TÖLVUDEILD danska þingsins hefur orðið að loka fyrir aðgang að heimasíðu sjónvarpsþáttarins "Stórabróður" vegna of mikils álags á tölvukerfið á svokölluðum "baðtíma".
Meira
JARÐSKJÁLFTI sem mældist 5 stig á Richters-kvarða reið yfir Gujarat-ríki á Indlandi á laugardagsmorgun, rúmri viku eftir að öflugur skjálfti varð þar tugum þúsunda manna að bana.
Meira
ÓVENJU mikil umferð var á norðurlandi vestra á föstudag og að sögn lögreglunnar á Blönduósi stöðvaði hún meira en 30 ökumenn fyrir of hraðan akstur og var einn af þeim á rúmlega 130 km/klst.
Meira
SAMKVÆMT nýrri könnun Gallup mælist fylgi ríkisstjórnarinnar nú 52% en var 66% í sambærilegri könnun fyrir fimm mánuðum. Þetta er minnsti stuðningur við ríkisstjórnina sem mælst hefur í könnunum Gallup á þessu kjörtímabili, sem nú er senn hálfnað.
Meira
ÓLAFUR Örn Haraldsson alþingismaður, sem tilkynnt hefur framboð sitt til varaformanns í Framsóknarflokknum, segist alfarið vera á móti tillögu samgönguráðherra um að leyfum vegna þriðju kynslóðar farsíma verði úthlutað á grundvelli samanburðarútboðs.
Meira
NOKKUÐ harður árekstur varð á Suðurlandsvegi við gatnamót Þrengslavegar um klukkan sjö í fyrrakvöld. Að sögn lögreglu urðu engin slys á fólki en bílarnir skemmdust mikið og voru dregnir á brott með dráttarbifreið. Ekki er vitað um tildrög...
Meira
BAUGSSKÓLINN var formlega opnaður miðvikudaginn 31. janúar. Það var Björn Bjarnason menntamálaráðherra sem formlega opnaði skólann og afhenti Sigríði Gunnarsdóttur, fræðslustjóra Baugs, lyklana að nýjum húsakynnum skólans að viðstöddum gestum.
Meira
DAGBÓK Háskóla Íslands 5.-11. febrúar 2001. Allt áhugafólk er velkomið á fyrirlestra í boði Háskóla Íslands. Ítarlegri upplýsingar um viðburði er að finna á heimasíðu Háskólans á slóðinni: http://www.hi.is/stjorn/sam/dagbok.
Meira
HALLDÓR Blöndal, forseti Alþingis, efast um gildi þess að koma upp lagaráði við Alþingi sem meti stjórnskipunargildi laga. Halldór sagði þetta m.a.
Meira
Ýmsir hafa kennt auknu frjálsræði í orkumálum um neyðarástandið sem skapast hefur í Kaliforníu vegna skorts á rafmagni. Aðalheiður Inga Þorsteinsdóttir segir hina raunverulegu ástæðu líklega frekar þá að ekki var gengið nógu langt í frjálsræðisátt þegar nýjar reglur voru settar fyrir fimm árum.
Meira
Húsavík- Boccia-lið Völsungs fékk nýlega nýja keppnisboli að gjöf. Það var Hótel Húsavík sem gaf bolina ásamt derhúfum, bæði á keppendur og aðstoðarmenn liðsins.
Meira
VEGNA sívaxandi áhuga á máli og menningu Spánar og Rómönsku Ameríku hefur verið ákveðið að stofna Félag spænskra og rómansk-amerískra fræða. Fyrsti fyrirlesturinn af fjórum og jafnframt stofnfundur félagsins verður haldinn mánudaginn 5.
Meira
ÓLAFUR Örn Haraldsson, fyrsti þingmaður Framsóknarflokksins í Reykjavík, segir efst á stefnuskrá sinni að hefja betur til vegs og virðingar hin gömlu og góðu markmið flokksins um fólk í fyrirrúmi.
Meira
Sigríður Hulda Jónsdóttir fæddist á Akureyri 1964 en ólst upp í Suður-Þingeyjarsýslu. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1984 og BA-prófi í uppeldis- og menntunarfræði auk kennsluréttinda á framhaldsskólastigi.
Meira
GEISLI heldur fund þriðjudaginn 6. febrúar kl. 20 í safnaðarheimili Selfosskirkju. Ragnar S. Ragnarsson sálfræðingur flytur erindi sem hann nefnir "Viðbrögð þolenda við einelti". Að því loknu verða umræður yfir kaffibolla.
Meira
NÁUM áttum - fræðsluhópur stendur fyrir morgunverðarfundi mánudaginn 5. febrúar kl. 8.30-10.30 í Sunnusal Hótels Sögu. Á fundinum mun Óttar Guðmundsson geðlæknir flytja erindi sem nefnist "Blekking og þekking" og þar m.a.
