STJÓRN Ariels Sharons í Ísrael réttlætir sprengjuárásir á stöðvar lífvarðarsveita Yassers Arafats, leiðtoga Palestínumanna, með því að embættismenn hans séu flæktir í starfsemi hryðjuverkamanna.
Meira
MAKEDÓNSKI herinn hóf í gær áhlaup á albanska skæruliða í nágrenni höfuðborgarinnar Skopje og í austurátt til borgarinnar Kumanovo. Var stórum svæðum lokað af, m.a. landamærunum til Kosovo, og er óvíst hvenær þau verða opnuð aftur.
Meira
Á SUMUM sjúkrahúsum í Noregi eru ákveðnar tegundir af aðgerðum aðeins framkvæmdar nokkrum sinnum á ári og sjúklingarnir eru þar í meiri hættu en á sjúkrahúsum þar sem starfsmenn hafa meiri reynslu, að sögn Aftenposten .
Meira
YFIRMAÐUR bandarísku umhverfisverndarstofnunarinnar (EPA), Christine Todd Whitman, segir að bandarísk stjórnvöld hyggist ekki fylgja Kyoto-bókuninni frá 1997 eins og hún sé nú.
Meira
GENGI hlutabréfa á bandarískum fjármálamarkaði lækkaði allmikið í gær vegna frétta af verulega minni hagnaði ýmissa stórfyrirtækja. Gekk hækkunin síðustu daga að mestu til baka. Dow Jones-hlutabréfavísitalan lækkaði í gær um 1,6% og Nasdaq um 6%.
Meira
Á MORGUN mun Tryggingastofnun ríkisins ljúka uppgjöri á greiðslum til öryrkja vegna breyttra almannatryggingalaga, en löggjöfin breytti þeim viðmiðunarmörkum sem verið höfðu varðandi tengingu á bótum öryrkja við tekjur maka. Alls verða greiddar 1.
Meira
29. mars 2001
| Erlendar fréttir
| 780 orð
| 2 myndir
Allt helst í sama horfi í sambandslöndunum í suðvesturhluta Þýskalands eftir kosningarnar sem þar fóru fram sl. sunnudag, skrifar Davíð Kristinsson frá Berlín.
Meira
Friðrik Þór Guðmundsson og Hilmar Friðrik Foss staðhæfa í eftirfarandi greinargerð, sem þeir sendu Morgunblaðinu í gær, að flugvél hafi fengið lofthæfiskírteini sem hún hafi aldrei átt að fá. Það hafi verið vegna þess að Flugmálastjórn hafi brugðist eftirlitshlutverki sínu. Fyrirsögnin er þeirra.
Meira
MIKIÐ verður um dýrðir í Hlíðarfjalli á föstudagskvöld, 30. mars, en þar verður haldið brettamót Sprite þar sem m.a. fjórir atvinnumenn á snjóbrettum leika listir sínar.
Meira
SAMNINGAFUNDI hjá sjómönnum og útvegsmönnum lauk í húsakynnum ríkissáttasemjara um hálfáttaleytið í gærkvöldi án mikils árangurs, samkvæmt upplýsingum þaðan. Fundur hafði þá staðið í rúmar sex klukkustundir.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 640 orð
| 2 myndir
ÖGMUNDUR Jónasson, formaður þingflokks Vinstri hreyfingarinnar - græns framboðs, tók skýrslu Ríkisendurskoðunar um samninga heilbrigðisráðuneytisins við Öldung hf.
Meira
FUNDUR var haldinn á þriðjudag í kjaradeilu ríkisins og Félags háskólakennara. Guðmundur H. Guðmundsson, varaformaður samninganefndar ríkisins, sagði síðdegis að fundurinn hefði verið mjög jákvæður.
Meira
GRIKKLANDSVINAFÉLAGIÐ Hellas heldur árshátíð sína í Kaffileikhúsinu, Hlaðvarpanum, föstudaginn 30. mars. Hátíðin hefst kl. 19 með borðhaldi þar sem á boðstólum verður hlaðborð með grískum réttum. Undir borðum mun Szymon Kuran leika á fiðlu.
Meira
Norður-Héraði- Það er upplagt að nota tækifærið í vetrarblíðunni og bregða sér á skíði. Skíðafæri með afbrigðum gott, snjóhula yfir öllu og glaða sólskin.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 102 orð
| 1 mynd
KÁRI var í miklum ham við Vegamót á Snæfellsnesi í gær þar sem þessi maður barðist gegn vindinum. Fleiri staðir fengu að kenna á veðurofsanum og fóru bílar út af veginum á Holtavörðuheiði og tepptu umferð um hríð.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 156 orð
| 1 mynd
ÍSLANDSPÓSTI barst óvenjulegt bréf frá Ameríku fyrir skömmu. Þegar bréfið, sem stílað var á Íslandspóst, var opnað kom í ljós að í því var lítill poki sem innihélt ösku.
Meira
JACQUES Chirac Frakklandsforseti kaus í gær að sinna í engu stefnu um að bera vitni fyrir rétti um ásakanir þess efnis að Gaullistaflokkur hans (RPR) hafi þegið ólöglegar greiðslur fyrir að sjá til þess að valin fyrirtæki fengju eftirsótta...
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 121 orð
| 1 mynd
SVANFRÍÐUR Jónasdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefur kallað eftir viðbrögðum ríkisstjórnarinnar við þeirri stöðu sem uppi er í kjaradeilu sjómanna og útgerðarmanna. Bendir hún m.a.
Meira
SAMNINGAVIÐRÆÐUR standa nú yfir við kúbversku hljómsveitina Buena Vista Social Club um að halda aðra tónleika hér á landi en eins og kunnugt er seldust miðar á tónleika hennar í Laugardalshöll hinn 30.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Vesturlands dæmdi í gær rúmlega þrítugan karlmann í eins mánaðar fangelsi fyrir líkamsárás en hann réðst að sambýliskonu sinni og barnsmóður og sló hana ítrekað í andlitið í nóvember í fyrra.
Meira
LEIKSKÓLARÁÐ hefur samþykkt samhljóða að fara þess á leit við borgarráð að Leikskólar Reykjavíkur greiði einkareknum leikskólum mánaðarlegan húsnæðisstyrk sem nemi 388 krónum á hvern fermetra.
Meira
ELDUR kviknaði í Antoni GK-58, sem er 12 tonna plastbátur, þar sem hann lá við bryggju í Grindavíkurhöfn í gærmorgun. Að sögn lögreglukom eldurinn upp í stýrishúsi og skemmdist báturinn töluvert í eldinum.
Meira
Akranesi- Fegurðardrottning Vesturlands verður krýnd í Félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík laugardaginn 31. mars og munu 10 stúlkur af Vesturlandi keppa um titilinn.
Meira
FÉLAGSFUNDUR í Ættfræðifélaginu verður haldinn í kvöld, fimmtudaginn 29. mars 2001, klukkan 20.30. Fundurinn verður haldinn á Laugavegi 162, 3. hæð, húsi Þjóðskjalasafns Íslands. Húsið verður opnað kl. 19.30.
