Matthías Johannessen lætur af starfi ritstjóra Morgunblaðsins nú um þessi áramót. Hann hefur verið ritstjóri Morgunblaðsins í rúmt 41 ár eða lengur en nokkur annar maður.
Meira
ÞRETTÁN manns að minnsta kosti létust og yfir 90 særðust þegar faldar sprengjur sprungu á fimm stöðum í Manila, höfuðborg Filippseyja, í gær. Vaknaði strax grunur um að íslamskir uppreisnarmenn bæru ábyrgð á tilræðunum.
Meira
EIGENDUR margra vínveitingastaða í Indianaríki í Bandaríkjunum eru æfir vegna reglna um vínveitingaleyfi sem gæti eyðilagt fyrir þeim viðskiptin á gamlárskvöld.
Meira
ÁRIÐ 2001 verða 25 ár síðan Garðabær fékk kaupstaðarréttindi. Þessum tímamótum verður fagnað með fjölbreyttri menningar- og skemmtidagskrá í Garðabæ, sem stendur allt árið. Þegar Garðabær fékk kaupstaðarréttindi árið 1976 bjuggu í bænum um 4 þúsund...
Meira
AUSTURBAKKI hf. hefur ákveðið að styrkja nokkrar barnadeildir sjúkrahúsa um þessi jól með því að gefa heilsudýnur fyrir börn frá Bay Jakobsen. Barnadeild Fjórðungssjúkrahússins á Akureyri hafa þegar verið afhentar fjórar dýnur.
Meira
BÍLALEIGAN Avis tók upp þá nýbreytni á þessu ári að velja í fyrsta sinn þjónustu- og samstarfsaðila ársins. Fyrir valinu urðu Bílheimar hf./Ingvar Helgason hf.
Meira
TOMMY Bayley, hvítur bóndi í Zimbabwe, hjólar á brott frá búgarði sínum 8. apríl en að baki honum sjást uppgjafahermenn og nokkrir nágrannar Bayleys sem lögðu búgarðinn undir sig.
Meira
Vopnaðir liðsmenn bandarískra stjórnvalda réðust inn á heimili í Flórída í apríl til að ná þar í sex ára gamlan, kúbverskan dreng, Elian Gonzalez, sem sést hér á myndinni í fangi Donato Dalrymple. Höfðu þeir falið sig inni í fataskáp.
Meira
Á FUNDI bæjarstjórnar Reykjanesbæjar 19. desember sl. var eftirfarandi ályktun lögð fram og bókuð: "Bæjarstjórn Reykjanesbæjar áréttar samþykkt 23. aðalfundar Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum frá 14. október sl.
Meira
George W. Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, veifar ásamt eiginkonu sinni, Lauru Bush, til fagnandi stuðningsmanna í Texas 13. desember eftir að Al Gore, frambjóðandi demókrata, hafði endanlega viðurkennt ósigur í forsetakosningunum. Kosið var 7.
Meira
Logatungurnar standa aftur úr Concorde-farþegaþotu Air France nokkrum sekúndum áður en flugvélin hrapaði til jarðar við Gonesse í grennd við Paris Roissy-flugvöllinn í júlí.
Meira
DAGBÓK Háskóla Íslands 1.-7. janúar. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla Íslands. Ítarlegri upplýsingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóðinni: http://www.hi.is/stjorn/sam/dagbok.html X.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt tvo nítján ára pilta í sex mánaða skilorðsbundið fangelsi en þeir rændu pizzu og 1.000 krónum af pizzusendli aðfaranótt laugardagsins 14. mars sl. fyrir utan fjölbýlishús í Reykjavík.
Meira
FRIÐRIK J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri LÍÚ, segir það rangt að útgerðarmenn hafi hafnað öllum kröfum sjómanna og segir hann að LÍÚ leggi mikið upp úr því að semja við sjómenn.
Meira
Elínborg Guðmundsdóttir fæddist 1960 á Patreksfirði. Hún lauk stúdentsprófi frá Flensborgarskóla í Hafnarfirði og útskrifaðist frá læknadeild Háskóla Íslands 1988. Hún stundaði sérfræðinám í augnlækningum í Stokkhólmi í tæp sex ár, frá 1991. Frá 1997 hefur hún rekið eigin augnlæknastofu, Augnlæknastöðina, sem hún rekur í félagi við þrjá aðra augnlækna. Hún er einnig í hlutastarfi hjá augndeild Landspítalans við Hringbraut. Elínborg er gift Páli Ólafssyni eðlisverkfræðingi og eiga þau þrjú börn.
Meira
TÆPLEGA 300 milljónir af 700 milljóna kr. framlagi úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga, sem úthlutað var nú í lok ársins, komu samanlagt í hlut Norðurlandskjördæmis eystra og Austfjarðakjördæmis og tæpar 115 milljónir til viðbótar í hlut Vestfjarða.
Meira
Vinnuhópur fanga í Afríkuríkinu Úganda rífur niður múrvegg í bænahúsi sértrúarflokks í bænum Kanungu í mars áður en þeir byrja að grafa brennd lík um 500 félaga í flokknum. Fólkið framdi sjálfsvíg með því að kveikja í sér í...
Meira
FJÖRUTÍU og níu einstaklingar létust í 37 slysum á árinu, 35 karlar og 14 konur. Það eru sextán fleiri en dóu í slysum á árinu 1999, en þá létust 33. Flestir létust í umferðarslysum, eða þrjátíu og fjórir.
Meira
FRÁ 1. janúar 2001 hækkar áskriftarverð blaðsins úr 1.667 krónum í 1.842 krónur. Að viðbættum virðisaukaskatti breytist því áskriftarverðið úr 1.900 krónum í 2.100 krónur. Grunnverð auglýsinga verður 885 krónur dálksentimetrinn án virðisaukaskatts.
Meira
SKELJUNGUR hf. hefur ákveðið að lækka verð á skipagasolíu um 3 krónur á lítra og verð á svartolíu um 1 krónu, en Olís og Olíufélagið hafa tilkynnt lækkun á skipagasolíu um 2,60 og svartolíu um 50 aura.
Meira
Í LEIÐARA Morgunblaðsins í gær er staðhæft að á árinu sem er að líða hafi tekizt fríverslunarsamningar milli Fríverslunarbandalags Evrópu EFTA og Kanada. Þetta er ekki rétt, þótt náðst hafi verulegir og góðir áfangar að þessum samningum á árinu.
