gígur þess. Gígveggirnir rísa nær lóðrétt upp í 380 m hæð og á brúnum þeirra kúra þorpin.
Meira
SÝNING á verkum Kristínar Gunnlaugsdóttur verður opnuð í Hallgrímskirkju eftir messu á morgun, sunnudag, kl. 12.15. Kristín sýnir fjögur olíumálverk sem öll eru unnin á þessu ári.
Meira
Júlíana Sveinsdóttir dvaldi meginhluta ævinnar í Danmörku, en viðfangsefni hennar voru oft íslensk og hér eru taldir upp 13 staðir þar sem hún kom og málaði, stundum ár eftir ár.
Meira
Hvar er þín trú, þú, sem settist á óveðursdögum undir brekán og hlýddir á guðsorð gamallar konu, sem mælti: Eitt skjól er til gegn öllum hretum, einn vegur er yfir alla vegu, ein huggun við öllum raunum, og hinn vesalasti allra vesalla finnur það, sem...
Meira
Samtímalistasafnið í Barselóna er hvítur blettur á grábrúnu og skuggalegu Ravalhverfinu þar sem undirmálsfólk hefur búið um aldir og vændiskonur og misindismenn af ýmsu tagi hafa stundað útgerð sína.
Meira
er samtímalistasafnið kallað hvíta skellan í Raval. Safnið stendur fyrir áhugaverðum sýningum, en hefur nokkuð fallið í skuggann af Guggenheimsafninu í...
Meira
ÁRLEG jólasýning Árbæjarsafns verður opin sunnudagana 3. og 10. desember næstkomandi kl. 13-17. Þá gefst gestum tækifæri til að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga, flest hús safnsins verða opin og mikið um að vera.
Meira
bjó meiripart ævinnar úti í Danmörku, en var rammíslenskur málari og kom á sumrin og málaði á Íslandi. En hvaða staði málaði Júlíana? Um það skrifar frændi hennar, Leifur Sveinsson lögfræðingur, og fylgja nokkrar myndir eftir Júlíönu frá þessum...
Meira
Er Guð ekki innri kærleikur og kraftur sem býr með öllum? Ég finn þennan kærleik í öllu sem ég geri. Ég upplifi kærleikann sem Guð í náttúrunni og hann er kraftur lífsins sem hjálpar mér ef ég bið um hjálp.
Meira
Tíminn er hvorki rísandi lægð í norðlenskum dal né gömul kaka á borði. Enginn blær inn um glugga eða gardínur að stelast út. Ekki safaríkt gras vaxandi. Engin skúr fallandi í haf þar sem skyggni er ágætt.
Meira
Seint um kvöld rís nóttin upp úr gjánni neðst í dalnum, tygjar sig til ferðar: dustar myrkurpilsin, hnýtir dimma hyrnu um axlir, kveinkar sér og felur inni á barmi brunasára fingur og stikar svo af stað með gusti nokkrum, þrammar upp með ánni til að inna...
Meira
MYNDLIST Árbæjarsafn: Saga Reykjavíkur. Árnastofnun, Árnagarði: Handritasýning. Til 15. maí. Bókasafn Seltjarnarness: Jón Axel Egilsson. Til 2. des. Edinborgarhúsið, Ísafirði: Nína Ívanova. Til 3. des.
Meira
FYRIR forgöngu sendiherra Rússlands á Íslandi, Anatólís Zaitsev, og með tilstyrk nokkurra íslenskra aðila koma 3 rússneskir hljóðfæraleikarar til landsins nú í desember og halda tónleika víða um land. Á morgun kl.
Meira
Hugurinn er eins og brothætt gler, þakið sóti og reyk. Í þokunni finnur þú löngun til að elska náungann eins og sjálfan þig. Þegar þokunni léttir, ertu sannfærður um að náunginn hafi aldrei verið...
Meira
Reynum að skynja heiminn í allri sinni dýrð, fegurð og visku sem býr í náttúrunni. Hlustum á raddir dýranna og hvað ilmandi blómin hafa að segja okkur. Heyrum yndislegu litlu fuglana syngja um ást, frið og samlyndi.
