LÖGFRÆÐINGAR Als Gore, forsetaefnis demókrata í Bandaríkjunum, báðu í gær Hæstarétt Flórídaríkis að líta framhjá því að yfirvöld í ríkinu hefðu staðfest sigur repúblikanans George W. Bush í forsetakosningunum 7. nóvember sl.
Meira
ÍRANSKIR háskólastúdentar fögnuðu orðum Mohammads Khatami, hins hófsama forseta Írans, er hann ávarpaði þá á árlegum stúdentadegi Írans í gær. Um 10.
Meira
ÞEGAR leiðtogar Evrópusambandsríkjanna fimmtán koma í dag saman í frönsku Miðjarðarhafsstrandarborginni Nice eiga þeir nokkra erfiða sólarhringa fyrir höndum.
Meira
TYRKNESK eftirlitsyfirvöld ljósvakaútsendingarmála hafa fyrirskipað einkareknu sjónvarpsstöðinni ATV að gera dagshlé á útsendingum í refsingarskyni fyrir að hafa sent út þátt úr japönsku teiknimyndaþáttaröðinni um Pokémon-verurnar.
Meira
BÆJARSTJÓRN Hafnarfjarðar hefur samþykkt áætlun um samruna Rafveitu Hafnarfjarðar og Hitaveitu Suðurnesja. Áætlunin felur í sér að raforkugjöld Hafnfirðinga lækka um 10% frá næstu ármótum og lækka á ný í upphafi ársins 2002.
Meira
RÚSSNESKUR dómstóll dæmdi í gær Bandaríkjamanninn Edmond Pope í 20 ára fangelsi fyrir njósnir. Er hann fyrsti Vesturlandamaðurinn sem dæmdur er fyrir þær sakir í Rússlandi frá lokum kalda stríðsins.
Meira
UM 7.400 ellilífeyrisþegar voru með tekjur undir 58.500 kr. á mánuði í fyrra. Kemur þetta fram í grein sem Ólafur Ólafsson, formaður Félags eldri borgara, skrifar í blaðið í dag.
Meira
Holti -ÞRÍR kórar í Rangárvallasýslu héldu laugardaginn 2. desember aðventutónleika fyrir fullu húsi við sérstaklega góðar undirtektir áheyrenda. Stjórnendur kóranna voru Guðjón Halldór Óskarsson og Nína María Moraavek.
Meira
VIÐ SÝNATÖKU heilbrigðisfulltrúa Norðurlands vestra úr tveimur vatnsbólum við Varmahlíð í Skagafirði í síðustu viku kom í ljós talsvert magn saurkólígerla í vatninu, eða um 300 gerlar í hverjum 100 ml.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi athugasemd frá Íslenskri endurtryggingu: "Vegna fréttaflutnings í dagblöðum síðustu daga um endurtryggingar fiskiskipa og starfsemi Íslenskrar endurtryggingar hf. er rétt að eftirfarandi komi fram.
Meira
SAMNINGAFUNDUR í kjaradeilu framhaldsskólakennara var haldinn í gær en að sögn Elnu Katrínar Jónsdóttur, formanns Félags framhaldsskólakennara, var enginn árangur af honum. Verkfall framhaldsskólakennara hefur nú staðið í fjórar vikur.
Meira
FRAMSÖGUMENN á fundi sem kennarafélögin í Menntaskólanum á Akureyri og Verkmenntaskólanum á Akureyri héldu á þriðjudagskvöld voru á einu máli um að bæta þyrfti kjör kennara og að það ástand sem skapast hefði vegna vinnudeilu kennara við viðsemjenda sinn,...
Meira
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra kvaðst, í utandagskrárumræðu á Alþingi í gær, telja miklar líkur á því að niðurstaða næðist í deilum ríkja um losun gróðurhúsalofttegunda á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem væntanlega verður haldin í Bonn í...
Meira
UMMÆLI Williams Cohens, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, um að áætlunin um svonefnt hraðlið Evrópuríkjanna geti veikt Atlantshafsbandalagið, NATO, hafa valdið miklu fjaðrafoki í Evrópulöndum.
Meira
LAGASTOFNUN Háskóla Íslands hefur ekki getað tekið að sér verkefni í meira en ár og hefur þurft að endursenda beiðnir um álitsgerðir þar sem prófessorar fá ekki greitt fyrir yfirvinnu umfram tiltekið hámark vegna úrskurðar kjaranefndar um launakjör...
Meira
VERÐI stjórnarfrumvarp sem lagt var fyrir Alþingi í upphafi vikunnar samþykkt verður embætti ríkistollstjóra lagt niður frá og með næstu áramótum. Verkefni ríkistollstjóra ganga til fjármálaráðuneytis og til embættis tollstjórans í Reykjavík. Geir H.
Meira
GUÐMUNDUR Valur Stefánsson, framkvæmdastjóri Sæsilfurs, sem hefur uppi áform um sjókvíaeldi á laxi á Austfjörðum, segir að vísindamennirnir Fred Allendorf og Ian Fleming, séu frægir fyrir það að leiða fram rök gegn fiskeldi.
Meira
Foreldrar 19 þúsund framhaldsskólanema, sem verkfallið bitnar mest á, hafa vaxandi áhyggjur af stöðu mála. Þeir eru ekki bjartsýnir á að deilan leysist fljótlega.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing Samtaka um betri byggð í tilefni af erindisbréfi sérfræðihóps vegna almennrar atkvæðagreiðslu um innanlandsflugvöll í Reykjavík: "Samtök um betri byggð fagna því að borgarstjórn Reykjavíkur hafi...
Meira
Innganga Ungverja í Nato hefur fært þá nær Íslendingum, að mati Gábor Iklódy, nýs sendiherra Ungverja á Íslandi. Í samtali við Björn Inga Hrafnsson ræðir hann um breytingar á Nato og samrunaferlið í Evrópu en Ungverjar hafa sem kunnugt er sótt um aðild að Evrópu-sambandinu.
Meira
TOURETTE-samtökin á Íslandi halda fund fyrir foreldra barna sem eru með Tourette-heilkenni í kvöld kl. 20.30 á Tryggvagötu 26, 4. hæð. Þessir fundir eru haldnir mánaðarlega, fyrsta fimmtudag hvers mánaðar.
Meira
Grund -Skipulagt hefur verið svæði með sjö einbýlishúsum í landi Grundar í Skorradal. Framkvæmdin er á vegum Skorradalshrepps, sem hefur tekið land á leigu undir íbúðarhúsabyggðina.
Meira
FRÉTTAVEFUR Morgunblaðsins, mbl.is, hefur hafið sölu og birtingu á gagnvirkum auglýsingum á vefnum. Að sögn Hallgríms Jónassonar, sölufulltrúa netauglýsinga, eru auglýsingarnar á svokölluðu flash-formi.
Meira
HRAFNHILDUR Sigurðardóttir, íbúi í Álandi, sem hefur verið í forsvari fyrir íbúa í götunni og Akralandi sem hafa viljað loka fyrir almennan gegnumakstur um Áland í átt að sjúkrahúsi Landsspítala - háskólasjúkrahúss, kveðst telja óvíst að gatan verði...
