MÁLFLUTNINGUR fór fram í gær fyrir hæstarétti Flórídaríkis um þá kröfu lögmanna Als Gores að þúsundir vafaatkvæða yrðu endurtaldar. Ekki var víst í gærkvöld hvenær rétturinn myndi kveða upp úrskurð sinn, en hans var beðið í ofvæni.
Meira
Í NICE í Suður-Frakklandi hófst í gær fundur leiðtoga Evrópusambandsins (ESB) sem vonir eru bundnar við að marki tímamót í samrunaþróun álfunnar.
Meira
RÚSSAR og Bandaríkjamenn lögðu í gær fram í sameiningu kröfu um að öryggisráð Sameinuðu þjóðanna herti refsiaðgerðir gegn Afganistan, vegna stuðnings stjórnar Talebana við hryðjuverkamenn.
Meira
EFTIRFARANDI athugasemd hefur borist Morgunblaðinu vegna fréttar, sem birtist á þriðjudag: "Í frétt um kjötmjöl í blaðinu [á þriðjudag] er sagt að rekstri kjötmjölsverksmiðju AB-Mjöls ehf. í Borgarnesi hafi verið hætt.
Meira
Hrunamannahreppi -Árleg aðventuhátíð í Hrunaprestakalli var haldin að kvöldi fyrsta sunnudags í aðventu, 3. desember, í Félagsheimilinu á Flúðum.
Meira
Neskaupstað -Aðventutónleikar kórs Fjarðabyggðar og barnakóra í Fjarðabyggð voru haldnir í öllum hverfum sveitarfélagsins fyrstu helgina í aðventu. Á laugardag var sungið í Neskaupstað og á sunnudag var sungið á Eskifirði og Reyðarfirði.
Meira
SÍÐASTLIÐIÐ sumar komu 48 skemmtiferðaskip til Reykjavíkur og með þeim 25.576 farþegar, samkvæmt upplýsingum útlendingaeftirlits lögreglunnar í Reykjavík. Flestir farþeganna voru frá Þýzkalandi eða um það bil 10.000 og þar næst komu Bandaríkjamenn 5.
Meira
JÓLAANNIR verða í gamla bænum í Laufási næstkomandi laugardag, 9. desember frá kl. 13.30 til 15.30. Þar verður unnin ull í band, baldýrað, laufabrauð skorið, hangiket soðið og margt fleira.
Meira
BÆJARRÁÐ Akureyrar samþykkti á fundi sínum í gær að taka ekki gjald af ellilífeyrisþegum, 67 ára og eldri, fyrir aðgang að sundlaugar- og skíðamannvirkjum bæjarins.
Meira
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra er hrifinn af þeim áformum Norðmanna að leggja til ákveðin landssvæði sem verði án laxeldis í sjó, til að vernda villta laxastofna. Frumvarp þessa efnis liggur fyrir norska þinginu.
Meira
"MÉR finnst alveg ófært að þeir fulltrúar sem við höfum kosið okkur, hvort sem er í borgarstjórn eða Alþingi, haldi ekki áfram að sinna ákvarðanatöku af þessu tagi og mér finnst ákvörðun um atkvæðagreiðslu óskiljanleg og við hljótum að reikna með...
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson, utanríkisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, sagði á borgarafundi sem Framsóknarflokkurinn stóð fyrir á Grand Hóteli í gær, að afstaða Íslendinga til Evrópusambandsins væri stærsta pólitíska úrlausnarefnið sem þjóðin stæði...
Meira
HÆGRIÖFGAMAÐURINN Corneliu Vadim Tudor, leiðtogi Stórrúmenska flokksins, hefur síðustu daga haft í hótunum við blaðamenn í Rúmeníu og annar fulltrúi flokksins hótaði að senda þá í þrælabúðir.
Meira
BORGARRÁÐ hefur gert samkomulag við Ökukennarafélag Íslands, sem felur í sér að komið verði upp svæði fyrir akstursæfingar við Gufunesveg. Í samkomulaginu felst m.a. að borgin taki á sig kostnað við að gera lóðina byggingarhæfa.
Meira
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkisráðherra sagði á borgarafundi sem Framsóknarflokkurinn í Reykjavík stóð fyrir í gær, að rök hnigju að því að breyta launakerfi kennara, og ljóst væri að hækka þyrfti byrjunarlaun þeirra.
Meira
ÁRNI Þór Sigurðsson, borgarfulltrúi Reykjavíkurlistans og formaður hafnarstjórnar, er undrandi á því að sjálfstæðismenn eigni sér hugmyndina að endurskipulagningu slippasvæðisins, en í Morgunblaðinu á miðvikudaginn var rætt við Guðlaug Þór Þórðarson,...
Meira
MIKIÐ ber í milli í kjaradeilu framhaldsskólakennara og ríkisins og hefur ekki verið boðað til sáttafundar í deilunni frá því á miðvikudag. Gunnar Björnsson, formaður samninganefndar ríkisins, segir útlitið afskaplega dökkt.
Meira
EIGENDASKIPTI hafa orðið á veitingastaðnum Kaffi Reykjavík. Friðrik Gíslason keypti staðinn um síðustu mánaðamót af Erni Garðarssyni, rekstraraðila veitinga- og skemmtistaða Hótel Borgar. Friðrik Gíslason annaðist eitt sinn rekstur á Hótel Vík.
Meira
EINSTAKT tíðarfar hefur verið í syðstu sveitum landsins í vetur. Ekki hefur snjóað í byggð í Mýrdal þótt komið sé fram á jólaföstu. Þá er lítið vatn í jökulánum.
Meira
FALLIÐ hefur verið frá kaupum AG-fjárfestingar ehf. á rækjuverksmiðju NASCO ehf. í Bolungarvík, þar sem ekki náðust samningar við stærstu kröfuhafa. AG-fjárfesting ehf.
Meira
HJÁLPRÆÐISHERINN á Akureyri mun sem endranær leitast við að aðstoða þá sem hjálpar eru þurfi fyrir þessi jól, en fram kemur í tilkynningu frá Hjálpræðishernum að þó umræður séu um aukna velmegun í landinu búi margir við bág kjör.
Meira
PÁLL Pétursson, félagsmálaráðherra, var harðlega gagnrýndur af stjórnarandstæðingum fyrir breytingar á félagslega íbúðakerfinu við utandagskrárumræðu á Alþingi í gær og því haldið fram að ófremdarástand ríkti víða í húsnæðismálum.
Meira
SJÖ ær og einn hrútur hafa verið flutt út í Viðey á Kollafirði. Til stendur að koma fósturvísum úr fínullarsauðfjárstofni austan af Héraði fyrir í ánum og rækta slíkan stofn.
Meira
AÐ SÖGN Kristins H. Gunnarssonar, stjórnarformanns Byggðastofnunar, mun stjórnin funda á næstu dögum um þær fjórtán umsóknir sem bárust um stöðu forstjóra stofnunarinnar.
Meira
TVÍVEGIS hefur verið brotist inn í Lundarskóla í vikunni, fyrst aðfaranótt miðvikudags og svo aftur aðfaranótt fimmtudags. Tölvum var stolið í báðum innbrotum.
Meira
FJÖLBREYTT dagskrá verður í Jólabænum Akureyri nú um helgina, en verslanir verða opnar til kl. 18 alla dagana. Dagskráin hefst kl. 14.30 í dag, föstudag og sunnudag, en kl. 14 á laugardag. Jólasveinn mætir á Amtsbókasafnið og les jólasögur kl.
Meira
TEXAS-ríki í Bandaríkjunum hefur nú tekið alls 39 afbrotamenn af lífi á árinu, síðastur í röðinni var Daniel Joe Hittle, fimmtugur karlmaður sem var sprautaður með eitri á miðvikudag.
