MIKIL spenna einkenndi í gær biðina eftir úrskurði Hæstaréttar Bandaríkjanna um það hvort endurtelja skyldi vafaatkvæði í Flórída enda getur hann skorið úr um það hver verður næsti forseti landsins, George W. Bush eða Al Gore.
Meira
BILL Clinton, forseti Bandaríkjanna, varaði í gær leiðtoga Norður-Írlands við því að ganga á bak orða sinna og svíkja gerða samninga. Clinton er nú í sinni síðustu opinberu heimsókn áður en hann lætur af embætti í janúar og hófst hún á Írlandi í gær.
Meira
MIKLUM snjó hefur kyngt niður í Miðríkjum Bandaríkjanna og raunar allt frá Texas og norður úr til Massachusetts. Hefur það valdið verulegum vandræðum, truflað samgöngur í lofti og á landi og sett skólastarf úr skorðum.
Meira
KOFI Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, lýsti yfir stríði á hendur alþjóðlegum glæpasamtökum á ráðstefnu í Palermo á Ítalíu í gær og hvatti ríki heims til að undirrita sáttmála gegn glæpasamtökunum.
Meira
SADDAM Hussein, forseti Íraks, hefur opnað hallir sínar fyrir fátæku fólki og býður því upp á máltíð eftir að sól er sest. Nú er föstumánuður hjá múslimum og þá verða þeir að neita sér um flestar lífsins lystisemdir frá sólarupprás til sólarfalls.
Meira
EINS og undanfarin ár ætlar eldra fólk í Kópavogi að gera sér dagamun á aðventunni. Í dag, miðvikudaginn 13. desember, verður aðventukaffi í félagsheimilinu Gullsmára, Gullsmára 13. Margt verður þar til skemmtunar, t.d.
Meira
Reykholt - Sú hefð sem komist hefur á hjá Tónlistarfélagi Borgarfjarðar, Borgarfjarðarprófastsdæmi og Reykholtskirkju, að standa fyrir árlegum aðventutónleikum í héraðinu, hefur greinilega fengið hljómgrunn.
Meira
ALÞJÓÐLEGA geimstöðin Alpha ætti að geta sést frá jörðu hér á landi eftir átta daga þar sem hún geysist um himinhvolfið á 27.646 km hraða á klukkustund.
Meira
EINN stærsti banki Filippseyja lét í gær af hendi skjöl vegna málshöfðunarinnar til embættismissis á hendur Joseph Estrada, forseta Filippseyja. Saksóknarar halda því fram að skjölin nægi til sakfellingar forsetans.
Meira
ÞEGAR eldurinn kom upp í húsnæði Ísfélagsins í Vestmannaeyjum á laugardagskvöldið, var Björn Þorgrímsson, verkstjóri á frystitækjum fyrirtækisins, staddur í jólahlaðborði ásamt konu sinni og vinum.
Meira
BORGARRÁÐ Reykjavíkur samþykkti í gær að Orkuveita Reykjavíkur nýti sér forkaupsrétt vegna hlutafjáraukningar hjá Línu.Neti fyrir 99,75 milljónir króna. Sjálfstæðismenn greiddu atkvæði gegn málinu og kemur það því til kasta borgarstjórnar.
Meira
"EF fólki líður illa og vill fá skýr svör um hvað sé framundan er til dæmis hægt að efna til borgarafundar þar sem þingmenn og yfirmenn samgöngumála eru krafðir svara," segir Sigríður Jóhannesdóttir, einn þingmanna Reyknesinga, aðspurð hvernig...
Meira
DREGIÐ var úr réttum svörum í jólagetraun um umferðarmál fyrir 1.-5. bekk grunnskóla í Reykjavík, Mosfellsbæ, Seltjarnarnesi og Kjós í gær. Getraunin heitir "Dagur í desember" og er samstarfsverkefni Umferðarráðs, lögreglu og sveitarfélaga.
Meira
AÐEINS eitt af sex skipum Ísfélagsins í Vestmannaeyjum er á veiðum. Það er Heimaey, sem mun landa afla sínum á fiskmarkað, að sögn Jóhanns Péturs Andersen, framkvæmdastjóra Ísfélagsins.
Meira
LÖGREGLAN í Keflavík kveðst ekki vita hvort fyrirhuguð eru frekari mótmæli á Reykjanesbrautinni og segir Þórir Maronsson yfirlögregluþjónn að ekki verði liðið að brautinni verði lokað af mótmælendum.
Meira
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins hafði í nógu að snúast í fyrrakvöld. Eldur kviknaði í vinnuskúr við Vita- og hafnamálastofnun á ellefta tímanum. Greiðlega gekk að ráða niðurlögum eldsins og voru skemmdir óverulegar.
Meira
JÓNAS Hallgrímsson, stjórnarformaður Smyril Line, sem gerir út ferjuna Norrænu, segir að fyrirtækið vilji fyrir sitt leyti standa við samning um smíði á nýrri ferju.
Meira
Stjórnarandstæðingar gagnrýndu viðskiptaráðherra, Valgerði Sverrisdóttur, í umræðum utan dagskrár á Alþingi í gær fyrir íhlutun í samrunaferli Landsbanka Íslands og Búnaðarbanka Íslands. Viðskiptaráðherra ítrekaði á hinn bóginn að í svo viðkvæmum málum yrðu vinnubrögð að vera öguð og skilvirk. Hefði hún bent formanni bankaráðs Búnaðarbankans á það.
Meira
FÉLAG ábyrgra feðra hefur sent frá sér eftirfarandi ályktun: "Félag ábyrgra feðra fagnar aukinni umræðu í þjóðfélaginu um rétt barna til að vera með báðum foreldrum sínum.
Meira
MEIRIHLUTI Finna er enn andvígur aðild landsins að hernaðarbandalögum samkvæmt skoðanakönnun sem birt var í gær. Þar kemur fram að 66% vilja standa utan þótt jafnstórt hlutfall telji að Finnland muni ganga í Atlantshafsbandalagið innan nokkurra ára.
Meira
Skagaströnd- Nýlega veitti fegrunarnefnd Sparisjóðs Sauðárkróks, en vörsluaðili hans er útibú Búnaðarbanka Íslands á staðnum, Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra á Sauðárkróki viðurkenningu fyrir skipulag og frágang Bóknámshúss skólans og lóðar hans.
Meira
EF Ísfélagið hyggst greiða starfsmönnum sínum kauptryggingu mun ríkið aðeins greiða því til baka hluta af þeirri upphæð, eða þá upphæð sem nemur atvinnuleysisbótunum, en mismunurinn getur numið allt að 30 þúsund krónum á mánuði fyrir fulla vinnu, að sögn...
Meira
FRÆÐSLUFUNDUR verður í húsnæði læknasamtakanna, Hlíðasmára 8, Kópavogi, fimmtudaginn 14. desember kl. 20.30. Óttar Guðmundsson geðlæknir fjallar um dauðann og breytingar í atferli hans á síðustu 100-200 árum.
Meira
STJÓRN Samtaka atvinnulífsins (SA) telur að þróun verðlags- og peningamála á næstu vikum og mánuðum skipti sköpum um hvort markmið kjarasamninga náist og hér takist að tryggja efnahagslegan stöðugleika og bætt lífskjör.
Meira
Í kvöld, miðvikudagskvöld 13. des., stendur Hafnagönguhópurinn fyrir gönguferð úr Sundahöfn inn í Elliðavog. Farið frá Hafnarhúsinu, Miðbakkamegin, kl. 20 og með SVR, leið 4, inn í Kleppsholt. Sjálf gönguferðin hefst við útsýnisskífuna á Kleppsskafti kl.
Meira
ÖLLUM starfsmönnum Genealogia Islandorum hefur verið sagt upp störfum vegna skipulagsbreytinga, en gert er ráð fyrir að þeir verði allir endurráðnir og er stefnt að því að búið verði að ganga frá því fyrir áramót.
Meira
NEMENDUR í Menntasmiðju kvenna buðu gestum í opið hús um helgina, en alls voru 16 konur við nám í smiðjunni nú í haust, á aldrinum 18 til 66 ára.