Meira
RÚMLEGA 600 námsmenn hafa nú skráð sig hjá Atvinnumiðstöð stúdenta í leit að starfi í sumar. Þetta eru um 100 fleiri en voru á skrá hjá miðstöðinni á sama tíma í fyrra, en um er að ræða námsfólk af framhalds- og háskólastigi.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 201 orð
| 1 mynd
ÞORGERÐUR Einarsdóttir, fyrrverandi húsmóðir í Þórisholti í Mýrdal, hélt upp á 100 ára afmælið sitt í hópi ættingja og vina á Hótel Höfðabrekku í Mýrdal í gær. Þorgerður, sem er hress miðað við aldur, býr nú á dvalarheimilinu Hjallatúni í Vík.
Meira
HÁDEGISVERÐARFUNDUR SUS um samkeppnismál verður haldinn í veitingahúsi Iðnó, 2. hæð föstudaginn 30. mars kl. 12 með yfirskriftinni Samkeppnislög til óþurftar?
Meira
29. mars 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 467 orð
| 2 myndir
ÞÓRARINN V. Þórarinsson, forstjóri Landssímans, segir að Landssímanum hafi á síðasta ári orðið á þau mistök að tilkynna Póst- og fjarskiptastofnun ekki með formlegum hætti um þau stigvaxandi afsláttarkjör sem fyrirtækið byði stórum viðskiptavinum sínum.
Meira
HAFNARFJARÐARDEILD Rauða kross Íslands er 60 ára um þessar mundir en deildin var stofnuð hinn 30. mars 1941. Haldið verður afmælishóf í Bæjarhrauni 2 í Hafnarfirði föstudaginn 30. mars og hefst það kl. 18.
Meira
AUSTURRÍSKI hægrimaðurinn Jörg Haider gaf í gær í skyn, að hann kynni að hætta stuðningi við ríkisstjórn Frelsisflokksins (FPÖ) og Þjóðarflokksins (ÖVP) sem nú hefur starfað í rúmt ár.
Meira
SVARFDÆLSKI marsinn er yfirskrift menningarhátíðar sem efnt verður til í Dalvíkurbyggð um helgina, dagana 30. mars til 1. apríl. Að hátíðinni standa nokkrir áhugamenn um svarfdælska menningu.
Meira
Lækkun á stýrivöxtum Seðlabankans er almennt vel tekið í íslensku athafnalífi. Jafnframt telja flestir að ný lög um Seðlabankann og niðurfelling vikmarka gengisvísitölu krónunnar sé af hinu góða og komi efnahagslífinu vel. Grétar Júníus Guðmundsson og Guðrún Hálfdánardóttir ræddu við aðila úr athafnalífinu og fulltrúa stjórnarandstöðunnar.
Meira
BJÖRGUNARSVEITIN á Höfn í Hornafirði var kalluð til aðstoðar níu manns á tveim jeppum á Vatnajökli á þriðjudagskvöld. Þar voru á ferð þrír Íslendingar með sex þýska ferðamenn á vegum ferðaskrifstofunnar Katla Travel.
Meira
LAUFÁSPRESTAKALL: Kirkjuskóli í Svalbarðskirkju á laugardag, 31. mars, kl. 11. Kyrrðarstund verður í kirkjunni kl. 21 á sunnudagskvöld. Kirkjuskóli verður í Grenivíkurkirkju kl. 13.30 á...
Meira
SAMIÐ hefur verið um að Mekka Tölvulausnir á Akureyri annist notenda- og kerfisþjónustu við tölvukerfi orkusviðs Landsvirkjunar á Norðurlandi, en um er að ræða þjónustumiðstöð á Akureyri, Blöndustöð, Laxárstöð og Kröflustöð. Reynir B.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 101 orð
| 1 mynd
Ísafirði- Samkomulag hefur verið gert milli Ísafjarðarbæjar og teiknistofunnar Kol og salt ehf. á Ísafirði um að koma í framkvæmd hugmyndum Elísabetar Gunnarsdóttur arkitekts um nýtingu á lausu húsnæði fyrir fræðimenn og listamenn.
Meira
SIGURÐUR Á. Sigurðsson, framkvæmdastjóri innkaupafyrirtækisins BÚR ehf., sagðist líta jákvæðum augum á úrskurð Samkeppnisstofnunar, sem sagt var frá í Morgunblaðinu sl. þriðjudag.
Meira
Rangt föðurnafn Sigurlaug Sverrisdóttir er ein þeirra sem undirbúa þjálfun flugfreyja hjá Atlanta. Rangt var farið með föðurnafn hennar í myndartexta í blaðinu í gær og biðst Morgunblaðið velvirðingar á...
Meira
29. mars 2001
| Akureyri og nágrenni
| 63 orð
| 1 mynd
KK og Magnús Eiríksson verða með nokkra tónleika á næstu dögum á Norðurlandi. Fimmtudag 29. mars Við Pollinn, Akureyri, kl. 21, föstudag 30. mars Hafnarbarinn, Þórshöfn, kl. 22 og laugardag 31. mars Gamli Baukur, Húsavík, kl.
Meira
VERKEFNISSTJÓRN reynslusveitarfélaga og Samband íslenskra sveitarfélaga gangast í sameiningu fyrir málþingi um reynslu og árangur reynslusveitarfélaganna af þjónustu við fatlaða og yfirtöku þeirra á málaflokknum.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 247 orð
| 1 mynd
ÚTLIT er fyrir að útgáfa húsbréfa í mars verði töluvert minni en í sama mánuði í fyrra og er það í samræmi við þróunina í febrúarmánuði. Hins vegar var útgáfa húsbréfa í janúar í ár meiri en í sama mánuði í fyrra.
Meira
Í MINNINGU Bhawönu Gurung, sex ára stúlkunnar, sem lést í sundlauginni í Grindavík 23. mars sl., hefur Grindavíkurbær stofnað reikning nr. 882 í Sparisjóði Grindavíkur.
Meira
FLUTNINGALEST hlaðin kjarnorkuúrgangi gat loks haldið áfram för síðdegis í gær, eftir að herskáir kjarnorkuandstæðingar höfðu tafið hana í nærri sólarhring með því að festa sig kirfilega við teinana með keðjum og steinsteypu.
Meira
GÖRAN Persson forsætisráðherra Svíþjóðar, sem fer með formennsku í Evrópusambandinu (ESB) þetta misserið, og Romano Prodi, forseti framkvæmdastjórnarinnar, lýstu báðir ánægju sinni með niðurstöður leiðtogafundar sambandsins í Stokkhólmi um síðustu helgi.
Meira
TALIÐ er að 200 til 250 konur gangist undir brjóstastækkunaraðgerð hér á landi á ári hverju. Um níu af hverjum tíu aðgerðum teljast fegrunaraðgerðir, en um 10% eru aðgerðir vegna eftirstöðva brjóstakrabbameins og annarra slíkra sjúkdóma.