Meira
DAVÍÐ Oddsson, forsætisráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, og Geir H. Haarde, fjármálaráðherra og varaformaður Sjálfstæðisflokksins, halda fund með sjálfstæðismönnum í sveitarstjórnum hins nýja suðurkjördæmis laugardaginn 9. desember kl.
Meira
FIMMTÁN Íslendingar eru að störfum í Kosovo við friðargæslu fyrir hin ýmsu alþjóðasamtök, en á næstu árum er gert ráð fyrir aukinni þátttöku Íslendinga á þessum vettvagni og skýrslu utanríkisráðherra um utanríkismál kemur fram að á næstu tveimur til...
Meira
HANDVERKSMARKAÐUR er haldinn í Garðatorgi, Garðabæ, hvern laugardag fram að jólum, og er markaðurinn opinn frá 10-18. Þar er handverksfólk með sína muni til sýnis og sölu. Þar ber að líta góðar og ódýrar jólagjafir t.d.
Meira
SÆKJENDUR í réttarhöldunum yfir Joseph Estrada, forseta Filippseyja, fóru hörðum orðum um forsetann á fyrsta degi réttarhaldanna. Þeir sökuðu hann um að fjármagna óhóflegt líferni sitt með mútugreiðslum og glæpsamlegri starfsemi.
Meira
PARKINSON-samtökin á Íslandi halda sinn árlega hátíðarfund laugardaginn 9. desember kl. 12 á hádegi í Kiwanishúsinu við Engjateig 11. Félagsmenn eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna þátttöku í síma samtakanna eða til Nínu, Jóns og...
Meira
Heilbrigðisráðherra slær á hugmyndir um einkarekstur í heilbrigðiskerfinu og spyr hver eigi að borga. Viðbrögðin valda aðstandendum fyrirhugaðs einkareksturs vonbrigðum og vilja þeir skýra sín sjónarmið betur á fundi með ráðherra.
Meira
Kamfýlóbaktersýking virðist hafa gripið um sig í nýafstaðinni keppnisferð landsliðs stúlkna, 18 ára og yngri, í knattspyrnu til Sevilla á Spáni. Stúlkurnar héldu af stað í ferðina þann 25.
Meira
Hrefna Halldórsdóttir fæddist í Reykjavík 25. september 1955. Hún ólst upp í Hafnarfirði og á Bjarnastöðum í Borgarfirði, lauk gagnfræðaprófi frá Héraðsskólanum í Reykholti en hefur á síðustu árum sótt mörg námskeið varðandi rekstur og stjórnun fyrirtækja hjá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands og stefnir að námslokum í markaðs- og útflutningsfræðum á næsta ári. Hún starfar að ýmsum sérverkefnum á sviði markaðsfræða. Hrefna á fimm börn.
Meira
TVEIR breskir vísindamenn segjast hafa fengið fyrir því sannanir, að ísinn á norðurskauti sé á hröðu undanhaldi. Nefna þeir sem dæmi Fram-sund milli Svalbarða og Grænlands og segja, að þar hafi íshellan þynnst næstum um helming á tveimur áratugum.
Meira
ÞÁTTTAKENDUR í Evrópuráðstefnunni svokölluðu, sem er samráðsvettvangur hinna fimmtán aðildarríkja Evrópusambandsins, þrettán ríkja sem sækjast eftir aðild að því, auk Sviss, lögðu í gær til að EFTA-ríkjunum Íslandi, Noregi og Liechtenstein yrði boðin...
Meira
TILLAGA til þingsályktunar um textun íslensks sjónvarpsefnis hefur verið lögð fram á Alþingi. Fyrsti flutningsmaður er Sigríður Jóhannesdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, en meðflutningsmenn eru fjórir aðrir þingmenn úr hinum þingflokkum Alþingis.
Meira
ÞÚSUNDIR kennara mótmæltu á götum Rómarborgar í gær til að leggja áherslu á launakröfur sínar. Alls lögðu um 90% ítalskra kennara niður vinnu í gær en ítalskir kennarar hafa staðið í samningaviðræðum við ríkið undanfarna mánuði.
Meira
ÞRJÁR bækur af jólamarkaðnum bjóðast nú í rafrænu formi á Netinu og mun þetta í fyrsta skipti sem íslenskum lesendum gefst kostur á bókum í formi sem þeir geta hlaðið í tölvuna sína og lesið þar eins og þeim hentar.
Meira
KRAKKABANKI Búnaðarbankans hefur sett upp jóladagatal á Netinu. Þeir sem vilja skoða það geta farið inn á slóðina www.krakkabanki.is. Dagatalið blasir við efst á síðunni. Í jóladagatali Krakkabankans opnast nýr gluggi á hverjum degi.
Meira
HIN árlega jólalest Kóka Kóla mun ferðast um höfuðborgarsvæðið laugardaginn 9. desember. Lagt verður á stað frá Vífilfelli kl. 16. Síðan verður ekið víða um borgina. Stoppað verður í Austurstræti við Lækjartorg í u.þ.b. 15 mín.
Meira
JÓLASÝNING Árbæjarsafns verður opin sunnudaginn 10. desember nk. frá kl. 13 til 17. Þá gefst gestum tækifæri til að fylgjast með undirbúningi jólanna eins og hann var í gamla daga, flest hús safnsins verða opin og mikið um að vera. Dagskráin hefst kl.
Meira
LANDGRÆÐSLUSJÓÐUR vill vekja athygli viðskiptavina á því að jólatréssalan er enn við lýði á sama stað og áður að Suðurhlíð 38 fyrir neðan Fossvogskirkjugarðinn. Almenn sala byrjar föstudaginn 8. desember. Opið verður frá kl. 8-22 virka daga og kl.
Meira
Ólafsvík -Á fyrsta sunnudagskvöldi á aðventu var haldin árleg hátíðarstund í Ólafsvíkurkirkju á vegum Kvenfélagsins. Samkomugestir sungu saman jólalög og hlýddu á ljúfa tóna nemenda úr Tónlistarskólanum og kirkjukórsins.
Meira
LAUFÁSPRESTAKALL: Guðsþjónusta verður í Svalbarðskirkju á sunnudag kl. 14. Undirbúum komu jólanna með kirkjugöngu. Kyrrðarstund verður í Grenivíkurkirkju á sunnudagskvöld kl. 21. Guðsþjónusta verður í Grenilundi kl. 16 á sunnudag.
Meira
KVEIKT verður á jólatré Kópavogsbúa laugardaginn 9. desember en tréð er gjöf vinabæjar Kópavogs í Svíþjóð, Norrköping. Athöfnin hefst kl. 14.40 með jólatónum Skólahljómsveitar Kópavogs.
Meira
LADDI verður staddur á Akranesi laugardaginn 9. desember frá kl. 12-18 þar sem hann mun bregða sér í ýmis hlutverk. Laddi verður í hlutverki Eiríks Fjalars frá kl. 12-12.50 og leikur fyrir sambýlin á Akranesi á Vesturgötu 102.
Meira
OPNUÐ hefur verið Laura Ashley-verslun í húsnæði Kaupfélags Eyfirðinga, Hafnarstræti 91 á Akureyri. Þar er boðið upp á fatnað, veggfóður, gluggatjaldaefni, lampa og ýmsa gjafavöru.
Meira
Íslenskt, ekki danskt Ranghermt var í frétt í blaðinu í fyrradag að danskir verktakar reistu viðbyggingu við Austurbæjarskóla. Rétt er að verkið er unnið af íslenska fyrirtækinu Højgaard og Schultz Íslandi ehf.
Meira
MAGNÚS Gunnarsson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, segir að fjárveiting til að setja upp umferðarljós á mótum Lækjargötu og Öldugötu liggi nú fyrir og hönnun standi yfir. Væntanlega verði framkvæmdum lokið snemma á næsta ári.
