GEORGE W. Bush Bandaríkjaforseti sagði í gær að hann vildi ná sádi-arabíska útlaganum Osama bin Laden "dauðum eða lifandi" vegna árásanna á Bandaríkin sem talið er að hafi kostað meira en 5.500 manns lífið.
Meira
KAUPHALLIRNAR í Frankfurt og Mílanó hafa hafið rannsókn á grunsamlegum viðskiptum með hlutabréf, sem hugsanlega kunna að tengjast hryðjuverkunum í Bandaríkjunum í vikunni sem leið.
Meira
FIMM manns fórust í gærmorgun þegar skólabíll rakst á timburflutningabíl nálægt Sundsvall í Svíþjóð. Að minnsta kosti 36 börn á aldrinum 13-16 ára voru í skólabílnum og fjögur þeirra létu lífið. Ökumaður skólabílsins lést einnig.
Meira
AÐALFUNDUR Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, verður haldinn mánudaginn 24. september kl. 18 í Valhöll við Háaleitisbraut 1. Á dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf og kosning stjórnar.
Meira
"MAÐUR verður að vera harður," segir Jón Valgeir Williams, sem hjó sundur sin á öðrum fæti í aflraunakeppninni Suðurnesjatröllið í Hafnarfirði á föstudag en hélt þó áfram keppni.
Meira
EKIÐ var á bifreiðina NJ-271, sem er Daihatsu rauð fólksbifreið, þar sem hún stóð kyrr og mannlaus á bifreiðastæði við Lindargötu gegnt Þjóðleikhúsinu 16. sept. sl. milli kl. 22.30 um kvöldið og kl. 1.30 um nóttina.
Meira
ÁHRIF boðaðs verkfalls sjúkraliða yrðu töluverð á Landspítala - háskólasjúkrahúsi, að sögn Önnu Stefánsdóttur, hjúkrunarforstjóra sjúkrahússins, en þar starfa um 550 sjúkraliðar.
Meira
Í LJÓSI frétta um að ráðstefnum og fundum hafi verið frestað á Íslandi í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum er rétt að árétta að slíkt er ekki algilt. Fyrsta alþjóðlega ráðstefnan um ál, sem halda á 25. til 28. september næstkomandi, er t.d.
Meira
Í SKOTBARDÖGUM á Vesturbakkanum og Gazasvæðinu í gær lézt einn Palestínumaður og 15 særðust, þar á meðal 5 drengir. Fjórir ísraelskir hermenn særðust í átökunum, sem brutust út þrátt fyrir mikinn þrýsting m.a.
Meira
BILUN kom upp í reykhreinsibúnaði í þriðja ofni Járnblendiverksmiðjunnar á Grundartanga í gær. Af þeim sökum neyddist fyrirtækið til að hleypa óhreinsuðum reyk beint út í andrúmsloftið.
Meira
SEX innbrot voru framin í höfuðborginni, þar af þrjú þeirra í apótek aðfaranótt sunnudags. Tveir sautján ára piltar voru staðnir að innbroti í apótek í austurborginni og voru þeir handteknir og færðir í fangageymslur lögreglu.
Meira
TÓNLEIKAGESTIR í troðfullri Laugardalshöll risu ítrekað úr sætum og voru ósparir á fagnaðarlætin á tónleikum José Carreras, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Kórs Íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands undir stjórn Davids Giménez í gærkvöldi.
Meira
SIGURÐUR Pétur Snorrason, aðstoðarframkvæmdastjóri Pink Sheet, sem er hlutabréfamarkaður með óskráð hlutabréf, er búsettur á Manhattan og fékk í gærdag að fara í fyrsta sinn inn í íbúð sína frá því að hryðjuverkin áttu sér stað í síðustu viku.
Meira
UMHVERFISMÁLASTOFA Landverndar og Umhverfisstofnunar HÍ verður haldinn í stofu 101 í Odda þriðjudaginn 18. september kl. 17. Fjallað verður um stór uppistöðulón og áfok.
Meira
ÁÆTLAÐ er að tap Flugleiða vegna röskunar á flugi eftir hryðjuverkin í Bandaríkjunum fyrir réttri viku nemi um 100 milljónum króna. Félagið þurfti að aflýsa 26 flugferðum dagana 11.-14. september og varð röskun á sjö ferðum til viðbótar. Alls áttu um 4.
Meira
JÓN Torfi Jónasson, prófessor við Háskóla Íslands, heldur fyrirlestur á vegum Rannsóknarstofnunar KHÍ næstkomandi miðvikudag, 19. september, kl. 16.15. Fyrirlesturinn verður haldinn í sal Sjómannaskóla Íslands við Háteigsveg og er öllum opinn.
Meira
ÖKUMAÐUR slapp með minniháttar meiðsl þegar bíll hans fór út af Reykjanesbraut snemma á sunnudagsmorgun og valt margar veltur. Maðurinn er tvítugur, hann er grunaður um ölvun.
Meira
HALLDÓR G. Halldórsson og Ruth Viðarsdóttir sigruðu í karla- og kvennaflokki í Skíðastaðaspretti, hjólreiðakeppni frá Gúmmívinnslunni við Réttarhvamm og að Skíðahótelinu í Hlíðarfjalli.
Meira
ÞAÐ ríkti hátíðarstemmning á Akureyri sl. laugardag eftir að Þór hafði sigrað með glæsibrag í 1. deild Íslandsmótsins í knattspyrnu og ljóst var að KA myndi fylgja Þór í efstu deild á næsta ári.
Meira
Það var glatt á hjalla í Grafarvogi á laugardag þegar Grafarvogsdagurinn var haldinn hátíðlegur í fjórða sinn. Er talið að á fjórða þúsund manns hafi tekið þátt í hátíðahöldunum sem fóru fram víðs vegar um voginn og hefur mætingin aldrei verið betri.
Meira
HÉRAÐSDÓMUR Vestfjarða hefur dæmt karlmann í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að slá lögreglumann við skyldustörf í andlit svo af hlaust nefbrot.
Meira
ÍSLAMSKIR hryðjuverkamenn með aðsetur í Bretlandi en undir stjórn Osamas bin Ladens lögðu á ráðin um hermdarverk í byggingu Evrópuþingsins í Strassborg í febrúar síðastliðnum, að því er breska blaðið Daily Telegraph greindi frá á sunnudaginn.