Meira
ÁTJÁN þingmenn í öllum þingflokkum undir forystu Árna Ragnars Árnasonar, Sjálfstæðisflokki, hafa lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um auknar forvarnir gegn krabbameinssjúkdómum í meltingarvegi og öðrum sjúkdómum þeim tengdum.
Meira
HITT húsið heldur ókeypis byrjendanámskeið í stuttmyndagerð. Námskeiðið er haldið frá kl. 20-22 fimmtudagskvöldin 29. mars og 5. apríl nk. Kennt verður á Adobe Premiere-klippiforritið. Allir á aldrinum 16-25 ára eru...
Meira
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráðherra hefur farið fram á við yfirdýralækni að hann afturkalli leyfi sem hann veitti fyrir innflutningi á páfagaukum frá Bretlandi. Ástæðan er gin- og klaufaveikin sem nú geisar þar í landi.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 420 orð
| 1 mynd
RAGNAR Arnalds, rithöfundur og fyrrverandi formaður, þingmaður og ráðherra Alþýðubandalagsins, hefur gengið til liðs við Vinstrihreyfinguna - grænt framboð í Reykjavík, VG.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur hefur sýknað íslenska ríkið af bótakröfu vegna meintra mistaka við fæðingu drengs árið 1993. Foreldrarnir töldu að aðgerðir og aðgerðaleysi starfsmanna spítalans hafi leitt til þess að drengurinn hafi hlotið áverka við fæðingu.
Meira
ALEXEJ Kúdrín, fjármálaráðherra og aðstoðarforsætisráðherra Rússlands, sagði í gær að rússneska stjórnin hefði ákveðið að undirrita ekki eins árs samning við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn, IMF.
Meira
BIRGIR Ísleifur Gunnarsson seðlabankastjóri sagði á ársfundi bankans sl. þriðjudag að það væri mat Seðlabankans að efnahagslífið væri komið yfir erfiðasta hjallann í ofþenslunni.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 222 orð
| 1 mynd
SAMNINGUR um heildarhönnun vegna byggingar nýrra nemendagarða á lóð Menntaskólans á Akureyri hefur verið undirritaður en rekstrarfélagið Lundur sem reisir bygginguna hefur samið við Arkitekta- og verkfræðiskrifstofu Hauks á Akureyri um verkefnið.
Meira
SAMNINGAR í kjaradeilu ríkisins og Félags flugmálastarfsmanna tókust um klukkan eitt í nótt hjá ríkissáttasemjara. Félagið hafði boðað verkfall 11. og 12. apríl n.k., en það hefði stöðvað að mestu alla flugstarfsemi í landinu.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 213 orð
| 1 mynd
BÆJARSTJÓRN Dalvíkurbyggðar hefur samþykkt tillögu að breytingu á deiliskipulagi við Hafnarbraut á Dalvík, þar sem fyrirhugað er að vinnslustöð Íslandsfugls, slátrun og vinnsla verði til húsa.
Meira
Hellnum- Verkefni sem snýr að eflingu sjálfbærrar ferðaþjónustu á norðlægum slóðum og stutt er af Norræna iðnaðarsjóðnum var formlega hrundið í framkvæmd í janúar árið 2000. Um er að ræða samstarfsverkefni sem Ísland, Grænland og Svalbarði eiga aðild að.
Meira
29. mars 2001
| Höfuðborgarsvæðið
| 211 orð
| 1 mynd
FRAMKVÆMDIR hefjast í dag við endurnýjun Sóleyjargötu frá Njarðargötu að Skothúsvegi. Gatan verður lokuð fyrir umferð allt fram í miðjan júlí. Sigurður Skarphéðinsson gatnamálastjóri segir að stefnt sé að því að búið verði að malbika götuna fyrir 17.
Meira
SÍÐASTA sumar voru reknar sumarbúðir fyrir fatlaða og ófatlaða á Löngumýri í Skagafirði. Rauði kross Íslands-deildir á Norðurlandi stóðu fyrir og ráku þessar búðir og hefur nú verið ákveðið að framhald verði á í sumar.
Meira
ST. bernharðshundar verða sífellt vinsælli til átu í Kína og þykir kjötið af þeim afar bragðgott. Svisslendingar eru hins vegar yfir sig hneykslaðir á þessu athæfi Kínverja enda eru st.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 151 orð
| 1 mynd
Síðastliðið haust voru liðin fimm ár frá stofnun sérdeildar fyrir nemendur með einhverfu sem staðsett er í Langholtsskóla. Í tilefni þessara tímamóta sótti deildin um styrk til Svalanna. Helsta fjármögnunarleið Svalanna er jólakortasala.
Meira
Norður-Héraði- Svanfríður Óladóttir, bóndi á Þrándarstöðum, sæðir refalæður í þremur búum á Fljótsdalshéraði. Sæðið tekur hún úr refum á refabúi sínu á Þrándarstöðum. Svanfríður lærði refasæðingar 1986 og hefur sætt öll ár síðan.
Meira
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra sagði á Stöð 2 í fyrrakvöld að tillögur sem miðuðu að því að leggja Þjóðhagsstofnun niður væru í vinnslu í forsætisráðuneytinu.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 706 orð
| 1 mynd
UM 0,6% Íslendinga á aldrinum 16 til 75 ára, eða um 1.700 manns, eru haldnir spilafíkn að því er fram kemur í rannsókn sem fyrirtækið Íslenskir söfnunarkassar stóð fyrir og framkvæmd var í lok síðasta árs.
Meira
TVÖ ár eru liðin frá því að viðræður, sem miðuðu að því að afstýra stríði í Kosovo, fóru út um þúfur. Stjórn Slobodans Milosevic notaði þá hermenn, sem safnað hafði verið saman, til að hefja hamslausar þjóðernishreinsanir og manndráp.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 1476 orð
| 2 myndir
Eðlismunur er á velferðarkerfi Íslendinga og Skandinava þar sem íslenska þjóðfélagið er minna velferðarforsjárþjóðfélag en meira vinnu- og sjálfsbjargarþjóðfélag. Þetta er meðal þess sem kom fram á ráðstefnu Alþýðusambands Íslands í Salnum í gær um framtíð velferðarkerfisins. Jóhanna K. Jóhannesdóttir fylgdist með umræðum á ráðstefnunni.
Meira
Borgarnesi- Allflestir kennarar í Grunnskólanum í Borgarnesi tóku þátt í námskeiði um samvirkt nám (Cooperative learning) sem stóð yfir frá haustdögum og fram í mars.
Meira
29. mars 2001
| Innlendar fréttir
| 935 orð
| 1 mynd
Ákvörðun ríkisstjórnar og Seðlabanka um að afnema vikmörk gengis krónunnar og taka þess í stað upp verðbólgumarkmið peningastefnunnar virðist skynsamleg og bezti kosturinn við núverandi aðstæður í íslenzkum þjóðarbúskap.