Meira
DR. MICHAEL Adams heldur opinn fyrirlestur þriðjudaginn 6. febrúar í boði heimspekideildar og Siðfræðistofnunar Háskóla Íslands. Fyrirlesturinn verður haldinn í stofu 201 í Lögbergi og hefst hann kl. 17.15. Öllum er heimill aðgangur.
Meira
SKJÁREINN býður upp á fyrirlestur um áhrif jógaástundunar á daglegt líf í Gyllta salnum á Hótel Borg, þriðjudaginn 6. febrúar kl. 20. Fyrirlesturinn er haldinn í tilefni af frumsýningu nýrra jógaþátta sem hefjast í febrúar á SkjáEinum.
Meira
FÆREYSKA landstjórnin tilkynnti á fimmtudagskvöld að gengið yrði til þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði eyjanna 26. maí næstkomandi. Lagt er til að eyjarnar stefni að fullu sjálfstæði árið 2012.
Meira
GARÐABÆR auglýsir um helgina eftir tilboðum í rekstur nýs leikskóla í Ásahverfi. Leikskólinn er í byggingu og verður húsnæðið í eigu bæjaryfirvalda en verið er að bjóða út umsjón og rekstur skólans.
Meira
FERÐAFÉLAG Íslands efnir til gönguferðar sunnudaginn 4. febrúar fyrir áhugasamt útivistarfólk. Fyrirhugað er að ganga frá Kolviðarhóli um Marardal og ljúka göngunni við Litlu kaffistofuna.
Meira
PÁLL Skúlason, rektor Háskóla Íslands, gerði hleypidóma um hamingjuna og eigin þekkingu að umtalsefni í ræðu sinni við brautskráningu kandídata í gær.
Meira
DAGSNÁMSKEIÐ sem ber yfirskriftina hugleiðsla gegn þunglyndi verður haldið laugardaginn 10. febrúar og er fyrir alla sem vilja læra að beita hugleiðslu gegn þunglyndi.
Meira
UNDURBÚNINGUR fyrir Íslandsmeistarakeppnina í frjálsum dönsum er hafinn. Þetta er í 20. skipti sem keppnin er haldin og eru það félagsmiðstöðin Tónabær og ÍTR sem standa að henni.
Meira
Líbýumaður dæmdur fyrir Lockerbie-slysið LÍBÝSKUR leyniþjónustumaður, Lamen Khalefa Fahimah, var á miðvikudag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa grandað farþegaþotu í eigu Pan Am-flugfélagsins yfir Lockerbie í Skotlandi fyrir tólf árum.
Meira
Læknafélag Íslands hefur tekið ákvörðun um að slíta viðræðum við Íslenska erfðagreiningu. Félagið sendi læknum bréf til að útskýra afstöðu félagsins. Kalla þurfti út björgunarsveit til að aðstoða sænskan háskólanema sem lent hafði í ógöngum á Esjunni.
Meira
TALSVERÐ umræða hefur verið í vetur um mengun í Reykjavík. Þessi mynd var tekin tveimur dögum eftir hvassviðrisdag snemma í vikunni, en þá sá vindurinn um að blása menguninni í burt. Eins og sjá má á myndinni er mengun fljót að safnast fyrir í...
Meira
FYRSTA myndakvöld Útivistar á árinu er á mánudagskvöldið 5. febrúar kl. 20 í Húnabúð, félagsheimili Húnvetningafélagsins í Skeifunni 11. Þar mun Þröstur Þórðarson sýna glæsilegar litskyggnumyndir víða að af landinu, en mest úr óbyggðum.
Meira
GRUNNNÁMSKEIÐ um Rauða krossinn verður haldið mánudagskvöldið 5. febrúar kl. 20-22.30 í Sjálfboðamiðstöð R-RKÍ, Hverfisgötu 105. Á námskeiðinu verður fjallað um Alþjóðahreyfingu Rauða krossins, RKÍ, deildastarf og sjálfboðaþátt Rauða krossins.
Meira
NÝLEGA fór í loftið nýr vefur sem ber nafnið matarlist.is. Matarlist.is sérhæfir sig í alþjóðlegri matargerð og er þar að finna fróðleik og uppskriftir um ítalska, mexíkóska, kínverska og indverska matargerð.
Meira
Kaliforníuþing samþykkti í vikunni lög sem tryggja áframhaldandi raforku í ríkinu næstu árin. Ragnhildur Sverrisdóttir segir að ríkið muni nú ganga til langtímasamninga við orkuver. Rafveiturnar berjast áfram við skuldahala, en liggja undir ámæli fyrir að hafa greitt móðurfyrirtækjum sínum háan arð undanfarin ár.