Meira
ÍBÚI við Fjólugötu í Reykjavík hefur kært framkvæmdir að næturlagi við norður-suðurbraut flugvallarins í Vatnsmýri. Segir í kæru hans að hann telji að þessar framkvæmdir brjóti í bága við Lögreglusamþykkt Reykjavíkur og reglugerð um hávaða nr.
Meira
ÓLAFUR Ólafsson, formaður Félags eldri borgara í Reykjavík og nágrenni, segir að vaxandi þungi sé í umræðunni um að eldri borgarar bjóði fram á sérlista. Hann segir að bæði hafi verið þrýstingur um sérframboð til Alþingis og sveitarstjórna.
Meira
HÆKKUN fasteignamats mun ekki leiða til hækkunar lóðarleigu til Gerðahrepps. Þá mun fasteignaskattur á lóðarmat ekki hækka. Hins vegar mun hreppssjóður fá auknar tekjur af fasteignaskatti vegna hækkunar fasteignamats húsa.
Meira
ÞÚSUNDIR fylgismanna afganska stjórnarandstöðuforingjans Ahmeds Shah Massood fylgdu honum til grafar í heimaþorpi hans í Pasjír-dalnum í Hindu Kush-fjallgarðinum í Norður-Afganistan á sunnudag.
Meira
MIKIÐ veiðiskot kom í Vatnamótunum fyrir helgina og var t.d. tveggja daga holl sem lauk veiðum á hádegi föstudagsins með 50 sjóbirtinga, eða kvótann.
Meira
ÞINGFLOKKUR Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs hefur sent frá sér eftirfarandi fréttatilkynningu: "Þingflokkur VG mótmælir harðlega fyrirætlunum um sölu Landssíma Íslands.
Meira
Margs konar reglur og aðgangstakmarkanir eru í gildi um hin ýmsu svæði á Keflavíkurflugvelli í þágu öryggis. Jóhannes Tómasson komst að því að þær hafa verið í endurskoðun um skeið í kjölfar stefnumörkunar utanríkisráðuneytisins.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Starfsgreinasambands Íslands fundaði í Stykkishólmi um helgina. Sambandið var stofnað 13. október í fyrra af Verkamannasambandi Íslands, Þjónustusambandi Íslands og Landssambandi iðnverkafólks.
Meira
Einungis tókst að koma fjórum herþotum á loft og þær voru enn víðs fjarri þegar hryðjuverkamenn stýrðu þremur farþegaþotum á Washington og New York á þriðjudag. Allt fyrirkomulag loftvarna í Bandaríkjunum miðaðist við árás af hálfu Sovétríkjanna og viðbúnaður á jörðu niðri var ófullnægjandi.
Meira
José Carreras steig hröðum skrefum inn á Hótel Sögu um kl. 15.40 á sunnudag, nýkominn til landsins. Tíu mínútum seinna var hann sestur á blaðamannafund. Þar var Bergþóra Jónsdóttir og átti þess kost ásamt öðrum fjölmiðlamönnum að spyrja þennan geðþekka stórsöngvara um lífið og sönginn.
Meira
SIGURJÓN Sighvatsson var sofandi heima hjá sér í Los Angeles klukkan sjö að morgni þegar hringt var í hann og honum sagt frá hryðjuverkunum í New York og Washington sl. þriðjudag.
Meira
Talið er að rúmlega fimm þúsund manns hafi látið lífið í World Trade Center. Danskur verkfræðingur, Peter Luke, var einn þeirra sem komust af en hann var staddur á 72. hæð. Segir hann að fólkið á leiðinni niður hafi verið samtaka um að halda stillingu sinni. Slasaðir voru látnir hafa forgang í stigunum.
Meira
LÖGREGLAN á Ísafirði hefur til meðferðar líkamsárásarmál sem upp kom aðfaranótt sunnudags, þegar nokkrir menn réðust á skipverja á skólaskipinu Sæbjörgu.
Meira
Ingibjörg Óðinsdóttir fæddist í Reykjavík hinn 19. janúar 1966. Hún lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1986 og tók BSc-próf í fjölmiðlafræði frá Ohio University í Athens í Bandaríkjunum. Hún starfaði sem blaðamaður við DV en hefur unnið við starfsmannaráðningar frá 1997, nú hjá Mannafli. Ingibjörg er gift Lárusi Elíassyni sem er með masterspróf í vélafræði og MBA. Þau eiga þrjú börn.
Meira
MOHAMMED Sayyed Tantawi, sem er æðstur allra klerka innan súnní-greinar íslamstrúar, sagði í Kaíró í Egyptalandi í gær, að Bandaríkjamenn hefðu fullan rétt til að grípa til varna eftir árásirnar í síðustu viku.
Meira
VERSLUNARRÁÐI Íslands og sumum félagsmönnum þess hefur á undanförnum vikum borist vafasamur tölvupóstur frá Afríku, þar sem óskað er eftir viðskiptasamböndum við móttakendur.
Meira
STURLA Böðvarsson samgönguráðherra hefur miklar áhyggjur af 100 milljóna króna tapi Flugleiða sem áætlað er að fyrirtækið hafi orðið fyrir vegna röskunar á flugi í kjölfar hryðjuverkanna í Bandaríkjunum.
Meira
LANDSSAMBAND slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna hefur sent samtökum slökkviliðsmanna í New York eftirfarandi skeyti: "Vegna þeirra voveiflegu atburða sem áttu sér stað, þegar árás var gerð á World Trade Center og Pentagon byggingarnar þriðjudaginn...
Meira
STJÓRN fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna á Seltjarnarnesi hefur ákveðið að viðhafa prófkjör um val frambjóðenda Sjálfstæðisflokksins við næstu bæjar- og sveitarstjórnarkosningar. Fer prófkjörið fram laugardaginn 3.
Meira
ÁSTRÖLSK stjórnvöld fóru að lögum er þau neituðu að taka á land 433 hælisleitendur, sem norska gámaskipið Tampa bjargaði úr hafsnauð fyrir þremur vikum. Úrskurðaði alríkisdómstóll Ástralíu þetta í gær.
