PETER Mandelson, einn helsti ráðgjafi Tony Blairs, forsætisráðherra Bretlands, sagði í gær af sér sem ráðherra Norður-Írlandsmála í bresku ríkisstjórninni. Við embættinu tekur John Reid, sem áður fór með málefni Skotlands í stjórninni.
Meira
STJÓRN Ísraels tilkynnti í gærkvöldi að hún hefði ákveðið að hefja friðarviðræður við Palestínumenn að nýju í Taba í Egyptalandi í dag. Stjórnin sleit viðræðunum í fyrradag eftir að tveir Ísraelar voru skotnir til bana á Vesturbakkanum.
Meira
YFIRVÖLD á Indlandi sögðu í gær að um 32 milljónir hindúa hefðu baðað sig í Ganges-fljóti til að hreinsa sig af syndum sínum frá því í fyrradag þegartrúarhátíðin Kumbh náði hámarki.
Meira
ÞAÐ er erfitt að vera tilraunarotta sem er látin hlaupa hring eftir hring, tímunum saman, og fær aðeins örlítinn skammt af súkkulaðispæni að launum. Þessi iðja er reyndar svo erfið að rotturnar dreymir hana á næturnar, að sögn bandarískra vísindamanna.
Meira
TALSMAÐUR hagsmunasamtaka danskra sjómanna, Bent Rulle, segir að samkomulag Evrópusambandsins (ESB) og Noregs um að stöðva þorskveiðar í Norðursjó í tíu vikur sé "heimskulegasta ákvörðun sem tekin hefur verið í ESB" þann tíma sem hann hafi...
Meira
FJÁRHAGSÁÆTLUN Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2001 hefur verið samþykkt í bæjarstjórn en samkvæmt henni verða tekjur bæjarsjóðs rétt um 448 milljónir króna á árinu. Rekstur málaflokka kostar 385,7 milljónir króna þannig að rétt um 86% tekna fara í rekstur.
Meira
Egilsstöðum- Sveitarstjórn Austur-Héraðs hefur ákveðið að kaupa tvær af þremur flotbryggjum farþegaferjunnar Lagarfljótsormsins á Lagarfljóti. Verður greitt fyrir þær matsverð, um 1,6 milljónir fyrir hvora um sig.
Meira
ALÞJÓÐADAGUR verður haldinn í Háskóla Íslands í dag fimmtudaginn 25. janúar. Kynning verður á námi erlendis og stúdentaskiptum í Odda, Háskóla Íslands, kl. 12-17.
Meira
BORGARRÁÐ samþykkti í fyrradag að skipa starfshóp til þess að kanna hvernig hentugast og hagkvæmast sé að bæta þjónustu Borgarbókasafns í Árbæjarhverfi.
Meira
NÝ GJALDSKRÁ fyrir ADSL-þjónustu hefur tekið gildi hjá Islandia Internet. Áskriftarverð verður áfram háð því hversu mikið gagnamagn er innifalið í áskriftinni. Gjald fyrir umframnotkun, þ.e. hvert Mb.
Meira
AÐ MATI Eiríks Tómassonar lagaprófessors var það óeðlilegt af forsætisnefnd Alþingis að senda forseta Hæstaréttar bréf vegna öryrkjafrumvarpsins svonefnda og gagnrýnir hann forseta Hæstaréttar fyrir að hafa svarað bréfinu efnislega.
Meira
BYRGIÐ, kristilegt líknarfélag sem rekur forvarnarstarf og meðferðarheimili fyrir áfengis- og fíkniefnaneytendur, hefur ákveðið að efla forvarnarstarf sitt til muna og vill af því tilefni koma eftirfarandi á framfæri: Eins og margir muna var Byrgið með...
Meira
ÖRYRKJAR sem eiga rétt á greiðslum vegna dóms Hæstaréttar fá greitt í samræmi við breytingar á almannatryggingalögum um næstu mánaðamót en forseti Íslands staðfesti lögin í gær sem samþykkt voru á Alþingi í fyrrinótt.
Meira
Gunnar Jónasson, barnalæknir, varði hinn 25. nóvember 2000 doktorsritgerð sína við læknadeild Háskólans í Ósló. Ritgerðin byggist á 6 vísindagreinum sem birtar hafa verið í alþjóðlegum vísindatímaritum sem einkum fjalla um ofnæmis- og lungnasjúkdóma.
Meira
ROLAND Dumas, fyrrverandi utanríkisráðherra Frakklands, neitaði því í vitnisburði fyrir rétti í gær að hann hefði fengið þáverandi ríkisolíufélagið Elf Aquitaine til að ráða hjákonu sína sem tengilið milli skrifstofu sinnar og fyrirtækisins.
Meira
SLÖKKVILIÐ höfuðborgarsvæðisins var kallað að Kringlunni í hádeginu í gær vegna elds í handþurrku. Þegar slökkviliðið kom á staðinn var eldurinn slokknaður en talsverður reykur var á salerninu sem er á 3. hæð.
Meira
Yfirlýsing stjórnar Ísfélags Vestamannaeyja á þriðjudag um að hætta bolfiskvinnslu hefur farið illa í fiskverkafólk í Eyjum og er það harmi slegið og mikil óvissa er um framtíð þess hjá fyrirtækinu. Af samtölum Vals B. Jónatanssonar við fólk í Eyjum í gær má ráða að mikil reiði ríkir vegna ákvörðunar stjórnarinnar. Um 170 manns eru nú á atvinnuleysisskrá í bænum, sem er um 8% vinnuaflsVestmannaeyinga.
Meira
HELDUR færri farþegar fóru um Akureyrarflugvöll á síðasta ári en árið 1999. Samkvæmt bráðabirgðatölum fóru rúmlega 190.700 farþegar um völlinn í fyrra en rúmlega 194.000 árið áður.
Meira
Hvammstanga- Sveitarstjórn Húnaþings vestra hefur ákveðið að byggja íþróttahús á Hvammstanga á þessu ári. Byggingin á að rísa við hlið þjónustuhúss sundlaugarinnar og tengjast því og þannig samnýta aðkomu, búnings- og hreinlætisaðstöðu.
Meira
FLUGLEIÐAVÉL, sem flytja átti tæplega 200 farþega ferðaskrifstofunnar Úrvals-Útsýnar heim frá Kanaríeyjum í gær, seinkaði um sólarhring vegna dauðsfalls farþega.