Meira
Í haust verður sett á stofn verkþjálfunar- og fræðslusetur fyrir ungmenni hér á landi undir heitinu Fjölsmiðjan. Setrið er einkum ætlað atvinnulausum ungmennum sem flosnað hafa upp úr námi og er markmið þess að nota starf sem leiðsögn til náms.
Meira
VEFÞJÓÐVILJINN er vefrit, sem gefið er út af ungum sjálfstæðismönnum. Þar gera þeir að umtalsefni grein sem Hrannar B. Arnarsson skrifaði í Morgunblaðið í fyrri viku.
Meira
Sænski gítarleikarinn Gunnar Spjuth mun halda tónleika í Áskirkju í dag, fimmtudag, kl. 20 og námskeið á laugardag og sunnudag kl. 12 í húsnæði Tónskólans Do Re Mi í KR-húsinu Frostaskjóli 2. Rúnar Þórisson fjallar hér um listamanninn og ræðir við hann.
Meira
Tækniskóli Íslands er fagháskóli á sviði tækni, reksturs og heilbrigðisgreina auk þess sem boðið er sérhæft aðfararnám. Skólinn hefur frá upphafi lagt áherslu á starfsmenntun á háskólastigi.
Meira
ÁLAFOSS FÖT BEZT: Stuðboltarnir Jói og Kjartan sjá um fjörið. Frítt inn föstudags- og laugardagskvöld. ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Almennur dansleikur með hljómsveit Geirmundar Valtýssonar föstudagskvöld. Dansleikur með Caprí-tríó sunnudagskvöld kl. 20 til 23.30.
Meira
SÍÐASTLIÐINN laugardag opnaði í Gula húsinu sýningin Forrest eða Frumskógur en það eru þau Asami Kaburagi, Cécile Parcillié, Charlotte Williams, Julia Oschatz, Julia Steinmann, Luigi Pixeddu, Manuel Ruberto, Nguyen Viet Thaanh og Verena Lettmayer sem...
Meira
Trúarbragðafræði til 30 eininga byrjar í haust í Háskóla Íslands og er hún á vegum guðfræðideildar, félagsvísindadeildar og heimspekideildar. Hér er um þverfaglegt nám að tefla og á að nýtast nemendum í hinum ýmsum greinum, eins og t.d.
Meira
NÚ stendur yfir sýning glerlistamannsins Sigrúnar Ólafar Einarsdóttur í Ráðhúskaffi í Ráðhúsi Reykjavíkur og verður listamaðurinn á staðnum nk. sunnudag frá kl. 12-14. Sýningin stendur fram yfir páska og er opin á opnunartíma kaffihússins. Virka daga kl.
Meira
Meðan á verkefninu Reykjavík - menningarborg Evrópu 2000 stóð gerðist afar fátt bitastætt í myndlist á höfuðborgarsvæðinu, ekki umfram önnur ár nema að síbylja vanbúinna smásýninga var meiri en nokkru sinni fyrr. Bragi Ásgeirsson lítur um öxl, fjallar um markaðs- og hagsmunamál myndlistarmanna og hermir af alþjóð-legum listamarkaði.
Meira
Háskólanám á Íslandi hefur verið kynnt fyrir áhugasömum í aprílmánuði undanfarin ár. Þessar kynningar hafa verið vel sóttar en mikilvægt er að taka yfirvegaða ákvörðun um háskólanám því það kostar bæði háskólana og stúdentana óþarfa fyrirhöfn og útgjöld ef of margir taka ranga ákvörðun um framhaldsnám sitt. Háskólar á Íslandi hafa því tekið höndum saman til að veita væntanlegum nemendum innsýn í margbreytileikann og verður það gert 1. apríl nk. í eftirfarandi byggingum:
Meira
Háskóli Íslands er 90 ára á þessu ári. Kennsla hófst við HÍ í byrjun október 1911 en háskólinn var formlega stofnaður 17. júní það ár. Nemendur háskólaárið 200-2001 eru 6.773 (2649 kk. og 4124 kvk.
Meira
SÍÐUSTU vikurnar eða svo hefur sýndarveruleikahljómsveitin Gorillaz vakið á sér athygli með laginu "Clint Eastwood". Smáskífan er t.d. í sjötta sæti yfir mest seldu smáskífurnar í Bretlandi þessa vikuna.
Meira
Við nám í Listaháskóla Íslands er lögð höfuðáhersla á sköpun og miðlun. Skólinn sinnir æðri menntun á sviði listgreina og býður upp á nám til fyrstu háskólagráðu í fjórum deildum; leiklistardeild, myndlistardeild, hönnunardeild og tónlistardeild.
Meira
UNDANFARIÐ hefur börnum á höfuðborgarsvæðinu, á aldrinum 9 og 10 ára, gefist kostur á að sjá leikritið Heimsókn á geymsluloftið í Borgarleikhúsinu.
Meira
LEIKDEILD UMF. Eflingar frumsýnir sína aðra uppfærslu á þessu leikári í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20.30 í félagsheimilinu á Breiðumýri í Reykjadal.
Meira
ÞÓRUNN Valdimarsdóttir er gestur Ritlistarhóps Kópavogs að þessu sinni. Hún lesa úr bók sinni um Sigrúnu Jónsdóttur, Engin venjuleg kona, í dag, fimmtudag, kl. 17, í kaffistofu Gerðarsafns. Allir eru velkomnir og aðgangseyrir er...
Meira
LIVE from Reykjavík, geisladiskur dúettsins Kuran Kompaní. Dúettinn skipa þau Szymon Kuran, fiðluleikari og Hafdís Bjarnadóttir, gítarleikari. Lögin voru hljóðrituð hliðrænt af Ragnari Emilssyni á Næsta bar og í Kaffileikhúsinu síðastliðið sumar.
Meira
VORTÓNLEIKAR Kvennakórsins Ljósbrár verða í Hvoli á Hvolsvelli annað kvöld, föstudagskvöld, kl. 21. Kórinn var stofnaður árið 1989 og eru félagar nú 25. Kórstjóri er Nína María Morävek. Einsöngvari á tónleikunum er Gísli Stefánsson.
Meira
SALURINN í Edinborgarhúsinu á Ísafirði var þéttsetinn á sunnudaginn þegar í fyrsta sinn var haldin þar bókmenntavaka undir nafninu Vestanvindar. Vakan var helguð minningu Guðmundar G. Hagalín rithöfundar en einnig komu þar fleiri vestfirsk skáld við...
Meira
Höfundur: Hallgrímur H. Helgason. Leikstjóri: Vigdís Jakobsdóttir. Hljóðvinnsla: Björn Eysteinsson. Leikarar: Bjarni Haukur Þórsson, Helga Bachmann, Jón Páll Eyjólfsson, Jón Hjartarson og Marta Nordal. Frumflutt laugardag 24. mars; endurtekið fimmtudag 29. mars.