Meira
FRAMKVÆMDASTJÓRN Starfsgreinasambands Íslands (SGS) samþykkti um helgina ályktun þar sem lýst er eindregnum stuðningi við uppbyggingu atvinnulífs á Austurlandi með þeim virkjunar- og stóriðjuframkvæmdum sem þar eru áætlaðar á næstu árum. Halldór G.
Meira
NOKKRIR ungir piltar tóku sig til og gengu í hús í Borgarnesi og söfnuðu dósum og flöskum til styrktar knattspyrnudeild Skallagríms. Viðtökurnar fóru fram úr þeirra björtustu vonum og fylltu þeir marga svarta plastpoka.
Meira
HREPPSNEFND Gerðahrepps samþykkti á síðasta fundi að sækja um lán til byggingar leiguíbúða fyrir aldraða. Könnun sem gerð var meðal eldri borgara í Gerðahreppi leiddi í ljós að áhugi væri fyrir þessum kosti.
Meira
SKÆRULIÐAR tamíla á Sri Lanka gerðu á sunnudag sjálfsmorðsárás á liðsflutningaskip stjórnarhersins, með þeim afleiðingum að 11 hermenn létu lífið.
Meira
RÚMLEGA 30 ökumenn voru stöðvaðir vegna hraðaksturs um helgina og 6 vegna ölvunar við akstur. Á föstudag var ekið á 12 ára stúlku, sem var að fara yfir gangbraut á reiðhjóli. Stúlkan hlaut alvarlega höfuðáverka, hálsmeiðsl og lærbrot.
Meira
ÞESSI tröllkarl sem rekur út úr sér tunguna framan í heiminn hefur einhverntíma í fyrndinni orðið of seinn til að bjarga sér frá sólinni, trúlega gleymt sér við að horfa á það fallega og fjölbreytta umhverfi sem sést í allar áttir.
Meira
KÆRUFRESTUR vegna nýs fasteigna- og brunabótamats rann út í gær. Um það bil 8.000 athugasemdir höfðu borist Fasteignamati ríkisins síðdegis, líklega mikill meirihluti vegna brunabótamats, að sögn Hauks Ingibergssonar, forstjóra Fasteignamatsins.
Meira
NÝLEGA veitti Siglufjarðarkaupstaður hin árlegu umhverfisverðlaun. Sú leið hefur verið farin á undanförnum árum að veita ekki eingöngu verðlaun fyrir fallegar lóðir heldur horfa á heildarumhverfi húsnæðisins.
Meira
HINAR árlegu umhverfisviðurkenningar Blönduósbæjar voru afhentar fyrir skömmu. Það voru hjónin Greta Arelíusdóttir og Zophonías Zophoníasson á Húnabraut 8 og kaffihúsið Við árbakkann sem hlutu viðurkenningar að þessu sinni.
Meira
OPINN umræðufundur Félags stjórnmálafræðinga í samstarfi við Borgarleikhúsið og vefritið Kistan.is verður á á þriðju hæð Borgarleikhússins þriðjudaginn 18. september kl. 20. Rætt verður um árásirnar á Bandaríkin, ástæður og afleiðingar.
Meira
AKUREYRINGUR datt í lukkupottinn sl. laugardag er hann vann Gullpottinn í Gullnámu Happdrættis Háskóla Íslands og hljóðaði vinningurinn upp á 7,3 milljónir króna.
Meira
LANDSBANKI Íslands hefur leyst til sín þær eignir þrotabús Skinnaiðnaðar sem bankinn átti veð í og hefur félag á vegum hans, Skinnaiðnaður - rekstrarfélag, nú tekið við rekstri í sútunarverksmiðjnni.
Meira
VETRARSTARF Kórs Glerárkirkju er að hefjast um þessar mundir. Þeir sem áhuga hafa á að syngja með kórnum í vetur geta haft samband við kórstjórann, Hjört Steinbergsson, og fengið nánari upplýsingar. Unnt er að bæta við fólki í allar raddir.
Meira
INGVI Hrafn Óskarsson, aðstoðarmaður dóms- og kirkjumálaráðherra, var kjörinn formaður Sambands ungra sjálfstæðismanna (SUS) til næstu tveggja ára á 36. þingi sambandsins sem haldið var á Seltjarnarnesi um helgina.
Meira
JARÐSKJÁLFTI að stærð 2,4 á Richterskvarða fannst við Mývatn kl. 19.58 á sunnudagskvöld. Að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur, jarðeðlisfræðings hjá Veðurstofu Íslands, voru upptök skjálftans við Námaskarð.
Meira
MAGNÚS Ásgeirsson, innkaupastjóri eldsneytis hjá Olíufélaginu hf. Esso, telur farsælast að halda bensín- og olíuverði óbreyttu hér á landi fyrst um sinn, þrátt fyrir að heimsmarkaðsverð hafi hækkað síðastliðinn föstudag.
Meira
BÆJARINS besta, sem gefið er út á Ísafirði, skrifar í leiðara og fjallar m.a. um viðtal við Matthías Johannessen, fyrrverandi ritstjóra Morgunblaðsins, í tímaritinu Mannlífi.
Meira
Sturla Friðriksson náttúrufræðingur ritar grein í sunnudagsblað Morgunblaðsins, þar sem hann fjallar um varðveizlu fornminja og ber m.a. saman ástand þeirra mála í Færeyjum, á Hjaltlandi og á Íslandi. Sturla segir m.a.
Meira
Með samningi þeim, sem undirritaður hefur verið á milli Íslenzku óperunnar og ríkisins, hefur nýr grunnur verið lagður að starfsemi Óperunnar og er það mikið fagnaðarefni og verulegur áfangi í því að byggja hér upp menningarlíf, sem stendur undir nafni.
Meira
"H.C. Andersen, Winston Churchill, Albert Einstein, Charles Darwin, Selma Lagerlöf og Pablo Picasso voru öll skapandi og höfðu sérstaka hæfileika. Auk þess áttu þau við mikla les- og skriftarerfiðleika að stríða á skólaárum sínum. U.þ.b.
Meira
José Carreras, Sigrún Hjálmtýsdóttir, Sinfóníuhljómsveit Íslands undir stjórn David Giménez og Kór Íslensku óperunnar, kórstjóri Garðar Cortes, fluttu söngverk eftir ítölsk, frönsk, þýsk og spænsk tónskáld. Mánudaginn 17. september.