Meira
Um síðustu helgi voru haldnir tónleikar að Skriðuklaustri í Fljótsdal. Frumflutt var tónlist Keiths Reed, óperusöngvara og tónlistarkennara á Egilsstöðum, við fimm sonnettur eftir Gunnar Gunnarsson. Steinunn Ásmundsdóttir fór að Skriðuklaustri.
Meira
Það er ekki seinna vænna að fara að skrifa þér til, Rauðka mín. Nú þegar fósturvísarnir þínir þykja ekki nógu fínir. Þeir gefa víst ekki nógu mikið í aðra hönd. En fátt er með öllu illt.
Meira
Íslendingar eru allir jólasveinar inn við beinið. Jólasveinar eru jaðarhópur sem náð hefur að slá í gegn. Stúdentar leggjast í útlegð á aðventu og koma af fjöllum að prófum loknum. Haukur Agnarsson tilheyrir báðum hópunum og rekur raunir jólasveina ár og síð.
Meira
Desember er tími samveru og þá taka kynslóðir höndum saman við undirbúning jólanna. Börnin finna sér þó stundum sín eigin verk sem þau njóta þess að eiga heiðurinn af, hvort sem það er föndur, bakstur eða hátíðlegur upplestur.
Meira
F ersk jarðarber eru gómsæt og afar vinsæl í hvers kyns ábætisrétti. Til að draga fram hið ljúffenga berjabragð er gott að strá yfir þau sykri, örlitlum sítrónusafa og . . . rauðvínsslettu, sem gerir útslagið.
Meira
Bacalao a la mexicana Saltfiskur að hætti Mexíkóbúa 1 kg saltfiskflök 1 lítil dós tómatmauk 150 g laukur 750 g kartöflur 1 bolli ólífuolía 750 g bufftómatar 2 stk.
Meira
S igurður Oddur Sigurðsson bakari í Hafnarfirði brást vel við að leggja lesendum til uppskriftir og valdi jólarúllutertu og marengstoppa. Rúllutertuna sótti hann í uppskriftabók móður sinnar sem sótti hana í uppskriftabók sinnar móður.
Meira
Í endurminningunni finnst mér að allt hafi verið á kafi í snjó frá október og fram í maí og þótt vissulega hafi verið gaman á skíðum eða skautum, þá áttum við ekki skap saman ég og veturinn frekar en í dag.
Meira
Nokkrum dögum fyrir jólin voru jólakertin steypt, bæði strokkkerti og formakerti. Voru kertaformar til á hverjum bæ, en strokkkertagerðin var að leggjast niður þegar ég var barn.
Meira
Og nú var komið að langskemmtilegasta jólaundirbúningnum: laufabrauðsgerðinni. Til laufabrauðsdagsins var hlakkað af öllum, eldri sem yngri. Þegar fyrir dagmál var byrjað á brauðgerðinni, vætt með góðri mjólk í miklu af hveiti og síðan hnoðað vel upp í.
Meira
Aldrei var spilað á spil, né aðrar skemmtanir um hönd hafðar á jólanóttina. Þótti það hin mesta ósvinna ef út af þessu var brugðið. Jólanóttin var hrein og stillt eins og stjarna himinsins. Á hana mátti ekki falla hinn minnsti skuggi.
Meira
Þegar komið var frá kirkju á jóladag og menn höfðu matazt og hvílzt, var spilað á spil og reynt að skemmta sér á ýmsan hátt lengi kvölds. Og stundum man ég eftir hópum af ungu fólki, sem skemmti sér úti um jólin á skíðum og skautum.
Meira
Á þessum tíma voru heimilin margmenn, fjölmennar og fastbyggðar stofnanir. Er haustvertíð lauk, venjulega um veturnætur, hófst tóskaparvinna, sem stóð óslitið fram til jóla. Var þá tætt og unnið svo kallað smáband, en það voru sokkar og vettlingar.
Meira
En í öllu [...] annríki jólaföstunnar mátti þó ekki gleyma því að skrifa upp alla gesti sem að garði bar, bæði karla og konur, unga og gamla, og hvort sem þeir stóðu stutt við eða lengi. Þetta voru jólasveinarnir, sem við kölluðum svo.