Meira
ÍSLENSKA sendiráðið í Frakklandi stóð fyrir málþingi um Heimskringlu Snorra Sturlusonar á laugardaginn og að sögn Sigríðar Ásdísar Snævarr, sendiherra Íslands í Frakklandi, var þátttakan framar vonum, en um 120 manns fylltu sendiherrabústaðinn í París.
Meira
ÞÚSUNDUM mótmælenda, sem létu að sér kveða við upphaf leiðtogafundar Evrópusambandsins í Nice í Suður-Frakklandi í gær, tókst ekki að setja dagskrá fundarins úr skorðum, en miðbær þessarar friðsamlegu borgar á Miðjarðarhafsströndinni var sem vígvöllur...
Meira
SR. SIGURÐUR Pálsson, sóknarprestur í Hallgrímskirkju og Stefán Jóhannsson MA í fjölskylduráðgjöf bjóða upp á námskeið um kvíða, spennu og sektarkennd tengd jólum sem haldið verður í Hallgrímskirkju föstudagskvöldið 15. desember kl. 19 til 22.
Meira
Stykkishólmi -Jólasveinarnir eru enn lifandi og verða mikið á ferðinni fyrir þessi jól sem hin fyrri. Því fengu börn í Stykkishólmi að kynnast á laugardaginn.
Meira
NÝIR rekstraraðilar hafa tekið á leigu veitingarekstur á Hótel Loftleiðum. Guðvarður Gíslason hafði þennan rekstur með höndum en við honum tóku Trausti Víglundsson og Jón Ögmundsson.
Meira
HÓPUR lækna og hjúkrunarfræðinga, sem hefur verið að undirbúa sameiginlega læknamiðstöð á höfuðborgarsvæðinu, hefur átt viðræður við borgarstjóra og bæjaryfirvöld í Kópavogi um mögulegar lóðir undir miðstöðina.
Meira
NEMENDUR í Menntasmiðju kvenna bjóða gestum og gangandi á opið hús á morgun, laugardaginn 9. desember, frá kl. 14 til 18. Á þeirri önn sem nú er að ljúka útskrifast 16 konur á aldrinum 18 til 66 ára.
Meira
ÓSLÓARTRÉÐ er nú komið á sinn stað á Austurvelli en auk þess sem tréð er stærsta jólatré Reykjavíkurborgar þykir flestum það vera ómissandi hluti af jólasvip miðbæjarins.
Meira
ÖRYGGIS- og varnarmál Evrópu eru í mikilli gerjun og því erfitt að spá fyrir um stöðu mála eftir fimm eða tíu ár, að sögn Halldórs Ásgrímssonar utanríkisráðherra en íslensk stjórnvöld munu reyna að tryggja eftir getu hagsmuni Íslands í þessu nýja ferli.
Meira
Samninganefnd framhaldsskólakennara segist hafa slakað frá fyrri kröfum sínum um 10% í tilboði til samninganefndar ríkisins sl. sunnudag en sakar ríkið um að sýna lítinn samningsvilja í gagntilboði sem lagt var fram 6. desember. Formaður félagsins segir tilboð ríkisins verra en þeir svartsýnustu hafi átt von á.
Meira
Í TILEFNI þess að Reykjavík er menningarborg Evrópu árið 2000 hefur Klúbbur matreiðslumeistara í samvinnu við Reykjavík - menningarborg Evrópu árið 2000 og VISA Ísland staðið fyrir vali á veitingahúsi hvers mánaðar út árið 2000.
Meira
TRÍÓIÐ "Rússneskir virtúósar" heldur tónleika í Dalvíkurkirkju á morgun, laugardaginn 9. desember, kl. 20. Tríóið er á tónleikaferð um Ísland þessa dagana og heimsækir m.a. grunn- og tónlistarskóla í Reykjavík og Akureyri.
Meira
RÚSSNESKUR kafbátur, sem nokkrir Austfirðingar veltu fyrir sér að kaupa á síðasta ári og nota í tengslum við ferðaþjónustu, kann að koma til Íslands eftir allt saman.
Meira
SKÓGRÆKTARFÉLAG Hafnarfjarðar verður nú um helgina með jólatréssölu í Höfða, húsi félagsins í Höfðaskógi við Kaldárselsveg. Er sölutíminn frá klukkan 10 til 16 báða dagana, laugardag og sunnudag.
Meira
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir borgarstjóri sagði á borgarstjórnarfundi í gær að fyrirhuguð atkvæðagreiðsla um framtíðarnýtingu Vatnsmýrar og staðsetningu Reykjavíkurflugvallar væri þáttur í að þróa lýðræði og gefa borgarbúum kost á að taka þátt í...
Meira
SIGURÐUR Hallmarsson heldur málverkasýningu í Safnahúsinu á Húsavík, en hún verður opnuð í dag, föstudaginn 8. desember, og stendur til 17. sama mánaðar. Sýningin verður opnuð kl. 17 í dag og er opin til kl. 21, en aðra sýningardaga er opið frá kl.
Meira
GEÐHJÁLP er búið að opna símalínu til styrktar félaginu. Hringt er í síma 970-2070 og hefur þá sá sem hringdi ánafnað Geðhjálp 500 krónum sem dragast er sjálfkrafa bætt við símreikning viðkomandi.
Meira
"UPPBOÐ á farsímarásum er [því] skynsamur valkostur og sanngjörn leið," skrifar Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, alþingismaður Sjálfstæðisflokksins, í grein í blaðinu í dag þegar hún lýkur samanburði á þeim leiðum sem helst eru ræddar við...
Meira
EINSTÖK veðurblíða hefur verið í Mýrdalnum að undanförnu og sólarlagið oft verið fallegt. Myndin var tekin úr Víkurkauptúni eitt kvöldið þegar sólin var að setjast á milli hinna formfögru...
Meira
SPARISJÓÐIRNIR nýttu sér ekki forkaupsrétt á 10,40% hlut Sparisjóðs vélstjóra í Kaupþingi en frestur til að nýta forkaupsréttinn rann út í gær. Í tilkynningu Verðbréfaþings Íslands frá 28.
Meira
Ólafsvík - Jólasveinarnir Stekkjarstaur, Giljagaur og Stúfur brugðu sér á bæi á laugardaginn var og komu til Ólafsvíkur þegar tekið var að rökkva.
Meira
STOÐ hf. stoðtækjasmíði hefur gefið iðjuþjálfunarbraut Háskólans á Akureyri hjólastól að gjöf. Þórarinn Sigurðsson deildarforseti heilbrigðisdeildar veitti gjöfinni viðtöku í kynningu sem Stoð hf.
Meira
UMHVERFISNEFND Eyjafjarðarsveitar afhenti nýlega verðlaun fyrir snyrtilegasta býlið í sveitarfélaginu. Að þessu sinni varð Stóri-Hamar I fyrir valinu. Ábúendur þar eru systkin, Bogi, Gunnhildur og Jónas Þórhallsbörn.
Meira
EÐLISFRÆÐINGURINN Sigfús Johnsen var fyrir skemmstu sæmdur dönsku riddaraorðunni, sem er ein æðsta heiðursorða Dana. Orðuna hlýtur Sigfús fyrir vísindastörf sín en undanfarna þrjá áratugi hefur hann stundað boranir á Grænlandsjökli.
Meira
HJÁLPARSTARF kirkjunnar og Reykjavíkurdeild Rauða kross Íslands munu eins og undanfarin ár leggja saman kraftana og veita þurfandi einstaklingum og fjölskyldum aðstoð fyrir jólin. Þörfin hefur verið brýn fyrir aðstoð undanfarin ár.
Meira
RÍKISSJÓÐUR verður rekinn með um það bil 33,9 milljarða króna tekjuafgangi á næsta ári miðað við þær breytingatillögur sem meirihluti fjárlaganefndar Alþingis hefur lagt fram á Alþingi fyrir þriðju og síðustu umræðu um frumvarp til fjárlaga 2001.