Meira
RÚNAR Andrason sálfræðingur flytur fyrirlestur um börn og missi í Safnaðarheimili Akureyrarkirkju fimmtudagskvöldið 25. janúar og hefst hann kl. 20. Eftir fyrirlesturinn verða fyrirspurnir og umræður.
Meira
ÍSLENSKUR harðviður ehf. tapaði 71,5 milljón á fyrstu 10 mánuðum síðasta árs. Bókfært verð eigna er 164 milljónir og skuldir nema 168 milljónum. Þetta kom fram í Héraðsdómi Norðurlands eystra á þriðjudag þegar fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota.
Meira
Kvenfélagskonur á Reyðarfirði heimsóttu nýlega Leikskólann Lyngholt og afhentu handvagn, hrærivél, vöfflujárn og búsáhöld ýmiskonar að verðmæti rúmlega eittthundrað þúsund kr. Var það ágóði af árlegu jólamatarbingói Kvenfélagsins.
Meira
"NIÐURSTAÐAN er lykilatriðið; það meiddist enginn," sagði Skip Arms, lögreglufulltrúi í Colorado Springs í Bandaríkjunum, eftir að tveir síðustu strokufangarnir frá Texas höfðu gefið sig fram við lögreglu í gærmorgun, eftir margra klukkustunda...
Meira
Svanhildur Svavarsdóttir fæddist í Reykjavík 1947. Hún lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Íslands 1969 og sérkennaraprófi árið 1971. Hún útskrifaðist sem talmeinafræðingur frá Noregi 1977 og tók meistarapróf í sömu grein frá Norður-Karólínu-háskóla 1992. Hún hefur sérhæft sig sem einhverfuráðgjafi og starfar sem slíkur í Scottsdale í Arizona. Svanhildur er gift Sigurði Viggó Kristjánssyni, flugstjóra hjá US-Airways. Þau eiga samtals sex börn.
Meira
ÍSLANDSMEISTARAMÓTIÐ 2001 í Hornafjarðarmanna verður í tengslum við Hornfirðingaþorrablótið á höfuðborgarsvæðinu eins og á síðasta ári. Undankeppnin fer fram föstudaginn 26. janúar á Café Dímu í Ármúla 21 og hefst kl. 20.
Meira
ÍSLENSKA landsliðið í handknattleik lagði það portúgalska, 22:19, í riðlakeppni heimsmeistaramótsins í handknattleik í Montpellier í Frakklandi í gær. Portúgal var einu marki yfir í hálfleik, 11:10.
Meira
HÁKON Már Örvarsson matreiðslumeistari lenti í gær í þriðja sæti í matreiðslukeppninni Bocuse d'Or í Lyon í Frakklandi. Er þessi keppni sú virtasta sem haldin er í heiminum og óopinber heimsmeistarakeppni kokka.
Meira
JEPPABIFREIÐ var stolið frá Suðurgötu í Keflavík um kl. 7 í gærmorgun. Eigandinn hafði sett jeppann í gang til að hita hann upp. Þegar hann var nýkominn inn um dyrnar á heimili sínu heyrði hann að jeppanum var ekið á brott.
Meira
STOFNFUNDUR Félags íslenskra kajakveiðimanna, FÍK, verður haldinn í húsnæði Framsóknarfélagsins í Kópavogi við Digranesveg 12 í Kópavogi föstudaginn 26. janúar nk. kl. 20.
Meira
KAUPFÉLAG Eyfirðinga og dótturfélög hafa gert samstarfssamninga við mörg íþróttafélög á félagssvæði sínu þar sem öflugt félagsstarf íþróttafélaganna nýtist fyrirtækjunum við margvísleg kynningarmál gegn ákveðnu fjárframlagi þeirra.
Meira
ÁÐUR en forseti Alþingis, Halldór Blöndal, sendi bréfið til forseta Hæstaréttar á þriðjudag, vegna öryrkjafrumvarpsins átti hann fund með þeim tveimur varaforsetum, sem sæti eiga í forsætisnefnd og voru staddir á landinu og settu þeir sig ekki upp á móti...
Meira
KÆRUR þær, sem nokkrir foreldrar leikskólabarna á Reykjakoti sendu til lögreglunnar og siðanefndar Félags íslenskra leikskólakennara, eru í ákveðnum farvegi, að sögn viðkomandi aðila.
Meira
LÁRA Margrét Ragnarsdóttir, alþingismaður og formaður Íslandsdeildar Evrópuráðsþingsins, var á mánudag kjörin formaður félags-, heilbrigðis- og fjölskyldumálanefndar Evrópuráðsþingsins á fyrsta fundi þingsins, í Strassborg, á þessu starfsári.
Meira
Ekki bolfiskfrystihús Í frétt Morgunblaðsins í gær var ranglega sagt að stjórn Ísfélags Vestmannaeyja skoðaði nú möguleika á uppbyggingu fullkomins frystihúss fyrir bolfisk í Eyjum.
Meira
LISTAHÁSKÓLI Íslands verður í framtíðinni annaðhvort í Reykjavík eða Hafnarfirði og eru ýmsir kostir þar að lútandi fyrir hendi innan beggja sveitarfélaganna.
Meira
LÍÚ svaraði í gær framkomnum hugmyndum sjómannasamtakanna um lausn á kjaradeilu sjómanna og útvegsmanna. Meginatriðin í svari LÍÚ eru að útvegsmenn bjóða sömu hækkanar á launaliði og aðrir launþegar hafa fengið.
Meira
HARPA VE kom í gær til Vestamannaeyja með 350 tonn af loðnu og var gert ráð fyrir að um 100 tonn af aflanum færi í frystingu fyrir Rússlandsmarkað hjá Ísfélaginu. Þetta er fyrsta loðnan sem fer í frystingu í Eyjum á þessu ári.
Meira
GUÐFRÆÐINEMARNIR Ástríður H. Sigurðardóttir, Bryndís Valbjarnardóttir, Ingólfur Hartvigsson og Klara Hilmarsdóttir flytja lokapredikanir í dag fimmtudaginn 25. janúar í kapellu Háskólans. Athöfnin hefst kl. 17 og eru allir...
Meira
EKIÐ var á bifreiðina VI-154, sem er fólksbifreið af gerðinni Honda Civic gul að lit, mánudaginn 22. janúar, þar sem hún stóð fyrir framan Hamrahlíð 17. Bifreiðin er skemmd á aftanverðri vinstri hlið. Atvikið gerðist á milli kl. 8 og 12.