Meira
Andstæðingar Albertos Fujimoris, fyrrverandi forseta Perú, veifa þjóðfánanum á svölum forsetahallarinnar í Lima í nóvember til að fagna komu arftaka Fujimoris, Valentins Paniagua.
Meira
GÁMAÞJÓNUSTAN hf. ákvað að senda viðskiptavinum sínum ekki jólakort í ár eins og venjulega hefur verið gert. Í þess stað var andvirði korta og útsendingarkostnaðar, samtals 150.000 kr., látið renna til Landssambands áhugafólks um flogaveiki (FLOG).
Meira
GEORGE W. Bush, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilnefndi á fimmtudag Donald Rumsfeld í embætti varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Stjórnarskipti verða í Bandaríkjunum í þriðju janúarvikunni.
Meira
Robert Rosenberg, sem sæti á í kjörnefnd í Broward-sýslu í Flórída, skoðar af mikilli gaumgæfni atkvæðaseðil til að ganga úr skugga um að kjósandi hafi örugglega sett merki sitt í reit við einn af frambjóðendunum í forsetakosningunum.
Meira
ALÞJÓÐLEGUR samningur um takmörkun á losun þrávirkra lífrænna efna er tvímælalaust gleðilegasta umhverfisfrétt ársins 2000 fyrir Íslendinga að mati Sivjar Friðleifsdóttur umhverfisráðherra.
Meira
Fátækum íbúum í heiminum hefur fjölgað um 200 milljónir sl. fimm ár en skuldabyrði fátækustu ríkja heims er talin ein helsta orsök þess. Hrund Gunnsteinsdóttir fjallar um stöðugt háværari kröfur um að þessari byrði verði aflétt.
Meira
I. Hann átti þann grip í eigu sinni, er honum þótti betri en annar. Það var hestur brúnmóálóttur að lit. Á þessum hesti hafði hann svo mikla elsku, að hann strengdi þess heit, að hann skyldi þeim manni að bana verða, sem honum riði án hans vilja.
Meira
ÞRÁTT fyrir lítinn snjómokstur fyrri hluta vetrar er útlit fyrir að kostnaður við vetrarviðhald vega landsins verði svipaður og í meðalári, eða jafnvel meiri.
Meira
GÍSLI Sigurðsson, ritstjóri Lesbókar, lætur af störfum um þessi áramót eftir áratugastarf á Morgunblaðinu. Gísli hóf störf á Morgunblaðinu árið 1966. "Ég hafði um átta ára skeið verið ritstjóri Vikunnar.
Meira
INGIBJÖRG Pálmadóttir, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra, hefur skipað Guðjón Brjánsson, framkvæmdastjóra Sjúkrahússins á Ísafirði, framkvæmdastjóra Heilbrigðisstofnunarinnar á Akranesi til næstu fimm ára. Níu sóttu um starfið.
Meira
Reynt að semja í Mið-Austurlöndum MIKLAR vonir voru í vikunni bundnar við að nýjar málamiðlunartillögur Bills Clintons Bandaríkjaforseta í deilu Ísraela og Palestínumanna myndu skila árangri, en þær vonir dvínuðu á ný eftir að fulltrúar Palestínumanna...
Meira
AÐ standa upp af stól krefst nákvæmrar samhæfingar er yfirskrift veggspjalds Maríu H. Þorsteinsdóttur, lektors á sjúkraþjálfunarskor Háskóla Íslands, sem kynnt verður á ráðstefnu um rannsóknir í læknadeild Háskólans 4. og 5. janúar.
Meira
Ættingjar skipverja rússneska kjarnorkukafbátsins Kúrsk fleygja blómum í hafið þar sem kafbáturinn fórst 12. ágúst. Sprenging varð um borð í Kúrsk er hann tók þátt í heræfingum og sökk hann á litlu dýpi á Barentshafi.
Meira
SKÓGAFOSS er ekki síður vígalegur á veturna en sumrin. Fossinn, sem steypist tugi metra niður, er ekki árennilegur íklæddur hrikalegri og úfinni...
Meira
TÍÐARFAR á árinu sem er að líða hefur lengst af verið hagstætt, samkvæmt tíðarfarsyfirliti Veðurstofunnar, og sumarið 2000 sker sig úr fyrir það hversu sólríkt það var, einkum norðan heiða.
Meira
ÍSLANDSSÍMI hf. verður helsti samstarfsaðili Listasafns Reykjavíkur næstu árin, samkvæmt nýjum samningi sem undirritaður var í gær af forsvarsmönnum Íslandssíma og Listasafnsins.
Meira
Snemma á árinu lækkaði gengi bréfa í nýjum fyrirtækjum á sviði hátækni skyndilega og var jafnvel um að ræða hrun í sumum tilvikum. Þau réttu þó aftur nokkuð úr kútnum en árið hefur einkennst af miklum sveiflum.
Meira
Vala Flosadóttir íþróttamaður ársins 2000 VALA Flosadóttir, frjálsíþróttakona úr ÍR, var kjörin íþróttamaður ársins 2000 af Samtökum íþróttafréttamanna.
Meira
Þau áramót, sem nú fara í hönd, marka árþúsundaskipti meðal þeirra þjóða heims sem miða tímatal sitt við fæðingu frelsarans. Sá atburður markaði dýpstu spor í sögu mannkyns. Þá hófst ný tíð.
Meira
RÓLEGT var á Hveravöllum um jólin og ekki er gert ráð fyrir mikilli umferð fólks þar um áramótin, að sögn Hafsteins Eiríkssonar veðurathugunarmanns.
Meira
SLÖKKVILIÐIÐ á höfuðborgarsvæðinu verður með aukinn viðbúnað um áramótin og verður fjölgað á öllum vöktum. Þá verða þrefalt fleiri lögreglumenn við störf en um venjulega helgi.
Meira
Á FÉLAGSFUNDUM Búseta Reykjavíkur, Búseta Garðabæ og Búseta Mosfellsbæ dagana 27. og 28. desember s.l. var samþykkt að sameina öll þrjú félögin undir merkjum Búseta Reykjavík. Hið nýja félag hefur um 2.