Meira
MINNISPENINGUR sem Seðlabanki Íslands gefur út í tilefni þess að þúsund ár eru liðin frá fundi Leifs Eiríkssonar á Norður-Ameríku hefur selst í rúmlega 95 þúsund eintökum í Bandaríkjunum frá því sala hófst í lok júní.
Meira
NORÐMENN hyggjast úthluta allt að 50 leyfum til sjókvíaeldis á laxi á næsta ári og verða leyfin veitt gegn gjaldi. Slík leyfi hafa ekki verið veitt í 15 ár, en nú þegar stunda 800 leyfishafar laxeldi víðs vegar um Noreg.
Meira
Laxaleyfi hafa undanfarið gengið kaupum og sölum í Noregi. Á næsta ári verður fyrstu nýju leyfunum í fimmtán ár úthlutað og að þessu sinni verður krafist gjalds. Steingerður Ólafsdóttir kynnti sér málið.
Meira
KIRKJURÁÐ og Fjölís, samtök hagsmunaaðila um höfundarrétt, undirrituðu á þriðjudag samning um ljósritun og hliðstæða eftirgerð verka hjá sóknum og stofnunum Þjóðkirkjunnar.
Meira
GULLSMIÐIR í Félagi íslenskra gullsmiða hafa látið steypa bronsskjöld með merki félagsins sem notaður verður til að merkja verslanir og verkstæði félagsmanna.
Meira
Laxamýri- Árshátíð Hafralækjarskóla var haldin um helgina og að þessu sinni stóð mikið til þar sem nemendur 10. bekkjar sýndu Messías Mannsson eftir Andrew Lloyd Webber og Tim Rice í þýðingu Hannesar Arnar Blandons og Emilíu Baldursdóttur.
Meira
RÉTTARHÖLD yfir Joseph Estrada, forseta Filipsseyja, hefjast í dag og er um fátt meira rætt á eyjunum. Lögfræðingar deildu í gær um mál sem hefur vakið mikla athygli, hvort einhverjar af hjákonum Estrada verði kallaðar til að bera vitni í málinu.
Meira
JÓLAFUNDUR Styrks verður í Kiwanishúsinu við Engjateig í Reykjavík fimmtudaginn 7. desember kl. 20.30. Þorvaldur Halldórsson og Margrét Scheving flytja gospeltónlist og Þorvaldur les jólaguðspjallið.
Meira
EINS OG mörg undanfarin ár gefur Soroptimistaklúbbur Kópavogs út jólakort fyrir þessi jól. Jólakortin hafa verið ein aðal uppistaða í tekjuöflun klúbbsins.
Meira
FÉLAG eldri borgara í Reykjavík stendur fyrir jólavöku laugardaginn 9. desember nk. í félagsheimilinu Ásgarði í Glæsibæ og hefst hún kl. 20. Söngfélag félagsins sér um vökuna að þessu sinni. Á dagskránni er jólahugvekja sem sr.
Meira
"SEGÐU henni að lesa Guardian ," gall við í Dennis Skinner, þingmanni Verkamannaflokksins, þegar hirðmaður gekk í þingsalinn samkvæmt ævafornri venju og sagði Elísabetu II. Bretadrottningu að biðja þingmenn að ganga á sinn fund.
Meira
Einn af stuðningsmönnum Als Gore í Flórída hefur krafist þess að öll utankjörstaðaratkvæðin í Seminole-sýslu, 15.000 talsins, verði dæmd ógild á þeirri forsendu að repúblikanar hafi breytt rúmlega 2.000 umsóknum um utankjörstaðarseðla.
Meira
ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL í Tókýó hafnaði í gær bótakröfu 46 filippseyskra kvenna, sem japanski herinn hélt föngnum sem kynlífsþrælum í seinni heimsstyrjöld. Konurnar höfðu krafið japanska ríkið um samtals 920 milljónir jena, um 720 milljónir króna, í bætur.
Meira
Mynd af höfundi vantaði VEGNA tæknilegra mistaka vantaði mynd af Auðuni Braga Sveinssyni með grein hans í blaðinu í gær. Morgunblaðið biður hlutaðeigandi velvirðingar á mistökunum.
Meira
EKIÐ var utan í bifreiðina NM-88 3. desember sl. á tímabilinu 22.30 til 8, um er að ræða hvíta Toyota Corolla, þar sem hún stóð á bifreiðastæði við Sundlaugaveg 18. Tjónvaldur fór af vettvangi án þess að tilkynna óhappið.
Meira
VEFUR Manneldisfélags Íslands verður opnaður í Norræna húsinu fimmtudaginn 7. desember nk. kl. 17. Að því loknu mun Hallgerður Gísladóttir flytja erindi er nefnist "Gamlir matarsiðir á jólum og jólaföstu". Léttar veitingar í boði félagsins.
Meira
MARÍULÍKNESKI var afhjúpað í kirkjugarðinum á Munkaþverá síðastliðið sunnudagskvöld, en kirkjan var í árdaga helguð Maríu Guðsmóður. Líkneskið sem er höggvin í marmara er eftir Sólveigu Baldursdóttur myndhöggvara á Akureyri.
Meira
MENGUN frá byggð ógnar lífríki Leirvogs og Leirvogsár að sögn Guðmundar Magnússonar, formanns Veiðifélags Leirvogsár. Hann segir að frárennslismál séu í ólestri og óttast að Leirvogsá hljóti sömu örlög og Elliðaárnar ef ekkert verði aðhafst.
Meira
HÆSTIRÉTTUR hefur dæmt manni 30 þúsund krónur í miskabætur vegna handtöku. Honum var haldið í tæpan sólarhring, grunaður um kynferðisbrot gegn þroskaheftri konu, og Hæstiréttur sagði hann sviptan frelsi lengur en efni stóðu til.
Meira
LYFJA býður frá og með fimmtudeginum 7. desember uppá frekari þjónustu við mælingar og ráðgjöf um heilsu. Nú verður hægt að fá mælingar á blóðfitu og blóðsykri í Lyfju Lágmúla, Laugavegi, Hamraborg og Setbergi.
Meira
TALIÐ er mögulegt að með bólusetningu megi draga úr nýgengi leghálskrabbameins en rannsóknir og þróun bóluefnis eru nú í gangi víða erlendis og er áhugi á að taka þátt í þróun þess hér á landi.
Meira
NORÐURÁL mun á næstu dögum gangast fyrir tveimur kynningarfundum vegna áforma fyrirtækisins um stækkun álversins á Grundartanga upp í allt að 300 þúsund tonn á ári. Hönnun hf.
Meira
Anna María Pjetursdóttir fæddist 11. maí 1961 á Akranesi. Hún lauk Bed-prófi frá Kennaraháskóla Íslands 1987, postgraduate diploma í náms- og starfsráðgjöf lauk hún frá Háskóla Íslands 1996 og MSc. í vinnusálfræði 1999. Auk kennslustarfa hefur Anna María starfað hjá Flugleiðum, sem námsráðgjafi við HÍ og Menntaskólanum við Sund. Frá 1999 hefur hún starfað sem starfsráðgjafi hjá PricewaterhouseCoopers. Anna María er í sambúð með dr. Arnari Bjarnasyni og eiga þau þrjár dætur.