Meira
Klukkan sex á aðfangadagskvöld byrjaði helgihaldið. Þá var fólkið komið í sínar beztu flíkur og bærinn alljósaður. Var nú borið á borð inni í herbergi hjónanna, og mötuðust þar allir við sama borðið í eina skiptið á árinu - nema bóndi.
Meira
Húslestur var lesinn á jóladaginn og skepnum sinnt að vanda, en annars var dagurinn notaður til skemmtunar. Var spiluð vist, lú, gosi, langhundur, kasína og Svarti-Pétur. Ekkert af þessum spilum var spilað upp á peninga nema lú. (...
Meira
Ég er fædd í Höfn 1908, en pabbi byggði húsið 1906. Ég man fyrst eftir mér þegar ég var fjögurra ára. Fyrstu jólin eru mér sérstaklega minnisstæð vegna þess að ég átti bróður, Guðjón, sem var tíu árum eldri en ég og hann var strax mjög laginn við smíðar.
Meira
Áður en aðventan hefst þarf að finna aðventuljósin, kaupa jóladagatöl fyrir börnin og ganga frá pökkum til fjarlægra landa. En þegar sjálf aðventan gengur í garð þéttist verkefnalistinn. Kristín Elfa Guðnadóttir tók saman minnislista sem hver og einn getur sniðið að sínum þörfum.
Meira
Hópur ungra manna myndar nú uppistöðu íslenska kokkalandsliðsins sem náði einstaklega góðum árangri á Ólympíuleikum matreiðslumanna í ár. Steingrímur Sigurgeirsson ræddi við hópinn um keppnina og fékk góð ráð við eldun á hreindýrasteik.
Meira
Matur og drykkur Innbökuð grænmetissteik í sérrí-gráðostasósu Ristaðir humarhalar og hreindýrasteik Saltfiskréttur að mexíkönskum hætti Skötuselur í engifersósu Frumlegar hreindýrasteikur með tilheyrandi Jólahnetusteik Léttir milliréttir frá Suður-Evrópu...
Meira
Hann Júlli í Höfn er nútímamaður sem smíðar vefsíður í frístundum. Um leið er hann maður gamla tímans með áhuga á byggðasögu og -siðum. Sigurbjörg Þrastardóttir heimsótti Jólavef Júlla, heimilislega tómstundavefinn sem var opnaður fyrir ári og varð "heimsþekktur" á svipstundu.
Meira
Þegar hvít slæða hylur jörðina við Gauksmýri, sem iðulega gerist í nóvemberlok, finnur Sigríður Lárusdóttir að jólin eru á næstu grösum. Þá dregur hún fram stóra jólasveina sem hún hefur sjálf skorið út og þeir taka á móti gestum úti á hlaði.
Meira
Heimagerðan gestalista er hægt að hengja upp á ganginum, í forstofunni eða jafnvel á útidyrahurðina ef veður leyfir. Börnin á heimilinu geta tekið að sér að búa listann til, allt sem þarf er pappaspjald og tússlitir.
Meira
Jólapakkana má skreyta að vild og sumir þeirra eru listaverk út af fyrir sig. Nýstárlegar hugmyndir í innpökkun koma reglulega fram. Sumir pakka inn í dagblöð til þess að spara og skreyta með sterklitum slaufum.
Meira
"Langra kvelda jólaeldur hefur í sannleika veitt íslenzku þjóðinni þrek í þraut og sólarsýn á aldalangri vegferð. Kjarninn er sá sami öld af öld, en umbúðir breytilegar. [...
Meira
Hangikjöt Nokkuð misjafnt er hvernig mönnum finnst best að sjóða hangiketið, en flestir virðast óskaplega íhaldssamir í þeim efnum. Hér er sagt frá þremur leiðum, sem virðast vera algengastar.
Meira
Einhverra hluta vegna er vinsælt að bera heitar sósur fram með ís. Þær geta verið margvíslegar og frægar eru sósur sem gerðar eru úr Mars- og Snickers-súkkulaði, mjög bragðgóðar, en að sama skapi auðugar af hitaeiningum.