Meira
TÍU LISTAMÖNNUM hefur verið bætt í þann flokk manna sem hlýtur heiðurslaun listamanna, samkvæmt breytingartillögu sem fram kom í gær á Alþingi við frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2001 og er þetta veruleg fjölgun í hópnum.
Meira
NÝTT verslunarrými verður formlega tekið í notkun í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsi í dag, föstudag, kl. 13. Í tilefni af því mun Guðbjörg Kr.
Meira
Einkarekstur í heilbrigðiskerfinu var ræddur frá ýmsum hliðum á fundi hjúkrunarfræðinga á miðvikudagskvöld. Kom þar fram að hjúkrunarfræðingar ættu að hafa frumkvæði að því að kanna ný þjónustuform og nýta þekkingarauð stéttarinnar.
Meira
MICHEL Roussin, fyrrverandi ráðherra, sem á borgarstjóraárum Jacques Chiracs í París var náinn samstarfsmaður forsetans núverandi, var á miðvikudag látinn laus úr fangelsi gegn tryggingu, en hann var hnepptur í varðhald í síðustu viku í tengslum við...
Meira
HEILBRIGÐISFULLTRÚI Norðurlands vestra lét í gær loka öðru vatnsbólinu við Varmahlíð í Skagafirði eftir að nýjar sýnatökur leiddu í ljós mikla mengun saurkólígerla í því bóli, sem er skammt frá Víðimýrarkirkju.
Meira
EF MARKA má tölur þær sem fram komu í grein Ólafs Ólafssonar, fyrrverandi landlæknis og formanns Félags eldri borgara, hér í Morgunblaðinu í gær býr tæpur þriðjungur ellilífeyrisþega á Íslandi við afar kröpp kjör, að ekki sé meira sagt.
Meira
KÓRATÓNLEIKAR verða haldnir í listasafninu Hafnarborg í Hafnarfirði á morgun, laugardag, kl. 13-20. Skólaskrifstofa Hafnarfjarðar og Hafnarborg, menningar- og listastofnun Hafnarfjarðar, standa að þessum tónleikun sem nú eru haldnir í fjórða sinn.
Meira
Leikstjóri: Kunihiko Yuyama og Michael Haigney. Handrit: Takeshi Shudo. Íslenskt tal. (99 mín.) Japan/Bandaríkin, 1999. Sam myndbönd. Öllum leyfð.
Meira
JÁ, það er engin önnur en hin níu ára Jóhanna Guðrún sem á vinsælustu plötu síðustu viku. Platan fór beint inn á topp tíu þegar hún kom út og hefur verið að færa sig nær og nær toppsætinu síðan þá.
Meira
Höfundur texta: Guðbergur Bergsson. Höfundur tónlistar: Dr. Gunni. Leikstjóri: Rúnar Guðbrandsson. Leikarar: Harpa Arnardóttir, Kjartan Guðjónsson og leikhópur Rúnars Guðbrandssonar. Vídeó: Nemar úr Listaháskóla Íslands. Söngkona: Þórunn Guðmundsdóttir. Hljóðfæraleikarar: Dr. Gunni og Þorvaldur H. Gröndal. Iðnó, 6. desember
Meira
NOKKURS konar konudagur verður í Borgarbókasafni í Grófinni, Tryggvagötu 15, þar sem bækur um og eftir konur verða kynntar, á morgun, laugardag, kl. 14.30.
Meira
BURTFARARTÓNLEIKAR Rakelar Jensdóttur frá Tónlistarskóla Kópavogs verða haldnir í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, annað kvöld, laugardagskvöld, kl. 20.30.
Meira
SÖNGSVEITIN Fílharmónía heldur aðventutónleika sína í Langholtskirkju sunnudaginn 10. desember, þriðjudaginn 12. desember og miðvikudaginn 13. desember nk. og hefjast þeir kl 20.30 alla dagana.
Meira
MÁLVERKASÝNING Fjólu Jóns verður opnuð í Galleríi Hringlist, Hafnargötu 29 í Keflavík, á morgun, laugardag. Á sýningunni verða akrýlverk sem Fjóla hefur unnið að undanfarið ár.
Meira
Söngskemmtun Megasar og hljómsveitar í Borgarleikhúsinu 4. desember. Liður í Stjörnuhátíð menningarborgarinnar Reykjavík. Flytjendur voru Megas söngur og gítar, Jón Ólafsson hljómborð, harmónikka og slagverk, Haraldur Þorsteinsson bassi, Guðmundur Pétursson gítar, Stefán Már Magnússon gítar og mandólín, Birgir Baldursson trommur og slagverk, Guðlaugur Óttarsson gítar. Hljóð Ívar Ragnarsson.
Meira
LISTAMAÐUR jólamánaðarins í Te og kaffi, Laugavegi 27, er Ragnheiður Björnsdóttir. Ragnheiður sýnir glermyndir unnar með blandaðri tækni og eru þær allar unnar á árinu 2000. Þema myndanna er ávextir í skálum. Sýningin stendur til 31. desember.
Meira
HJÓNIN Sigríður Kjaran og Sigurjón Sigurðsson hafa afhent Stofnun Árna Magnússonar á Íslandi að gjöf þrjú handrit sem þau höfðu keypt úr dánarbúi Soffíu og Magnúsar Kjaran, foreldra Sigríðar.
Meira
UPPHAF heimsins og upphaf lífs á jörðu og upphaf hvers einasta lífs sem einhvern tímann lifir. Stór upphöf og smá, eftir því hvernig á þau er litið, fræg upphöf og önnur sem týnast.
Meira
Kristinn Sæmundsson hefur lengi vel haldið merki grasrótarinnar á lofti með litlu og þokkafullu plötubúðinni sinni Hljómalind. Arnar Eggert Thoroddsen ræddi við Kidda, eins og hann er jafnan kallaður, en ákveðið hefur verið að binda endi á þennan áratugar langa rekstur.
Meira
Hjálmar H. Ragnarsson: Í svarthvítu. Zivkovic: Marimbukonsert. Zappa: Envelopes; G-spot Tornado. Vivaldi: Blokkflautukonsert í C RV443 (umr. f. víbrafón). Evelyn Glennie, marimba & víbrafónn; Sinfóníuhljómsveit Íslands u. stj. Jerzys Maksymiuk. Fimmtudaginn 7. desember kl. 19:30.
Meira
ÞAÐ er alveg með ólíkindum hvað margir óska eftir Pottþéttum jólum. Fyrsta platan í þessari útgáfuröð hefur nú selst í yfir 22 þúsund eintökum sem telst til stórtíðinda. Nú er komið að þriðju plötunni í röðinni og er hún töluvert ólík hinum tveimur.
Meira
GULA pressan í Bretlandi talar nú ekki um annað en væntanlegt brúðkaup tilvonandi eftirlætistengdadótturinnar og leikstjórans Guys Ritchies. Þau hafa nefnilega gefið út þá tilkynningu að athöfnin muni fara fram 22. desember í skosku hálöndunum.
Meira
KVENNAKÓRINN Léttsveit Reykjavíkur heldur jólatónleika í Ými, húsi Karlakórs Reykjavíkur v/Skógarhlíð á morgun, laugardag, kl. 16 og þriðjudaginn 12. desember kl. 20.
Meira
MYNDLISTARMAÐUR mánaðarins í desember verður kynntur í Gallerí Reykjavík, Skólavörðustíg 16, á morgun, laugardag, kl. 14-18. Myndlistarmaður mánaðarins er Jónas Bragi Jónasson. Jónas Bragi er mörgum kunnur fyrir glermuni sína.
Meira
MYNDLISTARSÝNING Þóru Hreinsdóttur verður opnuð í Gallerí Smíðar og Skart, Skólavörðustíg 16A, á morgun laugardag, kl. 16. Þóra stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykjavík og Myndlista- og handíðaskóla Íslands.