Meira
LANGAR biðraðir mynduðust við verslanir ÁTVR í fyrradag og var örtröðin eftir áramótaáfenginu víða slík að verslunarstjórar neyddust til að hleypa viðskiptavinum inn í hollum.
Meira
Það er tómahljóð í alþjóðahyggjunni, segir hinn merki þjóðfélagsheimspekingur, Isiah Berlin, í athyglisverðu samtali sem ég las á sínum tíma. Hann segir að fólk geti ekki þroskazt nema það sé þáttur af sérstæðri menningu; heyri einhverju samfélagi til.
Meira
Tuttugasta öldin, sem nú er liðin, hefur verið okkur Íslendingum farsæl. Á þeirri öld komst íslenzka þjóðin frá fátækt til bjargálna. Um síðustu aldamót vorum við fátæk þjóð og fámenn.
Meira
30. desember 1990: "Með hruni kommúnismans hafa þeir kraftar verið leystir úr læðingi, sem eiga eftir að gera níunda áratuginn einn hinn sögulegasta á öldinni.
Meira
MARGAR stjörnur komu í heiminn víða um veröld á gamlársdag og má þar nefna kínversku leikkonuna Gong Li, sem verður 35 ára í dag, ítalska tónskáldið Nino heitinn Rota, bandaríska leikarann Val Kilmer, söngfuglinn ameríska Donnu Summer, breska leikarann...
Meira
MÁLVERKIÐ á myndinni er eftir breska skáldið og myndlistarmanninn William Blake. Myndin nefnist "The Ancient Days", sem útleggja má á íslensku sem "Hinir fornu dagar", og er þessa dagana til sýnis í Tate-safninu í London.
Meira
Kristjana Stefánsdóttir söngur, Sunna Gunnlaugsdóttir píanó, Joris Teppe bassa og Scott McLemore trommur. Kaffi Reykjavík fimmtudagskvöldið 28.12. 2000.
Meira
Í MÓTUM er ritsmíð um sjónmenntir í Vínarborg, þar sem meðal annars er vikið að hinu þekkta málverki, Madonna á enginu, á Listsögusafninu við Theresíutorg.
Meira
Á áramótum er góður siður að líta um öxl og skoða það sem hæst hefur borið. Myndbandagagnrýnendur Morgunblaðsins hafa tekið, hver fyrir sig, saman lista yfir tíu frambærilegustu kvikmyndirnar, að þeirra mati, sem settust á hillur myndbandaleiga landsins á árinu. Vitanlega eru miklu fleiri góðar myndir sem komu út - myndir sem hefðu sæmt sér vel á eftirfarandi listum. Meira
Leikstjóri John Ottoman. Handritshöfundur Silvio Horta, Paul Harris Boardman og Scott Derrickson. Tónskáld John Ottoman. Kvikmyndatökustjóri Brian Pearson. Aðalleikendur Jennifer Morrison, Matthew Davis, Hart Bochner, Loretta Devine, Joseph Lawrence. Sýningartími 90 mín. Bandarísk. Columbia. Árgerð 2000
Meira
SJÓNBAUGAR er ljóðabók eftir Garðar Baldvinsson en hún hlaut viðurkenningu dómnefndar um Bókmenntaverðlaun Tómasar Guðmundssonar fyrr á þessu ári.
Meira
Leikstjórn og handrit: M. Night Shyamalan. Aðalhlutverk: Bruce Willis, Samuel L. Jackson, Robin Wright Penn, Charlayne Woodard og Spencer Treat Clark. Touchstone Pictures 2000.
Meira
SIGRÍÐUR Ólafsdóttir opnar sýningu á textílhönnun og collage-myndum í Listhúsi Ófeigs, Skólavörðustíg 5, þriðjudaginn 2. janúar kl. 16. Sigríður hefur hlotið menntun sína hér heima og í útlöndum, nú síðast árið 1996 í Forum design center i Malmö.
Meira
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar Sýningunni Hærra til þín, sem er samstarfsverkefni Listsafns Sigurjóns Ólafssonar og Listasafns Reykjavíkur - Ásmundarsafn, lýkur fimmtudaginn 4. janúar.
Meira
Magnús Blöndal Jóhannsson: Elektrónísk stúdía f. píanó & tónband (1959); 15 minigrams f. tréblásarakvartett (1961); Samstirni (Constellation) f. tónband (1960); Punktar f. sinfóníuhljómsveit & tónband; Sonorities I f. píanó (1963); Sonorities III f.
Meira
50 ÁRA afmæli . Í dag, 31. desember, verður fimmtugur Árni B. Sigurðsson, framkvæmdastjóri, Vorbejergbakken 11, DK 8240, Rissokv, Danmörku. Hann verður staddur á afmælisdaginn í Mexíkó, Mazatlan, í síma...
Meira
80 ÁRA afmæli. Í dag, 31. desember, verður áttræður Sveinn Elíasson, fyrrverandi útibússtjóri Landsbankans, Dúfnahólum 2, Reykjavík. Eiginkona hans er Sveinbjörg Zóphoníasdóttir. Þau eru að heiman í...
Meira
80 ÁRA afmæli. Á morgun, 1. janúar, nýársdag, verður áttræður Friðrik A. Jónsson, stýrimaður frá Bolungarvík, búsettur í Hafnarfirði . Eiginkona hans er Guðrún A. Ingimundardóttir...
Meira
1. Hver eru mestu viðfangsefni þjóðarinnar á fyrstu árum 21. aldarinnar? 2. Hverjar eru mestu hættur, sem steðja að sjálfstæði Íslands, íslenzkri tungu og sögulegri menningararfleifð, þegar horft er fram eftir 21. öldinni? 3.
Meira
ÁRIÐ 2000 hefur einkennst af miklum sveiflum í rekstrarumhverfi sjávarútvegsins. Ljóst er að afkoma sjávarútvegsfyrirtækja verður mun lakari en í fyrra.
Meira
ÞESSI spurning hefur oft komið upp í huga mér undanfarnar vikur eftir því sem lengra hefur liðið á verkfall framhaldsskólakennara. Ég hef verið að velta því fyrir mér hvaða skilaboð það eru sem ráðamenn þessarar þjóðar eru að senda okkur skattborgurum.
Meira
ÞEIR sem stýra þróun tungumálsins framar öllum eruð þið fjölmiðlamenn nútímans. Dag hvern gnýr það á eyrum vor sem kemur úr munni ykkar. Ungt fólk lærir tunguna af vörum ykkar um ljósvakann.