Meira
Aðventan; tilhlökkunartími eða tuttugu og þrír dagar af samfelldu stressi? Hvernig gengur störfum hlöðnu fólki að njóta aðventunnar og skapa sér eigin hefðir? Kristín Elfa Guðnadóttir þurfti ekki að leita lengi að önnum kafinni manneskju.
Meira
Rauður er litur jólanna en fjólublár vinnur á og aðventukransar þurfa alls ekki alltaf að vera reglulegir. Jón Sverrisson blómaskreytir vopnast vír og hampi á haustin og snarar fram skreytingu eftir skreytingu eftir skreytingu eftir...
Meira
Jólin eru ljósahátíð sem fáir bíða eftir af meiri ákafa en börnin. Þátttaka þeirra í jólaföstunni öðlast ævintýralega vídd ef þau fá sjálf að töfra fram ljós til þess að varðveita í skammdeginu. Sigurbjörg Þrastardóttir heimsótti konu sem kennir hverjum sem vill listina að steypa og dýfa kerti.
Meira
Á aðfangadagskvöld borða Gunnar Sigmundsson og fjölskylda hnetusteik. Kannski er það ekki í frásögur færandi nema að einu leyti; þau eru ekki jurtaætur. Kristín Elfa Guðnadóttir tók hús á Gunnari og spurði hvernig á þessu stæði.
Meira
Efniviður í jólaskraut þarf ekki alltaf að kosta mikið. Hægt er að nýta afgangsgarn til ýmissa hluta, líkt og Friðrika Bjarnadóttir gerir. Hún prjónar flíkur á litla jólasveina sem hún útbýr til skrauts fyrir heimilið.
Meira
Hreindýr með fjólubláum kartöflum uppskrift fyrir 4 12 stk. 65 g hreindýramedalíur (smásteikur) 100 g pecanhnetur 20 g myrkilsveppaduft (þurrkaðir sveppir marðir í duft) salt og pipar Hnetum, sveppum og kryddi blandað saman í matvinnsluvél.
Meira
Gómsætt meðlæti getur líka verið hin mesta borðprýði og þar fara sætabrauðskransar fremstir í flokki. Þennan jólakrans bakar Jóhanna Einarsdóttir jafnan fyrir jólin, en hann er matarmikill, jólalegur og einkar bragðgóður.
Meira
Veisluborð landsmanna eru þéttskipuð steikum og meðlæti yfir hátíðarnar. Hver hefur sinn hátt á við eldamennskuna en alltaf er þó gaman að heyra af fleiri leiðum við matreiðsluna. Hér birtast rjúkandi tilbrigði við jóla- og áramótasteikur í borg og bæ.
Meira
Ef smávegis af mjólk er bætt út í vatn sem blómkál er soðið í, verður kálið hvítara en ella. Til að halda sósu heitri, án þess að láta hana krauma í potti, er ekki úr vegi að hella henni í hitakönnu.
Meira
Á spádeild Veðurstofu Íslands er vakt allan sólarhringinn, alla daga. Líka um jólin. Samt slá veðurfræðingar ekki slöku við í jólabakstrinum, og því síður samstarfsmenn þeirra á jarðeðlissviði, hafísdeild eða snjóflóðavakt. Uppskriftum rigndi yfir Sigurbjörgu Þrastardóttur þegar hún heimsótti Veðurstofuna við Bústaðaveg.
Meira
Í svartasta myrkrinu og mesta kuldanum þegar snjóaði enn á norðurherbergið greip óskiljanlegt þrifnaðaræði allt í einu um sig. Dregnir voru fram penslar. Strokið var af skápum og marglitur pappír límdur á hillur og jafnvel kolastían var sópuð.
Meira
Þegar aðventan tekur að nálgast í Mið-Evrópu birtast jólalegar mjólkurfernur í kjörbúðum. Í fernunum er eggjapúns og fyrir börnin er eggjapúnsið ásamt engiferbrauði og piparkökum fyrsta merkið um það að jólin séu að nálgast.