Meira
THE Nordic Quartet leikur í Múlanum í Húsi Málarans í Bankastræti í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 21. Kvartettinn er skipaður Dönunum Morten Ramsböl á bassa, Christian Vuust sax og Morten Lund á trommur ásamt Svíanum Jacob Karlzon á píanó.
Meira
CAMP Victoria, Kosovo. 26. mars 2001. Róleg helgi í hinum sænska Camp Victoria í Kosovo. Á sunnudeginum var herdeildinni þó safnað saman og veittar NATO-orður fyrir vel unnin störf í þágu friðar á svæðinu.
Meira
EFNT verður til pallborðsumræðna í Listasafni Íslands, Tjarnarsal, í samvinnu við Listaháskóla Íslands í kvöld, fimmtudagskvöld, kl. 20. Rætt verður um sýn íslenskra myndlistarmanna og ljósmyndara á náttúruna á 20. öld.
Meira
ÞORFINNUR Guðnason er leikstjóri myndarinnar um Lalla Johns. "Það var þannig að ég ætlaði að gera þáttaröð um Íslendinga," svarar Þorfinnur, spurður um ástæður þess að hann réðst í þetta verkefni.
Meira
SÍMINN og Leikfélag Íslands hafa undirritað samning um að Síminn gerist aðalstuðningsaðili Leikfélagsins við uppfærslu leikritsins Sniglaveislan eftir Ólaf Jóhann Ólafsson í Iðnó. Sýningin er samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og Leikfélags Íslands.
Meira
Síðasta föstudag opnaði hópur frá Listaháskóla Íslands sýningu í menningarmiðstöðinni Skaftfelli á Seyðisfirði. Unnar Jónasson ræddi við meðlimi hópsins um sýninguna og listina fyrir austan.
Meira
STÓRSÖNGVARINN Geir Ólafsson, eða Ice Blue eins og hann er jafnan kallaður, hefur margsannað að hann er gæðablóð og má ekkert aumt sjá. Það ætti því að koma fáum á óvart að hann sé nú með í farvatninu styrktartónleika til handa krabbameinssjúkum börnum.
Meira
SVO virðist sem fátt hafi vakið meiri athygli vestanhafs á afstaðinni Óskarsverðlaunahátíð en kjóllinn blessaði sem Björk Guðmundsdóttir klæddist, en hann var hannaður af góðvini hennar frá Makedóníu, Marjan Pejoski.
Meira
Listasafn Kópavogs - Gerðarsafn Sýningunni Úr einkasafni Sverris Sigurðssonar lýkur á laugardag. Á sýningunni eru 130 verk úr einkasafninu. Safnið er opið alla daga, nema mánudaga, kl. 11-17.
Meira
STÆRSTI leikfangasali í Bretlandi, Woolworths-verslunarkeðjan, hefur gefið frá sér þá yfirlýsingu að þeir ætli ekki að selja Eminem-dúkkur í verslunum sínum. Talsmenn verslunarinnar segja rapparann umdeilda ekki falla inní fjölskylduímynd fyrirtækisins.
Meira
Námskynning 01/Háskólar munu kynna væntanlegum nemendum sínum námsframboð sitt 1. apríl nk. Valkostir hafa batnað undanfarin ár og breiddin aukist. Háskólanámið hefur einnig breiðst um landið. Árlega bjóða háskólarnir upp á nýjungar. Hér verður gerð grein fyrir náminu í stuttu máli áður en lesendur halda á kynninguna.
Meira
Næsta haust verða tæplega 200 nemendur við staðnám á Bifröst. Heildaríbúafjöldi háskólaþorpsins er þá orðinn tæplega 400, starfsfólk, nemendur og fjölskyldur þeirra. Þéttbýlisstaðurinn byggist allur á þekkingar- og háskólastarfi.
Meira
Á litla sviði Borgarleikhússins verður frumsýndur annað kvöld einleikurinn Kontrabassinn eftir Patrick Süskind. Leikari er Ellert A. Ingimundarson og leikstjóri er Kjartan Ragnarsson. Hávar Sigurjónsson hitti þá eftir æfingu.
Meira
Manneldisráð er opinber stofnun á vegum heilbrigðisráðuneytisins, segir Ólafur G. Sæmundsson, og hefur sett fram manneldismarkmið til að stuðla að æskilegri þróun í mataræði þjóðarinnar.
Meira
TIL ritstjórnar Morgunblaðsins. Ég vil gjarnan spyrja hvort þér getið aðstoðað mig við að finna fjölskyldu mína á Íslandi. Föðursystir mín, Ólöf Ingibjörg Einarsdóttir, fór 1901 eða 1902 til Danmerkur þar sem hún giftist Carl Andersen árið 1902.
Meira
Ég get tekið undir það með Sigurði Jónssyni, segir Jóhannes Gunnarsson, að leiðbeininga- og kvörtunarþjónusta er að mörgu leyti í ágætum farvegi hér á landi þótt talsvert vanti enn uppá að stjórnvöld viðurkenni fjárhagslega ábyrgð sína á rekstri þjónustunnar.
Meira
Því er ósvarað hvers vegna neitað var að koma með stúlkuna fyrir dóm, segir Brynjar Níelsson, og þar með hugsanlega fórnað mikilvægum hagsmunum hennar.
Meira
Því aðeins verður fullkominn ávinningur af sameiningu sjúkrahúsanna, segir Páll Torfi Önundarson, að allar sérgreinar geti veitt bráðaþjónustu á einum og sama stað.
Meira
MINNKA brotið á blaðinu niður í A4. Hafa í hverju einstöku blaði afmarkað efni, sem verða síðan svo mörg blöð sem þarf eftir efni. Hafa blöðin götuð í jöðrunum svo hægt sé að smella þeim í möppu.
Meira
Borgarstjóra lá svo mikið á að skreyta sig með viljayfirlýsingu og samvinnu við einkaframtakið mánuði fyrir borgarstjórnarkosningar, segir Júlíus Vífill Ingvarsson, að það skipti bersýnilega ekki höfuðmáli í hans huga hvað það kostaði borgina þegar upp var staðið.
Meira
Faraldur af lifrarbólgu C hefur gengið yfir heiminn á undanförnum árum, segir Sigurður Ólafsson, og talið er að um 4 milljónir manna séu sýktar í Vestur-Evrópu einni saman.
Meira
RÁÐSTEFNA um konur og íþróttir undir slagorðinu Móðir, kona, meyja - með til betra lífs, var haldinn í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ 10. mars sl. í umsjá og að frumkvæði Kvenfélags Garðabæjar.
Meira
Í dag er fimmtudagur 29. mars, 88. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Haltu fast í agann, slepptu honum ekki, varðveittu hann, því að hann er líf þitt.
Meira
Nú gera menn sér vonir um, segir Þorgerður Árnadóttir, að bóluefni gegn vissum stofnum vörtuveira geti hjálpað í baráttunni við leghálskrabbamein.