Meira
DILLIBOSSINN og súperskvísan Britney Spears varð 19 ára á laugardaginn og hélt upp á daginn með meðlimum hljómsveitarinnar ´N'SYNC. Britney kom út á svið hjá ´N'SYNC á tónleikum þeirra í San Diego á laugardag, íklædd hárkollu og sólgleraugum.
Meira
ÚT er komin bókin Íslensk knattspyrna 2000 eftir Víði Sigurðsson . Þetta er tuttugasta bókin í þessum bókaflokki sem hóf göngu sína árið 1981 en eins og áður eru raktir allir innlendir viðburðir í knattspyrnunni á árinu sem senn lýkur.
Meira
ORRASTAÐAÆTTIN, sem er niðjatal Eysteins Jónssonar og Guðrúnar Erlendsdóttir er komin út og er útgefandi Gísli Pálsson , Hofi í Vatnsdal í Austur-Húnavatnssýslu.
Meira
Anna Pálína Árnadóttir og Aðalsteinn Ásberg Sigurðsson - Bullutröll "Hér er tónlist flutt af virðingu við börn, flytjendurnir setja sig í þeirra ævintýraheim án nokkurs rembings. Það er óhætt að mæla með þessum diski fyrir börn á öllum aldri ...
Meira
Rússnesk alþýðulög, þjóðlög og verk og verkþættir eftir sígilda höfunda útsett fyrir balalækutríó. Tríóið Rússneskir virtúósar (Dmítríj og Vera A. Tsarenko, balalæka og domra; Nikolaj A. Martynow, bassabalalæka. Þriðjudaginn 5. desember kl. 20.
Meira
ÞAÐ ER ekki eftir neinu að bíða og því flýgur söngfuglinn Selma beint inn á listann með aðra plötu sína, "Life won't wait", og lendir í þrettánda sæti. Á plötunni má m.a.
Meira
SÍÐASTA sýning á Kirsuberjagarðinum eftir Tsjekhof, sem sýndur hefur verið á stóra sviði Þjóðleikhússins síðan snemma í haust, verður í kvöld föstudagin 8....
Meira
SÍÐUSTU sýningar á leikriti Auðar Haralds, Góðar hægðir, verða í kvöld, föstudag, og 29. desember. Leikritið hefur verið sýnt í Tjarnarbíói og það er Draumasmiðjan sem setur það upp.
Meira
TÓNLISTARSKÓLI Kópavogs heldur þrenna tónleika í Salnum, Tónlistarhúsi Kópavogs, og eina tónleika í Kópavogskirkju á jólaföstunni, þar sem nemendur skólans koma fram. Tónleikarnir verða sem hér segir: Föstudagur 8. desember kl.
Meira
ÚT er komin ljóðabókin Ljóð frá liðinni öld eftir Jón H. Karlsson . Ljóðin eru samin á árunum 1965 til 2000 en meginþorri þeirra er frá menntaskólaárum höfundarins.
Meira
TÍUNDA hefti listatímaritsins Andblæs er komið út. Að þessu sinni eru kynntir 14 myndlistarmenn í Andblæ. Í heftinu er viðtal við ameríska rithöfundinn Edward Bunker og einnig eru frumbirt ljóð eftir íslensk skáld og ljóðaþýðingar frá ýmsum þjóðlöndum,...
Meira
Í TILEFNI af nýútkominni geislaplötu sem ber heitið: Í fjarlægð, halda Theodóra Þorsteinsdóttir sópransöngkona og Ingibjörg Þorsteinsdóttir píanóleikari útgáfutónleika í Borgarneskirkju föstudaginn 8. desember kl. 21.
Meira
EITT þekktasta útileikhús Ítala, Studio Festi, sýnir fyrir framan Þjóðleikhúsið á morgun, laugardag, kl. 17. Studio Festi er þekkt fyrir ævintýralegar og skrautlegar sýningar og hefur sýnt um víða veröld.
Meira
Strákarnir á Borginni, geisladiskur Bergþórs Pálssonar og Helga Björnssonar. Þeir syngja ýmis þekkt dægurlög við undirleik Kjartans Valdemarssonar á píanó, Valdimars Kolbeins Sigurjónssonar á kontrabassa og Matthíasar Helmstock á trommur. Framleitt af Einari Bárðarsyni. Addi 800 hljóðritaði og blandaði en Bjarni Bragi Kjartansson sá um lokahljóðvinnslu. Spor gefur út.
Meira
Lögregluhundurinn Zanjier hlaut viðhafnarútför í Bombay, Indlandi, í síðasta mánuði. Zanjier var 19 ára þegar hann lést af völdum krabbameins en hafði þá að baki langan og afkastamikinn feril í sprengjuleitarsveitum lögreglunnar.
Meira
SAMLEIKSTÓNLEIKAR Ásdísar Valdimarsdóttur víóluleikara og Steinunnar Birnu Ragnarsdóttur píanóleikara verða í Salnum á morgun, laugardag, kl. 18. Á efnisskránni eru verk eftir Schumann, Britten, Milhaud og Schubert.
Meira
Í dag er föstudagur 8. desember, 343. dagur ársins 2000. Maríumessa. Orð dagsins: Fagnið því, þótt þér nú um skamma stund hafið orðið að hryggjast í margs konar raunum.
Meira
50 ÁRA afmæli . Nk. mánudag 11. desember verður fimmtug Ingibjörg Bjarnadóttir (Stúlla), Hjallalundi 9f, Akureyri . Hún tekur á móti gestum frá kl. 20-23 á morgun, laugardaginn 9. des., í Félagsheimili Þórs, Hamri,...
Meira
80 ÁRA afmæli. Nk. mánudag 11. desember verður áttræð Lukka Ingibjörg Magnúsdóttir, Höfðavegi 5, Hornafirði. Hún ásamt fjölskyldu sinni tekur á móti ættingjum og vinum í Sindrabæ, laugardaginn 9. desember frá kl....
Meira
Á MORGUN, laugardag 9. desember, kl. 15 verður aðventustund í Kópavogskirkju. Þar mun sönghópurinn Rúdólf syngja aðventu- og jólasöngva og systurnar Þóra og María Marteinsdætur leika á hljóðfæri.
Meira
Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birtingar endurgjaldslaust. Greinunum er veitt viðtaka á ritstjórn blaðsins í Kringlunni 1, Reykjavík, og á skrifstofu blaðsins í Kaupvangsstræti 1, Akureyri.
Meira
STJÓRNARANDSTAÐAN, með Össur Skarphéðinsson og Margréti Frímannsdóttur í fararbroddi, hafa trekk í trekk ráðist með ruddalegum orðaflaumi, og algjörlega að ósekju að dómsmálaráðherra, frú Sólveigu Pétursdóttur.
Meira
KONA hafði samband við Velvakanda og vildi vekja athygli á einelti barna í skólum. Henni finnst að það ætti að kjósa eineltisnefnd í hverjum bekk á hverju hausti og láta börnin alfarið sjá um þessi mál sjálf.
Meira
Rauði þráðurinn í atvinnulífinu er verslun í víðasta skilningi þess orðs, segir Stefán S. Guðjónsson, enda er verslunin tækið sem gerir viðskipti möguleg.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
Ólafr kóngur Haraldsson, hann gefi oss sigr og tíma! svo að eg hafi djörfung til um aðferð hans að ríma. Ólafr kóngur Haraldsson, hann reið um þykkvan skóg; hann sá lítið spor í leir, slík eru minnin stór.
Meira
Uppboð á farsímarásum er hlutlaus leið við úthlutun takmarkaðra auðlinda, segir Þorgerður K. Gunnarsdóttir, þar sem reglurnar eru fyrirfram ákveðnar, öllum kunnar og augljósar.