Meira
LÖGREGLUNNI í Borgarnesi tóku að berast tilkynningar á tíunda tímanum í gærkvöld um að yfirlag þjóðvegarins frá Borgarnesi og allt norður í Staðarskála væri farið að flettast af veginum og hann væri orðinn illökufær.
Meira
ÁSTÆÐA afsagnar Peter Mandelsons úr embætti ráðherra Norður-Írlandsmála í bresku ríkisstjórninni í gær er afskipti Mandelsons af umsókn indverska auðkýfingsins Srichand Hinduja, um breskan ríkisborgararétt.
Meira
FÉLAGSMÁLARÁÐ hefur lagt til að skipaður verði starfshópur til að móta stefnu Akureyrarbæjar í málum nýbúa á Akureyri. Hlutverk starfshópsins verði að fara yfir stöðu nýbúa í dag og gera tillögur um stefnumótun og framkvæmdir í þeirra málum.
Meira
MYNDBANDSTÆKI var stolið af Listasafni ASÍ í fyrradag. Í tækinu var myndbandsverk eftir listakonuna Önnu Jóa. Verkið heitir "Mynd í rauðu, grænu og bláu" og var hluti af sýningu hennar í safninu. Tækið stóð á gangi safnsins þegar því var...
Meira
Þorlákshöfn -Ný og glæsileg tvöhundruð fermetra félagsmiðstöð var formlega tekin í notkun í Stjórnsýsluhúsinu í Þorlákshöfn fyrir skömmu. Ragnar M.
Meira
"Jæja, elskurnar, gjörið þið svo vel, gangið nú yfir," segir Sæmundur Pálsson við nokkur börn sem eru með honum við Mýrarhúsaskóla á Seltjarnarnesi, vestan Nesvegar, og þurfa að komast yfir götuna.
Meira
GARÐAR Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, telur það koma nokkuð á óvart að Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, skyldi staðfesta lög Alþingis um breytingu á lögum um almannatryggingar og segir jafnframt að yfirlýsing forsetans frá í gær, um þá...
Meira
DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ hefur sent Ástþóri Magnússyni, hjá Friði 2000, bréf þar sem farið er fram á það að hann stöðvi dreifingu auglýsingamiða, þar sem happdrættið Símahapp er auglýst.
Meira
ÍRIS Gústafsdóttir á barn í Mýrarhúsaskóla og kannast því við lögreglumanninn sem fylgir börnunum yfir götuna á morgnana. Hún var spurð hvort henni fyndist aðstoð hans vera mikils virði. "Tvímælalaust," sagði Íris.
Meira
FIMMTÁNDA Rask-ráðstefna Íslenska málfræðifélagsins verður haldin í fundarsal Þjóðarbókhlöðunnar laugardaginn 27. janúar nk. Ráðstefnan hefst klukkan 11 og flytja sex fræðimenn fyrirlestra. Þeir eru: Jón G.
Meira
SAMGÖNGURÁÐHERRA er ósammála því mati sem fram kemur í skýrslu Stefáns Ólafssonar prófessors að best sé að staðsetja innanlandsflug á nýjum flugvelli í landi Hvassahrauns, sunnan Hafnarfjarðar, en að Reykjavíkurflugvöllur sé lakasti kosturinn.
Meira
RAUÐI kross Íslands stendur fyrir ráðstefnu um flugslys og viðbrögð við þeim föstudaginn 26. janúar. Bandarískur sérfræðingur, dr. Gerald A. Jacobs, fjallar um málefnið milli kl. 13 og 16 á Grand Hotel í Reykjavík. Dr.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða rúmlega tvítugri konu um 4½ milljón með vöxtum frá því í apríl 1990 vegna slyss sem hún varð fyrir í leikfimitíma í grunnskóla í Reykjavík það ár. Hún var þá 14 ára gömul.
Meira
SÓLARKAFFI Ísfirðingafélagsins í Reykjavík og nágrenni, hið 56. í röðinni, verður haldið á Broadway, Hótel Íslandi, föstudaginn 26. janúar. Skemmtunin hefst kl. 20.30, en húsið verður opnað kl. 19.30.
Meira
EITT þeirra barna sem Sæmundur fylgdi yfir götuna, þann dag sem Morgunblaðið var á ferð, var sjö ára gömul stúlka sem kvaðst heita Valgerður Þorsteinsdóttir en vera kölluð Vala.
Meira
STJÓRN Útgerðarfélags Akureyringa hefur samþykkt kauptilboð frá Færeyjum í frystitogarann Svalbak. Söluverð skipsins er um 650 milljónir króna sem er hið sama og bókfært verð þess.
Meira
Í BRÉFI, dagsettu í gær, miðvikudag, frá skrifstofu Hæstaréttar til Ragnars Aðalsteinssonar, lögmanns Öryrkjabandalagsins, kom fram að fyrirspurn forsætisnefndar Alþingis til forseta Hæstaréttar um dóm Hæstaréttar í öryrkjamálinu hefði verið borin undir...
Meira
TVÖ TILVIK hafa komið upp í samskiptum Alþingis og Hæstaréttar á seinni árum sem rifjuð hafa verið upp vegna bréfaskrifta Halldórs Blöndals, forseta Alþingis, og Garðars Gíslasonar, forseta Hæstaréttar, um dóm réttarins í öryrkjamálinu svokallaða.
Meira
MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi yfirlýsing frá stjórn matvöruhóps Samtaka verslunarinnar: "Undanfarnar vikur hefur verið mikil umræða um heilbrigði kjötvöru sem flutt er til landsins.
Meira
TILKYNNT var í Brussel í gær, að Evrópusambandið, ESB, og Noregur hefðu náð samkomulagi um nýjar og róttækar ráðstafanir til að vernda þorskinn í Norðursjó.
Meira
FANGI í Texas, sem var næstum tekinn af lífi 1987, á skilið að mál hans verði tekið upp á ný vegna þess að fyrrverandi lögmaður hans var oft sofandi á meðan á réttarhaldinu stóð, að því er nýr lögmaður fangans sagði frammi fyrir alríkisáfrýjunardómstóli...
Meira
ÉG tel, að vísa eigi frá þeim málum þar sem því er til dæmis haldið fram, að heimilishjálp sé ónóg eða krafa stjórnarskrárinnar um framfærslu sé ekki uppfyllt.