Meira
1. Viðfangsefni okkar og tækifæri á leið til betra mannlífs og aukinna lífsgæða eru fleiri og meiri en nokkru sinni fyrr, þegar horft er til breyttra aðstæðna í menntun og efnahagslífi þjóðarinnar.
Meira
SKIPTAR skoðanir hafa verið um það hvort sálir okkar mannanna lifi eftir þessa jarðvist. Sumir álíta jafnvel að engin sál sé til. Meðal fjölhæfs gáfufólks er þessi hugsanagangur ríkjandi og er þá hvorki trúað á tilveru Guðs né annarra ósýnilegra anda.
Meira
VIÐ SEM búum út á landi og erum víst kallað landsbyggðarfólk treystum mikið á stofnun sem kallar sig Íslandspóst, bæði er við sendum öðrum eitthvað eða fáum sent eitthvað.
Meira
ÍSLANDSPÓSTUR hefur verið mikið í fréttum að undanförnu. Víkverja datt í hug, af því tilefni, kostnaðarliðurinn "tollskýrslugerð" sem hann áttaði sig á að væri til, þegar vinur hans pantaði sér íþróttatreyju frá Bandaríkjunum fyrir skemmstu.
Meira
1. Stærsta verkefnið tel ég vera að snúa vörn í sókn í þágu velferðarkerfisins og treysta forsendur þess sem ég kýs að kalla samábyrgt velferðarþjóðfélag.
Meira
ÞEGAR þeir, sem starfa við ferðaþjónustu líta yfir árið sem er að líða og freista þess að meta árangurinn verður niðurstaðan mismunandi eftir fyrirtækjum, landshlutum og fleiru.
Meira
NÚ ER senn lokið þessu síðasta ári áratugarins og aldarinnar. Hvað ferðaþjónustuna varðar hefur þetta ár verið enn eitt metárið í fjölda erlendra og íslenskra ferðamanna sem koma inn í landið.
Meira
MIG langar að taka undir það sem Rúna sagði í Velvakanda fimmtudaginn 28. desember sl. um þáttinn Milli himins og jarðar í Ríkissjónvarpinu. Mér fannst þessi þáttur til háborinnar skammar og lítilsvirðing á boðskap jólanna. Margrét.
Meira
MORGUNBLAÐIÐ birtir tilkynningar um afmæli, brúðkaup, ættarmót og fleira lesendum sínum að kostnaðarlausu. Tilkynningar þurfa að berast með tveggja daga fyrirvara virka daga og þriggja daga fyrirvara fyrir sunnudagsblað.
Meira
Nú árið er liðið í aldanna skaut og aldrei það kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eilífðar braut, en minning þess víst skal þó vaka.
Meira
PERLUBRÚÐKAUP . Í dag, 31. desember, eiga 30 ára brúðkaupsafmæli hjónin Hildigunnur Eyfjörð Jónsdóttir og Ásmundur Hólm Þorláksson til heimilis í Stapasíðu 18, Akureyri. Þau eru heima á þessum...
Meira
Í dag er sunnudagur 31. desember, 366. dagur ársins 2000. Gamlársdagur, Sylvestrimessa. Orð dagsins: Því að ekki er Guðs ríki matur og drykkur, heldur réttlæti, friður og fögnuður í heilögum anda.
Meira
BLIKUR eru á lofti í alþjóðamálum. Ætla má að Bandaríkin og Evrópusambandið muni á næstu árum beina sjónum sínum meira að innanríkismálum en undanfarin ár og samkeppni muni aukast á öllum sviðum milli þessara risa.
Meira
DEILT er um með gildum rökum hvort þúsaldamót voru um síðustu áramót eða þessi. Það skal ósagt látið hve mikilvægar slíkar deilur eru en við áramót er ágætt að rifja upp helstu verkefni liðins árs og þess næsta.
Meira
ÁRIÐ 2000 hefur verið viðburðaríkt ár innan lands sem utan. Aþjóðavæðing í fjölbreyttri mynd ryður sér brautir um alla jarðarkringluna; alls staðar af þunga og með vaxandi hraða, sums staðar af miklu offorsi.
Meira
VIÐ ÞESSI tímamót er rétt að vekja athygli á alþjóðlegum staðli (ISO8601) um hvernig rita skuli tímasetningar á talnaformi. Samkvæmt staðlinum skal rita gamlársdag þessa árs með 2000-12-31. Styttingar eru leyfðar eins og t.d.
Meira
STAÐAN í íslensku efnahags- og atvinnulífi við þessi áramót er á margan hátt góð. Hagvöxtur á undanförnum árum hefur skilað sér í bættri afkomu fyrirtækja og einstaklinga og aukin umsvif í hagkerfinu hafa leitt til vaxandi tekna ríkissjóðs.
Meira
SÍFELLT fleiri þegnar þessa þjóðfélags jafnt sem annarra vestrænna þjóðfélaga láta sig varða verndun umhverfis. Bændur eru í þeim hópi og hafa þeir á undanförnum árum starfað ötullega á mörgum sviðum umhverfismála.
Meira
Í UPPHAFI nýrrar aldar er fyllsta ástæða til að vera bjartsýnn um framtíð sjávarútvegsins. Fyrir rúmum áratug stóðu samtök útvegsmanna að gerð metnaðarfullra heimildarmynda um íslenskan sjávarútveg sem lýsa vel þeim breytingum sem áttu sér stað á...
Meira
ÁRIÐ sem er að líða hefur verið viðburðaríkt hjá verkalýðshreyfingunni. Kjarasamningar voru endurnýjaðir sl. vor með metnaðarfullum markmiðum sem brýnt er að ná þótt útlitið sé því miður tvísýnt nú um áramótin.
Meira
HAGSMUNABARÁTTA SFÁÚ beinist öll að því að vel rekin fiskvinnslufyrirtæki á Íslandi geti sem slík átt sér lífvænlega framtíð. Í almennum skilningi hafa auðvitað öll hagsmunasamtök þetta sama meginmarkmið. Barátta SFÁÚ hefur þó talsverða sérstöðu.
Meira
ÁRIÐ, sem nú er senn á enda, hefur verið mikið afmælisár. Þó í hugum flestra beri hæst kristnitöku- og landafundaafmæli þá héldu kaupmenn upp á að hálf öld var liðin frá stofnun Kaupmannasamtaka Íslands.