Meira
NÆSTU tónleikar í tónleikaröð Selfosskirkju nú í haust verða í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20.30. Við orgelið er dr. Douglas Brotchie, organisti Háteigskirku.
Meira
RANNSÓKNARKVÖLD Félags íslenskra fræða verður haldið í Sögufélagshúsinu í Fischersundi annaðkvöld, miðvikudagskvöld, kl. 20.30. Þá flytur Haraldur Bernharðsson málfræðingur erindi sem nefnist "Vernerslögmál í gotnesku".
Meira
AF SKILJANLEGUM ástæðum voru Kanar í litlu stuði til að lyfta sér upp um helgina. Bjuggust menn við að það myndi koma verulega niður á bíósókn en Hardball , nýjasta Keanu Reeves-myndin, gekk alveg furðuvel.
Meira
ÞAÐ var mikið um dýrðir á Spotlight á laugardaginn var er dragdrottning Ísland var valin í fimmta sinn og kátína skein úr hverjum andlitsdrætti enda keyrði gamanið bókstaflega úr hófi á stundum.
Meira
VÆNTANLEGT er á vegum bókaútgáfu Vöku-Helgafells ljóðasafn Matthíasar Johannessen. Þar velur Silja Aðalsteinsdóttir úr öllum útgefnum bókum hans, frá bókinni Borgin hló, sem út kom 1958, til Ættjarðarljóð á atómöld, sem kom út 1999.
Meira
JÖRG E. Sondermann heldur áfram að flytja orgelverk Bachs í Breiðholtskirkju eftir sumarhlé og verða fyrstu tónleikarnir í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20:30. Flutt verður Prelúdía í G dúr, Fúga í g moll, Toccata í G dúr, Sálmforleikur á 2 Clav. e Ped.
Meira
GÍFURLEG stemmning var í Laugardalshöll í gærkvöldi á tónleikum José Carreras, Sigrúnar Hjálmtýsdóttur, Kórs Íslensku óperunnar og Sinfóníuhljómsveitar Íslands.
Meira
EINAR Kárason og Hallgrímur Helgason munu báðir gefa út nýjar skáldsögur í haust. Frá Einari kemur út skáldsagan Óvinafagnaður og gerist að sögn á Sturlungaöld. Einar hefur ekki sent frá sér skáldsögu í 2 ár en síðast kom út skáldsagan Norðurljós.
Meira
Beethoven: Fiðlusónata í c Op. 30,2; 7 tilbrigði um "Bei Männern, welche Liebe fühlen" WoO 46 f. píanó og selló; Píanótríó í c Op. 1,3. Kammerhópur Salarins: Miklós Dalmay, Peter Máté og Nína Margrét Grímsdóttir, píanó; Sigrún Eðvaldsdóttir og Auður Hafsteinsdóttir, fiðla; Bryndís Halla Gylfadóttir, selló. Tónleikaspjall: Atli Heimir Sveinsson. Sunnudaginn 16. september kl. 16:30.
Meira
ÞAÐ verður svalt andrúmsloft sem fær að líða um ganga Gauksins í kvöld þar sem Svartfuglarnir einu og sönnu ætla að troða upp. En hverjir eru nú þessir Svartfuglar?
Meira
Lestur/ Ekki má efast eina mínútu um getu nemandans. Ef hann finnur traustið og fær trú á sjálfan sig birtist árangurinn, segir Helga Sigurjónsdóttir sem rekur lestrarskóla.
Meira
ÍRSKA gamanleikritið Með fulla vasa af grjóti, með þeim Hilmi Snæ Guðnasyni og Stefáni Karli Stefánssyni, er nú komið aftur á fjalirnar í Þjóðleikhúsinu. Sýningin gekk fyrir fullu húsi á liðnu vori og í sumar fór hún um landið.
Meira
NÆSTI umsóknarfrestur um styrki til manna- og starfsmannaskiptaverkefna í Leonardóstarfsmenntaáætluninni verður 1. október nk. Svör við umsóknum fást strax í október og hægt verður að hefja skiptin þá þegar.
Meira
PÍANÓLEIKARINN Roman Rudnytsky heldur píanótónleika í Salnum í Kópavogi í kvöld, þriðjudagskvöld, kl. 20. Á efnisskrá eru verk eftir Bach-Busoni, Beethoven, Copland, Gershwin, Ravel, Chopin, Rudnytsky, Wagner, Liszt og Moszkowski.
Meira
LEIKFÉLAGIÐ Hermóður og Háðvör stóð fyrir fyrstu stóru frumsýningu nýhafins leikárs í Hafnarfjarðarleikhúsinu á föstudagskvöld. Var þar á ferð uppfærsla nýs íslensks leikrits eftir Hávar Sigurjónsson í leikstjórn Hilmars Jónssonar.
Meira
BRÚÐKAUP. Gefin voru saman 28. júlí sl. í Mosfellskirkju af séra Sigurði Arnarsyni Ásdís Hannesdóttir og Jón Ólafur Halldórsson. Heimili þeirra er í...
Meira
KUNNINGI minn fyrir norðan hefur ekki hreyft bílinn sinn lengi enda er hann farinn að hjóla. Ég hitti hann í kaupfélaginu um daginn. Hann leit vel út, hafði lagt dálítið af og var rjóður í kinnum.
Meira
Í dag er þriðjudagur 18. september, 261. dagur ársins 2001. Orð dagsins: Gæt því þess, að ljósið í þér sé ekki myrkur. Sé því líkami þinn allur bjartur og hvergi myrkur í honum, verður hann allur í birtu, eins og þegar lampi lýsir á þig með loga sínum.
Meira
Vaka fagnar því að til standi að reisa nýjan stúdentagarð, segir Ásdís Rósa Þórðardóttir, enda er ástandið á leigumarkaði mjög slæmt, ekki síst fyrir efnaminna fólk eins og námsmenn.
Meira
VIÐ Íslendingar erum það vellesnir að við hengjum ekki bakara fyrir smið. Einn og annar hortittur er samt inn á milli, til að mynda, ef einn hundseigandi hirðir ekki eftir hundinn sinn gjalda aðrir hundseigendur fyrir það. Þeir fá ekki bónus.