Meira
E n það bar til um þessar mundir að boð kom frá Ágústus keisara, að skrásetja skyldi alla heimsbyggðina. Þetta var fyrsta skrásetningin og var gjörð þá er Kýreníus var landstjóri á Sýrlandi. Fóru þá allir til að láta skrásetja sig, hver til sinnar...
Meira
Þessi uppskrift er frá Guðríði Jónsdóttur, húsmóður á Seltjarnarnesi. Hún bakar kökuna reglulega árið um kring og á aðventu er hægt að ganga að því vísu að gestir fá jólaköku hjá henni með kaffinu, auk mikils úrvals af gómsætum smákökum.
Meira
Jólakaka með rúsínum er ekki endilega sparikaka á öllum heimilum. Sums staðar er hún bökuð allan ársins hring eins og hjá húsmóður einni á Skipaskaga sem hefur bakað sömu uppskriftina í fjörutíu ár við stöðugar vinsældir.
Meira
K anill er einn af vinsælustu ilmgjöfum í kringum jól. Tilvalið er að setja kanil út í vatn og hita, til dæmis undir sprittkerti. Ilmurinn berst um híbýlin og kveikir undantekningarlaust jólaneista í fólki.
Meira
Kertin og jólaljósin sem lýsa upp desembermyrkrið eru víðast hvar órjúfanlegur hluti jólahaldsins. Ljósadýrðarinnar er sjálfsagt að njóta en um leið þarf að gæta fyllstu varúðar við meðferð og uppsetningu jólaljósa svo vænta megi gleðilegri hátíðar.
Meira
Jólamatseðill fyrir einn að tillögu Magnúsar Inga Magnússonar, bryta. Graflax með sinnepssósu graflax sinnepssósa brauð smjör Hægt er að kaupa tilbúinn graflax og sinnepssósu, skreyta fallega á diski og bera fram með ristuðu brauði og smjöri.
Meira
Jólasandkaka með karamellubráð eða núggati 150 g smjörlíki 150 g sykur 4 egg 220 g hveiti 1 1/2 tsk. lyftiduft Hrært deig sett í vel smurt hringlaga form og bakað við 170°C neðst í ofni þar til kakan er gullinbrún.
Meira
Jólate 1 tsk. steyttar kardimommur 1 1/2 tsk. steyttur kanill 1 msk. þurrkaður appelsínubörkur 8 heilir negulnaglar 100 g telauf Steytið negulnaglana í mortéli og blandið þeim saman við hitt kryddið ásamt telaufinu.
Meira
Á heimili nokkru í Kópavogi bætist einn fjölskyldumeðlimur í hópinn í desember. Hann kemur beina leið af æskuslóðum, fer í bað eins og allir hinir, drekkur sérhitað vatn og klæðist viðhafnarbúningi á allra mestu hátíðarstundum. Þessi prúði heimilisvinur er jólatréð.
Meira
Á órannsakanlegum vegum Netsins er að finna ýmsa jólavefi á íslensku og erlendum málum. Áhugasömum er til dæmis bent á jólavef í umsjón Salvarar Gissurardóttur sem finna má á slóðinni http://jol.ismennt.
Meira
Sumir eru einir á jólunum, ýmist að eigin vali eða ekki. En jólahátíðin er fyrir alla, ekki bara fjölskyldur. Án ábyrgðar og skilafrests er hér gefin uppskrift að ánægjulegum einkajólum.
Meira
Kristín gefur hér uppskrift að gómsætum hátíðarrétti fyrir grænmetisætur með bragðlaukana í lagi. Rétturinn samanstendur af sjö tegundum af fínskornu grænmeti sem baðað er í bragðmikilli sósunni og innbakað í smjördeigi svo úr verður matarmikil baka.
Meira
Jólakort streyma víða inn um bréfalúgur og ofan í póstkassa þegar líða tekur að jólum. Flestir reyna að halda saman öllum þeim kortum sem berast og nýta til þess ýmiss konar hirslur.
Meira
Þjóðleg matargerð þarf ekki að vera flókin og heimilisleg jól eru menning út af fyrir sig. Guðbjörg R. Guðmundsdóttir hitti kokkinn í Þjóðmenningarhúsinu og forvitnaðist um jólahaldið hans.