Meira
Aðalbjörn Þorgeir Björnsson fæddist í Hafnarfirði 6. nóvember 1931. Hann lést 22. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Maríus Hansson skipstjóri, f. 16.1. 1898, á Brúarenda í Reykjavík, d. 14.8.
MeiraKaupa minningabók
Aðalbjörn Þorgeir Björnsson fæddist í Hafnarfirði 6. nóvember 1931. Hann lést 22. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru Björn Maríus Hansson skipstjóri, f. 16.1. 1898, á Brúarenda í Reykjavík, d. 14.8.
MeiraKaupa minningabók
Benedikt Oddsson fæddist í Keflavík 8. maí 1970. Hann lést af slysförum 30. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 7. desember.
MeiraKaupa minningabók
Benedikt Oddsson fæddist í Keflavík 8. maí 1970. Hann lést af slysförum 30. nóvember síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 7. desember.
MeiraKaupa minningabók
Elías Þórðarson fæddist á Fit á Barðaströnd 7. október 1921. Hann lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar 11. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þórður V. Marteinsson frá Grænhól, f. 1. maí 1879, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Elías Þórðarson fæddist á Fit á Barðaströnd 7. október 1921. Hann lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar 11. desember síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Þórður V. Marteinsson frá Grænhól, f. 1. maí 1879, d. 7.
MeiraKaupa minningabók
Jófríður Björnsdóttir fæddist í Bæ á Höfðaströnd 27. september 1927. Hún lést á heimili sínu 20. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Sauðárkrókskirkju 28. desember.
MeiraKaupa minningabók
Jófríður Björnsdóttir fæddist í Bæ á Höfðaströnd 27. september 1927. Hún lést á heimili sínu 20. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Sauðárkrókskirkju 28. desember.
MeiraKaupa minningabók
Júlíana Viggósdóttir fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1929. Hún lést 14. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 28. desember.
MeiraKaupa minningabók
Júlíana Viggósdóttir fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1929. Hún lést 14. desember síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 28. desember.
MeiraKaupa minningabók
Rannveig Dýrleif Matthíasdóttir fæddist í Grímsey 4. nóvember 1910. Hún lést 21. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Matthías Eggertsson, prestur, f. 15. júní 1865, og kona hans Mundíana Guðný Guðmundsdóttir, f. 29. apríl 1869.
MeiraKaupa minningabók
Rannveig Dýrleif Matthíasdóttir fæddist í Grímsey 4. nóvember 1910. Hún lést 21. desember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Matthías Eggertsson, prestur, f. 15. júní 1865, og kona hans Mundíana Guðný Guðmundsdóttir, f. 29. apríl 1869.
MeiraKaupa minningabók
TOYOTA seldi sinn fyrsta bíl í Bandaríkjunum fyrir 42 árum og nú stefnir allt í það að fyrirtækið nái 10% markaðshlutdeild á þessum risavaxna markaði.
Meira
BMW kynnir á bílasýningunni í Detroit í næsta mánuði hraðskreiðasta fjöldaframleidda jeppa heims. Þetta er BMW X5 með 4,6 lítra afbrigði af 4,4 lítra, V8 vélinni, sem er í núverandi X5. Fullu nafni heitir jeppinn X5 4.6 iS og kemur á markað í Evrópu...
Meira
Við áramót er venjan að staldra við, rifja upp liðið ár og spá í framtíðina. Í annarri grein af þremur, sem hér birtist, er rætt við forsvarsmenn bílaumboðanna og þeir fengnir til að spá í spilin.
Meira
Lengd: 3,72 m.Breidd: 1,60 m.Hæð: 1,38 m. Eigin þyngd: 968 kg.Heildarþyngd: 1.380 kg.Farangursrými: 280/953 lítrar.Vél: 1,6 lítrar, 120 hestöfl. Gírkassi: Fimm gírar, handskiptur.Hemlar: ABS, diskar á öllum hjólum.
Meira
BORGÞÓR Guðjónsson, vinnuvélaverktaki frá Reyðarfirði, er að fara ásamt eiginkonu sinni, Kristínu, og átta ára gömlu barnabarni, Sigþóri, á skíði til Val di Fiemme á Ítalíu yfir jól og áramót.
Meira
HELSTA driffjöðurin að baki útliti á nýjum Chrysler bílum síðastliðin tólf ár er yfirmaður hönnunardeildar fyrirtækisins, Tom Gale. Mikil tímamót eru nú í lífi Gale, sem lætur af störfum um áramótin eftir 33 ára gifturíkan feril hjá Chrysler.
Meira
Borgþór Guðjónsson, Sigurður Halldórsson og Yann Kolbeinsson eiga það allir sammerkt að vera erlendis yfir áramótin. Áfangastaðirnir eru þó breytilegir.
Meira
ÓLÍKT flestum þjóðum kusu Japanir að halda ekki upp á þúsaldamótin um síðustu áramót, heldur munu þeir bjóða nýju öldina velkomna 1. janúar 2001 á þeim forsendum að ein öld vari frá ári 1 til 100.
Meira
SIEMENS í Þýskalandi vinnur nú að þróun nýrrar gerðar hjólbarða sem eru með innbyggða í gúmmíið skynjara úr keramiki. Hlutverk þeirra er að fylgjast stöðugt með hita, loftþrýstingi og veggripi hjólbarðanna.
Meira
Fallegar götumyndir, kastalar og ágæt söfn leynast austan línunnar sem eitt sinn skipti Þýskalandi. Sigurbjörg Þrastardóttir nýtti sér skilvirkt lestarkerfi og ferðaðist um austurhluta landsins.
Meira
Á Djurgården í Stokkhólmi er tívolí og dýragarður borgarinnar, ásamt fjölmörgum söfnum og skemmtigörðum. Pétur Gunnarsson skoðaði nýjasta safnið sem er helgað barnamenningu og sögum Astrid Lindgren.
Meira
FERÐAÁÆTLUN Ferðafélags Íslands fyrir árið 2001 er komin út en í bæklingnum eru meðal annars kynntar dags- og kvöldferðir, helgarferðir og sumarleyfisferðir ferðafélagsins.