Meira
HINN 14. ágúst s.l. greinir Morgunblaðið frá prédikun Karls Sigurbjörnssonar biskups á Hólahátíð út af guðspjalli dagsins, úr Lúkasarguðspjalli, um rangláta ráðsmanninn. Fyrirsögn fréttarinnar er: "Karl Sigurbjörnsson biskup á Hólahátíð.
Meira
Hreppsómaga-hnokki hírðist inni á palli, ljós á húð og hár. Steig hjá lágum stokki stuttur brókarlalli, var svo vinafár. Líf hans var til fárra fiska metið. Furðanlegt, hvað strákurinn gat étið.
Meira
Þessir duglegu drengir, Ævar Ingi Jóhannesson og Vilhjálmur Ingi Ingólfsson, héldu nýlega hlutaveltu á Akureyri til styrktar Rauða krossi Íslands og söfnuðust 2.200...
Meira
Ásbjörn Sigfússon fæddist hinn 13. desember 1948 í Hafnarfirði. Hann lést af slysförum hinn 8. september síðastliðinn. Faðir Ásbjörns var Sigfús Magnússon, sjómaður og fiskmatsmaður í Hafnarfirði, f. 13. júlí 1905, d. 19. júní 1990.
MeiraKaupa minningabók
Gísli Svavarsson fæddist 15. febrúar 1943 í Reykjavík. Hann lést á krabbameinsdeild Landsspítalans við Hringbraut 8. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru Svavar Gíslason bifreiðastjóri, f. 9. apríl 1915, d. 26.
MeiraKaupa minningabók
Lárus Jón Engilbertsson fæddist í Súðavík 23. maí 1924. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 11. september síðastliðinn. Foreldrar hans voru hjónin Einar Engilbert Þórðarson, f. 29.7. 1902, d. 24.1. 1965, og Ása Valgerður Eiríksdóttir, f. 4.10. 1901, d.
MeiraKaupa minningabók
Sigríður Bogadóttir fæddist í Varmadal á Rangárvöllum 29. júní 1907. Hún lést á heimili sínu, Rauðarárstíg 24, Reykjavík, 9. september síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Bogi Þórðarson frá Leirubakka í Landsveit, f. 20.1. 1862, d. 31.7.
MeiraKaupa minningabók
Vilberg Úlfarsson fæddist í Reykjavík 11. mars 1971. Hann lést af slysförum 8. september síðastliðinn. Foreldrar Vilbergs eru Úlfar Örn Harðarson, f. 9.5. 1947, og Helga Magnúsdóttir, f. 3.4. 1945. Bróðir Vilbergs er Hörður Rúnar, f. 3.6.
MeiraKaupa minningabók
Á kynningarfundi vegna hlutafjárútboðs Landssíma Íslands sem haldinn var með fjárfestum í gær kom fram í máli Hreins Loftssonar, formanns framkvæmdanefndar um einkavæðingu, að stefnt væri að því að Síminn yrði seldur að fullu á þessu kjörtímabili.
Meira
Íslenskt efnahagslíf var helsta umræðuefni á ráðstefnu sem Landsbankinn stóð fyrir í gær fyrir erlenda fjárfesta. Guðrún Hálfdánardóttir sat ráðstefnuna þar sem bankastjóri Landsbankans sagðist telja að vextir myndu lækka um 2% á næstu 12 mánuðum og forsætisráðherra boðaði breytingar á skattalögum.
Meira
GÓÐRI síldveiði og afar háu verði á síld upp úr sjó hefur verið líkt við gullæði í Noregi. Bátarnir hafa verið að fá allt að 60 krónum á kíló af síld. Það er meira en helmingi hærra en í fyrra.
Meira
MIKIL lækkun varð á helstu hlutabréfavísitölum þegar opnað var fyrir viðskipti á verðbréfamarkaði í Bandaríkjunum í gær og hafa þær ekki verið lægri í nærri þrjú ár.
Meira
MEÐALVEXTIR SKULDABRÉFA OG DRÁTTARVEXTIR Dráttar Vxt. alm. Vísitölub. vextir skbr. lán Mars '00 21,0 16,1 9,0 Apríl '00 21,5 16,2 9,0 Maí ‘00 21,5 16,2 9,0 Júní '00 22,0 16,2 9,1 Júlí '00 22,5 16,8 9,8 Ágúst '00 23,0 17,0 9,8 Sept.
Meira
STJÓRNVÖLD í Bandaríkjunum hafa gripið til margvíslegra aðgerða til að koma í veg fyrir efnahagshrun í kjölfar hryðjuverkaárásanna í síðustu viku.
Meira
ROBIN Marshall, framkvæmdastjóri hjá JP Morgan í London, segir að atburðirnir í Bandaríkjunum muni hafa áhrif til skamms tíma á hlutabréfamarkaði.
Meira
STJÓRN flugfélagsins SAS tilkynnti í gær að hún hygðist segja af sér þótt óháð rannsóknarnefnd hefði komist að þeirri niðurstöðu að stjórnin hefði ekki tekið þátt í ólöglegu verðsamráði og leynilegu samkomulagi SAS við danska flugfélagið Maersk um að...
Meira
NÝR rúmlega 400 síðna Panduro-föndurlisti er kominn hjá heildversluninni B. Magnússon hf. Í pöntunarlistanum er að finna úrval föndurefnis af ýmsu tagi, svo sem úr tré, gleri, taui og garni, perlum til skartgripagerðar, litum og leir og öllu þar á milli.
Meira
DUKA er heitið á nýrri verslun sem verður opnuð í Kringlunni nú í byrjun október í húsnæði sem áður hýsti Bílabúð Benna. Sænska verslanakeðjan DUKA er þekktasta keðjan í Svíþjóð sem selur heimilis- og gjafavöru.
Meira
TÍMABUNDIÐ húðflúr, með svokölluðum svörtum hennalit, hefur verið vinsælt undanfarin ár. Nú hefur hins vegar komið í ljós að ekki er með öllu óhætt að fá sér slíkt húðflúr.
Meira
KRISTJÁN Blöndal var einn af örfáum sagnhöfum sem tókst að búa til ellefu slagi í þremur gröndum suðurs, en spilið er frá sumarbridsi í Húnabúð á fimmtudaginn. Þátttaka var óvenju góð, 29 pör, og unnu Kristján og Hrólfur Hjaltason á rúmlega 62% skor.