Meira
VINNUFÉLAGI Víkverja var heldur þungur á brún fyrr í vikunni. Ástæðuna má rekja til breytinga sem gerðar hafa verið á högum þeirra psoriasis- og exemsjúklinga sem þurfa á ljósameðferð að halda.
Meira
Gissur Guðmundsson, vélstjóri í Reykjavík, fæddist 25. ágúst 1920 í Hrauni í Keldudal í Dýrafirði. Hann lést 29. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Guðmundur Guðmundsson, skútuskipstjóri, togarasjómaður og seglasaumari, f. 19.
MeiraKaupa minningabók
Gunnar Gíslason fæddist í Stafangri í Noregi 15. ágúst 1919. Hann lést á gjörgæsludeild Landsspítalans í Fossvogi fimmtudaginn 30. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Gísli Pétur Jóhannesson, f. 2. ágúst 1877, d. 5.
MeiraKaupa minningabók
Jón Gamalíelsson fæddist í Réttarholti í Blönduhlíð í Skagafirði 23. mars 1923. Hann lést á Grensásdeild Landspítalans 1. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru María Rögnvaldsdóttir, f. 14. maí 1885, d. 27. október 1968 og Gamalíel Sigurjónsson, f.
MeiraKaupa minningabók
Óskar Sæmundsson fæddist í Árnabotni í Helgafellssveit 22. janúar 1908. Hann lést á dvalarheimilinu Fellaskjóli í Grundarfirði mánudaginn 27. nóvember.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Kristjánsson fæddist á Reynivöllum í Kjós 9. júlí 1959. Hann lést fimmtudaginn 30. nóvember síðastliðinn. Hann var yngstur barna hjónanna séra Kristjáns Bjarnasonar, sóknarprests á Reynivöllum, f. 25. júní 1914, d. 20.
MeiraKaupa minningabók
Vilborg Jónsdóttir fæddist í Keflavík 28. ágúst 1955. Hún lést af slysförum 30. nóvember síðastliðinn. Foreldrar hennar eru Ingibjörg Björnsdóttir, f. 11.1. 1933, og Jón Stígsson, f. 24.9. 1927. Þau eru búsett í Keflavík.
MeiraKaupa minningabók
HAMPIÐJAN og eigendur Cosmos Trawl í Danmörku hafa gengið frá samkomulagi um kaup Hampiðjunnar á 60% hlutafjár í Cosmos Trawl, sem um áratuga skeið hefur staðið í fremstu röð veiðarfæraframleiðenda í heiminum.
Meira
UNDIRRITAÐUR hefur verið samningur um sölu á um 97,5% hlutafjár í AX hugbúnaðarhúsi hf. til danska hugbúnaðarfyrirtækisins Columbus IT Partner AS.
Meira
TILKYNNT var á Verðbréfaþingi Íslands að Benedikt Sveinsson, stjórnarformaður Sjóvár-Almennra trygginga hf., hefði í gær selt eina milljón króna að nafnverði hlutafjár í Sjóvá-Almennum á verðinu kr. 31,00. Eignarhlutur Benedikts eftir söluna er 22.300.
Meira
LÍNA.Net hf., Orkuveita Reykjavíkur og Íslandsbanki-FBA hf. hafa stofnað fyrirtækið NCI ehf. (Nordic Communication Infrastructure), en markmið þess er að taka þátt í stofnun fyrirtækja erlendis um uppbyggingu á fjarskipta- og gagnaflutningskerfum.
Meira
HLUTHAFAR í Marel hf. sóttu um að kaupa hlutafé fyrir alls um 2.670 milljónir króna að markaðsverði í hlutafjárútboði Marels hf. sem lauk síðastliðinn föstudag. Umsjón með útboðinu hafði Búnaðarbankinn Verðbréf. Boðið var út nýtt hlutafé að nafnverði 21.
Meira
BLAÐAÚTGÁFA heldur velli sem stærsta greinin í fjölmiðla- og skemmtanaiðnaðarheiminum, og í Evrópu sem er sá markaður sem hraðast vex, er áætlað að árlegt verðmæti hennar á ári verði andvirði 62 milljaðar dollara, (um 5456 milljarða króna) árið 2004,...
Meira
Á síðustu tveimur mánuðum hafa a.m.k fjórir dæmdir stóðhestar verið seldir úr landi. Í síðustu viku fór Dagur frá Kjarnholtum til Danmerkur og Sproti frá Hæli til Noregs. Auk þeirra voru í sömu ferð þrír ógeltir þriggja vetra folar.
Meira
Ný uppfærsla af Íslandsfeng er komin út, Íslandsfengur 3.0. Engar breytingar hafa verið gerðar á forritinu að þessu sinni, en öll gögn sem bæst hafa í Feng, gagnasafn Bændasamtaka Íslands í hrossarækt, á þessu ári eru með. Ásdís Haraldsdóttir prófaði hinn nýja Íslandsfeng.
Meira
Það er okkur ánægjuefni að svara opinberlega eftirfarandi erindi, um leið og við tjáum þakklæti okkar yfir því að hinn tryggi höfundur þess skuli teljast til vina The Sun: Kæri ritstjóri, Ég er átta ára gömul.
Meira
Nú þegar skór verða senn settir út í glugga í von um að óvænt birtist í þeim glaðningur að morgni, fara einatt fram umræður á heimilunum um jólasveininn og tilvist hans.
Meira
Reiðhöllin á Blönduósi og sambyggt hesthús hafa verið leigð þeim Birni Magnússyni á Hólabaki, Hirti Einarssyni í Hnjúkahlíð og Magnúsi Jósefssyni í Steinnesi.
Meira
Hvítur á leik. SAMHLIÐA heimsmeistarakeppni FIDE í opnum flokki er HM kvenna. Flestar af vöskustu skákkonum heims taka þar þátt en sú sterkasta, Judit Polgar, teflir í hvorugum flokknum.
Meira
Eiga fjölmiðlar að birta upplýsingar um heimasíður? Ragnhildur Sverrisdóttir segir suma veigra sér við því, en aðrir vísi á allar síður sem tengist umfjöllunarefninu.
Meira
Uppgjör vegna Landsmóts hestamanna sem haldið var í Víðidal í Reykjavík síðastliðið sumar liggur enn ekki fyrir. Að sögn Haralds Haraldssonar, formanns stjórnar LM2000, eru enn að berast reikningar og einnig eru enn að koma inn tekjur af auglýsingum.
Meira
ARON Kristjánsson átti stórleik í vörn og sókn og skoraði 7 mörk þegar lið hans, Skjern, sigraði Otterup, 33:22, í dönsku úrvalsdeildinni í handknattleik í fyrrakvöld. Daði Hafþórsson fékk lítið að spreyta sig með Skjern í leiknum og skoraði ekki mark.
Meira
ÞÝSKA knattspyrnugoðið Franz Beckenbauer segist ekki í neinum vafa um að nefna David Beckham, leikmann Manchester United, sem besta knattspyrnumann heims um þessar mundir og hann eigi skilið að verða útnefndur knattspyrnumaður ársins. Beckenbauer, sem er sá eini sem bæði hefur hampað heimsmeistaratitlinum sem þjálfari og leikmaður, segir þetta í breska blaðinu Daily Mail í gær.
Meira
"Við fórum fram á viðræður við UMFÍ eins og fulltrúar ungmennafélaganna óskuðu eftir og samþykktu á síðasta íþróttaþingi. Það hefði því verið eins og blaut tuska framan í þessa félaga okkar ef UMFÍ hefði hafnað ósk okkar um viðræður," sagði Ellert B. Schram, forseti ÍSÍ, aðspurður um viðbrögð hans við ákvörðun UMFÍ um að verða við beiðni ÍSÍ um viðræður um sameiningu þessara tveggja íþróttahreyfinga í eina.