Meira
"Amma er yfirsteikingarmeistari," segir jólastúlkan Jóhanna Gunnlaugsdóttir sem árlega ekur um 350 kílómetra til þess að taka þátt í laufabrauðsgerð með stórfjölskyldunni. Siðurinn er gamalgróinn hérlendis og nýtur vaxandi vinsælda á landsvísu.
Meira
Laufabrauðsgerð er gamall siður, eins og lesa má um í bókinni Íslensk matarhefð eftir Hallgerði Gísladóttur: "Elsta laufabrauðsheimild sem vitað er um er úr orðabók Jóns Ólafssonar frá Grunnavík með skýringum á latínu en þessi hluti hennar er...
Meira
Jólamyndirnar komast á kreik strax á aðventunni í jólakortaflóðinu. Svo fjölgar þeim enn eftir jólin þegar augnablik hátíðanna eru framkölluð. Brynja Tomer spyr hvernig tryggja megi að jólamyndirnar heppnist.
Meira
Hér eru uppskriftir að nokkrum fljótlegum réttum með ítölsku og frönsku yfirbragði. Þeir henta til dæmis vel daginn eftir langa setu við veisluborð eða svignandi jólahlaðborð.
Meira
Á frímerktum jólakortum má, líkt og í fyrra, sjá íslensku jólasveinana þrettán læðast um í efra hægra horninu. Ólafur Pétursson teiknaði sveinana á frímerki Íslandspósts, eftir að hafa komist yfir bernskuótta sinn í þeirra garð. Sigurbjörg Þrastardóttir sveif á manninn.
Meira
"Það er best að búa í sveitinni," segir heimasætan Guðbjörg sem er boðin og búin að hjálpa mömmu sinni, húsfreyjunni á Minni-Mástungu, að hræra í tólf tegundir af jólasmákökum. Sigurbjörg Þrastardóttir og Árni Sæberg heimsóttu mæðgurnar í jólaveröldinni eystra, en karlmennirnir sex voru að heiman.
Meira
I nga Björk Gunnarsdóttir hefur um árabil haft gaman af því að taka myndir. Hún býr ásamt manni sínum, Þresti Ólafssyni, og börnum þeirra þremur, Ólöfu Karitas, Rakel Ósk og Aroni Erni, á bænum Sperðli í Landeyjum.
Meira
Mömmukökur 125 g smjörlíki 250 g ljóst sýróp 125 g sykur 1 egg 500 g hveiti 2 tsk. matarsódi 1 tsk. engiferduft 1 skammtur hvítt smjörkrem Bræðið saman smjörlíkið, sykurinn og sýrópið. Kælið. Hrærið egginu saman við.
Meira
Í Chile er venjan að baka sérstakt brauð fyrir jólin. Vinnuveitendur gefa gjarna starfsfólki sínu "aguinaldo", pakka sem í er jólabrauð og flaska af víni. Jólabrauð (Pan de Navidad) 5 dl heilhveiti 5 dl hveiti 2,5 dl sykur 2 tsk.
Meira
Jólin í Los Angeles eru giska framandi frá frónsku sjónarhorni; þar er aldrei ófært á Þorláksmessu og hvergi finnast aðföng í alvöru jólaöl. Þá er ekki um annað að ræða fyrir Íslendinga en að búa til snjó og flytja inn malt og appelsín.
Meira
Peking Sesselja Friðriksdóttir hefur nokkrum sinnum eldað Peking-önd með gómsætri fyllingu við mikla hrifningu gesta sinna. Sesselja segir að fyllingin sé mjög ljúffeng og gefi kjötinu auk þess gott bragð.
Meira
Þessi uppskrift gengur undir heitinu Piparkökur Brynhildar. Foreldri nokkurt fékk hana hjá starfsfólki leikskólans Sólbrekku á Seltjarnarnesi, eftir að börnin þar höfðu bakað ljómandi góðar og ótrúlega lögulegar piparkökur.