Meira
ÓLAFUR Ragnar Grímsson forseti Íslands sendi í gær frá sér yfirlýsingu í tilefni af staðfestingu á lögum um breytingar á almannatryggingalögum sem Alþingi samþykkti í fyrrakvöld.
Meira
ÞORRABLÓT Borgfirðinga og Héraðsmanna verður haldið laugardaginn 27. janúar í Breiðfirðingabúð, húsið opnað kl. 19.40. Fram koma Jóhannes Kristjánsson grínisti og austfirsku grínistarnir Ásgrímur og Hjálmar. Hljómsveitin Þotubandið sér um tónlistina.
Meira
MEÐAN skíðamenn gráta snjóleysið kætast golfarar. Þeir hafa undanfarið getað leikið íþrótt sína á golfvelli Golfklúbbs Ísfirðinga í Tungudal en slíkt er sjaldgæft á þessum tíma árs.
Meira
Mývatnssveit- Mývetningar fögnuðu þorrakomu með blóti á laugardagskvöldið í Skjólbrekku og var fjölmennt að venju eða á fjórða hundrað gesta. Á þorrablóti í Mývatnssveit er ætíð mjög blandað lið veislugesta.
Meira
RÚSSAR skutu í gær á loft svokallaðri flutningaflaug frá Baíkonúr-geimferðamiðstöðinni í Kasakstan en henni er ætlað að flytja Mír-geimstöðina nær jörðu og sjá til þess, að hún hrapi loks í Kyrrahaf í mars næstkomandi.
Meira
Á mbl.is verður á næstunni hægt að fylgjast með ferðum Rögnu Söru Jónsdóttur mannfræðings og blaðamanns á ferðum hennar um Asíu og Afríku en hún mun senda bæði fréttapistla og...
Meira
VIÐ FYRRI umræðu um fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar, sem fram fór 16. nóvember síðastliðinn, fjallaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir m.a. um breytingar, sem nauðsynlegt væri að gera á starfsháttum stjórnenda borgarinnar. Í því sambandi minntist hún breytinga, sem áður höfðu verið gerðar.
Meira
Niðurstöður skýrslu Evrópunefndar Framsóknarflokksins einkennast af málamiðlunum og bera því skýrt vitni hversu djúpstæður ágreiningur er um málið í flokknum þótt nefndin hafi skilað samhljóða áliti.
Meira
ÁLAFOSS FÖT BEZT: Diskórokktekið Skugga-Baldur sér um tónlistina á laugardagskvöld. Reykur, þoka, ljósadýrð og skemmtilegasta tónlist síðustu 50 ára. Aðgangur ókeypis. ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Almennur dansleikur með Geirmundi Valtýssyni föstudagskvöld.
Meira
Kvikmyndaklúbburinn Filmundur ætlar að forsýna mynd Coen-bræðrana knáu, O Brother, Where Art Thou, í Háskólabíói í kvöld kl. 22.30 í kjölfarið á nýafstaðinni franskri kvikmyndahátíð.
Meira
MAGNÚS Geir Þórðarson, leikhússtjóri Leikfélags Íslands, segir samþykktir borgarráðs um stuðning við sjálfstæðu leikhúsin vera skref í rétta átt en telur tölurnar of lágar.
Meira
Leikstjóri og handritshöfundur: Nicole Garcia. Tónskáld: Philippe Sarde. Kvikmyndatökustjóri: Eric Gautier. Aðalleikendur: Gérard Lanvin, Bernard Giraudeau, Jean-Marc Barr, Roberto Herlitzka. Frönsk. Árgerð 1994.
Meira
½ Leikstjóri: Paul McGuigan. Handrit: Irvine Welsh. Aðalhlutverk: Stephen McCole, Kevin McKidd. (110 mín.) Bretland, 1999. Myndform. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
Veitingahúsið Vagninn á Flateyrier margfrægt orðið fyrir fjörmiklar uppákomur. Um daginn sannaðist að staðurinn stendur enn undir nafni sem hjarta vestfirsks skemmtanlífs.
Meira
Sjómentir föroyinga í eldri tíð eftir Andras Mortensen. Annales Societatis Scientiarum Færoensis. Supplementum XXVI. Tórshavn 2000. 352 bls., myndir, kort, teikningar.
Meira
UM ÞESSAR mundir standa sem hæst færeyskir dagar í Fjörunni í Hafnarfirði. Tilgangurinn með dögunum er að efla samstarfið sem myndast hefur milli Íslendinga og Færeyinga með tilkomu Vestnorden Gisti- og Kultúrhússins við Fjörukrána.
Meira
Leikstjóri: John Asher. Handrit: Allan Aron Katz. Aðalhlutverk: Kirk Douglas, Lauren Bacall og Dan Aykroyd. (91 mín.) Bandaríkin, 1999. Skífan. Bönnuð innan 12 ára.
Meira
½ Leikstjóri Michael Winterbottom. Handrit John Forte. Aðalhlutverk Christopher Eccleston, Dervla Kirwan. (93 mín.) Bretland 1999. Háskólabíó. Bönnuð innan 12 ára.
Meira
½ Leikstjóri: Edward Thomas. Handrit: James Hawkes. Aðalhlutverk: Sean Deeny, Pete Thompson, Tara Fitzgerald og Sadie Frost. (92 mín.) Bretland, 2000. Skífan. Bönnuð innan 16 ára.
Meira
GÁRUNGAR hafa oft gamnað sér yfir því að kenna Mark Knopfler úr Dire Straits sálugu við risaeðlu. Nú hefur gömlu kempunni hinsvegar hlotnast sá heiður að vera kenndur við eina slíka, tegund sem nýlega fannst og hefur verið skírð Masiakasaurus knopfleri!
Meira
EIGINKONA leikarans ólánsama, Roberts Downeys yngri, hefur sótt formlega um lögskilnað. Marga kann að undra að Downey hafi yfir höfuð verið giftur en skýringin er sú að hjónakornin skildu að borði og sæng fyrir einum sex árum.
Meira
MÖGULEIKHÚSIÐ sýnir barnaleikritið Langafi prakkari í Grindavík í dag kl. 17.15 í sal grunnskólans. Leikritið, sem er eftir Pétur Eggerz, byggist á sögum Sigrúnar Eldjárn, Langafi drullumallar og Langafi prakkari.