Meira
Sálarskip mitt fer hallt á hlið og hrekur til skaðsemdanna, af því það gengur illa við andviðri freistinganna. Sérhverjum undan sjó eg slæ, svo að hann ekki fylli, en á hléborðið illa ræ, áttina tæpast grilli.
Meira
Bæði stafræn útsending með bakaleið og stafræn einkarás teljast vera stafrænt gagnvirkt sjónvarp, segja Elfa Ýr Gylfadóttir og Davíð Gunnarsson, þar sem notendur geta með bakaleiðinni stýrt þeirri þjónustu sem þeir þiggja.
Meira
Með því að koma pappírsúrgangi í endurvinnslu og með því endurnota plast- pokann er dregið úr því sorpi sem annars fer til urðunar, segja Sif Svavarsdóttir og Ragna Halldórsdóttir, og stuðlað að aukinni endurvinnslu úrgangs á hagkvæman hátt.
Meira
VEGNA skrifa í Morgunblaðinu 9. mars sl. um tafir á læknastofum, langar mig að leggja orð í belg. Það sér nú hver maður, að það gengi aldrei upp að læknastofa reyndi að ná símasambandi við allt það fólk, sem ætti tíma þann daginn sem töf verður.
Meira
ÞVÍ er stundum haldið fram að mjög stór hluti þjóðarinnar eigi erfitt með að skilja og fylgjast með umræðu um efnahagsmál á Íslandi vegna þess að í þessari umræðu séu notuð orð og hugtök sem fólk skilji ekki til fulls. Vita t.d.
Meira
Hallur Símonarson fæddist í Reykjavík 16. ágúst 1927. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi miðvikudaginn 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Ingibjörg Sigurást (Ásta) Hallsdóttir, f. 15.
MeiraKaupa minningabók
29. mars 2001
| Minningargreinar
| 2005 orð
| 1 mynd
Ragnar S. Jónsson var fæddur á Borgarfirði eystra 15. maí 1923. Hann lést í Reykjavík 13. nóvember 1999. Faðir hans hét Jón Stefánsson, f. 7. júlí 1891 undir Eyjafjöllum, ólst upp á Fáskrúðsfirði, síðar kaupmaður á Seyðisfirði, d. 24.
MeiraKaupa minningabók
29. mars 2001
| Minningargreinar
| 2514 orð
| 1 mynd
Sigríður Birna Bjarnadóttir fæddist á Akureyri 10. maí 1938. Hún andaðist á heimili sínu 22. mars síðastliðinn. Foreldar hennar voru Ásta Jónsdóttir frá Patreksfirði, f. 1917, d. 1969, og Bjarni Pétursson, f. 1915, d. 1995. Sigríður átti fimm...
MeiraKaupa minningabók
29. mars 2001
| Minningargreinar
| 2180 orð
| 1 mynd
Svava Guðmundsdóttir fæddist á Kvígindisfelli í Tálknafirði 1. júlí 1918. Hún lést á Sjúkrahúsi Suðurlands á Selfossi 21. mars síðastliðinn. Foreldrar hennar voru hjónin Guðmundur Kristján Guðmundsson frá Stóra-Laugardal í Tálknafirði, f. 6. maí 1890, d.
MeiraKaupa minningabók
FJARÐARKAUP Gildir til 31. mars nú kr. áður kr. mælie. Bayonneskinka 899 1.198 899 kg FK-hrásalat, 360 g 98 113 272 kg Reyktur lax / grafinn lax 1.398 1.898 1.398 kg Kjúklinganaggar, ferskir 525 785 525 kg Gráðostur, 100 g 119 134 1.
Meira
Kílóið af papriku sem kostaði 400-500 krónur fyrir liðlega viku er nú víða komið í 700-800 krónur. 30% verðtollur var lagður á paprikur 16. mars sl. sem skýrir verðhækkunina að hluta.
Meira
Heildsöluverð á páskaeggjum hefur hækkað um 4% frá í fyrra hjá Nóa-Síríusi og Góu-Lindu. Engin verðhækkun á sér stað hjá Mónu. Nokkrar páskaeggjategundir hjá Mónu hafa verið lækkaðar í verði.
Meira
NÓATÚN hefur opnað nýjan vef á Netinu; www.noatun.is sem m.a. upplýsir neytendur um tilboð í verslununum. Þá er þar Netklúbbur Nóatúns þar sem fólki er boðið að gerast áskrifendur að upplýsingum um tilboð í verslunum Nóatúns.
Meira
Stefán Steinar Tryggvason, fyrrverandi lögregluvarðstjóri, er sjötugur í dag. Stefán er fæddur fyrir norðan, nánar tiltekið í Sæborg í Glerárþorpi, sonur hjónanna Guðlaugar Snorru Stefánsdóttur og Tryggva Ólafssonar vélstjóra.
Meira
UM helgina býður Nýkaup í Kringlunni ungnautakjöt á tilboðsverði en verðlækkunin verður á bilinu 30 til 37%. Um er að ræða íslenskt ungnautakjöt af heimsþekktum holdanautakynjum, af Angus-, Limousine- og Galloway-kynjum.
Meira
Bridsfélag Hafnarfjarðar Ekki fékkst nægileg þátttaka í hraðsveitakeppni þegar til átti að taka, en mánudaginn 26. mars var þess í stað spilaður eins kvölds tvímenningur. Úrslit hans urðu þannig: Friðþj.
Meira
Bridsfélag Suðurnesja Mánudaginn 26. mars lauk minningarmóti um Guðmund Ingólfsson. Spilaður var Butler og úrslit urðu þessi: Arnór Ragnarss. - Guðjón S. Jensen 159 Garðar Garðarss. - Óli Þ. Kjartanss. 154 Randver Ragnarss. - Svala Pálsd.
Meira
Undanúrslit Íslandsmótsins í sveitakeppni um helgina Um helgina spila 40 sveitir víðs vegar að af landinu um 10 sæti í úrslitunum sem verða spiluð um páskana að venju. Fyrirliðar eru hvattir til að mæta stundvíslega kl. 14:00 á fyrirliðafundinn.
Meira
ÚTSPILIN geta stundum verið nánast skoplega afdrifarík. Hér er gott dæmi um þessa vandræðalegu hlið spilsins frá HM 1983, úr viðureign Bandaríkjamanna og Ný-Sjálendinga. Norður gefur; AV á hættu.
Meira
Safnaðarstarf Áskirkja Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14-17. Söngstund kl. 14-15 í neðri safnaðarsal. Kristján Sigtryggsson, organisti, leiðbeinir og stýrir hópnum. Allir hjartanlega velkomnir til að syngja eða hlusta. Boðið upp á kaffi á eftir.
Meira
Staðan kom upp í annarri deild Íslandsmóts skákfélaga. Eftir að hafa ekki teflt í nokkur ár hefur Ingvar Þór Jóhannesson (1935) heldur betur brett upp ermarnar og teflt sem aldrei sem fyrr.