Meira
Ólafsvík -Tómas Sigurðsson ehf. í Ólafsvík hefur keypt nýlegan sorptökubíl frá Þýskalandi. Bíllinn er af gerðinni MAN og er sérhannaður í þetta hlutverk.
Meira
STÓLPI, félag ungs Samfylkingarfólks á Norðurlandi eystra, hefur opnað vefsíðuna Stólpi.com. Vefnum er ætlað að vera lífæð ungliðahreyfingar Samfylkingarinnar í hinu nýja norðausturkjördæmi.
Meira
IÐGJÖLD tryggingafélaganna vegna brunatryggingar fasteigna hækkuðu vegna nýtrygginga um síðustu mánaðamót og hækka vegna endurnýjunar 1. janúar nk. Langstærstur hluti hækkananna er vegna hækkunar á opinberum gjöldum, að sögn tryggingafélaganna.
Meira
Mývatnssveit- Fólksbíll á austurleið lenti útaf þjóðvegi og fram af kanti í hálku þar sem heitir Óhappstjörn í landi Kálfastrandar. Fjögur ungmenni voru í bílnum og sluppu ómeidd, bíll skemmdist lítið.
Meira
SAMGÖNGURÁÐHERRA, Sturla Böðvarsson, telur ekki tímabært að taka ákvarðanir um að flýta tvöföldun Reykjanesbrautarinnar á meðan mat á umhverfisáhrifum fer fram hjá Vegagerðinni.
Meira
Vaðbrekku, Norður-Héraði- Fjórir Pólverjar eru við störf á refabúinu í Teigaseli á Jökuldal. Einn þeirra vinnur þar allt árið en hinir þrír eru þar tímabundið við skinnaverkun sem nú stendur yfir.
Meira
SIV Friðleifsdóttir umhverfisráðherra lagði á það áherslu í fyrirspurnartíma á Alþingi í gær að farið hefði verið að hinni svokölluðu varúðarreglu í nýgengnum úrskurði sínum um mat á umhverfisáhrifum kísilgúrvinnslu úr Mývatni.
Meira
STJÓRNARFLOKKARNIR gera ráð fyrir að selt verði a.m.k. 20% hlutafjár í Landssíma Íslands hf. á næsta ári, samkvæmt upplýsingum Geirs H. Haarde fjármálaráðherra.
Meira
SENDINEFND ráðamanna og annarra aðila úr brasilískum sjávarútvegi er nú stödd hér á landi í boði sjávarútvegsráðherra til að kynna sér fiskveiðistjórnunarkerfi Íslendinga, útgerð, fiskvinnslu og umhverfi sjávarútvegsins. Í sendinefndinni eru m.a.
Meira
SKATTBYRÐI núlifandi og framtíðarkynslóða Íslendinga léttist stöðugt á árunum 1994 til 1998, samkvæmt svonefndum kynslóðareikningum sem Hagfræðistofnun Háskóla Íslands hefur gert.
Meira
SYSTKININ Garðar Thór og Nanna María Cortes koma í fyrsta sinn fram sem einsöngvarar undir stjórn föður síns, Garðars Cortes, á tónleikum Kórs Íslensku óperunnar í Langholtskirkju á laugardag og sunnudag kl. 16.
Meira
FORELDRAFÉLAG misþroska barna hefur sent frá sér tilkynningu þar sem fólk er beðið um að varast fólk sem er að safna styrktarlínum í væntanlegt jólablað félagsins til styrktar misþroska börnum.
Meira
ÞÖKULAGNING telst ekki meðal hefðbundinna verkefna á aðventu, en strákarnir hjá Túnþökusölu Kristins voru engu að síður í óða önn að leggja þökur á Eyrarlandsholti á Akureyri í gærdag.
Meira
IMF, Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn, samþykkti í gær að veita Tyrklandsstjórn stórt lán, rúmlega 650 milljarða íslenskra króna. Verður það notað til að binda enda á óróann á fjármálamarkaðnum í landinu.
Meira
LÆKNASTÖÐVAR í Reykjavík hafa ákveðið að stofna félag til að kanna hagkvæmni þess að læknastöðvarnar sameinist um nýja miðstöð fyrir sérhæfða heilbrigðisþjónustu.
Meira
TVEIR geimfarar úr áhöfn geimferjunnar Endeavour luku í fyrrinótt við að tengja sólarrafhlöður sem þeir höfðu komið fyrir á Alþjóðlegu geimstöðinni á sunnudag.
Meira
ÞRÍR Úkraínumenn fóru af landi brott í gær en þeim hafði verið synjað um hæli hér á landi þar sem Útlendingaeftirlitið taldi þá ekki uppfylla skilyrði Genfar-sáttmálans frá 1951 um réttarstöðu pólitískra flóttamanna.
Meira
TILRAUNAVERKEFNINU Atvinna með stuðningi verður að öllum líkindum haldið áfram í a.m.k. eitt ár til viðbótar að sögn Páls Péturssonar félagsmálaráðherra. Þá verður fleirum gefinn kostur á að taka þátt í verkefninu.
Meira
FJÓRIR þingmenn stjórnarflokkanna hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um eyðingu villts minks hér á landi og um rannsóknir á minkastofninum.
Meira
SPRENGJUSÉRFRÆÐINGAR Landhelgisgæslunnar fengu á mánudag tilkynningu frá manni í Mosfellsbæ vegna sprengju sem hann geymdi í bílskúr sínum. Í ljós kom að um var að ræða 60 mm sprengju fyrir sprengjuvörpu. Sprengjan var virk og hafði aldrei verið skotið.
Meira
YFIRMENN hersins í Chile hafa krafist þess að vera hafðir með í ráðum um örlög Augustos Pinochets, fyrrverandi einræðisherra, en áfrýjunarréttur í Santiago hefur frestað fyrirskipun um, að hann verði hnepptur í stofufangelsi vegna ásakana um...
Meira
Á morgunverðarfundi Verslunarráðs Íslands og Reykjavíkur menningarborgar í gær var efnt til umræðna um samstarf menningar og atvinnustarfsemi. Fríða Björk Ingvarsdóttir sat fundinn þar sem meðal annars kom fram að ásýnd og arfur þjóðfélags hvers tíma mótast mjög af farsælu sambýli þessara tveggja afla.
Meira
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag en kl. 13.30 verður utandagskrárumræða um ráðstafanir í húsnæðismálum. Málshefjandi er Ögmundur Jónasson en félagsmálaráðherra, Páll Pétursson, verður til andsvara.
Meira
HORFUR í efnahagsmálum þjóðarinnar eru dekkri á næsta ári, 2001, samkvæmt endurskoðaðri þjóðhagsspá, en gert var ráð fyrir í þeirri, sem lögð var fram er Alþingi kom saman í októberbyrjun.
Meira
ÁGÚST Einarsson varaþingmaður fjallar um Evrópumálin á vefsíðum sínum og segir að ákveðin vakning hafi orðið í þeim að undanförnu, þar sem mun fleiri hafi nú áhuga á þeim en áður.
Meira
Íslenskar þjóðsögur og ævintýri hafa alltaf heillað Gígju Reynisdóttur listamann sem búsett hefur verið í Hollandi síðustu 5 árin. Hún sagði Unnari Jónassyni frá verkunum sínum og lífinu í Hollandi.