Meira
SÍÐASTLIÐIÐ sumar fóru 5 nemendur úr Listaháskóla Íslands stutta hringferð um landið og kynntu sér aðstæður til sýningarhalds í nokkrum bæjarfélögum á landsbyggðinni. Núna í vor birtist landsmönnum afrakstur þeirrar ferðar.
Meira
LEIKFÉLAG Kópavogs tekur nú til sýninga á ný eftir áramót leikritið Líku líkt (Measure for measure) eftir William Shakespeare í kvöld kl. 20. Leikritið er í leikstjórn Þorgeirs Tryggvasonar.
Meira
Það getur verið erfitt að raða tónlist á bása eins og gagnrýnenda og tónlistarpælara er siður. Árni Matthíasson ræddi við forstöðumann Hat Hut-útgáfunnar svissnesku sem segir að til að mynda sé engin ástæða til að greina að nútímadjass og nútímatónlist nema markaðsleg.
Meira
HÓPUR myndlistarmanna verður með sýningu á myndbandslistaverkum í sýningarsal kjallara Gallerís Reykjavíkur, Skólavörðustíg 16, í dag, fimmtudag, kl. 13-18. Alls verða 15-20 myndbandsverk sýnd á skjám og varpað upp á veggi.
Meira
ÓLAFUR Jakob Helgason opnar myndlistarsýning í Félagsstarfi Gerðubergs á morgun, föstudag kl. 16. Ólafur Jakob er fæddur 1920 á Patreksfirði og stundaði húsasmíðar þar til hann hætti störfum 1990 vegna aldurs.
Meira
BANDARÍSKA alríkislögreglan (FBI) afhenti á dögunum gríska ríkinu með viðhöfn þessa fornmuni er hér sjást. Mununum var stolið úr grísku safni fyrir einum tíu árum, en komu aftur í leitirnar fyrir...
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 2. desember sl. í Víðistaðakirkju af sr. Ægi Fr. Sigurgeirssyni Sólveig Kristbjörg Vagnsdóttir og Ólafur Þórðarson. Heimili þeirra er á Breiðvangi 3,...
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 16. september sl. í Hafnarfjarðarkirkju af sr. Gunnþóri Ingasyni Jóhanna Þórsdóttir og Ragnar Þórarinn Ágústsson. Heimili þeirra er í...
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 22. júlí sl. í Kálfafellsdal af sr. Sigurði Kr. Sigurðssyni Þórey Bjarnadóttir og Stefán Freyr Guðmundsson. Heimili þeirra er á Kálfafelli,...
Meira
SÚ atburðarás sem orðið hefur á undanförnum vikum í kjölfar dóms Hæstaréttar í svokölluðu öryrkjamáli hefur afhjúpað ýmsa bresti í stjórnskipan okkar unga lýðveldis.
Meira
HINN 17. desember birtist í Morgunblaðinu Reykjavíkurbréf, þar sem fjallað var um "frumkvöðla samtímans", eins og sagt var í millifyrirsögn bréfsins. Þar sagði m.a.
Meira
ÞAÐ mun hafa verið árið 1999 sem drög að svonefndum tilraunasamningi bárust út í skólana í Reykjavík. Á þessum samningi höfðu forystumenn okkar mikið dálæti.
Meira
Umferðarlöggæsla í þéttbýli og löggæsla á almannafæri á, að mati Steinunnar V. Óskarsdóttur, að vera staðbundið þjónustuverkefni hjá sveitarfélögum.
Meira
Í FRAMHALDI af grein aðstoðarforstjóra Orkuveitu Reykjavíkur í Morgunblaðinu 12. janúar sl. þá vakna ýmsar spurningar um fjármál, skatta og álagningu útsvars í Reykjavík.
Meira
UMHVERFISRÁÐ Kópavogs býður til íbúaþings laugardaginn 3. febrúar næstkomandi í Smáraskóla. Umhverfisráð hefur unnið að gerð Staðardagskrár 21 og liggur nú fyrir stöðumat. Hvað er stöðumat? spyrja margir.
Meira
ÉG hef heyrt talsvert, í umræðunni um öryrkjamálið, að þessi viðbót sé eingöngu fyrir efnameira fólk og þar hef ég heyrt að maki hafi allt að 300.000-400.000 kr. tekjur á mánuði. Það eru aldeilis ekki allir makar öryrkja með svona háar tekjur.
Meira
Í dag er fimmtudagur 25. janúar, 25. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Þeir fóru og predikuðu hvarvetna, en Drottinn var í verki með þeim og staðfesti boðun þeirra með táknum, sem henni fylgdu.
Meira
Landssamtökin Þroskahjálp lýsa sig reiðubúin, segja Halldór Gunnarsson og Friðrik Sigurðsson, að leggja stjórnvöldum lið í þeirri vinnu sem framundan er.
Meira
FRAM kom í fjölmiðlum að herra Garðar Sverrisson, formaður Öryrkjabandalagsins, sagði eftir fund með yður á Bessastöðum að þér hefðuð veitt forsætisráðherra, herra Davíð Oddssyni, tiltal vegna afstöðu hans til dóms Hæstaréttar.
Meira
Auðbjörg Ámundadóttir fæddist í Dalkoti í Kirkjuhvammshreppi í V-Húnavatnssýslu 25. nóvember 1928. Hún lést á heimili sínu 5. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Egilsstaðakirkju 13. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Ásgeir Ingólfsson, þýðandi, blaðamaður og rithöfundur, fæddist í Reykjavík hinn 26. júlí 1934. Hann lést á heimili sínu hinn 15. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 23. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Bára Þórðardóttir fæddist í Vestmannaeyjum 23. febrúar 1924. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík 12. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Fossvogskapellu 22. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Carl Birgir Berndsen fæddist í Reykjavík 23. ágúst 1935. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 13. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 22. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Einar Már Jónsson fæddist í Reykjavík 29. apríl 1974. Hann lést 3. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Bústaðakirkju 12. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Guðrún Kristjana Ingjaldsdóttir (Lillý) fæddist í Reykjavík 29. júlí 1924. Hún lést á dvalarheimilinu Helgafelli á Djúpavogi 16. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Bústaðakirkju 20. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Halldór Júlíus Ingimundarson, Garðstöðum í Garði, fæddist 14. júní 1912. Hann lést á heimili sínu 3. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Útskálakirkju 13. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Kristbjörg Sesselja Guðríður Vilhjálmsdóttir fæddist í Efstabæ á Akranesi 5. ágúst 1924. Hún lést 7. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Akraneskirkju 12. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Kristín Stefánsdóttir fæddist á Fáskrúðsfirði 25. júlí 1913. Hún lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í Hafnarfirði 12. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Hafnarfjarðarkirkju 19. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Margrét Oddfríður Skúladóttir fæddist í Stykkishólmi hinn 22. apríl 1910. Hún lést á Dvalar- og hjúkrunarheimilinu Skjóli hinn 18. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Skúli Skúlason, skipstjóri í Stykkishólmi, f. 1875 í Fagurey á Breiðafirði, d.