Meira
EKKI er vitað til þess að nokkur hafi lagt það á sig að telja peningana í Peningagjá á Þingvöllum, en svo virðist sem þessi ungmenni séu komin langt með það. Víst er að flestir gætu vel þegið eitthvað af aurunum sem liggja í gjánni.
Meira
Samanburðarleið en ekki útboð á farsímum Sturla Böðvarsson samgönguráðherra greindi frá því á Fjarskiptaþingi, að síðar á þessu ári muni samgönguráðuneytið úthluta rekstrarleyfum fyrir þriðju kynslóð farsíma.
Meira
SENDIRÁÐ Íslands í Moskvu er, samkvæmt upplýsingum frá alþjóðaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, að skoða mál íslensks sjómanns sem ásamt japönskum vinnufélaga sínum var handtekinn af rússnesku strandgæslunni í bænum Nevilsk á Sakhalín-eyju í fyrradag.
Meira
SIGURJÓN Baldur Hafsteinsson mannfræðingur heldur fyrirlestur þriðjudaginn 6. febrúar í hádegisfundaröð Sagnfræðingafélags Íslands sem hann nefnir "Í góðu chilli með heimildunum". Fundurinn fer fram í stóra sal Norræna hússins, hann hefst kl.
Meira
SKJALASTJÓRNUN persónuupplýsinga er mikilvægt viðfangsefni á íslenskum vinnustöðum. Námskeið um þetta efni verður haldið hinn 19. og 20. febrúar nk. og stendur fyrirtækið Skipulag og skjöl ehf. fyrir þessari fræðslu.
Meira
SVEITARSTJÓRI Vatnsleysustrandarhrepps, Jóhanna Reynisdóttir, segir að eigendur Hitaveitu Suðurnesja hafi komist að samkomulagi um verðmat fyrirtækisins vegna fyrirhugaðs samruna við Rafveitu Hafnarfjarðar.
Meira
GENGIÐ hefur verið frá skammtímasamningi milli Launanefndar sveitarfélaga annars vegar og Félags tónlistarskólakennara og Félags íslenskra hljómlistarmanna hins vegar, segir í fréttatilkynningu frá Kennarasambandi Ísland.
Meira
ÍBYGGINN á svip tók þessi netagerðarmaður á móti þrautreyndum trollum til skoðunar á Grandagarði á dögunum. Það er líka vissara að trollin séu vel undir það búin að færa okkur vænan fisk úr...
Meira
SALA á nýjum bílum dróst saman um 41,6% í janúar frá sama mánuði 2000, að því er fram kemur í bráðabirgðatölum frá Skráningarstofunni hf., sem heldur utan um bifreiðatölur. Alls seldust 645 nýir bílar í mánuðinum en 1.105 bílar í janúar í fyrra.
Meira
UNGUR maður ók á ljósastaur á Reykjanesbraut á móts við Hlíðasmára í gærmorgun. Að sögn lögreglu slasaðist maðurinn, sem er nýkominn með bílpróf, ekki alvarlega en bíllinn er talinn ónýtur.
Meira
TÆKNISKÓLI Íslands útskrifaði 163 nemendur úr 5 deildum skólans laugardaginn 20. janúar síðastliðinn og er þetta langfjölmennasti hópurinn sem útskrifast hefur frá skólanum. Útskriftin fór fram í Grafarvogskirkju og voru um 800 gestir viðstaddir.
Meira
STÆRSTI jökull á vesturhluta Suðurskautslandsins verður horfinn eftir 600 ár ef hann heldur áfram að bráðna með sama hraða og hann gerir nú, samkvæmt fréttum Reuters.
Meira
Stjórn Verkamannaflokksins komst til valda eftir að Íhaldsflokkurinn hafði fengið á sig spillingarstimpil. Nú þarf flokkurinn aftur á móti að glíma við sama vanda. Sigrún Davíðsdóttir segir það vera slæmt veganesti í kosningabaráttu, sem flokkurinn hyggst reka fremur á gildismati en stefnumálum.
Meira
Á FUNDI bæjarstjórnar Hornafjarðar hinn 1. febrúar sl. tók bæjarstjóri Hornafjarðar, Albert Eymundsson, málefni Reykjavíkurflugvallar til umræðu og í framhaldi af því var eftirfarandi ályktun samþykkti: "Fundur í bæjarstjórn Hornafjarðar haldinn 1.
Meira
SKOSKA verkfræðifyrirtækið Garrad-Hassan, aðalráðgjafi Vindorku, telur að hönnun Nils Gíslasonar uppfinningamanns á nýrri gerð af vindmyllum hafi ýmislegt fram yfir þá tækni sem nú er ráðandi á vindmyllumarkaðnum þegar kemur að hönnun stærri vindmylla.