Meira
TVEIR voru fluttir á slysadeild eftir harðan árekstur jeppa og fólksbíls á Reykjavíkurvegi á móts við Hraunbrún og Flatahraun í Hafnarfirði rétt fyrir klukkan hálfníu í gærkvöldi. Meiðsl fólksins voru talin minniháttar.
Meira
NÝ DAGÞJÓNUSTA fyrir fólk með geðraskanir hefur verið opnuð við Þingvallastræti 32 á Akureyri, en Ingibjörg Pálmadóttir heilbrigðisráðherra opnaði dagþjónustuna formlega og hefur hún hlotið nafnið Laut.
Meira
Fagradal - Yfir eitt þúsund skammtar af djúpfrystu hrútasæði verða fluttir út til Bandaríkjanna frá Sauðfjársæðingastöð Suðurlands, þetta er meira en helmings aukning frá árinu áður en þá var fluttur út 491 skammtur.
Meira
HUNDRAÐ lögreglumenn sem nú eru að störfum hafa ekki lokið prófi úr Lögregluskólanum. Ef allir þeir nemendur sem verða brautskráðir frá Lögregluskólanum nk. föstudag ráða sig til starfa hjá lögreglunni lækkar sú tala í 70 manns.
Meira
BILL Clinton Bandaríkjaforseti hefur ritað Bulent Ecevit, forsætisráðherra Tyrklands, bréf þar sem hann hvetur tyrknesku ríkisstjórnina til að láta af þeim fyrirvörum sem hún hefur lýst gegn áformum Evrópusambandsins um að styrkja varnarsamstarf innan...
Meira
BORGARRÁÐ hefur samþykkt að hækka almennt sorphirðugjald úr 6.000 kr. á hverja tunnu í 6.600 krónur á hverja tunnu á ári. Sorphirðugjald atvinnufyrirtækja hækkar úr 7.800 kr. í 8.600 kr. á tunnu á ári.
Meira
HINN árlegi jólafundur Hvatar, félags sjálfstæðiskvenna í Reykjavík, verður haldinn í Valhöll fimmtudagskvöldið 14. desember kl. 20. Allt sjálfstæðisfólk er velkomið.
Meira
JÓLAMERKI Lionsklúbbsins Þórs fyrir jólin 2000 eru komin út. Merkin eru hönnuð af Þórhildi Jónsdóttur auglýsingateiknara og sýna kirkjuna og bæinn í þjóðgarðinum á Þingvöllum. Fyrstu jólamerki Þórs voru gefin út jólin 1967 og er þetta því í 34.
Meira
Selfossi - Kveikt var á bæjarjólatrénu við Tryggvatorg á Selfossi á laugardag. Þegar jólasveinarnir úr Ingólfsfjalli komu akandi yfir Ölfusárbrú beið mikill fjöldi barna og fullorðinna við brúarsporðinn og fagnaði komu þeirra.
Meira
FYRIRHUGAÐUR fornleifauppgröftur á horni Aðalstrætis og Túngötu sem hefjast á í byrjun janúar 2001 verður að mati borgarminjavarðar, Guðnýjar Gerðar Gunnarsdóttur, bæði dýrari og tímafrekari en væri hann unninn að sumri til.
Meira
BORGARRÁÐ samþykkti í gær að stefnt skuli að því að atkvæðagreiðsla borgarbúa um framtíðarnýtingu Vatnsmýrar og staðsetningu Reykjavíkurflugvallar fari fram hinn 3. febrúar 2001 án þess að ákveða þó um hvaða kosti borgarbúum verði gert að velja.
Meira
Flateyri - Þegar gluggagægir átti leið fram hjá leikskólanum Grænagarði á Flateyri sá hann að inni fyrir var óvenju margt fullorðið fólk saman komið.
Meira
FRÁ og með næstu áramótum verður opnaður leikskóli á Bræðraborgarstíg 1, en þar, á horni Vesturgötu og Bræðraborgarstígs, hefur um árabil verið rekin matvöruverslun, síðast Verslun M. Gilsfjörð.
Meira
UM það bil 50 kennarar komu saman í verkfallsmiðstöð sinni í Hamri á föstudag og ræddu þau tilboð sem komið hafa frá samninganefnd ríkisins og frá samninganefnd félags framhaldsskólakennara.
Meira
VEÐRIÐ hefur leikið við Akureyringa á þessu hausti, þótt vissulega hafi tíðin verið óvenju vætusöm. Færð á vegum á Norðurlandi hefur víðast hvar verið góð og lítill snjór í byggð.
Meira
VEGAGERÐIN hefur sent Skipulagsstofnun tillögu að matsáætlun vegna mats á umhverfisáhrifum fyrirhugaðra framkvæmda við jarðgöng á milli Reyðarfjarðar og Fáskrúðsfjarðar. Jarðgöngin eru hluti af jarðgangaáætlun Vegagerðarinnar skv.
Meira
ÍSLENZKA parið Adam Reeve og Karen Björk Björgvinsdóttir hafnaði í 5. sæti á heimsmeistaramóti atvinnudansara í samkvæmisdönsunum 10 sem fram fór í París um helgina.
Meira
BJÖRN Bjarnason menntamálaráðherra hitti Koichiro Matsuura, framkvæmdastjóra UNESCO, á fundi í París í gær ásamt Sigríði Snævarr, sendiherra Íslands hjá UNESCO, og Sveini Einarssyni, ráðgjafa ráðherra um menningarmál, en hann er frambjóðandi Íslands til...
Meira
VIÐ HÖNNUN tvöfaldrar Reykjanesbrautar miðar Vegagerðin við þá umferðarstaðla að leyfilegur hámarkshraði ökutækja geti orðið 110 kílómetrar á klukkustund, en leyfilegur hámarkshraði á þjóðvegum er sem kunnugt er 90 km/klst.
Meira
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra kvaðst í fyrirspurnatíma á Alþingi í gær myndi beita sér fyrir því að láta athuga síðla næsta ár hvort hægt verði að hraða tvöföldun Reykjanesbrautar.
Meira
NIÐURSTÖÐUR leiðtogafundar Evrópusambandsins (ESB) í Nice, sem samkomulag tókst um á mánudagsmorgun, hafa fengið misjafnar viðtökur í núverandi og tilvonandi aðildarríkjum sambandsins.
Meira
VINNUPALLAR sem hafa umkringt Laugaveg 99 um nokkurra mánaða skeið voru fjarlægðir í lok síðustu viku, og nú blasir þar við augum gangandi fólks og akandi nýtt þriggja hæða steinsteypt hús, teiknað af Pétri Erni Björnssyni arkitekti.
Meira
VERSLUNUM í miðborg Reykjavíkur hefur fækkað úr 372 árið 1996 í 337 árið 2000, eða um 9,4%. Þetta kemur fram í samantekt Þróunarfélags miðborgarinnar, en það hefur látið telja og flokka verslanir í miðborginni í septembermánuði árin 1996 til 2000.
Meira
JÓLASVEINARNIR koma nú hver á fætur öðrum eftir strangt ferðalag ofan úr fjöllunum og þurfa þá stundum að fara sjóleiðina til að stytta sér leið til byggða.
Meira
Ólafsvík -Taflfélag Ólafsvíkur á sér langa sögu og hafa margir liðtækir skákmenn komið við sögu þess. Nú nær starfsemin yfir Snæfellsbæ allan og aukið líf er í félaginu. Á dögunum var haldið skákmeistaramót Snæfellsbæjar. Tóku 15 manns þátt í mótinu.
Meira
RÖSKLEGA 48% landsmanna eru hlynnt því að klukkan verði færð fram um eina klukkustund að vori og aftur um eina stund að hausti. Kemur þetta fram í nýjum Þjóðarpúls Gallups. Könnunin fór fram dagana 8.-29. nóvember og var valið 1.
Meira
GÍSLI Júlíusson verkfræðingur stóð fyrir því árið 1967 að fá loftpúðaskip lánað til Íslands í rannsóknaskyni til að athuga hvort siglingar á slíku farartæki reyndust fýsilegar við íslenskar aðstæður.