Meira
Alkemistinn eftir Paulo Quelho. Þýðandinn Thor Vilhjálmsson les. 4 snældur. 6 klst. 184 bls. Leiðbeinandi verð: 3.680 krónur. Áður en þú sofnar eftir Linn Ullmann . Þýðandi Solveig B. Grétarsdóttir . Vala Þórsdóttir leikkona les. 6 snældur. 9 klst.
Meira
Hörpuútgáfan er fjörutíu ára um þessar mundir, en hún er í eigu hjónanna Braga Þórðarsonar og Elínar Þorvaldsdóttur, sem alla tíð hafa unnið saman að útgáfunni og hefur lánast það vel. Þorvarður Hjálmarsson spjallaði við Braga um árin fjörutíu og ást hins sanna bókamanns á góðum bókum.
Meira
ÁLFOSS FÖT BEZT: Vísnakvöld fimmtudagskvöld. Ólína Gunnlaugsdóttir syngur eigin lög og texta af fyrsta geisladiski sínum Með henni leika Björgvin Gíslason, gítar og Gunnlaugur Hjörtur Gunnlaugsson, bassi. Aðgangseyrir 500 kr.
Meira
Geisladiskur Megasar, Svanasöngur á leiði. Öll lög og ljóð eru eftir Megas utan Þungs móðuróðs sem Megas orti við lag W.A. Mozarts. Megas söng og Jón Ólafsson lék á flygil. Eggert Þorleifsson verkstýrði ásamt Jóni Ólafssyni sem sá um tæknistjórn. Megas útsetti í félagi við þá Eggert og Jón. Hljóðritað í sal FÍH í ágústmánuði árið 2000. Eyrað gefur út.
Meira
ÚT er komin hjá Skálholtsútgáfunni barnabókin Einn dagur - þúsund ár eftir Elínu Elísabetu Jóhannsdóttur. Undirtitill bókarinnar er Sagan af Snorra og Eddu. Höfundurinn segir söguna vera samtengingu milli Íslandssögunnar og nútímans.
Meira
FILMUNDUR gerir sér vel grein fyrir því hversu mikilvægt er að heiðra þá og virða sem vel hafa gert á sviði kvikmyndanna, svo ekki sé talað um ef umræddur hefur einnig lagt ríkulega af mörkum í þágu uppbyggilegrar og fjölbreyttrar kvikmyndamenningar.
Meira
Sólóplata Bjarna Arasonar Trú von og kærleikur. Öll lög og textar eftir Jóhann Helgason nema þrjú ljóð eru eftir þá Matthías Jochumsson, Sig. Kristófer Rétursson og Vilhjálm Vilhjálmsson. Útsetningar Þórir Úlfarsson og Jóhann Helgason. Hljóðritun og hljóðblöndun Þórir Úlfarsson. Fram koma Bjarni Arason, Þórir Úlfarsson, Jóhann Hjörleifsson, Jóhann Ásmundsson, Margrét Eir og Regína Ósk. Lengd rúmar 70 mín. Framleitt af Jóhanni Helgasyni til styrktar Geðhjálp.
Meira
Hljóðbókaklúbburinn stefnir að því að gefa út allar Íslendingasögurnar í vönduðum upplestri. Innan skamms eru væntanlegar fjórar sögur og eru þær gefnar út með styrk frá Seðlabanka Íslands. Menningarsjóður hefur styrkt fyrri útgáfur.
Meira
ÞEIR SEM lagt hafa leið sína til Lundúna hafa vafalítið tekið eftir mannmergðinni við Oxford-stræti. Gatan, sem er einhver helsta verslunargata borgarinnar, er nú orðin svo troðin að hugmyndir eru uppi um sérstakar "hraðgöngubraut- ir".
Meira
ANNAÐ líf eftir Auði Jónsdóttur segir frá Guðmundi Jónssyni, fimmtíu og fjögurra ára gömlum verkamanni sem er alinn upp á Seyðisfirði og nýfluttur til Reykjavíkur.
Meira
BRESKT útibú netvöruverslunarinnar risastóru Amazon fékk á dögunum gagnrýnendur frá ýmsum tónlistartímaritum til að velja fyrir sig 100 bestu plötur ársins. Blöðin starfa á hinum ýmsu sviðum tónlistarinnar, mest þó í dægurlagageiranum, og komu m.a.
Meira
Í KVÖLD ætla Geir Ólafsson og Furstarnir að koma landanum sannkallaða jólasveiflu á Kaffi Reykjavík. "Iceblue" og félagar hans munu vitanlega taka alla helstu sveiflustandardana og sem oft áður hafa þeir kallað til góðan gest.
Meira
JÓLATÓNLEIKAR fjögurra kóra, alls um 160 manns, verða haldnir í Grafarvogskirkju á morgun, föstudag, kl. 20, í Ytri-Njarðvíkurkirkju á laugardag kl. 14 og í Grindavíkurkirkju á laugardag kl. 17.
Meira
Á AÐVENTUNNI eru ávallt haldnir fjölmargir og fjölbreyttir tónleikar í Tónlistarskóla Hafnarfjarðar - Hásölum. Næstkomandi laugardag heldur Kammersveit skólans tónleika kl. 16. Flutt verða verk eftir J.S.
Meira
KAMMERKÓR Austurlands flytur Jólaóratóriu Bachs í hátíðarsal Alþýðuskólans á Eiðum nk. laugardag, 9. desember, og í kirkjunni á Eskifirði á sunnudag, 10. desember, kl. 14 báða dagana.
Meira
HÁSKÓLABÍÓ KL. 19.30 Sinfóníuhljómsveit Íslands Frumflutningur á verki Hjálmars H. Ragnarssonar. Einleikari Evelyn Glennie. Verkið er eitt af þeim fjölmörgu nýju íslensku tónverkum sem sérstaklega hafa verið pöntuð í tilefni menningarborgarársins.
Meira
ÖNUGLYNDI og óvild virðist ríkja milli fleiri tónlistarstjarna en Liams Gallagher og Robbies Williams. Robbie og Liam sýndu þó á dögunum að þeir höfðu þroska til að sættast og eru nú mestu mátar.
Meira
SIGURÐUR Hallmarsson opnar málverkasýningu sína í Safnahúsinu á Húsavík á morgun, föstudag, kl. 17. Sýningin stendur til 17. desember. Opið sýningardagana kl....
Meira
HJÖRDÍS Frímann sýnir nokkur ný málverk í reyklausa kaffihúsinu Nönnukoti, sem í vetur er opið um helgar kl. 14-19, en lokað virka daga. Myndirnar eru málaðar með akrýl og olíu og eru allar unnar á þessu...
Meira
Þegar í barnaskóla fór ég að fást við blaðaútgáfu. Ég hafði skrifað greinar í sameiginlegt skólablað nemenda í Laugarnesskólanum og afréð fljótlega upp úr því að hefja sjálfstæðan rekstur í greininni með aðstoð nokkurra bekkjarfélaga í unglingadeildinni.
Meira
STJÓRNANDI á tónleikunum í kvöld er pólski hljómsveitarstjórinn Jerzy Maksymiuk. Þetta er í fimmta sinn sem hann kemur hingað til lands til að stjórna Sinfóníuhljómsveitinni, svo hann er íslenskum tónleikagestum ekki með öllu ókunnur.