Meira
ÁRLEG þorrablótsferð Ferðafélags Íslands verður helgina 10.-11. febrúar. Í þessum ferðum er leitast við að sameina útivist, gönguferðir, fræðslu og skemmtun. Að þessu sinni verður gist í Brattholti og stefnt að gönguferðum um næsta nágrenni, m.a.
Meira
ATKVÆÐAGREIÐSLU er lokið um þrjá kjarasamninga sem Rafiðnaðarsambandið hefur nýlega gert og voru þeir allir samþykktir. Samningur RSÍ við Landsvirkjun var samþykktur og sögðu 29 já, 5 nei og 2 seðlar voru auðir.
Meira
VEGNA hlýindanna að undanförnu og votviðrisins hefur Vegagerðin þurft að setja upp öxulþungatakmarkanir á vegum víða um land, einkum á Norðurlandi og Austfjörðum. Að sögn vegaeftirlitsmanna er þetta afar óvenjulegt á þessum árstíma, í byrjun febrúar.
Meira
Dómur Hæstaréttar í máli Öryrkjabandalagins gegn Tryggingastofnun hefur kveikt miklar umræður um stjórnskipan Íslands, m.a. þrískiptingu ríkisvaldsins, hlutverk dómstóla og stjórnarskráreftirlit.
Meira
2. febrúar 1975: "Nú um helgina kom Geir Hallgrímsson forsætisráðherra heim úr árangursríkri utanför en í henni ræddi hann m.a. við fulltrúa 6 þjóða um landhelgismál okkar og fyrirhugaða útfærslu í 200 sjómílur á þessu ári.
Meira
Efnaleg staða margra eldri kvenna er mun verri en aldraðra karla. Nær fjórfalt fleiri konur en karlar eru í hópi þeirra er fá lágmarkslífeyri og fá engar aðrar tekjur en frá Tryggingastofnun ríkisins.
Meira
ÞRÍR aukaleikarar í nýjustu mynd Leonardos DiCaprios Gangs of New York urðu fyrir talsverðum meiðslum þegar slys átti á sér stað við tökur á myndinni.
Meira
Á RÁÐSTEFNU sem haldin var síðastliðið vor í Háskóla Íslands undir heitinu "Líf í borg" flutti Pétur Gunnarsson rithöfundur athyglisvert erindi um borgarmenningu á Íslandi.
Meira
JAMES Byron Dean fæddist hinn 8. febrúar 1931, og hefði því orðið sjötugur nk fimmtudag, en lét lífið í bílslysi í Paso Robles í Kaliforníu hinn 30. september 1955.
Meira
DJASSSVEITIN Quartet 56 mun halda tónleika í Listaklúbbi Leikhúskjallarans annað kvöld. Þá verður djasssveifla frá sjöunda áratugnum í algleymingi og eru Wayne Shorter og John Coltrane fyrirferðarmestir í efnisskránni.
Meira
LEIFUR féll frá á besta aldri, 63 ára gamall, árið 1998. Þá hafði hann nýlokið við bestu verk sín. Fráfall hans var mikill missir fyrir menningarlíf okkar. Hann auðgaði íslenska menningu og gaf henni nýjar víddir. Hann var nútímalegt tónskáld á 20.
Meira
Þeir eru eflaust ófáir sem væru til í að fara í matarboð til Hákonar Más Örvarssonar. Því tók Birgir Örn Steinarsson hressilega í höndina á honum þegar þeir mættust um daginn.
Meira
ÞEIR Chris Wilson og Nick Cassway, starfsmenn gallerís nokkurs í Fíladelfíu í Bandaríkjunum, ræða hér verk á sýningu er gefið hefur verið heitið Steldu sýningunni.
Meira
TÓNLEIKAR Kammersveitar Reykjavíkur sem haldnir verða í Listasafni Íslands á morgun kl. 20 verða helgaðir Leifi Þórarinssyni tónskáldi, en hann lést fyrir aldur fram árið 1998.
Meira
90 ÁRA afmæli. Ragnar Jóhannsson, fv. skipstjóri á Ísafirði og síðar kaupmaður í Reykjavík, til heimilis í Lönguhlíð 15, Reykjavík, verður 90 ára á morgun, 5....
Meira
SÍÐAST var rætt um beygingu nafns þess félags sem rekur Mbl., þ.e. Árvakurs hf. Hún fer eftir no. akur, í fornu máli akr, þar sem á síðari málstigi var u-i skotið inn í beyginguna en r-ið hélzt áfram í öllum föllum. Í því sambandi var nefnt no.
Meira
ANDÚÐ á hundum er ótrúlega lífseig hér á landi. Stafar vonandi af fáfræði en ekki mannvonsku. Þeir sem minnst þekkja hunda eru yfirleitt mest á móti þeim.