Meira
SLOBODAN Milosevic, fyrrverandi forseti Júgóslavíu, kvaðst hafa hreina samvisku í viðtali sem serbnesk sjónvarpsstöð sýndi í gærkvöldi. Er þetta fyrsta viðtal Milosevic frá því að hann neyddist til að segja af sér í október.
Meira
NEMENDUR í Hagaskóla og Réttarholtsskóla öttu kappi í gærkvöldi í sal Réttarholtsskóla í Hugvits- og hönnunarkeppni skólanna. Ellefu tæki voru skráð til þátttöku, sex gerð af nemendum Hagaskóla, fimm af nemendum Réttarholtsskóla.
Meira
SÉRSVEIT lögreglunnar var kölluð að húsi við Vesturgötu á Akranesi í gærmorgun til að yfirbuga mann vopnaðan hnífi og kylfu, en hann hafði fyrr um morguninn flúið undan lögreglunni og sigað hundi á tvo lögreglumenn.
Meira
HLJÓÐFÆRALEIKARAR úr Sinfóníuhljómsveit Íslands léku nokkur lög í kringlu Alþingishússins sídegis í gær. Sinfóníuhljómsveitin skiptir sér upp í hópa fyrir jólin og fer í sjúkrahús og á stofnanir.
Meira
UM 50 starfsmenn Ísfélagsins í Vestmannaeyjum fóru í tæplega klukkutíma langa hressingargöngu í gærmorgun eftir að hafa fengið sér kaffi inni í Alþýðuhúsinu, sem hefur verið helsti samverustaður fólksins frá því bruninn varð á laugardagskvöldið.
Meira
UNDIRBÚNINGUR er nú hafinn að stofnun félags áhugamanna um íslensku kúna. Í yfirlýsingu frá undirbúningshópnum segir að mikil andstaða hafi verið meðal bænda vegna fyrirhugaðs innflutnings á fósturvísum úr norskum kúm af NRF-stofni.
Meira
DÓMSMÁLARÁÐHERRA kynnti á ríkisstjórnarfundi í gær frumvarp til laga um breytingu á hjúskaparlögum frá 1993. Til þessa hefur vígslumaður, oftast prestur, séð um alla þætti kirkjulegrar hjónavígslu og þar með talda könnun á hjónavígsluskilyrðum.
Meira
Tálknafirði - Að loknum hreppsnefndarfundi 6. desember sl. opnaði Björgvin Sigurjónsson, oddviti Tálknafjarðarhrepps, heimasíðu sveitarfélagsins formlega, en hún hefur verið í vinnslu undanfarnar vikur.
Meira
ÞEGAR Reykjanesbraut hefur verið tvöfölduð er unnt að leyfa hærri hámarkshraða en 90 km eins og nú er á brautinni, að mati Óla H. Þórðarsonar, framkvæmdastjóra Umferðarráðs. Hann segir það þó bundið því að eftirlit með ökuhraða verði öflugt, m.a.
Meira
MYKOLA Melnitsjenkó, sem starfaði sem lífvörður fyrir Leoníd Kútsjma, forseta Úkraínu, sést hér flytja vitnisburð sinn á myndbandi sem sýnt var á Úkraínuþingi í Kænugarði í gær.
Meira
NÚ er í undirbúningi viðburðadagatal Suðurlands fyrir janúar 2001. Dagatalinu er dreift á vefsíður, í upplýsingamiðstöðvar um allt land, til fjölmiðla og á ýmsa fjölfarna staði.
Meira
HÉR má sjá víkingaskipið Örninn sem geymt er á lóð Árbæjarsafns, en skipið er annað tveggja skipa sem Norðmenn gáfu Íslendingum í þjóðargjöf árið 1974. Hitt skipið heitir Hrafninn og er í vörslu byggðasafnsins á Húsavík.
Meira
ÞÓTT stærsti hluti húsnæðis Ísfélagsins í Vestmannaeyjum sé rjúkandi rúst slapp hluti þess við meiriháttar tjón og þar er þegar byrjað að undirbúa tæki og tól fyrir síldar- og loðnuvinnslu.
Meira
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl. 10.30 í dag. Eftirfarandi mál eru m.a. á dagskrá að lokinni atkvæðagreiðslu um ýmis þingmál. 1. Dómtúlkar og skjalaþýðendur.3. umr. 2. Norðurlandasamningar um alþjóðleg einkamálaréttarákvæði. 3. umr. 3.
Meira
"ÞETTA er ekki skemmtilegasta jólagjöfin sem maður gat fengið," sagði Sveinn Þórisson, starfsmaður rækjuvinnslunnar Nasco Bolungarvík hf. og sýndi blaðamanni uppsagnarbréfið sem hann fékk frá bústjóra þrotabús Nasco í gær.
Meira
UMMÆLI Davíðs Oddssonar forsætisráðherra á hádegisverðarfundi hinn 31. október um sagnfræðina og upplýsingalögin vöktu að vonum mikla athygli. Í fréttabréfi Sagnfræðingafélags Íslands, sem út kom 6. desember síðastliðinn, er fjallað um þennan hádegisverðarfund og segja þar þrír sagnfræðingar skoðun sína á ummælunum.
Meira
AÐVENTUTÓNLEIKAR Tónlistarsambands Alþýðu verða í Laugarneskirkju annaðkvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20. Á tónleikunum koma fram fjórir kórar sem eru í sambandinu, en þeir eru: SFR-kórinn, stjórnandi Páll Helgasonar, Landsímakórinn, stjórnandi Helgi R.
Meira
ÁRLEGIR aðventutónleikar Lögreglukórs Reykjavíkur verða í Seltjarnarneskirkju annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Gestakór verður Barna- og unglingakór Grafarvogskirkju. Einsöngvari með lögreglukórnum er Hervald Rúnar Gíslason, 10 ára.
Meira
Þetta ár allt hefur í Færeyjum ekki aðeins verið tími mikilla stjórnmálaumbrota, segir Úlfur Hjörvar, heldur jafnframt nær samfelld menningarhátíð og hver merkisviðburðurinn rekið annan svo að menn hafa naumast náð að komast úr sparifötunum á milli, hvað þá skipta hátíðarskapi.
Meira
Móðurmálið er gjöf guðs til mannanna. Sú var meining Georgs Sauerwein, þýskfædds málamanns, sem undir lok nítjándu aldar háði trúarinnar góðu baráttu til verndar tungu og menningu minnihlutahópa í þýska ríkinu. Sauerwein kunni ógrynni tungumála, var sérstæður um margt og lifði óvenjulegu lífi. Oskar Vistdal, sem um árabil var sendikennari í norsku við Háskóla Íslands, hefur skrifað bók um Sauerwein, ævi hans og störf. Trausti Ólafsson hefur kynnt sér bókina.
Meira
Margrét Eir, samnefndur frumburður söngkonunnar Margrétar Eirar. Margrét syngur en með henni eru þeir Kristján Eldjárn (gítar), Karl Olgeirsson (Rhodes), Jón Rafnsson (kontrabassi) og Birgir Baldursson (trommur). Lög og textar eru eftir ýmsa erlenda höfunda. Upptökum stýrði Kristján Eldjárn. 58,17 mín. Margrét Eir gefur sjálf út.
Meira
Í SKÁLDSÖGU Guðrúnar Guðlaugsdóttur, "Í órólegum takti", segir frá Margréti Hannesdóttur sem fyrir tilviljun tekur að sér landflótta Kúrda, smyglar honum inn í landið og berst harðri baráttu við íslenska embættismannakerfið til að koma í veg...
Meira
"SUM augnablik lifa lengur en önnur og verða ef til vill kveikjan að ljóði sem koma hugblæ eða stemmningu til skila, annaðhvort í orðum eða á milli línanna," segir Ágústína Jónsdóttir, sem í nýjustu ljóðabók sinni, Vorflauta, yrkir um tónlist,...