Meira
NÝJASTA skáldsaga Einars Más Guðmundssonar, Draumar á jörðu, er sjálfstætt framhald síðustu skáldsögu hans, Fótspora á himnum, sem kom út fyrir þremur árum.
Meira
Hljóðbókaklúbburinn sendir frá sér eftirtaldar hljóðbækur nú fyrir jólin: Byltingarbörn eftir Björn Th. Björnsson . Höfundur les. Hljóðbókin kemur samtímis út og prentuð útgáfa Máls og menningar. 4 snældur. 5 klst. Leiðbeinandi verð: 3.990 krónur.
Meira
ÚT er komin geislaplatan Ég leitaði blárra blóma með úrvali af söngvum eftir Gylfa Þ. Gíslason , sem sjálfur hefur valið 23 lög á plötuna. Sex lög voru sérstaklega hljóðrituð fyrir þessa útgáfu.
Meira
NÝLEGA var birt á vefsíðu MARKmiðlunar ehf. bókin Náðu settu marki sem er fræðsluefni um markmiðasetningu og tímastjórnun. Þetta er hagnýt bók byggð á árangursfræði, með tilvitnunum og dæmisögum auk verkefna sem lesandanum er ætlað að fylla út.
Meira
KRISTBERGUR Ó. Pétursson myndlistarmaður verður með sýningu og opið hús 8., 9. og 10. desember í vinnustofu sinni í Listiðjuverinu, Vesturgötu 9-13 á jarðhæð, gengið inn götumegin. Opið kl. 11-19 alla...
Meira
Í kvöld verður poppað í Óperunni. Hljómsveitin Sóldögg heldur útgáfutónleika sína þar og í tilefni þess tók Birgir Örn Steinarsson Bergsvein Arilíusson og Jón Ómar Erlingsson tali.
Meira
Á tónleikum Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld verður frumflutt nýtt verk eftir Hjálmar H. Ragnarsson, auk þess sem leikin verða verk eftir jafnólík tónskáld og Nebojsa Jovan Zivkovic, Frank Zappa og Antonio Vivaldi. Margrét Sveinbjörnsdóttir fékk Hjálmar til að segja sér frá nýja verkinu, sem hlotið hefur titilinn Í svarthvítu.
Meira
HIN VIÐKUNNANLEGA og brosmilda leikkona Julia Roberts var nýverið fyrsta leikkonan til að komast á lista yfir 50 valdamestu konur skemmtiiðnaðarins.
Meira
BOÐAÐ er til jólafundar í Kaffileikhúsinu í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21. Á fundinum verða kynntar allar íslenskar sakamálasögur, sem gefnar eru út fyrir þessi jól, og lesnir kaflar úr þeim.
Meira
SÝNINGIN á teikningum Katrínar Briem í sýningarsal kjallara Skálholtsdómkirkju, sem unnar eru við sálma og ljóð eftir séra Valdimar Briem, verður framlengd til 1. febrúar, sem er fæðingardagur...
Meira
FJÖLNIR Björn Hlynsson opnar sýningu í Galleríi Nema hvað, Skólavörðustíg 22c, annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 20. Sýningin verður opin frá laugardegi til þriðjudags kl. 14-18. Síðasti sýningardagur er 12....
Meira
ÞÓREY Friðbjörnsdóttir fléttar saman þremur þráðum í tíma og rúmi í nýrri skáldsögu sinni, Spegilsónötu, þar sem aðalpersónurnar heita Guðrún og Kjartan - og Bolli og Hrefna koma einnig við sögu.
Meira
ÚT ER komin geislaplatan Söngdansar Jóns Múla Árnasonar með hljómsveitinni Delerað . Í fréttatilkynningu segir: "Hljómsveitin Delerað var stofnuð af Óskari Guðjónssyni saxófónleikara vorið 1998.
Meira
ÞAÐ HEYRIR til undantekninga að íslensk heimildarmynd komi út á myndbandi. Síðasti valsinn er hinsvegar engin venjuleg heimildarmynd, enda tók nærri tvö ár að framleiða þáttaröðina og naut hún mjög mikilla vinsælda í sjónvarpi.
Meira
Ég byrja reisu mín - Íslensk kirkjutónlist í þúsund ár: Gunnar Reynir Sveinsson: Missa Piccola. Bára Grímsdóttir: Eg vil lofa eina þá. Elín Gunnlaugsdóttir: Á Guð skal heita. Ingibjörg Bergþórsdóttir: Sýn mér sólar faðir (úts. Jakob Hallgrímsson).
Meira
ÚTHLUTAÐ hefur verið til þrjátíu aðila úr Menningar- og styrktarsjóði Búnaðarbanka Íslands hf. Að þessu sinni var heildarstyrkupphæðin 8.750.000 kr. Stofnframlag Búnaðarbankans til sjóðsins nam 7,5 milljónum króna. Á aðalfundi hinn 11.
Meira
MEGAS (1972) Einfalt og vel framsett þjóðlagapopp, leikið af norskum listamönnum. Frábærir textar og ögrandi söngstíll gera plötuna einstaka. Annað eins hafði ekki áður heyrst hér á landi.
Meira
Í dag er fimmtudagur 7. desember, 342. dagur ársins 2000. Ambrósíusmessa. Orð dagsins: Sá sem vill elska lífið og sjá góða daga, haldi tungu sinni frá vondu og vörum sínum frá að mæla svik.
Meira
60 ÁRA afmæli. Hinn 10. desember nk. verður sextugur Ragnar Olsen, Hraunási 5, Hellissandi. Eiginkona hans er Kristín Jónsdóttir. Þau taka á móti ættingjum og vinum í Félagsheimilinu Röst, Hellissandi, laugardaginn 9. desember frá kl....
Meira
75 ÁRA afmæli . Í dag, fimmtudaginn 7. desember, verður 75 ára Guðlaug G. Þórarinsdóttir, Skógarhlíð 10. Í tilefni dagsins biður hún vini og ættingja að gleðjast með sér í Fóstbræðraheimilinu, Langholtsvegi 109-111, kl....
Meira
Það hlýtur að vera hægt að koma með tilboð til kennara sem gerir það að verkum, segir Sigríður Jóhannesdóttir, að þeir geti lifað með sæmd af sínu fastakaupi.
Meira
Lánið lék við skólastjórann, segir Valur Óskarsson, því sama daginn löbbuðu bóndinn og trésmiðurinn inn á skrifstofu hans og réðu sig í umræddar lausar stöður.
Meira
NÚ VIRÐIST fátt benda til þess að verkfall kennara í framhaldsskólum leysist fyrir jól. Í góðæri því sem gengið hefur yfir íslenskt þjóðlíf undanfarin misseri hefur þjóðin horft upp á miklar kauphækkanir.
Meira
Hef ég lagt fram tillögu til þingsályktunar þess efnis, segir Páll Magnússon, að öll börn undir sjálfræðisaldri fái endurgreiddan hluta kostnaðar sjónglerja og linsa.
Meira
Hvað mun veröldin vilja? Hún veltist um svo fast, að hennar hjólið snýst. Skepnan tekr að skilja, að skapleg setning brast, og gamlan farveg flýr.