Meira
Göngum við í kringum einiberjarunn, einiberjarunn, einiberjarunn... Þetta sungum við í gamla daga þegar við gengum í kringum jólatréð og enn syngja börnin á leikskólunum það vikurnar fyrir jól.
Meira
VETRARSTARF Hjallakirkju er framundan og er margt á döfinni. Messur eða guðsþjónustur eru hvern sunnudag kl. 11 með fjölbreyttu tónlistarlífi kórs kirkjunnar og barnakóra í sókninni.
Meira
Staðan kom upp á Skákþingi Íslands, landsliðsflokki, sem lauk fyrir skömmu í Hafnarfirði. Stórmeistarinn, Þröstur Þórhallsson (2.459), hafði hvítt gegn sitjandi Íslandsmeistara, Jóni Viktori Gunnarssyni (2.404). 12. Re4!
Meira
Hörður Magnússon hefði sjálfsagt óskað eftir því að kveðja heimavöll sinn með sigri og með marki en þessi mikli markaskorari brenndi af vítaspyrnu í síðari hálfleik í síðasta heimaleik sínum með FH-ingum en hann hefur ákveðið að leggja skóna á hilluna...
Meira
ANDRI Sigþórsson lék sama leik og í fyrsta leik sínum með Molde í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu þegar lið hans sótti Lyn heim til Óslóar á sunnudaginn. Andri kom inn á sem varamaður á 55. mínútu, lagði upp mark á 64. mínútu og tryggði síðan Molde 2:0 sigur með marki átta mínútum fyrir leikslok.
Meira
Arnar Grétarsson kom Lokeren á bragðið með marki úr vítaspyrnu þegar lið hans vann sinn fyrsta sigur á tímabilinu í belgísku deildakeppnni á laugardagskvöldið. Lokeren sótti þá Lommel heim og sigraði, 4:3.
Meira
ÚTSENDARI frá Arsenal fylgdist með Árna Gauti Arasyni eiga stórleik þegar Rosenborg lagði Odd Grenland, 1:0, í norksu úrvalsdeildinni á laugardaginn. Frá þessu var grein í norska fréttamiðlinum Adresseavisen í gær.
Meira
MÓTANEFND Knattspyrnusambands Íslands ákvað í gærkvöldi að úrslitaleikur ÍBV og ÍA um Íslandsmeistaratitilinn fari fram í Vestmannaeyjum sunnudaginn 23. september kl. 14. Liðin áttu að mætast laugardagurinn 22. september. Öðrum leikjum í 18.
Meira
* BJARNI Frostason , markvörður, gat ekki leikið með Haukunum . Bjarni , sem er flugmaður, flaug til New York daginn áður en hryðjuverkin á World Trade Center áttu sér stað og komst ekki til baka aftur fyrr en á sunnudag.
Meira
GUÐJÓN Þórðarson, knattspyrnustjóri Stoke, hrósaði sínum mönnum fyrir samheldni og liðsanda eftir sigur á Reading, 2:0, í ensku 2. deildinni á laugardaginn.
Meira
"STELPURNAR sýndu í dag hvað þær geta og í dag, fimmtánda september, er Valur með besta kvennalið á Íslandi. Efniviðurinn í félaginu er góður og það er búið að vinna vel með þessum stelpum.
Meira
EIÐUR Smári Guðjohnsen var fljótur að gera vart við sig, þá loksins hann fékk tækifæri með Chelsea í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu á nýhöfnu tímabili.
Meira
ÉG er mjög sáttur við að ganga af velli með þrjú stig við svona erfiðar aðstæður - við erum komnir með 23 stig, lausir úr fallslagnum og í ágætum málum," sagði Gústaf Björnsson, þjálfari Keflvíkinga, eftir sigurinn á laugardaginn.
Meira
* GARÐAR Jóhannsson úr Stjörnunni tryggði sér markakóngstitil 1. deildar karla á laugardaginn. Hann skoraði tvö mörk í 4:0 sigri Garðbæinga á Dalvík og gerði því 17 mörk.
Meira
FH-INGAR misstu endanlega af möguleikanum á að blanda sér í baráttuna um Íslandsmeistaratitlinn þegar þeir töpuðu á heimavelli fyrir Grindvíkingum, 2:0, í rok- og rigningarleik sem leikinn var á frjálsíþróttavelli þeirra FH-inga. Grindvíkingar skoruðu bæði mörk sín á fyrstu 22 mínútum leiksins og þrátt fyrir að missa Scott Ramsey af velli með rautt spjald á 35. mínútu náðu Grindvíkingar að halda fengnum hlut.
Meira
GUÐLAUG Jónsdóttir, landsliðskona í knattspyrnu, kinnbeinsbrotnaði í leik með Bröndby í dönsku úrvalsdeildinni um helgina. Hún fór af velli eftir tíu mínútna leik gegn Vejle eftir að hafa fengið mikið högg í andlitið.
Meira
ÍSLANDS- og bikarmeistarar Hauka eru komnir í 2. umferð EHF-keppninnar í handknattleik eftir sigur á hollenska liðinu Van der Voort Quintus, 30:25, í síðari leik liðanna á Ásvöllum.
Meira
* HEIÐAR Helguson kom talsvert við sögu í leik Watford og WBA í ensku 1. deildinni á laugardaginn þótt hann léki aðeins síðustu 8 mínútur leiksins. Á síðustu mínútunni felldi Russell Hoult , markvörður WBA , Heiðar og dæmd var vítaspyrna.
Meira
KÓLUMBÍSKI ökuþórinn Juan Pablo Montoya hjá Williams vann jómfrúarsigur sinn í Formúlu-1 er hann ók til glæsilegs sigurs í ítalska kappakstrinum í Monza á sunnudag en hann segir það sérstakt ánægjuefni að leggja Ferrari á heimavelli ítalska liðsins. Montoya sagði örlögin hafa viljað að hann ynni að þessu sinni; á afmælisdegi föður síns sem var viðstaddur, en nýliðinn hafði unnið ráspól í þremur mótum af síðustu fjórum en ekki haft heppnina með sér í keppni.