Meira
JÖRG E. Sondermann flytur orgelverk eftir Johann Sebastian Bach í Breiðholtskirkju annað kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Tónleikarnir annað kvöld eru þeir níundu af alls 26 tónleikum sem eru 60-65 mínútna langir hverjir um sig. Jörg E.
Meira
NÝTT forlag, Gjörningar ehf, hefur gefið út bókina Trjálfur og Mimmli eftir Stefán Sturlu Sigurjónsson. Stefán er einnig annar af tveimur eigendum forlagsins, hinn er faðir hans,Sigurjón Valdimarsson.
Meira
Blómaskeið bófarappsins svonefnda var um miðjan áratuginn og lauk með tveimur morðum. Helsti útgefandi bófarappsins var ofbeldisseggurinn Suge Knight sem ekki var vandur að meðulum eins og rakið er í nýlegri bók.
Meira
SÝNINGARGESTUR í rússneska safninu í Sankti Pétursborg í Rússlandi virðir hér fyrir sér verkið Bændur eftir rússneska listamanninn Kazimír Malevitsj.
Meira
Sigrún Sigurðardóttir og Guðrún Pálsdóttir skráðu viðtölin. Einar Falur Ingólfsson og Golli tóku ljósmyndir. Sigfús Már Pétursson tók forsíðumynd. Útgefandi Salka, Reykjavík, 2000.
Meira
"ÞETTA er ferðalag gegnum tíðina. Pílagrímsför hins trúaða manns," segir Hilmar Örn Agnarsson, stjórnandi Kammerkórs Suðurlands, sem sent hefur frá sér í samvinnu við Smekkleysu geislaplötuna Ég byrja reisu mín.
Meira
SJALDAN rekur á fjörur okkar finnskar bækur þýddar af frummálinu. Það sætir því nokkrum tíðindum að nú kemur út öndvegisverkið Sjö bræður eftir Aleksis Kivi. Verkið kom fyrst út árið 1870.
Meira
Á FÖSTUDAGINN var hófst kvikmyndahátíðin Hvítir hvalir í Háskólabíó en hún er liður í Stjörnuhátíð menningarborgar. Viðfangsefni hátíðarinnar eru kvikmyndir og önnur verk Friðriks Þórs Friðrikssonar kvikmyndagerðarmanns. Fram til 17.
Meira
FYRR á þessu ári kom út ritið Orð af eldi, bréfasamband Ólafar Sigurðardóttur á Hlöðum og Þorsteins Erlingssonar á árunum 1883-1914, sem Erna Sverrisdóttir bókmenntafræðingur bjó til prentunar.
Meira
Meistaraverkið Doktor Fástus eftir nóbelshöfundinn Thomas Mann er komið út hjá Fjölva í þýðingu Þorsteins Thorarensen. Pétur Blöndal fjallar um goðsögnina Faust, bakgrunn skáldsögu Manns og ræðir við tónskáldið Atla Heimi Sveinsson, sem hefur löngum verið mikill áhugamaður um söguna.
Meira
½ Leikstjóri: Matt Williams. Handrit: Lowell Ganz og Babaloo Mandel. Aðalhlutverk: Natalie Portman, Ashley Judd. (120 mín.) Bandaríkin, 2000. Myndform. Öllum leyfð.
Meira
ÁRLEGIR Jólabarokk-tónleikar verða haldnir í Salnum í Kópavogi í kvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20. Tónleikarnir eru síðustu tónleikarnir í Tíbrá, tónleikaröð Kópavogsbæjar, fyrir jól.
Meira
JÓLATÓNLEIKAR nemenda Tónlistarskólans í Reykjavík verða haldnir annaðkvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20 í Fríkirkjunni. Aðgangur ókeypis og allir...
Meira
Aðrir jólatónleikar Tónlistarskóla Reykjanesbæjar verða í Kirkjulundi fimmtudaginn 14. desember kl. 19.30. Þar koma fram barna- og unglingakór undir stjórn Hjördísar Einarsdóttur og með kórnum leikur Geirþrúður F.
Meira
JÓLATÓNLEIKAR Kammersveitar Reykjavíkur verða í Langholtskirkju nk. sunnudag kl. 16. Einleikari er Martial Nardeau, flauta. Stjórnandi: Reinhard Goebel. Á þessu ári er um allan heim minnst 250.
Meira
Eftir Hrein Steingrímsson. Ritstjórar: Dorothy Stone, Stephen L. Mosko.Útgefandi: Mál og mynd. Steindórsprent/Gutenberg sá um prentun.155 bls. Geisladiskur fylgir bók.
Meira
LAUN heimsins heitir nýútkomið safn örleikrita eftir Kjartan Árnason rithöfund. Leikritin eru spaugsöm og frískleg að hætti höfundar en augljóst er að nokkur alvara býr að baki hinum glaðværa framsetningarmáta.
Meira
SILFURÞEYSIR heitir verk eftir Erró sem var afhjúpað í síðustu viku. Það er sett saman úr 2.475 keramikflísum sem framleiddar voru hjá þekktri keramikverksmiðju í Portúgal.
Meira
Samkvæmt Bókatíðindum koma út 30 ljóðabækur, ljóðasöfn og ljóðaþýðingar á þessu hausti. Þá eru ótaldar ljóðabækur sem höfundar gefa út á eigin vegum og má því ætla að fjöldinn nálgist 40 þegar allt er talið. Guðbjörn Sigurmundsson skyggndist í vörpu ljóðsins 2000.
Meira
Skagfirsk úrvalsljóð og vísur, gefið út í tilefni af 30 ára afmæli Skagfirsku söngsveitarinnar og 15 ára afmæli Söngsveitarinnar Drangeyjar. 208 bls. Bjarni Stefán Konráðsson frá Frostastöðum safnaði. Bókaútg. Hólar. Prentun: Ásprent. Akureyri, 2000.
Meira
LJÓSMYNDIR Finnboga Marinóssonar eru nú til sýnis í verslun Reynisson & Blöndal, Skipholti 25. Myndirnar eru allar teknar á þessu ári, bæði á Íslandi og erlendis. Stærstur hluti þeirra er í "panorama"-stíl og brúnum tón.
Meira
Nú standa yfir æfingar í Þjóðleikhúsinu á írska leikritinu Með fulla vasa af grjóti (Stones in his pockets) eftir Marie Jones. Leikstjóri er IanMcElhinney. Jones er einnig leikkona, fædd og uppalin í Belfast.
Meira
Wolfgang Amadeus Mozart: Flautukvartett í C-dúr K. Anh. 171, Óbókvartett í F-dúr K. 370, Hornkvintett í Es-dúr K. 407, Píanókvartett í g-moll K. 478.
Meira
DIMMEYGÐI snillingurinn Nick Cave snýr loksins aftur til tónlistarheima á vori komanda en síðasta plata hans, hið lágstemmda og angurværa meistaraverk, The Boatman's Call , kom út árið 1997.
Meira
Smekkleysa gefur út nítján plötur á þessu ári, en plata Sigur Rósar, Ágætis byrjun, sem kom út í fyrra hefur nú selst í yfir 12.000 eintökum hér á landi, kom út í Bretlandi í ágúst sl. og vonir standa til að hún fari á Bandaríkjamarkað í byrjun næsta árs.
Meira
Út er komin bókin Bara heppni eftir Helga Jónsson. Í tilkynningu frá útgefanda segir: "Bara heppni er áhrifarík bók sem dansar á milli þess að vera fyndin og sorgleg. Hér er á ferðinni vönduð og raunsæ saga sem snertir menn.
Meira
ÚT ER komin bókin Vera í víti eftir Marilyn French í þýðingu Lóu Aldísardóttur. Í fréttatilkynningu segir m.a.: Höfundur Kvennaklósettsins sendir hér frá sér endurminningar um sigur sinn á krabbameini í vélinda.
Meira
ÚT ER komin bókin Frá skóla til atvinnulífs eftir Gerði G. Óskarsdóttur , doktor í menntunarfræði. Í bókinni eru tengsl menntunar og starfs skoðuð með hliðsjón af arðsemi menntunar fyrir einstaklinga og fyrirtæki.