Meira
Tryggingin fyrir jöfnum tækifærum á grundvelli laga, segir Hreinn Loftsson, getur leitt til þess að niðurstaðan verður ólík, jafnvel gjörólík, milli þeirra sem lögin tryggðu jafna réttarstöðu í upphafi.
Meira
Sumarið 1940 dvaldi ég sem unglingur í Vogum í Mývatnssveit, segir Leifur Sveinsson, sem hér rifjar upp kynni við minnisvert fólk og segir frá minnisverðum atburðum úr sveitinni. Þetta var fimmta sumarið hans í Mývatnssveit.
Meira
Á FORSÍÐU Morgunblaðsins sunnudaginn 21. janúar sl. er klausa um Norðmenn sem "hálfgalið víkingalið". Í henni er nýyrði sem ég hef hvorki heyrt né séð áður og hefur þó margt bögumælið borið fyrir augu mér. Það er orðið "selsungi".
Meira
Í dag er sunnudagur 4. febrúar, 35. dagur ársins 2001. Bænadagur að vetri. Orð dagsins: Lát rétt minn út ganga frá augliti þínu, augu þín sjá hvað rétt er.
Meira
Fjalladrottning, móðir mín! mér svo kær og hjartabundin, sæll ég bý við brjóstin þín, blessuð aldna fóstra mín. Hér á andinn óðul sín öll, sem verða á jörðu fundin. Fjalladrottning, móðir mín, mér svo kær og hjartabundin.
Meira
NÚ NÝLEGA hefur öll íslenska þjóðin fylgst með þeim þýðingarmiklu umræðum sem fram fóru á Alþingi um öryrkjamálin og reglur um bótagreiðslur til tiltekins hóps bótaþega.
Meira
ÞAÐ þarf ekki að koma Íslendingum stórkostlega á óvart að landsliðið í handknattleik skuli ekki hafa komist lengra en í 16 liða úrslit heimsmeistaramótsins.
Meira
Guðleif Jónsdóttir fæddist í Lundum í Stafholtstungum 5. febrúar 1908. Hún lést á Dvalarheimili aldraðra í Borgarnesi 15. maí 1999 og fór útför hennar fram frá Borgarneskirkju 22. maí 1999.
MeiraKaupa minningabók
Halla Eyjólfsdóttir fæddist á Fiskilæk í Melasveit 1. júlí 1926. Hún lést á Sjúkrahúsi Akraness 18. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Saurbæ á Hvalfjarðarströnd 27. janúar. Jarðsett var í heimagrafreit á Fiskilæk.
MeiraKaupa minningabók
Halldór Júlíus Ingimundarson, Garðstöðum í Garði, fæddist 14. júní 1912. Hann lést á heimili sínu 3. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Útskálakirkju 13. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Jón Ingólfsson var fæddur að Heimaskaga á Akranesi 18. september 1925. Hann lést á Landspítala - háskólasjúkrahúsi í Fossvogi sunnudaginn 28. janúar síðastliðinn.
MeiraKaupa minningabók
Jón Rafn Helgason fæddist í Hafnarfirði hinn 30. janúar 1926. Hann lést í Perth, Ástralíu, hinn 15. janúar síðastliðinn. Foreldrar hans voru Helgi Guðmundsson, f. 22.8. 1889, d. 29.6. 1943, og Kristín M. Óladóttir, f. 21.8. 1891, d. 26.5. 1986.
MeiraKaupa minningabók
Lára Einarsdóttir fæddist í Hafranesi við Reyðarfjörð 27. nóvember 1919. Hún lést í hjúkrunarheimilinu Skógarbæ 13. janúar síðastliðinn og fór útför hennar fram frá Dómkirkjunni 19. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Margret Níelsdóttir Svane fæddist í Laugardalnum í Reykjavík 13. ágúst 1945, nánar tiltekið í litlu húsi sem hafði verið fjós en foreldrar hennar höfðu gert að vistlegu heimili.
MeiraKaupa minningabók
Steinþór Júlíusson fæddist á Siglufirði 6. apríl 1938. Hann lést á heimili sínu í Keflavík 24. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Keflavíkurkirkju 2. febrúar.
MeiraKaupa minningabók
Þorleifur Einarsson fæddist á Steinavöllum í Flókadal í Vestur-Fljótum 10. maí 1909. Hann lést á Heilbrigðisstofnuninni á Sauðárkróki 17. janúar síðastliðinn og fór útför hans fram frá Flugumýrarkirkju 27. janúar.
MeiraKaupa minningabók
Það munar töluverðu á ódýrasta og dýrasta flugfarseðlinum frá Íslandi til Faró í Portúgal eða 81%. Ekki er um beint flug að ræða þegar ódýrasta fargjaldið er annarsvegar heldur er millilent og skipt um vél í London.