Meira
NÚ virðist augljóst að verkfall framhaldsskólakennara muni setja íslenska skólakerfið í uppnám, svo ekki sé sterkara að orði kveðið. Og það lítur út fyrir að það hafi ómæld áhrif á lífsferil fjölda ungs fólks.
Meira
Er það framtíðarsýnin að sjá fátækrahverfi myndast, spyr Elín Erna Steinarsdóttir, eða er fátæktin í lagi ef hún er falin inn á milli þeirra sem betri efni hafa?
Meira
Er það rétt, spyrja Anna Bjarnadóttir og Andrea Laufey Jónsdóttir, að fólk sem talar ekki íslensku sjái um kennslu og umönnun barna á máltökualdri?
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
. ÞAÐ ERU um tuttugu ár síðan undirrituð hóf söfnun í "bankabók", að vísu ekki í eiginlegum skilningi þess orðs, heldur óeiginlegum. Ég settist í öldungadeild Menntaskólans í Hamrahlíð og fór að safna í sarpinn fróðleik og einingum.
Meira
HEYRST hefur að í gangi sé skoðanakönnun bréflega hjá brottfluttum Austfirðingum um ágæti álvers á Reyðarfirði og virkjanir á Austurlandi. Mér finnst að það mætti fara fram skoðanakönnun, þá bréflega meðal brottfluttra til dæmis frá Fjarðabyggð.
Meira
VÍKVERJA þótti fróðlegt að lesa viðtal í Morgunblaðinu við þríburana sem áttu 85 ára afmæli í síðustu viku. Systkinin urðu fyrir þeirri ógæfu að missa móður sína viku eftir að þau fæddust og var þeim í framhaldi af því komið fyrir á bæjum í nágrenninu.
Meira
ÞEIR SEM hafa prófað að aka að vetrarlagi um hálendi Íslands vita að fátt er það sem tekur því fram og gildir þá einu hvort veður eru vond ellegar góð. Það gefur aðeins mismunandi lífsreynslu.
Meira
Benedikt Oddsson fæddist í Keflavík 8. maí 1970. Hann lést af slysförum 30. nóvember síðastliðinn. Hann lætur eftir sig eina dóttur, Sesselju Ernu Benediktsdóttur, f. 11. júní 1996, barnsmóðir hans er Ingibjörg Ómarsdóttir, f.
MeiraKaupa minningabók
Borghildur Þorleifsdóttir fæddist í Efri-Miðbæ í Norðfirði 5. maí 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi 7. október síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hveragerðiskirkju 14. október.
MeiraKaupa minningabók
Brynleifur Konráð Jóhannesson fæddist í Reykjavík 17. maí 1978. Hann lést á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi 14. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 22. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Fjóla Pedersen fæddist 4. febrúar 1916. Hún lést á heilsuheimili í Porsgrum í Noregi 2. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Níels Pedersen og kona hans, Ágústa Finnbogadóttir, búsett í Reykjavík.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Ágúst Helgason fæddist á Hamri í Vestmannaeyjum 22. janúar 1923. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 23. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Landakirkju í Vestmannaeyjum 2. desember.
MeiraKaupa minningabók
Ingibjörg Guttormsson fæddist í Klakksvík í Færeyjum 8. október 1903. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað fimmtudaginn 30. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Anna Elísabet Biskopstöð, húsmóðir, f. 10. nóvember 1865, d.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Guðmundsdóttir fæddist 23. nóvember 1913. Hún lést 2. febrúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Skinnastaðarkirkju í Öxarfirði 11. febrúar. Jón Ólason fæddist 7. desember 1910. Hann lést 12. ágúst 1994 og fór útför hans fram frá Skinnastaðarkirkju í Öxarfirði 20. ágúst 1994.
MeiraKaupa minningabók
Sigurjón Fanndal Torfason fæddist í Hvítadal í Saurbæ í Dalasýslu 7. febrúar 1926. Hann lést á Landspítalanum við Hringbraut 22. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Staðarholtskirkju í Saurbæ 2. desember.
MeiraKaupa minningabók
Árni Gunnarsson hóf störf í söludeild Opinna kerfa 1. nóv sl. Sérsvið Árna verður í sölu á lausnum til fjármála- og tryggingageirans. Árni útskrifaðist sem rafeindaverkfærðingur frá AUC 1988 og hóf störf hjá IBM á Íslandi í kjölfarið.
Meira
Miðheimar er nýstofnað fyrirtæki á sviði hugbúnaðarveitu og kerfisþjónustu í eigu Símans. Miðheimar sérhæfa sig í að veita fyrirtækjum hýsingar- og tölvurekstrarþjónustu hvers konar og leiguaðgang að hugbúnaði.
Meira
11-11-búðirnar Gildir til 20. desember nú kr. áður kr. mælie. SS birkireykt hangilæri, úrb. 1.402 1.869 1.402 kg SS hamborgarhryggur 974 1.298 974 kg Jólaostakaka m/trönuberjum 858 979 1.
Meira
ALLT að 145% verðmunur reyndist á ferskum bláberjum þegar skrifstofa Neytendasamtakanna á Akureyri gekkst fyrir verðkönnun á ferskum ávöxtum í matvöruverslunum sl. þriðjudag. Þá munaði allt að 90,9% á verði á appelsínum.
Meira
ÖLL börn á aldrinum 3-8 ára eru þessa dagana að fá bréf í pósti frá "afa" á Stöð 2. Bréfið er stílað á börnin og forráðamenn. Í því er veggspjald þ.s.
Meira
Nýlega var sala á hlaupahjólunum Scooter MW 1050 stöðvuð í Danmörku þ.e. sýnt þótti að hætta væri á að börn gætu klemmt sig þegar þau væru að setja hjólin saman.
Meira
Nýlega hóf Landssíminn að bjóða viðskiptamönnum sínum upp á nýja þjónustu þar sem hægt er að fylla á GSM-Frelsi með VISA- eða Eurocard-kreditkorti á heimasíðu Landssímans; www.siminn.is/gsm/frelsi/.
Meira
Sérmerkingar á umhverfisvænum mat verða æ sjaldgæfari sjón í dönskum verslunum og svo virðist sem markaður fyrir umhverfisvænar vörur sé mettur - í bili. Svindli með merkingar á mat svo og háu verði er einkum kennt um.
Meira
Bridsfélag Dalvíkur og Ólafsfjarðar Mánudaginn 27. nóv. lauk þriggja kvölda hraðsveitakeppni hjá Bridgefélagi Dalvíkur og Ólafsfjarðar. Þormóður rammi-Sæberg hf. styrkti mótið með því að gefa verðlaunin.
Meira
Bridsfélag Hveragerðis Vetrarstarf Bridsfélags Hveragerðis hefur verið með hefðbundnum hætti þennan vetur. Hinn 31. október lauk þriggja kvölda VÍS tvímenningi. Úrslit urðu þessi: Pétur og Anton 557 Kjartan K. og Valtýr 542 Jón Guðm. og Örn Friðg.
Meira
Bridsfélag Kópavogs ÞRIGGJA kvölda jólatvímenningur félagsins hófst fimmtudaginn 30.11. Bestu skor kvöldsins fengu : N/S Ragnar Jónsson - Georg Sverrisson 204 Sigurjón Tryggvason - Halldór Tryggvas. 185 Sigurður Sigurjónss. - Ragnar Björnss.