Meira
ÚT er komin bókin Paradísareplin eftir danska skáldið Martin A. Hansen í þýðingu Jóns Kalmans Stefánssonar , sem skrifar einnig eftirmála. Í fréttatilkynningu segir: "Paradísareplin er safn sagna eftir danska skáldið Martin A. Hansen (1909-1955).
Meira
UNDIR afstæðum himni. Samtöl og dagbókarblöð, nefnist ný bók Matthíasar Johannessen. Hluti bókarinnar samanstendur af viðtölum annarra við skáldið og ritstjórann, minningargrein um Indriða G.
Meira
ÚT ERU komnar eftirtaldar barnabækur: Palli var einn í heiminum eftir Jens Sigsgaard í þýðingu Vilbergs Júlíussonar. Arne Ungermann gerði myndir . Bókin kemur nú út í 6. útgáfu. Bókin er 50 bls. Leiðbeinandi verð: 1.140 krónur.
Meira
UPPÁKOMURÖÐ Tilraunaeldhússins og menningarborgarinnar Reykjavíkur, Óvæntir bólfélagar, kvaddi með pomp og pragt síðastliðinn miðvikudag með fyrstu og síðustu uppsetningunni á sprellóperu Guðbergs Bergssonar og Dr. Gunna, Ferfættu borginni .
Meira
LISTAVERKIÐ "Jötnar" var afhjúpað við verslunina Fjarðarkaup í Hafnarfirði sl. sunnudag og var hulunni svipt af verkinu með aðstoð þyrlu eftir að bæjarstjóri, Magnús Gunnarsson, flutti ávarp. Höfundur verksins er Grímur Marinó Steindórsson.
Meira
ORÐIN eru Guðrúnar Oddsdóttur sem sór að nýfætt barn hennar hefði fæðst andvana. Lík barnsins hafði hún sett í óþæfðan sokk og kastað í sjóinn. Nokkrum dögum síðar fannst það í fjörunni. Guðrún var dæmd til dauða í dulsmáli og henni drekkt.
Meira
ÞÓTT heimurinn hafi minnkað, að sögn, er Laugavegurinn alltaf jafn stór og Reykjavík alltaf að stækka. Þótt tengslin við umheiminn verði nánari, að sögn, sitja menn enn í strætó númer fimm á leið í vinnu eða heim til sín.
Meira
Söngfuglinn sívinsæli, Selma Björnsdóttir, var söluhæsta dægurtónlistarkona landsins í fyrra en frumburður hennar, I Am , sem hún vann í félagi við Þorvald Bjarna Þorvaldsson, naut þá mikilla vinsælda.
Meira
Myndlistarkonunum og mæðgunum Kristjönu og Míreyu Samper var boðið að taka þátt í stórri útilistasýningu í Abiko í Japan í október sl. Margrét Sveinbjörnsdóttir hitti þær skömmu eftir heimkomuna og fékk að heyra af vist þeirra í dimmum bambusskógi.
Meira
Fyrsta plata Gríms Helga Gíslasonar Nýklipptur. Ásamt honum koma fram Kjartan Valdemarsson (píanó og harmonikka), Pétur Grétarsson (trommur og slagverk), Þórður Högnason (kontrabassi) og Birkir Freyr Matthíasson (trompet og flügelhorn). Upptaka Sveinn Kjartansson/Stafræna hljóðupptökufélagið ehf. Stjórn upptöku Pétur Grétarsson. Útgefandi: Magus. Dreifing Skífan. 12 (13) lög, lengd 48:12 mínútur.
Meira
Ljóð: Þórarinn Eldjárn. Tónlist og útsetningar: Jóhann G. Jóhannsson. Flytjendur: Stefán Karl Stefánsson, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Bergþór Pálsson, Edda Heiðrún Backman, Örn Árnason, Marta Halldórsdóttir og Jóhann Páll Jóhannsson.
Meira
"ÞETTA er að hluta til framhaldssaga, því áður skrifaði ég bók sem hét Níu ár í neðra og fjallaði um leikhússtjóratíð mína hjá Leikfélagi Reykjavíkur," segir Sveinn Einarsson, leikstjóri, rithöfundur og fyrrverandi þjóðleikhússtjóri.
Meira
ÚT er komið tímarit Sögufélagsins Ný saga . Sigurður Narfi Rúnarsson skrifar greinina Hnefaleikar á Íslandi. Ágrip af sögu íþróttarinnar og aðdragandi hnefaleikabanns.
Meira
ÚT er komið fjórða hefti Tímarits Máls og menningar 2000 (61. árgangs). Það er að stórum hluta tileinkað danska heimspekingnum og rithöfundinum Søren Aabye Kierkegaard (1813-1855).
Meira
Leikstjóri Ron Howard. Handritshöfundur Jeffrey Price, byggt á sögu Dr. Seuss. Tónskáld James Horner. Kvikmyndatökustjóri David Peterman. Aðalleikendur Jim Carrey; Jeffrey Tambor, Taylor Momsen, Christine Baranski, Anthony Hopkins, Bill Irwin. Sýningartími 100 mín. Bandarísk. Universal. Árgerð 2000.
Meira
HANN er nú alveg ferlegur hann Trölli, stelur bara og stelur, narrar og narrar saklausan almenning í miðjum jólainnkaupunum inn í myrkvaðan bíósalinn á vit sinna botnlausu klækja og bellibragða.
Meira
ÞEGAR vinsælasta myndin vestanhafs undanfarnar fjórar vikurnar nemur land á Fróni er ekki að spyrja að viðbrögðunum. Þegar Trölli stal jólunum fer beint á topp íslenska bíólistans og var langmest sótta myndin um helgina.
Meira
Út er komin Íslenska stangaveiðibókin eftir Guðmund Guðjónsson. Í tilkynningu frá útgefanda segir að þetta sé í sjötta sinn sem bókin kemur út með þessu sniði en alls eru árbækurnar orðnar 13.
Meira
Kvartettinn Út í vorið og Signý Sæmundsdóttir hafa gefið út geisladiskinn Öll tilveran sindrar af sól, "sér til skemmtunar", og er samstarfið af gárungunum kallað "Dívan og drengirnir".
Meira
VÍKINGAGULL heitir ný unglingasaga eftir Elías Snæland Jónsson rithöfund og fjallar um fimmtán ára strák, Bjólf, sem kemst í snertingu við sögur frá víkingaöld.
Meira
Íslenskir rithöfundar hafa brugðið sér til Berlínar og lesið þar upp úr verkum sínum, bæði á sérstökum ævintýradögum og íslenskum bókmenntadögum. Davíð Kristinsson segir frá.
Meira
50 ÁRA afmæli . Í dag miðvikudaginn 13. desember verður fimmtugur Örn Sigurbergsson, aðstoðarskólameistari, Beykihlíð 19, Reykjavík. Eiginkona hans er Kristín Jónsdóttir. Þau taka á móti gestum föstudaginn 15. desember kl.
Meira
Koma á Laugarbakkaskóla sem fyrst til annarra nota en grunnskólakennslu, að mati Vilhjálms Péturssonar, og færa allt skólahald í héraðinu til Hvammstanga.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 1. desember í Akureyrarkirkju, Hólmfríður Björk Pétursdóttir og Þorvaldur Örn Arnarson . Heimili þeirra er að Grenivöllum 24,...
Meira
Síðan Íbúðalánasjóður tók til starfa í ársbyrjun 1999 hafa verið meiri framkvæmdir í hús- næðismálum með félagslegri aðstoð, segir Páll Pétursson, en nokkru sinni fyrr á jafnskömmum tíma.
Meira
... niðurstaðan hefur orðið sú að mismunun í heilbrigðiskerfinu í Bandaríkjunum er meiri en víðast hvar annars staðar, segir ÖgmundurJónasson. Viljum við gera þetta okkur að fyrirmynd?
Meira
ELLILAUN, tekjutrygging og heimilisuppbót hrekkur skammt hjá þeim konum sem nálgast lögboðinn eftirlaunaaldur og hafa unnið svokölluð erfiðisvinnustörf, til að mynda umönnun aldraðra og sjúkra, og fá þar af leiðandi sáralítið úr lífeyrissjóði.