Meira
SÝNINGIN Convergence er haldin árlega í bílaborginni Detroit í Bandaríkjunum. Þar eru leiddir saman raftækja- og bílaframleiðendur og jafnan margt um nýjungar. Að þessu sinni bar mest á tækninýjungum á sviði öryggismála og þægindabúnaði ýmiss konar.
Meira
MINNSTI bíllinn frá Citroën heitir Saxo. Þetta er í raun sami bíll og Peugeot 106, enda um sömu samsteypuna að ræða, PSA. Saxo fékk andlitslyftingu á árinu sem er að líða sem skerpir skilin á milli hans og 106.
Meira
ÚTLIT er fyrir að tekjur ríkisins af bifreiðum og bifreiðanotkun aukist um nálægt 10% á þessu ári frá árinu 1999, samkvæmt upplýsingum sem Félag íslenskra bifreiðaeigenda hefur viðað að sér. Alls eru tekjurnar ríflega 32.
Meira
HINNI margumtöluðu þúsaldarhvelfingu í London verður formlega lokað á nýársdag eftir algjörlega misheppnað ár. Hvelfingin var tekin í notkun á gamlársdag í fyrra og átti að verða mesta aðdráttarafl ferðamanna á ári þúsaldarskipta.
Meira
ÍSLENSKIR spilarar þekkja vel veiku opnanirnar á tveimur hjörtum og spöðum, sem sýna fimm spil í viðkomandi lit og minnst fjórlit til hliðar í láglit.
Meira
JÓLASKÁKÞRAUTIRNAR voru af ýmsum toga eins og áður. Ekki er að efa að sumar þeirra komu nemendum Skákskóla Íslands kunnuglega fyrir sjónir enda hafa þær verið meðal viðfangsefna nemenda þar.
Meira
Slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur: Slysadeild Sjúkrahúss Reykjavíkur er opin allan sólarhringinn og sinnir slysa- og neyðartilfellum. Sími slysadeildar er 5251700 . Slökkvilið, sjúkrabifreið og lögregla: Neyðarnúmer fyrir allt landið í síma 112.
Meira
FYRIR stuttu lauk skákhátíð í York á Englandi. Adam Raoof hafði veg og vanda að henni eins og segja má um flest alþjóðleg skákmót sem haldin eru á Bretlandseyjum. Nokkrir Íslendingar hafa tekið þátt í mótum hans, en þau eru orðin fáein yfir árið.
Meira
1. Hvaða kunni tónlistarmaður kom hingað til lands á árinu og lék á tónleikum? a. Pete Townshend b. Roger Whittaker c. Ray Davies d. Gilbert O'Sullivan 2. Frægt farsímafyrirtæki í Svíþjóð fékk ekki úthlutað leyfi fyrir þriðju kynslóðar farsímakerfi.
Meira
1.Hvað heitir strákurinn sem á Pikachu í Pocémon-myndinni? a. Gary b. Brock c. Ash d. James 2.Bergljót Arnalds fékk hvatningarverðlaun fyrir að vera frumkvöðull að útgáfu íslenskra tölvubóka og tölvuleikja (Talnapúkinn).
Meira
1. Hver eftirtalinna verðlauna féllu ekki í skaut Bjarkar Guðmundsdóttur á árinu? a. Gullpálminn b. Bjartsýnisverðlaun Bröste c. Evrópsku kvikmyndaverðlaunin d. Edduverðlaunin 2.
Meira
HONUM brá í brún, vikapiltinum á hótelinu góða í Bologna sem kennt er við þrjá öldunga, þegar hann tók upp töskuna. Æðar stóðu út úr hálsi og blóð hljóp í augu. "Hvað er eiginlega í töskunni, lík?
Meira
Í BORGARSKJALASAFNI má finna gamalt og lúið dreifibréf sem lætur lítið yfir sér og geymir þó "program" hátíðarhalda aldamótanna 1900-1901 en boðað var til mannfagnaðar á Austurvelli af því tilefni.
Meira
The Straight Story (David Lynch) Lynch hefur gert óvenjulegar myndir en þessi er sú óvenjulegasta. Segir frá gamalmenni sem keyrir á sláttuvél vikum saman eftir þjóðveginum að hitta bróður sinn. Byggð á sönnum atburðum.
Meira
ÞÓRUNN Einarsdóttir í Baldursheimi I í Mývatnssveit sagði að árið sem nú er að líða hafi verið ósköp venjulegt, sumarið mjög gott og heyfengur ágætur.
Meira
Það liggur við að maður skammist sín fyrir að hafa það ekki nógu gott og lætur þess vegna eins og maður hafi það gott, skrifar Ellert B. Schram í annál sínum um árið sem er að líða.
Meira
BJÖRK Guðmundsdóttir var kjörin besta leikkonan á kvikmyndahátíðinni í Cannes í Frakklandi fyrir hlutverk sitt í mynd Danans Lars Von Triers, Dancer in the Dark. Myndin hlaut Gullpálmann á hátíðinni.
Meira
Sjálfboðaliðinn gefur öðrum án þess að taka út laun sín, jafnvel án þess að láta nafns síns getið. Hann er fús til að rétta öðrum hjálparhönd án þess að eiga inni greiða hjá þeim. Sjálfboðaliðinn býst ekki við að vera getið fyrir verk sín í fjölmiðlum.
Meira
"Því hungraður var ég, og þér gáfuð mér að eta, þyrstur var ég, og þér gáfuð mér að drekka, gestur var ég, og þér hýstuð mig, nakinn og þér klædduð mig, sjúkur og þér vitjuðu mín, í fangelsi var ég, og þér komuð til mín. [...
Meira
Botnleðjumenn breyttu nokkuð um stíl og stefnu á sinni fyrstu plötu í tvö ár. Tónlistin var öllu mýkri en menn eiga að venjast en rokkið ólgaði undir niðri.
Meira
Breska tríóið Clinic vakti mikla athygli fyrir tólftommur sem safnað var saman á breiðskífu á síðasta ári, skemmtilega galgopalegt rokk sem gaf fögur fyrirheit.
Meira
RÚMUR áratugur er liðinn síðan Trent Reznor sendi frá sér fyrstu plötuna undir nafninu Nine Inch Nails og síðan hefur hann ekki gert nema tvær breiðskífur, síðast The Fragile sem kom út á síðasta ári. Í kjölfar plötu númer tvö, sem var ekki ýkja vel tekið til að byrja með, sendi hann frá sér safnskífur með endurunnum lögum og eins er með Fragile, fyrir skemmstu kom út skífan Things Falling Apart.