Meira
"Áhættudreifing" er orð sem flestir Íslendingar skilja nú til dags eftir að fjárhættuspil með hlutabréf og aðra pappíra varð vinsælasta þjóðaríþróttin.
Meira
Gullsmárabrids Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á 11 borðum mánudaginn 4. desember sl. Miðlungur var 220. Efst voru: NS Auðunn Bergsveins. - Valdim. Lárus. 261 Kristinn Guðmunds. - Guðm. Pálss. 258 Einar Markús.
Meira
Garn: Funny-pelsgarn Upplýsingar um hvar garnið fæst er í síma 565-4610 Hönnun: Ingjerd Thorkildsen Stærð: Medium Alpahúfa: Funn y-pelsgarn Ryðrautt 3525: 2 dokkur Trefill: Funny-pelsgarn Ryðrautt 3525: 2 dokkur Prjónar: Í húfu þarf sokkaprjóna nr.
Meira
Hvítur á leik. STAÐAN kom upp á heimsmeistaramóti FIDE sem nú stendur yfir í Nýju-Delhí á Indlandi. Nú þegar hafa stórstjörnur eins og Vassily Ivansjúk og Nigel Short fallið úr leik. Í stöðunni hafði armenski stórmeistarinn Smbat Lputian (2.
Meira
LIVERPOOL bauð um helgina um 540 milljónir króna í Eið Smára Guðjohnsen en tilboðinu var hafnað samkvæmt því sem fram kemur á heimasíðu sem tengist félaginu.
Meira
ÍSLANDS- og bikarmeistarar Breiðabliks í knattspyrnu kvenna hafa ákveðið að taka þátt í Evrópukeppni félagsliða sem haldin verður í fyrsta sinn í sumar og haust.
Meira
KÓPAVOGSLIÐIN Breiðablik og HK sitja enn á botni 1. deildar karla í handknattleik en liðin töpuðu bæði í gærkvöldi, HK með þremur mörkum, 23:20, fyrir ÍR-ingum og Blikar voru teknir í bakaríið af meisturum Hauka sem unnu með átján marka mun, 39:22.
Meira
FYRSTI leikur tíundu umferðar úrvalsdeildar karla í körfu hófst í gærkvöldi. Þá tók Valur/Fjölnir á móti Njarðvíkingum og tapaði 84:70 eftir að hafa verið yfir við lok fyrstu þriggja leikhlutanna. Í þeim síðasta voru heimamenn gjörsamlega heillum horfnir og endaði sá leikhluti 6:24. Njarðvíkingar eru sem stendur í 3. sæti með 14 stig eins og Tindastóll, sem er í öðru sæti, og eiga leik til góða en Valsmenn eru áfram í næstneðsta sæti með tvö stig.
Meira
Ég er ánægður með að hafa fengið hérna tvö stig, og það er mjög mikilvægt fyrir okkur. Hins vegar þá er ég ekki sérlega ánægður með leik okkar í kvöld. Við lentum í óþarflega miklu basli og þar er margt sem þarf að laga," sagði Sigbjörn Þ.
Meira
IEPER , lið Helga Jónasar Guðfinnssonar körfuknattleiksmanns, lagði SIG Basket frá Frakklandi 73:65 í fyrri leik liðanna í Korac- bikarkeppninni í gærköldi. Helgi Jónas lék í tíu mínútur, gerði 4 stig og tók eitt frákast.
Meira
Íslenski landsliðshópurinn sem leikur á Indlandi er skipaður eftirtöldum leikmönnum, landsleikir: Markverðir: Gunnleifur Gunnleifsson, Keflavík 1 Fjalar Þorgeirsson, Fram 0 Aðrir leikmenn: Tryggvi Guðmundsson, Tromsö 20 Pétur Marteinsson, Stabæk 18 Einar...
Meira
Knattspyrnuhöllin í Reykjanesbæ hefur reynst mikil lyftistöng fyrir íþróttalíf bæjarins og að sögn Guðmundar Sighvatssonar umsjónarmanns hallarinnar er íþrótta- og tómstundaráð ásamt markaðs- og atvinnumálaráði Reykjanesbæjar þokkalega sátt við nýtinguna...
Meira
MANCHESTER United er komið í þægilega stöðu í A-riðli meistaradeildar Evrópu í knattspyrnu eftir sigur á Sturm Graz, 2:0, í Austurríki í gærkvöld.
Meira
PATREKUR Jóhannesson kom mikið við sögu þegar Essen og Flensburg skildu jöfn, 26:26, í miklum slag í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í gærkvöld.
Meira
STJÓRNIR Ungmennafélags Íslands og Íþróttasambands Íslands munu hittast innan skamms til að ræða efni skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Deloitte og Touche gerði fyrir vinnuhóp á vegum framkvæmdastjórnar ÍSÍ.
Meira
ZORAN Stosic, knattspyrnumaður úr Stjörnunni, er genginn til liðs við Valsmenn. Zoran er þrítugur miðjumaður en hann hefur leikið hér á landi í níu ár og er íslenskur ríkisborgari.
Meira
ATLI Eðvaldsson, landsliðsþjálfari í knattspyrnu, hefur valið þá 18 leikmenn sem leika fyrir Íslands hönd á alþjóðlegu móti, Super soccer millennium cup, sem fram fer á Indlandi dagana 10.-25. janúar.
Meira
ÞÓRÐUR Guðjónsson, landsliðsmaður í knattspyrnu sem leikur með Las Palmas á Kanaríeyjum, er kominn á ferðina á nýjan leik en hann hefur verið frá vegna meiðsla síðustu fimm vikurnar.
Meira
STOKE City hóf í gærkvöld vörn sína á bikar ensku neðrideildarliðanna með mjög öruggum sigri á Scarborough, 3:1. Peter Thorne skoraði tvö markanna og lagði eitt upp fyrir Andy Cooke en Stefán Þór Þórðarson var maðurinn á bakvið síðara mark Thornes.
Meira
Nánast öll díoxínmengun á norðurhveli jarðar er komin frá iðnríkjunum. Eiturefnið lendir að lokum í sjó og sest í fituvefi fiska og berst þaðan í mannskepnuna. Hjörtur Gíslason kynnti sér stöðu þessa máls í ljósi þess að ESB hyggst nú setja mörk um hámarksinnihald þessara efna í fiskimjöli og lýsi.
Meira
ÞYRPING og Eimskip hafa skrifað undir samstarfssamning um þróun og uppbyggingu á lóðum Eimskips við Skúlagötu. Eimskip og Þyrping munu eiga helmingshlut hvort í fyrirtækinu "101 Skuggahverfi hf.
Meira
FRESTUR fyrir forgangsréttarhafa til að skrá sig fyrir hlut í útboði MP BIO hf. rennur út í dag, en MP BIO hf. er fjárfestingarfélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum í líftækni-, erfðatækni- og lyfjafyrirtækjum.
Meira
GJALDEYRISFORÐI Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í nóvember og nam 34,8 milljörðum króna í lok mánaðarins, eða jafnvirði 399 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok.
Meira
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst saman um 0,3 milljarða króna í nóvember og nam 34,8 milljörðum króna í lok mánaðarins, eða jafnvirði 399 milljóna Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok.