Meira
ÉG heyrði í útvarpinu fyrir skömmu viðtal við Guðberg Bergsson rithöfund, sem nú verður heiðraður af þjóð sinni með 100.000 krónum á mánuði, til æviloka.
Meira
ERU jólakort að verða tímaskekkja? Er það bara hugsunarlaus kækur að senda vinum og vandamönnum kort, fólki sem við hittum frekar sjaldan, smávegis kveðju þar sem varla er mikið meira sagt en gleðileg jól og farsælt komandi ár?
Meira
ÆSKILEGT er að minningargreinum fylgi á sérblaði upplýsingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram.
Meira
Fullyrðingar manna um að ákveðin landsvæði séu þeirra einka eignarlönd, hvort sem er á láglendi eða hálendi Íslands, segir Hafsteinn Hjaltason, duga ekki einar og sér sem eignarheimildir.
Meira
ÞEGAR komið er yfir heiðina háu til Seyðisfjarðar getur að líta þétta byggð sem kúrir innst við fjarðarbotninn undir firnabröttum, stölluðum fjöllum, bæjarstæðið sjálft er furðu þröngt, fjörðurinn gullfallegur.
Meira
Þrátt fyrir að Íslensk-kínverska viðskiptaráðið sé aðeins fimm ára gamalt, segir Sigtryggur R. Eyþórsson, er þar samankomin mikil kunnátta og reynsla í þessum efnum.
Meira
Í dag er miðvikudagur 13. desember, 348. dagur ársins 2000. Lúsíumessa. Orð dagsins: Enginn á meiri kærleik en þann að leggja líf sitt í sölurnar fyrir vini sína.
Meira
ÞEGAR ég fyrir skömmu uppgötvaði ofangreinda rás í útvarpinu, varð ég svo heillaður af henni, að síðan hef ég undirritaður ekki stillt útvarpið, hvorki heima né í bifreiðinni, á aðra rás, nema einungis til að hlusta á fréttir á öðrum rásum og áhugaverð...
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
ALFREÐ Þorsteinsson stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur skýrði frá því á blaðamannafundi 5. desember að ekki kostaði nema eina krónu og fimmtíu aura að framleiða kílówattstundina af rafmagni á Nesjavöllum (Mbl. 6. desember bls. 2).
Meira
Það var því afar hagstætt allra hluta vegna, segir August Håkansson, að geta lent í Reykjavík og lágmarkað þannig truflun á ferð farþega sem ýmist ætluðu til Íslands eða áttu bókað framhaldsflug til Bandaríkjanna.
Meira
Hér hefur ríkt neyðarástand meðal a.m.k. 1.300 framhaldsskólakennara, segir Jakob Frímann Magnússon, og nítján þúsund framhaldsskólanemenda um margra vikna skeið.
Meira
ÁÐUR en útvarpsstöðvarnar X-ið og Radíó runnu vandræðalega saman í eitt fyrr á þessu ári heyrði ég lag á þeirri síðarnefndu sem kallast Sólmyrkvi.
Meira
Við trúum því ekki að hinn almenni kennari telji það raunhæft, segja Björn Bragi Björnsson og Sveinn Þórarinsson að gengið verði að kröfum þeirra í núverandi mynd.
Meira
Sunnan að segja menn, Sundklaustr haldist laust. Þýzkir gera þar rask þeygi gott í Viðey. Öldin hefir ómild Ála bruggað vont kál. Undr er, ef Ísland eigi réttir hans...
Meira
Anna Guðmundsdóttir fæddist 6. desember 1926. Hún lést 14. júlí 1999. Sigurður Björgvin Geirsson fæddist 20. maí 1921. Hann lést 23. apríl 2000. Börn Önnu og Sigurðar eru: Björgvin Vinjar, f. 21. mars 1949, og Marta, f. 12. desember 1952.
MeiraKaupa minningabók
Emma Sigfríð Einarsdóttir fæddist á Fáskrúðsfirði hinn 14. júlí 1909. Hún lést á Landspítalanum í Fossvogi hinn 2. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Einar Jónsson, skósmiður, frá Djúpavogi, f. 17.8. 1860, d. 3.12.
MeiraKaupa minningabók
Halldóra K. Sigurðardóttir fæddist í Görðum, Sæbóli, Aðalvík 6. desember 1920. Hún lést á Hjúkrunarheimilinu Skógarbæ í Reykjavík 1. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Áskirkju 12. desember.
MeiraKaupa minningabók
Lára Halldórsdóttir fæddist í Neskaupstað 13. nóvember 1914. Hún lést á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað 4. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Halldór Ásmundsson, sjómaður og útvegsbóndi í Vindheimi í Neskaupstað, f. 1879, d.
MeiraKaupa minningabók
Ragnheiður Bjarnadóttir fæddist á Hesteyri við Ísafjarðardjúp 20. september 1923. Hún lést á heimili sínu 29. nóvember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík 5. desember.
MeiraKaupa minningabók
Valgerður fæddist í Litlagerði, Grýtubakkahreppi, 6. apríl 1931. Hún lést á líknardeild Landspítala Kópavogi 4. desember síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Bandaríska fyrirtækið Honeywell hefur sent frá sér afkomuviðvörun þar sem segir að hagnaður á hlut verði á bilinu 70-74 sent á síðasta fjórðungi ársins miðað við áætlun upp á 86 sent á hlut.
Meira
ÞAÐ skorti ekki óheillaspárnar þegar stjórn Verkamannaflokksins framkvæmdi eitt kosningaloforða sinna í apríl í fyrra og kom á lágmarkslaunum, 3,60 pundum.
Meira
METHAGNAÐUR varð af rekstri Kögunar á síðasta fjárhagsári, eða 90,6 milljónir króna og námu rekstrartekjur félagsins 737 milljónum króna og jukust um 67,5% á milli ára.
Meira
RANNSÓKNARRÁÐ Íslands, PricewaterhouseCoopers (PwC), iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og Verslunarráð Íslands stóðu nýverið fyrir ráðstefnu um mat á þekkingarverðmætum.
Meira
SAMKVÆMT lögum um hlutafélög er fyrst hægt að halda hluthafafundi til að ganga frá sameiningu Landsbanka og Búnaðarbanka mánuði eftir birtingu tilkynningar um móttöku samrunaáætlunar og yfirlýsingu matsmanna.
Meira
SAMKEPPNISHÆFNI í þjóðfélaginu verður að vera í lagi svo útflutningsfyrirtæki og fyrirtæki í samkeppnisiðnaði eigi starfsgrundvöll. Þetta kom meðal annars fram í máli Harðar Arnarsonar, forstjóra Marels hf.
Meira
VÍSITALA neysluverðs miðuð við verðlag í desemberbyrjun var 202,1 stig (maí 1988= 100) og óbreytt frá því í byrjun nóvember að því er kemur fram í tilkynningu frá Hagstofu Íslands. Til samanburðar má nefna að vísitalan hækkaði um 0,3% í októbermánuði.
Meira
EINS OG fram hefur komið hafa mikil viðskipti átt sér stað með Tryggingamiðstöðina hf. (TM) í þessum mánuði og hefur meirihluti allra viðskipta síðastliðins árs farið fram í tvennum viðskiptum í þessum mánuði.
Meira
Að geta með löglegum hætti bundið enda á eigið líf með aðstoð læknis er af hinu góða vegna þess að í slíkri athöfn kristallast frelsi einstaklingsins og sjálfsforráð hans.
Meira
Bridsfélag Akureyrar Nú er lokið þremur kvöldum af fjórum í Sól-Víking hraðsveitakeppni félagsins og stefnir allt í að sveit Tryggva Gunnarsonar megi hafa sig alla við til að halda fyrsta sætinu. Staða efstu sveita er þessi: 1. Tryggvi Gunnarsson 801 2.