Meira
"MÉR er efst í huga, nú í lok ársins, þau miklu áföll sem Vestmannaeyjar hafa orðið fyrir síðustu vikur og mánuði," segir Guðjón Hjörleifsson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum.
Meira
Fáir tónlistarmenn eru eins umdeildir um heim allan og Marshall Mathers sem kallar sig meðal annars Eminem. Það verður þó ekki af honum skafið að hann er frábær textasmiður og með fremstu flytjendum. Þegar við bætist að hann hefur Dr.
Meira
ANDRI Sigþórsson knattspyrnumaður var mikið í sviðsljósinu á árinu. Hann tryggði KR Íslandsmeistaratitilinn með mikilvægum mörkum en hann vann það afrek að skora öll mörk vesturbæjarliðsins þegar það sigraði Stjörnuna, 4:1, í lokaumferð deildarinnar.
Meira
ÁRIÐ 2000 er senn á enda og víst er að það verður fólki misjafnlega eftirminnilegt. Sumir hafa gengið í gegnum erfiða reynslu og aðrir reynt sérstaka og skemmtilega atburði.
Meira
Frá Texas kemur hver fyrirtaks rokksveitin af annarri, nú síðast At The Drive-In sem á eftir að vera áberandi í rokkútvarpi hér á landi á næstunni ef að líkum lætur.
Meira
HARÐUR jarðskjálfti, 6,5 stig á Richter, reið yfir Suðurland á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Upptök skjálftans voru í Holtum í Rangárvallasýslu og urðu miklar skemmdir á húsum, ekki síst á Hellu og í sveitunum í vestanverðri sýslunni.
Meira
HARÐUR jarðskjálfti, 6,5 stig á Richter, reið yfir Suðurland á þjóðhátíðardaginn, 17. júní. Upptök skjálftans voru í Holtum í Rangárvallasýslu og urðu miklar skemmdir á húsum, ekki síst á Hellu og í sveitunum í vestanverðri sýslunni.
Meira
Fyrsta plata Wu Tang-klíkunnar olli straumhvörfum í rappinu og allar plötur þeirra Wu Tang-manna sem á eftir fylgdu hlutu að standa í skugga frumraunarinnar.
Meira
ÞRETTÁN manns biðu björgunar í liðlega þrjá tíma á þaki rútu sem festist í vaði á Lindaá þar sem kvíslar úr Jökulsá á Fjöllum flæða í hana. Atburðurinn átti sér stað í ágúst og var úrhellisrigning og rok meðan fólkið beið á þakinu.
Meira
Magnolia ( Paul Thomas Anderson) Aðgát skal höfð í nærveru sálar. Það er drama hversdagsins, bíómyndin sem við erum öll að leika í, rétt eins og framúrskarandi leikarar þessarar myndar.
Meira
Hvaða þætti þroskar sjálfboðaliðastarfið helst hjá ungu fólki? "Ég mundi segja að sjálfboðaliðastarf þroski marga þætti hjá ungu fólki. Ungt fólk sem tekur þátt í sjálfboðaþjónustu á vegum Ungs fólks í Evrópu fer eitt til annars Evrópulands.
Meira
Hver er hugsjón sjálfboðaliðans? "Ég geri ráð fyrir að þú viljir fá svar út frá sjónarhóli kristilegrar sjálfboðaliðahreyfingar," svarar Kjartan Jónsson kristniboði og framkvæmdastjóri KFUM og K.
Meira
ÞESSI þróun gerir að verkum að um áramót hefur maður á tilfinningunni að síðustu 12 mánuðirnir hafi ekki verið neitt til að hrópa húrra fyrir. Sífellt hrakandi "jólamyndir", eiga sinn þátt í því.
Meira
ÞÚSUNDIR manna voru á kristnihátíð á Þingvöllum í byrjun júlí en einmuna blíða ríkti alla helgina. Fjölbreytt dagskrá var frá morgni til kvölds en hápunktur hátíðarinnar var hátíðarmessa á sunnudag.
Meira
Að jafn fámenn þjóð og Íslendingar skuli hafa verið í fararbroddi í jafn viðamiklu verkefni og alþjóðlegri takmörkun á losun þrávirkra lífrænna efna hlýtur að vekja athygli.
Meira
GUNNAR Marel Eggertsson og áhöfn hans á víkingaskipinu Íslendingi sigldi frá Íslandi til Ameríku í sumar til þess að minnast siglinga Eiríks rauða, Leifs heppna og annarra norrænna víkinga sem leiddu til landafundanna fyrir þúsund árum.
Meira
REGGÍ HEFUR verið í mikilli sókn á þessu ári og stöðugur straumur af skífum með endurútgefinni snilld frá fyrri árum. Mikið hefur borið á frábærum safnskífum frá Blood & Fire, en einnig hefur nokkuð verið um fyrirtaksplötur frá Soul Jazz/Universal Sound-útgáfunni. Þar á meðal er safndiskur með Jackie Mittoo, sem er hvalreki á fjörur reggívina, ekki síður en tónlistaráhugamanna almennt, en einnig er vert að minast tíundu ártíðar Mittoos fyrir skemmstu.
Meira
EIGINÚTGÁFA hefur blómstrað á árinu og fjölmargir tónlistarmenn gefið út plötur sem útgáfufyrirtæki myndu líkastil fæst sinna. Fyrr á þessu ári kom út diskur sem kallast Jarðhörpusálmar, en á honum leikur Lárus Sigurðsson eigin tónverk á hljóðfæri sem hann hefur smíðað sjálfur og kallar jarðhörpur eða lýrur, en það eru hörpur að forngrískri fyrirmynd. Lárus gefur diskinn sjálfur út.
Meira
Johnny Cash verður sífellt betri og aldrei hefur hann verið einlægari og sterkari en á Solitary Man. Líkt og á fyrri skífum fyrir American-útgáfuna tekur hann eigin lög í bland við gamla slagara, þjóðlög og nýleg popplög.
Meira
Kanadíska rokksveitin Godspeed You Black Emperor! gengur eins langt í listaspírurokki og hægt er að komast með endalausum lögum sem heita óskiljanlegum heitum.