Meira
VAXMYNDASAFN Louis Tussaud í Kaupmannahöfn gæti þurft að víkja fyrir nýju lúxushóteli ef stjórnendur Tívolísins fá sínu fram. Byggingin sem safnið er nú í er innan veggja skemmtigarðsins og eru uppi hugmyndir um að breyta henni í um 100 herbergja hótel.
Meira
GENERAL Motors hefur undanfarið lagt niður rótgróin bílamerki í sinni eigu. Fyrst var það Vauxhall, síðan Oldsmobile og nú er hugsanlegt talið að bílaframleiðslu Isuzu bíði sömu örlög.
Meira
Sportbílaframleiðandinn ítalski, De Tomaso, og rússneski jeppaframleiðandinn UAZ hafa tekið höndum saman um smíði jeppa í ætt við Land Rover Defender.
Meira
TINDAÖXL nefnist skíðasvæði Ólafsfirðinga og eru skíðabrautirnar þar með samþykki til alþjóðlegrar samkeppni enda á skíðakeppni sér langa hefð á Ólafsfirði.
Meira
Ef flogið er til Mílanó er tiltölulega stutt til Cinque Terre eða Landsvæðanna fimm, sem eru sérstök, afskekkt sjávarþorp byggð upp í snarbrattar hlíðarnar. Hildur Friðriksdóttir leggur til að þeir sem eru á eigin vegum leggi leið sína þangað og á svæðið í kring.
Meira
Tímamót verða í framleiðslu ofursportbíla fyrir hinn almenna markað þegar fimm ný tryllitæki verða kynnt. Þetta eru bílar frá VW, Porsche, Mercedes-Benz, Bugatti og Aston Martin.
Meira
Helgafell í landi Hafnarfjarðar lætur frekar lítið yfir sér, en upp á það eru nokkrar skemmtilegar gönguleiðir. Útsýnið af því kom einnig Regínu Hreinsdóttur á óvart.
Meira
MIKLAR breytingar hafa orðið á síðustu misserum í eignarhaldi á bílaframleiðendum. Hér á eftir fer listi þar sem lesendur geta glöggvað sig betur á því hver á hvern. BMW: BMW, Rolls-Royce (eftir 2003), Mini, Riley, Triumph.
Meira
SJALDNAST kemur fram í umfjöllun um bíla og bílaframleiðendur hverjir standa að baki fyrirtækjunum. Hér kemur listi yfir stærstu hluthafa í nokkrum af stærstu evrópsku fyrirtækjunum.
Meira
SKÍÐASNILLINGURINN Alberto Tomba er eflaust flestum skíðaáhugamönnum vel kunnugur. Færri vita hins vegar að uppáhalds skíðasvæðið hans er Dolomiti-skíðasvæðið í ítölsku ölpunum en þangað flykkist fjöldinn allur af Íslendingum árlega.
Meira
SALA á nýjum bílum dróst saman um tæp 42% í janúar miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt bráðabirgðatölum frá Skráningarstofunni. Toyota er sem fyrr söluhæsti bíllinn með 19,2% markaðshlutdeild en allt árið í fyrra var hlutur Toyota 19,1%.
Meira
ÞEGAR Ferdinand Piëch, núverandi stjórnarformaður Volkswagen-samsteypunnar, var yfirmaður Audi, gerði hann róttækar breytingar á ímynd fyrirtækisins.
Meira
Lengd: 4.405 mm. Breidd: 1.695 mm. Hæð: 1.465 mm. Þyngd: 1.335 kg. Hjólhaf: 2.525 mm. Sporvídd: 1.465/1.455 mm. Veghæð: 19 sm. Vél: 1.994 rsm. Afl: 125 hestöfl/5.600. Tog: 184 Nm/3.600. Eyðsla, blandaður akstur: 9,7 l. Bæjarakstur: 13,5 l.
Meira
FERÐASKIRFSTOFAN Sól var opnuð hinn 1. febrúar síðastliðinn. Goði Sveinsson, markaðsstjóri ferðaskrifstofunnar Sólar, segir að í tilefni opnunarinnar verði boðið upp á vikuferðir til Portúgals og Kýpur í apríl á sérstöku kynningarverði.
Meira
Tíbet Fyrsta hótelið við Everest Maður að nafni Russel Brice hefur fengið leyfi til að byggja nýtt hótel við fjallsrætur Everest á þeirri hlið sem snýr að Tíbet.
Meira
Kennslustundirnar í skóla snúast ekki alltaf um málfræðistagl og æfingar í lestri. Jóhanna Kristjónsdóttir segir að það hafi t.d. verið í meira lagi líflegt þegar talið barst einhverra hluta vegna að þeim reglum sem gilda um erfðir samkvæmt íslam.