Meira
Austur opnar á fjórum laufum í fyrstu hendi á hættunni, en suður lokar síðan sögnum með fjórum hjörtum og vestur spilar út tromptíu: Austur gefur; AV á hættu.
Meira
GILJAGAUR kom til byggða í morgun og verður í Ráðhúsi Reykjavíkur klukkan 14 í dag. Jólasveinarnir tínast nú til byggða einn af öðrum og munu þeir koma í Ráðhúsið dag hvern fram á...
Meira
Jólabrids í Gullsmára Bridsdeild FEBK í Gullsmára spilaði tvímenning á 11 borðum mánudaginn 11. desember sl. Miðlungur 220. Efst vóru: NS Kristinn Guðm. - Guðmundur Pálsson 273 Ingibjörg Kristjánsd. - Þorsteinn Erl. 244 Kristján Guðm. - Sigurður...
Meira
ÁRLEGIR jólatónleikar Fíladelfíu verða í kvöld, miðvikudagskvöld 13. desember, kl. 20 í Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu. Fram kemur gospelfólk kirkjunnar ásamt góðum gestum.
Meira
Nýlega er komin út bókin Kæri kjósandi. Gamansögur af íslenskum alþingismönnum. Ritstjórar eru Guðjón Ingi Eiríksson og Jón Hjaltason og segja af kátlegum, og stundum pínlegum, æviatvikum í lífi þingmanna okkar.
Meira
FÓLK sem verður vart við ölvaða ökumenn á ferð geta nú hringt til Neyðarlínunnar í símanúmer hennar, 112, og látið vita og mun lögregla þá grípa í taumana.
Meira
"ÞETTA er það sem ég vildi og stefndi að og ég er mjög fegin að þetta er komið í höfn. Ég var orðin mjög þreytt á að spila í deildinni heima og var búin að gera það upp við mig að fara annað að spila ef þetta gengi ekki upp hérna. Það má segja að ég hafi dottið í lukkupottinn því hér eru saman komnar allar bestu knattspyrnukonur heims," sagði Ásthildur Helgadóttir, nýjasti atvinnumaður Íslands í knattspyrnu.
Meira
BANDARÍSKU kylfingarnir David Duval og Tiger Woods tryggðu sér um helgina heimsmeistaratitilinn í liðakeppni atvinnumanna, unnu Ástralana Angel Cabrera og Eduardo Romero í úrslitaleik í Ástralíu.
Meira
BIRMINGHAM varð fyrsta liðið til að tryggja sér sæti í undanúrslitum ensku deildarbikarkeppninnar í knattspyrnu þegar félagið sigraði Sheffield Wednesday, 2:0, á heimavelli sínum.
Meira
CHRIS Webber, leikmaður S acramento Kings , hefur verið útnefndur leikmaður vikunnar í NBA-deildinni í körfuknattleik. Webber skoraði 28,7 stig, tók 12,7 fráköst og varði 3,3 skot að meðaltali í leik í síðustu viku.
Meira
SANDEFJORDS Blad, staðarblaðið í Sandefjord í Noregi, telur sig hafa fundið skýringuna á því hvers vegna handknattleikslið bæjarins steinlá fyrir Haukum í EHF-bikarnum á sunnudagskvöldið.
Meira
HARRY Redknapp , knattspyrnustjóri West Ham , vill fá Gareth Southgate frá Aston Villa til að fylla skarð Rios Ferdinands , sem farinn er til Leeds . Sjálfur er Southgate svartsýnn á að losna frá Villa, sem vill fá 1.250 milljónir króna fyrir hann.
Meira
Í tilefni af 40 ára afmæli Körfuknattleikssambands Íslands, sem verður 29. janúar næstkomandi, mun sambandið gefa út bók um körfuknattleik á Íslandi í hálfa öld.
Meira
"ÉG er í mun betri æfingu en í fyrra og því ætti mér að reynast auðveldara að fara í gegnum mótið en í fyrra," segir Örn Arnarson, tvöfaldur Evrópumeistari í sundi í 25 metra laug, en hann hefur titilvörn sína á Evrópumeistaramótinu í Valencia á Spáni á morgun. Örn vann bæði 100 og 200 m baksund á mótinu í fyrra og varði þá tign sína í lengri sundgreininni. Auk Arnar tekur frændi hans, Ómar Snævar Friðriksson, einnig þátt í mótinu.
Meira
ÞÓREY Edda Elísdóttir, stangarstökkvari úr FH, hefur skráð sig í háskólanám í umhverfisverkfræði í Athens í Georgíuríki. Um tíma stóð til að hún færi í háskólann í Pocatello í Idaho-ríki, en að vel athuguðu máli varð Athens fyrir valinu.
Meira
Þrátt fyrir að jafnræði væri með liðum bikarmeistara Vals og FH-stúlkum lengst af fyrri hálfleiks, í 8-liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handknattleik í gærkvöld, þá var það allan tímann eins og FH-stúlkur væru líklegri til sigurs.
Meira
AGANEFND KKÍ úrskurðaði í gær þrjá leikmenn í leikbann. Kristinn Friðriksson, Tindastóli, fékk eins leiks bann fyrir óprúðmannlega framkomu í kjölfar brottrekstrarvillu sem hann hlaut í leik gegn Haukum.
Meira
ÁTTA liða úrslit bikarkeppni Handknattleikssambandsins fer fram í kvöld. Stjarnan tekur á móti Aftureldingu, HK fær ÍR í heimsókn, tvö efstu lið 1. deildar, Fram og Haukar, mætast í Safamýrinni og Selfyssingar, sem eru í 2. deild, fá Gróttu/KR í heimsókn.
Meira
Alla jafna eru bolvískir útgerðarmenn með báta sína hinum megin við brimbrjótinn, en þessir bátar bíða næstu sumarvertíðar handan við brimbrjótsvegginn í góðu vari við öflugan varnargarð sem fyrir nokkrum árum var byggður brimbrjótnum og höfninni til...
Meira
ÞAð er ekki hægt að segja annað en að það ríki bjartsýni á meðal eigenda Fiskiðjunnar Bjargar hf. á Bakkafirði en fyrirtækið hefur látið smíða tvo nýja plastbáta hér á landi. Sjöfn NS 123, tæplega 12 tonna frambyggður plastbátur, var sjósettur á Akureyri á fullveldisdaginn 1. desember sl. en bátinn smíðaði Baldur Halldórsson skipasmiður á Hlíðarenda á Akureyri. Þá er um 6 tonna bátur í smíðum hjá Samtaki í Hafnarfirði og verður hann afhentur eigendum sínum öðru hvoru megin við næstu áramót.
Meira
BRETAR juku innflutning á fiskimjöli og lýsi þó nokkuð á fyrstu átta mánuðum þessa árs. Þeir fluttu nú inn ríflega 221.000 tonn, sem er um 15.000 tonnum meira en í fyrra. Þrátt fyrir það er heildarverðmæti nú minna en þá vegna mikilla verðlækkana.
Meira
BJARNI ÓLAFSSON AK landaði 180 tonnum af roðlausri, frystri síld á Frakklandsmarkað í Reykjavík í gær. Kvótinn er búinn og því er næst á dagskrá að fara á loðnu eftir áramótin.
Meira
Einmuna veðurblíða hefur verið í Eyjum síðustu daga og vikur og hafa trillukarlar í Eyjum notið hennar sérstaklega. Aflinn hefur verið alveg þokkalegur á línu og uppistaða hans verið falleg ýsa, enda gefur hún sig alltaf þegar hann liggur í norðanáttum.
Meira
DAVÍÐ Kjartansson var að spúla og ganga frá eftir löndun í Ísafjarðarhöfn kvöld eitt í síðustu viku. Hann sagðist hafa lagt línuna út af Kögri og fengið ágætis afla, 100 kíló á bala.
Meira
GUNNLAUGUR Gunnlaugsson , hafnarvörður á Ísafirði , tekur um áramót við starfi veiðieftirlitsmanns og "landamæravarðar" á landamærastöð Fiskistofu á Ísafirði. Þetta kemur fram í fréttablaðinu Bæjarins bezta á Ísafirði.