Meira
JÖRUNDUR Áki Sveinsson, þjálfari Breiðabliks, tilkynnti liðsmönnum sínum það eftir bikarúrslitaleik Breiðabliks og Vals að hann hefði stjórnað liðinu í síðasta sinn.
Meira
KAISERSLAUTERN er eina liðið í þýsku deildinni sem hefur ekki tapað stigi en liðið lagði Nürnberg 2:0 á útivelli og er með 18 stig eftir fyrstu sex umferðirnar, fjórum stigum meira en Leverkusen sem er í öðru sæti.
Meira
AUÐVITAÐ er það léttir að vera komin með örlög okkar í eigin hendur, nú þurfum við ekki að treysta á aðra. Við erum ennþá á lífi og lengdum aðeins í líflínunni," sagði Kristján Finnbogason, markvörður KR, eftir sigurinn á sunnudaginn.
Meira
* MATTHÍ AS Guðmundsson , Valsmaðurinn leikni, gat ekki leikið síðari hálfleikinn gegn ÍBV á sunnudaginn. Matthías fékk slæman skurð á fótlegg eftir samstuð við Eyjamann í fyrri hálfleiknum.
Meira
ÞAÐ tók sig upp gamalt bros hjá vesturbæingum á sunnudaginn þegar KR lagði Fram 2:1 og skaust þar með úr fallsætinu sem liðið hefur vermt í rúman mánuð.
Meira
ÞORVALDUR Örlygsson, þjálfari og leikmaður KA, var að vonum kátur eftir jafnteflið við Þrótt. Úrvalsdeildarsætið tryggt og leikaðferð KA gekk upp, vel var varist og færin nýtt eins og kostur var.
Meira
"VIÐ urðum að ná í stig úr þessum leik, máttum alls ekki tapa, og við mættum hingað á Hlíðarenda til að verja þetta eina stig sem við hófum leikinn með. Auðvitað reyndum við líka að sækja hin tvö og það tókst og nú erum við í þeirri draumastöðu að eiga fyrir höndum hreinan úrslitaleik á heimavelli í síðustu umferðinni," sagði Njáll Eiðsson, þjálfari ÍBV, í samtali við Morgunblaðið eftir sigurinn á Val á sunnudaginn.
Meira
LEIKMENN meistaraflokks kvenna í knattspyrnu hjá Stjörnunni hafa í sumar tekið þátt í nýstárlegri og vægast sagt óvenjulegri fjáröflun. Fjáröflunin felst í því að nokkrir leikmenn taka þátt í lyfjaprófum á vegum Landspítala - háskólasjúkrahúss.
Meira
SAMKVÆMT upplýsingum Morgunblaðsins má telja víst að öll lið efstu deildar kvenna muni skipta um þjálfara fyrir næstu leiktíð. Jörundur Áki Sveinsson, þjálfari Íslandsmeistara Breiðabliks, hefur tilkynnt afsögn sína og er talið víst að Ólafur Þór Guðbjörnsson, fyrrum þjálfari Vals og núverandi þjálfari U19 ára kvennalandsliðsins, taki við starfi hans.
Meira
PATREKUR Jóhannesson fór heldur betur á kostum með liði sínu, Essen, í þýsku 1. deildinni í handknattleik um helgina. Essen sótti þá Hameln heim og vann öruggan útisigur, 36:31, og skoraði Patrekur hvorki fleiri né færri en 16 mörk í leiknum. Þar af gerði hann 7 úr vítaköstum.
Meira
ÓLAFUR Gottskálksson átti enn einn stórleikinn í marki Brentford á laugardaginn þegar lið hans gerði jafntefli, 0:0, við Notts County á útivelli í ensku 2. deildinni í knattspyrnu.
Meira
LEIKMENN Þórs fögnuðu deildarmeistaratitli og hömpuðu bikar eftir öruggan sigur á Víkingi í lokaumferð 1. deildar. Þór sigraði 3:0 og fékk 41 stig í efsta sæti, fjórum stigum meira en KA.
Meira
SLAGVEÐUR í Keflavík á sunnudaginn kom talsvert niður á gæðum knattspyrnunnar þegar Breiðablik kom í heimsókn. Þó brá fyrir ágætum köflum með góðri baráttu og höfðu Keflvíkingar 2:1 sigur sem forðaði þeim úr mögulegri fallhættu þegar ein umferð er eftir en fyrir leikinn var ljóst að Blikar væru fallnir.
Meira
VALSSTÚLKUR sigldu seglum þöndum á laugardag þegar þær tryggðu sér sigurinn í Bikarkeppni KSÍ í áttunda sinn með sigri á Íslandsmeisturum Breiðabliks 2:0. Valsstúlkur náðu í þessum leik loks að sýna sitt rétta andlit en gengi þeirra á Íslandsmótinu í sumar hefur valdið miklum vonbrigðum. Í upphafi móts var þeim spáð öðru sæti deildarinnar, næst á eftir Breiðabliki en niðurstaðan á Íslandsmótinu var aðeins fjórða sæti. Á laugardag gerðu Valsstúlkur engin mistök og unnu verðskuldaðan sigur.
Meira
,,ÞETTA var eins og mjög lélegur æfingaleikur og ég var mjög ósáttur við spilamennsku minna manna. Menn náðu einfaldlega ekki upp einbeitingu og leikmenn eins og Rúnar og Aron voru ekki með hugann við verkefnið.
Meira
"ÞETTA var skemmtileg upplifun, fullur völlur og fín stemmning, en ég ætla mér ekki að vera á meðal áhorfenda oftar," sagði Jóhannes Karl Guðjónsson sem fylgdist með samherjum sínum í Real Betis leggja Real Madrid 3:1 í spænsku deildinni á laugardaginn.
Meira
* ÞORMÓÐUR Egilsson, fyrirliði KR , fékk blómvönd fyrir leikinn gegn Fram . Tilefnið var ærið því Þormóður lék sinn 400. leik með meistaraflokki.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Miðborg er nú í sölu þriggja herbergja íbúð á annarri hæð í Bryggjuhverfi. Íbúðin er í lyftublokk sem byggð var 1999 og er íbúðin 99 fermetrar.
Meira
Þessi borðstofuhúsgögn eru úr gegnheilli evrópueik, en slíkur viður og hnota og askur eru ofarlega á vinsældalistanum núna. Þetta borð er úr Radius-línunni og framleitt í Slóveníu. Hönnuður er Pengelly. Fæst í...