Meira
ALÞJÓÐA knattspyrnusambandið, FIFA, hefur valið hollenska landsliðið besta landslið ársins 2000. Holland hafði betur gegn Hondúras en mikill uppgangur hefur verið hjá landsliði Hondúras á undanförnum misserum.
Meira
EVRÓPUDRAUMUR Rosenborgar, sem Árni Gautur Arason leikur með og Herthu Berlín, sem Eyjólfur Sverrisson leikur með, er úti. Árni Gautur og félagar töpuðu 3:1 á heimavelli fyrir Alaves frá Spáni en liðin gerðu 1:1 jafntefli í fyrri leiknum.
Meira
ÉG er stoltur af mínum mönnum," sagði Valur Ingimundarson þjálfari Tindastóls eftir 105:98 sigur á Haukum í framlengdum leik á Sauðárkróki í gærkvöldi. Mikil barátta einkenndi leikinn frá fyrstu mínútu og ljóst að gestirnir lögðu ofurkapp á að stöðva stórskyttur heimamanna. Sérstaklega var Kristinn Friðriksson hjá Tindastóli tekinn föstum tökum en hinsvegar réðu Tindastólsmenn sjálfir illa við Mike Bargen og Braga Magnússon, sem voru einir komnir á blað eftir fyrsta leikhluta.
Meira
ANTAWN Jamison, leikmaður Golden State Warriors, skoraði 51 stig í annað skiptið á fjórum dögum þegar lið hans skellti meisturum Los Angeles Lakers, 125:122, í framlengdum leik í NBA-deildinni í körfuknattleik í fyrrinótt.
Meira
ÞAÐ reiknuðu sjálfsagt flestir með jöfnum og spennandi leik í Röstinni þegar Grindvíkingar tóku á móti KR en önnur varð raunin. Gestirnir gerðu út um leikinn í fyrri hálfleik þegar þeir höfðu yfir 33:55 og sigruðu með miklum yfirburðum eða með106 stigum gegn 83 stigum heimamanna.
Meira
LUIS Figo , portúgalski leikmaðurinn sem leikur með Real Madrid og dýrasti leikmaður heims, var valinn knattspyrnumaður ársins af lesendum World Soccer tímaritsins.
Meira
ENSKU meistararnir Manchester er ríkasta félagslið heims samkvæmt lista sem birtist í enska tímaritinu Four four two og er byggður á ársreikningum 1998-1999. Velta og staða félaganna var metin af ráðgjafarfyrirtækinu Deloitte & Touche.
Meira
NORSKA liðið Sandefjord, sem Íslandsmeistarar Hauka mæta í Ásgarði á sunnudagskvöld í fyrri viðureign liðanna í fjórðu umferð EHF-keppninnar í handknattleik, hefur átt góðu gengi að fagna heima fyrir á þessari leiktíð.
Meira
HAMAR vann enn einn leikinn á heimavelli sínum í Hveragerði í gærkvöldi er liðið lagði Þór frá Akureyri, 103:92. Chris Dade átti stórleik með Hamri en hann skoraði 41 stig og átti góðan dag í vörninni þar sem hann barðist eins og ljón. Það var ekki fyrr en um miðjan síðasta leikhluta sem Hamar knúði fram sigurinn en munurinn var aðeins sex stig eftir þriðja leikhluta, 74:68.
Meira
FISKMARKAÐUR Suðurnesja undirritaði í gær fjórhliða samstarfssamning við alríkisstjórnina í Brasilíu, fylkisstjórnina í Rio-fylki og United Projects Developments um uppbyggingu fullkomins fiskmarkaðar og þróun fiskveiða í Rio-fylki.
Meira
SKIPSTJÓRAR á 21 togara hafa sent sjávarútvegsráðherra skeyti, þar sem þeir mótmæla tíðum skyndilokunum vegna smáfiskgengdar á togslóðinni fyrir Vestfjörðum, Norðurlandi og Austurlandi.
Meira
Aðventa hófst á sunnudaginn. Aðventa þýðir koma Drottins. Á aðventukransi eru fjögur kerti, sem hvert og eitt ber sitt nafn: Spádómskerti, Betlehemskerti, Hirðakerti og Englakerti.
Meira
Jeppi kom akandi eftir Pollgötu á Ísafirði nýlega þegar ísskápur kom fljúgandi á móti honum. Lenti ísskápurinn á jeppanum sem beyglaðist töluvert. Verið var að flytja ísskápinn úr viðgerð á pallbíl þegar vindhviða feykti honum af pallinum á...
Meira
Ráðherrar Evrópu-sambandsins ákváðu að heimila áfram notkun fiskimjöls í fóður fyrir svín, alifugla og fiska. Ekki hefur verið sannað að fiskimjöl sé hættulegt heilsu manna. Þingmenn fögnuðu niðurstöðu málsins í umræðum á Alþingi.
Meira
Hákon krónprins í Noregi opinberaði trúlofun sína og Mette Marit Tjessem Høiby . Hákon dró demantshring á fingur hennar. Hringurinn er ættargripur sem faðir hans og afi gáfu unnustum sínum.
Meira
NORSKI jólasveinninn, eða jólaálfurinn, á fátt sameiginlegt með starfsbróður sínum hinum ameríska Santa Claus eða St. Nicholas sem er þó einna frægastur sveina hér á jörð.
Meira
Ekki er öll vitleysan eins, sem betur fer. Nýjasta innleggið í skrautpúkkið er eðalsteinar, kristallar og gull fyrir brosljúfa. Helga Kristín Einarsdóttir fékk að skoða munnholið á nokkrum stúlkum með glænýtt tannskart.
Meira
Einn desemberdag á hverju ári býður Bergþóra Þorsteinsdóttir smáfólkinu í ættinni og lítilli nágrannastúlku sinni að baka piparkökur í agnarsmárri eldavél. Kristín Heiða Kristinsdóttir bættist í hópinn og komst í jólaskapið.
Meira
FALDAFEYKIR, árleg fatahönnunarkeppni grunnskólanna, var haldin í Laugardalshöll fyrsta sunnudag í aðventu. Keppnin fór fram í þriðja sinn og var þema hennar að þessu sinni alheimsfegurð, að sögn aðstandenda.
Meira
Landssamtökin Þroskahjálp veittu þremur aðilum viðurkenningu, Múrbrjót, á alþjóðadegi fatlaðra 3. desember. Múrbrjótur er veittur þeim sem ryðja fólki með fötlun nýjar brautir.
Meira
Pálmi Einarsson iðnhönnuður hlaut nýlega fyrstu verðlaun í samkeppni í Hollandi fyrir lokaverkefni sitt um ímynd og virkni stoðtækja. Sveinn Guðjónsson ræddi við Pálma um hugarfóstur hans, Róbert handlagna, og hugmyndina sem að baki býr.
Meira
Hæstiréttur Flórída hlýddi á rök lögfræðinga Gores og Bush í gær í deilunni um úrslit forseta-kosninganna. Lögfræðingar Gores reyna að tryggja að öll atkvæði í Flórída verði talin. Þeir segja að þetta verði líklega síðasta áfrýjun sín í...
Meira
Þótt allar þjóðir hlæi, hlæja þær ekki endilega að því sama. Kristínu Elfu Guðnadóttur finnst til dæmis ekkert fyndið við orðið "friðarumleitanir" þótt íbúar í Miðausturlöndum veltist um af hlátri ef ein- hver andar því út úr sér.
Meira
Fulltrúar Átaks, félags fólks með þroskahömlun, afhentu Pál i Péturssyni félagsmála-ráðherra undirskriftir á miðvikudaginn. Þar er skorað á stjórnvöld að halda áfram atvinnu með stuðningi.