Meira
ÍSLAND er á hvítlista Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO, sem nú var birtur í fyrsta sinn í London. 135 þjóðir eiga aðild að svonefndri STCW-samþykkt og stóðust 72 þeirra kröfurnar, sem gerðar eru.
Meira
ÍSLAND er á hvítlista Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar, IMO, sem nú var birtur í fyrsta sinn í London. 135 þjóðir eiga aðild að svonefndri STCW-samþykkt og stóðust 72 þeirra kröfurnar, sem gerðar eru.
Meira
ÍSLENDINGAR gætu haft verulegan hag af samstarfi við Brasilíumenn á sviði sjávarútvegs og um leið miðlað af þekkingu sinni til uppbyggingar greinarinnar í landinu. Mjög lítið er vitað um stöðu fiskistofna við Brasilíu en fulltrúar brasilískra yfirvalda segjast fullvissir um að þar sé að finna gríðarlegt magn verðmætra og vannýttra tegunda.
Meira
PORTÚGAL er langstærsti saltfiskmarkaður heimsins en þangað fara um 43% heimsframleiðslunnar. Um 14% framleiðslunnar fer til Spánar sem er annar stærsti markaðurinn, eftir verulegan samdrátt í Brasilíu sem hefur 10% markaðshlutdeild.
Meira
SALTFISKIÐNAÐURINN verður á komandi árum að leggja ríka áherslu á vöruþróun og mæta þannig kröfum neytenda um fljótlegri og þægilegri vörur, enda hefur neysla á saltfiski dregist saman um 20-25% á þessu ári. Með vaxandi kaupmætti einstakra ríkja skapast aukin markaðstækifæri fyrir saltfisk, svo sem í Brasilíu, Mexíkó og á Kúbu. Þetta kom m.a. fram í erindi Ásbjarnar Björnssonar, framkvæmdastjóra SÍF Spain S.A. á Groundfish Forum sem haldin var í Madrid á Spáni dagana 17.-19. október sl.
Meira
NORÐMENN voru mestu saltfiskframleiðendur heims á síðasta ári, með um 46% framleiðslunnar. Hlutur Norðmanna hefur þó minnkað á síðstu árum, einkum á þessu ári. Íslendingar framleiddu um 25% heildarmagnsins í fyrra og hefur hlutur okkar vaxið á þessu ári.
Meira
ÍSLENSKIR aðilar gegna lykilhlutverki í nýjum fiskmarkaði sem ákveðið hefur verið að reisa í Hull í Bretlandi. Fisksölufyrirtækið Ísberg Ltd. áum helmingshlut í markaðnum en stærstur hluti fisks sem nú er seldur í Hull kemur frá Íslandi. Áætlað er að markaðurinn hefji starfsemi í ágúst á næsta ári og að um hann fari um 15 þúsund tonn af fiski á fyrsta starfsári.
Meira
ÝSAN er vinsælasti matfiskur okkar Íslendinga og hefur verið það lengi. Ýsuna má elda á óteljandi vegu eins og flestan annan fisk, allt frá þverskorinni soðinni ýsu með kartöflum og hamsatólg út í hið óendanlega.
Meira
Báturinn Sjöfn NS, sem sjósettur var á á Akureyri á fullveldisdaginn 1. desember sl., er nýsmíði Baldurs Halldórssonar skipasmiðs á Hlíðarenda númer 101 og jafnframt stærsti plastbáturinn sem hann hefur smíðað.
Meira
NOKKUR samdráttur hefur verið í rækjuvinnslu að undanförnu og hefur meðal annars verið ákveðið að loka rækjuvinnslu Hraðfrystihúss Eskifjarðar hf. tímabundið eftir áramótin. Ekki virðist samt hafa þurft að koma til uppsagna, þó dregið hafi verið úr vinnslu.
Meira
ÍSLENDINGAR gætu haft verulegan hag af samstarfi við Brasilíumenn á sviði sjávarútvegs og um leið miðlað af þekkingu sinni til uppbyggingar greinarinnar í landinu.
Meira
Samtök danska sjávarútvegsins hóta því að hætta samstarfi við yfirvöld um stjórn fiskveiða ef sjómönnum verður ekki bættur sá skaði sem er fyrirsjáanlegur vegna kvótaniðurskurðar.
Meira
SELURINN er í bullandi samkeppni við sjómenn um þorskinn. Skipverjar á ísfisktogaranum Klakki SH frá Grundarfirði höfðu betur í baráttunni á Halamiðum á dögunum en þar kom þess væni selur í trollið.
Meira
HAFRANNSÓKNIR - Beitusmokkurinn er þekktastur smokkfiska hér við land enda sá eini þeirra sem hefur verið nytjaður. Einar Jónsson, fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun, reifar veiðar á þessari skepnu hér við land, rannsóknir á henni, útbreiðslu og það sem vitað er um lifnaðarhætti; höfundur byrjar hinsvegar á að fjalla almennt um smokkfiska og hvað af því kyni er að finna í höfunum kringum Ísland.
Meira
"Að þessum tveim skólum, Stýrimannaskólanum í Reykjavík og Vélskóla Íslands, hefur beinlínis verið gerð atlaga," skrifar Guðjón Ármann Eyjólfsson, "og reynt á allan máta að gera nám og störf skólanna tortryggileg. Það gerir m.a. umrætt erindi og tilvitnuð grein."
Meira
Gyltan hefir börn á brjósti bæði stór og mörg; gefur, eins og önnur móðir, ungum sínum björg. Börnin hennar öll í einu eru svöng og þyrst; þau á spenum hennar hanga, hafa góða lyst.
Meira
Heyrðu snöggvast, Snati minn, snjalli vinur kæri, heldurðu ekki hringinn þinn ég hermannlega bæri? Lof mér nú að leika að látúnshálsgjörð þinni. Ég skal seinna jafna það með jólaköku minni. Jæja þá, í þetta sinn þér er heimil ólin.
Meira
ÞIÐ hafið væntanlega öll séð ketti í sólbaði. Fátt er eins afslappað og köttur á ylvolgri stétt eða steyptum vegg; hann lygnir aftur augunum, skottið hreyfist annað veifið og við og við rifar í annað augað.
Meira
HEFUR einhver valdamikill í fjölskyldunni þverneitað að fá hund þegar svo mikið sem minnst hefur verið á möguleikann? Borið við ýmsu eins og ofnæmi, gelti, hárum út um allt, jafnvel sóðaskap, skít á gangstéttum og grænum svæðum?
Meira
HALLÓ! Ég heiti Tómas Daði og ég myndi gjarnan vilja eignast pennavini á aldrinum 9-11 ára. Ég er 9 ára. Áhugamál mín eru: tölvur, fótbolti, stelpur og allir útileikir. Ég held með Liverpool og ég er í mörgum íþróttum. Ég vona að þið sendið mér póst.
Meira
HÆ, hæ! Ég safna öllu með Christina Aguilera, blöðrum, Celine Dion, Jim Carrey, Julia Roberts, Dracco og límmiðum. Í staðinn get ég látið: penna, fullt, fullt af skiptimiðum, Pokémon. Þeir sem vilja skipta við mig sendi bréf á þetta heimilisfang: Ásdís...
Meira
VAKA-Helgafell gefur út fyrir jólin nýja vísnabók fyrir unga sem aldna dýravini, Vísnabók um íslensku dýrin. Í bókinni eru vísur og þulur eftir ýmsa höfunda um 12 íslensk dýr. Bókin er myndskreytt af Freydísi...
Meira
VIÐ erum tvær stelpur og okkur langar að eignast netvinkonu á aldrinum 9-12 ára (við erum 10 ára). Áhugamál: Britney Spears, Celine Dion, Manchester United, hestar, skautar, skíði og badminton. Skrifið eins fljótt og þið getið!
Meira
MARÍA Myrká er einstæð móðir í þriðja ættlið í sögu Rögnu Sigurðardóttur, Strengir. María sver sig í ætt kvenna sem hver á sinn hátt hafa svalað frelsisþrá sinni á mismunandi tímum.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.