Meira
Heimagerð jólakort geta verið falleg og mörgum finnst gaman að gera einstök kort handa einstökum viðtakendum. Júlía Baldursdóttir saumar kortin sín eftir kúnstarinnar reglum, en segir kúnstina alls ekki svo mikla kúnst þegar allt komi til alls.
Meira
Valhnetubaka, sem ómissandi er á bandarísku jólaborði, hefur numið land í Mosfellsbæ. Anna Ingólfsdóttir heimsótti Ray, Lori, Trevor, Kayli og Lee sem bíða eftir íslenskum jólasnjó.
Meira
Sesselja Sesselja Friðriksdóttir matselja í Verzlunarskóla Íslands gaf þessa uppskrift að hamborgarhrygg: Hamborgarhryggur með sætu sinnepi meðalstór hamborgar- hryggur á beini 1½ bolli sykur 2 msk. rjómi 1 msk.
Meira
Súkkulaði er ómissandi í eldhúsinu fyrir jólin og nýtist í konfekt og kökur. Ósviknar súkkulaðitertur eru líka alltaf vinsælar, þær eru til í ýmsum tilbrigðum og hér er eitt: Súkkulaðiterta 125 g smjör 125 g flórsykur 1 msk.
Meira
Jólasveinamyndirnar þrettán sem finna má á víð og dreif um blaðið eru teiknaðar af Ólafi Péturssyni og birtust áður á Litla jóladiskinum, margmiðlunardiski, sem út kom árið...
Meira
Þ að er ekki bara flórsykurinn í glassúrnum sem gerir þessa tertu sæta. Hún er sæt viðbót við annað augnakonfekt á jóladagsborðinu og getur orðið eins falleg og húsfreyju eða húsbónda hugnast með litagleði og berjaskrauti.
Meira
Leyndarmálin í eldhúsunum eru mörg og misjöfn. Sumir lúra á þeim alla tíð og töfra fram rétti sem enginn fær nokkru sinni að komast að hvernig búnir eru til.
Meira
J ólatrésskraut er af ýmsum talið eiga rætur að rekja til Þýskalands, í það minnsta sumar gerðir þess. Vagga glerjólatrésskrautsins er í Suður-Þýskalandi og þar hefur skrautið verið munnblásið og handmálað í meira en heila öld.
Meira
Smákökur bera ýmis nöfn og sum spaugileg, en á endanum eru það bragðgæðin sem skipta öllu máli. Útlitið hefur þó líka sitt að segja og ekki spillir fyrir að kökunum smáu sé raðað á fallegan disk.
Meira
J ólatréð, sem nú er eitt helzta tákn jólanna um allan hinn kristna heim og víðar, er tiltölulega nýkomið til sögunnar sem slíkt, og ekki munu meira en 100 ár, síðan það varð algengt í Evrópu í nokkurri líkingu við það, sem nú er.
Meira
Uppskriftir að laufabrauði eru breytilegar eftir fjölskyldum. Sumir búa til hreinar hveitikökur, á meðan aðrir bæta heilhveiti eða rúgmjöli í uppskriftina. Enn aðrir setja kúmen út í deigið. Laufabrauð 1 kg hveiti 30 g sykur 1 tsk. lyftiduft 1 tsk.
Meira
Jóhanna hefur sérstaklega gaman af gömlum siðum og hefur lagt sig eftir því að kynna þjóðlegan mat fyrir útlendingum. Hún heldur úti uppskriftavef á Netinu þar sem lesa má uppskriftir að skonsum, skyri, smákökum o.fl. á ensku.
Meira
Vesturbærinn Uppskriftin sem hér fer á eftir hefur verið notuð árum saman fyrir gamlárskvöldsveislu á heimili í vesturbæ Reykjavíkur. Grunnurinn kom á sínum tíma úr bæklingi frá Reykjum í Mosfellsbæ, en hefur tekið einhverjum breytingum með árunum.
Meira
Jólafastan í kaþólskum sið í Mexíkó kallar á átta daga látlausa heimilisgleði þar sem minnst er göngu Maríu og Jósefs til Betlehem. Sigurbjörg Þrastardóttir hitti hressilegar vinkonur sem eiga aðventuminningar frá Mexíkó.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.