Meira
Einar Torfi Finnson rekur ferðaskrifstofuna Íslenskir fjallaleiðsögumenn ásamt þremur félögum sínum. Hann er nýkominn frá Niger þar sem hann fór í 11 daga gönguferð í eyðimörkinni Ténere.
Meira
HÓPBÍLAR hf. er eitt af fjórum fyrirtækjum í ferða- og samgönguþjónustu sem rekin eru undir sama hatti og er aðsetur þeirra við Melabraut í Hafnarfirði. Hin fyrirtækin eru Hagvagnar, ferðaskrifstofan Íslandsvinir og tímaritið Iceland Explorer.
Meira
Kirkjan, sagan og þjóðin hafa verið rauði þráðurinn í hugvekjunum síðustu misserin. Stefán Friðbjarnarson staldrar við þann söguríka stað, Bessastaði á Álftanesi.
Meira
Auðvitað tengjast ágreiningsþættir málsins allir beint og ekki gefið að auðvelt sé að gera greinarmun á þeim. En það má prófa og sjá hvort tilraunin hjálpar manni við að ná áttum.
Meira
Níu borð í Gullsmára Tvímenningur var spilaður á 9 borðum hjá Bridsdeild FEBK í Gullsmára fimmtudaginn 1. febrúar sl. - Miðlungur 168. - Efst vóru: NS Karl Gunnarss. - Kristinn Guðmundss. 202 Sigurpáll Árnas. - Sigurður Gunnlaugss. 179 Dóra Friðleifsd.
Meira
Margir íslenskir skákmenn eiga minningar frá skákferðalögum til Gausdals í Noregi. Á árum áður réð þar Arnold Eikrem ríkjum og fékk fjöldinn allur af íslenskum unglingum eldskírn sína á mótum hans.
Meira
Kristinn Björnsson, skíðamaður frá Ólafsfirði, hefur lítið staðið á skíðum það sem af er vetri og ekki er þar alfarið snjóleysinu á höfuðborgarsvæðinu um að kenna.
Meira
FALUR Harðarson, körfuknattleiksmaður frá Keflavík, fór á dögunum í speglun á hægra hné, en Falur fór í samskonar aðgerð seint í haust. "Þetta vandamál má rekja til atviks sem gerðist í leik þegar ég lék í Finnlandi.
Meira
UNDANÚRSLITALEIKIR karlaliða í bikarkeppni Körfuknattleikssambands Íslands fara fram í dag og eru báðir leikirnir á Suðurnesjum. Í Keflavík gera heimamenn atlögu við að komast í sjöunda bikarúrslitaleik félagsins, en til þess þarf liðið að leggja Hamar frá Hveragerði og en í Grindavík mætast núverandi bikarmeistarar og nýliðarnir frá ÍR.
Meira
Þ EGAR ég komst fyrst í kynni við japönsk barnaheimili og skóla bjóst ég við að skólastarfið væri svipað því sem þekkist a Íslandi vegna þess hve hin ytri umgjörð er svipuð því sem við þekkjum.
Meira
Megrunar- og fitubrennsluumræðan virðist alltaf vera mjög ofarlega á baugi, sérstaklega hjá konum. Sem betur fer hef ég ekki átt við offituvandamál að stríða þrátt fyrir að ég sé mikill sælkeri og leyfi mér ýmislegt matardekur oft, sem e.t.v. myndi taka sinn toll í aukakílóum hjá mörgum öðrum. Ég geri mér grein fyrir að maður þarf að hreyfa sig auðvitað og geri það og brenni þannig mínum oft mörgu hitaeiningum sem ég hef látið í mig yfir daginn.
Meira
BARAFLOKKINN þekkja kannski ekki margir nú orðið en á sínum tíma var hann með helstu rokksveitum landsins. Tæpir tveir áratugir eru síðan Baraflokkurinn lagði upp laupana en seint á síðasta ári kom út safnplatan Zahír með helstu lögum hljómsveitarinnar og í lok nóvember sl. hélt hún tónleika fyrir troðfullu húsi. Svo vel þótti mönnum takast til og svo margir urðu frá að hverfa að sveitin hyggst halda aðra tónleika, öðrum þræði til að minna betur á skífuna.
Meira
L íknardráp var töluvert til umfjöllunar í fjölmiðlum í nóvember síðastliðnum þegar hollenska þingið samþykkti lagafrumvarp sem kveður á um að læknum sé í ákveðnum tilfellum heimilt að aðstoða dauðvona sjúklinga við að binda enda á líf sitt, sé ströngum...
Meira
Einn af þekktustu og bestu veiðimönnum og flugukösturum Bretlandseyja, Michael Evans, verður með fluguveiðikennslu á bökkum Ytri-Rangár í sumar í samvinnu við Þröst Elliðason, leigutaka árinnar og eiganda veiðiþjónustunar Strengja.