MeiraKaupa minningabók
Pétur Þorgilsson fæddist í Reykjavík 27. apríl 1926. Hann lést á líknardeild Landspítalans 14. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Fossvogskirkju 24. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Benjamínsdóttir fæddist á Bíldudal 10. febrúar 1934. Hún andaðist á heimili sínu á Skólavörðustíg 38 í Reykjavík 16. janúar síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Benjamín Jónsson, f. 22.5. 1909, d. 10.3. 1995, og Klara Gísladóttir, f. 25.7.
MeiraKaupa minningabók
Sigrún Sóley Karlsdóttir Wesselink fæddist 1. mars 1963. Hún lést í Hollandi hinn 15. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Langholtskirkju 23. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Sigurður Páll Jórunnarson fæddist í Reykjavík 18. febrúar 1982. Hann lést af slysförum 13. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Grafarvogskirkju 22. janúar.
MeiraKaupa minningabók
11-11-búðirnar Gildir til 7. febrúar nú kr. áður kr. mælie. KB. beikonhleifur 479 639 479 kg KB. pítsahleifur 479 639 479 kg KB. pepperonihleifur 479 639 479 kg Toro Berg fiskisúpa 75 89 75 pk. Toro Lofoten súpa 135 153 135 pk.
Meira
BABYCARE-blautklútarnir eru komnir á markað en innflytjandi er Halldór Jónsson ehf. Babycare-blautklútarnir eru án ilmefna, sápu og olíu. Blautklútarnir fást í Lyfju, Lyfjum og heilsu og í...
Meira
Í NÝLEGUM niðurstöðum könnunar Samkeppnisstofnunar á verðmerkingum í matvöruverslunum kom í ljós að í 10,6% tilfella var ósamræmi í verðmerkingum í hillu og við afgreiðslukassa eða vörur óverðmerktar.
Meira
KAYS-sumarlistinn er kominn út. Í listanum er að finna úrval af fatnaði fyrir alla fjölskylduna, bæði litlar og stórar stærðir. Listinn fæst hjá B. Magnússyni hf. og kostar 400 krónur en er ókeypis fyrir þá sem pöntuðu úr síðasta Kays- lista.
Meira
Nú stendur yfir samkirkjuleg bænavika um einingu kristinna manna og eru samkomur nokkur kvöld þessa viku. Í kvöld, fimmtudag 25. janúar, verður samkoma í Herkastalanum og hefst hún kl. 20.30. Predikun kvöldsins flytur sr.
Meira
SÁ skákmaður sem hefur flestar skákir reiknaðar á íslenska stigalistanum er alþjóðlegi meistarinn Sævar Bjarnason (2.355). Hann hefur vel yfir 1.000 skákir reiknaðar og er virk þátttaka hans á skákmótum innanlands til mikillar eftirbreytni.
Meira
Í tölvufyrirtækjum hafa skil vinnu og frítíma orðið æ óljósari og er ástæðan sögð sú að hinir einhleypu hafi ekkert betra við tímann að gera en vinna.
Meira
VERULEGAR líkur eru taldar á því að Íslendingurinn Þórir Hergeirsson frá Selfossi verði næsti aðstoðarlandsliðsþjálfari Noregs í kvennahandknattleik.
Meira
DAVID James , markvörður Aston Villa , hefur gert nýjan samning við félag sitt og gildir hann til loka leiktíðarinnar vorið 2004. James , er þrítugur að aldri og hefur verið í herbúðum Aston Villa frá sumrinu 1999.
Meira
ÞAÐ var létt yfir leikmönnum íslenska liðsins, eftir að þeir höfðu lagt Portúgala að velli í Montpellier, 22:19. "Staðan var 14:14 í ótrúlega langan tíma og eftir því sem lengra leið var ljóst að fimmtánda markið myndi hafa gífurlega mikið að segja. Við náðum að skora það og þar með náðum við undirtökunum í leiknum," sagði Róbert Sighvatsson við Morgunblaðið eftir leikinn.
Meira
LIÐ Marokkó kom til Frakklands fyrir tólf dögum og hefur búið sig undir keppnina m.a. með því að leika fjóra leiki gegn tveimur félagsliðum í suðurhluta landsins. Þeir hafa allir tapast.
Meira
Grænlendingar töpuðu fyrir Spánverjum, 31:16, í öðrum leik sínum á heimsmeistarmótinu í handknattleik í gær. Spánverjar vissu vart hvaðan á sig stóð veðrið í byrjun leiksins. Hans P.
Meira
"ÉG vonast til þess að þessi sigur á Portúgal veiti íslenska liðinu sjálfstraust sem mér finnst sárlega vanta," sagði Axel Axelsson, fyrrverandi atvinnumaður í handknattleik hjá Dankersen í Þýskalandi og leikmaður íslenska landsliðsins til...
Meira
Stefán Arnaldsson og Gunnar Viðarsson dæmdu leik Úkraínu og Rússlands í D-riðli heimsmeistarakeppninnar í Dunkerque í gærkvöld. Þar var um hörkuleik að ræða en Rússar voru sterkari á endasprettinum og sigruðu, 30.27.
Meira
HANDKNATTLEIKSDEILD HK hefur í hyggju að styrkja lið sitt fyrir komandi átök í 1. deild karla og allar líkur eru á að Kúbumaðurinn Osvaldo Povea Dominguez komi til landsins fimmtudaginn 1. febrúar.
Meira
HM í Frakklandi A-riðill: Ísland - Portúgal 22:19 René Bougnol íþróttahöllin í Montpellier í Frakklandi, HM í handknattleik, miðvikudaginn 24. janúar 2001. Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:5, 6:6, 6:8, 10:11 , 11:11, 13:12, 14:14, 15:14, 17:15, 19:16, 19:!