Meira
Brekkuholtsbæirnir eru tveir, norður- og suðurbær. Freyja Jónsdóttir fjallar hér um þessa sambyggðu, hlöðnu steinbæi, sem báðir voru byggðir nokkru fyrir aldamótin 1900.
Meira
Stóllinn Robin Day er úr hnotu og leðri. Þetta er hönnun breska arkitektsins Robins Days og konu hans Lucienne. Fyrirmynd hönnunar er tískan um 1955. Fæst í...
Meira
Kíkirinn á myndinni er danskur. Þetta er gamall skipskíkir frá 1860, hann er úr messing og stendur á tréfótum. Hann er í trékassa og færanlegur. Með fylgir annað gler til að nota í sól. Fæst í...
Meira
"EKKERT húsnæði er ónýtt, það er bara mismunandi skemmt," sagði Gísli Kristjánsson smiður þar sem hann stóð í stillans utan á Stokkseyrarkirkju fyrir skömmu ásamt vinnufélaga sínum Axeli Ström.
Meira
FALLEG timburhús í vesturbæ Reykjavíkur vekja ávallt athygli, þegar þau koma í sölu. Hjá fasteignasölunni Híbýlum er nú til sölu einbýlishús á Stýrimannastíg 15. Um er að ræða timburhús, byggt árið 1900 og var það flutt inn frá Noregi.
Meira
Boa er frönsk vara. Hægt er að hengja hann á vegginn og rúlla honum upp í vöndul. Hann er úr furu og er góður til að stúka af rými og einnig hafa verslanir tekið þessa færanlegu og sveigjanlegu milliveggi til þess að nota fyrir mátunarpláss.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Bifröst er nú í sölu raðhús í Frostaskjóli 23. Þetta er steinsteypt hús, byggt 1982, sem er 210,2 fm. Bílskúrinn er innbyggður og 21 fermetri.
Meira
Gott útsýni hefur aldrei skipt meira máli en nú fyrir kaupendur að nýjum íbúðum. Magnús Sigurðsson kynnti sér íbúðir í háhýsum í byggingu við Kórsali og Jötunsali í Kópavogi.
Meira
Hjá Lauru Ashley við Bæjarlind fást þessir ágætu kertastjakar. Þeir heita Corinthian og eru úr mangóviði, hannaðir af Lauru Ashley í Bretlandi en framleiddir á...
Meira
LUMI menn á sem nemur litlum 4,5 milljörðum íslenskra króna og sætta sig við að ávaxta féð á löngum tíma, býðst mönnum nú að kaupa um sjötíu byggingar í tískuhverfinu Kensington í Vestur-Lundúnum, The Gunter Estate.
Meira
ALMENN þekking á sögu liðinna kynslóða er ótrúlega léleg hjá okkur mannkindunum, svo lítil að hættulegt má kallast. Þessvegna gengur mannkyninu svo illa að læra af reynslunni, sömu mistökin eru gerð aftur og aftur.
Meira
Reykjavík - Fasteign.is er nú með í sölu einbýlishús í Hlyngerði 6. Hús þetta var byggt 1946, teiknað af Einari Sveinssyni arkitekt og húsameistara Reykjavíkur. Það er skráð um 230 ferm.
Meira
Reykjavík - Hjá fasteignasölunni Fold er nú í sölu þriggja íbúða hús að Langholtsvegi 57 í Reykjavík. Þetta er timburhús, byggt 1986, sem er hæð og ris, alls 272 ferm. að meðtöldum frístandandi bílskúr, sem er 44 ferm., en innréttaður sem góð íbúð.
Meira
GOTT skipulag einkennir íbúðirnar í nýju fjölbýlishúsi við Ljósuvík 27 í Víkurhverfi en það er þriggja hæða og með níu íbúðum, sem nú eru til sölu hjá fasteignasölunni Skeifunni.
Meira
Þeir sem eiga falleg málverk og vilja gera þeim hátt undir höfði gæti haft gagn af þessum málverkalampa úr messing frá Laura Ashley við Bæjarlind. Lamparnir fást í tveimur...
Meira
ÍBÚÐAREIGANDI er almennt skyldur til að taka þátt í kostnaði við venjuleg sjónvarps- og útvarpsloftnet en hins vegar ekki þegar um er að ræða dýran búnað eins og gervihnattadisk.
Meira
UNGT par, bæði starfandi sem blaðamenn húsagerðar að sérgrein, bað arkitektana Eisaku Ushida og Kathryn Findlay árið 1992 að hanna fyrir sig hús í borginni Ibaraki í Japan. Það átti ekki að vera "venjulegt" hús heldur átti það bæði að vera "mjúkt og loðkennt", eiginleikar sem þau fundu í verkum súrrealíska listamannsins Salvador Dalí. En hver voru mörkin milli raunverulegs rýmis og þess hverfula?
Meira
Seljendur * Sölusamningur - Áður en fasteignasala er heimilt að bjóða eign til sölu, ber honum að ganga frá sölusamningi við eiganda hennar um þjónustu fasteignasala á þar til gerðu samningseyðublaði.
Meira
Garðabær - Fasteignasala Íslands er með í sölu einbýlishús að Sigurhæð 1 í Garðabæ. Þetta er steinhús, byggt 1992 og er það alls 292 fermetrar að stærð með innbyggðum bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum.
Meira
SÍÐASTA föstudag var tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu við húsnæði SKÝRR, Ármúla 2. Núverandi húsnæði fyrirtækisins var farið að þrengja að starfsemi þess og starfsfólki og því þótti brýnt að stækka það.
Meira
Reykjavík - Eignasalan-Húsakaup er nú með í sölu sérhæð í húsinu Stigahlíð 35. Þetta er steinhús, byggt 1965 og er hæðin 165 fermetrar að stærð. Bílskúrinn er 26,6 fermetrar. "Þetta er ein allra glæsilegasta sérhæð landsins, sem hér er til sölu.
Meira
Á vefnum timarit.is er að finna stafrænt safn Landsbókasafns yfir helstu dagblöð og tímarit landsins. Þetta er eina leiðin til að leita að efni úr Morgunblaðinu frá því fyrir 1986.