Meira
ÞAÐ hlaut að koma að því að Andy Cole skoraði í landsleik og í gærkvöldi gerðist það. Cole gerði þriðja og síðasta markið í 3:1 sigri Englendinga í Albaníu, en þetta var þrettándi landsleikur Cole. Þjóðverjar brugðu sér til Grikklands og unnu 4:2 þrátt fyrir að vera manni færri síðasta hálftímann og eru þeir efstir í 9. riðli HM með fullt hús stiga.
Meira
TONY Cottee komst á spjöld ensku knattspyrnusögunnar í fyrrakvöld en þá afrekaði hann að hafa spilað með liðum úr fjórum deildum á einu og sama tímabilinu.
Meira
ALEXANDER Ermolinskij, leikmaður og þjálfari úrvalsdeildarliðs Skallagríms í körfuknattleik, verður þjálfari liðsins á næsta keppnistímabili. Ermolinskij gerði tveggja ára samning við Borgarnesliðið sl.
Meira
GLENN Hoddle, fyrrverandi landsliðsþjálfari Englands, hefur sagt starfi sínu lausu sem knattspyrnustjóri Southampton - til að taka við Tottenham, hans gamla liði. Hann lék 566 leiki með Tottenham og skoraði 212 mörk.
Meira
FORRÁÐAMENN úrvalsdeildarliðs Grindavíkur hafa sett sig í samband við Friðrik Inga Rúnarsson og óskað eftir viðræðum við landsliðsþjálfarann um að hann taki við þjálfun Grindavíkurliðsins.
Meira
DEJAN Jokic, knattspyrnumaður frá Júgóslavíu, verður til reynslu hjá ÍBV í æfingaferð liðsins til Portúgals í næstu viku. Hann kemur í stað landa síns, Milans Janosevic, sem er meiddur. Jokic er 32 ára sóknarmaður eða kantmaður sem leikur með 1.
Meira
ÍSLENSKT hugbúnaðarfyrirtæki, SportScope, er komið í samstarf við John Moores-háskólann í Bretlandi þar sem íslenskur hugbúnaður mun verða notaður við íþróttarannsóknir.
Meira
JÓHANN Birnir Guðmundsson skoraði fyrra mark Lyn sem sigraði Odd Grenland , 2:0, í æfingaleik sem fram fór á heimavelli Odd í gær. Jóhann skoraði markið með fallegu skoti í bláhornið eftir að hafa leikið á varnarmann Odd .
Meira
SAMKVÆMT heimildum Morgunblaðsins mun Jón Kristjánsson ekki ætla að endurnýja samning sinn við 1. deildarlið ÍR-inga í handknattleik en tveggja ára samningi hans við Breiðholtsliðið lýkur eftir tímabilið í vor.
Meira
ÓLAFUR Ingi Skúlason, knattspyrnumaðurinn efnilegi úr Fylki, fer í dag til enska liðsins Arsenal og dvelur þar fram í næstu viku. Með honum í för eru faðir hans og Ólafur Garðarsson umboðsmaður hans.
Meira
TÖLFRÆÐIN er ekki á bandi Íslandsmeistara KR í körfuknattleik karla fyrir þriðju viðureign liðsins í undanúrslitum Íslandsmótsins gegn Njarðvík í kvöld.
Meira
SEX stig á fyrstu fimmtán mínútunum eftir hlé drógu vígtennurnar úr Keflavíkurstúlkum þegar þær fengu KR í heimsókn í gærkvöldi í öðrum leik liðanna í úrslitum Íslandsmótsins. Vesturbæingar gengu strax á lagið, tóku endanlega öll völd á vellinum og sigruðu örugglega, 77:52, án þess að heimasæturnar hefðu nokkuð um það að segja. KR-stúlkur unnu þar með annan leik sinn og geta með sigri í þriðja leik liðanna á laugardaginn, sem fram fer í Vesturbænum, tryggt sér Íslandsmeistaratitil.
Meira
JÚLÍUS Hafstein, formaður Blaksambands Íslands, hefur verið valinn formaður nefndar C-þjóða Evrópu í blaki til næstu tveggja ára. Nefndin hefur á sinni könnu undirbúning að stofnun keppni C-þjóða í blaki karla og kvenna en slík keppni hefur ekki verið fyrir hendi til þessa.
Meira
ÖRN Arnarson, sundmaður úr Hafnarfirði og tvöfaldur Evrópumeistari í baksundi, ætlar að taka þátt í sex greinum á Opna Sjálandsmótinu í Danmörku um aðra helgi, en auk Arnar eru níu íslenskir unglingalandsliðsmenn í sundi skráðir til leiks á mótinu. "Ég verð gamli maðurinn í hópnum," sagði Örn í gamansömum tóni í samtali við Morgunblaðið í gær.
Meira
JÓN Egill Egilsson, sendiherra í Moskvu, á fund með fulltrúum rússneskra yfirvalda vegna innflutningsbanns Rússlands á matvælum frá Evrópu í dag og þá fæst væntanlega úr því skorið hvort Ísland fær undanþágu til að flytja inn fiskafurðir til Rússlands.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRI og stjórnarformaður sjávarútvegsfyrirtækisins Fishery Products International (FPI) á Nýfundnalandi, Vic Young, segist hafa orðið þess áskynja að gerð verði tilraun til hallarbyltingar í fyrirtækinu á aðalfundi þess sem haldinn verður 1.
Meira
SJÁVARÚTVEGSRÁÐUNEYTIÐ hefur gefið út reglugerð um veiðar úr úthafskarfastofninum árið 2001. Í henni felst að veiðunum verður nú stjórnað með svæðaskiptingu en ekki verður miðað við dýpi eins og gert var á síðasta ári.
Meira
TÆPLEGA 10% hlutafjár í Íslenskum aðalverktökum hf. skiptu um eigendur í gær þegar Jón Ólafsson, stjórnarformaður Norðurljósa hf., og Sigurður G. Guðjónsson, lögmaður, keyptu hlutabréf í félaginu af Íslandsbanka-FBA hf.
Meira
Sendinefnd fulltrúa austurrískra fyrirtækja verður í Reykjavík dagana 2. og 3. apríl nk. til að koma á samskiptum og hugsanlegum viðskiptatengslum við íslensk fyrirtæki og umboðsmenn.
Meira
Gengi krónunnar er mikilvægur þáttur í starfsumhverfi sjávarútvegs eins og margsinnis hefur komið fram, ekki síst í umfjöllun um afkomu sjávarútvegsfyrirtækja síðastliðnar vikur.
Meira
Verð á 95 oktana bílabensíni hækkaði frá ársbyrjun 1999 til júlímánaðar árið 2000, þegar verðið var hæst, um rúmar 28 krónur eða um 40%. Fór úr 70,20 krónum í 98,30 krónur en verð á 95 oktana bílabensíni í dag er 95,90 krónur.