Meira
EFTIR fimm daga bið tókst Eyjastúlkum loks að komast til lands og takast á við FH-stúlkur í Kaplakrika. Eitthvað virtist biðin hafa áhrif því leikmenn beggja liða voru oft alls ekki með á nótunum en þegar upp var staðið gerðu gestirnir úr Eyjum færri mistök og sigruðu 25:27 eftir mikla spennu í lokin. Fyrir vikið færðust þær upp um eitt sæti - upp í það fimmta með þó jafna markatölu en FH er eftir sem áður í sjöunda sæti með þó örlítið betra markahlutfall.
Meira
ÍSLAND tekur nú þátt í lokakeppni heimsmeistaramótsins í 12. skipti af þeim 17 sem hún hefur farið fram. Ísland var ekki á meðal þátttökuþjóða í tveimur fyrstu mótunum, 1938 og 1954, og komst ekki í gegnum undankeppnina fyrir HM 1967, 1982 og 1999.
Meira
ÍSLENSKU leikmennirnir skiptust á um að skora í gær. Sjö leikmenn skiptu fyrstu sjö mörkunum bróðurlega á milli sín. Róbert Julian Duranona gerði áttunda mark Íslands og sitt annað í leiknum þegar hann breytti stöðunni í 8:9 eftir 23,33 mínútur.
Meira
"AUÐVITAÐ er ég vonsvikinn með að tapa, sérstaklega vegna þess að þetta var svo mikilvægur leikur, en ég held að allir sem fylgjast með handknattleik geti lært heilmikið af leiknum. Stærstan hluta síðari hálfleiks léku liðin mjög vel þó svo ekki væri mikið skorað. Varnirnar voru frábærar og þegar menn komust í góð færitóku markverðirnir við," sagði Javier Cuesta, þjálfari Portúgala, eftir að hann varð að játa sig sigraðan.
Meira
KÖRFUKNATTLEIKUR Ísland - Makedónía 83:102 Laugardalshöll, Evrópukeppnin í körfuknattleik, miðvikudagur 24. janúar 2001. Gangur leiksins: 0:3, 6:5, 8.
Meira
"ÞETTA var leikur tveggja liða sem eru ótrúlega jöfn að getu og leikurinn snerist mest um það hvort liðið væri heppnara þegar á hólminn væri komið. Bæði liðin spiluðu mjög sterka vörn, oft og tíðum góða.
Meira
RENÉ Bougnol, höllin í Montpellier þar sem riðill Íslands er leikinn, er sú næstminnsta sem notuð er í keppninni. Hún tekur 3.000 áhorfendur en höllin í Dunkerque er minni, tekur 2.400 áhorfendur. Aðrar hallir taka frá 3.500 upp í 6.
Meira
ENSKI körfuknattleiksdómarinn, Rob Iliffe, var á kunnuglegum slóðum í Laugardalshöllinni í gærkvöld þar sem hann dæmdi landsleik Íslendinga og Makedóna.
Meira
MAROKKÓ er þriðji andstæðingur Íslands á heimsmeistaramótinu í Frakklandi og hefst viðureign liðanna í Montpellier í dag kl. 17.30 að íslenskum tíma. Vangaveltur um úrslitin í þeim leik eru nánast óþörf - ef Ísland sigrar ekki verður það mesta áfall landsliðsins á HM frá upphafi. Svo einfalt er það. Marokkó er veikasta liðið í A-riðlinum og er ekki líklegt til að halda heimleiðis með stig upp á vasann, hvað þá sigur.
Meira
TÉKKAR komu heldur betur á óvart í A-riðlinum í gær þegar þeir gerðu jafntefli, 26:26, við Egypta í sveiflukenndum leik í Montpellier. Lengi vel stefndi í stórsigur Tékka sem náðu sjö marka forystu í síðari hálfleiknum. Egyptar sneru blaðinu við, komust yfir, 26:25 og voru með leikinn í höndunum en á lokasekúndunni fengu Tékkar vítakast og Jan Filip jafnaði úr því.
Meira
"ÞAÐ verður örugglega erfitt fyrir okkur að leika á móti Íslendingum, enda erum við talsvert á eftir í handknattleiknum þó svo okkur hafi farið fram undanfarin ár.
Meira
ÞRÁTT fyrir níu töp íslenska landsliðsins í körfuknattleik í undanúrslitariðli Evrópukeppninnar er Friðrik Ingi Rúnarsson landsliðsþjálfari stöðugt með hugann við heildarmyndina á verkefninu sem hann tók að sér og greinilegt að hann er ósmeykur við framtíð landsliðsins.
Meira
Þannig vörðu íslensku markverðirnir í leiknum gegn Portúgal í Montpellier: Guðmundur Hrafnkelsson; 11 (þar af 4 til mótherja. 4/2 langskot, 2 úr horni, 2/1 af línu, 2 eftir gegnumbrot, 1/1 hraðaupphlaup. Birkir Ívar Guðmundsson; 1...
Meira
BIRKIR Ívar Guðmundsson, annar markvörður íslenska liðsins, haltraði af velli í gær og þurfti að vefja á honum ofanvert hægra læri. Þorbjörn Jensson landsliðsþjálfari sagði í gærkvöldi að ekki væri alveg komið í ljós hversu alvarlegt þetta væri.
Meira
Þorrablót Handknattleiksdeild Gróttu/KR verður með þorrablót sitt í félagsheimili Gróttu annað kvöld, föstudag kl. 19. Framarar verða með þorrablót í Íþróttahúsi Fram á laugardag kl. 19. Þorsteinn J. Vilhjálmsson er veislustjóri.
Meira
ÍSLENDINGAR lögðu Portúgala, 22:19, í einum lengsta handknattleiksleik sem fram hefur farið, en leikurinn tók 94 mínútur og fyrir stuðningsmenn beggja liða voru það langar mínútur.
Meira
"ÞAÐ eru engar viðræður um sameiningu Ísfélagsins og Vinnslustöðvarinnar í gangi nú eftir að þeim var slitið á sínum tíma," segir Gunnlaugur Sævar Gunnlaugsson, stjórnarmaður í stjórn Ísfélags Vestmannaeyja, í samtali við Morgunblaðið.
Meira
ÁRNI M. Mathiesen, sjávarútvegsráðherra Íslands, og Jørgen Niclasen, sjávarútvegsráðherra Færeyja, áttu fyrr í vikunni fund með Franz Fischler, yfirmanni sjávarútvegsmála í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.