Meira
ÞAÐ GETUR gefist vel að klæða sig upp og mála ef vekja á athygli, eins og sannast eftirminnilega á Marilyn Manson. Þær eru þó fleiri sveitirnar sem gera slíkt og við hæfi að ein af þeim hljómsveitum vestan hafs sem ganga einna lengst í þessum efnum, gODHEAD, er á mála hjá Manson.
Meira
Sigþór Sigurjónsson er Reykvíkingur, fæddur 1948. Eiginkona hans er Kristín Sophusdóttir hjúkrunarfræðingur og börn þeirra eru Sophus og Kristín María, sem bæði eru komin til vits og ára. Sophus er 26 ára gamall og er meðeigandi í Kringlukránni og rekur staðinn í samvinnu við föður sinn.
Meira
MARGIR MUNA eflaust eftir hljómsveitinni Snot sem vakti athygli með framúrskarandi skemmtilegri skífu fyrir þremur árum. Áður en þeim Snot-mönnum tókst að taka upp aðra breiðskífu lést söngvari sveitarinnar og helsti lagasmiður í bílslysi. Fyrir stuttu kom út minningarplata um hann, Strait Up, þar sem margir frestu rokksöngvarar seinni ára hefja upp raust sína.
Meira
MÚSÍKTILRAUNIR Tónabæjar, árleg hljómsveitakeppni, verður haldin í nítjánda sinn í mars næstkomandi. Sigurlaun í tilraununum eru jafnan hljóðverstímar og hafa dugað hljómsveitum býsna vel til að koma sér á framfæri í kjölfarið, en einnig hefur sigursveitin leikið á vegum Reykjavíkurborgar við ýmis tækifæri.
Meira
7:30: Ég fer út á götuhornið þar sem ég hitti krakkana í mínum skólahóp. Við göngum saman í skólann. 8:00: Þegar við komum í skólann setjumst við við borðin okkar og lesum sjálf bækur meðan við bíðum eftir kennaranum.
Meira
Sushi hefur notið hraðvaxandi vinsælda á Íslandi og víða skotið upp kollinum. Steingrímur Sigurgeirsson hreifst af fyrsta staðnum sem sérhæfir sig í sushi-gerð og raunar japönskum grillpinnum líka.
Meira
HÉR má sjá svokallað "lestrarkort", eyðublað, sem foreldri (í langflestum tilvikum: móður) hvers barnaskólabarns í Japan er ætlað að fylla út er barninu er hlýtt yfir heimalærdóminn. Þetta er lestrarkort Hrafnkötlu frá því í september 1999.
Meira
TUTTUGASTA öldin, með öllum sínum ótrúlegu breytingum í íslensku samfélagi, er enn fyrirferðarmikil í huga okkar enda flestar okkar minningar bundnar henni.
Meira
Indíánarnir telja að við höfum jörðina að láni frá næstu kynslóðum, segir Sveinbjörn I. Baldvinsson, og spyr hvað við ætlum að segja þegar við skilum henni.
Meira
VIÐRÆÐUM Læknafélags Íslands og Íslenskrar erfðagreiningar um framkvæmd laga um miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði var slitið í síðasta mánuði eftir að hafa staðið í tæpa 11 mánuði með hléum. Í lok desember virtist sem aðilar væru að ná saman, m.a.
Meira
Jackson taldi sig ekki geta gert sögu Tolkiens almennileg skil nema búa til úr henni þrjár bíómyndir í fullri lengd og hann komst að þeirri niðurstöðu í samráði við framleiðslufyrirtækið New Line Cinema, að best væri að taka myndirnar allar upp í einu.
Meira
Eyjan Phuket utan suðvesturstrandar Taílands er þekkt fyrir að þar er boðið upp á köfun á heimsmælikvarða. Þorkell Þorkelsson skellti sér suður þangað, hitti fyrir Davíð Sigurþórsson sem starfaði einmitt við að kenna ævintýraþyrstum ferðalöngum köfun.
Meira
Innflytjendur og nokkrir "innfæddir" í ástralska þorpinu Narrabri tóku sig til í desember og kynntu þorpsbúum lönd sín og siði. Sólveig Kr. Einarsdóttir segir hér frá því og flóðadögunum í Nýju Suður-Wales í lok nóvember, en fregnir berast nú af því að gífurleg flóð séu hafin á ný á svipuðum slóðum.
Meira
Forsætisráðherra Noregs segir tíma stórra vatnsorkuvera í Noregi liðinn og að horfið verði frá virkjunarframkvæmdum við árnar umhverfis Saltfjallið í Norður-Noregi. Sunna Ósk Logadóttir segir þetta meðal annars vekja spurningar um hvort ríkið eigi að borga skaðabætur til sveitarfélaga sem hafa reitt sig á bætt lífsskilyrði með tilkomu vatnsorkuvera.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.