Meira
UM þessar mundir er verið að dreifa bókinni Íslensk fyrirtæki til viðskiptavina og valinna fyrirtækja, en einnig er hægt að kaupa bókina hjá Fróða hf. Bókin er helsta handbók allra sem þurfa að leita upplýsinga um fyrirtæki, félög og stofnanir á Íslandi.
Meira
BÓNUS hefur samið við Tal um að annast alla GSM-þjónustu fyrir starfsmenn verslanakeðjunnar. Auk hinnar eiginlegu GSM-þjónustu og þráðlausra gagnaflutninga útvegar Tal starfsfólki Bónus símtæki og fylgibúnað.
Meira
Á AÐALFUNDI Basisbank var ákveðið að auka hlutafé bankans til þess að tryggja það að bankinn sé fjármagnaður miðað við rekstraráætlanir sem fyrir liggja en í þeim er gert ráð fyrir að bankinn verði rekinn með hagnaði á næsta ári.
Meira
EIMSKIP hefur samið við Nýherja um kaup og víðtæka innleiðingu á Siebel eBusiness-hugbúnaðinum til stjórnunar viðskiptatengsla frá Siebel Systems Inc. Eimskip hefur að undanförnu unnið að miklum breytingum á sölu- og markaðsstarfi fyririrtækisins.
Meira
HAGNAÐUR MP Verðbréfa hf. á árinu 2000 eftir skatta var 79 milljónir króna. Eigið fé félagsins nam 452,5 milljónum króna samkvæmt efnahagsreikningi í lok ársins. Niðurstöðutala hans var 978 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall MP Verðbréfa 31.
Meira
Hlutafjárútboð í Den norske Bank stendur nú yfir en því lýkur á morgun, föstudag. Á sunnudag verður ljóst hversu stór hluti verður seldur og á hvaða verði. Um er að ræða u.þ.b. 10-15% af heildarhlutafé bankans.
Meira
Það er nánast vonlaust fyrir gesti að skoða allt sem er í boði á tæknisýningunni CeBIT í Hannover og margir básar lítt þekktra fyrirtækja verða því oftast útundan. Það kom Guðmundi Sv. Hermannssyni því nokkuð á óvart að múgur og margmenni var í íslenska básnum þótt þar væru hvorki sýndir nýir GPRS-farsímar né lófatölvur.
Meira
Jóhanna Ingólfsdóttir er fædd í Reykjavík árið 1956. Hún varð stúdent frá Menntaskólanum við Tjörnina 1976 og lauk Diplome d'Etat í iðjuþjálfun frá L'Hopital des Enfantes Malades í París 1981.
Meira
Jón Ólafsson, stjórnarformaður Norðurljósa hf., og Sigurður G. Guð jónsson, lögmaður, hafa keypt tæplega 10% hlutafjár í Íslenskum aðalverktökum hf. af Íslandsbanka-FBA hf.
Meira
Kr. Kr. Kr. Ein. kl. 9.15 Gengi Kaup Sala Dollari 92,21000 91,99000 92,43000 Sterlpund. 131,88000 131,56000 132,20000 Kan. dollari 58,74000 58,57000 58,91000 Dönsk kr. 10,95600 10,92400 10,98800 Norsk kr. 10,12000 10,09000 10,15000 Sænsk kr.
Meira
LANDSBANKI Íslands og Teymi hafa gert með sér samstarfssamning um gerð miðlægs gagnagrunns sem á að mynda heilsteyptan viðskiptamannagrunn fyrir Landsbanka Íslands og verður undirlag bæði tölvukerfa og fyrirspurnagagnagrunna.
Meira
CeBIT-upplýsingatæknisýningunni í Hannover, stærstu sýningu sinnar tegundar í heimi, lauk í gær. Árni Matthíasson tæpir hér á nokkru af því sem vakti athygli hans á sýningunni; vísbendingum um framtíðarþróun í símamálum, breyttu viðhorfi til Linux og glímu Intel við AMD og Transmeta um örgjörvamarkaðinn.
Meira
ERGO og Greining Íslandsbanka-FBA hf. hafa sent viðskiptavinum sínum bréf þar sem þeim er bent á fjögur innlend hlutafélög sem séu álitlegir kostir fyrir fjárfesta. Félögin eru Eimskip hf., Delta hf., Skýrr hf. og Opin kerfi hf.
Meira
REKSTUR stærstu Sparisjóðanna gekk misjafnlega í fyrra og ljóst að ef ekki hefði komið til sölu á bréfum þeirra í Kaupþingi, hlutdeild þeirra í hagnaði Kaupþings eða færsla á bréfum úr fjárfestingarbók til markaðsvirðis í veltubók hefði...
Meira
UMHVERFI, nýr samstarfsvettvangur ellefu fyrirtækja í upplýsingatækni, hefur verið sett á laggirnar. Fyrirtækin sem standa að verkefninu í upphafi eru Ax-hugbúnaðarhús, Álit, Eskill, Íslenska vefstofan, Króli, Miðheimar, Síminn, Stefja, Teymi, Veita.
Meira
VERKSMIÐJA Bakkavarar Sweden AB sem keypt var á miðju ári 1999 er stærsta dótturfyrirtæki Bakkavör Group. Í Svíþjóð og Skandinavíu er mikil hefð fyrir neyslu á síld og síldarafurðum sem eru helstu stærstu framleiðsluafurðir dótturfyrirtækisins.
Meira
STARFSMENN norska fyrirtækisins Kværner eru alfarið á móti samrunaáformum Kværner og fyrirtækis Kjell Inge Røkke, Aker Maritime, að því er fulltrúar þeirra tilkynntu á blaðamannafundi í gær.
Meira
Afkoma vátryggingarekstrar var slæm á síðasta ári, en fjármálareksturinn skilaði betri niðurstöðu. Haraldur Johannessen fjallar um afkomu tryggingafélaganna og áætlar markaðsvirði VÍS. Tillaga um skráningu þess verður lögð fyrir aðalfund í dag.
Meira
TELENOR hefur gert samning um kaup á bandaríska fjarskiptafyrirtækinu Comsat Mobile Communications fyrir sem samsvarar um 10 milljörðum íslenskra króna, að því er fram kemur í Aftenposten . Fyrirtækið starfar á sviði gervihnattafjarskipta.
Meira
HREINN hagnaður Renault-samsteypunnar nam um 1.080 milljónum evra eða tæpum 85 milljörðum íslenskra króna samkvæmt ársreikningum síðasta árs sem birtir voru nýlega.
Meira
Afkoma Olíufélagsins hf. sýnir, að mati Kristjáns Loftssonar stjórnarformanns félagsins, að allar fullyrðingar um að félagið hafi misnotað aðstöðu sína við hækkandi heimsmarkaðsverð eldsneytis eigi ekki við rök að styðjast.
Meira
Veldu dagsetningu
Smellið til að skoða greinar frá viðkomandi degi.
Skiptið um mánuð með því að fletta efst.
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.