Meira
VERKALÝÐSFÉLAG Raufarhafnar hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem lýst er yfir vanþóknun á meðferð SR-mjöls á starfsfólki fyrirtækisins á Raufarhöfn.
Meira
SETTUR hefur verið á laggirnar nýr sjóður um viðskipti með stýrða framtíðarsamninga (e. managed futures) og nefnist hann Framval 1. Sjóðurinn er erlendur, skráður á bresku Jómfrúreyjum (British Virgin Islands). Hann er rekinn af Langvinn ehf., sem m.a.
Meira
ÞEGAR ljósin slokknuðu í Sílíkondal á fimmtudaginn í síðustu viku var það ekki að kvöldi og fólk ekki komið að því að leggja aftur augun og hvílast.
Meira
Fjármálaráðherrar Norðurlanda telja að þróun efnahagsmála í löndunum sé áfram hagstæð, verðbólga sé tiltölulega lág og at- vinnuleysi fari minnkandi. Ráðherrarnir hittust í gær og ræddu ástand og horfur í efnahagsmálum.
Meira
Holberg Másson, forstjóri Netverks, hefur verið valinn í hóp 100 helstu frumkvöðla heims árið 2001 á sviði nýtækni. Kári Stefánsson var valinn í þennan hóp í fyrra.
Meira
Í FJÁRMÁLUM á fimmtudegi hinn 5. janúar sl. var fjallað um nokkur bandarísk fyrirtæki sem þá virtust vera á nokkuð hagstæðu verði eftir mikla lækkun á hlutabréfamarkaði í Bandaríkjunum árið 2000.
Meira
Skráningar á Fjarskiptaþing 2001, sem haldið verður hinn 1. febrúar næstkomandi, eru framar vonum, að sögn Ragnhildar Hjaltadóttur skrifstofustjóra í samgönguráðuneytinu.
Meira
IMODE ER samskiptastaðall fyrir farsíma sem byggist á sérstakri gerð af HTML-síðulýsingamálinu, cHTML, og felur í sér stuðning við litaskjá, pakkasendingar og sítengingu.
Meira
Enn reyna símafyrirtæki að spá fyrir um þriðju kynslóð farsímakerfa og líta þá til þess sem er að gerast í dag. Árni Matthíasson velti fyrir sér orðum aðstoðarforstjóra Ericsson um vinsældir iMode-símaþjónustunnar austur í Japan á ráðstefnu Íslandssíma sem var haldin nýverið.
Meira
ÁLIT sendinefndar Alþjóðagjaldeyrissjóðsins er í flestu tilliti jákvætt og gagnlegt, að sögn Geirs H. Haarde fjármálaráðherra. Hann segir að sendinefndin lýsi ánægju með margt sem gert hafi verið í hagstjórninni hér á landi á undanförnum árum.
Meira
Holberg Másson, forstjóri Netverks, hefur verið valinn í hóp 100 helstu frumkvöðla heims árið 2001 á sviði nýtækni. Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, var valinn í þennan hóp í fyrra.
Meira
Kr. Kr. Kr. Ein. kl. 9.15 Gengi Kaup Sala Dollari 85,69000 85,46000 85,92000 Sterlpund. 125,61000 125,28000 125,94000 Kan. dollari 56,77000 56,59000 56,95000 Dönsk kr. 10,69500 10,66500 10,72500 Norsk kr. 9,67200 9,64400 9,70000 Sænsk kr.
Meira
"VIÐ GÖNGUM vanalega að því sem gefnu að á Norðurlöndunum sé að finna sömu menningar- og félagslegu gildi, að Norðurlandabúar komi fram og hegði sér á svipaðan hátt, burtséð frá hvaða landi þeir koma.
Meira
NÚ nýlega tilkynntu kínversk stjórnvöld um tollalækkanir en þær eru í samræmi við stefnu kínverska stjórnvalda en þau lýstu því yfir að meðaltollar á innflutningi ættu að vera komnir niður í 15% árið 2000. Meðaltollur eftir lækkunina fer úr 16,4% í...
Meira
Það vekur athygli þegar 43 ára, þriggja barna móðir verður framkvæmdastjóri bresku kauphallarinnar, segir Sigrún Davíðsdóttir og það verður ekki auðvelt að leiða kauphöllina frá gamaldags karlaveldi inn í nútímann.
Meira
ÞÓRÐUR Jónasson, forstöðumaður Lánasýslu ríkisins, segir að áskrifendum Spariskírteina ríkissjóðs hafi verið tilkynnt í lok ársins að ákveðið hefði verið að færa sölu spariskírteina til verðbréfafyrirtækja frá og með 5. febrúar næstkomandi.
Meira
Rafiðnaðarskólinn og Arcis ehf. hafa undirritað samstarfssamning um að halda sérfræðinámskeið í tölvuöryggi. Fyrstu námskeiðin verða haldin í febrúar, mars og apríl og munu þau hvert um sig vera á mismunandi sviðum tölvuöryggis.
Meira
Landssími Íslands hefur, eftir að honum var breytt í hlutafélag, fjárfest í auknum mæli í öðrum félögum. Þórarinn V. Þórarinsson, forstjóri Landssíma Íslands, sagði Soffíu Haraldsdóttur að fjárfestingarstefna Símans byggi á því að stofna til tengsla við önnur fyrirtæki sem með einum eða öðrum hætti tengjast kjarnastarfsemi Símans, það er fjarskiptum og fjarskiptaþjónustu.
Meira
Síminn seldur Samgönguráðherra tilkynnti þjóðinni í síðastliðnum mánuði að Landssími Íslands yrði seldur í heilu lagi og grunnnet Símans yrði því ekki skilið frá við söluna.
Meira
HEILDARVELTA á gjaldeyrismarkaði nam 9,39 milljörðum í gær. Þar af greip Seðlabanki Íslands inn í markaðinn og keypti krónur fyrir 24 milljónir bandaríkjadala eða rúmlega tvo milljarða króna.
Meira
TrackWell Software og Samsýn ehf. hafa undirritað samning um staðsetninga- og landupplýsingaþjónustu fyrir fyrirtæki, stofnanir og einstaklinga á Netinu.
Meira
FJÁRMÁLARÁÐHERRAR Norðurlanda telja að þróun efnahagsmála í löndunum sé áfram hagstæð, verðbólga sé tiltölulega lítil og atvinnuleysi fari minnkandi. Ráðherrarnir hittust á fundi í Reykjavík í gær og ræddu ástand og horfur í efnahagsmálum.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.