Meira
ÚT ER komin bókin Hagfræði í hnotskurn ( Economics in One Lesson ) eftir Henry Hazlitt í þýðingu Haralds Johannessen, hagfræðings, sem einnig ritar formála.
Meira
HEILDARTEKJUR Odda hf. á Patreksfirði námu 614 milljónum króna á síðasta starfsári sem lauk í september og var hagnaður fyrir vexti og afskriftir um 131 milljón króna á móti 144 milljónum króna árið á undan.
Meira
Gísli H. Sigurðsson fæddist í Hrísey hinn 16. desember 1944. Hann er menntaður útvarpsvirkjameistari. Gísli starfaði við fjölmiðla í 25 ár, fyrst sem tæknimaður og tæknistjóri hjá Sjónvarpinu og Stöð 2 og síðar sem rekstrarstjóri Stöðvar 2.
Meira
Eftir tuttugu ár á forstjórastóli bandaríska stórfyrirtækisins General Electric mun John Francis Welch Jr., iðulega kallaður Jack, láta af störfum þegar Jeffrey Immelt tekur við í lok næsta árs. Welch er þekktur og virtur leiðtogi og undir hans stjórn hefur GE vaxið í stærsta fyrirtæki heims að markaðsvirði.
Meira
Heildartekjur Odda hf. á Patreksfirði námu 614 milljónum á síðasta starfsári sem lauk í september og var hagnaður fyrir vexti og afskriftir um 131 milljón á móti 144 milljónum árið á undan.
Meira
KJÖTLIST, sem rekur sérverslun með kjöt, Steiksmiðjuna í Hafnarfirði, hefur tekið við rekstri kjötborðanna í matvöruverslunum Hagkaups á höfðuborgarsvæðinu.
Meira
Kr. Kr. Kr. Ein. kl. 9.15 Gengi Kaup Sala Dollari 86,78000 86,54000 87,02000 Sterlpund. 124,75000 124,42000 125,08000 Kan. dollari 56,34000 56,16000 56,52000 Dönsk kr. 10,30000 10,27100 10,32900 Norsk kr. 9,48900 9,46200 9,51600 Sænsk kr.
Meira
Starfsemi íslenskra fjármálafyrirtækja erlendis hefur vaxið hröðum skrefum. Arnór Gísli Ólafsson ræddi við Bjarna Ármannsson og Erlend Magnússon hjá Íslandsbanka-FBA og kynnti sér stöðu efnahagsmála í Lettlandi.
Meira
Örn Viðar Skúlason hóf störf hjá SÍF í júní sl. sem framkvæmdastjóri markaðssviðs móðurfélags SÍF og staðgengill forstjóra. Örn er hagverkfræðingur frá Tækniháskólanum í Berlín.
Meira
Magnús Magnússon áður framkvæmdastjóri VSÓ Ráðgjafar Akureyri ehf. hefur flutt sig um set innan ráðgjafahóps samstarfsfélagana og hafið störf sem rekstrarráðgjafi hjá VSÓ Deloitte & Touche - Ráðgjöf ehf.
Meira
REYNT verður að leysa framtíðarþörf Vallarvina ehf. í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eins og frekast er kostur, að sögn Höskuldar Ásgeirssonar, forstjóra flugstöðvarinnar. Samkeppnisráð hefur úrskurðað að með því að hafna ósk Vallarvina ehf.
Meira
IBM kynnti fyrir skemmstu nýjar gerðir af stór- og miðtölvum sínum og um leið ný nöfn og útlit. Nýherji, umboðsaðili IBM, hélt meðal annars kynningu hér á landi á nýjungum í vélbúnaði og um leið kynningu á nýjungum í DB/2 gagnagrunni IBM.
Meira
Efnahags- og viðskiptanefnd Alþingis hefur nú til meðferðar frumvarp til breytinga á lögum um verðbréfaviðskipti. Í fyrri grein sinni sinni um frumvarpið fjallar Jón Sigurðsson um fyrirhugaðar breytingar á lagaákvæðum um almennt útboð verðbréfa.
Meira
NÝVERIÐ sameinuðust Malland og fyrrum starfsmenn Gólflagna um eignarhald á gólfefnafyrirtækinu Malland ehf. Samhliða var starfstöð fyrirtækisins flutt frá Djúpavogi í Garðabæ.
Meira
Samið hefur verið um að Skeljungur hf. annist innflutning á öllu asfalti sem flutt verður til landsins vegna malbikunarframkvæmda næstu tvö árin. Að samningnum við Skeljung hf. standa Malbikunarstöðin Höfði hf.
Meira
BÓKAKLÚBBUR atvinnulífsins hefur endurútgefið bókin Sigur í samkeppni eftir Boga Þór Siguroddsson, forstjóra Húsasmiðjunnar, en bókin kom fyrst út árið 1993. Nýja útgáfan er bæði aukin og endurskoðuð.
Meira
Mörg íslensku verðbréfafyrirtækjanna hafa erlenda hlutabréfasjóði í vörslu sinni. Þessir sjóðir hafa sýnt slæma ávöxtun síðustu mánuði en þegar til lengri tíma er litið hafa þeir sýnt ágæta ávöxtun. Haraldur Johannessen fjallar hér um þessa sjóði og sumt af því sem hafa ber í huga við fjárfestingar í þeim.
Meira
MINNI hækkanir og minni umsvif á fasteignamarkaði ættu að leiða til minni útgáfu húsbréfa á næstu mánuðum, að því er fram kemur í markaðsyfirliti FBA.
Meira
HÉR á landi eru fyrirtæki smá á mælikvarða stórtölvuframleiðenda og teljandi á fingrum annarrar handar þau fyrirtæki sem reka það sem kalla má stórtölvur.
Meira
Miklar sviptingar eru á markaði fyrir tölvur í stærri fyrirtæki og risarnir IBM, HP og Sun glíma hart. Árni Matthíasson spáir í helstu strauma á stór- og miðtölvumarkaði, en hann segir að skilin á milli verði sífellt óljósari.
Meira
DANSKA fjarskiptafyrirtækið Tele Danmark er fyrirtæki mánaðarins hjá Viðskiptastofu SPH. Fyrirtækið er langstærsta fyrirtækið í Danmörku á sínu sviði en er jafnframt þátttakandi á erlendum mörkuðum.
Meira
EJS er eitt af stærstu upplýsingatæknifyrirtækjum landsins. Fyrirtækið hefur þróað og selt hugbúnað til verslanakeðja erlendis, og er með í undirbúningi að stýra upplýsingakerfi um 100 lyfjaverslana í Ástralíu frá Íslandi í gegnum Netið. Olgeir Kristjónsson, forstjóri EJS, sagði Grétari Júníusi Guðmundssyni frá fyrirtækinu og því sem að er stefnt í starfseminni.
Meira
ÚRVALSVÍSITALAN hækkaði um 1,09% í gær og var 1.284,8 stig við lok viðskipta á Verðbréfaþingi Íslands, en þau námu alls 1.219,6 milljónum, þar af með hlutabréf fyrir 236,6 milljónir.
Meira
Það er engin tilviljun að fyrirtækjum tekst misvel upp við að byggja upp vefsvæði sem skapa þeim arðsemi, skrifar Sigurður Ragnarsson. Ekki má gleyma því að vefurinn snýst ekki um tækni.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.