Meira
Forréttur: Heitreyktur úteyjarsilungur með piparrótarsósu og fersku salati. Aðalréttur: Rauðvínsmaríneraður lambaframhryggsvöðvi með rósmarínsósu. Eftirréttur: Skyr- og mysuostastrýta með...
Meira
Mínus var hljómsveit ársins og í forsvari fyrir endurreisn íslensks rokks. Platan Jesus Christ, Bobby var framúrstefnuleg á sinn hátt, ekki bara harðkjarni heldur framsækinn harðkjarni sem undirstrikar að heilmikið er að gerast hjá sveitinni.
Meira
Neðan úr níunda heimi er ekki eiginleg breiðskífa, heldur frekar kynningarútgáfa, en gefur samt góða mynd af því hvað liðsmenn eru að fást við. Vígspá er með skemmtilegri tónleikasveitum og ekki síður skemmtileg á plasti.
Meira
Plata 200.000 naglbíta nánast gleymdist á árinu fyrir einhverjar sakir og það óverðskuldað því að hún er tvímælalaust með því besta sem út kom, kraftmikið grípandi íslenskt rokk og gott mótvægi við amerískan...
Meira
Poppkóngarnir biðu í aldarfjórðung með að senda frá sér plötu en þegar hún loks kom var hún vel biðarinnar virði. Öðrum þræði er platan langþráð breiðskífa Dr.
Meira
ELLEN Ingvadóttir, löggiltur dómtúlkur og skjalaþýðandi, var meðal níu skipverja og að auki eina konan í víkingaskipinu Íslendingi sem á fjórum mánuðum á þessu ári sigldi í kjölfar Leifs Eiríkssonar landkönnuðar milli Íslands og vesturheims.
Meira
Hundrað ára! Enn er á lífi um tugur Íslendinga sem fæddust aldamótaárið 1900 og nær þrefalt fleiri sem fæddust árið 1901. Guðni Einarsson hitti tvö aldamótabörn að máli sem bæði fæddust árið 1900.
Meira
Ingibjörg Narfadóttir er fædd 13. júní 1900 þar sem nú eru Sólheimar í Grímsnesi en hét Hverakot þegar Ingibjörg fæddist. Hún kennir sig alltaf við gamla bæjarnafnið.
Meira
"ÉG ER þakklát fyrir að ekki fór verr - og auðvitað sér maður margt í öðru ljósi og hugsar öðruvísi en áður," segir Valgerður Gunnarsdóttir, 17 ára skíðakona frá Seyðisfirði, en hún lenti í alvarlegu skíðaslysi í Bad Hofgastein í Austurríki í...
Meira
ELDGOS var í Heklu í febrúar. Gosið hófst klukkan 18.17 laugardaginn 26. febrúar. Vísindamenn sáu gosið fyrir. Hálftíma áður en það hófst sýndu þenslumælar breytingar sem þeir túlkuðu þannig að kvika væri að þrýsta sér hratt upp í efstu gosrás Heklu.
Meira
ÉG er stödd í París þessi jólin og áramótin. Frakkar virðast vera svona í frekar rólegum gír yfir hátíðirnar þó mikið beri á auglýsingum og á Þorláksmessu var eitthvað um öngþveiti í búðum og talsvert um menn arkandi með jólatré undir hendinni.
Meira
Hákon Már Örvarsson mun í janúar taka þátt í matreiðslukeppninni Bocuse d'Or. Steingrímur Sigurgeirsson kynnti sér keppnina og undirbúning Hákons.
Meira
HRÚTURINN ( 21. mars - 19. apríl) Hrúturinn er hið leiðandi eldmerki stjörnuhringsins. Hrúturinn er þrjóskur og hvatvís, í stöðugri leit að einhverjum nýjum ögrunum til að sigrast á. Nýjum hugmyndum, nýju fólki, nýjum verkefnum.
Meira
Franska leikkonan Juliette Binoche fer með eitt aðalhlutverkið í nýjustu mynd sænska leikstjórans Lasses Hallströms, Súkkulaði eða Chocolat. Arnaldur Indriðason segir frá leikkonunni sem unnið hefur með Godard, Kaufman, Malle og Minghella en hafnað samstarfi við t.d. Spielberg.
Meira
American Beauty (Sam Mendes) Nýstárleg, kaldhæðin ádeila á hefðbundið mannlíf í bandarísku úthverfi þar sem íbúarnir hafa sökkt sér langt upp fyrir höfuð í innantómt lífsgæðakapphlaup og týnt sjálfum sér í atganginum.
Meira
FIMMTÁN manns var bjargað af þaki rútu í meginstreng Jökulsár á Fjöllum skammt norðan Herðubreiðarlinda 16. ágúst sl. Þar á meðal voru landverðirnir Kári Kristjánsson og Elísabet S.
Meira
Þrír vinir, tengdir fjölskylduböndum, hafa innleitt ný vinnubrögð í lyfjaskömmtun hér á landi síðustu tvö árin og starfrækja fyrirtæki undir nafninu Lyfjaver. Þetta hefur valdið byltingu í þessum efnum og það er mikill hugur í þremenningunum sem segja verulega akra enn óplægða.
Meira
SJÓMANNAFÉLAG Ólafsfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er undrun á seinagangi í samningaviðræðum sjómanna og útgerðarmanna og á afstöðu útgerðarmanna til kröfu sjómanna um kauphækkanir til jafns við það sem aðrar stéttir hafa samið um.
Meira
SJÓMANNAFÉLAG Ólafsfjarðar hefur sent frá sér ályktun þar sem lýst er undrun á seinagangi í samningaviðræðum sjómanna og útgerðarmanna og á afstöðu útgerðarmanna til kröfu sjómanna um kauphækkanir til jafns við það sem aðrar stéttir hafa samið um.
Meira
VALA Flosadóttir varð þriðja í stangarstökki á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu í haust. Er það í þriðja skiptið sem Íslendingar vinna til verðlauna á Ólympíuleikum.
Meira
Ferðir Knuts Hänschke, yfirmanns þýska ferðamálaráðsins í Norður-Evrópu, til Íslands nálgast nú fjórða tuginn en örlögin hafa tengt starfsferil hans við landið okkar. Hrönn Marinósdóttir ræddi við hann um ferðaþjónustu, kurteisi, fótbolta og fleira.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.