Meira
ÞAÐ er harla fátítt að nýjum stórfyrirtækjum sé hleypt af stokkunum í kvikmyndaiðnaðinum. Eitt slíkt var þó sett á laggirnar í sumar og standa að því menn sem eru í miklum metum í Hollywood. Sæbjörn Valdimarsson kynnti sér nýjasta dvergrisann sem ber það byltingarkennda nafn Revolution Studios.
Meira
Bandaríski kvikmyndaframleiðandinn Jim Stark, sem búsettur er á Hofsósi, gerði kvikmyndina Á köldum klaka - Cold Fever með Friðriki Þór, skrifaði handritið með honum og framleiddi. Hann lýsir Friðriki með eftirfarandi hætti:
Meira
Svanhildur Konráðsdóttir man ekki eftir fyrstu bíóferð sinni. Það var á Tarsanmynd og hún gjörsamlega trompaðist, pabbi hennar leiddi hana hágrátandi út. En það var bara fyrsta vers...
Meira
Myndir Friðriks Þórs Friðrikssonar fjalla gjarnan um einstaklinga sem leita tilgangs í persónulegum athöfnum. Oftar en ekki öðlast þessar athafnir svo merkingu vegna þess að þær ganga þvert á þau gildi sem ráðandi eru í samfélaginu, skrifar Guðni Elísson m.a. í grein sinni.
Meira
Venezúelski leikstjórinn Fina Torres hefur getið sér gott orð fyrir fersk stílbrögð og umhugsunarverðar kvikmyndir með feminískri undiröldu. Hún vann Camera D'Or-verðlaunin fyrir frumraun leikstjóra í Cannes árið 1985, frönsku myndina Oraine.
Meira
Einar Kárason rithöfundur hefur verið í samstarfi við Friðrik Þór við ritun handritanna að Skyttunum, Djöflaeyjunni og nú Fálkum. Hann lýsir þeirri reynslu með eftirfarandi hætti:
Meira
Regnboginn frumsýnir í dag spennumyndina Hálendinginn 4 eða Highlander: Endgame . Hún er með Christoper Lambert í aðalhlutverki en hann leikur eins og áður Hálendinginn Connor MacLeod, sem á eilíft líf og í eilífri baráttu við bardagaglaða...
Meira
Í SUMAR hefjast tökur á Fálkum , næstu bíómynd Friðriks Þórs Friðrikssonar . Handritið skrifa þeir saman, Einar Kárason rithöfundur og leikstjórinn. Myndin mun kosta um 200 milljónir króna, fjármögnun er lokið og leikaraval í undirbúningi.
Meira
"Ég var svo heppinn að móðir mín var algjör bíófíkill. Faðir minn var bóndi að norðan og fór aðallega á biblíumyndir og stórmyndir en mamma var alltaf að draga okkur í fimm-bíó. Hún fór með okkur strákana á allar myndir, bannaðar og hvaðeina," segir Friðrik Þór Friðriksson í samtali við Guðna Elísson og Björn Þór Vilhjálmsson.
Meira
Einar Már Guðmundsson rithöfundur hefur unnið með Friðriki Þór að handritum m.a. Barna náttúrunnar, Bíódaga og Engla alheimsins. Hann segir um samstarfsmanninn:
Meira
Spænska leikkonan Penelopé Cruz er með rauðan pipar í vörunum, krabbahvítar tennur og brúnsteikta snigla í augunum í sjóðheitri mynd Finu Torres, Woman on Top eða Konan ofan á, sem sýnd er í Regnboganum. Pétur Blöndal talaði við vinsælustu leikkonu Spánverja og jaðarleikstjóra sem vakið hefur athygli á kvikmyndahátíðum víða um heim.
Meira
Á annan í jólum frumsýna Bíóhöllin, Kringlubíó, Bíóborgin og Nýja bíó í Keflavík ásamt Nýja bíóí á Akureyri nýjustu mynd M. Night Shyamalans , Unbreakable , með Bruce Willis í aðalhlutverki.
Meira
Bíóhöllin, Kringlubíói, Bíóborgin, Nýja bíó, Keflavík, og Nýja bíó, Akureyri, frumsýna í dag bandarísku spennumyndina Red Planet . Hún er með Val Kilmer í aðalhlutverki.
Meira
Flest bendir til þess að stórleikarinn Jim Carrey muni stela senunni í kvikmyndaflóðinu fyrir næstu jól, ef marka má nýlegar aðsóknartölur. Carrey skýtur að þessu sinni upp á stjörnuhimininn í hlutverki óvættinnar sem stal jólunum en myndin heitir The Grinch, fullu nafni Dr. Seuss' How the Grinch Stole Christmas, eða: Þegar Trölli stal jólunum, skrifar Ragna Garðarsdóttir.
Meira
"Skjóttu hann - horfðu í augun á honum - hann er vinur þinn --skjóttu hann!" endurtekur Lars von Trier í sífellu og beinir orðum sínum til Bjarkar á meðan hann myndar hana.
Meira
ÞÁ er hann kominn, nýjasti smellur vinsælasta gamanleikara samtímans, Jims Carreys . Trölli stelur jólunum eða The Grinch hefur laðað fjölda fólks að miðasölum kvikmyndahúsa vestra þótt gagnrýnendur hafi margir fitjað upp á nefið.
Meira
Í dag verður Tröllið sem stal jólunum eða The Grinch That Stole Christmas frumsýnd í Bíóhöllinni, Laugarásbíói, Nýja bíói, Keflavík, og Nýja bíói, Akureyri. Myndin er byggð á barnabók dr.
Meira
Á köldum klaka snýst að nafninu til um tilfinningalíf aðalpersónu myndarinnar og hvernig hún á að vakna til vitundar um höfin, fjallgarðana og endalausa víðáttuna hið innra.
Meira
Það er víst áreiðanlegt að fáir hafa búist við nokkru í líkingu við þetta. Einhvern tímann hefði Njálumyndin verið kölluð hneyksli, móðgun, kjaftshögg. Njálssaga er kvikmynduð í orðsins fyllstu merkingu.
Meira
Friðriki hefur tekist að gera sérkennilega og merkilega mynd. Handrit hans og Einars Más er fallegt og látlaust, það er lítið um samtöl, myndirnar tala sínu máli án orða.
Meira
Í Börnum náttúrunnar liggur þjóðvegurinn "heim" í margvíslegum skilningi. Stella vill komast aftur til æskustöðvanna og Þorgeir þráir að komast út úr því samfélagi sem hann er staddur í því honum finnst hann ekki eiga heima þar.
Meira
Eftir því sem ég hef vit á er þetta mjög gott verk og ekki auðvelt að finna á því snögga bletti. Ég sé ekki betur en að myndin sé óvenjulega haganlega gerð og fagmannlega unnin, hvernig sem að henni er komið.
Meira
Englar alheimsins er einhver heilsteyptasta mynd sem Íslendingar hafa gert. Þar kemur við sögu blæbrigðarík kvikmyndataka Haralds Paalgards sem fyllir ótrúlega vel vandfyllt skarð Ara Kristinssonar.
Meira
Kúrekar norðursins er tæknilega og faglega hrákasmíð, sem ber því vitni að í skyndingu hafi verið ákveðið að fara af stað og filma eitthvert fólk fyrir norðan gera sig að fíflum.
Meira
Háskólabíó frumsýnir hinn 22. desember bresku myndina Saving Grace með Brenda Blethyn í aðalhlutverki. Hér er um gamanmynd að ræða þar sem Brenda leikur húsmóður er ræktar kannabis á heimili sínu eftir að hún missir eiginmann sinn og lendir í...
Meira
Zeta-Jones í fjölskylduframkvæmdum Breska leikkonan og kynbomban Catherine Zeta-Jones , sem nú gegnir einvörðungu móðurhlutverkinu eftir að hafa eignast barn með eiginmanni sínum Michael Douglas , snýr aftur í vinnuna upp úr áramótum og leikur þá með...
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.